Eystrahorn 13. tbl. 2012

6
Fimmtudagur 29. mars 2012 www.eystrahorn.is Eystrahorn 13. tbl. 30. árgangur www.eystrahorn.is Ritstjóri lagði leið sína í Þórbergssetur sl. sunnudag ásamt fleira fólki eða milli 80 og 90 manns. Tilefnið var að árlega er boðið uppá menningarlega dagskrá í mars í tilefni af afmælisdegi Þórbergs. Samkoman stóð fyllilega undir væntingum ritstjóra. Þorbjörg Arnórsdóttir hafði orð fyrir heimamönnum og Karlakórinn Jökull hóf dagskrána með kórsöng þar sem meðal annars voru sungin lög við texta eftir Þórberg og Megas og endað á frægu Eurovison lagi með texta og tilvísun í Hornafjörð. Sigurður Pálsson skáld og rithöfundur fór á kostum þegar hann las úr Bernskubók sinni og fór yfir tilurð hennar. Var honum afar vel fagnað og hann klappaður upp til að fá meira að heyra. Soffía Auður fjallaði um Lækningabók Jónassen og Þórberg og kom þar enn einu sinni fram hversu mikið ólíkindatól Þórbergur var og hvernig hann var alltaf með skrifum sínum í raun að setja raunveruleikann í skáldlegan búning. Í máli Þorbjargar kom fram að fyrir nokkru bauðst til sölu stórt safn af frumútgáfum af verkum Þórbergs Þórðarsonar, alls 46 bækur, allar mjög heillegar og vel með farnar. Skinney-Þinganes keypti safnið og færði það Þórbergssetri að gjöf. Í þessu safni er frumútgáfa af Bréfi til Láru sem aðeins kom út í 300 eintökum árið 1924 og er mjög fágæt. Í fyrstu útgáfu af Bréfi til Láru voru bækurnar allar númeraðar og áritaðar af Þórbergi, sérkennileg hönnun vekur athygli en bækurnar eru eins og umslög í laginu og ritað er utan á þær eins og þær séu tilbúnar til sendingar með póstinum. Eintakið í Þórbergssetri er númer 109. Innihald Bréfsins olli sem kunnugt er miklu umróti og deilum í samfélaginu. Þórbergur gaf Bréf til Láru út sjálfur og veðsetti eigur sínar fyrir útgáfunni, en bókin seldist strax upp og var aftur gefin út árið 1925 í stærra upplagi. Þorbjörg sagði að bókagjöfin hefði mikla þýðingu fyrir safnið og þakkaði forsvarsmönnum Skinneyjar- Þinganess sérstaklega fyrir þessa verðmætu gjöf. Einnig kynnti Þorbjörg sýningu á styttunum hans Sobeggi afa sem Lilla Hegga gaf honum alltaf á afmælinu hans, og á afmælinu hans Jesús þ.e. á jólunum. Alls 43 styttur, gjöf frá Helgu Jónu Ásbjarnardóttur til Þórbergsseturs. Bæði söfnin hafa verið sett upp í skápa í sýningarsal Þórbergsseturs ásamt þeim bókum sem til voru fyrir á Hala. Þorbjörg bauð síðan gestum að líta báðar sýningarnar augum áður en sest var að rausnarlegu kaffihlaðborði. Í samtali við ritstjóra sagði Þorbjörg að alltaf væri eitthvað nýtt sjá í Þórbergssetri og búið að vera gestkvæmt í vetur. „Síðast komu konur úr Kvenfélagi Kirkjubæjarhrepps í heimsókn og nutu veitinga og fór um sýningar og fjöldi erlendra ferðamanna hefur komið að Hala á þessum vetri. Norðurljósin, náttúran í vetrarríki og einstök menning dregur nú æ fleiri ferðamenn til Íslands yfir veturinn og er það afar ánægjuleg þróun. Eitt af meginmarkmiðum með starfsemi Þórbergsseturs er hafa opið allt árið, leggja sig fram í þjónustu við ferðamenn á lágönn, og jafnframt að stuðla að framþróun menningarferðaþjónustu á Íslandi.“ sagði Þorbjörg lokum. Frumútgáfur af verkum Þórbergs Þórðarsonar komnar heim í hérað Þorbjörg og Gunnar Ásgeirsson stjórnarformaður Skinneyjar - Þinganess á innfelldu myndinni. á Hótel Höfn föstudagskvöldið 13. apríl kl 20:00 Fordrykkur • Sushi og sticks • Frábært kvöld og glæsileg sýning, happadrætti o.fl. • Miðaverð kr. 3.500,- Veislustjóri verður Sigríður Klingeberg Opinn dansleikur á eftir • Guggurnar spila fram á nótt Borðapantanir í síma 478-1240 Hótel Höfn KONUKVÖLD

description

Eystrahorn 13. tbl. 2012

Transcript of Eystrahorn 13. tbl. 2012

Page 1: Eystrahorn 13. tbl. 2012

Fimmtudagur 29. mars 2012 www.eystrahorn.is

Eystrahorn13. tbl. 30. árgangur www.eystrahorn.is

Ritstjóri lagði leið sína í Þórbergssetur sl. sunnudag ásamt fleira fólki eða milli 80 og 90 manns. Tilefnið var að árlega er boðið uppá menningarlega dagskrá í mars í tilefni af afmælisdegi Þórbergs. Samkoman stóð fyllilega undir væntingum ritstjóra. Þorbjörg Arnórsdóttir hafði orð fyrir heimamönnum og Karlakórinn Jökull hóf dagskrána með kórsöng þar sem meðal annars voru sungin lög við texta eftir Þórberg og Megas og endað á frægu Eurovison lagi með texta og tilvísun í Hornafjörð. Sigurður Pálsson skáld og rithöfundur fór á kostum þegar hann las úr Bernskubók sinni og fór yfir tilurð hennar. Var honum afar vel fagnað og hann klappaður upp til að fá meira að heyra. Soffía Auður fjallaði um Lækningabók Jónassen og Þórberg og kom þar enn einu sinni fram hversu mikið ólíkindatól Þórbergur var og hvernig hann var alltaf með skrifum sínum í raun að setja raunveruleikann í skáldlegan búning. Í máli Þorbjargar kom fram að fyrir nokkru bauðst til sölu stórt safn af frumútgáfum af verkum Þórbergs Þórðarsonar, alls 46 bækur, allar mjög

heillegar og vel með farnar. Skinney-Þinganes keypti safnið og færði það Þórbergssetri að gjöf. Í þessu safni er frumútgáfa af Bréfi til Láru sem aðeins kom út í 300 eintökum árið 1924 og er mjög fágæt. Í fyrstu útgáfu af Bréfi til Láru voru bækurnar allar númeraðar og áritaðar af Þórbergi, sérkennileg hönnun vekur athygli en bækurnar eru eins og umslög í laginu og ritað er utan á þær eins og þær séu tilbúnar til sendingar með póstinum. Eintakið í Þórbergssetri er

númer 109. Innihald Bréfsins olli sem kunnugt er miklu umróti og deilum í samfélaginu. Þórbergur gaf Bréf til Láru út sjálfur og veðsetti eigur sínar fyrir útgáfunni, en bókin seldist strax upp og var aftur gefin út árið 1925 í stærra upplagi. Þorbjörg sagði að bókagjöfin hefði mikla þýðingu fyrir safnið og þakkaði forsvarsmönnum Skinneyjar-Þinganess sérstaklega fyrir þessa verðmætu gjöf. Einnig kynnti Þorbjörg sýningu á styttunum hans Sobeggi afa sem Lilla Hegga

gaf honum alltaf á afmælinu hans, og á afmælinu hans Jesús þ.e. á jólunum. Alls 43 styttur, gjöf frá Helgu Jónu Ásbjarnardóttur til Þórbergsseturs. Bæði söfnin hafa verið sett upp í skápa í sýningarsal Þórbergsseturs ásamt þeim bókum sem til voru fyrir á Hala. Þorbjörg bauð síðan gestum að líta báðar sýningarnar augum áður en sest var að rausnarlegu kaffihlaðborði. Í samtali við ritstjóra sagði Þorbjörg að alltaf væri eitthvað nýtt að sjá í Þórbergssetri og búið að vera gestkvæmt í vetur. „Síðast komu konur úr Kvenfélagi Kirkjubæjarhrepps í heimsókn og nutu veitinga og fór um sýningar og fjöldi erlendra ferðamanna hefur komið að Hala á þessum vetri. Norðurljósin, náttúran í vetrarríki og einstök menning dregur nú æ fleiri ferðamenn til Íslands yfir veturinn og er það afar ánægjuleg þróun. Eitt af meginmarkmiðum með starfsemi Þórbergsseturs er að hafa opið allt árið, leggja sig fram í þjónustu við ferðamenn á lágönn, og jafnframt að stuðla að framþróun menningarferðaþjónustu á Íslandi.“ sagði Þorbjörg að lokum.

Frumútgáfur af verkum Þórbergs Þórðarsonar komnar heim í hérað

Þorbjörg og Gunnar Ásgeirsson stjórnarformaður Skinneyjar - Þinganess á innfelldu myndinni.

á Hótel Höfn föstudagskvöldið 13. apríl kl 20:00Fordrykkur • Sushi og sticks • Frábært kvöld og glæsileg sýning, happadrætti o.fl. • Miðaverð kr. 3.500,-

Veislustjóri verður Sigríður KlingebergOpinn dansleikur á eftir • Guggurnar spila fram á nóttBorðapantanir í síma 478-1240 Hótel Höfn

KonuKVöld

Page 2: Eystrahorn 13. tbl. 2012

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 29. mars 2012

EystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

hlíðartún Vel skipulagt 4ra herbergja einbýlishús ásamt bílskúr, samtals 160,7m².Skjólgóður staður í rólegri botngötu.

garðsbrúnGott og vel viðhaldið 217,2 m² einbýlishús á tveimur hæðum, nú 3ja herb. íbúð í hluta af neðri hæð og 38,2 m² bílskúr. Samtals 6 herb., 2 stofur. og 3 baðherb. eða 255,4 m².

hafnarbrautReisulegt 122,8 m² 2ja hæða parhús ásamt 34,5m² bílskúr, samtals 157,3 m². Ágætt viðhald mikið ræktuð lóð laust strax.

Hafnarbraut 15 • 780 Höfn • Sími 580 7915 • Fax 580 7911Kaupvangur 2 • 700 Egilsstaðir • Sími 580 7905 • Fax 580 7901Vallholtsvegi 3 • 640 Húsavík • Sími 580 7925 • Fax 580 7821www.inni.is

Hilmar Gunnlaugsson, hrl. og lögg. fasteignasali, Egilsstöðum

Hjördís Hilmarsdóttir, lögg. leigumiðlari, Egilsstöðum

Sigurður Magnússon, lögg. fasteignasali, Egilsstöðum

Pétur Eggertsson, lögg. fasteignasali, Húsavík

Sigríður Kristinsdóttir, hdl, lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari

Snorri Snorrason, lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari

Hilmar Gunnlaugsson,hrl. og lögg.fasteignasalis. 580 7902

Hjördís Hilmarsdóttir,lögg.

leigumiðlaris. 580 7908

Sigurður Magnússon,lögg.

fasteignasalis. 580 7907

SigríðurKristinsdóttir,

lögmaður

Snorri Snorrason,lögg.

fasteignasalis. 580 7916

FÉLAG FASTEIGNASALA

NÝTT Á SKRÁ NÝTT Á SKRÁ

Aðalfundur Kvenfélagsins Tíbrár var haldinn þann 8. mars síðastliðinn. Á fundinum var ákveðið að endurvekja félagið. Kosin var ný stjórn en hana skipa: Þórey Harpa Þorbergsdóttir formaður, Björk Pálsdóttir gjaldkeri, Maríanna Jónsdóttir ritari, Sonja Garðarsdóttir og Hera Guðmundsdóttir meðstjórnendur. Markmið kvenfélagsins er að efla samvinnu og félagsskap kvenna í samfélaginu. Í tilefni þessa ætlar Kvenfélagið Tíbrá að halda vorfund/fagnað í maí þar sem kvenfélagskonur og allar áhugasamar konur er hvattar til að mæta og taka þátt í uppbyggingu kvenfélagsins. Á fundinum verður ákveðið hvernig við ætlum að starfa og hvað við viljum gera í framtíðinni. Fundurinn verður nánar auglýstur síðar.

Kvenfélagið Tíbrá endurvakið

Stafafellskirkja sunnudaginn 1. apríl

Pálmasunnudagur Messa kl. 14:00 - ferming

Sóknarprestur

Hafnarkirkja sunnudaginn 1. apríl

Pálmasunnudagur Sunnudagaskóli og messa

kl. 11:00 - ferming

Sóknarprestur

Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls og útfarar okkar

áskæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu.

Guðrúnar HálfdanardóttirMiðtúni 8, Höfn í Hornafirði

Sérstakar þakkir fær starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands fyrir einstaka umönnun og hlýhug

Guðný H. Svavarsdóttir Ingvar Þórðarson Haukur H. ÞorvaldssonVigfús Svavarsson Sigurlaug HauksdóttirSnæfríður H. Svavarsdóttir Stefán Stefánssonbarnabörn og barnabarnabörn.

aðalfundur búnaðarsambands austur-skaftfellinga

Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 11. apríl nk. kl. 11:00 á Smyrlabjörgum.

Venjuleg aðalfundarstörf og kosning Búnaðarþingsfulltrúa

Gestur fundarins verður Haraldur Benediktsson formaður BÍ og mun hann fjalla um fyrirhugaðar breytingar á leiðbeiningaþjónustu í landbúnaði

og endurskoðun á félagskerfi bænda

Stjórn Búnaðarsambands Austur-Skaftfellinga

Íbúða og bílaskipti í sumar, London/HöfnVið erum tvenn hjón og einn unglingur og við búum í London.Við erum með mikil tengsl við Ísland og Höfn og langar að dvelja á Hornafirði í sumar í 2-3 vikur. Við erum að hugsa um tímann frá ca 20 júlí til 25 ágúst. Við getum boðið húsið (raðhús)og kisuna okkar sem er í Bethnal Green í austur London, við Grand Union Canal og Victoria Park,(100 metrar) og 30 mín göngutúr á Ólympíusvæðið og fólksvagninn okkar, í skiptum fyrir húsnæði og bíl sem hentar okkur á Hornafirði. Hlakka til að heyra í áhugasömum, Gyða Jónsdóttir - [email protected]

Næsta blað kemur út

miðvikudaginn 4. apríl.

Efni og auglýsingum þarf að skila fyrir kl. 15:00

mánudaginn 2. apríl

Page 3: Eystrahorn 13. tbl. 2012

www.eystrahorn.isEystrahorn Fimmtudagur 29. mars 2012

Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er verndaður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu.

Verð í tveggja manna herbergi.

kr. 95.900,- Innifalið: Flug, skattar, hótel, fararstjórnog rúta til og frá flugvelli.Trans Atlantic sérhæfir sig í ferðum til Eystrasaltslanda. Upplýsingar í síma 588 8900

RigaLettlandi

Stórfengleg borgg gg g gg

Beint flug frá Egilsstöðum25. - 28. okt.

SeljavallakjötvörurOpið föstudaginn 30. mars frá kl. 15:00 - 18:00

ATH síðasta opnun fyrir páska

Sjá nánar á www.seljavellir.is

Verið velkomin, Ella og Eiríkur, sími 860-7582

Humarhöfnin opnarVegna ótrúlegs ágangs ferðamanna til

Íslands, sólgosa og átaksins Ísland allt árið opnum við Humarhöfnina mánuði fyrr en

venjulega eða föstudaginn 30.mars

Opnunartími verður frá kl. 18:00

Heimamenn velkomnir

Gleðilega páska

Rýmingarsala

Margar gerðir á góðu verði

Opið virka daga kl. 10:00 - 12:00 og 13:00 - 18:00Verslun Dóru

á völdum skóm

Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti

hjálpa viðskiptavinum að rata í gegnum

Höfn í Hornafirði

Komdu í Lyfju Höfn í Hornafirði föstudaginn 30.mars frá 13-17.

Frí ráðgjöf

Inga svarar þessum spurningum og fleirum.

Aðeins 86 dagar í HumarhátíðNú er unnið hörðum höndum að móta dagskrá að Humarhátíð 2012, þessi hátíð er 20. hátíðin. Okkur langar að biðja sem flesta að taka þátt og ef þið hafið hugmyndir sem ykkur langar að framkvæma eða atriði sem ykkur langar að vera með á hátíðarsvæði endilega sendið póst á [email protected]

Humarkveðja • Nefndin

Aðstoðarleikskólastjóra vantarHeilsuleikskólinn Krakkakot auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra í 50-75% starf frá 14.maí n.k.

Umsækjendur þurfa að hafa lokið leikskólakennaranámi. Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum og jákvæðum einstaklingum. Mikilvægt er að þeir eigi auðvelt með mannleg samskipti og séu tilbúnir að takast á við skemmtilegt starf með börnum. Í starfinu felst einnig að sjá um stuðning við börn og starf með elstu börnunum.

Laun samkvæmt kjarasamningi Launanefndar íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara.

Nánari upplýsingar veitir Snæfríður Hlín Svavarsdóttir leikskólastjóri í síma 470 8480 og 820 9619. Umsóknareyðublöð má nálgast í leikskólanum. Umsóknarfrestur er til 13.apríl 2012.

Page 4: Eystrahorn 13. tbl. 2012

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 29. mars 2012

REKSTUR KAFFITERÍU NÝHEIMAFramhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu, fyrir hönd rekstraraðila Nýheima, óskar eftir tilboðum í rekstur veitingasölu Nýheima.

Tilgangu rekstursins er að sjá um veitingasölu til starfsmanna, nemenda og almennings auk funda og ráðstefnugesta.

Opnunartími þarf að vera að lágmarki frá 20. ágúst til 20.maí og frá kl. 8:30 - 14:00 alla virka daga yfir þann tíma. Reksturinn þarf að vera í samræmi við markmið FAS sem heilsuskóla og í samræmi við markmið og stefnu Nýheima að öðru leyti.

Í Nýheimum eru um 40 starfsmenn, 150 nemendur stunda þar nám auk þess sem húsið er opið almenningi allt árið um kring.

Nýr rekstraraðili skal hefja rekstur eigi síðar en 20. ágúst 2012 en mögulegt er að hefja rekstur 1.júní 2012.

Útboðsgögn má nálgast á skrifstofu skólans eða fá þau send í tölvupósti frá og með fimmtudeginum 29. mars.

Skila skal tilboðum á skrifstofu skólans eigi síðar en föstudaginn 20. apríl 2012 kl. 15:00 og verða þau opnuð þar kl. 15:05 þann sama dag.

Rekstaraðilar Nýheima

Verðum í Sindra-húsinu, Höfn Horna�rði,�mmtud. 29. mars kl. 13:00 - 18:00

Húsgagnaval

FermingartilboðRúm og dýnur í öllum stærðum og gerðumFermingagjafir s.s. tjöld, svefnpokar,

bakpoar, skart o.fl.

Laugardaginn 31. mars ætlar frjálsíþróttadeild Sindra í samstarfi við Sælgætisgerðina Freyju að standa fyrir nokkurskonar víðavangshlaupi. Hlaupnar verða 3 vegalengdir og allar hér innanbæjar. Lengsta vegalengdin

sem boðið verður upp á eru 10 km, næsta vegalengd eru 5 km og sú stysta eru 2,5 km. Keppt verður í karla og kvennaflokkum og til mikils er að vinna því Freyja ætlar að gefa sigurvegurunum gómsæt páskaegg en allir keppendur fá að sjálfsögðu líka góðan þátttökuglaðning frá Freyju. Hlaupið verður frá íþróttahúsinu og hefst skráning kl 12:30. 10 km hlaupið verður ræst kl 13:00; 5 km hlaupið verður ræst kl 13:15 og 2,5 km hlaupið verður ræst kl 13:30. Þátttökugjald í þetta hlaup eru 500.- pr einstakling en hver fjölskylda greiðir þó aldrei meira en 1.500,- Vonumst til að sjá sem flesta í páskaskapi!

Frjálsíþróttadeild Sindra og Sælgætisgerðin Freyja

Freyjuhlaupið

Page 5: Eystrahorn 13. tbl. 2012

www.eystrahorn.isEystrahorn Fimmtudagur 29. mars 2012

Neðangreindar upplýsingar eru um veiðafæri, fjölda landana, heildarafla í tonnum og uppistöðu fisktegunda í aflanum.

Hvanney SF 51 .................... net .........8....... 181,9 ..þorskur 106,4Sigurður Ólafsson SF 44 .... net .......10....... 214,1 ..þorskur 210,7Skinney SF 20 ..................... net .........8....... 260,5 ..þorskur 197,6Þórir SF 77 .......................... net .........9....... 198,6 ..þorskur 145,4Steinunn SF 10 .................... botnv .....3....... 186,2 ..ýsa 98,2Benni SU 65 ........................ lína .........7......... 62,5 ..þorskur 51,6Beta VE 36 .......................... lína .........4......... 28,6 ..þorskur 19,5 Dögg SU 118 ....................... lína .......10......... 60,0 ..steinbítur 34,0Guðmundur Sif SU 650 ...... lína .........4......... 32,2 ..þorskur 27,5Ragnar SF 550 ..................... lína .........4......... 34,7 ..þorskur 28,7Halla Sæm SF 23 ................ handf .....3........... 2,9 ..þorskur 2,9Hulda SF 197 ...................... handf .....4........... 5,3 ..þorskur 5,1Húni SF 17 .......................... handf .....3........... 2,6 ..þorskur 2,5Stígandi SF 72 ..................... handf .....2........... 1,1 ..þorskur 1,1Uggi SF 47 .......................... handf .....1........... 2,0 ..þorskur 2,0Ásgrímur Halldórsson SF 250 ............. 2.313 tonn loðnaJóna Eðvalds SF 200............................. 2.726 tonn loðna

Heimild: www.fiskistofa.is

Aflabrögð 12. – 25. mars ( 2 vikur)

Fiskirí og vinnslaEins og sést á aflatölum hefur verið mokfiskirí hjá netabátum. Ólafur Björn á Sigurði Ólafssyni segir að þrátt fyrir slæmar gæftir væri heildarafli góður. Nægur fiskur væri í sjónum en hann segist ekki muna eftir eins miklum frátöfum vegna veðurs og nú á löngum ferli sínum. Þeir fara á humarveiðar eftir páska. Ásgeir hjá Skinney-Þinganesi segir að góðri loðnuvertíð sé lokið. Alls var aflinn á þeirra skipum 45.700 tonn. Jóna Eðvalds endaði sína loðnuvertíð með að fara einn síldarrannsóknartúr í Breiðafjörðinn fyrir Hafrannsóknarstofnunina og var töluvert að sjá af stórri síld en nokkur sýking er ennþá í stofninum. Hjá uppsjávarskipunum tekur við norsk-íslenska og makríl vertíð sem gæti hafist í byrjun júní. Góðri netavertíð er lokið og við tekur humarvertíð og Þórir landar væntanlega fyrsta humrinum í dag, fimmtudag. Hvanney er að fara á netarallið fyrir Hafró og í framhaldinu fer hún á snurvoð. Ásgeir segir að verkefnastaðan ætti að vera nokkuð góð næstu mánuðina.

„Fjárhagslegur stuðningur Olís við Björgunarbátasjóð Hornafjarðar er mjög mikilvægur fyrir okkur og þar með rekstur björgunarskipsins Ingibjargar SF. Þær fjárhæðir sem berast árlega frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu og ríkissjóði nægja einfaldlega ekki til að reka sjóðinn, þannig að Olís leggst sannarlega á árarnar með okkur til að láta enda ná saman, ásamt velviljuðum fyrirtækjum hér heima og sveitarfélaginu,“ segir Sigurður Guðmundsson stjórnarmaður Björgunarbátasjóðs Hornafjarðar. Hann segir að frumkvæðið hafi á sínum tíma komið frá Hauki Sveinbjörnssyni umboðsmanni Olís á Hornafirði. Eftir að málið hafi verið lagt á borð annarra stjórnenda fyrirtækisins hafi verið gengið frá samningi. „Styrkurinn hefur nægt til að greiða þriðjung til helming eldsneytiskostnaðar Ingibjargar, þannig að við erum að tala um góðan styrk. Í mínum huga er þetta framlag Olís ánægjulegt dæmi um hvernig hægt er að styðja við bakið á samfélaginu með ábyrgum hætti. Fyrirtækið er með rekstur hérna fyrir austan og sýnir með afgerandi hætti að það telur sig hafa samfélagslegum skyldum að gegna.“

Okkar er heiðurinn„Þorri landsmanna dáist að því fólki sem sinnir hjálparstarfi í frístundum sínum og hefur bjargað ótal mannslífum, oft við erfiðar og hættulega aðstæður. Þetta fórnfúsa starf er ómetanlegt og við hjá Olís réttum fram hjálparhönd með stolti. Samstarf fyrirtækisins og Björgunarbátasjóðs Hornafjarðar hefur verið einstaklega ánægjulegt í mörg ár og ég bind vonir við að svo verði áfram. Okkar er því heiðurinn,“ segir Jón Ólafur Halldórsson framkvæmdastjóri sölusviðs Olís. Sigurður Guðmundsson er ekki í vafa um að samstarfið við Olís sé komið til að vera. „Árin eru nú þegar orðin allmörg og mér heyrist á Olís að þar á bæ ríki almenn ánægja með samstarfið. Samningurinn er endurskoðaður árlega, hann er okkur mikilvægur og ég merki ekki annað en að vilji sé fyrir áframhaldandi stuðningi frá Olís í framtíðinni.“

Samstarf Olís og Björgunarbátasjóðs Hornafjarðar:

Réttum fram hjálparhönd með stolti

Dugnaður og harka„Ég fylgist ágætlega með Björgunarbátasjóði Hornafjarðar og hrífst af þróttmiklu starfi sjóðsins eins og fleiri hjá fyrirtækinu. Björgunarsveitarfólk nýtur trausts og virðingar í samfélaginu, dugnaðurinn og harkan einkenna starfið um land allt. Með því að styrkja björgunarsveitir landsins er Olís vonandi að létta róðurinn,“ segir Jón Ólafur Halldórsson framkvæmdastjóri sölusviðs Olís.

aðalfundur sindraUngmennafélagið Sindri minnir á aðalfund í Nýheimum 4 apríl kl 18:00

Skýrsla stjórnar1. Reikningar félagsins2. Fjárhagsáætlun fyrir 20123. Lagabreytingar4. Vímuvarnarstefna5. Umhverfisstefna6. Önnur mál7.

Aðalstjórn Sindra

KarlmennMunið fundinn um

karlaheilsu og krabbamein

í kvöld kl. 20:00 á Víkinni

Kiwanisklúbburinn Ós

Page 6: Eystrahorn 13. tbl. 2012