Eystrahorn 34. tbl. 2015

8
Fimmtudagur 8. október 2015 www.eystrahorn.is Eystrahorn 34. tbl. 33. árgangur www.eystrahorn.is Margmenni var í Vöruhúsinu miðvikudaginn 30. september síðastliðinn þegar þeim ánægjulega áfanga var náð að Fab Lab Hornafjörður – Hönnunarsmiðja var opnuð með viðhöfn. Að loknum ávörpum klipptu þau Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri og Berglind Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Impru, á borða og opnuðu smiðjuna formlega. Verkefnið hófst árið 2012 með samstarfi á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands þegar tekin var ákvörðun um að byggja upp smiðjuna í Vöruhúsinu, enda er samhljómur á milli stefnu Vöruhússins varðandi nýsköpun, list- og verkgreinar og þeirra möguleika sem Fab Lab býður upp á. Í janúar 2013 var síðan undirritaður þríhliða samningur á milli Mennta- og menningarmálaráðuneytisins, SASS og Sveitarfélagsins Hornafjarðar um Eflingu menntunar, rannsókna og nýsköpunar á Suðurlandi og var hluta af fjármagninu sem fylgdi þeim samningi varið til uppbyggingar á tækjakaupum Fab Lab smiðjunnar. Ári síðar var undirritaður samstarfssamingur á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Nýsköpunarmiðstöðvar, Grunnskóla Hornafjarðar og Framhaldsskólans í Austur- Skaftafellssýslu þar sem Nýsköpunarmiðstöð veitti 6 milljóna króna framlag til tækjakaupa í smiðjuna. Samkvæmt samningnum bjóða skólarnir sínum nemendum upp á nám í nýsköpun og frumkvöðlafræði í smiðjunni, og var þar með lagður grunnur að starfsemi Fab Lab smiðjunnar í Hornafirði sem tengdi hana við aðrar Fab Lab smiðjur um allan heim. Fab Lab smiðjan er opin öllum íbúum samkvæmt stundartöflu Vöruhússins. Allir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér starfsemi smiðjunnar, en í Fab Lab smiðjunni býðst aðstoð og kennsla við notkun teikniforrita og Fab Lab tækja. Auk þess er reglulega boðið upp á ýmis námskeið í Vöruhúsinu sem tengjast hönnun og nýsköpun. Þau námskeið eru auglýst sérstaklega. Við sömu athöfn var undirritaður samningur um verkefnið Ræsing í Hornafirði, en þar leggja Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Sveitarfélagið Hornafjörður og sex fyrirtæki í bænum saman krafta sína til eflingar á nýsköpun í Hornafirði með því að vinna með heimamönnum að sjálfbærri atvinnuuppbyggingu og fylgja nýsköpunarverkefnum úr hlaði þannig að þau séu tilbúin fyrir fjárfestingu eða jafnvel rekstur. Ræsing í Hornafirði verður nánar kynnt í hádeginu föstudaginn 9. október í Nýheimum og þann sama dag opnað fyrir umsóknir. Mikil gróska er í atvinnusköpun í sveitarfélaginu og hvetjum við alla áhugasama til að kynna sér tækifærin með Ræsingu betur. Vilhjálmur Magnússon, umsjónarmaður Fab Lab Hornafirði. Árdís Erna Halldórsdóttir, atvinnu- og ferðamálafulltrúi. Formleg opnun Fab Lab smiðju í Hornafirði Að ofan má sjá Björn Inga Jónsson bæjarstjóra og Berglindi Hallgrímsdóttur framkvæmdastjóra Impru klippa á borðann við formlega opnum Fab Lab smiðjunnar í Hornafirði. Til vinstri má sjá samstarfsaðilana um verkefni Ræsingu í Hornafirði. Talið frá vinstri: mæðgurnar Bergþóra Ólafía Ágústsdóttir og Auður Inga Halldórsdóttir frá Pakkhúsinu, Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir frá Jökulsárlóni ehf., Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri, Berglind Hallgrímsdóttir frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Geir Þorsteinsson frá Þingvaði, Guðrún Ingólfsdóttir frá Skinney-Þinganesi, Ólafur Vilhjálmsson frá Humarhöfninni og þær Sigríður Birgisdóttir og Hulda Waage frá Landsbankanum á Höfn. Til sjós og lands Dúett í þágu góðs málefnis að Smyrlabjörgum laugardaginn 10. október 2015 Sjá auglýsingu í síðasta Eystrahorni

description

 

Transcript of Eystrahorn 34. tbl. 2015

Page 1: Eystrahorn 34. tbl. 2015

Fimmtudagur 8. október 2015 www.eystrahorn.is

Eystrahorn34. tbl. 33. árgangur www.eystrahorn.is

Margmenni var í Vöruhúsinu miðvikudaginn 30. september síðastliðinn þegar þeim ánægjulega áfanga var náð að Fab Lab Hornafjörður – Hönnunarsmiðja var opnuð með viðhöfn. Að loknum ávörpum klipptu þau Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri og Berglind Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Impru, á borða og opnuðu smiðjuna formlega. Verkefnið hófst árið 2012 með samstarfi á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands þegar tekin var ákvörðun um að byggja upp smiðjuna í Vöruhúsinu, enda er samhljómur á milli stefnu Vöruhússins varðandi nýsköpun, list- og verkgreinar og þeirra möguleika sem Fab Lab býður upp á. Í janúar 2013 var síðan undirritaður þríhliða samningur á milli Mennta- og menningarmálaráðuneytisins, SASS og Sveitarfélagsins Hornafjarðar um Eflingu menntunar, rannsókna og nýsköpunar á Suðurlandi og var hluta af fjármagninu sem fylgdi þeim samningi varið til uppbyggingar

á tækjakaupum Fab Lab smiðjunnar. Ári síðar var undirritaður samstarfssamingur á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Nýsköpunarmiðstöðvar, Grunnskóla Hornafjarðar og Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu þar sem Nýsköpunarmiðstöð veitti 6 milljóna króna framlag til tækjakaupa í smiðjuna. Samkvæmt samningnum bjóða skólarnir sínum nemendum upp á nám í nýsköpun og frumkvöðlafræði í smiðjunni, og var þar með lagður grunnur að starfsemi Fab Lab smiðjunnar í Hornafirði sem tengdi hana við aðrar Fab Lab smiðjur um allan heim. Fab Lab smiðjan er opin öllum íbúum samkvæmt stundartöflu Vöruhússins. Allir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér starfsemi smiðjunnar, en í Fab Lab smiðjunni býðst aðstoð og kennsla við notkun teikniforrita og Fab Lab tækja. Auk þess er reglulega boðið upp á ýmis námskeið í Vöruhúsinu sem tengjast hönnun og nýsköpun. Þau námskeið eru auglýst sérstaklega. Við

sömu athöfn var undirritaður samningur um verkefnið Ræsing í Hornafirði, en þar leggja Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Sveitarfélagið Hornafjörður og sex fyrirtæki í bænum saman krafta sína til eflingar á nýsköpun í Hornafirði með því að vinna með heimamönnum að sjálfbærri atvinnuuppbyggingu og fylgja nýsköpunarverkefnum úr hlaði þannig að þau séu tilbúin fyrir fjárfestingu eða jafnvel rekstur. Ræsing í Hornafirði verður nánar kynnt í hádeginu föstudaginn 9. október í Nýheimum og þann sama dag opnað fyrir umsóknir. Mikil gróska er í atvinnusköpun í sveitarfélaginu og hvetjum við alla áhugasama til að kynna sér tækifærin með Ræsingu betur.

Vilhjálmur Magnússon, umsjónarmaður Fab Lab Hornafirði.

Árdís Erna Halldórsdóttir, atvinnu- og ferðamálafulltrúi.

Formleg opnun Fab Lab smiðju í Hornafirði

Að ofan má sjá Björn Inga Jónsson bæjarstjóra og Berglindi Hallgrímsdóttur framkvæmdastjóra Impru klippa á borðann við formlega opnum Fab Lab smiðjunnar í Hornafirði. Til vinstri má sjá samstarfsaðilana um verkefni Ræsingu í Hornafirði. Talið frá vinstri: mæðgurnar Bergþóra Ólafía Ágústsdóttir og Auður Inga Halldórsdóttir frá Pakkhúsinu, Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir frá Jökulsárlóni ehf., Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri, Berglind Hallgrímsdóttir frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Geir Þorsteinsson frá Þingvaði, Guðrún Ingólfsdóttir frá Skinney-Þinganesi, Ólafur Vilhjálmsson frá Humarhöfninni og þær Sigríður Birgisdóttir og Hulda Waage frá Landsbankanum á Höfn.

Til sjós og landsDúett í þágu góðs málefnis að Smyrlabjörgum laugardaginn 10. október 2015

Sjá auglýsingu í síðasta Eystrahorni

Page 2: Eystrahorn 34. tbl. 2015

2 EystrahornFimmtudagur 8. október 2015

Vildaráskriftina má greiða í Landsbankanum

HornafjarðarMANNI Rnr. 0172 - 26 - 000811

Kt. 240249-2949

EystrahornEystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

Fimmtudaginn 8. október mun hjúkrunarfræðingur frá HSU fræða foreldra um fyrstu hjálp á ungabörnum. Foreldramorgnar byrja kl. 10:00 en fræðslan hefst stuttu seinna. Foreldramorgnar er opinn vettvangur þar sem foreldrar geta komið saman og rætt málin. Foreldramorgnar eru fyrir alla foreldra óháð trúfélagi og er komið saman á hverjum fimmtudegi kl. 10:00 - 12:00. Í vetur verður reglulega boðið upp á fræðslu og eru foreldrar hvattir til að fylgjast með á Facebook síðunni; „Foreldramorgnar í Hafnarkirkju“.

Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma.

Hulda Kristófersdóttir Dagsbrún, DjúpavogiAndaðist 1. október síðastliðinn og verður jarðsungin frá Djúpavogskirkju, laugardaginn 10. október kl: 14.00.

Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Gjafa- og minningarsjóð Skjólgarðs. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins á Höfn fyrir alúðlega og hlýja umönnun.

Sigurður Jónsson

Börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn

Gamlabúð hefur brátt sinn þriðja starfsvetur í sínum nýja, glæsilega búningi. Við sem störfum í gestastofu og upplýsingamiðstöð Vatnajökulsþjóðgarðs á Höfn verðum vör við, eins og landsmenn flestir, aukningu í fjölda erlendra ferðamanna sem sækja landið heim. Á fyrsta starfsári, sem hófst formlega 7. júní 2013, komu rúmlega 35.000 gestir í húsið, á síðasta ári rúmlega 40.000 gestir og það sem af er þessu ári hafa tæplega 50 þúsund manns komið við. Mikil meirihluti þeirra gesta sem í húsið koma eru erlendir ferðamenn og í þjónustukönnun, sem gestir geta fyllt út á staðnum, kemur fram að yfirgnæfandi meirihluti er ánægður með þá þjónustu sem í boði er. Við sem störfum í þessu fallega og veluppgerða húsi erum mjög stolt af að fá athugasemdir eins og „besta upplýsingamiðstöð á Íslandi, fallegt hús og falleg sýning og vel þrifin salerni!“. Í sumar voru sex sumarstarfmenn í Gömlubúð, þar af fimm landverðir. Enda sinna starfsmenn þjóðgarðsins á Höfn ekki eingöngu afgreiðslu í móttöku í Gömlubúðar, heldur einnig landvörslu á þjóðgarðssvæðum í nágrenni Hafnar. Þar eru helstu störf fræðsla og upplýsingagjöf, eftirlit áningarstaða og viðhald og gerð gönguleiða. Í sumar var gefinn út nýr gönguleiðabæklingur af gönguleiðum á Heinabergi, Hjallanesi og í Hoffelli. Bæklingurinn er bæði á íslensku og ensku og er til sölu í gestastofum þjóðgarðsins og hjá fleiri ferðaþjónustuaðilum. Í vetur verður gestastofan á Höfn opin sem hér segir: 1.-14. október, kl. 10:00-16:00; 15.október – 14. apríl, kl. 9:00-13:00, 15.-30. apríl, kl. 10:00-16:00. Allir velkomnir í heimsókn! Sem fyrr þá hvetjum við alla þá ferðaþjónustuaðila og aðra sem málið varðar að hjálpa okkur að veita sem besta þjónustu með því að senda okkur upplýsingar um opnunartíma, tímabundnar lokanir, viðburði, nýja starfsemi og annað sem ykkur finnst eiga erindi við okkur og ferðamennina.

Með góðri kveðju, starfsfólk Gömlubúðar.

Foreldramorgnar í Hafnarkirkju

HafnarkirkjaSunnudaginn 11. október

Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00

Prestarnir

Vaktsími presta: 894-8881

bjarnanesprestakall.is

Félagsstarf Félags eldri Hornfirðinga

á DÖFINNIHaNDverks- og kÖkubINgó Þeir sem geta gefið vinninga á bingóið eru beðnir að hafa samband við Pálínu í síma 478-1419. Ágóði rennur í píanókaupasjóð.samverustuND föstudaginn 9. október kl. 17:00.Skólaminningar.Sjáumst hress og kát.Sigurður Örn.

Gamlabúð vinsæl

Í DAG

Page 3: Eystrahorn 34. tbl. 2015

3Eystrahorn Fimmtudagur 8. október 2015

Hvernig blómstra börn í íþróttum? Þráinn Hafsteinsson verður með opinn fyrirlestur í sal Nýheima, föstudaginn 9. október klukkan 20:30. Þráinn er íþróttafræðingur og hefur víðtæka reynslu af þjálfun og kennslu á sviði íþrótta. Eftir farsælan feril í tugþraut hefur Þráinn unnið sem íþróttakennari, landsliðþjálfari, frístundaráðgjafi, yfirþjálfari hjá ÍR og sem háskólakennari.

Æfingabúðir í frjálsum íþróttum 9.-11. október.

Umsjónarmaður æfingabúðanna er Þráinn Hafsteinsson yfirþjálfari hjá ÍR.Föstudagur19:00 - 20:15 Æfing, mæting í Báruna.20:30 - 22:00 Opinn fyrirlestur í Nýheimum: Hvernig blómstra börn í íþróttum?Laugardagur 10:00 - 12:00 Æfing12:00 - 13:00 Matur13:00 - 14:00 Fundur með íþróttakrökkunum. Þjálffræði.14:00 - 16:00 Hvíld16:00 - 18:00 Æfing18:00 - 19:00 Matur19:00 - 20:00 Hvíld og spjall20:00 - 21:30 Kvöldvaka sem krakkarnir sjá um sjálfSunnudagur10:00 - 12:00 Æfing12:00 - 13:00 Matur13:00 - 14:00 Fundur með íþróttakrökkunum. Þjálffræði og spurningum svarað.14:15 Æfingabúðalok

Æfingabúðirnar kosta 2.500,- og eru öllum opnar.

Hlökkum til að sjá sem flesta um helgina.

Frjálsíþróttadeild Sindra.

Swingin’ sixties á Hótel Höfn

Á laugardaginn var frumsýndi Hornfirska skemmtifélagið sýninguna “Swingin’ sixties” á Hótel Höfn en í sýningunni flytur hornfirskt tónlistarfólk mörg af bestu og vinsælustu lögum sjöunda áratugarins. Fullt var út úr dyrum á frumsýningunni og ekki annað að heyra á sýningargestum en að þeir væri mjög ánægðir með kvöldið og hefðu

skemmt sér konunglega. “Swingin’ sixties” verður sýnd á Hótel Höfn alla laugardaga í október og auk verða sýningar fyrir Heppuskóla og FAS. Þegar þetta er skrifað er að verða fullbókað á flestar sýningarnar svo þeir sem eiga enn eftir að tryggja sér miða ættu að hafa samband við Hótel Höfn í síma 478-1240 sem allra fyrst.

Ársfundur Kirkjubæjarstofu 2015Sjálfseignarstofnunin Kirkjubæjarstofa boðar til ársfundar fimmtudaginn 15. október 2015 Kl 13:00 Í Félagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri. Á fundinum verður m.a. fjallað um eflingu mennta- og menningarstofnana á miðsvæði Suðurlands, er þar átt við svæðið frá Markarfljóti til Öræfa. Dagskrá:• Setning: Eva Björk Harðardóttir formaður stjórnar

Kirkjubæjarstofu• Kirkjubæjarstofa: Kynning á starfsemi og framtíðarsýn.

Ólafía Jakobsdóttir forstöðumaður• Stofnun Rannsóknarsetra Háskóla Íslands: Þekkingarstarfsemi

á landsbyggðinni. Fræ til framtíðar. Sæunn Stefánsdóttir forstöðumaður

• Kötlusetur: Eiríkur V. Sigurðsson forstöðumaður• Landgræðsla ríkisins: Ástand gróðurs og jarðvegs

í Eldhrauni á Út Síðu.• Elín Fjóla Þórarinsdóttir deildarstjóri• Þórbergssetur: Þorbjörg Arnórsdóttir forstöðumaður• Náttúrustofa Suðausturlands: Rögnvaldur Ólafsson

stjórnarformaður• Katla jarðvangur: Brynja Davíðsdóttir framkvæmdastjóri• Nýheimar – þekkingarsetur: Vala Garðarsdóttir forstöðumaður

Hornafjarðarsafna og Þorvarður Árnason forstöðumaður rannsóknarseturs HÍ á Hornafirði

• Kaffihlé• Sóknaráætlanir landshluta: Hólmfríður Sveinsdóttir

verkefnisstjóri hjá Byggðastofnun • Samtök Sunnlenskra sveitarfélaga: Dorothee Lubecki

menningarfulltrúi SASS• Fræðslunetið – símenntun á Suðurlandi: Menntun.

Ásmundur Sverrir Pálsson framkvæmdastjóri • Háskólafélag Suðurlands: Sigurður Sigursveinsson

framkvæmdastjóri• Umræður og fyrirspurnir• Samantekt: Eirný Valsdóttir verkefnisstjóri,

Skaftárhreppur til framtíðar• Fundarslit um kl 16:30

Page 4: Eystrahorn 34. tbl. 2015

4 EystrahornFimmtudagur 8. október 2015

Við viljum óska starfsfólki okkar velgengni í verkefnum sem þau hafa tekið að sér í framhaldi af sumrinu og í

náminu á skólaárinu sem er hafið.

Vinnan göfgar manninn en góð bók er gulli betri.

Auglýsum um leið að Pakkhúsið hefur lokað

fyrir hefðbundinn matseðil.

Bændur á slátursvæði Norðlenska á Höfn athugið

Þeir bændur sem ekki eru búnir að fá úthlutuðum sláturdegi eru vinsamlegast beðnir um að ganga frá dagsetningu strax. Síðasti sláturdagur hjá Norðlenska Höfn er 30. október. Ekki er áætlað að slátra á laugardögum og ekki verður slátrað í nóvember.

Upplýsingar um lausa sláturdaga og skráning í síma 8408870 eða netfang : [email protected]

Slátursalan verður opin til föstudagsins 16. október.

Pantanir í síma: 8408877 Elín / 8408870 Magga .

Pantanir verða afgreiddar út á milli 15:30 og 17:00

Með bestu kveðju, Magnhildur Pétursdóttir

Vikan Starfsemi TímasetningMánudagur Gönguferð frá Ekrunni

Snóker10:0013:00 - 18:00

Þriðjudagur BocciaTekið í spil - skák - pílukastSnókerLíkamsrækt í EkrunniSamæfing hjá Gleðigjöfum

10:0013:00 - 16:0013:00 - 18:0016:3019:00

Miðvikudagur Gönguferð frá EkrunniHandavinna - SmíðastofaSnóker

10:0013:00 - 16:0016:00 - 18:00

Fimmtudagur Vatnsleikfimi í Sundlaug H.Tekið í spil - SkákSnóker

15:3013:00 - 16:0013:00 - 18:00

Föstudagur BocciaFöndur - HandavinnaSnókerSamverustund/sögustund með gestum (annan hvern föstudag)

10:0013:00 - 16:0013:00 - 17:0017:00 - 18:00

Laugardagur Tekið í spil - Skák - PílukastSnóker - Þythokkí

13:00 - 16:0013:00 - 18:00

Sunnudagur Dansað í EkrunniVöfflukaffi verður til sölu.ATH. fjórða sunnudag í mánuði.

16:00 - 17:30

vetrardagskrá Félags eldri Hornfirðinga 2015 - 2016

Ferðamál og hagræðing í ríkisrekstri

Sjálfstæðismenn í Austur-Skaftafellssýslu, í samvinnu við þingmenn og ritara Sjálfstæðisflokksins, boða til opins fundar um ferðamál og hagræðingu í ríkisrekstri fimmtudaginn 8. október klukkan 17:30 á Hótel Höfn.

Gestir fundarins verða þeir Guðlaugur Þór Þórðarson ritari Sjálfstæðisflokksins og Skapti Örn Ólafsson upplýsingafulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar.

Allir velkomnir.

PóKer2+2+2 Ölduós

Við snúum aftur á Pakkhúsið eftir sumarið

og höldum upp á það með þessi skemmtilega móti.

Hægt að kaupa sig allt að 3x inn í einu.

Fimmtudaginn 8. október kl. 20:00 og late reg til 21:30

Frítt kaffi og tilboð á barnum fyrir meðlimi.

Í DAG

Page 5: Eystrahorn 34. tbl. 2015

5Eystrahorn Fimmtudagur 8. október 2015

Æfingar Körfuknattleiksdeildar Sindra

Þjálfarar: 1.-3. og 4.-5. flokkur. Kristján Örn Ebenezarson 6.-7. Flokkur Georgi Bujukliev og Hákon G. Bjarnason 8.-10/drengjafl. Georgi Bujukliev

Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa SASS og fá aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að hafa samband í síma 480 8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið [email protected]. Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum vefinn sudurland.is.

Upplýsingar um úthlutunarreglur, leiðbeiningar og ráðgjöf við gerð umsókna og viðmið við mat á umsóknum er að finna á vefnum sudurland.is.

Uppbyggingarsjóðurinn er hluti af Sóknar áætlun Suðurlands og er á ábyrgð Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.

Uppbyggingarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknumSjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði nýsköpunar, menningar og atvinnuþróunar á Suðurlandi

Umsóknarfrestur er til og með 5. nóvember nk.

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) eru landshlutasamtök sveitarfélaga á Suðurlandi, samstarfs- og þjónustuvettvangur um hagsmunamál

sveitarfélaga, íbúa og atvinnulífs á Suðurlandi.

SASS - SelfossAusturvegur 56

480 8200

SASS - HvolsvöllurOrmsvöllur 1

480 8200

SASS – VestmannaeyjarÞekkingarsetur VE

480 8200

SASS - HöfnNýheimar480 8200

Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur tekið við hlutverki Menningarráðs og Vaxtar­samnings Suðurlands.

Markmið Uppbyggingarsjóðs Suðurlands:

Að styðja við verkefni sem efla fjölbreytileika atvinnulífs og jákvæða samfélagsþróun á Suðurlandi Að efla menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi Að styðja við atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni á Suðurlandi

•P

rent

met

Suð

urla

nds

Falleg gjöF

Í tilefni af bleika mánuðnum höfum við til sölu krabbameinsmenið

úr silfri, hannað af erlingi jóhannssyni.

Nytjamarkaður Hirðingjanna á Hornafirði minnir á opnunartíma á fimmtudögum frá 16:30 til 18:30. Hægt er að koma með allskonar dót á opnunartíma eða setja í gula kassann fyrir framan húsið. Öll innkoma í október mun renna til Dagvist fatlaðra, Kirkjubraut 3 Höfn. Verum dugleg að koma með dót, alltaf nóg pláss. Ágóðinn hefur alltaf farið í góð málefni í sýslunni.

Kveðja Hirðingjarnir

Nytjamarkaður Hirðingjanna1.-3. bekkur Mið 13:20-14:10 Fim 14:20-15:104.-5. bekkur Mán 14:30-15:20 Þri 14:30-15:20 Mið 14:20-15:206.-7. bekkur Þri 15:20-16:10 Fim 14:20-15:10 Fös 14:30-15:308.-10. b./drengjafl. Þri 16:10-17:00 Fim 15:10-16:10 Fös 15:30-16:30

Húsgagnaval

Það verður ball á Hótelinu á laugardaginn.

Ætlar þú ekki að mæta?

Page 6: Eystrahorn 34. tbl. 2015

6 EystrahornFimmtudagur 8. október 2015

Færni- og heilsumatsnefnd er nefnd sem sker úr um það hvort einstaklingur sem sækir um varanlega vistun í hjúkrunarrými / dvalarrými eða hvíldarrými fær mat í slíkt úrræði. Nefndin er skipuð af heilbrigðisráðherra og í henni sitja hjúkrunarfræðingur, læknir og félagsráðgjafi. Nefndin starfar samkvæmt reglugerð um færni- og heilsumat vegna dvalar- og hjúkrunarrýma nr. 466/2012. Forsenda fyrir mati í varanlega vistun er að umsókn sem undirrituð hefur

verið af umsækjanda liggi fyrir. Einungis er hægt að sækja um ef félagleg heimaþjónusta, heimahjúkrun og önnur úrræði og aðstoð sem á að styðja við búsetu í heimahúsi er fullreynd. Ekki er hægt að eiga umsókn til „öryggis“ heldur á umsækjandi að vera tilbúinn að fara inn í rými þegar honum býðst það. Umsækjandi ræður á hvaða hjúkrunarheimili hann vill flytja og sækir aðeins um það eða þau heimili sem hann getur hugsað sér að eiga búsetu á. Hafa ber í huga að leyfilegt er að sækja um hvaða heimili sem er, hvar sem er á landinu. Hafi einstaklingur orðið bráðveikur er fyrst hægt að meta hann þegar veikindin eru um garð gengin og endurhæfingu er lokið. Umsókn um hvíldarrými lýtur sömu forsendum og varanleg vistun en þó er hægt að sækja um hvíldarrými til að hvíla aðstandendur sem sinna öldruðum einstaklingi heima. Hvíldarrýmin eru inni á hjúkrunardeildum og eru ætluð einstaklingum sem þiggja heimaþjónustu og eru hluti af því að gera fólki kleift að vera heima eins lengi og kostur er. Hvíldarrými eru ekki hugsuð sem úrræði til að losa

sjúkrahúsin við fólk sem er í virkri meðferð svo sem endurhæfingu eftir brot. Undantekning á því eru svokölluð endurhæfingarhvíldarrými en slík rými eru ekki til í heilbrigðisumdæmi Suðurlands. Hvíldarrýmin sem hér eru, eru fyrst og fremst til að auðvelda fólki lengri búsetu heima og styðja heimahjúkrun og félagslega heimaþjónustu. Þegar nefndinni berst undirrituð umsókn um varanlega vistun eða hvíldarrými þá er kallað eftir gögnum frá heimahjúkrun, heimilislækni, félagsþjónustu og öðrum þeim fagaðilum sem koma að umönnun umsækjanda. Mat nefndar byggist algjörlega á þeim upplýsingum sem koma frá því fagfólki sem sinnir umsækjanda. Símatími formanns nefndar er alla þriðjudaga frá kl 11 til 12 og er hægt að skrá sig í síma 432-2000.

f.h. Færni- og heilsumatsnefndar heilbrigðisumdæmis Suðurlands Unnur Þormóðsdóttir, formaður Færni- og heilsumatsnefndar

Varanleg vistun eða ekki – hvað er það sem ræður?

Heilbrigðisumdæmi Suðurlands

Page 7: Eystrahorn 34. tbl. 2015

Besta viðskiptaáætlunin fær allt að kr. 1.000.000 í verðlaun

Valdar verða allt að órar viðskiptahugmyndir. Þær hugmyndir sem komast áfram fá 12 vikur til að skrifa viðskiptaáætlun fyrir hugmyndina undir handleiðslu starfsmanna Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Nánari upplýsingar á vef Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, www.nmi.is Kynningarfundur verður haldinn í Nýheimum 9. október kl 12:00.

Ræsing Hafnar í HornaarðiNýsköpunarmiðstöð Íslands í samstarr við Sveitarfélagið Hornaörð og fyrirtæki á svæðinu leita að góðum viðskiptahugmyndum sem auka við óru atvinnulífsins í sveitarfélaginu.

Sendu okkur þína hugmynd fyrir 30. október.

Page 8: Eystrahorn 34. tbl. 2015