Eystrahorn 11. tbl. 2013

8
Fimmtudagur 21. mars 2013 www.eystrahorn.is Eystrahorn 11. tbl. 31. árgangur www.eystrahorn.is Næsta blað kemur út miðvikudaginn 27. mars. Efni og auglýsingar þurfa að berast í síðasta lagi mánudaginn 25. mars. Vala Garðarsdóttir, 37 ára fornleifafræðingur, hefur störf sem yfirmaður safnamála á Hornafirði í júní næstkomandi. Hún hefur víðtæka menntun og reynslu. Lauk meistaragráðu í fornleifafræði frá Háskólanum í Lundi, í alþjóðasamskiptum og sögu frá háskólanum í Brussel og sagnfræði frá Háskóla Íslands. Í starfi sem fornleifafræðingur hefur Vala stýrt uppgreftri á Alþingisreitnum á vegum Alþingis og uppgreftri á lóð Landspítalans við Hringbraut ásamt því að hafa tekið þátt í fjölmörgum uppgröftum víða um heim. Vala hefur kennt forsögulega fornleifafræði við Háskóla Íslands auk annarra námskeiða á vegum skólans undanfarin ár. Hún hefur skrifað fjölda ritgerða og greina tengt námi sínu og starfi. Vala er handritshöfundur og stjórnandi þáttanna Ferðalok sem fjalla um Íslendingasögurnar sem sýndir eru á RÚV á sunnudagskvöldum. Í samtali við blaðið sagði Vala; Starfið leggst mjög vel í mig. Hornafjarðarsveitin er svo heillandi, sagan er ljóslifandi allt um kring og er því um auðugan garð að gresja í þeim efnum. Samspil náttúru og mannlífs bæði í fortíð og nútíð hefur mótað far veg sem verður gjöfult verkefni að vinna með. Að koma enn betur til skila þeim ríka menningararfi sem Hornfirðingar eiga til bæði heimamanna og ferðamanna eru forréttindi. Ég hef ætíð hugsað til Hafnar með hlýhug, og á ég kæra vini hér síðan ég átti hér heima sem ég hlakka til að hitta aftur og ekki sakar náttúrufegurðin hér allt um kring“ Vala er gift Auðunni Helgasyni lögfræðingi og fyrrverandi landsliðs- og atvinnumanni í knattspyrnu og eiga þau 3 börn. „Við munum öll koma austur og nú vantar okkur bara húsnæði fyrir fjölskylduna“ bætti hún við. Vala Garðarsdóttir ráðin forstöðumaður safna Menningaverðlaunin voru afhent í Nýheimum sl. miðvikudag. Að þessu sinni voru tveir einstaklingar heiðraðir fyrir langt og farsælt starf að tónlistar- og menningarmálum. Sigjón Bjarnason á Brekkubæ hefur lagt ríkan skerf til tónlistarmála í sýslunni allri. Hann var fyrsti skólastjóri Tónskóla Hornafjarðar og starfaði einnig þar sem tónlistarkennari um árabil. Það hefur verið fátt Sigurjóni óviðkomandi sem tengist tónlist. Hann var lengi stjórnandi karlakórsins Jökuls, og einnig stjórnandi kvennakórsins. Einnig organisti í Bjarnaneskirkju til fjölda ára og spilaði undir á skemmtunum, dansleikjum og á viðburðum víða í sýslunni. Sigjón samdi fjölda tónverka og ekki ósjaldan þegar settar voru upp leiksýningar var leitað til hans með að semja tónlist og taldi hann það ekki eftir sér. Sigurgeir Jónsson á Fagurhólmsmýri hefur á sinni ævi verið ómetanlegur fyrir menningar- og félagsstarf í Öræfum. Hann hefur haldið uppi tónlistarlífi við skemmtanahald í Öræfum í a.m.k. 60 ár og einnig verið organisti í Hofskirkju í um það bil tvo áratugi, og er enn í því starfi á 81. aldursári. Öræfingar muna ekki eftir öðrum með harmonikkuna á jólatrésskemmtunum en Sigurgeiri og hefur hann spilað fyrir dansi áratugum saman. Einnig hefur hann stutt við tónlistar- og skemmtanalíf Grunnskólans í Hofgarði í mörg ár og gerir enn. Menningarverðlaun afhent Sigjón Bjarnason og Sigurgeir Jónsson handhafar menningarverðlaunanna. Á milli þeirra er Anna Þorsteinsdóttir, en eigendur Humarhafnarinnar voru einnig tilnefndir.

description

Eystrahorn 11. tbl. 2013

Transcript of Eystrahorn 11. tbl. 2013

Page 1: Eystrahorn 11. tbl. 2013

Fimmtudagur 21. mars 2013 www.eystrahorn.is

Eystrahorn11. tbl. 31. árgangur www.eystrahorn.is

Næsta blað kemur út miðvikudaginn 27. mars. Efni og auglýsingar þurfa að berast í síðasta lagi mánudaginn 25. mars.

Vala Garðarsdóttir, 37 ára fornleifafræðingur, hefur störf sem yfirmaður safnamála á Hornafirði í júní næstkomandi. Hún hefur víðtæka menntun og reynslu. Lauk meistaragráðu í fornleifafræði frá Háskólanum í Lundi, í alþjóðasamskiptum og sögu frá háskólanum í Brussel og sagnfræði frá Háskóla Íslands. Í starfi sem fornleifafræðingur hefur Vala stýrt uppgreftri á Alþingisreitnum á vegum Alþingis og uppgreftri á lóð Landspítalans við Hringbraut ásamt því að hafa tekið þátt í fjölmörgum uppgröftum víða um heim. Vala hefur kennt forsögulega

fornleifafræði við Háskóla Íslands auk annarra námskeiða á vegum skólans undanfarin ár. Hún hefur skrifað fjölda ritgerða og greina tengt námi sínu og starfi. Vala er handritshöfundur og stjórnandi þáttanna Ferðalok sem fjalla um Íslendingasögurnar sem sýndir eru á RÚV á sunnudagskvöldum. Í samtali við blaðið sagði Vala; Starfið leggst mjög vel í mig. Hornafjarðarsveitin er svo heillandi, sagan er ljóslifandi allt um kring og er því um auðugan garð að gresja í þeim efnum. Samspil náttúru og mannlífs bæði í fortíð og nútíð hefur mótað farveg sem verður gjöfult verkefni

að vinna með. Að koma enn betur til skila þeim ríka menningararfi sem Hornfirðingar eiga til bæði heimamanna og ferðamanna eru forréttindi. Ég hef ætíð hugsað til Hafnar með hlýhug, og á ég kæra vini hér síðan ég átti hér heima sem ég hlakka til að hitta aftur og ekki sakar náttúrufegurðin hér allt um kring“ Vala er gift Auðunni Helgasyni lögfræðingi og fyrrverandi landsliðs- og atvinnumanni í knattspyrnu og eiga þau 3 börn. „Við munum öll koma austur og nú vantar okkur bara húsnæði fyrir fjölskylduna“ bætti hún við.

Vala Garðarsdóttir ráðin forstöðumaður safna

Menningaverðlaunin voru afhent í Nýheimum sl. miðvikudag. Að þessu sinni voru tveir einstaklingar heiðraðir fyrir langt og farsælt starf að tónlistar- og menningarmálum.

Sigjón Bjarnason á Brekkubæ hefur lagt ríkan skerf til tónlistarmála í sýslunni allri. Hann var fyrsti skólastjóri Tónskóla Hornafjarðar og starfaði einnig þar sem tónlistarkennari um árabil. Það hefur verið fátt Sigurjóni óviðkomandi sem tengist tónlist. Hann var lengi stjórnandi karlakórsins Jökuls, og einnig stjórnandi kvennakórsins. Einnig organisti í Bjarnaneskirkju til fjölda ára og spilaði undir á skemmtunum, dansleikjum og á viðburðum víða í sýslunni. Sigjón samdi fjölda tónverka og ekki ósjaldan þegar settar voru upp leiksýningar var leitað til hans með að semja tónlist og taldi hann það ekki eftir sér.

Sigurgeir Jónsson á Fagurhólmsmýri hefur á sinni ævi verið ómetanlegur fyrir menningar- og félagsstarf í Öræfum. Hann hefur haldið uppi tónlistarlífi við skemmtanahald í Öræfum í a.m.k. 60 ár og einnig verið organisti í Hofskirkju í um það bil tvo áratugi, og er enn í því starfi á 81. aldursári. Öræfingar muna ekki eftir öðrum með harmonikkuna á jólatrésskemmtunum en Sigurgeiri og hefur hann spilað fyrir dansi áratugum saman. Einnig hefur hann stutt við tónlistar- og skemmtanalíf Grunnskólans í Hofgarði í mörg ár og gerir enn.

Menningarverðlaun afhent

Sigjón Bjarnason og Sigurgeir Jónsson handhafar menningarverðlaunanna. Á milli þeirra er Anna Þorsteinsdóttir, en eigendur Humarhafnarinnar voru einnig tilnefndir.

Page 2: Eystrahorn 11. tbl. 2013

2 EystrahornFimmtudagur 21. mars 2013

Laugardaginn 23. mars ætlar frjálsíþróttadeild Sindra í samstarfi við Sælgætisgerðina Freyju að standa fyrir nokkurskonar víðavangshlaupi. Hlaupnar verða 3 vegalengdir og allar hér innanbæjar. Lengsta vegalengdin sem boðið verður upp á er 10 km, næsta vegalengd er 5 km og sú stysta er 2,5 km. Keppt verður í karla og kvennaflokkum og til mikils er að vinna því Freyja ætlar að gefa sigurvegurunum gómsæt páskaegg, en allir keppendur fá að sjálfsögðu líka góðan þátttökuglaðning frá Freyju. Hlaupið verður frá íþróttahúsinu kl 13:00 og hefst skráning kl 12:30. 10 km hlaupið verður ræst kl 13:00, 5 km hlaupið verður ræst kl 13:15 og 2,5 km hlaupið verður ræst kl 13:30. Þátttökugjald í þetta hlaup eru 1.000.- pr einstakling en hver fjölskylda greiðir þó aldrei meira en 2.000.- Vonumst til að sjá sem flesta í páskaskapi!

Frjálsíþróttadeild Sindra og Sælgætisgerðin Freyja.

EystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

HlíðartúnVandað og vel skipulagt einbýlishús með sólstofu og bílskúr, samtals 188 m²5 svefnherbergi, frábær staðsetning.

KirKjubrautGlæsilegt 2ja hæða 191,1 m² einbýlishús ásamt bílskúr 4- 5 svefnherb., tvennar svalir, vönduð eign.

Hilmar Gunnlaugsson,hrl. og lögg.fasteignasalis. 580 7902

Hjördís Hilmarsdóttir,lögg.

leigumiðlaris. 580 7908

Sigurður Magnússon,lögg.

fasteignasalis. 580 7907

SigríðurKristinsdóttir,

lögmaður

Snorri Snorrason,lögg.

fasteignasalis. 580 7916

FÉLAG FASTEIGNASALA

Litlabrú 1 • 780 Höfn • Sími 580 7915Kaupvangur 2 • 700 Egilsstaðir • Sími 580 7905 • Fax 580 7901Garðarsbraut 5 • 640 Húsavík • Sími 580 7925 • Fax 580 7821

Hilmar Gunnlaugsson, hrl. og lögg. fasteignasali, Egilsstöðum, Sími 580 7902

Sigurður Magnússon, lögg. fasteignasali, Egilsstöðum, Sími 580 7907

Pétur Eggertsson, lögg. fasteignasali, Húsavík, Sími 580 7925

Snorri Snorrason, lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari, Höfn, Sími 580 7915

Hjördís Hilmarsdóttir, lögg. fasteignasaliog lögg. leigumiðlari, Egilsstöðum, Sími 580 7908

Nýtt á skráNýtt á skrástafafellsfjöll í lóniTil sölu er 3.000m² lóðarréttindi ásamt eldra 25 m² sumarhúsi. Lóðin er innarlega í sumarhúsabyggðinni, afgirt með neysluvatnsborholu.

lækkað verð!

FreyjuhlaupiðHafnarkirkjaPálmasunnudag 24. mars Sunnudagaskóli og messa

kl. 11:00. Fermingar.

Kyrrðarstund í Hafnarkirkju alla miðvikudaga kl. 18:15

Prestarnir

Vaktsími presta: 894-8881

bjarnanesprestakall.is

BjarnaneskirkjaPálmasunnudag 24. mars

Messa kl. 14:00. Fermingar.

Prestarnir

HjólhýsiTil sölu vel með farið hjólhýsi, Hobby prestige árg. 2007. Eitt með öllu! Upplýsingar í síma 894-4107.

SeljavallakjötvörurOpið á fjósloftinu

miðvikudaginn 27. mars kl. 15:00 - 19:00

Gott úrval af steikum fyrir páskana

Sjá nánar á www.seljavellir.is

Verið velkomin, Ella og Eiríkur, sími 860-7582 KútmagakvöldHið árlega og vinsæla

kútmagakvöld Lionsmanna verður 6. apríl n.k.Takið daginn frá.

Nánar auglýst síðar.

Opinn fundur um stjórnfyrirkomulag

VatnajökulsþjóðgarðsFundurinn sem vera átti 8. mars sl.

verður á Hótel Smyrlabjörgum mánudaginn 25. mars kl. 15:30. Sjá áður birta auglýsingu

í 9. tlb. Eystrahorns eða eystrahorn.is

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið

Minnum á aðalfund Björgunarfélags

Hornafjarðar þriðjudaginn 26. mars

kl. 20:00 í húsi félagsins.

Page 3: Eystrahorn 11. tbl. 2013

3Eystrahorn Fimmtudagur 21. mars 2013

Starfsmenntun í ferðaþjónustuFimmtudaginn 21. mars 2013 verður haldinn í fundarsal Nýheima á Höfn kynningarfundur á niðurstöðum könnunar á ferðaþjónustufyrirtækjum í Sveitarfélaginu Hornafirði og Skaftárhreppi.

Könnunin er liður í verkefninu að greina þörf fyrir starfsmenntun í ferðaþjónustu á Suðausturlandi.

Fundurinn hefst kl. 16:15.

Fyrirspurnir og umræður að kynningu lokinni.

Allir velkomnir.

Aðalfundur UMF Mána verður haldinn þriðjudaginn

26. mars kl. 20:00 í Mánagarði.

Venjuleg aðalfundarstörf

og léttar veitingar í boði.

reiðskóli - takið eftir!Fullbókað er fyrir þá sem þurfa hesta

en hægt er að skrá sig á biðlista. Enn er hægt að skrá ef

viðkomandi er með hest. Minnum á opið hús í reiðhöllinni við Stekkhól 23.mars kl. 14:00 til 16:00

allir velkomnir Upplýsingar í síma 865-3302

Hestamannafélagið Hornfirðingur

Æskulýðsnefnd

FELLIHÝSI TIL SÖLUPalomino, 9 fet. Árgerð 2005. Upplýsingar gefur Vífill í síma 864 4214

Ábyrgð byggingastjóra

Þetta námskeið er nauðsynlegt fyrir alla þá sem ætla sér að starfa sem byggingarstjórar og stýra byggingaframkvæmdum í samræmi við samþykktir, lög og reglur. Markmið þess er að upplýsa þá um ábyrgð sína og skyldur sem byggingarstjórar. Fjallað er um byggingarleyfi og önnur samskipti sem byggingarstjóri þarf að eiga við byggingaryfirvöld. Farið yfir hlutverk byggingarstjóra við verkframkvæmdir og meðhöndlun uppdrátta, lög, reglugerðir, tryggingar og tryggingaslit. Kynnt gildi og framkvæmd úttekta, s.s. áfanga-, fokheldis, stöðu- og lokaúttektir.

Á námskeiðinu er kynnt og afhent Byggingarstjóramappa, en hún er vísir að gæðakerfi fyrir byggingarstjóra. Í nýjum mannvirkjalögum er gert ráð fyrir því að byggingarstjórar hafi gæðakerfi vegna starfa sinna. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Mannvirkjastofnun.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Magnús Sædal byggingafulltrúi og Gunnar Pétursson lögfræðingur.

Tími/staðsetning: Laugardagur 6. apríl, kl. 9.00 – 17.00. Höfn í Hornafirði.

Lengd: 12 kennslustundir.

Fullt verð: 45.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 7.000 kr.

Skúlatún 2 - 105 ReykjavíkSími 590 6400 - Fax 590 [email protected] - www.idan.is

Gerir þú þér grein fyrir ábyrgðinni?

Skráning á www.idan.isog í síma 590 6400.

Námskeið fyrir byggingamenn

Skráning á idan.isBreyting á áður auglýstum aðalfundum

Aðalfundur Knattspyrnudeildar verður haldinn í Nýheimum þriðjudaginn 26. mars kl. 17:30.

Aðalfundur aðalstjórnar Sindra verður haldinn í Nýheimum þriðjudaginn 26. mars kl. 18:30.

Venjulega aðalfundarstörf

Í DaG

Page 4: Eystrahorn 11. tbl. 2013

4 EystrahornFimmtudagur 21. mars 2013

ert þú að kaupa eða selja skip eða bát?

Þá erum við reiðubúnir til þjónustu.

Bátar og búnaður www.batarb.is • [email protected]

Sími 562-2551

Humarhöfnin opnarVegna áframhaldandi ágangs

ferðamanna til Íslands, nýafstaðins kórónugoss á sólinni og norðurljósa opnum við Humarhöfnina þremur dögum fyrr en í

fyrra eða miðvikudaginn 27.mars.

Opnunartími verður frá kl. 18:00.

Heimamenn velkomnir.

Gleðilega páska

Frábærar fermingagjafir Tjöld, svefnpokar, bakpokar, sjónaukar, sængur, koddar,

rúmföt, skartgripir, kortaveski, leiserklukkur o.fl.

Opið virka daga kl. 13:00 - 18:00 og laugardaga kl. 13:00 - 15:00

Sími 478-2535 / 898-3664

Húsgagnaval

Bætt heilsaNýtt námskeið hefst 8.apríl í Sporthöllinni fyrir þá sem vilja fá mikið

aðhald og auka við sig styrk og þol. Námskeiðið er frábær leið til að hefja lífstílsbreytingu í átt að bættri heilsu. Allir tímar byrja á bandvefslosun og

dýnamískum teygjum, notum lóð og tækjasalinn.Innifalið:

Þjálfun 3x í víku•Mikið aðhald og persónleg ráðgjöf•Vikulegir tölvupóstar frá kennara með hvatningu og heilsuráðum•Vigtun reglulega•Ummáls-ogfitumælingíbyrjunogloknámskeiðs•Þol-ogstyrktaprófíupphafiogloknámskeiðs•Frítt í tækjasal og alla aðra tíma•Fyrirlestrarkvöld á miðju tímabili með óvæntum gesti•Endurnýjað fræðsluefni með uppskriftum og fróðleik•Lokaðir tímar•

Námskeiðið verður á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum

kl.6:30-07:20. Hámarksfjöldi þátttakenda er 10 manns. Verð 26.900 kr. í 6 vikur.

Skráninghafinísíma478-2221 eða á [email protected]

Leiðbeinandi verður Kolbrún Þ. Björnsdóttir ÍAK einkaþjálfaranemi

Atvinnu- og menningarmálanefnd Leikfélag Hornafjarðar til starfsemi félagsins 50.000Kvennakór Hornafjarðar til starfsemi kórsins 200.000Karlakórinn Jökull til starfsemi kórsins 200.000Samkór Hornafjarðar til starfsemi kórsins 200.000Barnakór Hornafjarðar til starfsemi kórsins 100.000Lúðrasveit Hornafjarðar. til starfsemi sveitarinnar 100.000Gleðigjafar til starfsemi kórsins 100.000Hornfirska skemmtifélagið til kaupa á hljóðkerfi 300.000Lúðrasveit Tónskóla lúðrasveitarmót í Gautaborg 100.000Hlynur Pálmason sýningahald og kvikmyndagerð 100.000Ljósalistaverk Ljósalistaverk á Vatnstanki 250.000

Bæjarráð Björgunarsveitin Kári til starfsemi félagsins 300.000Félagsstarf aldraðra í Öræfum til starseminnar 100.000Skógræktarfélag A-Skaft. til starfsemi félagsins 300.000Landgræðsla ríkisins bændur græða landið 75.000Félag eldri Hornfirðinga til starfsemi félagsins 600.000Björgunarfélag Hornafjarðar Björgunarsveit Hornafjarðar 2.160.000

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Ungmennafélagið Sindri samkvæmt samningi 14.240.000Ungmennafélagið Máni til starfsemi Umf. Mána 400.000Golfklúbbur Hornafjarðar til starfsemi félagsins 2.000.000Golfklúbbur Hornafjarðar til barna og unglingastarfs 300.000

Atvinnu- og rannsóknarsjóðurÞorvarður Árnason Norðurljósin í Ríki Vatnajökuls 200.000Vigfús Þórarinn Ásbjörnsson Heppa Matarhöfn 600.000Ásbjörn Þórarinsson Huldusteinn 250.000Óskar Arason IceGuide 600.000Jón Sölvi Ólafsson Útflutningur á humarkrafti 250.000Ragnheiður Hrafnkelsdóttir Millibör 600.000Guðrún Ingólfsdóttir Minjagripir og listiðnaður 600.000Berglind Steinþórsdóttir Töfratröll 200.000Valorka Sjávarorkurannsóknir 400.000Sveinn Rúnar Ragnarsson Olíurepja 200.000Hanný Heiler Geitaafurðir frá Dynjanda 200.000

Í síðustu viku fór fram afhending styrkja á vegum sveitarfélagsins. Hér er listi yfir styrkþega og þær nefndir sem veita styrkina.

Styrkir sveitarfélagsins

Fulltrúar nokkurra félagasamtaka sem fengu styrki.

Page 5: Eystrahorn 11. tbl. 2013

5Eystrahorn Fimmtudagur 21. mars 2013

Framtíðarreikningur er góður

kostur fyrir mömmur, pabba,

afa, ömmur og alla þá sem vilja

leggja góðan grunn að framtíð

barns.

Komdu heim í Sparisjóðinn og

byrjaðu framtíðina með okkur.

SPARISJÓÐSINS

FRAMTÍÐARREIKNINGUR

Á undanförnum árum hafa stefnur sveitarfélagsins sem snerta fjölskylduna verið endurskoðaðar t.d. var ný fjölskyldustefna samþykkt 2011 og ný stefna í íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamálum 2012. Við gerð þessara stefna voru gögn, sem íbúar komu að því að vinna, höfð til hliðsjónar. Þessi gögn eru m.a. hugmyndavinna sem unnin var á stóra íbúaþinginu í Ríki Vatnajökuls haldið í Mánagarði 26. febrúar 2011 og afrakstur heilsuþings sem haldið var í október sama ár. Skóla-,íþrótta- og tómstundanefnd, í samvinnu við velferðarteymi sveitarfélagsins er þessa dagana að undirbúa íbúafund um stefnu sem varðar heilsueflingu og forvarnir í sveitarfélaginu. Ákveðið er að halda fundinn þann 16. apríl n.k. kl. 17:15 – 21:00 en fjallað verður nánar um hann er nær dregur. Allir sem áhuga hafa á að taka þátt eru hvattir til að taka þennan dagspart frá til að koma að þessari vinnu.

Í tengslum við íbúafundinn ætlar grasrótarhópur um heilsueflingu og forvarnir að standa fyrir því að Vikan 16. – 23. apríl verði tileinkuð málefninu „Heilsa og vellíðan“. Markmiðið er að vekja áhuga og hvetja fólk til að stunda heilbrigðan lífstíl. Heilbrigður lífstíll nær til andlegra, félagslegra og líkamlegra þátta og er besta forvörnin á öllum sviðum.

Vonast er til þess að fyrirtæki og stofnanir í sveitarfélaginu taki öflugan þátt í að gera sem mest úr þessari heilsuviku. Fyrirtæki eru hvött til að kynna þá starfsemi sem gæti fallið undir heilbrigðan lífstíl og verslunareigendur eru hvattir til að gera heilsusamlegum vörum sérstaklega hátt undir höfði þessa viku. Matvælaframleiðendur eru hvattir til að opna afurðasölur sínar og fyrirtæki geta staðið fyrir heilsueflandi viðburðum fyrir sína starfsmenn. Vonast er eftir þátttöku íþrótta- og félagasamtaka og heimilin hvött til að taka þátt. Hægt er að bjóða upp á kynningu á heilsusamlegu mataræði, eldamennsku, hreyfiviðburðum, félagslegum viðburðum eða öllu því sem viðkemur heilbrigðum lífstíl. Í tengslum við viku tileinkaða heilsu og vellíðan mun heilbrigðisstofnunin bjóða upp á tveggja helga námskeið í hugleiðslu og streitustjórnun á vegum www.hugleidsla.is. Fyrri námskeiðshelgin verður 19. - 20. apríl og hin síðari 3. - 5. maí.

Ragnhildur Jónsdóttir, fræðslustjóri og Matthildur

Ásmundardóttir framkvæmdastjóri HSSA

Íbúafundur um heilsueflingu og forvarnir- vika tileinkuð heilsu og vellíðan -

Frá íbúafundi í febrúar 2011. Mynd: Þorvarður Árnason

Page 6: Eystrahorn 11. tbl. 2013

6 EystrahornFimmtudagur 21. mars 2013

Pantanir í síma 487 4900 eða á [email protected]

Helgihald, gönguferðir og framúrskarandi maturIcelandair hótel Klaustur býður upp á yndislega páska dagskrá í faðmi jökla.

Sjá nánar á icelandairhotels.is

Endurnærðu líkama og sál í kyrrðinni á Kirkjubæjar klaustriSigur lífsins

REYKJAVÍK NATURA REYKJAVÍK MARINA Í KEFLAVÍK FLÚÐIR KLAUSTUR HÉRAÐ AKUREYRI HAMAR

Við tökum vel á móti þér.

SAMTÖK SUNNLENSKRA SVEITARFÉLAGA

Minnum á kynningarfundinn um starfsemi SASS á Höfn

og næstu styrkúthlutun á Hótel Höfn

fimmtudaginn 21. mars milli kl. 12:00 og 13:00.

Allir velkomnir.

Súpufundur Fermingargjafir Fatnaður og fylgihlutir frá Millibör og Arfleifð

OpIð fram að páskum: Fimmtudag og föstudag kl. 14:00 - 18:00

Laugardag, mánudag, þriðjudag og miðvikudag kl. 13:00 - 15:00

Nýjar vörur Allir velkomnir

Konurnar í Kartöfluhúsinu

Í DaG

Page 7: Eystrahorn 11. tbl. 2013

landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn

Gefðu sparnað í fermingargjöf

Fermingarkortið er inneignarkort sem hentar þeim vel sem vilja

gefa sparnað í fermingargjöf. Landsbankinn greiðir 5.000 króna

mótframlag þegar fermingarbörn leggja 30.000 krónur eða

meira inn á Framtíðargrunn.

Fermingarkortið er gjöf sem leggur grunn að � árhag framtíðarinnar. Kortið kemur í fallegum gjafaumbúðum og fæst án endurgjalds í útibúum Landsbankans.

Page 8: Eystrahorn 11. tbl. 2013

Tilboðin gilda 21. mars. - 1. aprílTilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

Kræsingar & kostakjörMINNUM ÁPÁSKA-BÆKLINGINN!

KRÆSINGAR&KOSTAKJÖR

TILBOÐIN GILDA 21. MARS - 1. APRÍL

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

Gleðilega páska!

NÝTT

KORTATÍMABIL

1.098VERÐ NÚ

ÁÐUR 1.689 KR/KG

ÖNDFRAKKLAND

35% AFSLÁTTUR