Sjálfsbjargarfréttir 1. tbl. 2012

16
Sjálfsbjargarfréttir Fréttablað Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu, 33. árg. 1. tbl. 2012 Nauðsynlegt að rjúfa einveru Bjarta ljósið er hópur á Facebook Að finna hagnýtar upplýsingar

description

Fréttablað Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu, 33. árg. 1. tbl. 2012

Transcript of Sjálfsbjargarfréttir 1. tbl. 2012

Page 1: Sjálfsbjargarfréttir 1. tbl. 2012

SjálfsbjargarfréttirFréttablað Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu, 33. árg. 1. tbl. 2012

Nauðsynlegt að rjúfa einveru

Bjarta ljósið er hópur á Facebook

Að finna hagnýtar upplýsingar

Page 2: Sjálfsbjargarfréttir 1. tbl. 2012

Sjálfsbjargarfréttir

2

Forsíðumyndina tók Guðlaug M. Christensen af haustlit-unum í Þingvallasveitinni.

Umsjón með útgáfu: Gunnar Kr. Sigurjónsson.Umbrot og hönnun: G10 ehf. – umbrot og hönnun | [email protected]: Litlaprent ehf., Skemmuvegi 4, Kópavogi.Ritnefnd: Ásta Dís Guðjónsdóttir (ábm.), Hilmar Guðmundsson, Jóna Marvinsdóttir.

Ljósmyndir: Hössi H. (Höskuldur Þór Höskuldsson), Ásta Dís Guðjónsdóttir, Gunnar Kr. Sigurjónsson o.fl., m.a. úr einkasafni einstaklinga.

Það er mér ljúft og skylt sem nýjum formanni félagsins að stinga niður penna og þakka fyrir ánægjulegt sumar. Eins og flestir vita fellur hið fjölbreytta félagsstarf hjá Sjálfsbjörg niður yfir sumartímann en þá tekur sjálfboðaliðahópur Krika við keflinu og ég er stolt af því að hafa tilheyrt þeim góða hópi enda áttum við frábært, sólríkt og eftirminnilegt Krikasumar.

Salurinn okkar fékk upp-lyftingu í sumar þegar hann var stækkaður um geymsluna í enda salarins, fékk nýja klæðningu á austurhlið, nýja glugga og um leið bjartara yfirbragð. Vegna þessa varð svolítil röskun á starf-inu og vona ég að það hafi ekki komið að sök, en vil um leið nota tækifærið og þakka öllum sem að þessu verkefni komu og starfsfólkinu okkar fyrir dugnað og að standa sig með prýði þrátt fyrir aukið álag.

Við misstum nokkra félaga á árinu og er þeirra saknað. En um leið kveðjum við með vinsemd og þökk fyrir samstarf og sam-veru liðinna ára. Þá höfum við

fengið til liðs við okkur nýja félagsmenn sem hafa nú þegar sýnt og sannað að þeir bera gæfu til að vera félaginu styrkur inn í framtíðina og vil ég bjóða þá velkomna til starfs og leiks.

Það er einlæg ósk mín að með því að fá til liðs við félagið fleira ungt, fatlað fólk megi endur-skoða stefnur og strauma félags-ins frá fyrri árum og jafnvel finna nýjar leiðir til að takast á við það sem á okkur brennur og skýra þá braut sem við veljum okkur í baráttunni sem framundan er.

Ég held nefnilega að í hönd fari sá tími sem við þurfum að standa saman sem aldrei fyrr. Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna fyrir fatlaða hefur enn ekki verið lögfestur og skerðingar frá árinu 2009 eru enn að íþyngja okkur þrátt fyrir loforð um að þær yrðu eingöngu tímabundnar á meðan illa áraði. Á meðan megum við horfa upp á ráðamenn þjóðarinnar hygla sjálfum sér og öðrum háttsettum með auknum lífeyrisréttindum, beinum launahækkunum, hærri greiðslum fyrir nefndasetur og auknum sporslum á meðan þeir halda áfram að skera niður hjá þeim sem síst mega við því. Enn er skorin niður þjónusta í heil-brigðiskerfinu. Sjúkraþjálfun og forvarnir nýtast ekki vegna mik-ils kostnaðar, bensínstyrkir og styrkir til bifreiðakaupa og breyt-inga bifreiða fyrir fatlaða öku-menn, eru ekki í neinu samræmi við raunverð. Ferðaþjónustan er boðin út án tillits til hagsmuna þeirra fötluðu, greiðslur hafa lækkað til flestrar þjónustu við fatlaða og enn er ýmsu ábótavant í húsnæðismálunum. Við þurfum

að skoða hug okkar til margs eins og staðan er nú á árinu 2012 og ákveða hverju viljum við breyta, hvaða slag við eigum að taka og hvar er komið gott.

Ég vil á þessum tímamótum minna á að við getum horft stolt til baka. Arfleifð félagsins er mikil og góð og við höfum oft látið til okkar taka þegar þess hefur þurft. Þjónustumiðstöðin er dæmi um nýlegt verkefni félagsins sem sýnir að við höfum ekki enn lagt upp laupana og bygging Sjálfsbjargarheimilisins á sínum tíma var ekkert minna en hreint stórvirki.

Er það ekki einmitt svo að „sameinaðir stöndunum vér, sundraðir föllum vér“?

Ég vil hér að lokum minna á Súpu og samveru, sem hefur verið á þriðjudögum undanfarið en verður í vetur bæði á þriðju-dögum og á fimmtudögum. Við vonumst til þess að nýr tími á fimmtudögum verði til þess að félagsheimilið nýtist betur til samveru að degi til og er mein-ingin að koma af stað hópastarfi s.s. prjónahópi, föndurhópi, spilahópi o.s.frv. ef þátttaka næst.

Við verðum með öflugt félags-starf í vetur eins og sjá má á dag-skránni en allt félagsstarf er rekið í sjálfboðavinnu og fyrir velvild bæjarfélaga, aðildarfélaga, fyrir-tækja og einstaklinga sem styrkja okkar góða starf af mikilli óeig-ingirni og þakka ég þeim hér með fyrir hönd félagsins.

Ég hlakka til samstarfsins og er viss um að saman eigum við Sjálfsbjargarfélagar bjarta fram-tíð á komandi árum.

Formannspistill

Ásta Dís Guðjónsdóttir

formaður Sjálfsbjargar á höfuðborgar-

svæðinu

Sjálfsbjargarfréttir – 33. árg. 1. tbl. 2012Útgefandi: Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu,Hátúni 12, 104 Reykjavík, sími: 551 7868, netfang: [email protected].

Page 3: Sjálfsbjargarfréttir 1. tbl. 2012

3

Sjálfsbjargarfréttir

Á hverjum þriðjudegi og hverjum fimmtudegi í vetur, verður boðið upp á svokallaða Súpu og samveru í Sjálfsbjargarsalnum í Hátúni 12.

Þetta er þriðji veturinn sem Jóna er í forsvari fyrir starfsemina og nýtur dyggrar aðstoðar Þórunnar Elíasdóttur og Önnu Sigríðar Antonsdóttur. Alltaf er boðið upp á góða og matarmikla súpu, brauð og álegg, auk þess sem gestir geta iðulega fengið með sér brauð- og grænmeti á þriðjudögum.

„Ég er ættuð að vestan,“ segir Jóna, „en flutti 1968 til Reykja-víkur. Þegar ég var rétt að verða 15 ára var ég í leikfimi í skóla, að gera æfingu, þegar ég missti jafn-vægið, fékk hnykk á hálsinn og það blæddi inn á mænuna. Þetta orsakaði lömun og ég hef verið öryrki eftir þetta slys.

Ég hef starfað við allt mögulegt og ómögulegt í gegnum tíðina, en eftir að ég missti vinnuna hef ég komið hingað og séð um súp-una og það hefur gefið mér heil-mikið og um nóg er að hugsa.“

Jóna segir að á þriðjudögum sé iðulega boðið upp á grænmeti, sem fólk geti fengið heim með sér, en það fær Sjálfsbjörg að gjöf frá Sölufélagi garðyrkjumanna.

„Svo fáum við líka alls konar brauð frá Reyni bakara á Dalvegi og Sveinsbakaríi í Arnarbakka. Þetta er ómetanlegur stuðningur sem við kunnum vel að meta. Við höfum líka fengið styrki frá Pokasjóði og sóttum nýverið um styrk frá Reykjavíkurborg.“

– Og hvað kosta herlegheitin?„Súpan, ásamt meðlæti, kostar

300,- kr. í hvert skipti, en svo er hægt að kaupa kort fyrir 3.000,- kr., en það eru 11 miðar á kort-inu. Þetta er eins ódýrt og hægt er að hafa það.

Auk þess eru fimmtudagarnir komnir sterkt inn. Þá bjóðum við upp á lengri samveru, konurnar hafa prjónað eða unnið við aðra handavinnu og karlarnir oft tekið í spil og ýmislegt fleira. Hug-myndin er líka að reyna að bjóða upp á utanaðkomandi skemmti-atriði, svo sem söng, hljóðfæra-leik, dans, upplestur o.fl.

Á hverju vori er farið í dagsferð og á sumrin flyst starfsemin upp í Krika. Ég hef eldað kjötsúpu

1–2 sinnum á ári, sem hefur verið mjög vinsæl, og er hún seld gestum og gangandi til styrktar Krika.

Við viljum gjarnan fá tillögur frá fólki, hvað það vill sjá og hvað það vill gera hér í Súpu og sam-veru.

Í desember hefur svo verið jólamatur og þá höfum við alltaf fengið góðan afslátt hjá Ásbirni Ólafssyni. Við höfum fengið um 60 manns í matinn og allir him-inlifandi glaðir.

Það er nauðsynlegt að rjúfa einveru og hitta fólk. Þetta er einmitt vettvangurinn til þess, mjög gefandi og fólk eignast góða vini,“ segir Jóna að lokum.

GKS

„Nauðsynlegt að rjúfaeinveru og hitta fólk,“

segir Jóna Marvinsdóttir, sem er í forsvari fyrir Súpu og samveru í Hátúni 12

Þær sjá um Súpu og samveru, Jóna Marvins-dóttir, Þórunn Elías-dóttir og Anna Sigríður Antonsdóttir.

Page 4: Sjálfsbjargarfréttir 1. tbl. 2012

Sjálfsbjargarfréttir

4

Leiga á salnumSalur félagsins að Hátúni 12, er til leigu fyrir veislur og fundarhöld. Hann er tilval-inn fyrir fermingarveislur, afmæli, útskriftarveislur, brúðkaup, erfidrykkjur og ýmsa mannfagnaði.Upplýsingar í síma 551-7868.Netfang: [email protected] og [email protected]ð:20.000,- kr. fyrir félagsmenn40.000,- kr. fyrir aðra.

Gott sumar í Krika

Kristín R. Magnúsdóttir

umsjónarmað- ur Krika, við

Elliðavatn

Hvað er Kriki? Hann er paradís Sjálfsbjargar og það vita allmarg-ir nú þegar. Gestakomum fjölgar ár frá ári. Á nýliðnu sumri voru fleiri viðburðir en árin áður og það hafði sitt að segja.

Sumarið var einstaklega gott, nánast sól upp á hvern dag og sólpallurinn oftast þétt setinn.

Fastir liðir voru: Vöfflubakstur á sunnudögum, grillaðar pylsur á föstudögum og smurt brauð með kaffinu á þriðjudögum. Hinn vinsæli Bátadagur í ágúst og Haladagar í júní og júlí og Prjónadagar og kjötsúpudagur.

En alltaf er það blessuð sólin og góða veðrið sem draga mest að eins og vera ber. Út og suður–hópurinn (40 ára+) og Klúbb-urinn Geysir, koma á hverju sumri. Það kom einn bekkur yngri barna úr Vatnsendaskóla, ásamt kennurum og unglinga-hópur frá CP–félaginu. Einnig

Ég þakka samverkafólki mínu, svo og gestum, fyrir frábært sumar. Megi næsta sumar einnig verða okkur gott.

Kristín Kriki

komu nokkrir aðrir hópar, bæði fatlaðra og ófatlaðra. Sumir pöntuðu vöfflur með kaffinu, en flestir leigðu grillið og grilluðu sjálfir handa sínu fólki.

Á bakvið hús er kominn vísir að garði, með rifsberjarunnum, rabarbara og myntu.

Sjálfboðaliðar höfðu opið alla daga vikunnar frá maí og fram í september, þó var aðeins opið á sunnudögum í september.

Page 5: Sjálfsbjargarfréttir 1. tbl. 2012

Sjálfsbjargarfréttir Sjálfsbjargarfréttir

Þekkingarmiðstöðin

Rannveig Bjarna-dóttir hjá Þekking-ar miðstöðinni í Hátúni 12

Þekkingarmiðstöð Sjálfsbjargar var opnuð formlega 8. júní síðastliðinn. Í dag starfa þar 5 ráðgjafar í 3,75% stöðugildum. Þekkingarmiðstöðin er opin frá 10–16 alla virka daga og er hægt að koma við hjá okkur á þeim tíma í Hátúni 12, þar er alltaf heitt á könnunni og allir velkomnir. Þú getur líka hringt til okkar í síma 5 500 118. Þekkingarmiðstöðin er á Face-book og Twitter, við komum með nýjar upplýsingar á Face-book daglega og erum þakklát fyrir aðstoð við að deila síðunni og hvetjum fólk til að „líka við“ síðuna.

Hlutverk Þekkingarmiðstöðv-arinnar er m.a. að safna og miðla upplýsingum sem gagnast hreyfi-hömluðu fólki um allt land. Þar sem markmið Þekking ar mið-stöðv ar inn ar er að vera hlut laus og óháð taka ráð gjaf ar henn ar ekki þátt í hags muna bar áttu né

fylla út umsóknir fyrir einstak-linga.

Á vefsíðu Þekkingarmiðstöðv-arinnar www.thekkingarmidstod.is

er að finna hagnýtar upplýsingar um flest allt sem gagnast fötluðu fólki í daglegu lífi svo sem um aðgengi, reynslu fólks af gistingu innanlands og erlendis, þjónustu sveitarfélaganna og hjálpartæki. Ef spurningar vakna við skoðun vefsíðunnar er t.d. hægt að hafa samband við okkur í gegnum svarbox á síðunni frá klukkan 10–16. Einnig viljum við hvetja fólk til að senda okkur upp-lýsingar af eigin reynslu t.d. af ferðalögum innanlands. Þessar upplýsingar er mikilvægt að hafa á vefsíðunni.

Á vefnum finnur þú líka upp-lýsingar um öll námskeið sem eru á döfunni og tengjast á einn eða annan hátt daglegu lífi hreyfihaml-aðs fólks. Ef þú hefur hugmynd um námskeið hafðu þá samband við Þekkingarmiðstöðina. Við hlökkum til að heyra frá þér.

Guðbjörg Kristín (Didda), Rannveig, Guðný, Sigurbjörg og Andri, fyrir utan þekkingar-miðstöðina í Hátúni 12.

Page 6: Sjálfsbjargarfréttir 1. tbl. 2012

Sjálfsbjargarfréttir

6

Að fjalla um tekjur öryrkja eða afkomu getur verið flókið mál, því fólk hefur tekjur úr mismun-andi áttum, þess vegna ætla ég aðeins að tala út frá TR.

Tekjur frá TR eftir skatt eða það sem kemur í budduna því það er eina sem skiptir máli. Dæmi: Öryrki sem býr með öðrum og hefur enga aðrar tekjur en frá TR er með 156.153 kr. á mánuði eða 1.906.721 kr. á ári og á litla sem enga möguleika á að auka tekjur sínar því skerðingarákvæðin eru svo þröng.

Þá kemur að því hvernig á að bæta afkomuna. Það sem liggur fyrir er að berjast þar fyrir hækk-un á skattleysismörkum því það er það eina sem er til bóta. Að fara fram á launahækkanir er alveg tilgangslaust því þegar aur-arnir koma í veskið er búið að hækka allar vörur og þjónustu

sem við þurfum að nota, auk þess fer tæp 40% af hverri krónu beint til Ríkisins aftur að við-bættum vask sem hækkar þar sem vara og þjónusta hækkar.

Í apríl á næsta ári eru kosn-ingar til Alþingis og verðum við að nota tímann fram að því til þess að hamra á þingmönnum og ráðherrum til að lagfæra okkar kjör og greiða það til baka sem af okkur var haft frá árinu 2008 til dagsins í dag með því að fara ekki að lögum og hækka samkvæmt neyslu og/eða fram-færsluvísitölu, það getur haft verulegar hækkanir í för með sér til okkar.

Ef einhver er með tekjur ann-arstaðar frá eða aðrar bætur frá TR nema barnameðlög þá skerð-ast bætur hans um krónu á móti krónu, þannig að mjög erfitt er að auka tekjur sínar.

Tekjur öryrkja

Hilmar Guðmundsson er í varastjórn Sjálfsbjargar á höfuðborgar-

svæðinu

Jólabasar 1. desemberJólahappdrætti og kaffisala Sjálfsbjargar félags fatlaðra á höfuð-borgarsvæðinu verður haldin laugardaginn 1. desember kl. 14:00, í félagsheimilinu Hátúni 12. Fjöldi góðra vinninga. Mætum öll og eigum saman ánægjulegan dag.Á þessu ári vill svo skemmtilega til að tvennir

tvíburar, sem tengjast Sjálfsbjörg, eiga níræð-isafmæli. Það eru þær Hlaðgerður Snæbjörns-dóttir og Svanhildur Snæbjörnsdóttir, en þær urðu níræðar nú 14. október. Hinar tvíburasyst-urnar eru Ólöf Ríkarðsdóttir og Ásdís Ríkarðs-dóttir, sem urðu níræðar 14. júní. sl.

Sjálfsbjörg á höfuðborg-arsvæðinu óskar þeim innilega til hamingju með afmælið og í leiðinni er rétt að

senda öllum sem hafa og munu eiga

afmæli á árinu 2012 afmæliskveðjur.

Minningar-kort

SjálfsbjargarMinningarkort Sjálfsbjargar félags fatlaðra á höfuðborg-arsvæðinu eru seld á skrif-stofu félagsins. Einnig er hægt að hringja og panta eða senda tölvupóst. Sími á skrif-stofu er: 551-7868.

Netföng: [email protected] og [email protected]

SundkortSjálfsbjörg á höfuðborgarsvæð-inu gefur út sundkort gegn framvísun örorkuskírteinis, umönnunarkorts eða endur-hæfingarskírteinis frá TR.Kortin eru afgreidd til 70 ára aldurs.Verð 1.200,- og 2.000,- kr. með hjálparmanni. Sund-kortin gilda almanaksárið. Kortin eru útbúin á skrif-stofu félagsins að Hátúni 12.

Tvennir tvíburar níræðir í ár

Page 7: Sjálfsbjargarfréttir 1. tbl. 2012

7

Sjálfsbjargarfréttir

Bjarta ljósið er á FacebookSamtökin Bjarta ljósið voru stofnuð þegar Sunna Rós Baxter var að vinna í sjálfri sér og henni fannst tilfinnanlega vanta sam-tök, félag eða hóp fyrir fólk sem upplifði að það passaði ekki alls staðar inn, en vildi gjarnan vera í kringum fólk sem myndi skilja hvert annað.

„Ég vildi ekki hóp sem var fyrir einhvern ákveðinn aldur eða þar sem allir eru með sama vandamálið eins og alkólisma eða eitthvað slíkt,“ sagði Sunna. „Ég vildi hafa þetta dreift á alla mögulega vegu, þannig að við gætum lært eitthvað nýtt, þar sem allir gætu hjálpað öllum, sama hvert vandamálið er, svona í flestum tilfellum.

Það eru tæplega 600 manns í hópnum núna, af báðum kynj-um, og er mikið um að fólk hitt-ist og eins er spjallað á netinu.

Nú á að fara vinna að nýrri heimasíðu, því eins og er erum við aðeins á Facebook. Þar verð-ur spjall, hægt að taka allskonar próf og lesa um ýmiss konar ein-kenni, sjá hvenær fólk mun hitt-ast og margt fleira. Þetta verður síða með mjög fjölbreyttu efni og upplýsingum fyrir fólk til að at-huga hvort eitthvað gæti verið að þeim og hvernig hægt sé að leita sér aðstoðar. Árangurinn fram að þessu hefur verið mjög góður. Margir eru farnir að opna sig og deila reynslusögum, eitthvað sem fólk hefur ekki gert áður og eins leita margir sér persónu-legrar hjálpar. Sumir hafa deilt inni á síðunni að þeim finnist þeir vera á lokapuntkinum og við gerum allt sem við getum til að hjálpa þeim upp aftur.

Fólk hefur verið mjög þakklátt fyrir þennan vettvang og sagt að þetta hafi hjálpað sér gríðara-lega mikið.

Facebook–síðan er lokuð, þannig að sækja þarf um aðgang, en innan hennar er allt mjög opið og frjálslegt, flest leyfi-legt, svo framarlega sem borin er virðing fyrir náunganum. Fólkið boðar sjálft til viðburða, hvenær og hvar á að hittast og allir eru velkomnir. Sumir skrifa skilaboð á síðuna, aðrir fylgjast bara með og lesa það sem þar er að finna. Það er algjörlega undir hverjum og einum komið á hvaða hraða viðkomandi vill taka þetta og hvað hver einstak-lingur er tilbúinn að gera. Sumt fólk hefur bara samband við mig, vegna þess að því finnst það nóg sem fyrsta skref og það bara gott mál.“

Sunna Rós vill nota tæki-færið hér í blaði Sjálfs-bjargar á höfuðborgar-svæðinu, til þess að hvetja alla þá sem hafa áhuga á að kynnast Bjarta ljósinu betur, endilega að hafa samband við sig.

Þú getur t.d. sent Sunnu Rós skilaboð á Facebook og kynnt þér hvort þessi hópur, Bjarta ljósið, sé eitthvað fyrir þig. Eins ef þú þekkir einhvern sem á í sálarkreppu í augnablikinu, þá gætirðu bent honum/henni á hópinn og lagt þitt af mörkum fyrir viðkomandi einstakling. Það kostar ekkert að hafa sam-band og fá nánari upplýsingar, en ekki bíða með það, hafðu samband strax í dag.

Veffang hópsins er: facebook.com/groups/bjartaljosid

GKS

Sunna Rós Baxter.

Page 8: Sjálfsbjargarfréttir 1. tbl. 2012

Sjálfsbjargarfréttir

8

heimili í Reykjavík en síðar á Djúpavogi þar sem systurnar eru fæddar.

„Síðar fór pabbi til frekara náms í Rómarborg og var meðal annars samtíða Davíð Stefáns-syni frá Fagraskógi. Það var þá sem Davíð orti meðal annars ljóðið um Caprí Catarínu og pabbi skrifaði jafnharðan það sem Davíð þuldi upp, annars er óvíst að textinn hefði varðveist.“

Ólöf fékk mænuveiki þegar hún var tveggja ára gömul og fór hún fjórar ferðir til Danmerkur, tvær með föður sínum og tvær með móður sinni, til að leita lækn-inga. Eftir það gat hún gengið við tvo stafi.

„Og pabba dreymdi fyrir þessu,“ segir Ásdís. „Í draumn-um var hann á gangi með okkur börnin og allt í einu vantaði Ólöfu. Svo fann hann hana og þá var hún sokkin í pitt upp að mitti.“

„Þegar ég veiktist voru að-stæður mínar betri en margra annarra sem veiktust,“ segir Ólöf. „Það var farið með mig út til Danmerkur að fá spelkur og ég man að mamma mátti ekki koma inn til mín á sjúkrastofuna og þurfti að kíkja inn um dyra-gættina,“ sagði hún. „Þannig var tíðarandinn, en ég vildi auðvitað fá hana inn til mín. Eftir dvölina þar var eins og ég gleymdi ís-lenskunni um tíma og ég talaði

bara dönsku, því allir töluðu dönsku í kringum mig. Þegar ég kom heim sagði barn í næsta húsi að annar tvíburinn væri danskur og hinn íslenskur.

Það var keypt handa mér þrí-hjól sem var drifið áfram með handafli. Pabbi og bróðir minn, sem var arkitekt, hönnuðu síðar handknúinn hjólastól, til úti-notkunar, sem ég notaði í 25 ár til að komast um á þar til ég fékk mér bíl.“

Ásdís fór til píanónáms í Tón-listarskólanum og svo í fram-haldsnám sem tón mennta kenn ari og Ólöf hélt í Sam vinnu skólann. Þrátt fyrir að Verzl un ar skól inn væri við hlið heimilis þeirra á Grundarstíg, kom ekki til greina að hún færi í hann.

„Pólitíkin var þannig þá, því pabbi var svo mikill vinstrimað-ur, en íhaldsmenn réðu ríkjum í Verzlunarskólanum. Því þurfti ég að fara í Samvinnuskólann við Sölvhólsgötu og fara stigana á hverjum degi upp á fjórðu hæð, en þá gekk ég við tvo stafi. Síðar vann ég við skrifstofustörf hjá KRON uppi á fjórðu hæð í 25 ár þar sem ekki var heldur lyfta,“ segir Ólöf.

„Árið 1959 voru fyrstu fund-irnir haldnir heima, þegar lögð voru drög að stofnun félags fyrir fatlaða, sem síðar varð Sjálfs-björg. Fljótlega voru stofnaðar deildir um allt land og þegar mest

„Mikilvægast var að koma skilgreiningu á

aðgengi fyrir fatlaðaí byggingareglugerðir á Íslandi,“

segja tvíburasysturnar Ólöf og Ásdís Ríkarðsdætur, en þær urðu níræðar á árinu.

Tvíburasysturnar Ólöf og Ás-dís Ríkarðsdætur urðu níræðar um miðbik júní sl. en Ólöf hef-ur starfað ötullega fyrir Sjálfs-björg um áraraðir.

Þær eru dætur hjónanna Maríu Ólafsdóttur, saumakonu, frá Dallandi í Borgarfirði eystra og Ríkarðs Jónssonar, myndhöggv-ara og myndskera, sem fæddist í Tungu í Fáskrúðsfirði, en hann ólst upp á Strýtu við Hamars-fjörð. Þau kynntust í Danmörku, þar sem Ríkarður var í mynd-listarnámi en María vann þar við fatasaum. Þau komu heim til Íslands 1913 og bjuggu sér fyrst

Ásdís og Ólöf Ríkarðsdætur

sitja á bekk sem Ríkarður faðir þeirra skar út.

Page 9: Sjálfsbjargarfréttir 1. tbl. 2012

9

Sjálfsbjargarfréttir

var voru 17 félög starfandi. Það mikilvægasta sem félagið áork-aði, að mínu mati, var að koma því til leiðar að aðgengi fyrir fatlaða er nú skilgreint í bygg-ingareglugerðum. Það hefði ekki tekist svo snemma ef ekki hefði verið fyrir Sjálfsbjörg og starf þeirra sem lögðu félaginu lið, þetta lyfti Grettistaki,“ segir Ólöf.

Og þar sem Ólöf var svo vel að sér í dönsku, nýttust kraftar hennar vel í norrænu samstarfi, sem var bæði mikið og skemmti-legt að hennar sögn.

„Þar kynntist ég því hvernig byggingarlöggjöf hinna Norður-landanna var og við komum þessu í gegnum Alþingi hér. Hin löndin voru svo miklu framar í að jafna réttindi fatlaðra.“

Þær sögðu að fyrsti hjólastóll-inn hafi komið á vegum félagsins upp úr 1960, en áður hafi verið eins og ekki væri ætlast til að fatl-aðir færu ferða sinna. Til dæmis mundu þær systur eftir stúlku um tvítugt, sem hafði fengið lömunarveiki, en þurfti að skríða um á gólfinu til að færa sig til.

Ólöf sagði það hafa verið mikið gæfuspor fyrir félagið að eignast gott húsnæði fyrir starfsemi sína og félaga.

„Svo fyrir hrun lék grunur á að til stæði bjóða Sjálfsbjargarhúsið til sölu og koma því í hendur „at-hafnamanna“, en ég fékk Gylfa heitinn Baldursson með mér á

„Mikilvægast var að koma skilgreiningu á

aðgengi fyrir fatlaðaí byggingareglugerðir á Íslandi,“

segja tvíburasysturnar Ólöf og Ásdís Ríkarðsdætur, en þær urðu níræðar á árinu.

fund Jóhönnu Sigurðardóttur og með hennar hjálp tókst okkur að koma í veg fyrir þetta. Það stóð tæpt, en tókst samt. Á sama tíma komu einnig fram einstak-lingar sem vildu breyta um nafn á landssambandinu, bara til að breyta, en það náði ekki fram, sagði Ólöf “

Ásdís og Ólöf sögðust mjög ánægðar með með starfsemi Halaleikhópsins og vildu gjarn-an nefna hið frábæra starf þeirra í þeim tilgangi að fleiri vissu af starf semi leikhópsins.

Þrátt fyrir að margt hafi áunnist í réttindabaráttu fatlaðra í gegn-

um árin, þá er full þörf á svona félagi í dag, segja þær systur, því aldrei má láta deigan síga.

„Sífellt þarf að viðhalda bar-áttunni og nauðsynlegt er að for-ysta félaganna sé sterk og alltaf á varðbergi,“ segja þær Ólöf og Ásdís að lokum.

GKS

Ólöf og Ásdís á heimili sínu í Reykjavík.

Page 10: Sjálfsbjargarfréttir 1. tbl. 2012

Sjálfsbjargarfréttir

10

Strandgötu 16, Akureyri

Mánudaga – Bridge: kl. 18:00.Annan hvern þriðjudag – Bingó: kl 19:30.Annan hvern þriðjudag – UNO: kl. 19:30.

Miðvikudaga – Félagsvist: kl. 19:00.Fimmtudaga – Skák: kl. 18:30.

Alla þriðjudaga og fimmtudaga – opið hús /Súpa og samvera frá kl 11:30–13:00. Ath. Á fimmtudögum verður boðið uppá lengri

viðveru og ýmsa afþreyingu.

• Karaoke–kvöld /skemmtikvöld föstudaginn 26. október.

• Félagsfundur þriðjudaginn 30. október.

• Karaoke–kvöld / skemmtikvöld föstudaginn 23. nóvember.

• Jólahlutavelta / kaffisala laugardaginn 1. desember kl: 14:00.

• Jólabingó þriðjudaginn 4. desember.

• Síðasti dagur félagsstarfs fyrir jólafrí er 12. desember.

• Félagsstarfið hefst aftur eftir jólafrí mánudaginn 7. janúar 2013

með hefðbundinn dagskrá.

• Bingó þriðjudaginn 8. janúar 2013

• Þorrablót laugardaginn 9. febrúar nánar auglýst síðar.

AðalstyrktaraðilarSjálfsbjargarfélags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu

Dagskrá félagsstarfsinshaust 2012 og vor 2013

Færum við þeim okkar bestu þakkir, og einnig þeim fjölmörgu sem hafa styrkt okkur, bæjarfélögum, einstaklingum og fyrir-

tækjum. Styrkir ykkar eru okkur mikilvægir.

Knattspyrnufélagið Þróttur

Kópavogsbær

Artice maintenance ehf

Page 11: Sjálfsbjargarfréttir 1. tbl. 2012

Reykjavík: Aðalbjörg, Fiskislóð 53Aðalblikk ehf, Vagnhöfða 19Allrahanda hópferðarbílar, Höfðatúni 12Argos ehf arkitektar, Eyjaslóð 9Arkform ehf, Ármúla 38Ask arkitektar, Geirsgötu 9Augað Gleraugnaverslun, Kringlunni 8-12Áltak ehf, Stórhöfða 33Árbæjarapótek, Hraunbæ 102bBananar ehf, Súðavogi 2Bandlag háskólamanna, Borgartúni 6Best Western-Hótel Reykjavík, Rauðarárst. 37Betri Bílar ehf, Skeifunni 5cBifreiðastilling Nicolai, Faxafeni 12Bílamálun Halldórs, Funahöfða 3Bílasmiðurinn hf, Bíldshöfða 16Bíll.is Bílasala, Malarhöfða 2Blaðamannafélag Íslands, Síðumúla 23Bókhalds og tölvuþjónustan, Böðvarsgötu 11Bókhaldsstofa Ingimundar, Ármúla 15Bókhaldsþjónustan Viðvik, Skeifunni 4BSRB, Grettisgötu 89Búr ehf, Bæjarflöt 2Efling, Sætúni 1Eldhús sælkerans, Lynghálsi 3ENN EMM, Brautarholti 10-14Ernst og Young, Ármúla 6Fanntafól hf, Bíldshöfða 12Faxaflóahafnir, Tryggvagötu 17Fást ehf heildverslun, Köllunarklettsvegi 4Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga,

Suðurlandsbraut 22Félagsbúðstaðir, HallveigarstígFjármálaeftirlitið, Suðurlandsbraut 32Fröken Júlía ehf, MjóddFönix, Hátúni 6aGarðsapótek, Sogavegi 1108Garður Fasteignasala, Skipholti 5Geiri ehf, Bíldshöfða 16Gistihús Bínu, BugðulækGjögur hf, Kringlunni 7Glófaxi ehf, Ármúla 42Gluggahreinsun Loga, Funafold 4Grandaskóli, KeilugrandaGuðmundur Arason ehf, Skútuvogi 4Guðmundur Jónasson, Borgartúni 34Gullborg leikskóli, Rekagranda 14Gullkistan, Frakkastíg 10Gullsmiðurinn í Mjódd, Álfabakka 14Gunnar Eggertsson hf, Sundagörðum 6Hafgæði sf, Fiskislóð 28Hagall, Box 1166Halldór Jónsson ehf, Skútuvogi 4Hamraskóli, Dyrmömrum 9Harka ehf, Hamarshöfða 7Hágæði ehf, Fálkakletti 25Hárgreiðslustofa Höllu, Miðleiti 7Hárgreiðslustofan hjá Hönnu, Baughúsum 9Háskólabíó, v/HagatörgHelena Hólm Hárgreiðslustofa, Barðastöðum 1

Hjá Jóa Fel, Kleppsvegi 152Hjálparstarf kirkjunnar, Laugavegi 31Hjálpræðisherinn, Kirkjustræti 2Hótel Leifs Eiríkssonar, Skólavörðustíg 45Hreyfimyndasmiðjan, Garðsenda 21Höfðakaffi ehf, Vagnhöfða 11Iceland Seafood, KöllunarklettsvegiInnx innréttingar ehf, Fákafeni 11Íslandsmarkaður, Iðavöllum 7Ísleifur Jónsson, Draghálsi 14-16Íslensk Endurskoðun, Grensásvegi 16Íslensk Erfðagreining, Sturlugötu 8J.S. Gunnarsson, Fossaleyni 10Jón Ásbjörnsson hf, Geirsgötu 11Jónsson og Lemacks ehf, Vesturgötu 10aK Pétursson, Kristnibraut 29Keiluhöllin ehf, Box 8500Kistufell ehf, Brautarholti 16Kjötborg, Ásvallagötu 19Klettaskóli, v/SuðurhlíðKOM Almannatengsl, Borgartúni 20Kone ehf, Box 8710Kraftur hf, Vagnhöfða 1-3Kríunes ehf, KríunesiLandbúnaðarháskólinn, KeldnaholtiLandsnet, Gylfaflöt 9Laugardalslaug, LaugardalLásahúsið ehf, Bíldshöfða 16Leðurprent, Dugguvogi 12Lionsumdæmið á Íslandi, Sóltúni 2aLitir og föndur, Skóalvörðustíg 1Lífland, Korngörðum 5Loftstokkahreinsun, Garðhúsum 6Löndun ehf, Kjalarvogi 21Margmiðlun Jóhannesar, Frostafold 20Málarmeistarinn, Logafold 188Merkismenn, Ármúla 36Nesbrú ehf, Frostafold 3Olíudreyfing, GelgjutangaOrkusalan, Bíldshöfða 9Orkuvirkni ehf, Tunguhálsi 3Ósal ehf, Tangarhöfða 4Paralogis, Krókhálsi 14Pixel ehf, Brautarholti 10-14Píanóskóli Þorsteins, Box 8540Plúsmarkaðurinn, Hátúni 10bPrenstmiðjan Oddi, Höfðabakka 3-7Prentmet, Lynghálsi 1Pökkun og Flutningar, Smiðshöfða 1Rafha ehf, SuðurlandsbrautRafsól ehf, Skipholti 33Rafstilling, Dugguvogi 23Rafsvið hf, Haukshólum 9Raförninn ehf, Suðurhlíð 35Rarik, Bíldshöfða 9Ráðlagður Jasskammtur, Álfheimum 2Rimaapótek, Langarima 21Rimaskóli, Rósarima 11Seljakirkja, Hagaseli 40Sigurður S Snorrason, Grundargerði 20Sigurjón og Thor, Lágmúla 7

SÍBS, Síðumúla 6Sjóvá Almennar, Kringlunni 6Sjúkraliðafélag Íslands, Grensásvegi 16Skóverslunin Bossanova, Kringlunni 8-12Skúlason Jónsson ehf, Skútuvogi 12hSP Tannréttingar, Álfabakka 14Sportbarinn ehf, Álfheimum 74Sportís, Mörkinni 6Sportlíf, Álfheimum 79SSF, Nethyl 2eStéttarfélag Verkfræðinga, Engjateig 9Stórkaup, Faxafeni 8Suzuki bílar, Skeifunni 12Talnakönnun, Borgartúni 23Tannlæknastofa Friðgerðar, Laugavegi 163Tannlæknastofa Guðrúnar Ólafsdóttur,

Snorrabraut 29Tark, Brautarholti 6Tölvar ehf, Síðumúla 1Umslag ehf, Lágmúla 5Útfarastofa Íslands, Suðurhlíð 35Útfarastofa Rúnars, Fjarðarási 25Valhöll fasteingnasala, Síðumúla 27Veislusetrið veisluþjónusta, Borgartúni 5Verbréfaskráning Íslands, Laugavegi 182Verslunin Brynja, Laugavegi 29Verslunin Fríða Frænka, Vesturgötu 3Vélvík ehf, Höfðabraut 1Vinaminni leikskóli, Asparfelli 10Vífilfell, Stuðlahálsi 1Víking Hús, Ármúla 32VR, Kringlunni 7VSÓ ráðgjöf, Borgartúni 20Yogastöðin Heilsubót, Síðumúla 15Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41Ölgerðin, Grjóthálsi 7-11Örn Þór sf, Suðurlandsbraut 6Örninn Hjól, Skeifunni 11 Seltjarnarnes: About Fish, Austurströnd 3Nesskip hf, Austurströnd 1 Kópavogur: Axis húsgögn ehf, Smiðjuvegi 9Barki ehf, Nýbýlavegi 22Bílaverkstæðið Toppur ehf, Skemmuvegi ehfBlikksmiðjan Vík, Skemmuvegi 42Bókun og endurskoðun, Hamraborg 1DK Hugbúnaður ehf, Hlíðarsmára 17Fagsmíði ehf, Kársnesbraut 98Goddi ehf, Auðbrekku 19Hellur og Garðar ehf, Kjarrhólma 34Hexa ehf, Smiðjuvegi 10Hilmar Bjarnason, Daltúni 1Hitaveita Egilsstaða og Fella, Einhleypingi 1Húseik ehf, Brattatungu 4Innviðir Valberg, Smiðjuvegi 36Íslandsspil, Smiðjuvegi 11aÍslenskt Marfang ehf, Bæjarlind 6Járnsmiðja Óðins ehf, Smiðjuvegi 2b

Kópavogsbær, Fannborg 2Litlaprent, Skemmuvegi 4Lögmannsstofa SS, Hamraborg 10Pasto Ark ehf, Smiðjuvegi 38Pottagaldrar, Laufbrekku 18Rafmiðlun ehf, Ögurhvarfi 8Raftækjavinnustofan, Kársnesbraut 106Skógrækt Ríkisins, MiðvangiSmárinn söluturn, Dalvegi 16cStífluþjónustan ehf, Kársnesbraut 5Vaki DNG, Akralind 4Verkfræðist. VSI öryggishönnun, Hamraborg 11 Garðabær: Auglýsingastofa E.B., Garðaflöt 16-18Árvík hf, GarðatorgiBókasafn Garðarbæjar, Garðatorgi 7Framtak Blossi, Vesturhrauni 1Garðabær, Garðatorgi 7Hafnarsandur hf, Birkiási 36Héðinn Schindler lyftur, Lyngási 8Ikea, Kauptúni 4Íspan, Smiðjuvegi 7Nýbarði, Lyngási 8Reykjakot leikskóli, Krókabyggð 2Samhentir, Austurhrauni 7Sámur verksmiðja, Lyngási 11Suðurverk hf, Hlíðasmára 11Toyota, Kauptúni 6Vefur ehf, Hagaflöt 2 Hafnarfjörður: Atlantsolía, Lónsbraut 2Ás fasteignasala, Fjarðargötu 17Barkasuða Guðmundar, Hvaleyrarbraut 27Batteríið ehf, Trönuhrauni 1Bílverk ehf, Kaplahrauni 10Bæjarbakarí hf, Bæjarlind 2DS Lausnir, Rauðhellu 5Efnalaugin Glæsir, Bæjarhrauni 4Ferskfiskur ehf, Bæjarhrauni 8Fínpússning ehf, Rauðhellu 13Fjarðargrjót, Furuhlíð 4Geymsla 1 ehf, Steinhellu 15Hagstál ehf, Brekkutröð 1Hagtak ehf, Fjarðargötu 13-15Harald og Sigurður ehf, Stangarhyl 13-15Haukar knattspyrnufélag, ÁrvöllumHlaðbær Colas, Marbakka 1HljóðX, Hjallabraut 4Hreingerningarfélagið Hólm, Vesturholti 3Hörður V Sigmarsson, Reykjavíkurvegi 60Naust Marine hf, Miðhellu 4Pétur O Nikuláson, Melabraut 23Rafgeymslan ehf, Dalshrauni 17Rafholt ehf, Blómvöllum 6Reykjalundur, ReykjalundiSkálatúnsheimilið, SkálatúniSpennubreytar ehf, Trönuhrauni 5Stálorka ehf, Hvaleyrarbraut 3Tannlæknastofa Ágústs, Reykjavíkurvegi 66

S j á l f s b j ö r g á h ö f u ð b o r g a r svæ ð i n u þ a k ka r e f t i r tö l d u m a ð i l u m v e i t ta n st u ð n i n g

Page 12: Sjálfsbjargarfréttir 1. tbl. 2012

Sjálfsbjargarfréttir

12

EAPN stendur fyrir Europian Anti Poverty Network og eru sam-tök gegn fátækt í Evrópu. EAPN er ekki hluti af Evrópusamband-inu en samtökin njóta stuðnings framkvæmdastjórnar þess.

Samtökin EAPN, eru ekki rekin í ágóða-skyni en þau eru mynduð af frjálsum félaga- og hjálparsamtökum og voru upphaflega stofnuð 1992. Höfuðstöðvar þeirra eru í Bruss el en stofnuð hafa verið EAPN félög í yfir 30 löndum í Evrópu, þar á meðal á Íslandi. Félagið á Íslandi var stofnað 2011 og að því standa: Hjálparstofnun kirkjunnar, Ör-yrkjabandalag Íslands, Sjálfs-björg, Félag einstæðra foreldra, Geðhjálp, Bót, Velferðarvakt Suðurnesja, Samhjálp, Hjálp-ræðisherinn og Kærleiksþjónusta kirkjunnar.

Helstu markmið samtakanna eru að berjast gegn fátækt og félagslegri einangrun, að verja hagsmuni þeirra sem búa við fátækt gagnvart stefnu Evrópu-sambandsins, veita stjórnvöldum aðhald og stuðla að valdeflingu einstaklingsins.

Starf EAPN í hverju aðildar-landi er í raun tvíþætt. Annars vegar er unnið á heimavelli, m.a. með því að reyna að hafa áhrif á stefnu stjórnvalda til að draga úr fátækt og hins vegar vinna aðildarlönd EAPN saman að því markmiði að hafa áhrif á stefnu Evrópusambandsins til að vinna gegn fátækt.

Meðlimir EAPN eru þeir sem tilheyra fyrrgreindum félögum og geta þeir tekið virkan þátt í starfi EAPN hafi þeir áhuga á því. Það eru mikil tengsl við höfuð-

stöðvarnar í Brussel og þar eru reglulega fundir og fyrirlestrar fyrir bæði stjórnarmenn og einnig fyrir virka félaga í EAPN og svo má reikna með að hluti af starfi félagsins hér á landi komi til með að felast í svokölluðum „lobbýisma“ eða kynningar fyrir stjórnmálamenn, til áhrifa gegn fátækt, þannig að það er til nokk-urs að vinna.

EAPN lítur svo á að fátækt og félagsleg einangrun séu brot á grundavallarmannréttindum og fólki sé þannig ekki gert kleift að lifa með reisn. Orsakavaldar fá-tæktar er flókið samspil margra ólíkra þátta og því þarf að ráðast gegn þeim á réttum grundvelli.

Virk þátttaka fólks sem lifir í fátækt er nauðsynleg svo hægt

sé að vinna á réttum grundvelli gegn fátækt og félagslegri ein-angrun.

EAPN á Íslandi eru ung sam-tök og það er enn verið að vinna

að stefnumótun þess en til að tryggja að við fyndum bestu lausnirnar til upp-byggingar á starfi þess hér á landi voru settar

upp vinnubúðir síðastliðið vor þar sem farið var yfir hin ýmsu mál sem snúa að fátækt á Íslandi og þangað fengum við m.a. ýmsa aðila úr aðildarsamtökunum, Rauða krossinum og félags-ráðgjafa. Einnig fengum við í lið með okkur tvo prófessora í félagsráðgjöf úr Háskólanum til að vinna úr niðurstöðunum og verða þær birtar nú í byrjun október.

Þá verður mörkuð sú stefna sem félagið kemur til með að fylgja í baráttunni og í kjölfarið verður starfsemi félagsins kynnt nánar fyrir ykkur félögunum og vonandi finna flestir sér þá einhvern farveg innan þess til að bæta stöðu sína og/eða efla sjálfan sig og aðra til dáða.

Þorbera Fjölnisdóttir og

Ásta Dís Guðjónsdóttir,

en þær sitja báðar í stjórn

EAPN á Íslandi

Hvað er EAPN?

Frá alþjóðlegri EAPN-ráðstefnu

Page 13: Sjálfsbjargarfréttir 1. tbl. 2012

S j á l f s b j ö r g á h ö f u ð b o r g a r svæ ð i n u þ a k ka r e f t i r tö l d u m a ð i l u m v e i t ta n st u ð n i n gTækni og Stál ehf, Eyrartröð 8Verkalýðsfélagið Hlíf, Reykjavíkurvegi 64VSB Verkfræðistofa, Bæjarhrauni 20

Reykjanesbær: Bjarni G Bjarnason, Skólabraut 1Bókasafn Reykjanes, Hafnargötu 57Bókhaldsstofa Geirs, Brekkustíg 33aBrynhildur KE 083, Vatnsholti 5bDelotte Keflavík, Hafnargötu 9Depla kolaportinu, Austurgötu 21DMM lausnir, Iðavöllum 9bFasteignasalan Ásberg, Hafnargötu 27Fiskval, Iðavöllum 13Fjölbrautarskóli Suðurnesja, Sunnubraut 8Ice group, Iðavöllum 7aÍsafold, Iðavöllum 7aKaffi Duus, Dusgötu 10Kaplavæðing ehf, Hólmgarði 2cMálverk sf, Skólavegi 36Plastgerð Suðurnesja, Framnesvegi 21Reykjanesbær, Tjarnargötu 12Reykjaneshöfn, Víkurbraut 11Varmamót ehf, Framnesvegi 19Verkalýðs og sjómannafélagið,

Krossmóa 4aVerkfræðistofa Suðurlands, Víkurbraut 13Verslunarmannafélag Suðurnesja,

Vatnsnesvegi 14Vignir G Jónsson ehf, Smiðjuvöllum 4 Grindavík: EP Verk ehf, Vörðusund 5Síldarvinnslan, Hafnarbraut 6Vísir hf, Hafnargötu 16 Sandgerði: Fiskverkun K og G, Hafnargötu 9 Garður: Afa Fiskur, Ósabraut 6 Mosfellsbær: Anna Kjartansdóttir, Arkarholti 17Glertækni ehf, Völuteig 21Heilsuefling Mosfellsbæjar, Urðarholti 2Hengill, Varmadal 2Kjósarhreppur, FélagsgarðiNýblóm, Háholti 13Sveinn ehf vélsmiðja, Flugumýri 6 Akranes: Akraborg, KarlsmannsvöllumBifreiðastöð Þórðar, Dalbraut 6Bílver sf, Akurbraut 11Blikksmiðjan GJH, Akursbraut 11Smurstöð Akraness, Smiðjuvöllum 2Steðji ehf vélsmiðja, Vogabraut 28Straumnes ehf, Jörundarholti 101

Borgarnes: Félagsbúið Miðhrauni, MiðhrauniGrunnskóli Borgarness, v/GunnlaugsgötuSamtök Sveitafélaga á Vesturlandi,

Bjarnarbraut 8Útfarastofa Borgarness, Böðvarsgötu 17Vegamót þjónustumiðstöð, SnæfellsnesiVélaverkstæði Kristjáns, Brákarbraut 20 Stykkishólmur: Bjarnarhöfn Ferðaþjónusta, BjarnarhöfnSæfell ehf, Hafnargötu 9 Grundarfjörður: Farsæll útgerð, Eyrarvegi 16Fjölbrautarkóli Snæfellsnes, Grundargötu 44 Ólafsvík: Fiskmarkaður Íslands, Norðurtanga 6Hótel Búðir, BúðumTannlæknastofa Ara, Engihlíð 28 Hellissandur: Breiðavík, Háarifi 53 Króksfjarðarnes: Glæðir blómaáburður, Hellisbraut 18 Ísafjörður: Bakarinn hf, Silfurtúni 11Eiríkur og Einar Valur hf, Hafraholti 54Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12Hjólbarðaverkstæðið, Sindragötu 14Tréver sf, Hafraholti 34Vélsmiðjan Þristur, Sindragötu 8 Bolungarvík: Bolungarvíkurhreppur, Aðalstræti 2Grunnskóli Bolungarvíkur, Höfðastíg 3-5Jakob Valgeir ehf, Grundarstíg 6Sigurgeir G Jóhannsson, Hafnargötu 16-23 Súðavík: Súðavíkurhreppur, Grundarstíg 1-3 Suðureyri: Hótel Framnesi, Nesvegi 8 Patreksfjörður: Bjarni S Hákonarsson, HagaFlakkarinn ehf, Brjánslæk Tálknafjörður: Bókhaldsstofan, StrandgötuEik hf Trésmiðja, Strandgötu 37Sterkur ehf, Miðtúni 18 Norðurfjörður: Hótel Djúpavík, Árneshreppi

Hvammstangi: Leirhús Grétu, Litla ósi Blönduós: Húnavatnshreppur, Húnavöllum Sauðárkrókur: Árskóli, Box 60Bílaverkstæði KS, Hesteyri 2Bókhaldsstofan Kom ehf, Víðihlíð 10Fisk Seafood, Eyrarvegi 18Fjölbrautarskóli Norðurlands, Kaupfélag Skagfirðinga, Ártorgi 1Mjólkursamlag Skagfirðinga, SkagfirðingabrautSauðaskinn ehf, BorgarmýriVideo Sport, Aðalgötu 15 Varmahlíð: Akrahreppur, MiklibæBroddi Björnsson, FramnesiFræðslusetrið, Löngumýuri Hofsós: Grafarrós ehf, Austurgötu 22 Siglufjörður: Fiskmarkaður Siglufjarðar, Mánagötu 4-7Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar, v/Hvanneyrarbraut Akureyri: Baugsbót ehf, Frostagötu 1bBetra Brauð, Fjölnisgötu 4Brekkuskóli Akureyri, V/LaugalækBrúin ehf, Hjalteyrarbraut 20Efnalaugin Hreint út, TryggvabrautEining Iðja, Skipagötu 14Endurskoðun ehf, Hafnarstræti 62Félag málmiðnaðarmanna, Skipagötu 14Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, EyrarlandsvegiFlúðir stangaveiðifélag, Box 381Gróðrastöðin Réttarhöfn, SmáratúniHártískan sf, KaupvangiHnýfill ehf, Óseyri 22Íþróttamiðstöð Glerárskóla, V/HöfðahlíðJ.M.J., GránufélagsgötuKælismiðjan Frost ehf, Fjölnisgötu 4bMiðstöðin ehf, Draupnisgötu 3Plastiðjan Bjarg, Furuvöllum 1Raftákn hf, Glerárgötu 34Skóhúsið, Brekkugötu 1aSundlaug Akureyrar, Þingvallastræti 21Tannlæknastofa Árna Páls, Kaupvangi 1Trésmiðjan Örk, Furulundi 15Úrsmíðaverkstæði, GlerártorgiVélsmiðjan Ásverk ehf, Grímseyjargötu Dalvík: Dalvíkurskóli, RáðhúsinuFerðaþjónustan Ytri Vík, Ytri VíkKvenfélagið, HlíðarbrekkuPromens Dalvík, Gunnarsbraut 12

Sólrún ehf, Sjávargötu 2Vélvirki ehf, Hafnarbraut 7 Ólafsfjörður: Sjómannfélag Ólafsfjarðar, Brekkugötu 6 Hrísey: Einangrunarmiðstöðin Hrísey, Kríunesi Húsavík: Bílaleiga Húsavíkur, Garðarsbraut 66Ferðþjónustan, AðaldalHeiðarbær, Skógum 2Rúnar Óskarsson ehf, Hrísateig 5Skóbúð Húsavíkur, Garðsbraut 1Sorpsamlag Þingeyja, Víðimóum Laugar: Norðurpóll ehf, LaugarbrekkumJarðböðin, Mývatn Kópasker: Ágúst Guðröðvarsson, SauðanesiHótel Norðurljós, Aðalbraut 2 Þórshöfn: Edda Jóhannsdóttir, Langanesvegi 14Ferðaþjónusta bænda, Ytri ÁlandiLangnesbyggð, Fjarðarvegi 7 Vopnafjörður: Ferðaþjónustan Syðri Vík, Syðri VíkHaraldur Jónsson, ÁsbrandsstöðumVopnafjarðarhreppur, Hamrahlíð 15 Egilsstaðir: Fellabakarí, Lagarfelli 4Fljótsdalshérað, Lyngási 12 Reyðarfjörður: Verkstjórnarfélagið, Búðareyri 15Þvottabjörn ehf, Búðareyri 25 Eskifjörður: Eskja, Strandagötu 39Fjarðarþrif, Strandgötu 46b Breiðdalsvík: Grunnskóli Breiðdalsvíkur, StaðarborgHérðasdýralæknir, Ásvegi 31Hótel Bláfell, Sólvöllum 14 Höfn í Hornafirði: Farfuglaheimilið Vatnsstaðir, VagnstöðumFerðaþjónusta bænda, LóniMenningarmiðstöð, Hafnarbraut 36Skinney Þinganes, KrosseyVatnajökull Travel, Bugðulæk 3Ögmundur, Skólabrú 4

Page 14: Sjálfsbjargarfréttir 1. tbl. 2012

Sjálfsbjargarfréttir

14

Nú í haust fór af stað tilrauna-verkefni um notendastýrða pers-ónulega aðstoð (NPA) en kveðið er á um það í lögum um málefni fatlaðs fólks nr. 53/1992. Sveitar-félög hafa val um að taka þátt í verkefninu og felst það í að bjóða upp á þjónustu þar sem fatlað fólk fær greiðslur frá sveitar-félagi sínu sem það getur ráð-stafað sjálft til þess að ráða sitt eigið aðstoðarfólk. Kallast það NPA-samningur.

Greiðslurnar skiptast upp í þrjá hluta. Í fyrsta lagi eru það laun og launatengd gjöld að-stoðarfólks en það eru 85% af upphæðinni sem úthlutuð er til hvers og eins. 10% er svokallaður umsýslukostnaður en hann má nýta til að borga umsýsluaðila, eins og t.d. NPA miðstöðinni, samvinnufélagi fatlaðs fólks, fyrir að sjá um launagreiðslur til aðstoðarfólks, veita ráðgjöf til fatlaðs fólks í hlutverki sínu sem yfirmenn aðstoðarfólks og bjóða upp á námskeið fyrir fatlað fólk og aðstoðarfólk um NPA og hug-myndafræðina um sjálfstætt líf. Að lokum fara svo 5% af greiðsl-unum í útlagðan kostnað vegna aðstoðarfólks, t.d. vegna auka bíómiða, fæðis og flugmiða.

NPA byggir á hugmyndafræði baráttuhreyfinga fatlaðs fólks um sjálfstætt líf og felst í að fatlað fólk ráði það aðstoðarfólk sem það kýs sjálft. Aðstoðarfólk vinn-ur samkvæmt starfslýsingu sem fatlað fólk semur og samræmist lífstíl og kröfum þess með það að markmiði að fatlað fólk geti lifað

lífi sínu og haft sömu möguleika og ófatlað fólk. Það er jafnframt markmiðið að fatlað fólk öðlist hámarks stjórn á hvernig eigin aðstoð er skipulögð og hönnuð.

Hugmyndafræðin um sjálf-stætt líf grundvallast á að allar manneskjur óháð, eðli og alvar-leika skerðingar, geta tekið eigin ákvarðanir, stjórnað eigin að-stoð og mótað eigin lífsstíl. Þar að auki að allar manneskjur hafii rétt á að búa í samfélaginu, stjórna eigin lífi og taka þátt á öllum sviðum þess með það að markmiði að valdið færist frá þjónustukerfinu til fatlaðs fólks.

Hugmyndafræðin leggur mikla áherslu á nýjan skilning á hug tak inu sjálfstæði. Hinn nýji skiln ingur byggir á að sjálfstæði sé fólg ið í því að hafa stjórn, val og mögu leika til fullrar þátttöku og til sjálfstæðs lífs með persónu-legri aðstoð á öllum sviðum lífs-ins. Í því samhengi hefur fatlað fólk lagt þunga áherslu á að það að einhver þurfi aðstoð við athafnir daglegs lífs þýði ekki hjálparleysi. Ennfremur að með því að hafa frelsi til athafna og stjórn á eigin lífi með persónulegri aðstoð getur fatlað fólk uppfyllt hlutverk sín og ábyrgð í samfélaginu – líkt og aðrir borgarar.

Hægt er að lesa sér til um til-raunaverkefnið um NPA inn á heimasíðu Velferðarráðuneytis-ins www.velferdarraduneyti.is/npa og um notendastýrða persónu-lega aðstoð á heimasíðu NPA miðstöðvarinnar www.npa.is.

Að lifa sjálfstæðu lífi

með notendastýrðripersónulegri aðstoð

Freyja Haraldsdóttir,

frkvst. NPA-miðstöðvarinnar

[email protected]

hugbúnaðarfyrirtæki

Page 15: Sjálfsbjargarfréttir 1. tbl. 2012

15

Sjálfsbjargarfréttir

S j á l f s b j ö r g á h ö f u ð b o r g a r svæ ð i n u þ a k ka r e f t i r tö l d u m a ð i l u m v e i t ta n st u ð n i n gSelfoss: AB Skálinn, GagnheiðiBílaleiga J.G., Eyrarvegi 15Bílasala Suðurlands, Fossnesi 14Björn Harðarsson, Holti 1Dýragarðurinn Slakka, BiskupstungumFossvélar hf, Hrísmýri 4Grunnskóli Kerhólf, BorgGuðnabakarí, Austurvegi 31bÍsgát ehf, Lónsbakka 2Jötunvélar ehf, Austurvegi 69Ræktunarsamband Flóa og Skeiða, GagnheiðiSet ehf, Eyrarvegi 41-49

Súluholt ehf, Súluholti 1www.efstidalur.is, Efstidal 2 Hveragerði: Básinn, EfstadalBókasafnið Hveragerði, Hafnarbergi 1Eldhestar ehf, VöllumHeislustofnun NLFÍ, Grænumörk 10Litla Kaffistofan, Svínahrauni Ölfus: Ben Medía, Akurgerði

Flúðir: Flúðasveppir, Undirheimum Hella: Ólafur Helgason, Ártúni 2 Hvolsvöllur: Árni Valdimarsson, AkriBúaðföng, Stórólfsvöllum Kirkjubæjarklaustur: Icelandair Hótel Klaustur, Klausturvegi 6

Vestmannaeyjar: Bókasafn Vestmannaeyja, Box 20Delotte, Bárugötu 15Eyjatölvur, Strandvegi 52Ferðaskrifstofan Víking Tour, Tjarnargötu 7Frár ehf, Hásteinsvegi 49Ísfélag Vestmannaeyja, Strandvegi 28Karl Kristmannsson, Ofanleiti 15-19Skýlið, FriðarhöfnÚtvarp Vestmannaeyjar, Brekkugötu 1Verslunin Vöruval, Vesturvegi 18Vélaverkstæði Þór, Norðursundi 9

Verðlaunastafarugl

Á B F R H D A L A S K A L Ú P Í N A F T Ð A Æ L I O P N D F Y E L Ó S A T L O H X L M A R Í U S T A K K U R Ú Ð D Z E Y Y D R E I N I R V A Y F A T Á N V A L P E U H T L A P A Y Ð T P Ð S J Ý P L A K L R A U Ú E M U U D R C N Ó Þ D U T M Y Ó S K I E L D G S L E N L B N Æ L P B B S B K V M D Í V L N L I S N B T Æ N A L Ð R U Á F V K P Ö H M I O M N I S D G Æ I Á L X N P J B A K V R F E V H A L R D R L K L P Ð H R S N D T P Í D V Þ H A E K K Á O E R E B A P I Ú R I F Ö U R S H S A L P A T S M U M F E Ð M I N G U R N F G B E G U L L M U R A E S D N Ú H V U A Ð Ú R B R O V L T Æ É B A O Ö R T A I S S I L M B J Ö R K S M S J I V J C S E Y V J A F O D E R E D Ú J K R S D M K D M Æ N Þ C P Þ P Y B R S K L Æ B P R G A S O R T U L Y N G A G L E Y M M É R E I

Í kassanum hér til neðst á síð-unni eru 20 nöfn á íslenskum plöntum. Þau eru ýmist skrifuð frá vinstri, frá hægri, upp, niður eða á ská, í hvaða átt sem er.

Í verðlaun eru 7 skemmtilegar bækur, Pétrísk–íslensk orðabók, Lán í óláni, Spurningabókin 2012, Bestu barnabrandararnir, Vísnagátur, og KenKen–talna-þrautir 1 og 2. Þær verða sendar sigurvegaranum.

Nú er um að gera að spreyta sig og senda lausnina inn. Vefsíða Hóla er: www.holabok.is

Orðin sem þarf að finna eru:BaldursbráTúnfífillHoltasóleyTúlípaniBláklukkaSkriðsóleyÆtihvönnUmfeðmingurGullmuraAlaskalúpína

FjörukálEinirHundasúraLambagrasNjóliSortulyngVorbrúðaMaríustakkurIlmbjörkGleymmérei

Þrautin felst í að finna öll orðin. Þau eru öll skrifuð hvert fyrir sig og leggjast ekki yfir hvort annað, nema á einum stað, en þar er að finna einn bókstaf sem tilheyrir fjórum mismunandi orðum og þessi einstaki bók-stafur er lausnin á getrauninni. Þegar þú hefur fundið þennan eina bókstaf, sendu hann þá á netfangið: [email protected]. Einnig má senda svarið í pósti með hefðbundnum hætti á:

Bókaútgáfan HÓLAR,Hagaseli 14,109 Reykjavíkfyrir 15. desember 2012.

Page 16: Sjálfsbjargarfréttir 1. tbl. 2012

Salernisstoðir

Salernishækkanir

Sturtukollar

Þægileg snyrtiáhöld

Baðbretti

Opið kl. 9 -18 • laugardaga kl. 11 - 16 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is

Spen

nist

frá

gólfi

upp

í lo

ft

Læsing á

45° millibili

Sturtustólar Stuðningssúla

Vandaðar vörur fyrir bað og snyrtingu

Fótabursti með sogskálum

Eingönguviðurkenndarvörur