Eystrahorn 43. tbl. 2012

8
Fimmtudagur 6. desember 2012 www.eystrahorn.is Eystrahorn 43. tbl. 30. árgangur www.eystrahorn.is Í ár eru 100 ár liðin frá byggingu Fundarhúss Lónmanna. Húsið hefur gengt mikilvægu hlutverki innan sveitarinnar en síðustu árin hefur Fundarhúsið verið í umsjón Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Byggt var við húsið 1929 og það endurgert á árunum 1990-1997. Í tilefni þessara merku tímamóta verður boðið uppá kaffi og meðlæti í Fundarhúsinu, sunnudaginn 16. desember klukkan 15-17. Lónmenn, nærsveitungar og aðrir velunnarar eru hvattir til að heimsækja Fundarhúsið og gera sér glaðan dag og rifja upp liðnar stundir. Þeir sem eiga í fórum sínum myndir af húsinu og þeirri starfsemi sem þar hefur farið fram í gegnum árin eru hvattir til að hafa þær meðferðis. Myndir frá Héraðsskjalasafninu verða til sýnis auk mynda frá endurgerð hússins, tónlistaratriði verða í boði og eitt og annað sem passar virðulegum afmælisboðum eins og þessu. Áætlunarflug Skipulagðar ævintýraferðir Leiguflug bóka ð u flugi ð á ernir.is blessuð jólin Bráðum koma Gjafabréf Gefðu flug til áfangastaða okkar eða gjafabréf með upphæð að eigin vali . Jólapakkatilboð Allir jólapakkar undir 10 kíló aðeins 1.700 kr. hver sending Gjafabréf 100 ára fundarhús

description

Eystrahorn 43. tbl. 2012

Transcript of Eystrahorn 43. tbl. 2012

Page 1: Eystrahorn 43. tbl. 2012

Fimmtudagur 6. desember 2012 www.eystrahorn.is

Eystrahorn43. tbl. 30. árgangur www.eystrahorn.is

Í ár eru 100 ár liðin frá byggingu Fundarhúss Lónmanna. Húsið hefur gengt mikilvægu hlutverki innan sveitarinnar en síðustu árin hefur Fundarhúsið verið í umsjón Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Byggt var við húsið 1929 og það endurgert á árunum 1990-1997. Í tilefni þessara merku

tímamóta verður boðið uppá kaffi og meðlæti í Fundarhúsinu, sunnudaginn 16. desember klukkan 15-17. Lónmenn, nærsveitungar og aðrir velunnarar eru hvattir til að heimsækja Fundarhúsið og gera sér glaðan dag og rifja upp liðnar stundir. Þeir sem eiga í fórum sínum myndir af húsinu og þeirri starfsemi

sem þar hefur farið fram í gegnum árin eru hvattir til að hafa þær meðferðis. Myndir frá Héraðsskjalasafninu verða til sýnis auk mynda frá endurgerð hússins, tónlistaratriði verða í boði og eitt og annað sem passar virðulegum afmælisboðum eins og þessu.

Áætlunarflug Skipulagðar ævintýraferðirLeiguflug

bókaðu flugið á ernir.is

blessuð jólinBráðum koma

GjafabréfGefðu flug til áfangastaða okkar eða gjafabréf með upphæð að eigin vali.

JólapakkatilboðAllir jólapakkar undir 10 kíló aðeins 1.700 kr. hver sending

Gjafabréf

100 ára fundarhús

Page 2: Eystrahorn 43. tbl. 2012

2 EystrahornFimmtudagur 6. desember 2012

HirðingjarnirOpið hjá Hirðingjunum

í Verslun Steingríms á fimmtudögum kl. 16:30 – 18:30

Viltu biðja rósakransbæn hjá aðventukransinum með okkur? Þú ert velkominn að koma næstkomandi laugardagskvöld 8. desember kl.18:00 í kaþólsku kapellu á Hafnabraut 40.

Eftir rósakransbænina hitum við á könnunni og spjöllum saman. Efni fundarins er: "Aðventutími í kaþólsku kirkjunni".

Allir eru velkomnir, ef til vill, í sunnudagsmessu, 9. desember

kl.12:00 á sama stað. Barnakórinn hittist kl. 11:00.

Hin árlega jólastund félags eldri Hornfirðinga verður í Ekrusalnum

laugardaginn 8. desember kl. 16:00.

Minnst verður 30 ára afmælis félagsins.

Félag eldri Hornfirðinga

Jólastund

BjarnaneskirkjaFöstudaginn 7. desemberAðventukvöld kl. 20:00Sveinn Rúnar Ragnarsson frá Akurnesi flytur hugvekjuKaffiveitingar í Mánagarði

Vaktsími presta er 894-8881bjarnanesprestakall.is

KálfafellsstaðarkirkjaSunnudaginn 9. desemberAðventustund 14:00Zophonías Torfason frá Hala flytur hugvekju

HofskirkjaSunnudaginn 9. desemberAðventustund kl. 14:00Börnin taka virkan þátt með söng og lestriSr. Stígur flytur hugvekjuKaffiveitingar í Hofgarði

BrunnhólskirkjaSunnudaginn 9. desemberAðventustund kl. 16:00Anna Halldórsdóttir frá Stórabóli flytur hugvekju

HafnarkirkjaSunnudaginn 9. desemberAðventukvöld kl. 20:00Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og gæðastjóri flytur hugvekju

EystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

HæðagarðurGott og vel skipulagt 5 til 6 herbergja steypt 134,7 m² einbýlishús ásamt ca 48 m² bílskúrssökkli. Falleg aðkoma er að húsinu, ræktuð lóð með trjágróðri, suðurverönd frá stofu, gróðurhús og lítið garðhús er á lóðinni

bogaslóðTil sölu er Hóll eða Guðmundarhús, fallega uppgert og endurbyggt 158,4 m² einbýlishús, 5 herbergi, 2 baðherb, góð verönd með skjólveggjum, einstakt tækifæri til að eignast þetta fallega hús.

kirkJubrautRúmgott einbýlishús ásamt bílskúr og sólstofu alls 199,1 m². Aðkoma og innkeyrsla hússins er hellulögð og rúmgóð, mikið ræktuð lóð.

Hafnarbraut 15 • 780 Höfn • Sími 580 7915 • Fax 580 7911Kaupvangur 2 • 700 Egilsstaðir • Sími 580 7905 • Fax 580 7901Vallholtsvegi 3 • 640 Húsavík • Sími 580 7925 • Fax 580 7821www.inni.is

Hilmar Gunnlaugsson, hrl. og lögg. fasteignasali, Egilsstöðum

Hjördís Hilmarsdóttir, lögg. leigumiðlari, Egilsstöðum

Sigurður Magnússon, lögg. fasteignasali, Egilsstöðum

Pétur Eggertsson, lögg. fasteignasali, Húsavík

Snorri Snorrason, lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari

Hilmar Gunnlaugsson,hrl. og lögg.fasteignasalis. 580 7902

Hjördís Hilmarsdóttir,lögg.

leigumiðlaris. 580 7908

Sigurður Magnússon,lögg.

fasteignasalis. 580 7907

SigríðurKristinsdóttir,

lögmaður

Snorri Snorrason,lögg.

fasteignasalis. 580 7916

FÉLAG FASTEIGNASALA

Nýtt á skráGóð áhvílaNdi láN, lítil útborGuN

Nýtt á skrá

JólabiNgó JólabiNgó

Hið árlega jólabingó Dagdvalar HSSA verður haldið mánudaginn 10. desember

kl 13:00 í sal Ekrunnar.

Eitt fríspjald á mann, aukaspjöld 500 kr stk.

Allir eldri Hornfirðingar eru velkomnir líkt og síðastliðin ár.

Vonumst til að sjá sem flesta.

Starfsfólk Dagdvalar HSSA

Page 3: Eystrahorn 43. tbl. 2012

3Eystrahorn Fimmtudagur 6. desember 2012

Með kveðju frá vinnuhópi um heilbrigði og velferð

Lærðu af mistökum þínum

Helga Kristín Ingólfsdóttir er aðeins 16 ára gömul og hefur vakið verðskuldaða athygli í Dans, dans, dans á RÚV þar sem hún hefur dansað ein og ásamt dansfélaga sínum Birki Erni Karlssyni en þau munu einmitt stíga á stokk á laugardagskvöldið og dansa til úrslita í þessum vinsæla dansþætti. Helga Kristín á ættir sínar að rekja til Hornafjarðar en hún er dóttir Guðrúnar Ernu Þórhallsdóttur, dóttur Þórhalls Dan Kristjánssonar og Ólafar Sverrisdóttur stofnenda Hótels Hafnar. Helga Kristín er mikil íþróttakona og hefur stundað karate frá sex ára aldri og jafnhliða samkvæmisdans og síðan ballett. Á Helga marga titla í hvorri grein og gaman að geta þess að síðastliðið vor var hún valin í landsliðið í karate og varð í þriðja sæti á Norðurlandameistaramótinu í Kumite. Helga Kristín stundar nám í Menntaskólanum við Hamrahlíð á listdansbraut. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á íþróttum og dansi en ég hef líka mikinn metnað í að standa mig vel í skólanum“ segir Helga Kristín. „Ég hef alltaf haft mikið að gera og æfingar eru stundum langar og strangar. Stundum fer ég beint af langri ballettæfingu í karate og öfugt. En ég hef lært að til að þetta gangi allt upp þarf maður að skipuleggja sig rosalega vel. Maður þarf líka að passa upp á hvað maður borðar svo orkan sé til staðar fyrir allar þessa æfingar. Ég hef líka lært að til að ná langt verður maður að leggja sig alla fram og æfa meira en venjulegt æfingaplan segir til um. Áfengi og tóbak eiga líka ekkert sameiginlegt með góðum árangri hvort sem er í íþróttum eða námi. Þetta eru hlutir sem maður lætur alveg vera“.

Kjósum Helgu KristínuBókin “Þú ert snillingur” er lífleg og einstaklega gagnleg heilræðabók um hvernig við getum einfaldað daglegt líf okkar og sparað stórfé. Í bókinni er að finna ótal heilræði, allt frá því að elda lax í uppþvottavélinni, sniðugum ráðum til að lækka matarreikninginn, hvernig góðra vina fundir geta styrkt ónæmiskerfið, í uppskriftir að heimagerðu sjampói, rúðuúða og hreinsilegi, o.fl. Undur matarsótans og sítrónunnar opnast alþjóð í þessari bók. Bókin geymir fjölmörg sparnaðarráð og góðar hugmyndir sem allir aldurshópar geta nýtt sér til

frekari farsældar í lífinu. Bókin verður til sölu á markaðnum næsta laugardag 8. des. og hjá Katrínu í síma 659 1942 til styrktar Sambandi austur-skaftfellskra kvenna.

Þú ert snillingur

HÖFN

N1 HÖFNSÍMI: 478 1940

FRÁBÆR OG FREISTANDIVEITINGATILBOÐ

=

=

=

SAMLOKASkinka, ostur, grænmeti, sósa, franskar

kartöflur og ½ l. Coke eða Coke light í plasti

995 kr.

MOZZARELLASTANGIRog ½ l. Coke eða Coke light í plasti

795 kr.

FJÖLSKYLDUTILBOÐ4 ostborgarar, franskar kartöflur og hraunbitakassi

2.995 kr.+

+eða

+ +eða

Page 4: Eystrahorn 43. tbl. 2012

mar

khon

nun.i

s

Tilboðin gilda 6. - 9. desTilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

Kræsingar & kostakjörUm jólin!

1.293 KRKG

HAMBORGARHRYGGURVERÐ ÁÐUR 1.989 KR/KG

HVÍTLAUKSKRYDDAÐLAMBALÆRIVERÐ ÁÐUR 1.498 KR/KG

HUMARSKELFLETTUR 500 GVERÐ ÁÐUR 2.998 KR/KG

HUMARSKELFLETTUR 1 KG

VERÐ ÁÐUR 4.998 KR/KG

-35%

1.393 KRKG

1.799 KRPK

2.999 KRPK

KRYDDAÐ LAMBALÆRIVERÐ ÁÐUR 1.498 KR/KG

UNDIRBÚUM JÓLIN SNEMMA Í ÁR

-40%

JÓLAPAPPÍRMIKIÐ ÚRVAL

CELEBRATIONSDÓS 855 G

2.489KRSTK

ROSES EÐA HEROSDÓS 800 G

1.989 KRSTK

BASSETSDÓS 800 G

1.349 KRSTK

QUALITY STREETDÓS 820 G

1.899 KRSTK

GRAFINN EÐA REYKTUR LAX1/2 FLAKVERÐ ÁÐUR 2.498 KR/KG

1.998 KRKG

GLOCKEN SAFAR1 L 100% PREMIUM

178 KRSTK

ÚRVAL Í SKÓINN

JÓLASVEINAR VELKOMNIR

727 KRKG

KJÚKLINGURFROSINNVERÐ ÁÐUR 855 KR/KG

ANANASFERSKURVERÐ ÁÐUR 249 KR/KG

125 KRKG

HANGILÆRI Á BEINIVERÐ ÁÐUR 2.498 KR/KG

1.749 KRKG

-30%

-50%

ÁVALLT HÁTÍÐLEGT!

Page 5: Eystrahorn 43. tbl. 2012

mar

khon

nun.i

s

Tilboðin gilda 6. - 9. desTilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

Kræsingar & kostakjörUm jólin!

1.293 KRKG

HAMBORGARHRYGGURVERÐ ÁÐUR 1.989 KR/KG

HVÍTLAUKSKRYDDAÐLAMBALÆRIVERÐ ÁÐUR 1.498 KR/KG

HUMARSKELFLETTUR 500 GVERÐ ÁÐUR 2.998 KR/KG

HUMARSKELFLETTUR 1 KG

VERÐ ÁÐUR 4.998 KR/KG

-35%

1.393 KRKG

1.799 KRPK

2.999 KRPK

KRYDDAÐ LAMBALÆRIVERÐ ÁÐUR 1.498 KR/KG

UNDIRBÚUM JÓLIN SNEMMA Í ÁR

-40%

JÓLAPAPPÍRMIKIÐ ÚRVAL

CELEBRATIONSDÓS 855 G

2.489KRSTK

ROSES EÐA HEROSDÓS 800 G

1.989 KRSTK

BASSETSDÓS 800 G

1.349 KRSTK

QUALITY STREETDÓS 820 G

1.899 KRSTK

GRAFINN EÐA REYKTUR LAX1/2 FLAKVERÐ ÁÐUR 2.498 KR/KG

1.998 KRKG

GLOCKEN SAFAR1 L 100% PREMIUM

178 KRSTK

ÚRVAL Í SKÓINN

JÓLASVEINAR VELKOMNIR

727 KRKG

KJÚKLINGURFROSINNVERÐ ÁÐUR 855 KR/KG

ANANASFERSKURVERÐ ÁÐUR 249 KR/KG

125 KRKG

HANGILÆRI Á BEINIVERÐ ÁÐUR 2.498 KR/KG

1.749 KRKG

-30%

-50%

ÁVALLT HÁTÍÐLEGT!

Page 6: Eystrahorn 43. tbl. 2012

6 EystrahornFimmtudagur 6. desember 2012

Sparisjóðurinn á Höfn úthlutaði úr Styrktar- og menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja, í fimmta skipti þann 29. nóvember sl. Anna Halldórsdóttir útibússtjóri sagði þetta eftir athöfnina: “Við hittumst hér í sparisjóðnum og áttum góða stund saman. Dagskráin var þannig að 2 ungir hljóðfæraleikarar, Þorkell Ragnar og Ármann Örn, léku fyrir okkur á hljómborð og gítar, meðal annars frumsamin lög. Við afhentum viðurkenningar til 3ja aðila að þessu sinni og einnig skrifuðum við undir áframhaldandi samstarfssamning við Golfklúbb Hornafjarðar til næstu 3ja ára. Þeir aðilar sem fengu viðurkenningu og styrk voru Nemendafélag FAS, Skógræktarfélag Djúpavogs og Björgunarsveitin Eining á Breiðdalsvík. Á eftir var boðið upp á veitingar, snittur og nýlagað kaffi að hætti okkar í sparisjóðnum.”

Styrkjun úthlutað

Úrval af rúmum, dýnum og hægindastólum

Fullt af flottum og fallegum gjafavörum til jóla- og

útskriftargjafa.

Stúdentastjarnan kominOpið laugardag kl. 13:00 - 16:00 Jólastemning og kaffi á könnunni

Verið velkomin

Húsgagnaval

Búið er að draga í happadrætti knd Sindra hjá sýslumanni og hlutu eftirfarandi númer vinning:

42" Philips háskerpu sjónvarp frá Heimilistækjum. Nr. 3291. Greiðsla upp í utanlandferð frá Úrval útsýn. Nr. 4142. Kvöldverður og gisting með morgunmat fyrir 2 á Hótel Flúðum. 3. Nr. 467 Flug fyrir 1 Höfn-R.vík-Höfn með flugfélaginu Ernir. Nr. 4704. Úttekt í Húsamiðjunni. Nr. 2555. Árskort í sundlaug Hornafjarðar. Nr. 846. Jólahlaðborð fyrir 2 í Pakkhúsinu. Nr. 4497. Jólahlaðborð fyrir 2 á Kaffi-Horninu. Nr. 1368. Mánaðarkort í Sporthöllinni. Nr. 3529.

Vinninga skal vitja hjá Valda í síma 868-6865. Deildin þakkar stuðninginn á árinu.

Stjórn knd Sindra

Happadrætti Knattspyrnudeildar

Til að auðga bókakost bókasafns Menningarmiðstöðvar Horna-fjarðar færði Hornafjarðardeild RKÍ 40.000 kr. í málefni innflytjenda til bókakaupa. Að þessu sinni voru pantaðar bækur frá Póllandi en það er langstærsti hópur innflytjenda hér á Hornafirði. Nú eru bækurnar komnar í hús og voru afhentar með formlegum hætti miðvikudaginn 28. nóvember. Bækurnar eru flestar hverjar nýjar og því tekur einhvern tíma að skrá þær allar inn í skráningarkerfi bókasafnsins. Það var Marlena Domasiewicz sem var fyrst til að fá lánaðar bækur en það var einmitt hún sem aðstoðaði við að panta bækurnar. Meðal annars ætlar hún að lesa Mýrina eftir Arnald Indriðason. Markmiðið með bókagjöf sem þessari er að sem flestir geti nýtt sér safnið til að halda tengslum við sinn uppruna. Fullorðna fólkið fær að vera í forgrunni að þessu sinn en seinna verða það börnin sem fá að vera í aðalhlutverki. Vert er að benda á að á Íslandi eru móðurbókasöfn fyrir bækur á hinum ýmsu tungumálum. Bókasafn Ísafjarðar er til dæmis með nokkuð magn af bókumá pólsku, serbó-króatísku og tælensku sem hægt er að fá að milliláni. Hægt er að skoða bókalista Bókasafns Ísafjarðar á þessari slóð http://safn.isafjordur.is/efni.php?lang=&efni_id=80&fst=1&flokkur=400.

Polskie Ksiązki w bibliotece

Pólskar bækur á bókasafnið

Heimamarkaður Miðskeri verður opinn nk. föstudag kl. 13 - 15.

Verðum á markaðnum við Nýheima á laugardaginn

Ferskt og reykt svínakjöt, hangikjöt, og margt fleira

Verið velkomin

Pálína og Sævar Kristinn

RaungreinakennslaKennara vantar til að kenna áfangann NÁT123 í FAS á vorönn 2013.

Hóparnir eru tveir og um er að ræða hálft starf.

Skólameistari

Page 7: Eystrahorn 43. tbl. 2012

7Eystrahorn Fimmtudagur 6. desember 2012

Jóhann hjá Fiskmarkaðnum sagði að nóvembermánuður hafi einkennst af ógæftum en góðum afla á milli og Ásgeir hjá Skinney-Þinganesi hafði þetta að segja um aflabrögð og vinnslu; „Síldarvertíðinni lauk hjá okkur föstudaginn s.l. Þetta var fínasta vertíð, síldin var stór og lítið bar á sýkingu í henni. Uppsjávarskipin eru að öllum líkindum komin í stopp fram yfir áramót en þá tekur loðnuvertíðin við. Við hættum humarveiðum 25. nóvember og var heldur minni humarveiði þetta haustið en undanfarin ár enda tíðar brælur stóran hluta haustsins. Hvanney hefur verið á ufsanetum og hafa aflabrögð verið mun minni en s.l. haust. Netavertíð fer svo á fullt strax á nýju ári hjá þessum skipum. Mikil vinna hefur verið í landvinnslunni út allan nóvember en við sjáum fram á óvenju rólegan desembermánuð hjá okkur.“

Aflabrögð í nóvember

Neðangreindar upplýsingar eru um veiðafæri, fjölda landana, heildarafla í tonnum og uppistöðu fisktegunda í aflanum.Friðrik Sigurðsson ÁR 17 .... þorskanet .... 2 ..... 17,9 ..þorskur 9,1Hvanney SF 51 ...................... þorskanet .. 10 ... 155,0 ..ufsi 125,9Fróði II ÁR 38 .......................humarv ....... 1 ..... 12,2 ..humar 3,0Sigurður Ólafsson SF 44 ......humarv ....... 3 ..... 25,4 ..humar 2,9Skinney SF 20 .......................humarv ....... 3 ..... 48,3 ..humar 2,8Þórir SF 77 ............................humarv ....... 5 ... 118,5 ..humar 8,0Steinunn SF 10 ......................botnv ........... 5 ... 212,8 ..steinbítur 89,5 Þinganes SF 25 .....................botnv ...........4 ... 101,3 ..þorskur 67,8Benni SU 65 .......................... lína ............. 11 ..... 70,3 ..þorskur 54,6Beta VE 36 ............................ lína ............... 8 ..... 50,2 ..þorskur 39,3Dögg SU 118 ......................... lína .............14 ..... 97,8 ..þorskur 85,2Guðmundur Sig SU 650 ....... lína ............. 10 ..... 65,9 ..þorskur 54,1Ragnar SF 550 ....................... lína ............. 10 ..... 78,6 ..þorskur 94,7Siggi Bessa SF 97 ................. lína .............14 ..... 49,6 ..þorskur 39,0Sævar SF 272 ........................handf ........... 3 ....... 4,1 ..ufsi 3,2Ásgrímur Halld. SF 270 .......nót................4 ... 3.425 ..síldJóna Eðvalds SF 200.............nót................ 5 ... 3.560 ..síld

Kjörstjórn Suðurkjördæmis auglýsir eftir framboðum á framboðslista

Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2013.

Þeir flokksmenn sem hafa hug á því að taka sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í kjördæminu fyrir alþingiskosningarnar 2013 skulu senda kjörstjórn skriflega kynningu fyrir kl. 12:00, þann 28. desember 2012, þar sem frambjóðendur kynna sig og gera grein fyrir helstu baráttumálum sínum auk þess að tilgreina hvaða sætum á lista þeir sækjast eftir. Kynningunni skal fylgja ljósmynd. Sjá reglur á vef Framsóknar: http://www.framsokn.is/Flokkurinn/Frambodsreglur/Reglur_um_tvofalt_kjordaemisthing

Jafnframt eru flokksmenn hvattir til að tilnefna frambjóðendur með því að senda tölvupóst á [email protected]. Skal þar tilgreina nafn frambjóðanda, rökstuðning fyrir tilnefningu, hvaða sæti á listanum kæmu til greina og aðrar þær upplýsingar er skipta máli. Tilnefningar skulu sendar í síðasta lagi föstudaginn 14. desember n.k.

Selfossi, 29. nóvember 2012 KJÖRSTJÓRN SUÐURKJÖRDÆMIS

Nú er tími kertaljósa

Pizzatilboð alla föstudaga í desember

16” með 2 áleggstegundum kr. 1990,- ef þú sækir

Sími 478 - 1505 / 691 – 8502 / nova 776 - 1501Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 11:00 - 14:00 og 17:00 - 20:00,

föstudaga og laugardaga kl. 12:00 - 21:00 og sunnudaga kl. 14:00 - 20:00

FélagsfundurFramsóknarfélag Austur-Skaftfellinga boðar til félagsfundar að Brunnhóli á Mýrum, sunnudaginn 9. desember, klukkan 17:00

Kjör fulltrúa á Kjördæmisþing KSFS, tvöfalt 1. kjördæmisþing þar sem kosið verður um um 7 efstu sæti framboðslista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi við alþingiskosningar 2013. Kjördæmisþingið verður haldið laugardaginn 12. janúar 2013 á Hótel Selfoss og hefst klukkan 12:00 árdegis og áætlað að því ljúki kl 17:30.

Önnur mál2.

Hvetjum félagsmenn til að mæta og eiga notalega samveru á aðventu í bland við gagnleg og uppbyggjandi skoðanaskipti um samfélagsmálefni. Boðið verður upp á súpu og nýbakað brauð.

Stjórnin

Alla Föstudaga í Desember

16‘‘ með 2 áleggstegundum

1990 ef þú sækir

Sim:478-1505 /691-8502/nova 776-1501

Opið; Mánudag til Fimmtudag 11:00 - 14:00 og 17:00 – 20:00

Föstudag og laugardag 12:00 – 21:00

Sunnudagur 14:00 - 20:00

Page 8: Eystrahorn 43. tbl. 2012

Verkefnisstjórar/ráðgjafar á sviði atvinnu- og byggðaþróunarSamtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) óska eftir að ráða tvo verkefnastjóra/ráðgjafa.

Annar ráðgjafinn verður með starfsstöð á Hornafirði en hinn á Selfossi. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga og Atvinnuþróunarfélag Suðurlands verða sameinuð um nk. áramót til þess að að takast á við aukin verkefni landshlutasamtakanna í framtíðinni. Starfssvæði samtakanna nær frá Ölfusi í vestri að Hornafirði í austri. Atvinnuráðgjafar veita ráðgjöf, hafa umsjón með styrkveitingum til áhugaverðra verkefna og vinna að stefnumótun í atvinnumálum fyrir landshlutann. Lögð er áhersla á hraða, gæði og vönduð vinnubrögð við úrlausn verkefna og er unnið í nánu samstarfi við einstaklinga, fyrirtæki, önnur innlend atvinnuþróunarfélög, opinbera aðila og erlenda aðila á sviði byggðaþróunar.

Starfssvið:Samstarf með fyrirtækjum, einstaklingum og sveitarfélögum að atvinnuþróun og nýsköpun á starfsvæðinu.• Viðskipta- og rekstrarráðgjöf.• Aðstoð við gerð styrkumsókna.• Þátttaka og stjórnun nýsköpunar- og þróunarverkefna.• Stefnumótun í atvinnumálum.•

Hæfniskröfur:Háskólamenntun á sviði viðskipta og hagfræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.• Góð þekking og áhugi á atvinnu– og efnahagslífi á landsbyggðinni.• Hæfni í mannlegum samskiptum.• Færni í ræðu og riti.• Frumkvæði, sjálfstæði, framsýni og metnaður.•

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. febrúar n.k.

Umsóknarfrestur er til og með 31. desember 2012 og skal umsóknum með upplýsingum um starfsferil og menntun skilað til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga Austurvegi 56, 800 Selfossi, eða að senda þær á netfangið [email protected] . Öllum umsóknum verður svarað.

Nánari upplýsingar veitir Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri SASS í síma 480-8200 og Steingerður Hreinsdóttir framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélagsins í síma 848 6385.

Bæði konur og karlar eru hvött til þess að sækja um störfin.

Nánari upplýsingar um starfsemi SASS og Atvinnuþróunarfélagsins er að finna á www.sudurland.is og www.sudur.is.

Bossa Nova og sönglög Útí GeimÍ Pakkhúsinu laugardaginn 8. desember kl. 21:00

Ife Tolentino og Óskar Guðjónsson

og

Hljómsveit Ómars Guðjónssonar

Bræðurnir Ómar og Óskar Guðjónssynir ásamt félögum flytja tónlist af tveimur breiðskífum sem komu út nú fyrir jólin. Annars vegar eru það sönglög Ómars

"Útí Geim" sem hann mun leika ásamt hljómsveit sinni í síðari hluta hljómleikanna og hins vegar er það

Brazilíski Íslandsvinurinn Ife Tolentino sem mun leiða tónleikagesti inn í sinn huglúfa og seiðandi Bossa Nova heim í fyrri hluta

tónleikanna ásamt Óskari Guðjónssyni saxófónleikara. Þeir félagar voru einmitt

að senda frá sér geislaplötuna "Voce Passou Aqui"

almanak samkórsins

Samkór Hornafjarðar hefur gefið út almanak

fyrir árið 2013.Í almanakinu eru girnilegar uppskriftir frá kórfélögum,

ein í hverjum mánuði. Þar eru bæði köku- og

mataruppskriftir sem allar eru í sérstöku uppáhaldi

kórfélaga. Almanakið kostar kr. 1.990,-

og fæst í Sport-X og hjá kórfélögum.