Eystrahorn 40. tbl. 2015

6
Fimmtudagur 19. nóvember 2015 www.eystrahorn.is Eystrahorn 40. tbl. 33. árgangur www.eystrahorn.is Blaðið hafði samband við Jóa á Fiskmarkaðinum „Haustið hefur verið þokkalegt en mátt vera betra. Bæði tíðarfarið og reyndar fiskleysi á tímabili voru að pirra okkur svolítið“ sagði Jói. Hjá Skinney-Þinganesi fengust þessar upplýsingar; „Humarbátar héldu sig eingöngu á suðvestur miðum í haust, ólíkt undanfarin ár þegar þeir færðu sig á heimamið þegar líða tók á vertíðina. Eins og komið hefur fram í fréttum voru aflabrögð síðri en áður en þegar upp var staðið náðist góður hluti kvótans. Síldveiðar hafa jafnframt verið með öðru sniði en undanfarin ár. Síldin hefur verið treg og meira þurft að hafa fyrir veiðinni. Áætlanir um veiðar á bolfiski í haust hafa gengið eins og lagt var upp með. Núna verða alls fimm bátar ýmist á línu, trolli eða netum fram að áramótum auk þess sem uppsjávarskipin halda áfram á síld. Markaðir fyrir uppsjávarfisk tóku talsverða dýfu á árinu vegna þess að Rússar lokuðu á innflutning frá Íslandi fyrr á árinu. Markaðir bæði fyrir síld og makríl bera þess merki og verð hefur lækkað talsvert. Loðnuvertíð er framundan og alveg óljóst bæði með kvóta og markaðshorfur. Markaðir fyrir aðrar afurðir hafa verið stöðugir og horfur á nýja árinu fyrir bolfisk ágætar. Nýverið voru gerðar skipulagsbreytingar á fyrirtækinu með það að markmiði að annars vegar efla nýsköpun og vöruþróun og hins vegar hámarka nýtingu og afköst í vinnslu félagsins.“ Á hverju ári setja hundruð þúsunda einstaklinga, frá rúmlega 150 löndum og landsvæðum, nafn sitt á milljónir bréfa til stjórnvalda sem brjóta mannréttindi og þrýsta á umbætur. Fjöldinn allur skrifar einnig stuðningskveðjur til þolenda mannréttindabrota og veita þeim þannig styrk og vissu um að umheimurinn hafi ekki gleymt þeim. Það kann að vera auðvelt fyrir stjórnvöld að hunsa eitt bréf en þegar milljónir slíkra bréfa berast er erfitt að líta undan. Bréfin bera árangur. Bréfin bjarga lífi. Í rúm 50 ár hefur Amnesty International barist gegn mannréttindabrotum með pennann að vopni og á hverju ári eru samviskufangar leystir úr haldi, fangar hljóta mannúðlegri meðferð, þolendur pyndinga sjá réttlætinu fullnægt, fangar á dauðadeild eru náðaðir eða ómannúðlegri löggjöf er breytt. Á hverju ári eiga sér stað raunverulegar breytingar á lífi þolenda mannréttindabrota vegna undirskrifta ykkar og aðgerða. Gott dæmi um raunverulega breytingu á lífi þolanda mannréttindabrots er saga Moses Akatugba, ungs manns frá Nígeríu sem var pyndaður grimmilega og dæmdur til dauða með hengingu aðeins 16 ára gamall fyrir það eitt að stela þremur farsímum. Á síðasta ári þrýstu rúmlega 300.000 manns, í bréfamaraþoni samtakanna, á fylkisstjórann á óseyrum Nígerfljóts að náða Moses og í maí 2015 lét fylkisstjórinn undan. Moses er nú frjáls maður. Íslendingar hafa ekki látið sitt eftir liggja í bréfamaraþoninu en á síðasta ári voru rúmlega 75.000 bréf og kort send utan, þar af 16.000 vegna Moses. Þátttaka var mjög góð á Höfn í Hornafirði en alls voru 2.588 bréf og kort send utan til stjórnvalda. Fleiri þurfa nú hjálpar þinnar við á Höfn. Ekki láta þitt eftir liggja á aðventunni í ár í baráttunni fyrir betri heimi. Hjálpaðu til. Taktu þátt í bréfamaraþoni Íslandsdeildar Amnesty International á Höfn í Hornafirði, í Gömlubúð upplýsingastofu ferðamála og gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs, sunnudaginn 30. nóvember frá kl. 13:00 til 17:00. Þar geturðu brugðist við vegna 12 áríðandi mála sem þurfa á athygli þinni að halda. Bréf getur breytt lífi. Taktu þátt. Þegar veita á gæðaþjónustu er lykilatriði að setja öryggismálin ávallt í öndvegi. Menntun og þjálfun starfsmanna/leiðsögumanna er mjög mikilvæg og í VAKANUM, gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar, eru gerðar miklar kröfur á því sviði. Það á ekki síst við þegar um ræðir afþreyingu sem gæti falið í sér áhættu fyrir þátttakendur. Vatnajökulsþjóðgarður, Sveitarfélagið Hornafjörður og Ríki Vatnajökuls beina þeim tilmælum til þeirra aðila sem eru með ferðir á jökla og í íshella að þeir fylgi viðmiðum VAKANS „203 Gönguferðir um jökla og fjöll“ við skipulagningu slíkra ferða. Á það ekki síst við hvað varðar hlutfall viðskiptavina á leiðsögumann og öryggisþætti almennt. Á heimasíðu VAKANS, http://www.vakinn.is er að finna sértæk viðmið vegna gönguferða á jökla og fjöll. Markmið allra aðila sem vinna við ferðaþjónustu er það sama: að gestir okkar njóti einstakrar upplifunar. Því viljum við minna alla aðila á að sýna hver öðrum tillitsemi og kurteisi sem og ganga vel um umhverfið sem er auðlind okkar allra. Ískaldar staðreyndir! Aflabrögð í haust Bréf til bjargar lífi Stjórnvöld geta hunsað eitt bréf – þau hunsa ekki milljónir bréfa!

description

 

Transcript of Eystrahorn 40. tbl. 2015

Page 1: Eystrahorn 40. tbl. 2015

Fimmtudagur 19. nóvember 2015 www.eystrahorn.is

Eystrahorn40. tbl. 33. árgangur www.eystrahorn.is

Blaðið hafði samband við Jóa á Fiskmarkaðinum „Haustið hefur verið þokkalegt en mátt vera betra. Bæði tíðarfarið og reyndar fiskleysi á tímabili voru að pirra okkur svolítið“ sagði Jói. Hjá Skinney-Þinganesi fengust þessar upplýsingar; „Humarbátar héldu sig eingöngu á suðvestur miðum í haust, ólíkt undanfarin ár þegar þeir færðu sig á heimamið þegar líða tók á vertíðina. Eins og komið hefur fram í fréttum voru aflabrögð síðri en áður en þegar upp var staðið náðist góður hluti kvótans. Síldveiðar hafa jafnframt verið með öðru sniði en undanfarin ár. Síldin hefur verið treg og meira þurft að hafa fyrir veiðinni.   Áætlanir um veiðar á bolfiski  í haust hafa gengið eins og lagt var upp með. Núna verða alls fimm bátar ýmist á línu, trolli eða netum fram að áramótum auk þess sem uppsjávarskipin halda áfram á síld. Markaðir fyrir uppsjávarfisk tóku talsverða dýfu á árinu vegna þess að Rússar lokuðu á innflutning frá Íslandi fyrr á árinu. Markaðir bæði fyrir síld og makríl bera þess merki og verð hefur lækkað talsvert. Loðnuvertíð er framundan og alveg óljóst bæði með kvóta og markaðshorfur. Markaðir fyrir aðrar afurðir hafa verið stöðugir og horfur á nýja árinu fyrir bolfisk ágætar. Nýverið voru gerðar skipulagsbreytingar á fyrirtækinu með það að markmiði að annars vegar efla nýsköpun og vöruþróun og hins vegar hámarka nýtingu og afköst í vinnslu félagsins.“

Á  hverju  ári  setja  hundruð þúsunda einstaklinga, frá rúmlega 150 löndum og landsvæðum, nafn sitt á milljónir bréfa til stjórnvalda sem brjóta mannréttindi og þrýsta á umbætur. Fjöldinn allur skrifar einnig stuðningskveðjur til þolenda mannréttindabrota og veita þeim þannig styrk og vissu um að umheimurinn hafi ekki gleymt þeim. Það kann að vera auðvelt fyrir stjórnvöld að hunsa eitt bréf en þegar milljónir slíkra bréfa berast er erfitt að líta undan. Bréfin bera árangur. Bréfin bjarga lífi. Í rúm 50 ár hefur Amnesty International barist gegn mannréttindabrotum með pennann að vopni og á hverju ári eru samviskufangar leystir úr haldi, fangar hljóta mannúðlegri meðferð, þolendur pyndinga sjá réttlætinu fullnægt, fangar á dauðadeild eru náðaðir eða ómannúðlegri löggjöf er breytt. Á hverju  ári  eiga  sér  stað  raunverulegar breytingar  á  lífi þolenda mannréttindabrota vegna undirskrifta ykkar og aðgerða. Gott dæmi um raunverulega breytingu á lífi þolanda mannréttindabrots er saga Moses Akatugba, ungs manns frá Nígeríu sem var pyndaður grimmilega og dæmdur til dauða með hengingu aðeins 16 ára gamall fyrir það eitt að stela þremur farsímum. Á síðasta ári þrýstu rúmlega 300.000 manns, í bréfamaraþoni samtakanna, á fylkisstjórann á óseyrum Nígerfljóts að náða Moses og í maí 2015 lét fylkisstjórinn undan. Moses er nú frjáls maður. Íslendingar hafa ekki látið sitt eftir liggja í bréfamaraþoninu en á síðasta ári voru rúmlega 75.000 bréf og kort send utan, þar af 16.000 vegna Moses. Þátttaka var mjög góð á Höfn í Hornafirði en alls voru 2.588 bréf og kort send utan til stjórnvalda. Fleiri þurfa nú hjálpar þinnar við á Höfn. Ekki láta þitt eftir liggja á aðventunni í ár í baráttunni fyrir betri heimi. Hjálpaðu til. Taktu þátt í bréfamaraþoni Íslandsdeildar Amnesty International á Höfn í Hornafirði, í Gömlubúð upplýsingastofu ferðamála og gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs, sunnudaginn 30. nóvember frá kl. 13:00 til 17:00. Þar geturðu brugðist við vegna 12 áríðandi mála sem þurfa á athygli þinni að halda. Bréf getur breytt lífi. Taktu þátt.

Þegar veita á gæðaþjónustu er lykilatriði að setja öryggismálin ávallt í öndvegi. Menntun og þjálfun starfsmanna/leiðsögumanna er mjög mikilvæg og í VAKANUM, gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar, eru gerðar miklar kröfur á því sviði. Það á ekki síst við þegar um ræðir afþreyingu sem gæti falið í sér áhættu fyrir þátttakendur. Vatnajökulsþjóðgarður, Sveitarfélagið Hornafjörður og Ríki Vatnajökuls beina þeim tilmælum til þeirra aðila sem eru með ferðir á jökla og í íshella að þeir fylgi viðmiðum VAKANS „203 Gönguferðir um jökla og fjöll“ við skipulagningu slíkra ferða. Á það ekki síst við hvað varðar hlutfall viðskiptavina á leiðsögumann og öryggisþætti almennt.  Á heimasíðu VAKANS, http://www.vakinn.is er að finna sértæk viðmið vegna gönguferða á jökla og fjöll. Markmið allra aðila sem vinna við ferðaþjónustu er það sama: að gestir okkar njóti einstakrar upplifunar. Því viljum við minna alla aðila á að sýna hver öðrum tillitsemi og kurteisi sem og ganga vel um umhverfið sem er auðlind okkar allra.

Ískaldar staðreyndir!

Aflabrögð í haust Bréf til bjargar lífiStjórnvöld geta hunsað eitt bréf – þau hunsa ekki milljónir bréfa!

Page 2: Eystrahorn 40. tbl. 2015

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 19. nóvember 2015

Vildaráskriftina má greiða í Landsbankanum

HornafjarðarMANNI Rnr. 0172 - 26 - 000811

Kt. 240249-2949

EystrahornEystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

Alþjóðlegi blóðsykursdagurinn var laugardaginn 14. nóvember sl. Af því tilefni ætla Lionsklúbburinn Kolgríma og Lionsklúbbur Hornafjarðar í samstarfi

við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Hornafirði að vera með blóðsykursmælingu í Miðbæ (Nettó)

föstudaginn 20. nóvember nk. kl. 12:30 – 16:30.

Hvetjum fólk að koma og notfæra sér þessa þjónustu.

Lionsklúbbarnir

Kæru HornfirðingarOkkur vantar margt í búið, s.s. hjónarúm, rimlarúm, uppþvottavél, borðstofustóla/sett. Endilega verið í bandi ef þú átt eitthvað í geymslunni sem þú vilt losna við eða selja. Ekkert verra ef það er gamalt og þarfnast smá fínpússunar.

Guðrún Sturlaugsdóttir, sími 867-6604.

Sveitabúðin í neSjum

verður opin kl. 12:00-17:00 nk. laugardag.Hamborgarhryggur, bæjonskinka, bacon, bjúgu og margt fleira frá Miðskersbúinu. Ferkst grænmeti,

konfekt, pestó og heilsusnakk frá Hólabrekkuafurðum, Laufey í Lóninu verður með skómarkað. Súpa, brauð,

kaffi og vöfflur í veitingaskálanum.

Verið velkomin. Anna og Anna

Hafnarsókn og fermingarbörn þakka kærlega fyrir góðar móttökur þegar gengið var í hús og fé safnað vegna vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar í Afríku.

Félagsstarf í EKRUNNIFélagsvIstIN heldur áfram kl. 20:00 í kvöld fimmtudaginn 19. nóvember. Aðgangseyrir 1000 kr. Allir velkomnir.OPIN saMvERUstUND kl. 17:00 - 18:00 föstudaginn 20. nóvember. Sýndar verða tvær stuttmyndir eftir Emil Morávek. Áður en sýning hefst syngur Salóme Morávek sigurlag sitt í SAMAUST söngkeppni félagsmiðstöðvanna (í stað grunnskólanna) á Austurlandi.HaRMóNIKUvöFFlUball kl. 16:00 sunnudaginn 22.nóvember. Harmonikubræðurnir ANDRI SNÆR og BRAGI FANNAR spila fyrir dansi. Aðgangseyrir 500 kr. rjómavaffla og kaffi innifalið. Allir velkomnir.

Félags eldri Hornfirðinga

Page 3: Eystrahorn 40. tbl. 2015

www.eystrahorn.isEystrahorn Fimmtudagur 19. nóvember 2015

Guðrún  Ásdís  Sturlaugsdóttir, verkefnastjóri og ráðgjafi SASS - Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, er mætt til starfa á Höfn. Guðrún veitir margþætta ráðgjöf og handleiðslu til frumkvöðla, fyrirtækja, rekstraraðila og einstaklinga. Þjónustan felst m.a. í handleiðslu við gerð rekstrar- og viðskiptaáætlana og styrkumsókna. Auk þess er hægt að kanna leiðir og möguleika til hagræðingar, þróunar eða vaxtar í rekstri. Þeir sem eru ennþá á hugmyndastiginu geta fengið ráðgjöf og handleiðslu við að taka fyrstu skrefin. Guðrún er með skrifstofu á frumkvöðlagangi Nýheima þar sem hún tekur vel á móti þér. Einnig má hafa samband í gegnum netfangið  [email protected]  eða  í  síma  470-8086/898-0369.  Fyrirtæki, frumkvöðlar, rekstraraðilar og einstaklingar eru hvattir til að nýta sér þá þjónustu sem er í boði hjá SASS á Hornafirði. Höfuðmarkmið SASS er að efla atvinnulíf á Suðurlandi og stuðla þannig að aukinni hagsæld á svæðinu með aðstoð við einstaklinga, fyrirtæki, félagasamtök, sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila í formi ráðgjafar og fjármagns.

Ert þú með hugmynd eða ertu nú þegar í rekstri?

Þjónusta SASS á Hornafirði

Nú fer að líða að því að reiðnámskeiðið fari af stað í reiðhöllinni við Stekkhól. Næsta laugardag 21. nóvember kl. 13:00 - 15:00 ætlar Snæbjörg Guðmundsdóttir (Snæsa) að mæta í reiðhöllina, með hesta, kynna námskeiðið og hitta áhugasama nemendur. Gaman væri að sjá sem flesta krakka í reiðhöllinni og foreldrar eru einnig velkomnir til að fá upplýsingar um vetrarstarfið hjá Hornfirðingi. Stefnt er að því að námskeiðið byrji í desember og standi yfir fram í apríl 2016. Boðið verður upp á kaffi og piparkökur á staðnum.

Forréttir Síld – karrýsíld, marineruð síld heimagert rúgbrauð kr. 1690Stökk hörpuskel /hvítlaukur, sætur laukur kr. 1990Reyklaxatartar /sesamkex, capers kr. 1490

AðalréttirAndalæri confit döðlur,rauðrófa,soðsósa kr. 4950Grísa purusteik hvítkál,sykraðar kartöflur kr. 3990Léttreykt lamb jurtakartöflumús,villisveppasósa kr. 4350

EftirréttirRis ala mandle Kirsuberjasósa kr. 1490Mjúkkjarnasúkkalðikaka kókosís kr. 2200Snikkers skyrfrauð hindber kr. 1990

Reiðnámskeið í Reiðhöllinni

Jólaseðillnóvember 2015

Sími 478-1240

Laust starf skólaliði við Grunnskóla Hornafjarðar

Auglýst er eftir skólaliða við Grunnskóla Hornafjarðar sem getur hafið störf

frá og með 4. janúar 2016.Starf skólaliða er á yngra stigi og felst í gæslu

nemenda, ræstingu og aðstoð í matsal. Vinnutími er frá 7:50 – 16:00.

Umsóknarfrestur er til 1. desember. Umsóknum skal skilað skriflega til skólastjóra á þar til gerðu umsóknareyðublaði sem er á heimasíðu skólans:

http://www.hornafjordur.is/grunnskoli/efni/starfsmenn/laus-storf/

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi sveitarfélagsins við stéttarfélög.

Frekari upplýsingar gefur skólastjóri í síma 8995609 og á netfanginu

[email protected]

FöstudagshádegiMyndasýning úr ýmsum áttum frá

Héraðsskjalasafninu.Allir velkomnir!

Page 4: Eystrahorn 40. tbl. 2015

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 19. nóvember 2015

Rannsóknarþing NýheimaRannsóknarstarfsemi í Þekkingarsetrinu Nýheimum26. nóvember 2015 kl. 16:00 – 18:00Samkoman hefst kl. 15:45 með kaffiveitingumFundarstjóri: Davíð Arnar Stefánsson, verkefnastjóri Nýheima16:00 Þingsetning16:05 Rannsóknarsetur HÍ Allt milli himins og jarðar verkefni rannsóknasetursins á Hornafirði. Þorvarður Árnason, náttúrufræðingur Ég skapa – þess vegna er ég. Um skrif Þórbergs Þórðarsonar Soffía Auður Birgisdóttir, bókmenntafræðingur16:30 Náttúrustofa Suðausturlands Yfirlit yfir valin verkefni Náttúrustofu Kristín Hermannsdóttir, forstöðumaður Jöklabreytingar í ljósi gamalla mynda Snævarr Guðmundsson, sviðsstjóri Niðurstöður fjarlægðamælinga á fastastjörnu frá Höfn í Hornafirði Snævarr Guðmundsson, sviðsstjóri17:00 Þekkingarsetrið Nýheimar Borgaravitund og valdefling ungmenna á landsbyggðinni Margrét Gauja Magnúsdóttir, starfandi náms- og starfsráðgjafi17:10 Hornafjarðarsöfn Rannsóknir og uppbygging innan Hornafjarðarsafna – fornleifarannsóknir og skráning menningaminja Vala Björg Garðarsdóttir, forstöðumaður17:30 Framhaldsskólinn í Austur – Skaftafellssýslu Rannsóknarstarf í FAS Eyjólfur Guðmundsson, skólameistari17:50 Meistaraverkefni Náttúrutengsl og umhverfisstjórnun – mótun, upplifun og áhrifaþættir Hugrún Harpa Reynisdóttir, umhverfis- og auðlindafræðingur18:00 Þinglok

AtvinnaSveitarfélagið Hornafjörður auglýsir eftir tveimur hafnsögumönnum við Hornafjarðarhöfn. Óskað er eftir umsækjendum með ríka þjónustulund í starf hafnsögumanns. Hafnsögumenn starfa við hafnsögu skipa og skipstjórn Björn Lóðs, auk annarra hefðbundinna þjónustu og viðhaldsstarfa. Þeir sinna ýmsum þjónustuhlutverkum við höfnina eins og að afgreiða rafmagn og vatn, ásamt öðrum tilfallandi verkefnum hjá Hornafjarðarhöfn.

Menntun og reynsla• Skipstjórnarréttindi 2. stig • Vélstjórnarréttindi 1. stig • Góð almenn tölvukunnátta• Löggilding vigtarmanns er kostur

Hæfni • Sjálfstæði í vinnubrögðum• Skipulagshæfileikar,ognákvæmniviðskráningu

gagna • Ríkuleg þjónustulund og hæfni í mannlegum

samskiptum• Megináhersla er lögð á vandvirkni og nákvæmni í

öllum störfum

Leitað er eftir einstaklingum sem eru snyrtilegir, stundvísir og reglusamir. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja umstarfið.Launskv.kjarasamningiFélagsopinberrastarfsmannaáSuðurlandi.UpplýsingarumstarfiðveitirVignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðahafna í síma 897 1681 og netfang [email protected] og á www.hornafjordur.is/atvinna

Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2015

Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á [email protected]

Senn koma jólinLangir fimmtudagar fram að jólum

Opið til kl. 20:00 öll fimmtudagskvöldMilli kl. 17:00 - 20:00 á fimmtudögum er tilboðstími

Opið alla laugardaga til jóla kl. 13:00 - 16:00

Munið facebooksíðu Verslunar Dóru þar sem tilboðin verða auglýst

Full búð af nýjum vörum - verslum í heimabyggð

Verið velkominn - Dóra og Þórhildur

Verslun Dóru

KörfuboltiÍþróttahús Heppuskóla

ÍSlANDSMótið - 2. DeilD KARlA laugardagur 21. nóvember kl. 15:00 Sindri - Í.B (íþróttafélag Breiðholts)

ÍSlANDSMótið - DReNGjAFloKKUR Sunnudagur 22. nóvember kl 14:00

Sindri - Fjölnir B

Mætum og styðjum okkar fólk

Áfram Sindri!

Page 5: Eystrahorn 40. tbl. 2015

Nýttu nafnið þitt til að skrifa undir bréf til stjórnvalda sem brjóta mannréttindi.

Vertu með í bréfamaraþoni Amnesty International í Gömlubúð á Höfn sunnudaginn 29. nóvember frá kl. 13 til 17.

Undirskrift þín skiptir meira máli en þú heldur!

BREYTTU HEIMINUM!

Föstudagskvöldið 20. nóvember kl. 20:00 er komið að hinu árlega konukvöldi Húsgagnavals. Þau hafa heppnast einstaklega vel síðustu ár. Er það okkur ánægja að bjóða ykkur að eiga notalega stund með léttum veitingum.

Úrval af fallegum jóla- og gjafavörum.

Afsláttur á völdum vörum.

Verið velkomin.

Konukvöld

HúsgagnavalOpið: virka daga kl. 13:00 - 18:00 laugardaga kl. 13:00 - 15:00

Hægt er að skrá sig til þátttöku á

markaði eða með viðburði til

Nánari upplýsingar

veitir Árdís Erna Halldórsdóttir

í síma 470-8009,

[email protected].

Page 6: Eystrahorn 40. tbl. 2015

22%AFSLÁTTUR

ÍSLENSKUR KALKÚNNVERÐ ÁÐUR 1.549 KR/KG

1.363 KRKG

KALKÚNAFYLLING VERÐ ÁÐUR 1.398 KR/KG

1.090 KRKG

20%AFSLÁTTUR

25%AFSLÁTTUR

SÆTAR KARTÖFLUR 453 GFROSNARVERÐ ÁÐUR 479 KR/PK

398 KRPK

20%AFSLÁTTUR

SELLERÍ STILKAR 250 GVERÐ ÁÐUR 286 KR/PK

229 KRPK

GRÆNN ASPAS 454 GVERÐ ÁÐUR 699 KR/PK

559 KRPK

20%AFSLÁTTUR

RAUÐKÁL - FERSKTVERÐ ÁÐUR 278 KR/KG

139 KRKG

K.S. LAMBAFILLE M. FITU FROSIÐVERÐ ÁÐUR 3.645 KR/KG

3.171 KRKG

SS LAMBABÓGUR 2 STK Í PKFROSINNVERÐ ÁÐUR 998 KR/KG

798 KRKG

HEILL FROSINN KJÚKLINGURVERÐ ÁÐUR 798 KR/KG

599 KRKG

Mar

khön

nun

ehf

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Búðakór· Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · SelfossTilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana

Tilboðin gilda

19. - 25. nóv.