Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

40
ÚTVEGSBLAÐIÐ Þ J ó N U S T U M I ð I L L S J á V A R ú T V E G S I N S janúar 2012 » 1. tölublað » 13. árgangur Hár aldur íslenskra fiskiskipa Vilja fleiri sjómenn til Grindavíkur Pottarnir hafa meira en tvöfaldast Frívaktin fjallar um daglegt líf sjómanna »4 »34 »36 »SéRBLAð íSLENSKI SJáVARKLASINN » Endalausir möguleikar Íslenski sjávarklasinn er til umfjöllunar í sérblaði sem fylgir Útvegsblaðinu. Þar er m.a. fjallað um möguleika til verðmætaaukningar og um- fang íslensks sjávarútvegs. MIKILVÆGT AÐ NÁ SÁTT „ég trúi því að þetta sé hægt, annars væri ég ekki að þessu. Og þetta verður erfitt. Það verður aldrei sú niðurstaða sem allir verða sáttir með. Sennilegast verða menn ámóta óánægðir á báðum endum.“ »9 STEINGRíMUR J. SIGFúSSON SJáVARúTVEGSRáðHERRA: Við skulum vera hreinskilin og viðurkenna að brottkast er ekki eitthvað sem sjávarútvegur Evrópu fann upp sér til ánægju.“ . . . »2 MYND: MAGNUS FRöDERBERG/NORDEN.ORG

description

Þjónustumiðill sjávarútvegsins

Transcript of Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

Page 1: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

útvegsblaðiðÞ j ó n u s t u m i ð i l l s j á v a r ú t v e g s i n s

j a n ú a r 2 0 1 2 » 1 . t ö l u b l a ð » 1 3 . á r g a n g u r

Hár aldur íslenskra fiskiskipa

vilja fleiri sjómenn til grindavíkur

Pottarnir hafa meira en tvöfaldast

Frívaktin fjallar um daglegt líf sjómanna

»4 »34 »36 »sérblað

íslenski sjávarklasinn »

endalausir möguleikarÍslenski sjávarklasinn er til umfjöllunar í sérblaði sem fylgir Útvegsblaðinu. Þar er m.a. fjallað um möguleika til verðmætaaukningar og um-fang íslensks sjávarútvegs.

Mikilvægt að ná sátt „ég trúi því að þetta sé hægt,

annars væri ég ekki að þessu. Og

þetta verður erfitt. Það verður

aldrei sú niðurstaða sem allir

verða sáttir með. sennilegast

verða menn ámóta óánægðir á

báðum endum.“ »9

steingrímur j. sigfússOn sjávarútvegsráðherra:

við skulum vera hreinskilin og viðurkenna að brottkast er ekki eitthvað sem sjávarútvegur evrópu fann upp sér til ánægju.“ . . . »2

mynd: magnus Fröderberg/norden.org

Page 2: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

Loðnuvertíðin verður fín, þorskkvótinn verður aukinn og þess vegna stefnir í gjöfult ár. náttúran virðist ætla að verða gjöful. Það er góðs viti.

Þá er komið að okkur mönnunum. Það er okkar að nýta auð-lindina til að efla hag þjóðarinnar sem mest og best. Það er svo mikið undir. okkur veitir ekki af að nýta auðlindirnar okk-ar til að bæta hag þjóðarinnar.

með þessu tölublaði útvegsblaðsins er veglegt sérblað um ís-lenska sjávarklasann. við lestur blaðsins er mögulegt að átta sig á öllu því afli og öllum þeim kröftum sem eru að störfum í mörgum öflugum fyrirtækjum um land allt. gangi væntingar eftir er ljóst að verðmæti sjávarafurða mun stóraukast. öllum til hagsbóta.

Í blaðinu er einnig fréttaskýring um aldur íslenskra fiskiskipa. Framundan er endurbygging eldri skipa eða smíði nýrra. með auknum veiðikvótum og svo ekki sé talað um að alþingi ljúki vitrænum breytingum á lögum um stjórn fiskveiða er augljóst að margt jákvætt mun gerast hér á næstu mánuðum. Þegar samfélagið verður vart við bjartsýni frá höfuðatvinnuvegi þjóðarinnar mun margt fylgja á eftir. drjúgur hluti iðnaðarins er að beint tengdur sjávarútvegi, þau fyrirtæki sem sinna við-haldi og endurgerð og svo hin fjölmörgu sem vinna að þróun og nýsköpun tækja og tóla vegna veiða og vinnslu.

tækifærin blasa við okkur. og það meiri en flestar þjóð-ir dreymir um. vandi fylgir vegsemd hverri og það er okk-ar mannanna að vinna úr þeim frábæru tækifærum sem við höfum. auðvitað óttast margir að ekki takist sem best. spor-in hræða. Þegar ráðherrar segja um ríkisstjórnarfrumvarp hafi verið sem bílslys er eðlilegt að þeir sem hafa einu sinni sagt já við þannig óskapnaði geri það aftur. Hvers vegna ekki?

öfgafyllsta umræðan má heldur ekki hafa áhrif á það fólk sem að lokum ræður hvert stefnt verður.

Sigurjón M. Egilsson

2 janÚar 2012 útvegsblaðið

maria damanaki, sjávarútvegsstjóri evrópusambandsins, fór yfir helstu áhersluatriði yfirstandandi endur-skoðunar á sameiginlegu sjávarút-vegsstefnu esb í ræðu sinni á sjávar-útvegsráðstefnu í london í síðustu viku. Þar undirstrikaði hún að sjálf-bærar fiskveiðar eru til hagsbóta fyrir alla aðila í evrópskum sjávarút-vegi og sagði að reynsla álfunnar af minnkun fiskistofna, aukinni meng-un og brottkasti sýni hina alvarlegu ágalla stefnunnar.

siðferðislega rangtdamanaki gerði brottkast að aðal-efni ræðu sinnar og sagði afnám þess vera algjört forgangsatriði í yfirstandandi endurskoðun á sjávar-útvegsstefnunni. benti hún á að 770 þúsund evrópubúar hafa nú skrifað undir yfirlýsingu þess efnis að brott-kast verði stöðvað innan esb.

„ef einhvers staðar er hægt að sjá mistök hinnar sameiginlegu sjávar-útvegsstefnu þá sjást þau augljós-lega í þeim hundruðum þúsunda tonna af mat sem við sóum á hverju ári með því að henda fullkomlega góðum fiski fyrir borð,“ sagði hún.

maria benti jafnframt á að með því heildarmagni af sjávarafurðum sem hent er frá borði á hverju ári er hægt að fæða á milli 200 og 350 þúsund manns. „Ég þarf ekki að út-skýra fyrir ykkur hversu siðferðis-lega rangt það er af okkur að stunda brottkast þegar litið er til talna sem lýsa núverandi efnahagsástandi.“

brottkast sprottið úr löggjöfum esbdamanaki sagði ósanngjarnt að rekja núverandi ástand eingöngu til evrópskra sjómanna og fyrirtækja í sjávarútvegi og ekki til þeirra sem móta opinberar stefnur. „við skulum

vera hreinskilin og viðurkenna að brottkast er ekki eitthvað sem sjáv-arútvegur evrópu fann upp sér til ánægju. Það er, og mér mislíkar að segja það, hugarfóstur löggjafa esb.“

að lokum kynnti damanaki áform esb um að draga kerfisbund-ið úr brottkasti. „Það gerum við með því bæta úr tækjakosti flotans og veita honum viðeigandi stuðning til að draga úr brottkastinu. Þá munum við þurfa að landa öllum þeim fiski sem kemur í netin. ef um er að ræða of lítinn fisk, þá fer hann í fiskmjöl. ef hann er of stór, þá eiga sjómenn að geta selt hann á mörkuðum til manneldis.“

Damanaki ræddi afleiðingar brottkasts

Kynnti fyrirhugaðar breytingar á sjávarútvegsstefnu esb:

Haraldur guðmundsson skrifar:[email protected]

útvegsblaðiðÞ j ó n u s t u m i ð i l l s j á v a r ú t v e g s i n s

leiðari

Láti gott á vita

útgefandi: goggur ehf. kennitala: 610503-2680 heimilisfang: stórhöfða 25 110 reykjavík sími: 445 9000 heima-síða: goggur.is netpóstur: [email protected] ritstjóri: sigurjón m. egilsson ábm. höfundar efnis: Haraldur guðmunds-son, geir a. guðsteinsson, Karl eskil Pálsson, sigurjón m. egilsson og fleiri. auglýsingar: [email protected] sími: 899 9964 Prentun: landsprent. Dreifing: Farmur. Dreifing: útvegsblaðinu er dreift til allra áskrifenda morgunblaðsins, út-gerða, þjónustuaðila í sjávarútvegi og fiskvinnslustöðva. útvegsblaðið kemur út átta sinnum á ári.

um síðastliðna helgi hafði fiskimjölsverksmiðja hb granda á vopnafirði tekið við um 13 þúsund tonnum af loðnu til mjöl- og lýsisvinnslu. á heimasíðu hb granda kemur fram að allri loðnu sem landað er á vopnafirði fer í gegnum flokkarakerfi fyrirtækisins og sú loðna sem ekki hentar til frystingar er skilin frá og fer í mjöl- og lýsis-vinnslu.

að sögn sveinbjörns sigmundssonar, verksmiðju-stjóra hb granda á vopnafirði, hefur mjöl- og lýsisvinnsl-an gengið framar vonum. aðspurður um hvort erfitt hafi verið að manna verksmiðjuna á þessum háannatíma segir sveinbjörn það hafa verið lítið mál. „hér starfa tólf manns, allt heimamenn, og þetta er sami kjarninn og hefur verið hér síðustu ár og við því ekki lent í neinum vandræðum með mannskap.“

magnús róbertsson, vinnslustjóri hb granda á vopna-firði, segir vinnsluna hjá sér einnig hafa gengið mjög vel. „Það hafa ekki verið mörg stopp hjá okkur frá 5. janúar. Það eina sem hefur dregið úr vinnslunni er veður á mið-unum, sem þó hefur ekki verið svo slæmt.“ að sögn magn-úsar starfa nú um 60 manns í fiskvinnslu fyrirtækisins á vopnafirði.

magnús segir starfsmenn fyrirtækisins vera hæst-

ánægða með nýbirtar tillögur hafrannsóknarstofnun-arinnar um að heildarafli á loðnu á yfirstandandi vertíð verði aukinn í 765 þúsund tonn.

loðnuvinnsla gengið vel á vopnafirði

2002/2003: 765.000

737.345

170.872

152.390

15.000

109.805

326.959

546.177 Heimild: FisKistoFa

315.245

771.180

2010/2011:

2006/2007:

2004/2005:

2008/2009:

2003/2004:

2011/2012:

2007/2008:

2005/2006:

2009/2010:

Úthlutaður loðnukvóti til íslenskra skipa sl. 10 fiskveiðiár. neðangreindar tölur miðast við lestir af afla upp Úr sjó.

Hér starfa tólf manns, allt heimamenn, og þetta er sami kjarninn og hefur verið hér síðustu ár og við því ekki lent í neinum vandræðum með mannskap.

» frá loðnuvinnslu hB granda á vopnafirði.

» „ef einhvers staðar er hægt að sjá mistök hinnar sameigin-

legu sjávarútvegsstefnu þá sjást þau augljóslega í þeim

hundruðum þúsunda tonna af mat sem við sóum á hverju ári

með því að henda fullkomlega góðum fiski fyrir borð.“

nöfn skipverjanna sem fórust þegar hallgrímur si-77 sökkskipverjarnir þrír sem fórust þegar togarinn hallgrímur si-77 sökk við noreg sl. miðvikudag hétu magnús Þórarinn Daníelsson, skip-stjóri fæddur 1947, gísli garðarsson, stýrimaður fæddur 1949, og einar g. gunnarsson, vélstjóri fæddur 1944.

magnús var til heimilis á mávatjörn 17 í reykjanesbæ og lætur eftir sig eiginkonu, þrjú uppkomin börn og fimm barnabörn. gísli bjó í vatnsholti 26 í reykjavík og lætur eftir sig eiginkonu. einar var til heimilis í logafold 29 í reykjavík og lætur eftir sig eigin-konu, fjórar uppkomnar dætur og eitt barnabarn.

útvegsblaðið sendir aðstandendum og vinum mannanna inni-legar samúðarkveðjur.

magnús Þórarinn daníelsson

gísli garðarsson

einar g. gunnarsson

Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • [email protected]

Starfstöðvar Ísfells og Ísnets:

• Ísnet Akureyri - Fiskitangi• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður - Óseyrarbraut 28• Ísnet Húsavík - Barðahúsi• Ísnet Sauðárkrókur - Háeyri 1• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28

www.isfell.is

...Hafðu samband við sölumenn okkar og fáðu allar upplýsingar

Allur helsti björgunarbúnaður til sjós og lands...

Page 3: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

Erlendur Arnaldssonframleiðslustjóri

100.000 pakkningar sem auka verðmæti sjávarafurða

UMHVERFISVOTTUÐ PRENTSMIÐJA

Oddi fyrir þig, þegar hentar, eins og þér hentar.

Prentun frá A til ÖOddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is

765.000

Page 4: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

er íslenski fiskiskipaflotinn orð-inn gamall og hrörlegur? um það kunna að vera skiptar skoðanir. vissulega er meðalaldur flotans kominn yfir 20 ár þegar allt er tal-ið en vel yfir 30 ár, þegar fiskiskip yfir 12 tonnum eru aðeins talin. enn erum við að nota áratuga göm-ul skip með góðum árangri. Þar má nefna aflaskipin sigurð og víking, sem eru rúmlega hálfrar aldar göm-ul. endurnýjunin frá aldamótum hefur reyndar verið þó nokkur, en á þriðja tug nýsmíðaðra skipa hefur komið til landsins á þessu tímabili. auk þess hafa verið keypt nokk-ur notuð skip, en alls eru þrír tugir skipa skráðir á þessu ári með „fæð-ingarvottorð“ frá árinu 2000 eða síðar. Þá er eitt skip í smíðum fyr-ir Ísfélagið hjá asmar í Chile, sem verður tilbúið fyrrihluta næsta árs. Þrátt fyrir að skipin sé komin nokk-uð til ára sinna, er það staðreynd á líklega fiskast hvergi meira á skip að meðaltali en hér á landi.

nýjasta nýsmíðin, Þórunn sveinsdóttir ve, kom til landsins fyrir um réttu ári, en það skip var smíðað í Póllandi og danmörku. Þar á undan voru þrír bátar sem voru smíðaðir á tæwan, Helga re, skin-ney sF og Þórir sF 2009. Fjögur skip voru smíðuð í Póllandi árin 2006 og 2007, en það eru vestmanna-eyjaskipin bergey, dala rafn, vest-mannaey og svo vörður ea. alls voru smíðuð 16 skip í Kína í upp-hafi aldarinnar, níu litlir raðsmíð-abátar í dalian og sjö stærri skip í Huangpu. Þau skip komu til lands-ins árin 2000 og 2001. Þorlákur Ís var smíðaður í Póllandi árið 2000. Fjögur voru smíðuð í Chile, rann-sóknaskipið árni Friðriksson re og fiskiskipin Hákon ea, ingunn aK og Huginn ve, en þau komu árið 2000 og 2001. eitt íslensk fiskiskip var smíðað innanlands á þessu tímabili. Það er arnar sH, sem er plastbátur 29,9 brúttólestir að stærð. Hann hét upphaflega Happasæll Ke.

endurnýjun í kippumerfitt er að meta hvað sé eðlileg endurnýjun í flotanum, sem alls telur um 800 skip. mesta endur- nýjunin hefur reyndar orðið í minnstu bátunum, undir 15 tonn-um. Hvað á ennfremur að telja að sé eðlilegur meðalaldur fiskiskipa-flota? um það er líklega ómögulegt að segja, enda veltur það á fjölmörg-um þáttum, meðal annarra þróun í skipasmíðum og viðhaldi skipanna. á árum áður kom endurnýjunin í kippum allt frá 1955 og fram undir 1980. Fyrst var það síldin, en þá var svo ör þróun í skipasmíðum, búnaði og kröfum um aðbúnað og meðferð aflans að skipin úreltust mjög fljótt. á sama tíma er stálskipasmíðin að ryðja sér til rúms. á þessum árum var endurnýjunarþörfin mjög mikil og bara með nokkurra ára millibili tvöfaldaðist til dæmis afkastageta

nýrra skipa. nýsköpunartogararnir komu líka í kippum en voru gufu-skip og því í raun úreltir fljótlega og síðan komu dísiltogarnir í kringum 1960, en voru auðvitað síðutogar-arnir. Þá tóku skuttogararnir við upp úr 1970 og komu heldur betur í kippum allt fram yfir 1980. marg-ir þessara togara eru enn í útgerð, enda hefur lítið breyst í grunn-hönnun skuttogara síðan þá og því hefur endurnýjunarþörfin ekki ver-ið eins mikil og ella. Helsta breyt-ingin er í minni togbátum, en þar var töluverðrar endurnýjunarþörf, sem kannski er nokkuð langt kom-in. Framfarirnar hafa því ekki úrelt togarana eins og áður var.

sævar birgisson, skipatækni-fræðingur og einn eigenda skipa-sýnar, hefur lengi hannað fiskiskip fyrir Íslendinga og er flestum hnút-um í þeim efnum kunnugur. „Það er alltaf nokkurs konar reiknisdæmi hvort borgar sig að vera með ný skip eða viðhalda þeim gömlu, seg-ir hann í samtali við útvegsblaðið. „á nýju skipunum hvílir mikill fjár-magnskostnaður, en á hinn bóginn viðhaldskostnaður á þeim eldri í stað fjármagnskostnaðar. ef litið er á línuveiðiflotann okkar er megn-ið af honum gamlir bátar sem hef-ur verið breytt og er vel við haldið. margir þeirra um fertugt eða meira. Það er náttúrulega margt sem þarf að taka tillit til við endurnýjun fiski-skipa. Þar ræður kannski mestu fjárhagsstaða viðkomandi útgerða. staðreyndin í dag er sú að í mjög mörgum tilfellum hafa fyrirtækin tekið á sig miklar skuldir við kaup á aflaheimildum, þegar menn hafa verið að selja sig út úr greininni og nýir aðilar komið inn. Fyrirtæki sem skulda mikið, fara auðvitað síður út í endurnýjun. útgerðin þarf auðvit-að líka að sníða sér stakk eftir vexti. Hvað þarf hún öflugt skip til að taka þær veiðiheimildir sem hún hefur? vissulega er sambærilegt nýtt skip öflugara og hagkvæmara í útgerð en hið gamla, en hve miklu þarf að kosta til þess. Þórunn sveinsdóttir er reyndar gott dæmi um það hvað afköstin aukast með nýju skipi. Þeir eru komnir yfir milljarð í aflaverð-mæti á árinu og hafa fiskað ein-hver ósköp af gulllaxi og makríl fyr-ir utan aðrar tegundir, en það gátu þeir ekki áður,“ segir sævar.

Olíuverðið ræður mikluen marga aðra þætti þarf að skoða við endurnýjun fiskiskipaflotans, þegar til framtíðar er litið. „verð á olíu hefur auðvitað mikið að segja líka og sú þróun sem orðið hefur í hönnun togskipa síðustu árin hef-ur að langmestu leyti miðast við að minnka olíunotkun og auka nýt-ingu orkunnar, sem vélarnar skila. nú orðið þurfa skipin ekki nærri eins stórar vélar og áður til að ná sama togkrafti vegna betri hönnunar á skrúfu og notkunar á skrúfuhring. spyrnan í bestu litlu togbátunum nú er upp í 20 kg spyrnu á hvert hest-afl sem sett er út á skrúfuásinn, en

mörg stærri skipanna með stærstu vélarnar eru aðeins með um 10 kg spyrnu á hestaflið. Hækkandi olíu-verð getur því nánast komið í veg fyrir að togveiðar verði stundaðar á skipum sem ekki nýta orkuna vel. og þá verður endurnýjunarþörf. Í þessu sambandi má nefna að toggeta nýja varðskipsins okkar, Þórs, er um 110 tonn. Það þætti mjög lélegt hjá tog-skipi, því hann er með 12.000 hest-öfl. togskip með miklu minni vélar eru með sömu toggetu.“

ef menn horfa til framtíð-ar, hvers konar skip væri þá hag-

kvæmast eða skynsamlegast að láta smíða?

„Það er mög erfitt að meta. nú er í tísku að tala um vistvænar veið-ar og þá helst veiðar á línu. ef það verður orkunotkunin sem kem-ur til með að stýra fiskveiðunum, þá gæti maður ætlað að veiðarnar þróuðust yfir í línu, neta eða snur-voðaveiðar, en ljóst að netaveiðar eru langódýrastar og síðan veiðar í snurvoð. Þar er olíunotkun á hvert veitt tonn minni en á línu. svo er líka spurning hvort það er jafnmik-ill munur á olíunotkun við línuveið-

ar og togveiðar eins og haldið hefur verið fram. afköstin á togveiðiskip-unum eru geysilega mikil nú eins og fiskigengdin hefur verið og afli á togtíma mjög mikill. svo hefur líka vantað í þennan samanburð á orku-kostnaði að taka inn orkuna sem fer í að veiða beituna sem notuð er við línuveiðar, en hún er um 10% af aflanum. loks eru íslensku línu-skipin gömul og óhagkvæm í rekstri og eyða mikilli olíu. Þessi stóru línu-skip með þessar gömlu vélar eru að eyða 2-3 tonnum af olíu á dag , en það eru þessir minni togbátar líka

4 janÚar 2012 útvegsblaðið

Fjárskortur og óvissa hamlar endurnýjun

Hjörtur gíslason skrifar:[email protected]

aðeins þrír tugir stærri fiskiskipa smíðaðir á þessari öld.

fréttaskýring

Fagmenn til sjós og landsv m - f é l a g v é l s t j ó r a O g m á l m t æ k n i m a n n a - S t ó r h ö f ð a 2 5 - 1 1 0 r e y k j a v í k - 5 7 5 9 8 0 0 - w w w . v m . i s

Page 5: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

Fjárskortur og óvissa hamlar endurnýjun

að gera. Þeir stærri eru hins vegar að nota um 7 tonn. línuskipin flest eru ekki hönnuð til að stunda línu-veiðar. Þau eru til dæmis með skipt-iskrúfu og skrúfan er að eyða um 20% af afli vélarinnar í tómgang. línuskip nútímans þurfa að vera með rafmagnsmótor á skrúfunni, sem stoppar hana þegar hún er ekki að knýja skipið áfram. Þannig næst verulegur orkusparnaður.

Mest þörf í uppsjávarflotanumannars er endurnýjunarþörfin einna brýnust í uppsjávarflotan-um. mjög stór hluti af þeim flota er orðinn gamall og skipin að mörgu leyti óhentug. sum þeirra hafa ekki nógu góða kælingu í lestum til að fiska til manneldis. orkunýting-in er heldur ekki nógu góð í mörg-um þeirra, en reyndar er þróunin á þá leið að tvö og jafnvel þrjú skip dragi saman veiðarfæri, en við það þarf hvert skip fyrir sig ekki að vera eins aflmikið. Þarna er um að ræða kannski um tug skipa. Ég held að

það sé alveg ljóst að það er endur-nýjun framundan í stærri hluta flotans, en það verður engin bylgja, enda er ekki um neina bráðaþörf að ræða. Þetta ræðst kannski meira af því að það losni um peninga hjá út-gerðinni. reyndar eru til fyrirtæki eins og skinney Þinganes á Horna-firði, sem hafa endurnýjað nánast allan flotann á undanförnum árum, en hjá ansi mörgum fyrirtækjum er meðalaldur skipanna orðinn ansi hár og þörfin fyrir að hefja endur-nýjun orðin ansi brýn.

skipin orðin of dýrmér finnst reyndar að menn þurfi að fara að skoða betur kostnað-inn við að byggja skipin. skipin eru orðin alveg svakalega dýr og því er líklega mjög erfitt að láta rekstur á nýsmíði ganga upp. nýr frysti-togari hannaður fyrir flökun á bol-fiski kostar um þrjá milljarða króna og um 50 metra ísfisktogari um tvo milljarða.

framhald á næstu síðu

útvegsblaðið janÚar 2012 5

SJÓMANNASAMBAND ÍSLANDS LANDSSAMBAND ÍSLENSKRA ÚTVEGSMANNA

Sjómennt – Tækniskólinn, skóli atvinnulífsins – Háteigsvegi – 105 Reykjavík – sími 514 9000

Átt þú rétt á styrk?Félagsmenn Sjómenntar sem unnið hafa í að minnsta kosti sex mánuði á síðastliðnum tólf mánuðum geta sótt um styrk til félagsins:• starfstengt nám eða námskeið • tómstundastyrkir • meirapróf • kaup á hjálpartækjum vegna lestrar- eða ritörðugleika

Samtök atvinnulífsins (SA), Landssamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) og Sjómannasamband Íslands (SSÍ) standa að Sjómennt.

Sjómennt – fræðslusjóður sjómanna og útgerðarfélaga

Kynntu þér rétt þinn á www.sjomennt.is

199

9

18

19 19

20 20

21

22 22

23 23

22 22

200

3

200

7

200

0

200

4

200

8

200

1

200

5

200

9

200

2

200

6

2010

meðalaldur fiskiskipa:

nýsmíðar frá 2000, skip yfir 15 Brl.

nafn smíðaár land

aðalsteinn jónss. su 2001 noregur

arnar sh 2004 Ísland

ásgrímur halld. sf 2000 noregur

benni sæm gk 2001 Kína

bergey ve 2006 Pólland

brimnes re 2002 noregur

Dala rafn ve 2007 Pólland

fossá Þh 2000 Kína

geir Þh 2000 Ísl./Pól.

guðmundur í nesi re 2000 noregur

gunnar bjarnas. sh 2001 Kína

hákon ea 2001 Chile

helga re 2009 tæwan

huginn ve 2001 Chile

hvanney ve 2001 Kína

ingunn ea 2000 Chile

kristinn sh 2001 Kína

matthías sh 2001 Kína

Oddeyrin ea 2001 spánn

siggi bjarna gk 2001 Kína

skinney sf 2009 tæwan

smáey ve 2000 Kína

steinunn sf 2001 Kína

vestmannaey ve 2007 Pólland

vilhelm Þorst. ea 2000 Pól./nor

vörður ea 2006 Pólland

Þórir sf 2009 tæwan

Þorlákur ís 2000 Pólland

Þórunn sveinsd.ve 2010 Pól./danm.

á nýju skipunum hvílir mikill fjármagnskostnaður, en á hinn bóginn viðhalds-kostnaður á þeim eldri í stað fjármagnskostnaðar. ef litið er á línuveiðiflotann okkar er megnið af honum gamlir bátar sem hefur verið breytt og er vel við haldið.

» „annars er endurnýjunarþörfin einna brýnust í uppsjáv-arflotanum. mjög stór hluti af þeim flota er orðinn gamall og

skipin að mörgu leyti óhentug. sum þeirra hafa ekki nógu góða kælingu í lestum til að fiska til manneldis.“

mynd: Helgi tHorsteinsson/norden.org

Page 6: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

6 janÚar 2012 útvegsblaðið

Hér áður fyrr var það þumalputta-regla að ný skip þyrftu að ná jafn-miklu aflaverðmæti á ári fyrstu árin og skipið kostaði. Frystitogar-arnir hér á landi eru ekki að fiska fyrir þrjá milljarða á ári og eru lík-lega flestir eða allir undir tveimur milljörðum. Ísfisktogararnir eru svo líklega flestir undir einum milljarði í aflaverðmæti. Ég tel að skipin séu orðin of dýr, en nýju skipin í dag eru hreinlega pökkuð af búnaði. Það eru alveg endalausar kröfur hér heima. síðustu þrjú skipin, sem ég hef teiknað eru fyrir fyrirtæki í bangladesh. Þar sér maður hinn endann á dæminu, en þar má helst enginn búnaður vera um borð, enda kostar 40 metra togari eins og þeir vilja hann einungis brot af því sem við erum að borga fyrir skipin okk-ar. Þarna mætti kannski fara ein-hverja millileið.

Þá er líka eitt sem menn þurfa að átta sig á, að fari sjávarútveg-urinn að fjárfesta á ný, verður það væntanlega í skipum, sem ekki verða smíðuð hér heima, heldur úti í heimi, líklega mest í Kína eða Pól-landi. Hér heima er engin aðstaða lengur til að smíða alvöru skip. Því myndi fjárfesting af þessu tagi litlu skipta fyrir íslensk atvinnulíf og hagvöxt hér á landi. nú er stöðugt talað um að útgerðin haldi að sér höndunum í fjárfestingum vegna óvissunnar um kvótakerfið, en

það er fleira sem kemur til. Hlutur áhafnar í tekjum útgerðarinnar er mjög hár. Það sem fer til skipta er of hátt hlutfall en tæknibreyting-ar síðustu ára hafa dregið verulega úr þeim fjölda, sem þarf um borð hverju sinni. ef horft er til nóta-veiðiflotans og hann borinn sam-an við norska flotann, eru þar mun færri um borð og 10% minna af aflaverðmæti rennur til sjómanna,

sem hafa það þó mjög gott hver og einn. Færri menn bera jafnmikið eða meira frá borði og það gerir út-gerðin líka. sé litið á fullvinnslu-skipin fara um 40% til skipta og það segja sumir að sé einfaldlega of mikið. Þessi staðreynd hefur vænt-anlega líka áhrif á áhuga útgerðar-innar á því að endurnýja skipin og á þessum málum verður að taka,“ segir sævar birgisson.

aldurinn afstæður?niðurstaðan af þessu spjalli er kannski einfaldlega sú að endur-nýjun ráðist af fjölmörgum sam-verkandi þáttum, frekar en einum ákveðnum. auðvitað þarf að end-urnýja ónýt skip, en með mark-vissu viðhaldi á skrokk, vél og öðr-um búnaði er hægt að nýta skipin í áratugi eins og sjá má af sigurði re og víkingi aK og fleiri gömlum skipum. Þannig er ekki hægt að benda á einhvern ákveðinn aldur á skipi, þegar endurnýjunar sé þörf. Hvort meðalaldur flotans er þá 15 eða 25 ár, skiptir kannski ekki öllu máli. Kannski má segja að aldur fiskiskipa sé afstætt hugtak. sum-ar fiskiskipategundir, eins og skut-togararnir, eru komnar svo langt í hönnun, þróun og tækjabúnaði, að endurnýjunar þar er minni þörf en í öðrum flokkum. Þetta á líklega bæði við frysti- og ísfisktogara. eins og sævar bendir á er línuflot-inn í flestum tilfellum frekar gam-all. Þar hefur gömlum skipum ver-ið breytt til línuveiða og þeim vel við haldið. Þarna er á hinn bóginn

meiri þörf endurnýjunar, því ljóst er að ný og sérhönnuð skip til línu-veiða muni nota mun minni orku og væntanlega geta þau einnig orðið afkastameiri. sævar nefnir einn-ig uppsjávarflotann, en þar mesta breytingin í meðferð aflans um borð til að nýta hann til manneldis. Þá er einnig spurningin um toggetu og orkunotkun þessara skipa.

ein staðreynd hlýtur þó að blasa við. Það verða að vera ákveðnar fjárhagslegar og rekstrarlegar for-sendur fyrir endurnýjun. Hún verð-ur að borga sig og fyrir henni verða að vera til nægir fjármunir. óvissa um fiskveiðistjórnun og hugsan-leg upptaka veiðiheimilda hlýtur að letja útgerðarmenn til fjárfesting-ar. ennfremur er það staðreynd að útvegurinn er nokkuð skuldsettur vegna kaupa á aflaheimildum sam-fara eigendaskiptum á fyrirtækjum, þegar menn hafa verið að selja sig út úr greininni. Í þeim viðskiptum hefur verð á aflahlutdeild klárlega verið alltof hátt. auðvitað koma inn nýir aðilar, en töluvert skuldsettir og hafa því lítið svigrúm til endur-nýjunar. sú staðreynd liggur einnig fyrir að undanfarin ár hefur mikið af ráðstöfunarfé útgerðarinnar far-ið í kaup og leigu á aflaheimildum. Það hefur gert hvort tveggja í senn að styrkja hráefnisöflun hennar og draga úr ráðstöfunarfé til annarrar fjárfestingar. annars hefur mest endurnýjun verið í minni bátun-um, bátum í litlakerfinu svokallaða. Hvað ræður því er hugsanlega minni launakostnaður og aðrir hagstæð-ari þættir. Íslenski fiskiskipaflotinn er enn mjög öflugur þó stærri skip-in séu að meðaltali í 30 ára gömul. líklega skilar enginn floti í heimin-um jafnmiklum verðmætum á land og sá íslenski og sama má segja um verðmæti á hvern sjómann.

1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010

Höfuðborgarsvæði 17 18 18 19 20 20 20 22 23 25 26 25

suðurnes 20 21 21 22 21 22 22 22 22 22 24 24

vesturland 17 18 19 19 19 20 22 22 23 22 23 23

vestfirðir 18 18 18 18 19 19 23 23 22 19 20 21

norðurland vestra 18 17 18 19 18 20 20 22 22 22 23 24

norðurland eystra 20 20 20 20 20 20 21 22 22 21 22 22

austurland 17 18 18 19 20 19 22 22 23 21 22 23

suðurland 23 24 24 24 24 25 24 27 23 26 27 27

fiskiskipastóllinn eftir landsvæðum og gerð skipa 1999-2010

ár Og Meðalaldur

Fjöldi skipa hvers árs er miðaður við 31. desember. að auki eru 4 hvalveiðiskip skráð á höfuðborgarsvæðinu. Heimild: Hagstofa Íslands

nú er í tísku að tala um vistvænar veiðar og þá helst veiðar á línu. ef það verður orkunotk-unin sem kemur til með að stýra fiskveiðunum, þá gæti maður ætlað að veiðarnar þróuðust yfir í línu, neta eða snurvoða-veiðar, en ljóst að neta-veiðar eru langódýrastar og síðan veiðar í snurvoð.

meðalaldur íslenskra fiskiskipa árið 2010

bt tré stál Plast annað alls meðalaldur

0 til 10 2 0 288 0 290 18

10 til 24 20 25 175 1 221 16

24 til 50 20 21 9 0 50 31

50 til 100 13 27 0 1 41 39

100 til 150 1 14 0 0 15 28

150 til 200 1 19 0 0 20 35

200 til 300 0 30 0 0 30 37

300 til 500 0 39 0 0 39 33

>500 0 36 0 0 36 29

samtals 57 211 472 2 742 22

» sævar Birgisson, skipatæknifræð-ingur og einn eigenda skipasýnar, hefur lengi hannað fiskiskip fyrir íslendinga og er flestum hnútum í þeim efnum kunnugur.

Page 7: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

„Það er mikilvægt að við reynum að ná fram niðurstöðu í þessum efnum og ná betri sátt. Það þarf að gera annars vegar breyting-ar sem koma til móts við þá miklu óánægju sem hefur verið um ákveðna hluta þess fyr-irkomulags sem er og hins vegar verður að tryggja sjávarútveginum öruggt rekstrar-umhverfi. Ég held að allir hafi skilning á því,“ segir steingrímur j. sigfússon sjávarútvegs-ráðherra um þá vinnu sem unnin er við gerð frumvarps um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða.

„Ég trúi því að þetta sé hægt, annars væri ég ekki að þessu. og þetta verður erfitt. Það verður aldrei sú niðurstaða sem allir verða sáttir með. sennilegast verða menn ámóta óánægðir á báðum endum. Það er að sega þeir sem vilja umbylta kerfinu og svo þeir sem vilja engar breytingar. líklegast er að þessir hópar fái ekki allt sitt fram. aðalat-riðið er að niðurstaðan gagnist okkur, verði skynsamleg og taki á þeim vandamálum sem við viljum sníða af. við viljum ekki einka-eignaréttaþróun á sameiginlegri auðlind og um leið viljum við að sjávarútvegurinn viti á hvaða grunni hann starfar á einhverjum tíma inn í framtíðina.“

Þegar steingrímur var spurður hvort sé að tala um samninga í kannski 35 til 40 ár, svar-ar hann.

„Ég er ekki viss um að það þurfi svo langan tíma. Það er vel umfram venjulegan afskrift-artíma á fjárfestingum. svo skiptir miklu hvað tekur við, hvernig framlengingar eða endurnýjunarákvæði verða. svo vil ég segja varðandi umræðuna um fjárfestingar, að þar finnst mér margir hafi hengt þar bjölluna á óvissu vegna mögulegrar breytinga á fisk-veiðistjórnuninni. Hvers vegna ætti hún að vera, nema menn trúi eigin áróðri um að það verði einhvern við völd á Íslandi svo vitlaus að þau ætli að kollvarpa sjávarútveginum. Þetta hef ég aldrei talið boðlega umræðu. Það dettur engum í hug að kippa fótunum undan stærstu útflutningsgrein þjóðarinn-ar. Það er hægt að deila og rífast um hvað er ásættanlegt í þessum efnum og hvaða áhrif breytingar hafa.

síðan er það nú þannig, að það eru tals-verðar fjárfestingar í gangi. Það er rétt að skipakosturinn er að verða gamall og þar höfum við dregist afturúr, en það er heilmik-il fjárfesting í gangi í landvinnslunni, í iðnað-inum, í tækjabúnaði og það er stórkostlegt að sjá samstarf atvinnugreinarinnar og ís-lensku iðnfyrirtækjanna. allt er þetta gert til að hámarka verðmæti framleiðslunnar. Það hafa átt sér stað ævintýraleg þróun í landvinnslunni. bæði hvað varðar uppsjáv-araflann og bolfiskinn. sífellt er að verið að ná meiri gæðum í framleiðslunni. sú þróun er á fullri ferð.

en hrunið stoppaði margt. óvissan um efnahag fyrirtækjanna, gengisfallið og hækkun erlendra lána. margir samverkandi þættir hafa leitt til þess að fjárfestingar hafa dregist saman, en þær eru að aukast. sem betur fer.“

meðal annars hefur verið sagt, steingrím-ur, að engin atvinnugrein geti búið við það að þurfa í raun að fara í kosningar um sína stöðu á fjögurra ára fresti. jón bjarnason, forveri þinn í ráðuneytinu, lagði fram frumvarp sem annar ráðherra, össur skarphéðinsson, líkti eftir á, við bílslys. Hefur þetta ekki þær af-leiðingar að þeir sem vinna í sjávarútvegi óttast annað eins?

„Það má margt segja um það sem liðið er í þessum efnum. Það er hárrétt að það er ógæfa ef málefni sjávarútvegsins eru enda-laust í þessum farvegi að grundvallarlög-gjöfin og fyrirkomulagið er bitbein pólitískra deilna í hverjum einustu kosningum. og þá búa menn fyrst við þá óvissu sem þeir kvarta núna undan ef þessi tilraun nú mistekst. Þá bíða okkar áframhaldandi illdeilur um málið inn í aðdraganda næstu kosninga og þeirri óvissu sem því tengist. Það er gríðarlega mikið í húfi, við eigum þetta tækifæri núna sem við verðum að nýta til að enda þetta mál á skynsamlegan hátt. annars heldur þetta bara áfram.

Það verður ekki sátt um kerfið nema tek-ið verði á ákveðnum hlutum. Það tel ég vera fullreynt. menn vilja ekki að þetta verði sem einkaeignaréttur, við viljum ekki að menn gangi út úr greininni með stórkostlega fjár-muni. Ég held að það sé ekki ágreiningur um þetta og vona að allir séu reiðubúnir til að setjast niður og ganga frá því í eitt skipti fyrir öll. auðlindin er sameign og menn hafa nytjarétt sem þeir greiða fyrir. með því er mikið fengið og verður þá komið yfir á fram-tíðargrundvöll. síðan er það fyrirkomulag

samningsbundins afnotaréttar og síðan hliðarráðstafanna í kerfinu. Það er ekki ann-að hægt en að hafa hliðarráðstafanir sem er hægt að grípa til vegna byggða- umhverf-is og atvinnusjónarmiða. Hvort sem það er með strandveiðum, leigupotti, eða byggða-tengdum veiðum. Það er afmarkaður þáttur þessa máls. Það er hægt að þróa það kerfi og breyta eftir aðstæðum hverju sinni. Það væri dapurt að stranda á ágreiningi um það. Það er óhugsandi að hafa kerfi án möguleika sem snúa að atvinnu fólks, byggðum og öðru

slíku. Þetta þarf að leysa saman á farsælan hátt. greinin þarf sameiginlega að leggja sitt af mörkum gagnvart þessu þannig að stóra kerfið gangi í friði við umhverfið, við byggð-irnar, við þjóðina.

steingrímur ætlar sér ekki langan tíma til verksins. Hann gerir ráð fyrir nýrri lagasetn-ingu fyrir vorið.

„Þannig að þetta sigli af stað í upphafi nýs fiskveiðiárs, 1. september næstkomandi. Það væri æskilegast og er tækifæri sem við höf-um.“

sigurjón M. egilsson skrifar:[email protected]

útvegsblaðið janÚar 2012 7

ef menn trúa eigin áróðristeingrímur j. sigfússon sjávarútvegsráðherra um breytingar á stjórn fiskveiða:

» auðlindin er sameign og menn hafa nytjarétt sem þeir greiða fyrir. með því er mikið fengið og verður

þá komið yfir á framtíðargrundvöll. Þá bíða okkar áframhaldandi illdeilur um málið inn í aðdraganda

næstu kosninga og þeirri óvissu sem því tengist.

mynd: joHannes jansson/norden.org

Page 8: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

8 janÚar 2012 útvegsblaðið

gjörbreytt kerfi eða lítið breytt?Fyrirhugaðar breytingar á stjórn fiskveiða eru boðaðar:

svanfríður Jónasdóttir bæJarstJóri í dalvíkurbyggð:

» 1. Hvaða breytingar er þarfast að gera á núverandi kerfi?,,sáttanefndin” komst að þeirri niðurstöðu að mikilvægast væri að:1. að í stjórnarskrá verði sett ótvírætt ákvæði um eignarhald þjóðarinnar á fiskveiðiauð-lindinni.2. að gerðir verði tímabundnir samningar um nýtingu aflaheimilda 3. að greitt verði fyrir nýtingarréttinn við þær breytingar sem nú er unnið að er því mikilvægt að eignarhald þjóðarinnar verði skýrt um leið og reynt verður að tryggja enn frekar atvinnuöryggi þeirra sem starfa í grein-inni. Það gerist m.a. með tímabundnum samn-ingum, eins og þekkt er við nýtingu annarra auðlinda okkar.

við breytingar á lögunum um stjórn fisk-veiða er mikilvægt að horfa til þess hvaða lög og reglur gilda almennt um auðlindir okkar, og um hvað í þeirri stefnu virðist ríkja almenn sátt. Það er áríðandi að hjá þjóð sem er jafn háð skynsamlegri nýtingu auðlinda, verði þróuð samræmd auðlindapólitík og breytingar á lögunum um stjórn fiskveiða ættu að taka mið af því. í þeim lögum og reglum sem þegar hafa verið sett um auðlindir, og í ýmsum papp-

írum sem unnir hafa verið fyrir stjór-nvöld, eru bæði svör og lausnir sem hægt er að nýta við úrlausn ýmissa deilumála s.s. varðandi úthlutun nýtingarréttar, gjaldtöku, viðskipti með hráefni o.fl.

» 2. á að taka tillit til byggðarsjón-armiða og atvinnusjónarmiða í breyttum lögum?sjávarútvegsstaðirnir byggðust upp vegna nálægðar við miðin og hafa síðan þróast í sam-spili utanaðkomandi aðstæðna, stjórnvalds-aðgerða, síbreytilegrar tækni og þekkingar og frumkvæðis heimamanna. atvinnusjónarmið í umgjörð sjávarútvegsins þurfa að byggja á skilningi á því að styrkur greinarinnar byggir m.a. á þeirri fjölbreytni og sveigjanleika sem hún býr yfir, og að eins og annar atvinnu-rekstur byggir framþróun sjávarútvegs á mannauði, samgöngum og aðgangi að fjár-magni. löggjöfin þarf að taka tillit til þessa. Þá munu bæði öflugir einstaklingar og fyrir-tæki sjá ný tækifæri.

» 3.Hversu stóran hluta kvóta er eðlilegt að nota til potta, eða jöfnunaraðgerða?hvaða skilyrði eru fyrir aðgangi að pottum? hverju eiga jöfnunaraðgerðir að skila? áður en það liggur fyrir er erfitt að svara þessari spurn-ingu. stærð potta og/eða umfang jöfnunarað-

gerða ræðst m.a. af viðhorfum til þess hver arðsemiskrafa til greinarinnar á að vera og hvaða skilyrði eru fyrir aðgangi að pottum. ég skynja vaxandi þunga með þeirri skoðun að ef það eigi að vera til pottur þá eigi það að vera uppboðspottur. Og þá í leiðinni vaxandi andúð á beinum pólitískum afskipt-um þar sem forsendum og leikreglum

er látlaust breytt eins og í byggðakvótanum. Þar sem sjávarútvegur er ein af meginstoðum efnahagslífsins þarf bæði að vanda sig og rök-styðja vel eigi að nota greinina til handstýrðra byggðaaðgerða. Þá þarf að vera ljóst að ef nota á sjávarútveginn sem byggðaaðgerð sé það fullkannað að önnur úrræði séu ekki líklegri til að skila framtíðarstörfum á viðkomandi stað.

» 4. er nauðsyn að þingið ljúki breytingum á þessu vorþingi þannig að ný lög taki gildi fyrir nýtt fiskveiðiár, 1. september í haust?Því fyrr sem lagaumgjörð útvegsins skýrist, því betra. atvinnugrein sem er einn af burðar-ásunum í efnahagsstarfsemi, ekki bara heilu byggðarlaganna heldur landsins alls, þarf um-gjörð sem veitir eins mikið atvinnuöryggi og er í boði fyrir grein sem byggir á lifandi auð-lind og keppir með afurðir á dýrum mörkuðum erlendis. Pólitísk inngrip og afskipti eiga að vera í lágmarki. hluti af þeim stöðugleika sem þarf er að eignarhaldið sé skýrt, nýtingar-

samningar sanngjarnir og að þjóðin skynji mikilvægi þess að arðsemi auðlindarinnar sé góð, enda sé hún sýnileg.

atvinnuöryggi þúsunda einstaklinga og fjölskyldna er í húfi að vel takist til.

» 5. annað?veiðiheimildir (kvóti) eru gæði sem kosta og margir hafa aflað sér með ærnum tilkostn-aði. eftir þorskniðurskurðinn 2007 kom sú staða upp hjá mörgum, ekki síst einyrkjum og minni útgerðum, að ef halda átti áfram varð að kaupa viðbótarveiðiheimildir til að gera út-gerðina rekstrarhæfari til framtíðar litið. sum-ir tóku þann kost að selja og hætta. á þessum tíma voru ódýr erlend lán í boði. svo kom 2008 með gengishruni og síðan bankahruni. Þessar útgerðir eru engan veginn búnar að ná jafn-vægi, margar hafa misst skip og/eða eru í miklum vanda. Og eðlilega finnst ýmsum það fjandsamleg ákvörðun að taka síðan enn af þeim sem eru atvinnumenn í greininni til að búa til tómstundir með ,,gjafakvóta“ handa þeim sem hafa að jafnaði atvinnu af öðru.

hinsvegar hefur greinin, eins og oft áður, sýnt mikinn sveigjanleika og ég dáist að þeirri útsjónarsemi sem fiskvinnslan hér á Dalvík hefur t.d. sýnt við að halda uppi atvinnu und-anfarin ár, þrátt fyrir kvótaniðurskurð, lítið hráefni á mörkuðum og oft á tímum mjög há verð.

útvegsblaðið leitaði til fólks, sem tengist sjávarútvegi, og lagði fyrir það spurningar. svörin gefa mynd af því sem hugsað er hér og þar í greininni.

við skorum á nýjan sjávarútvegsráðherra að vanda til verka þegar hann leggur fram frumvarp um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. allra hagur er að eyða óvissu um framtíðina. áfram ísland.

langanesbyggð

sjómannafélag eyjafjarðar

Snæfellsbær

Bolungavíkur kaupstaður

20 OKTÓBER 2011 ÚTVEGSBLAÐIÐ

KÆLING UM BORÐ Meðhöndlun hráefnis fyrst eftir veiði er mjög veigamikill þáttur m.t.t. gæða, svo sem kæling og blóðgun og slæging, þar sem inn-yfli innihalda ensím og örverur sem valda mjög fljótt skemmdum á holdi. Einnig er mikilvægt að verja aflann fyrir utanaðkomandi mengun og sólarljósi. Áriðandi er að fiskur sé kældur hratt og

geymdur við lágt hitastig (0°C) til að hægja á skemmdum. Fisk-inn ætti að blóðga í rennandi sjó/vatni. Fiskurinn er venjulega sett-ur í blóðgunarker og þá er mikil-vægt að tryggja tíð vatnsskipti

KÆLING STRAX EFTIR VEIÐI Mjög mikilvægt er að kæla aflann strax eftir veiði með vökvaís/ísþykkni. Strax eftir blóðgun skulu afurðirnar þvegnar vandlega í neysluvatni eða hrein-um sjó og ætilegir hlutar aðskildir frá úrgangi. Forkæla skal aflann enn frekar og eins nálægt fyrir-huguðu geymsluhitastigi og unnt er. Slæging, þvottur og ísun skal fara fram við fyllsta hreinlæti.

Mælt er með því að geyma aflann ekki lengur en 24 klst. í vökvaís. Ef geyma þarf fiskinn í lengri tíma er mælt með að nota mulinn plötuís.

Annar mikilvægur þáttur er hitastig í lestinni sem ætti að vera sem næst 0°C. Með því að hafa góða stjórn á hitastigi er hægt að spara bæði ís og orku auk þess að draga úr skemmdarhraða fisksins.

RÖÐUN Í KER Mikilvægt er að ílát sem not-uð eru undir fisk séu hrein og óskemmd, en sérstaklega ber að gæta þess að innri byrði keranna séu heil þar sem einangrunin getur verið sannkölluð gróðrarstía fyrir örverur. Þegar fiskinum er

raðað í kerin þarf að gæta þess að hann raðist rétt, það er að segja að hann sé óundinn og snúi helst kviðnum niður.

LÖNDUN Þegar fiskafurðum er landað, ferskum, kældum eða frystum verður að flytja þær í varið um-hverfi strax til að verja þær fyrir veðrum og vindum og mögulegri mengun svo sem frá fuglum. Ef stutt töf verður á flutningi skal setja lok á ílátin til varnar í milli-tíðinni. Við löndun á frosnum afurðum (- 18 °C) má hitastig í afurðum ekki hækka um meira en 3 °C nema þær séu að fara beint í uppþýðingu.

VINNSLA Mælt er með að viðhalda lágu og stöðugu hitastigi í kæli fyrir vinnslu. Hitastig í flökum og fisk-stykkjum sem selja á fersk eða frosin má ekki fara yfir 4°C í vinnslurásinni. Hægt er að nota vökvakælingu til forkælingar en forðast þarf krossmengun, t.d. með stuttum kælitíma, hring-keyrslu á kælivökva og með því að endurnýja kælivökvann reglulega. Sýnt hefur verið fram á að hægt er að lengja geymsluþol flaka sem náð hafa að hitna um 25% með vökvakælingu og þannig lengja geymsluþol flakanna um 6 daga í samanburði við sambærileg ómeð-höndluð flök. Vatn sem notað er við vinnsluna ætti að vera kælt niður í 1-2°C sé það mögulegt.

KÆLIGEYMSLA Eftirlit með hitastigi í kæli-geymslu er mjög mikilvægt og ætti hitastigið að vera sem næst 0°C. Hraða ætti fyrstu þrepum vinnslunnar (t.d. hausun og slægingu) eins og kostur er, sér-staklega ef ekki er fylgst reglu-lega með hitastigi. Hráefni ætti að kæla eins fljótt og kostur er.

VÖKVAKÆLING Vökvakæling er ferli þar sem flök eru sett í vökva sem hefur verið kældur niður í -1°C til -0.5°C.

Ísstyrkur í vökvakælinum ætti að vera 10% eða hærri sem ætti að tryggja að hitastig vökvans fari niður í -1°C.

PÖKKUN OG GEYMSLA Aðferðir og aðstæður við pökk-un og geymslu skipta miklu máli varðandi að tryggja góða og stöð-uga kælingu. Rannsóknir hafa sýnt að hitastýring í kælikeðju fiskafurða er oft ábótavant sem hefur neikvæð áhrif á geymsluþol og afurðavirði.

FORKÆLING Mikilvægt er að forkæla flök fyrir pökkun til að ná sem lengstu geymsluþoli. Ef skoðuð eru áhrif þess að forkæla t.d. 5 kg af flökum niður í -1°C fyrir pökkun í frauð-plastkassa sem geymdir eru við 15°C umhverfishitastig kemur í ljós að það tekur flökin nær 10 tíma að ná 0°C. Á sama tíma væru flök sem einungis hefðu verið 1°C fyrir pökkun búin að ná tæplega 7°C

PÖKKUN Hægt er að draga úr áhrifum óæskilegra hitasveiflna með því að nota vel einangraðar pökkun-arumbúðir.

LOFTTÆMD PÖKKUN Lofttæmd pökkun sjávarafurða er yfirleitt ekki talin betri kostur en loftskipt pökkun. Lofttæmd pökkun örvar TMA myndun í sjávarfiski og því getur geymslu-þol orðið styttra en fyrir ópakk-aðan fisk. Fyrri rannsóknir á Matís hafa sýnt að við 0°C hefur lofttæmd pökkun ýsu eða þorsk-flaka ekki haft áhrif til lengingar geymsluþols samanborið við hefð-bundna pökkun. Einnig hefur það örvi TMA myndun í sjávarfiski, geymsluþol getur því verið lakara en á ópökkuðum fiski

FLUTNINGUR EFTIR PÖKKUN Að ýmsu þarf að gæta við um-lestun milli mismunandi hlekkja í kælikeðjunni sem og í flutningum hvort heldur sem með bílum, skip-um eða flugvélum.

MIKILVÆGI HITA STIGS Í FLUTNINGI Rannsóknir hafa sýnt að hitastig í sjóflutningum er mun stöðugra en í flugflutningum. Geymsluþol vöru er mjög háð hitastigi í flutn-ingi og því er mikilvægt að vera meðvitaður um hvernig hitaferlar í flutningi eru, sérstaklega í lengri flutningum, t.d. á erlenda mark-aði. Útflutningur ferskra flaka frá Íslandi hefur aukist frá 5-10 þúsund tonnum í kringum 1990 í 15-25 þúsund tonn eftir 2003. Mest hefur verið flutt með flugi, en skipaflutningur hefur farið vaxandi. Algengt er að útflutning-ur frá íslenskum framleiðendum til kaupanda í Evrópu sé um 5-7 dagar fyrir sjóflutningskeðjur en 1-2 dagar ef flökin eru flutt með flugi.

UMLESTUN Mikilvægt er að draga úr hætt-unni á óæskilegum hitasveiflum við umlestun. Þetta er t.d. hægt að gera með því að nota rétt hann-aðar einangrandi hurðir í umlest-unarstöðvum þannig að sem minnstar hitasveiflur verði á milli pakkninga og umhverfis. Mikil-vægt er að reyna að koma í veg fyrir að stórar stæður pakkninga séu opnaðar við umlestun en þetta er sérstaklega algengt við umlestun frá bíl yfir í flugvélar. Sé þetta nauðsynlegt ætti að for-kæla hráefnið sem mest og nota vel hitaeinangrandi umúðir til að draga úr hitaflæði.

Flutningar með bílum Lofthiti í flutningsrými bíla sem flytja ferskar fiskafurðir ætti að vera milli -2 og 0°C og aldrei yfir 4°C. Við ofurkældar aðstæður (-2°C til 0°C) geymist fiskurinn best en hvernig tekst að við-halda þessu hitastigi í afurð er m.a. háð hitaeinangrun pakkn-inga og flutningstíma. Mikilvægt er að nota vélknúna kæligáma við flutning. Í flestum flutningum þarf varmaflæðistuðull (K eða U) að vera jafn eða lægri en en 0.4 W/m2/K . Sé flutningstíminn hins

Frá veiðum til kaupendaMatís ráðleggur um meðferð á fiski:

Viðskiptahúsið kynnir frystitogarann Frosta ÞH-229. Frosti var smíðaður í Gdansk, Póllandi árið 1990. Upphaflega var Frosti smíðaður sem ísfiskiskip árið 1990 en honum var breytt í frystitogara árið 1996. Einnig var sett ný brú á skipið árið 2000 auk þess sem íbúðir voru stækkaðar meðal annarra endurbóta. Aðalvél skipsins er Sulzer Cegielski, 1740 hestöfl, 705kW.Stærðir skipsins eru ML: 39,3m BR: 9,4m.

Viðskiptahúsið kynnir dragnótabátinn Sæberg. Sæberg var smíðaður í Romsdal, Noregi árið 1966. Aðalvél skipsins er Grenaa, 750 hestöfl, 552kW. Stærðir skipsins eru ML: 31,1m BR: 6,5m.

Viðskiptahúsið kynnir drágnótabátinn Guðbjörgu Kristínu SH-165. Guðbjörg Kristín var smíðuð í Hafnarfirði árið 1899. Aðalvél bátsins er Iveco, 320 hestöfl, 187kW. Stærðir bátsins eru ML: 9,45m, BR: 3,4m.

Viðskiptahúsið kynnir handfærabátinn Íshildi SH-160. Íshildur var smíðuð í Hafnarfirði árið 1993. Aðalvél bátsins er Cummins, 254 hestöfl, 187kW. Stærðir bátsins eru ML: 8,59m BR: 2,5m.

Frosti ÞH-229

Guðbjörg Kristín SH-165

Íshildur SH-160

Sæberg HF-224

Flugaldan ST-54

Viðskiptahúsið kynnir línu- og netabátinn Flugaldan ST-54. Flugaldan ST-54 var smíðaður í Hafnarfirði árið 2007. Aðalvél bátsins er Yanmar, 368kW. Stærðir bátsins eru ML: 12,35mBR: 3,72m. Skipti á minni bát.

Ási ÞH-3

Viðskiptahúsið kynnir fjölveiðiskipið Ása ÞH-3. Ási ÞH-3 var smíðaður á Akureyri árið 1975. Aðalvél bátsins bátsins er Volvo Penta, 300 hestöfl, 280kW. Stærðir bátsins eru ML: 17,47m BR: 4,3m

Viðskiptahúsið kynnir dragnóta- og netabátinn Sævar KE-15. Sævar KE-15 var smíðaður í Hafnarfirði árið 1985.Aðalvél bátsins er Volvo Penta 238 hestöfl, 175kW. Stærðir bátsins eru ML: 14,9m, BR: 3,83m. Skipti á minni bát.

Sævar KE-15

Óskum eftir Erum með kaupanda af �skvinnsluhúsnæði í Hafnar�rði

Erum með kaupendur af 10-20 tonna netabát

Erum með kaupanda af a�ahlutdeildum

Erum með leigjendur af a�amarki

Erum með leigjanda af a�amarksbát með a�amarki

Erum með leigjanda af krókaa�amarksbát með króka-

a�amarki

Upplýsingar gefur Jóhann Ólafsson í 863-6323

eða [email protected]

www.vidskiptahusid.is - sími 566 8800

Page 9: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

gjörbreytt kerfi eða lítið breytt?

sjávarklasinnÍsle

nsk

i

útvegsblaðið

getum við skapað þúsundir starfa í sjávarklasanum? - Þór sigfússon skrifar um þau mörgu tækifæri sem okkur bjóðast. »4

tilgangur íslenska sjávarklasans er að sýna styrk greinarinnar ... »8

f y l g i r i t ú t v e g s b l a ð s i n s » j a n ú a r 2 0 1 2

endalausir Möguleikar

- háleit markmið nást með góðri samvinnu og nýtingu tækifæra.

Page 10: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

10 janÚar 2012 sjávarklasinn

sátt leggur grunn að nýjum störfumathuganir benda til að vöxtur verði í öðrum greinum en veiðum:

á næstu árum geta orðið til störf í tengslum við sjávarútveg og fiskvinnslu hérlendis sem skipta þúsundum ef rétt er á málum haldið. Hér verður fjallað um hvernig atvinnulífið geti skapað 10 þúsund störf í sjávarklasanum svo-kallaða, þ.e. sjávarútvegi og tengdum grein-um, á næstu fimmtán árum.

Hvar er vöxturinn?athuganir erlendis benda til þess að vöxtur í veiðum verði lítill en þeim mun athyglisverð-ara er að sjá áætlanir um vöxt í öðrum grein-um sem eru margar hverjar afsprengi veiða og vinnslu. reiknað er með að vöxtur í fisk-eldi verði allt að 8% á ári á heimsmarkaði, vöxtur í tæknibúnaði fyrir matvælavinnslu verði um 5-6% á ári, útflutningur í ýmissi þjónustu tengd hafinu um 5% og vöxtur í þróun lýsisafurða verði ívið meiri. Þá er talið að mestur vöxtur verði í margháttaðri sjávar-líftækni og hagnýtingu lífvirkra efna hafsins eða allt að 15-30% á ári. Þrátt fyrir góða við-leitni margra þá hefur Íslendingum ekki tek-ist að ná sama vexti í mörgum nýjum greinum eins og mörg nágrannalönd okkar. Þessu má breyta,

Í athugunum sem Íslenski sjávarklasinn hefur gert kemur fram að einstakir sprotar og atvinnustarfsemi sem tengjast sjávarút-vegi og fiskvinnslu telja sig geta vaxið með að minnsta kosti svipuðum hraða og alþjóða-markaður ef hagfelldar aðstæður verða til staðar hérlendis.

nú eru teikn á lofti um uppgang í fiskeldi hérlendis. Kraftmikil fyrirtæki, bæði ný og þau sem fyrir eru, stefna á umtalsverðar fjár-festingar í fiskeldi. miðað við nágrannalönd okkar eins og noreg og jafnvel danmörku, hefur fiskeldi vaxið lítið á undanförnum 10 árum. tap sem varð á þessum rekstri fyr-ir röskum 20 árum virðist lengi hafa dregið þrótt úr greininni. á meðan sóttu nágranna-þjóðir okkar fram og hafa náð umtalsverðum árangri á þessu sviði. ef þær framkvæmdir sem hafa verið kynntar á síðustu mánuðum ganga eftir má gera ráð fyrir því að vöxtur í fiskeldi verði meiri hér en á heimsmarkaði og líklegt má telja að takist að tífalda framleiðsl-una á næstu tíu árum. Það þýðir að rúmlega 2000 störf skapast í kringum fiskeldi á næstu tíu árum.

mikill vöxtur hefur einnig verið í útflutn-ingi tæknibúnaðar fyrir sjávarútveg og fisk-vinnslu frá Íslandi. tæknifyrirtæki munu lík-lega velta 30 milljörðum á árinu 2011 sem er 10% aukning frá árinu á undan. erlendar at-huganir benda til þess að vöxtur í spurn eftir tæknibúnaði í margháttaða matvælavinnslu á heimsmarkaði verði ívið minni en þó stöðug-ur. sé reiknað með að íslensku tæknifyrirtæk-in vaxi um að meðaltali 8% á ári, þá má gera ráð fyrir að störfum í tæknigeiranum fjölgi um 1000 á næstu tíum árum.

norðmenn áætla að fjölgun starfa í alþjóð-legri þjónustu í tengslum við hafið og fram-leiðslu tengdri lýsi og fiskimjöli geti verið um a.m.k. tíu prósent á ári næsta áratuginn. Ís-lensk fyrirtæki eru að veita mun fjölbreyttari þjónustu í tengslum við erlendan sjávarútveg en flesta grunar; fjármálaþjónusta, skipa- og vinnslutækni, þjónusta iðnaðarmanna, slipp-þjónusta, eftirlit á hafsvæðum o.fl. Í lýsisfram-leiðslu eru klárlega tækifæri fyrir Íslendinga að fjölga atvinnnutækifærum sem fyrirtæki á borð við lýsi eru einmitt að nýta um þessar mundir. Þá má nefna að íslensk flutningafyr-irtæki hafa skapað sér sérstöðu í flutningum á

fiskafurðum og en þótt sú starfsemi sé að stórum hluta erlendis verða til hundruðir starfa hérlendis vegna hennar. loks má nefna að mik-il tækifæri eru í sjávarlíftækni en þar er talinn verða mestur vöxtur á heimsvísu.

myndin hér á síðunni sýnir hvernig störf-um getur fjölgað á komandi árum í störfum tengdum sjávarútvegi. erfiðara er að spá fyrir um þróun í sjávarlíftækni hérlendis sem ræðst mikið af framlögum til rannsókna á þessu sviði. nú starfa við þær útflutningsreinar sem að framan eru nefndar um 2800 manns en ef rétt er á málum haldið getur þessum störfum fjölgað um 10% á ár og orðið ríflega 10 þúsund árið 2025. miðað við þessar tölur má gera ráð fyrir að fleiri störf verði í þessum greinum en í sjávarútvegi og fiskvinnslu innan rúms ára-tugar. Hér verður þó að hafa í huga að ef sjávar- útvegurinn hefur ekki traustan grundvöll til þess að standa á má gera ráð fyrir að allar greinarnar tapi, bæði sjávarútvegur sjálfur og nær allar þær greinar sem hér um ræðir.

Hlutverk sjávarútvegs til þess að þessi spá megi ganga eftir þarf ýmis- legt að spila með okkur. mikilvægast er að sátt

verði um framtíðarskipan fiskveiðistjórnunar og óvissu eytt. með þeirri óvissu sem ríkir er hægt og hljóðlega dregið úr þróunarstarfsemi hérlendis á ýmsum sviðum eins og í þróun tæknibúnaðar o.fl. þar sem fjárfesting í nærri tækni hefur komi frá útvegnum. Þetta hefur komið skýrt fram í athugun Íslenska sjávar-klasans á þeim 70 tæknifyrirtækjum sem eru starfandi hérlendis og flytja út tæknibúnað. nú eru merki um að þessi þróunarstarfsemi sé að flytjast til noregs og víðar, m.a. í þróun í líftækni, tækjabúnaðar o.fl. Þar eru fjármun-ir til staðar í langtímafjárfestingar af þessu tagi. önnur vísbending um vissa stöðnun á innanlandsmarkaði er að fjölda nýrra sprota-fyrirtækja í framleiðslu á tækni fyrir sjávarút-veg og fiskvinnslu má telja á fingrum annarr-ar handar. á síðasta áratug voru að minnsta kosti tvö fyrirtæki sett á laggirnar á ári í þess-ari grein.

Í öðru lagi þurfa fjárfestingarsjóðir og bankar að auka áhuga sinn á fyrirtækjum í sjávarklasanum. setja þarf á laggirnar fjár-festingarsjóð sem sérhæfir sig í þessum greinum, fjárfestir í fjölbreyttum fyrirtækjum á þessu sviði og dregur þannig úr áhættu. ef tekst að eyða óvissu í sjávarútvegi á útgerð-in að koma af enn meiri þunga í fjárfestingar í nýsköpunarfyrirtækjum í sjávarklasanum eins og í fiskeldi, tækniframleiðslu og ekki síst sjávarlíftækni.

loks þurfum við að efla rannsóknir og rannsóknarsjóði. Í noregi er talið að um 1300 manns starfi í tengslum við rannsóknir í norska sjávarklasanum. Hér höfum við verk að vinna. efla þarf rannsóknarsjóði á borð við avs sjóðinn og koma sjóðnum undir sama fyr-irkomulag og rannsóknarsjóðir rannís.

störf verða verða sjaldnast til fyrir tilvilj-un. Þau verða til vegna þess að aðstæður eru til staðar fyrir fjárfestingar í nýjum tækifær-um. Það hefur farið lítið fyrir margvíslegum fyrirtækjum í tengslum við sjávarútvegi. Þau hafa vaxið hægt og hljótt án þess að vera mik-ið hampað.

0

2000

4000

6000

8000

10000

12000

2000 2005 2010 2015 2020 2025

Flutningaþjónusta á alþjóðamarkaði

omegavinnsla

tæknibúnaður

Þjónusta og sala á alþjóðamarkaði

sjávarlíftækni

Fiskeldi

Þróun starfa í vaxandi Útflutningsgreinum sjávarklasans

mikilvægast er að sátt verði um framtíðarskipan fiskveiði-stjórnunar og óvissu eytt.

stö

rf

Page 11: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

sátt leggur grunn að nýjum störfum

Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.eimskip.is

Aukin þjónusta Eimskips um Norður-Atlantshaf

Eimskip hefur styrkt leiðakerfi sitt á Norður-Atlantshafi. Nýtt skip hefur bæst í flotann og eru nú tvö skip í siglingum til Norður-Ameríku í stað eins áður. Með þessu fjölgar ferðum og við bætast nýir áfangastaðir, sem bætir þjónustu enn frekar við viðskiptavini félagsins.

Styttra á milli ferða – meiri flutningsgeta

Fít

on

eh

f. /

SÍA

Szczecin

Helsingborg

Antwerp

Grimsby

Aalborg

LABRADOR

Nuuk

Kirkenes

Sortland

Hammersfest

Tromsø

Murmansk

Fredrikstad

AalesundMaaloy

BergenEgersund

Stavanger Kristiansund

Aberdeen

Immingham

GatwickVelsen

RotterdamHamburg

St. Anthony

St. John’s

ArgentiaHarbour Grace

Boston / Everett

Halifax

New YorkNorfolk

VigoPortoLisbon

Helsinki

St. Petersburg

RigaKlaipeda

Genoa

Norðurheim

skautsbaugur 66°N

Árósar

Kaupmannahöfn

Grundartangi

Reykjavík

ReyðarfjörðurVestmannaeyjar

Ísafjörður

Akureyri

ÞórshöfnKlaksvíkFuglafjörður

Fulltrúi Eimskips

Frystihús samstarfsaðila

Skrifstofur Eimskips Frystihús Eimskips

Vöruhús Eimskips

Norðurleið

Suðurleið

Austurleið

Ameríkuleið

Noregsleið I

Leið samstarfsaðila

Noregsleið II

Page 12: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

á síðustu árum hefur margoft komið fram að starfsfólki í sjávarútvegi og tengdum greinum fækki og fullyrt er það sé eðlilegt í ljósi hagræð-ingar og þverrandi auðlinda. Það er stundum sagt að þær þjóðir sem eigi mestu auðlindirn-ar séu auðlindablindar, sjái ekki skóginn fyrir trjánum. á það við um okkur Íslendinga? Það er fullt af tækifærum sem við nýtum ekki í sjávar-útvegi og tengdum greinum. við erum svo upp-tekin af kvótaumræðu að við höfum ekki tíma í umræðu um tækifæri í þessari grein. Hér verð-ur fjallað um hvernig sjávarklasinn svokallaði, þ.e. sjávarútvegur og tengdar greinar, getur skapað þúsundir starfa.

Hvar er vöxturinn?athuganir erlendis benda til þess að lítill sem enginn vöxtur sé í veiðum í heiminum en væntingar eru um vöxt í greinum sem eru af-sprengi sjávarútvegs veiða og vinnslu. reikn-að er með að vöxtur í fiskeldi verði allt að 8% á ári á heimsmarkaði, vöxtur í tæknibúnaði fyrir m.a. fiskvinnslu verði um 5-6% á ári, útflutn-ingur í ýmissi þjónustu tengdri hafinu um 5% og vöxtur í þróun lýsisafurða um 10%. Þá er talið að mestur vöxtur verði í margháttaðri sjávarlíftækni og hagnýtingu lífvirkra efna hafsins eða allt að 15-30% á ári. Þrátt fyrir góða viðleitni margra þá hefur Íslendingum ekki tekist að ná sama vexti í mörgum nýjum greinum eins og mörg nágrannalönd okkar. Þessu má breyta.

Í athugunum sem Íslenski sjávarklasinn hefur gert kemur fram að einstakir sprotar og atvinnustarfsemi sem tengjast sjávarútvegi og fiskvinnslu telja sig geta vaxið með að minnsta kosti svipuðum hraða og alþjóðamarkaður ef hagfelldar aðstæður verða til staðar hérlendis.

fiskeldinú eru teikn á lofti um uppgang í fiskeldi hér-lendis. Kraftmikil fyrirtæki, bæði ný og þau sem fyrir eru, stefna á umtalsverðar fjárfest-ingar í fiskeldi. miðað við nágrannalönd okk-ar eins og noreg og jafnvel danmörku, hefur fiskeldi vaxið lítið hérlendis á undanförnum 10 árum. tap sem varð á þessum rekstri fyrir rösk-um 20 árum virðist lengi hafa dregið þrótt úr greininni. á meðan sóttu nágrannaþjóðir okk-ar fram og hafa náð umtalsverðum árangri á þessu sviði. ef rétt er á málum haldið hérlendis og hvatt er til áframhaldandi uppbyggingar og þeirra framkvæmda sem kynntar hafa á síð-ustu mánuðum, má gera ráð fyrir því að vöxt-ur í fiskeldi verði meiri hér á næstu árum en í mörgum nágrannalanda okkar. starfsmenn í fiskeldi eru nú um 250 en hæglega má gera ráð fyrir að þeim fjölgi um 15-20% á ári á næstu árum að meðaltali. Fyrirtæki á borð við Fjarða-lax, matorku, laxa, arctic Fish ásamt norskum og spænskum aðilum hyggjast hefja eða auka starfsemi sína hérlendis á þessu sviði. Hér ber þó að hafa í huga að sveiflur eru á fiskeldis-markaði og mörg lönd auka framleiðslu sína. á móti kemur að spurn eftir eldisfiski fer vax-andi.

tæknibúnaðurmikill vöxtur hefur einnig verið í útflutn-ingi tæknibúnaðar fyrir sjávarútveg og fisk-vinnslu frá Íslandi. tæknifyrirtæki munu lík-lega velta 30 milljörðum á árinu 2011 sem er 15% aukning frá árinu á undan. erlendar at-huganir benda til þess að vöxtur í spurn eftir tæknibúnaði í margháttaða matvælavinnslu á heimsmarkaði verði að minnsta kosti 5-6%. Íslendingar eiga framúrskarandi fyrirtæki í þessu sviði eins og marel, Hampiðjuna, Héðinn og einnig minni fyrirtæki eins og skagann, 3X, Frost, vaka fiskeldiskerfi, vélfag, trackwell og mörg fleiri fyrirtæki sem hafa starfað á mark-aðnum um nokkurt skeið. síðan eru að koma fram fjöldi fyrirtækja sem eru ekki ýkja gömul en hafa náð miklum árangri eins og marorka, valka, Hbt international, mode svo einhver séu nefnd. sé reiknað með að íslensku tækni-fyrirtækin vaxi um að meðaltali 8-10% á ári, þá má gera ráð fyrir að störfum í tæknigeiran-um fjölgi um 1000 á næstu tíum árum.

útflutningsjónustanorðmenn áætla allt að 10% fjölgun starfa í norskri útrás þjónustu í tengslum við hafið. Ís-lensk fyrirtæki eru að veita mun fjölbreyttari þjónustu við erlendan sjávarútveg en flesta grunar; fjármálaþjónusta, skipa- og vinnslu-tækni, þjónusta iðnaðarmanna, slippþjónusta, eftirlit á hafsvæðum o.fl. nú má gera ráð fyrir að um 3-400 manns starfi við útflutning á þjón-ustu af þessu tagi hérlendis en ef við náum að efla okkur á þessu sviði í samræmi við áætlanir norðmanna þá getur störfum í þessum grein-um fjölgað um allt að 15% á ári næsta áratug.

lýsi og mjöl og tengd starfsemiáætla má að framleiðsla tengd lýsi og fiskimjöli vaxi um a.m.k. tíu prósent á ári næsta áratug. Í lýsisframleiðslu eru klárlega miklir möguleikar fyrir Íslendinga sem fyrirtæki á borð við lýsi eru einmitt að nýta um þessar mundir. Fiski-mjölið verður sífellt verðmætari auðlind prót-íns sem án efa verður meira nýtt sem fæðubót-arefni.

flutninga- og hafnastarfsemiÞá má nefna að íslensk flutningafyrirtæki hafa skapað sér sérstöðu í flutningum á fiskafurð-um og enda þótt sú starfsemi sé að stórum hluta erlendis verða til hundruðir starfa hér-lendis vegna hennar. Þessu tengt er ýmis kon-ar hafnastarfsemi sem kann að aukast hér-lendis með auknum norðurskautssiglingum og aukinni þjónustu íslenskra fyrirtækja eins og slippa o.fl. Hér er ekki reynt að áætla aukningu í hafnastarfsemi en minnt á að hér kunni einn-ig að vera tækifæri sem vert er að skoða.

lífvirk efni hafsinsloks má nefna að mikil tækifæri eru í sjávar-

líftækni en þar er talinn verða mestur vöxt-ur á heimsvísu. vöxtur hérlendis á þessu sviði ræðst mikið af því hvernig tekst til að fjár-magna rannsóknir og þróunarstarf á þessu sviði og nýsköpunarfyrirtæki. nú þegar er til staðar fjöldi hæfra rannsóknaraðila sem hafa náð miklum árangri á þessu sviði hérlendis. Þar má nefna rannsóknir hjá matís sem hefur verið í fararbroddi í rannsóknum á þessu sviði. mörg fyrirtæki eru eða hafa haslað sér völl á þessu sviði eins og Kerecis og ensímtækni. Hér kunna einnig að vera tækifæri í þörungavinnslu og líf-verum undirdjúpanna þar sem kunna að leyn-ast efni sem nýtast í lyf framtíðarinnar eins og sesselja ómarsdóttir dósent við Háskóla ís-lands hefur bent á.

um þróun starfa í vaxandi útflutnings-greinum sjávarklasans sýnir hvernig störfum getur fjölgað á komandi árum í störfum tengd-um sjávarútvegi

nú starfa við þær útflutningsreinar sem að framan eru nefndar um 2800 manns en ef rétt er á málum haldið getur þessum störfum fjölg-að um 10% á ár og orðið ríflega 10 þúsund árið 2025. miðað við þessar tölur má gera ráð fyrir að fleiri störf verði í þessum greinum en í veið-um og hefðbundinni innan áratugar.

sátt skapar störf ...til þess að þessi spá megi ganga eftir þarf ým-islegt að spila með okkur. mikilvægast er að sátt verði um framtíðarskipan fiskveiðistjór-nunar og óvissu eytt. með þeirri óvissu sem rík-ir er hægt og hljóðlega dregið úr þróunarstarf-semi hérlendis á ýmsum sviðum eins og í þróun tæknibúnaðar o.fl. þar sem fjárfesting í nærri tækni hefur komi frá útvegnum. Þetta hefur komið skýrt fram í athugun Íslenska sjávar-klasans á þeim 70 tæknifyrirtækjum sem eru starfandi hérlendis og flytja út tæknibúnað.

nú eru merki um að þessi þróunarstarfsemi sé að flytjast til noregs og víðar, m.a. í þróun í líf-tækni, tækjabúnaðar o.fl. Þar eru fjármunir til staðar í langtímafjárfestingar af þessu tagi. önnur vísbending um vissa stöðnun á innan-landsmarkaði er að síðustu þrjú ár er lítið sem ekkert um nýstofnun fyrirtækja í framleiðslu á tækni fyrir sjávarútveg og fiskvinnslu. á síð-asta áratug voru að minnsta kosti tvö fyrirtæki sett á laggirnar á ári í þessari grein.

Í öðru lagi þurfa fjárfestingarsjóðir og bank-ar að auka áhuga sinn á fyrirtækjum í sjávar-klasanum. setja þarf á laggirnar fjárfesting-arsjóð sem sérhæfir sig í þessum greinum og fjárfestir í fjölbreyttum fyrirtækjum á þessu sviði. ef tekst að eyða óvissu í sjávarútvegi á útgerðin að koma af meiri þunga í fjárfestingar í nýsköpunarfyrirtækjum í sjávarklasanum eins og í fiskeldi, tækniframleiðslu og ekki síst sjáv-arlíftækni. svo þarf að efla rannsóknir. Í noregi er talið að um 1300 manns starfi í tengslum við rannsóknir í norska sjávarklasanum. við eigum töluvert í land í þessum efnum ef við ætlum að standa jafnfætis nágrönnum okkar.

... en stefnan þarf að vera skýr.störf verða sjaldnast til fyrir tilviljun. Þau verða til vegna þess að aðstæður eru til staðar fyrir fjárfestingar í nýjum tækifærum og það er hreinlega góð stemming fyrir greininni. Það hefur farið lítið fyrir margvíslegum fyrirtækj-um í tengslum við sjávarútveg. Þau hafa vaxið hægt og hljótt án þess að vera mikið hampað.

Í noregi hefur tækniklasi í tengslum við haf-ið verið starfandi um árabil í álasundi. Klasann mynda 15 verkfræði- og hönnunarfyrirtæki, 14 skipasmíðastöðvar, 159 framleiðendur á tæknibúnaði og 18 skipafélög. árið 2002, þeg-ar klasinn var settur á laggirnar var velta fyr-irtækjanna í klasanum sem samsvarar 400 milljörðum íslenskra króna. Þá strax var sett markmið um að velta fyrirtækjanna í klasanum yrði sem samsvarar um 2 þúsund milljörðum ís-lenskra króna árið 2016. árið 2008 var velta klasans orðin sem samsvarar rúmlega eitt þús-und milljörðum íslenskra króna og starfsmenn voru um 21 þúsund talsins. .

tækifærin liggja oft nær okkur en við höld-um, nú vantar bara að koma á sátt um sjávar-útveg, kortleggja ný tækifæri og skapa smá stemmingu fyrir uppbyggingu.

getum við skapað þúsundir starfa í sjávarklasanum?

íslenski sjávarklasinn gefur mikla möguleika:

0

1000

2000

3000

4000

5000

6000

7000

8000

9000

10000

2000 2005 2010 2015 2020 2025

Þróun starfaí vaxandi Útflutningsgreinum sjávarklasans

vel launuðum störfum mun fjölga í sjávarklasanum ef

rétt er á málum haldið

Flutningaþjónusta á alþjóðamarkaði

Þjónusta og sala á alþjóðamarkaði

lýsi, omega og mjöl

sjávarlíftækni

tæknibúnaður

Fiskeldi

Þróun sjávarklasans síðustu ár:

n með öflugum sjávarútvegi hafa orðið til fjölmörg fyrirtæki sem hafa þjónað útgerð og fiskvinnslu. Þær greinar sem staðið hafa næst sjávarútvegi eins og veiðarfæragerð, málmiðnaður, flutningar og umbúðaiðnaður hafa allar haslað sér völl erlendis og nýtt sér þá þekkingu sem þær hafa aflað sé inn-anlands til ð flytja út vörur og þekkingu. Það sama er síðan einnig að gerast með greinar sem hafa að hluta byggt á þjónustu við útveginn. Þau fyrirtæki hafa aukið útflutning. Þannig eflist sjávarklasinn jafnt og þétt. (Heimild: Íslenski sjávarklasinn)

eftir: Þór sigfússon

» tæknifyrirtæki munu líklega velta 30 milljörðum á árinu 2011 sem er 15% aukning frá árinu á undan. erlendar athuganir benda til þess að vöxtur í spurn eftir tæknibúnaði í margháttaða matvælavinnslu á heimsmarkaði verði að minnsta kosti 5-6%.

n ljóst er að fækkun verður áfram í veiðum og hefðbundinni vinnslu hérlendis. ef rétt er á mál-um haldið mun hliðarstörfunum fjölga verulega og verða orðin fleiri en störf í vinnslu og veiðum innan ekki langs tíma. Þar liggja tækifærin.

2000 2025

n starfsfólk í hefðbundnum veiðum og vinnslu

n starfsfólk í þekkingar-iðnaði tengdum sjávarútvegi

i sjá m.a. the royal norwegian society of sciences and letters (dKnvs) and norwegian academy of technological sciences (ntva) (2006). exploitation of marine living resources – global opportunities for norwegian expertise. informar appraisal report. PWC. ireland 2008. sea CHange (2007-2013) Part ii marine Foresight exercise for ireland. marine institute.ii viðtal í Fréttablaðinu 3. september 2011.

12 janÚar 2012 sjávarklasinn

Page 13: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / [email protected] / www.tm.is

Í lífsins ólgusjó

Forvarnaráðgjafar TM bjóða sjávarútvegsfyrirtækjum sem tryggja starfsemi sína hjá TM ráðgjöf og tillögur að úrbótum á sviði mataræðis, heilsufars og öryggis sjómanna.

Vel á sig komnir einstaklingar leysa vinnu sína betur af hendi og af meira öryggi - þeir takast betur á við veikindi og lífsgæði þeirra verða meiri þegar á heildina er litið.

Heilsa og heilbrigður lífsstíll á að vera eitt af meginverkefnum hjá stjórnendum fyrirtækja

Hafðu samband við forvarnaráðgjafa TM:Sonja Sif Jóhannsdóttir (515 2654 / [email protected])

Methúsalem Hilmarsson (515 2602 / [email protected])

„Þetta átak TM hefur komið af stað miklu heilsuátaki sem skilar sér í betra lífi hjá starfs fólkinu og fjölskyldum þeirra, og öflugri starfsmönnum.“

// Tillögur að breyttu mataræði og hreyfingu

// Samvinna við kokka á skipum

// Heilsufarsmælingar

// Vinnuaðstæður og líkamsbeiting um borð

// Önnur öryggismál

Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.

Page 14: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

tæknifyrirtæki í Sjávarklasanum njóta flutningsstyrkja:

Samkvæmt frumvarpi efnahags- og viðskipta-ráðherra gætu fram-leiðslufyrirtæki á lands-

byggðinni fengið styrk fyrir 10% af flutningskostnaði. skil-yrði er að varan sé að minnsta kosti hálfunnin á staðnum og að hún, eða hráefni í hana, sé flutt um að minnsta kosti 245 kílómetra leið. Þetta er skref í rétta átt fyrir sjávarklasann þar sem jöfnun samkeppnis-stöðu fyrirtækja um landið getur eflt nýsköpun í sjávar-klasanum.

um allt land eru starfrækt tæknifyrirtæki í sjávarklasan-um. Þessi fyrirtæki hafa flest orðið til í nánu samstarfi út-gerðar og tæknimanna. síðan hafa þessi fyrirtæki hafið eigin útflutning á vörum sínum.

Það er ekki nema eðlilegt að nýsköpun í sjávarklasanum eigi sér stað nálægt sjávarútvegs-fyrirtækjunum víða um land. Það hefur orðið raunin hérlend-is. á vesturlandi eru fyrirtæki á borð við skagann og traust, á vestfjörðum eru fyrirtæki á borð við 3X, á norðurlandi eru fyrirtæki eins og frost, sæ-plast, vélaverkstæði skaga-strandar, raf, vélfag og Dng. á suðurlandi eru fyrirtæki á borð við formax og bláfell. auk þess eru fjölmörg fyrirtæki í sjávar-líftækni með aðsetur víða um land eins og Primex, norður-bragð og kerecis svo nokkur séu nefnd. fullyrða má að eng-in önnur starfsemi, sem krefst sérhæfðs vinnuafls, hafi fest rætur jafn rækilega víða um land eins og tæknifyrirtæki í sjávarklasanum. en er líklegt að fyrirtækin starfi áfram víða um land eða munu þau flytja sig um set til höfuðborgar-svæðisins þar sem bróðurpart-ur tæknifyrirtækja í sjávar-klasanum er með höfuðstöðvar sínar?

ljóst er að tæknifyrirtæk-in eru lang flest staðsett á reykjavíkursvæðinu, bróður-partur þeirra. svo virðist vera sem fyrirtækin séu sett á lagg-irnar í samstarfi við útgerðar-fyrirtæki úti á landi en þegar

þau þurfa á auknu vinnuafli að halda og þurfa að standa straum af kostnaði vegna inn-anlandsflutnings á vörum sín-um þá virðast þau fremur kjósa að byggja upp sína starfsemi á reykjavíkursvæðinu. Þetta er í sjálfu sér skynjanleg ástæða. Það eru hins vegar sterk rök fyrir því að gott sér að tækni-fyrirtæki í sjávarklasanum séu sem næst vettvangi – í nánu samstarfi við útgerðir í landinu. Þannig má telja að mest ný-sköpun eigi sér stað.

mörg tæknifyrirtækja í sjáv-arklasanum hafa ekki verið fyr-irferðamikil í styrkjakerfinu. flest þeirra hafa staðið á eigin fótum og hafa einblínt á að afla viðskiptavina en ekki byggða-styrkja. Þetta er eiginlega þögli fyrirtækjahópurinn á lands-byggðinni sem vex og dafnar í frjálsum viðskiptum. Það er hins vegar spurning hvort megi efla þessa grein frekar með skynsömum aðgerðum. eitt af því sem tæknifyrirtækin verða áþreifanlega vör við er að flutn-ingur tækja til útflutnings er allt að tvöfalt dýrari fyrir þau en fyrirtæki á höfuðborgar-svæðinu. ekki er óeðlilegt að skoða hvort bæta megi sam-keppnisstöðu tæknifyrirtækja utan reykjavíkur með því að eyrnamerkja hluta af fjármun-um sem fara til ýmissa byggða-verkefna byggðastofnunar til frekari flutningsjöfnunar.

nýtt frumvarp er skref í rétta átt en ljóst er að ef flutn-ingskostnaður á tæki frá ísa-firði til skotlands er helmingi hærri en frá reykjavík til skot-lands, eins og raunin er, þá er samkeppnisstaðan enn ójöfn. jöfnun samkeppnisskilyrða er besta byggðastefnan og þegar ofan á bætist að þessi stefna getur hugsanlega eflt tækni-þróun í sjávarklasanum á land-inu öllu, þar sem nýsköpunin verður nær útvegnum, þá er til nokkurs að vinna. frum-varpið er partur af skynsamri vaxtarstefnu fyrir atvinnulíf utan reykjavíkur og á að verða fyrsta skrefið af fleirum í þessa veru.

Efling samkeppnisstöðu

ljóst er að tæknifyrirtækin eru lang flest staðsett á reykjavíkur-svæðinu, bróðurpartur þeirra. svo virðist vera sem fyrirtækin séu sett á laggirnar í samstarfi við útgerðarfyrirtæki úti á landi en þegar þau þurfa á auknu vinnuafli að halda og þurfa að standa straum af kostnaði vegna innanlandsflutnings á vörum sínum þá virðast þau fremur kjósa að byggja upp sína starfsemi á reykjavíkursvæðinu.

fis

kv

inn

slu

kn

i

sJá

va

rt

æk

ni

ve

iða

rf

ær

i

pak

kn

ing

ar

lin

g

lit

lir

tar

an

na

ð

velta og Útflutningur tæknifyrir-tækja í sjávar- klasanum (mia. kr.)

velta

Þar af Út-flutningur

8

6

4

2

0mynd: marel

14 janÚar 2012 sjávarklasinn

Page 15: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

tæknifyrirtæki í Sjávarklasanum njóta flutningsstyrkja:

Persónuleg og traust þjónusta um allan heim.Hjá Samskipum fer saman sóknarhugur nýrrar kynslóðar og áratuga reynsla. Við bjóðum upp á heildarlausnir á sviði flutninga og leggjum stolt okkar í að uppfylla væntingar kröfuharðra viðskiptavina. Samhentur hópur starfsliðs tryggir skjóta og örugga þjónustu. Þinn farmur er í öruggum höndum.

www.samskip.isSaman náum við árangri

Page 16: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

Íslensk útgerð er mun afkastameiri en útgerðir í samkeppnislöndum okkar. góð fyrirtæki skapa tækifæri.

Íslensk prótín eru á borðum milljóna manna daglega um allan heim. Það er góð-ur árangur hjá 300 þúsund manna þjóð.

Hjá klasanum starfa vel á annan tug þúsunda utan Íslands. Þessi er-lenda starfsemi skapar tækifæri fyr-ir íslenska útflutningsstarfsemi og sérþekkingu.

... og umfang... umfang sjávarklasans á Íslandi. sjávarklasinn er lang stærsti klasinn á Íslandi. nær ekkert þróað land í heiminum hvílir jafn mikið á haftengdri starf-semi og Ísland. á meðan velta flestra sjávarklasa í löndunum í kringum okkur er um 1-5% af þjóðarframleiðslu landanna þá er þessi tala um fjórðungur þjóð-arframleiðslunnar hérlendis.

... og tækifæri til atvinnu- sköpunar á næstu árum ... getum við skapað 10 þúsund störf í sjávarklasanum á næstu 13 árum? já, segir sjávarklasinn, ef við sköpum stöðugleika í grunnatvinnuveginum og eflum fjárfestingar og nýsköpun.

... sem liggja meðal annars í tæknifyrirtækjum ...

tæknifyrirtæki í sjávarklasanum hafa vaxið mikið á Íslandi á undanförnum árum. Þótt lítið hafi bor-

ið á mörgum þessara fyrirtækja þá flytja þau út tækni fyrir um 16-18 milljarða króna á ári.

einungis örfá fyrirtæki voru með fleiri en 15 starfsmenn í upphafi aldarinnar en nú eru

þau orðin á annan tug.

... líftækni ...talið er að heimsmarkaður fyrir vörur eins og lýsi og ýmis efni eins og ens-ím o.fl úr sjávarafurðum vaxi umtals-vert á næstu árum. líftæknifyrir-tæki stækka á íslandi og geta skapað fjölda spennandi starfa.

... fiskeldi...mikill kraftur er í íslensku fiskeldi og fjöldi fyrirtækja er í burðarliðnum. líklegt er að við tvöföldum fram-

leiðsluna í fiskeldi á næstu 2-3 árum.

...og flutninga- og sölustarfsemi.mikil tækifæri eru til staðar hérlend-

is í frekari sölu- og markaðsstarfsemi tengdri hafinu en þar hafa íslendingar

verið framarlega um árabil. Þá hefur ís-lensk flutningastarfsemi á norður atlants-

hafi vaxið mikið á undanförnum árum og þá ekki síst í tengslum við flutning sjávarafurða.

Fiskeldi

Ferðaþjónusta

Lífvirk efni Sala og

markaðssetning

Fjármál og þjónusta

Rannsóknir, menntun og þjálfun

Tæknibúnaður fyrir vinnslu

og veiðar

Eftirlit og stjórnun

Flutningar og hafnarstarfsemi

Landgrunn og sjóefni

Íslenski sjávarklasinnSkýrsla um umsvif, tækifæri og áskoranir

Sjávarklasinn

2011

Sjávarútvegur og tengd

matvælavinnsla

Tilgangur íslenska sjávarklasans er að sýna styrk greinarinnar ...

Meira í leiðinniWWW.N1.IS / SÍMI 440 1000

SIGLDU LYGNANSJÓ MEÐ N1HEILDARÞJÓNUSTA VIÐ ÍSLENSKAN SJÁVARÚTVEG

Áratuga reynsla hefur kennt okkur réttu handtökiní heildarþjónustu íslensk fiskvinnslu- og sjávarútvegs-fyrirtæki. Með einu símtali getur þú pantað eldsneyti, smurefni ogrekstrarvörur og notið þar aðstoðar hjá reyndu fagfólkisem þekkir þarfir íslensks sjávarútvegs. Hafðu samband og kynntu þér hvernig fagfólk N1geturveitt þér fyrirmyndarþjónustu.

16 janÚar 2012 sjávarklasinn

Page 17: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

frÍvakTinF y l g i r i t Ú t v e g s b l a ð s i n s j a n Ú a r 2 0 1 2

lögðu allt undir Félagarnir adam levý karlsson og andri roland

ford ákváðu sumarið 2010 að kaupa sér smábát í von um

að geta hafið strandveiðar árið eftir. nánast óreyndir fóru

þeir út í mikið ævintýri og lögðu allt undir. »20-21

Page 18: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

grétar rögnvarsson, skipstjóri á jóni Kjartanssyni su-111, var staddur á loðnuveiðum norðaustur af langa-nesi þegar blaðamaður náði sam-bandi við hann. Hann hafði siglt skipi sínu úr höfn strax eftir hátíð-arnar og verið með þeim fyrstu til veiða á nýju ári en grétar er vanur loðnuveiðum á þessum árstíma.

fór fyrir borðsjómannsferill grétars hófst sum-arið 1974 þegar hann réð sig á skip-ið sæberg og fór á síldveiðar í norð-ursjó. „Þá var ég sautján ára gamall og sigldi með skipinu til skagen og Hirtshals í danmörku þar sem við lönduðum aflanum. eftir sumarið tók ég einn bekk í menntaskóla en að honum loknum fór ég aftur á sæ-bergið og seinna meir á skuttogar-ann Hólmatind,“ segir grétar.

grétari líkaði við sjómannsstarfið frá fyrsta degi og þótti það spenn-andi. árið 1977 ákvað hann að skrá sig í stýrimannaskólann og útskrif-aðist þaðan tveimur árum síðan. „eftir útskrift vann ég sem stýri-maður á seley. Þar fékk ég að kynnast hættunum sem fylgja starfinu þegar ég fór fyrir borð og lenti í ísköld-um sjónum. sem betur fer náðu skipsfélagar mínir að koma mér aftur um borð á síðustu stundu, en þá var ég kaldur og illa á mig kom-inn,“ segir grétar og viður-kennir að atvikið hafi lengi setið í sér.

skipstjóri 24 ára„árið 1981 fékk ég fyrsta skipstjórastarfið, þá 24 ára gamall, þegar ég fór að stýra sæljóni su 104. Þar veiddum við á öll þau veiðarfæri sem hugsast getur og sigldum mik-ið til englands. á þeim tíma höfðum við ekkert nema sjókort og þekk-ingu á siglingum og leiðum, áður en tölvurnar og internetið gjörbreyttu starfinu. Ég vann á sæljóninu í tæp sex og hálft ár og var þar hjá góðu fólki,“ segir skipstjórinn.

aðspurður um hvað sé minnis-stæðast frá þessum árum nefnir grétar tvennt sem stendur upp úr. annars vegar nefnir hann síldveið-ar inn á fjörðum á austurlandi, en

þaðan var stutt fyrir skipið að fara og skemmtilegur veiðiskapur að sögn skipstjórans. síðan er honum minnisstætt þegar hann og áhöfn-in á sæljóninu tóku þátt í björgun-araðgerðum þegar tólf manna áhöfn breska tankskipsins syneta fórst á leið til eskifjarðar aðfaranótt annars dags jóla árið 1986.

áramótin 1987/88 hóf grétar störf sem skipstjóri á jóni Kjartans-syni, skipi sem í dag heitir lundey

ns. „Þá var ég ráðinn af að-alsteini jónssyni (alla ríka). Hann var frábær persónu-leiki og það var gott að vinna hjá honum. árið 2008 fór ég síðan á jón Kjartansson su-111. Hann var upphaf-lega smíðaður árið 1978 og getur tekið 2400 tonn full-lestaður. við erum fjórtán í áhöfninni en hún er að mestu samansett af reynsluboltum sem hafa starfað um borð frá

því að ég tók við skipinu.“

lífið í landigrétar fylgist mikið með enska bolt-

anum og segir áhöfnina á jóni Kjart-anssyni innihalda marga og mikla sparkspekinga. „sjálfur er ég dygg-ur stuðningsmaður arsenal og fór í haust á emirates, heimavöll arsenal, og sá liðið keppa við stoke og bolton. og að sjálfsögðu enduðu báðir leik-irnir með sigri arsenal,“ segir hann og hlær.

skipstjórinn á þrjú uppkomin börn, einn fósturson og þrjú barna-börn. aðspurður um hvernig það hafi gengið í gegnum tíðina að sinna föð-urhlutverkinu samhliða sjómanns-starfinu segir hann það hafa geng-ið ágætlega. „yngsti sonur minn réð sig hingað um borð í haust í afleys-

ingar og er núna með mér á loðnu-veiðunum. en ég vona nú að hann fari ekki að gera þetta að ævistarfi eins og ég.“

ásamt því að vera skipstjóri er grétar eigandi veitingastaðarins og gistiheimilisins Kaffihúsið eskifirði. „Konan er með mér í þessu og sinn-ir rekstrinum á meðan ég er á veið-um, en hún er einnig kennari hér í grunnskólanum. Ég hef því í nógu að snúast þegar ég er ekki úti á miðun-um,“ segir grétar að lokum.

skipstjóri í 30 árgrétar rögnvarsson, skipstjóri á jóni Kjartanssyni SU-111:

Haraldur guðmundsson skrifar:[email protected]

sjálfur er ég dyggur stuðningsmaður arsenal og fór í haust á emirates, heimavöll arsenal, og sá liðið keppa við stoke og bolton. og að sjálfsögðu enduðu báðir leikirnir með sigri arsenal,“ segir hann og hlær.

» árið 2005 fóru sambýliskona og fóstursonur grétars með honum á kolmunaveiðar.

» grétar með nafna sínum um borð í jóni kjartanssyni.

18 janÚar 2012 frÍvakTin

» » jón kjartansson su-111 að sigla inn á eskifjörð með fullfermi.

Page 19: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

grétar rögnvarsson, skipstjóri á jóni Kjartanssyni SU-111:

VEIDDU

SKOTVEIÐI

V E I Ð I H O R N I Ð - S Í Ð U M Ú L A 8 - 1 0 8 R E Y K J AV Í K - S Í M I 5 6 8 8 4 1 0 - V E I D I H O R N I D. I S / / / F L U G A N . I S / / / V E I D I M A D U R I N N . I S

BARA ÞAÐ BESTA

METNAÐUR OKKAR ER AÐ ÞJÓNUSTA VIÐSKIPTAVINI AF ÞEKKINGU OG REYNSLU OG TRYGGJA ÞEIM ÁNÆGJULEGA OG ÁRANGURSRÍKA VEIÐIFERÐ.

NFJdesign.com

Page 20: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

Stunduðu strandveiðar frá norðurfirði:

Hugmynd þeirra félaga um að hefja strand-veiðar kviknaði upphaflega við árslok 2009. Þá hafði sigurjón Hilmarsson, sjó-maður og frændi adams, sagt frænda sín-um sögur af strandveiðum. sögurnar vöktu áhuga adams, sem bar undir félaga sinn hugmynd um að þeir færu út í strandveiðar. eftir talsverðar vangaveltur ákváðu þeir á endanum að slá til.

„Þá höfðum við takmarkaða reynslu af handfæraveiðum. Ég hafði unnið við veiðar sumarið 2004, þegar dagakerfið var og hét, á meðan andri hafði minni reynslu. Hann hafði hins vegar mun meira vit á þeirri hlið rekstursins sem kom að ýmissi pappírs-vinnu, og gat því séð um allar leyfisum-sóknir, reikningshald og annað slíkt. við mynduðum því ágætt teymi,“ segir adam.

á þessum tíma voru þeir báðir orðnir þreyttir á neikvæðri umfjöllun fjölmiðla um efnahagsmál og atvinnuleysi, og vildu vera sínir eigin gæfu smiðir. grænir og óreyndir byrjuðu þeir að afla sér frekari upplýsinga um strandveiðar og rekstur smábáta. „við fórum til að mynda og hittum gamla sjó-menn sem leiðbeindu okkur við hin ýmsu mál. Þar sem við höfðum ákveðið að fara vel undirbúnir á miðin drukkum við í okk-ur allt sem hinir eldri og reyndari höfðu frá að segja. og að lokum vorum við orðnir ákveðnir í að byggja okkur upp gott orðspor í greininni,“ segir andri.

sumarið 2010 hófu þeir síðan leit að rétta smábátnum og stefndu á strandveið-ar árið eftir.

kaupa smábátÞeir félagar heyrðu fljótlega af báti sem var til sölu á ólafsfirði. sá var 200 hestafla flugfiskur, tæplega sjö metrar að lengd og þrjú brúttótonn.

„við höfðum samband við eigandann sem sagði okkur að báturinn væri í raun einungis skelin plús vél og drif. Hann sagði okkur einnig að vélin, volvo Penta ´96 ár-gerð, væri í fínu ástandi. Þegar við komum til ólafsfjarðar sáum við nýmálaða vélina og ákváðum á endanum að kaupa bátinn út frá loforðum hans um að vélin væri í topp-standi. annað kom síðan á daginn,“ segir adam.

vélin sem áður hafði staðið nýmáluð og glansandi reyndist vera í slæmu ástandi. Þar með höfðu strákarnir kynnst sínum fyrstu byrjendamistökum í rekstrinum. Þeir höfðu ekki gangsett vélina áður en þeir keyptu hana. „Þetta voru algjör byrj-

endamistök og auðvitað áttum við að prufa vélina fyrst. en við komum bátnum á verk-stæði í vogunum, þar sem við gjörsam-lega strípuðum hann og tókum úr bæði vél og drif. við lögðum nýtt rafmagn í bátinn, dekkuðum hann, settum í hann nýjar rúð-ur og keyptum allan nauðsynlegan tækja-búnað. síðan fór töluverður tími í að taka upp vélina,“ segir adam.

Þeir adam og andri höfðu upphaflega gert ráð fyrir þeirri vinnu og peningum sem fóru í að standsetja bátinn, en við þær áætlanir bættist síðan vesenið með vél-ina. við upphaf sumars 2011 sá fyrir end-ann á verkinu, og adam hafði þá nýlega klárað pungaprófið. Þá höfðu þeir eytt öllu sínu sparifé og stressið farið að segja veru-lega til sín. að auki hafði andri eignast son fyrr á árinu og þurfti því nauðsynlega að fá inn tekjur á móti útgjöldum. „Þetta reynd-ist dýrara en við höfðum áætlað í upphafi. Ég var vægast sagt orðinn mjög áhyggju-fullur. við höfðum verið á verkstæðinu öll kvöld og áttum okkur varla neitt annað líf. ef báturinn hefði ekki komist í gegnum skoðun siglingamálastofnunar hefði ég staðið uppi með ónothæfan bát og enga vinnu um sumarið,“ segir andri.

báturinn fór án athugasemda í gegnum skoðun, enda höfðu þeir félagar verið í góð-um samskiptum við siglingamálastofnun á meðan þeir gerðu bátinn upp. áður höfðu þeir ákveðið að skíra bátinn í höfuðið á föð-ur adams, sem hafði látist af slysförum í noregi ári áður. báturinn, Kalli Karls, var nú kominn með nafn og leyfi til strandveiða, og var þeim félögum þá ekkert að vand-búnaði.

gerðu út frá norðurfirðiÞegar báturinn komst loksins út af verk-stæðinu voru strákarnir búnir að missa af einum og hálfum mánuði á miðunum. Þeir keyrðu þá með bátinn til Hólmavíkur og stefndu á að hefja veiðar á veiðisvæði b.

„við höfðum heyrt góða hluti af svæð-inu og töldum gáfulegast að vera þar. en

þegar við vorum búnir að sjósetja bátinn komu upp smávægileg vélavandræði sem við gátum leyst í gegnum síma. en um það leyti fórum við að efast um ákvörðun okkar um að gera út frá Hólmavík. eftir talsverða íhugun tókum við síðan þá skyndiákvörð-un að adam skildi sigla bátnum norður til norðurfjarðar á meðan ég keyrði pallbílinn og kerruna þangað,“ segir andri.

» í júní 2011 var kalli karls tilbúinn í strandveiðar.

Lögðu allt undir

Félagarnir adam levý karlsson og andri roland ford ákváðu sumarið 2010 að kaupa sér smábát í von um að geta hafið strand-

veiðar árið eftir. nánast óreyndir fóru þeir út í mikið ævintýri og lögðu allt undir. Saga þeirra inniheldur byrjendamistök og

óheppni, en er um leið vitnisburður um hversu langt menn eru tilbúnir í að ganga til að hasla sér völl í greininni.

» nýmáluð vélin reyndist vera í slæmu ástandi.

20 janÚar 2012 frÍvakTin

Page 21: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

á leiðinni til norðurfjarðar ákvað adam að nýta tímann sem fór í siglinguna og veiddi á leiðinni. við komuna þangað hittu þeir Halldór sverrisson, skipstjóra á sörla is 66, sem gaf þeim góð ráð um hvar best væri að veiða og í hvers konar föllum. eftir það útveguðu þeir sér svefnpokaplássum og hófu næstu daga að veiða af fullum krafti.

„að sjá fyrstu handfærarúlluna koma um borð með fullt af þorski var gríðarlegur léttir eftir öll fjárútlátin. við höfðum bókstaflega lagt allt undir. Hægt og rólega lærðum við síðan inn á svæðið og þegar kom að júlímán-uði hafði okkur gengið betur en við höfð-um þorað að vona. Þó komu auðvitað erfiðir dagar, en við vorum yfirleitt að fá mjög góð-an fisk og mikið af honum var fimm kíló plús og átta plús,“ segir andri stoltur.

Fyrir utan einstakar sundferðir gerðu strákarnir lítið annað á norðurfirði en að veiða, borða og sofa. andri reyndi síðan um helgar að fara til reykjavíkur að hitta fjölskylduna, og fékk þá oftast far í bæinn með fiskflutningabílum. að þeirra sögn var heimafólkið viljugt til að aðstoða þá við nánast hvað sem er, og nefna þeir sér-staklega áðurnefndan Halldór sverrisson, gunnstein gíslason hafnarvörð og eddu Hafsteinsdóttur kaupfélagsstjóra.

veiðisumrinu lauk með hvelliá þeim degi sem strandveiðikvóti svæð-is b kláraðist voru adam og andri á leið-inni í land með dagsskammtinn. sumarið hafði gengið að óskum og þeir voru loks-ins lausir við áhyggjur fyrri mánaða. en áður en þeir komust í land brotnaði smur-rörið fyrir túrbínuna í sundur vegna titr-ings, og þar með missti vélin smurolíu og drap á sér. Þeir voru svo heppnir að félagi þeirra var við veiðar á sama svæði og kom hann og kippti þeim með sér. Þannig lauk fyrsta strandveiðisumri áhafnarinnar á Kalla Karls.

að sögn adams vinnur hann nú að því að gera bátinn tilbúinn fyrir komandi átök.

„Ég byrjaði að vinna í vélinni strax í haust. Fyrr í ágústmánuði höfðum við fyrir algjöra hendingu keypt varahluti úr öðrum bát og áttum því aðra vél af sömu gerð. nú er stefnan sett á að báturinn verði tilbúinn á réttum tíma fyrir næsta strandveiðitíma-bil, þar sem við munum byggja á öllu því sem við lærðum síðasta sumar. strandveið-arnar hafa gefið okkur tækifæri til að kom-ast inn í sjávarútveginn, sem hafði áður verið gjörsamlega ógerlegt fyrir okkur. og það hefur verið draumi líkast að fá að upp-lifa þetta,“ segir adam að lokum.

frÍvakTin janÚar 2012 21

við höfðum samband við eigandann sem sagði okkur að báturinn væri í raun einungis skelin plús vél og drif. Hann sagði okkur einnig að vélin, volvo Penta ´96 árgerð, væri í fínu ástandi. Þegar við komum til ólafsfjarðar sáum við nýmálaða vélina og ákváðum á endanum að kaupa bátinn út frá loforðum hans um að vélin væri í toppstandi. annað kom síðan á daginn.

» eftir erfiða byrjun gekk sumarið að óskum.

» andri ánægður með risaþorsk.

Page 22: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

22 janÚar 2012 frÍvakTin

árið 2008 kynnti sonja sif jóhannsdóttir, for-varnarfulltrúi hjá tm, niðurstöður úr meistara-verkefni í íþrótta- og heilsufræði þar sem hún hafði rannsakað heilsufar íslenskra sjómanna. niðurstöðurnar sýndu að þrír fjórðu þátttak-enda í rannsókninni voru of þungir, með of hátt

kólesteról og blóðþrýsting, og höfðu lítið þrek. að auki höfðu margir fundið fyr-ir depurð, kvíða og svefn-leysi, sem að miklu leyti mátti rekja til óheilbrigðs lífernis.

„Í upphafi skoðaði ég stóran hóp sjómanna og lagði fyrir þá ýmsar spurn-ingar. síðan skipti ég hóp-num í tvennt og veitti öðr-um helmingnum ráðgjöf og eftirfylgni varðandi hreyf-ingu og mataræði. menn-

irnir í þeim hópi misstu samanlagt 150 kíló og lækkuðu blóðþrýsting og kólesteról . einnig virtust þeir ná betur utan um kvíðavandamál og depurð og sváfu eins og lömb,“ segir sonja sif ánægð.

rannsóknin varð að fullu starfiÞegar niðurstöður rannsóknarinnar lágu fyrir var sonju boðið starf hjá tryggingamiðstöð-inni og síðustu ár hefur hún farið um borð í skip og kynnt leiðir að bættu líferni og sinnt eftir-fylgni. „Ég set mig í samband við útgerðir og býð fram þjónustu sem er fólgin í því að hvetja til heilbrigðs lífernis um borð í skipum. Ég byrja á því að halda fyrirlestur fyrir alla áhöfnina og reyni í kjölfarið að efla heilsuvitundina með því að auka þekkingu sjómannanna á mikilvægi góðrar heilsu.“

eftir fyrirlesturinn setur sonja sig í sam-band við skipstjóra og kokka og fer með þeim yfir mögulegar úrbætur. „margir kokkar eru að gera frábæra hluti, en upp til hópa eru sjómenn að borða of stóra skammta og matvörur sem innihalda mikið af viðbættum sykri. ef sjó-menn myndu temja sér að borða aðeins hægar og minna í einu væri miklum árangri náð.“

sonja segir afstöðu skipstjórans um borð gagnvart heilbrigðu líferni skipta miklu máli

þar sem hann er oft ákveðin fyrirmynd. „ef þeir eru ekki tilbúnir að taka skrefið þá er verkefnið andvana fætt,“ segir hún.

aðspurð um hvers vegna tryggingafélag hafi áhuga á heilsu sjómanna bendir sonja á þá augljósu staðreynd að með bættu líkam-legu ástandi sjómanna má fækka veikinda- og slysadögum, sem er til hagsbóta fyrir þá sjálfa, útgerðir og tryggingarfélög. að sögn sonju hef-ur síldarvinnslan hf. verið hálfgerður braut-ryðjandi á þessu sviði og innleitt mikið af ráð-leggingum hennar. á þriggja ára tímabili hefur

veikinda- og slysadögum meðal starfsmanna útgerðarinnar fækkað úr 53% niður í 13%.

„mikil vitundarvakning hefur átt sér stað á meðal sjómanna á síðustu árum. sú vakn-ing hefur gert það að verkum að fleiri sjómenn hugsa meira um líkamlegt heilbrigði en áður,“ segir hún.

fjölbreytt mataræði og aukin hreyfingsonja segist ekki leggja áherslu á megrunará-tök heldur að stuðla að fjölbreyttu matarræði og aukinni hreyfingu um borð og heima fyrir.

„oft þarf að hvetja til aukinnar neyslu á fiski, trefjum, ávöxtum og grænmeti, og draga úr notkun harðrar fitu. Það eru þessi litlu atriði sem skipta máli en alls ekki að taka eitthvað út og banna.“

Þegar kemur að aukinni hreyfingu leggur sonja mikla áherslu á að menn nýti sér aðstöðu til líkamsræktar þegar hana er að finna um borð. Hún ráðleggur sjómönnum að hreyfa sig í að minnsta kosti 30-60 mínútur á sólarhring. „eitt skemmtilegt dæmi um áhöfn sem tók mín-um ráðleggingum er áhöfnin á álsey frá vest-manneyjum. Þeir tóku sig til og útbjuggu lík-amsræktaraðstöðu um borð. síðan er fullt af litlum einstaklingssögum af sjómönnum sem hafa farið í gegnum miklar lífsstílsbreytingar.“

„Í framhaldi af þessum góða árangri ætlum við hjá tm og slysavarnarskóla landsbjargar að senda bréf á allar útgerðir og skip og fá þá til að taka þátt í lífshlaupinu. Það mun standa yfir í febrúar og hver áhöfn getur verið eitt lið og keppt við aðrar áhafnir,“ segir sonja og hvetur sjómenn til að skrá sig.

íþrótta- og heilsufræðingur segir sjómenn almennt lifa heilbrigðara lífi en áður:

Vitundarvakning á meðal sjómannaHaraldur guðmundsson skrifar:[email protected]

» sonja sif jóhannsdóttir, forvarnarfulltrúi hjá tm.

» stund milli stríða.

» allt pláss nýtt til að geta púlað. » einn af sjómönnunum í þrekmælingu í hjartavernd.

„Það er mjög mikilvægt að hafa aðstöðu til líkamsræktar um borð því almenn heilsurækt hjálpar okkur að takast á við krefjandi starf sjómannsins. í vaktafyrirkomulagi er nauðsynlegt að geta reglulega sinnt líkamsrækt því hún skilar sér í bættri líðan, svefni og aukinni afkasta-getu,“ segir björn Þór sigurbjörnsson, menntaður einka-þjálfari og háseti á frystitogaranum Þór hf frá hafnar-firði.

eftir að hafa unnið sem sjómaður frá unglingsaldri tók björn sér frí frá sjómennskunni og gerðist einka-þjálfari og starfaði í faginu í mörg ár. árið 2010 snéri hann aftur á sjó og sinnir nú einkaþjálfarastarfinu sam-hliða sjómennskunni. „sjómennskan er mitt aðalstarf en með nútímatækni get ég leiðbeint fólki með fjarþjálf-un í gegnum tölvupóstssamskipti og síma. síðan fær maður löng og góð frí á milli túra og getur þá sinnt þessu af meiri krafti,“ segir hann.

að sögn björns er aðstæður til líkamsræktar til fyrir-myndar um borð í Þór hf og þær bestu sem hann hefur séð um borð í íslensku skipi. „hér er tækjasalur sem inni-heldur handlóð, stangir, lóð, skíðavélar, hlaupabretti og margt annað. við getum því auðveldlega sinnt fjöl-breyttum æfingum sem henta flestum. Þessi tækja-kostur kemur sér vel því áhöfnin hefur almennt áhuga á að komast í reglubundna hreyfingu og að stunda heil-brigt líferni. við æfum reglulega og reynum að láta ekki slæmt veður stoppa okkur.“

aðspurður um matarræðið um borð segir björn að

kokkur skipsins leggi mikið upp úr því að bjóða upp á fjölbreyttan og orkuríkan heimilismat. „sjómenn þurfa orkuríka fæðu starfsins vegna og maður lifir ekkert á salati hérna. en kokkurinn er aftur á móti meðvitaður um að hafa matinn hollan og næringarríkan,“ undir-strikar björn.

að lokum hvetur hann útgerðir hér á landi til að auð-velda sjómönnum að hreyfa sig reglulega og auka þann-ig súrefnisupptöku líkamans. „Þó starfið sé oft líkam-lega erfitt eru kostir reglulegrar hreyfingar ótvíræðir og það hafa hinar ýmsu rannsóknir sýnt fram á.“

Háseti og einkaþjálfari» Björn Þór sigurbjörnsson,

háseti og einkaþjálfari er til hægri á myndinni.

» líkamsræktaraðstaðan um borð í Þór hf er til fyrirmyndar.

Page 23: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

Frístundkrossgátu-

blað(c)

DORMA EIGN STAFSKOR-DÝR GRUNA

TÁKNÞYNGD-

ARSNÆDDU GÁÐA

KALLA

GISTI-HÚS

---------------MÆLA

1

MEÐ-LIMIR

ÞURRK-UÐ BLÖÐ---------------

HEY

MILLIÁTTSK.ST.

KLAUF-SKA

---------------HNETU

FEGNA

2 KONA---------------Á ENDA-

NUM

ENDIR BEYGJA TÖLU-SK.ST.

ÁTTAR-TÁKN

TÍMABIL---------------

DÆLD

LÝSIRUNDRUN

---------------VÍÐVÆR-ASTAN

SORGBERA

---------------EKKI MEÐ

TÆMT

---------------KER

RÓMV.TALA

3SUKK

---------------TÁKN

ANNÁLL---------------

ÆPA

SK.ST.LEIK-

FÉLAGS---------------

ÖRVITA

ÆTLAHÆKKA

---------------FÉLAGAR

FRÍÐ---------------

MARGEYMI

DAUNNKVIKS

---------------HRYGGJA

MERKI---------------

ÞOKU

LÝSIRANDÚÐ

Í SPILUM---------------

FUGL

SÉÐNI---------------HREINS-

AÐA

ÁHALD

LISTA-MAÐUR

---------------STAÐA

4 HAND-BOR

---------------FÁLK-ANN

FYRIR-FARA

TANN-HJÓL

---------------SÖNGRIT

RÆKI-LEGT

---------------EFST

BASSA-LYKILL

---------------FJÖLDA

NÆR---------------

ÍS-LAUSAN

GRIPI---------------HÚSLÓÐ

BAND

ATHUGA-LEYSI

-----------------ÆÐIBUNU-

GANG

BEISK-ARA

ÓPNÝTT

---------------KYNSTUR

RYKS---------------BRAUÐIÐ

VIÐ-BRÖGÐ

---------------SEYTLAR

HOLLUMFRAM

---------------GERAST

5FRÁ SJÓ

---------------NÖLDRI

SEGIRÆÐURIN

---------------FISKUR-

INN

LOKUN---------------

FYRIRAFTAN

DRUNA---------------

LÍKA

ÓSKA

FRAM-ANDI

---------------Í LOFTI

SK.ST.HAF-

AUSTURS---------------

GETA

STEFNA

TEKIÐSAMAN

-----------------TVÍVARA-

MÆLTHLJÓÐ

FLJÓTIN---------------

SÁFIMMTI

6

NÁÐHÚS GNAUÐA AULA

» Úlfar eysteinsson veitingamaður á Þremur frökkum gefur góð ráð.

Vandfundið lostæti„núna þegar hrogna- og lifratíminn er í algleymingi er tilvalið að framreiða rétt sem ég lærði að elda þegar ég vann sem annar kokkur á togaranum júpíter árið 1962. Þar var kokkur sem hét finnur bjarnason og hann kenndi mér að sjóða hrogn á skemmtilegan máta. maður einfaldlega tekur hrognpokana og að-skilur þá og snýr þeim við og fyllir þá með lifur. einnig má setja fiskfars í staðinn fyrir lifrina til að höfða til yngri kynslóðarinnar. síðan er þetta soðið í fimmtán til tuttugu mínútur,“ sagði úlf-ar eysteinsson, veitinga-maður á Þremur frökkum, þegar blaðamaður útvegs-blaðsins leitaði til hans um góð ráð fyrir íslenska kokka á sjó.

úlfar segir þennan rétt vera vandfundið lostæti vegna þess að kokkurinn sem kenndi honum var sá eini sem matreiddi hann, að úlfari undanskildum. „Þetta er svo bragðgott að ég hef um áraraðir boðið upp á þennan rétt í hádeg-inu á Þremur frökkum. ég gef fólki oft að smakka þetta kalt á meðan það er að skoða matseðilinn og fólk virðist almennt vera sammála um að þetta sé mikið lostæti.“

vikan á

Þerney re: 31/01 2012n „jæja helgin liðin hjá og ný vinnuvika að hefj-ast, aðeins einn sunnudagur eftir hjá okkur að þessum frátöldum, næsta sunnudag verður að nýta hann alla leið þeas byrja á baconi kl.0800 og enda hann með vöfflum kl.2400 og tölum ekki um það sem fer fram þar á milli. Það er blússandi stemmari.“

aðalsteinn jónsson su11: 30/01 2012n „búnir að kasta trollinu....koma svo.“

guðmundur í nesi: 24/01 2012n „kolvitlaust veður hér á torginu...“

klakkur sk: 27/01 2012n „hafið tekur hafið gefur, hörmungum stjórn-ar þessi refur hafið gargar hafið grætur hafið vakir daga og nætur og sjómennina saklausa tekur það í tollþað skelfir okkar hjarta og huga gefur hrollog alltaf er það erfitt að geta ekki neitthvorki sorgina sefað né atburðinum breitt

en sjómennirnir okkar bera íslands skjöld og sverð og mannslíf verður aldrei nei aldei sett í verð svo munum við að þakka meir en tárum taki fyrir manninn sem bjargaðist úr þessu ólánsflaki....“

júlíus geirmundsson ís 270: 29/01 2012n „..brottför fimmtudaginn 2 feb. kl 11.00.“

víkingur ak 100: 28/01 2012n „1300 tonn í mallanum og á leið til akranes.“

farsæll gk: 25/01 2012n „jæja,loksins er haldið í róður á þessum bát,allir komnir með nóg af hangsi. nú skal tek-ið á því...velkomnir til starfa áhöfn:“

ólafur bjarnason sh: 23/01 2012n „spakk og hagettí í matinn og úlfarnir átu vel!!!!!!“

Þú finnur Útvegsblaðið á Facebook.

frÍvakTin janÚar 2012 23

Page 24: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012
Page 25: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

Fyrirtæki sem eru í sjávar-klasanum skapa um fjórðung landsframleiðslunnar. Flestar

þjóðir sem við berum okkur saman við eru með um 1-5% þjóðarfram-leiðslunnar úr þeirra haftengdu starfsemi.

norður atlantshafið þekur um 5,7% af hafsvæði heimsins en veiðar á svæðinu er rösk-

lega tvöfalt meiri en á heimsvísu.

sjávarklasinn er vettvang-ur fyrirtækja sem starfa í kringum sjávarútveg og aðra

haftengda starfsemi og vilja hag-nýta tækifæri í hafinu allt í kringum okkur.

Í byrjun febrúar mun íslands-banki kynna

nýja skýrslu sem sjávarklasinn hefur unnið að um efna-hagslegt umfang sávarklasans á Ís-landi. Þær upplýsingar munu betur sýna raunverulegt umfang sjávar-klasans í íslensku efnahagslífi. Íslendingar hafa um áratuga-

skeið náð að fá að meðaltali um 20-30% hærra verð fyrir fisk-

inn en mörg samkeppnislönd. við getum misst þessa sérstöðu ef fjár-festingar í nýjum búnaði og skipum eykst ekki á næstu árum.

grímur kokkur í eyjum hefur hafið útflutning á ýsu í raspi til Færeyja.

Þessi útrás gríms er m.a. komin til vegna góðs samstarfs fyrirtækisins við vinnslu-stöðina og Ís-félagið í vest-mannaeyjum. grímur er með 15 manns í vinnu.

Þótt sjávarútvegur sé undirstaða sjávarklas-ans þá eru tækifæri

víða í klasan-um til að skapa verðmæti: tækni- og hugbúnaður, líftækni, lýsis- og mjölfram-leiðsla, fiskeldi, flutningar, rannsóknir, sala- og markaðssetning. Hægt er að skapa þúsundir vel laun-aðra starfa í sjávarklasanum á næstu árum ef allir leggjast á árarnar.

til forna er talið að maðurinn hafi neytt omega-3 fitusýra,

sem má finna í fiski, í jafn miklu mæli og omega-6 fitu-sýrur sem aðal-lega má finna í dýrafitu. nú er talið að neysla omega-6 fitusýra sé 20-50 sinnum meiri en neysla omega-3. Þetta er meðal annars ástæða fyrir marg-háttuðum sjúkdómum sem takast þarf á við í nútima-þjóðfélagi. Í vaxandi spurn eftir omega-3 felast stór-kostleg tækifæri fyrir Ísland. lýsið okkar getur í náinni framtíð verið selt til lyfja-framleiðslu á margföldu verði sem skapar enn frekari tæki-færi hérlendis.

reiknað er með að vöxt-ur í fiskeldi verði allt að 8% á ári á heims-

markaði, vöxtur í tæknibúnaði fyrir matvæla-vinnslu verði um 5-6% á ári, útflutn-ingur í ýmissi þjónustu tengd hafinu um 5% og vöxtur í þróun lýsisafurða verði ívið meiri. Þá er talið að mestur vöxtur verði í margháttaðri sjávarlíftækni og hagnýtingu lífvirkra efna hafsins eða allt að 15-30% á ári. Þrátt fyrir góða viðleitni margra þá hefur Íslendingum ekki tekist að ná sama vexti í mörgum nýjum greinum eins og mörg nágrannalönd okkar. Þessu má breyta,

sjávarklasinn janÚar 2012 25

Héðinn hefur 90 ára reynslu af að þjóna íslenskum sjávarútvegi. Þekkingar- og þjónustusvið Héðins spannar alla þætti málmsmíða og véltækni, frá hönnun til uppsetningar, frá viðhaldi til viðgerða.

Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100hedinn.is

Þekkingarfyrirtæki í málmiðnaði og véltækni

Héðinn starfar eftir ISO 9001 skráðu gæðastjórnunarkerfi.

Page 26: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

rannsóknasamstarf náttúrustofu vestfjarða og matís á umhverfis-málum strandsjávar hefur skilað ýmsum merkilegum niðurstöðum. rannsóknir þeirra spanna allt frá at-hugunum á ákjósanlegum staðsetn-ingum fiskeldis og yfir í hvað verður um lífræn umframefni sem ofauðga botn og sjó. að sögn forstöðumanns náttúrustofu vestfjarða hefur sam-starfið sýnt þá möguleika sem fel-ast í klasasamstarfi eins og Íslenska sjávarklasanum.

grunnrannsóknir orðnar tíðarisamstarfið hófst upphaflega þeg-ar náttúrustofa vestfjarða kom að rannsóknum matís varðandi tilraun-ir við að nota ljós til að seinka kyn-þroska þorska. Þá vann matís með fiskeldisfyrirtækjum á vestfjörðum og starfsmenn náttúrustofunnar komu inn í þessar rannsóknir með áherslu á umhverfisþáttinn.

„Frá þeim tíma hefur samvinna okkar gert náttúrustofu vest-fjarða kleift að færa sig yfir í hrein-ar akademískar grunnrannsóknir á umhverfismálum strandsjávar til viðbótar við ráðgjöf og þjónustu-rannsóknir fyrir einstök fyrirtæki. við höfum meðal annars stundað rannsóknir á því hvað verður um lífræn umframefni sem berast út í umhverfið og áhrif þeirra á lífríkið í sjónum. Það verkefni hefur þróast yfir í að vera okkar stærsta sam-starfsverkefni,“ segir Þorleifur ei-ríksson, forstöðumaður náttúru-stofu vestfjarða.

Þessar grunnrannsóknir hafa gert náttúrustofu vestfjarða kleift að þróa í auknum mæli ýmsar kenn-ingar sem hægt er að alhæfa út frá og leitt fram niðurstöður sem nýtast

fiskeldi betur en þröngar þjónustu-rannsóknir.

kanna þolmörk íslenskra fjarðaÞorleifur segir samstarfið tvímæla-laust hafa skilað sér í nýjum hugs-unum og nálgunum. „Þegar kemur að okkar verkefnum er aðalatriðið að vinna að rannsóknum sem stuðla að vistvænu fiskeldi. Þær rann-sóknir hafa síðan þróast yfir í stærri verkefni þar sem við erum að reyna að skilja þessi umhverfismál í stærri heild. við vorum að ljúka grunn-rannsóknarverkefni sem við köllum „lífríki fjarða“. Þar er um að ræða grunnrannsókn á þolmörkum ís-lenskra fjarða fyrir lífrænni meng-un,“ segir Þorleifur.

„við höfum einnig unnið með matís við aðrar rannsóknir, t.d. á þróun eldiskvía og hvaða ásætur festast á kvíarnar. auk þess er nátt-úrustofan að vinna með matís í að skoða sameldi þorsks og kræklings en of snemmt er að greina frá niður-stöðum þess verkefnis.“

rannsaka lífræn umframefni í sjó

Samstarf náttúrustofu vestfjarða og matís hefur opnað nýjar dyr:

www.matis.is

Matís ohf. er mikilvæg þekkingarauðlind fyrir Íslendinga. Fyrirtækið er lykil aðili í matvælarannsóknum og matvælaöryggi og hefur að baki sérþekkingu 100 starfsmanna sem eru sérfræð- ingar og vísindamenn á ólíkum sviðum.

Rannsóknir eru íslenskum sjávarútvegi mikilvægar því þær styðja framþróun, nýsköpun og markaðsstarf greinarinnar. Hjá Matís er stöðugt unnið að �ölda rannsóknarverkefna sem tengjast sjávar- útvegi með ýmsum hætti.

Rannsóknirí þágu sjávarútvegs

» „Þegar kemur að okkar verkefn-um er aðalatriðið að vinna að rannsóknum sem stuðla að vistvænu fiskeldi.“ mynd: matís

Frá þeim tíma hefur samvinna okkar gert náttúrustofu vestfjarða kleift að færa sig yfir í hreinar akademískar grunnrannsóknir á um-hverfismálum strandsjávar til viðbótar við ráðgjöf og þjónusturannsóknir fyrir einstök fyrirtæki.

26 janÚar 2012 sjávarklasinn

Page 27: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

Suðurhrauni 4 • 210 Garðabæ • Furuvellir 3 • 600 Akureyri • Sími: 575 8000 • Fax: 575 8001 • www.samhentir.is

Kassar læsast saman við stöf lun og brettið verður stöðugra

Heildarlausnir fyrirsjó- og landvinnslu

• Skór• Stígvél• Vettlingar• Vinnufatnaður, • Hnífar• Brýni • Bakkar• Einnota vörur o.fl.

• Kassar• Öskjur• Arkir• Pokar• Filmur

Kassar læsast saman við stöflun og brettið

ð öð

rnaður, ð

vörur o.fl.

Page 28: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

íslandsbanki styrkir frumkvöðla:

sérþekking Íslandsbanka á sviði jarðvarma og sjávar-útvegs byggir á viðskiptasamböndum sem myndast hafa á löngum ferli en saga Íslandsbanka og forvera hans hefur verið samofin sjávarútveginum frá upp-hafi. Íslandsbanki gefur árlega út skýrslur og grein-ingar á sjávarútvegi og jarðvarmaiðnaðinum á Íslandi og í bandaríkjunum og sinnir ráðgjöf við kaup og sölu á fyrirtækjum í þessum geirum. að auki er Íslandsbanki stofnaðili íslenska sjávarklasans og jarðvarmaklasans.

á undanförnum árum hefur Íslandsbanki styrkt frumkvöðlaverkefni sem leggja áherslu á endurnýjan-lega orku og sjálfbæran sjávarútveg. markmiðið er að hvetja til nýsköpunar og þróunar á þessum tveimur sviðum.

Íslandsbanki hefur veitt sprotafyrirtækinu gÍró styrk að fjárhæð 3 milljónum króna til að þróa aðferð

og smíða mælitæki sem mælt getur allt í senn hita, þrýsting, stefnu og halla borhola við allt að 400°C en slíkt tæki mun ekki vera til á markaðnum.

Þá hefur Íslandsbanki einnig veitt menntastofnun-um innan íslenska sjávarklasans styrk sem nemur 5 milljónum króna til að efla samstarf um námsframboð og marka stefnu og framkvæmdaáætlun um hvernig megi laða ungt fólk að menntun á þessu sviði. nokkuð hefur borið á því að áhugi ungs fólks á menntun sem tengist sjávarklasanum sé takmarkaður en mikil þörf er fyrir vel menntað og þjálfað fólk til að auka verð-mætasköpun á næstu árum.

Íslandsbanki vonar að styrkirnir komi að góðum notum og muni styðja við þróun framtíðarlausna til sjálfbærrar nýtingar orku og verndunar náttúruauð-linda.

markmiðið er að hvetja til nýsköpunar

í umræðum fyrirtækja innan íslenska sjávarklasans hafa fyrir-tækin lýst áhyggjum af því að áhugi ungs fólks á menntun sem tengist sjávarklasanum sé takmörkuð og oft sé skortur á vel þjálfuðu/menntuðu fólki á tilteknum sviðum klasans. hér þarf að verða breyt-ing á. mikil þörf er fyrir vel menntað og þjálfað fólk til ýmissa rannsókna, fullvinnslu afurða, skip-stjórnar, fiskeldis, verk- og tæknifræði, markaðs-mála, sjávarútvegsfræða, líftækni og flutninga svo eitthvað sé nefnt. ef fyrir-tæki í íslenska sjávar-klasanum eiga að auka verðmætasköpun á næstu árum þarf að efla menntun og áhuga ungs fólks á klas-anum.

í framhaldi af því var ákveðið að mynda mennta-hóp allra þeirra aðila sem koma að sérmenntun sem tengist íslenska sjávar-klasanum. Þessi hópur mun vinna þvert á alla fyrirtækjahópa innan sjávarklasans. Þær menntastofnanir, sem fá þetta bréf og rætt verður við um aðild að þessu verkefni eru m.a. háskól-inn á akureyri – sjávarútvegsfræði, háskóli íslands – sjávar- og vatnalíffræði, matvælafræði og aQ food, hólaskóli – fiskeldis- og fiskalíffræði, háskólinn í reykjavík – verk- og tæknigreinar og logistic, háskólasetur vestfjarða – strandsvæðanám, sjávar- útvegsskóli háskóla sameinuðu þjóðanna, tækniskólinn – stýri-mannanám og útvegsrekstrarfræði, fisktækniskólinn og fram-haldsskólinn í vestmannaeyjum – stýrimannanám og rann-sóknarþjónustan sýni. Þessi listi er ekki tæmandi en gefur vísbendingar um sérnám sem í boði er.

miðvikudaginn 18. janúar síðastliðinn veitti íslandsbanki 5 milljónir króna til þess að efla menntun í sjávarklasanum og er ætlunin að ráðstafa þeim í þá stefnumótunarvinnu sem fram-undan er í menntahópnum og mögulegt markaðsátak í kjölfarið.

Þörf fyrir menntað fólk

28 janÚar 2012 sjávarklasinn

Page 29: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

íslandsbanki styrkir frumkvöðla:

markmiðið er að hvetja til nýsköpunar

» sveinn kjartansson eigandi fylgisfiska var fyrstur til að koma með þorsk upp í pontu á fundi sjávarklasans í marel fyrir áramót.

sjávarklasinn janÚar 2012 29

UMHVERFISVÆNAR VEIÐAR

VÍSIR hf. • Hafnargötu 16 • 240 Grindavík • www.visirhf.is

Vísir hf. er fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið með útgerð og fisk-

vinnslu í rúm fjörutíu ár. Gerð eru út fimm línuskip og geta þau veitt

og landað hringinn í kringum landið, þar sem fyrirtækið er með

starfsstöðvar á Þingeyri, Húsavík, Djúpavogi og í Grindavík. Þannig

er tryggður aðgangur að bestu fiskimiðum og gæðahráefni hverju

sinni. Með því að veiða eingöngu á línu

leggur Vísir hf. sitt af mörkum í að vernda

náttúruna og fiskistofnana við landið.

Page 30: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

nýtt upplýsingakerfi fyrir vinnsluskiptrackWell er hluti af íslenska sjávarklasanum:

sífellt eru gerðar meiri kröfur til skipstjórn-armanna um skráningar gagna um borð í fiskiskipum. skráningar geta verið tímafrek-ar og oft þarf jafnvel að skrá sömu upplýs-ingarnar á mörgum mismunandi stöðum. til þess að minnka tvískráningar og auka skil-virkni hefur íslenska hugbúnaðarfyrirtæk-ið trackWell hannað kerfið afurðastjórann, sem heldur utan um afla og afurðir um borð og tengist við afladagbók.

trackWell er hluti af íslenska sjávarklas-anum og sér mikinn hag í góðu samstarfi við önnur fyrirtæki innan geirans. afurða-stjóraverkefnið var unnið í samstarfi við fjölda sjávarútvegsfyrirtækja með styrk frá tækniþróunarsjóði rannís og avs. mark-miðið er að auðvelda útgerðum að nýta rekj-anleika til samþættingar á gögnum úr upp-lýsingakerfum virðiskeðju sjávarafurða.

afurðastjórinn var hannaður fyrir vinnsluskip, en hentar einnig fyrir kara-skráningar í ísfiskskipum og fyrir viðbótar gæðaupplýsingar í uppsjávarskipum. gögn-um er skilað í land þar sem hægt er að skoða og vinna þau í gegnum vefviðmót. einnig eru mögulegt að setja upp áframsendingu gagna til útgerðanna fyrir frekari úrvinnslu og senda inn í önnur upplýsingakerfi.

skipskerfiafurðastjóri um borð tengist við gagna-grunn rafrænu afladagbókarinnar. Þannig eru allar upplýsingar um veiðiferðir, köst og staðsetningar sóttar sjálfkrafa. skipskerfið skiptist í einingar sem hægt er að virkja eft-ir þörfum. Í afurðabók er hægt að skilgreina nýjar afurðir, auk hráefnis og umbúða. einn-ig er haldið utan um afurðaverð og gengi gjaldmiðla. Í vinnslunýtingu er haldið utan um nýtingarprufur fyrir vinnsluskip og

skýrslur til Fiskistofu og löndunarhafnar. skipsdagbók inniheldur færslur og athuga-semdir skipstjóra og í áhafnalista eru upp-

lýsingar um mannskap og vaktir.búið er að setja upp tengingu milli af-

urðastjóra og icelabel límmiðaprentunar

frá fyrirtækinu strikamerki. afurðastjórinn heldur utan um vinnslulotur og hægt er að senda lotunúmerið út á prentarann

góð viðbrögð notendasíðastliðið haust var afurðastjórinn tek-inn í notkum um borð í fimm vinnsluskipum frá kanadíska fyrirtækinu ocean Choice int-ernational. Þar er haldið utan um allar af-urðaskráningar um borð og gögnin sendast sjálfkrafa í land. skipsstjórnendur hafa átt auðvelt með að tileinka sér kerfið og yfirsýn stjórnenda hefur aukist.

beinn aðgangur útgerðarfyrirtækjaallar afurðaskráningar er aðgengilegar í vefviðmóti þar sem hægt er að skoða nán-ari upplýsingar um afla í hverju kasti og einnig bætast við upplýsingar um afurðir og fjölda kassa eða kara. auðvelt er að sækja skýrslur út úr kerfinu og fá t.d. beint í ex-cel. Flest íslensk útgerðafyrirtæki nota upp-lýsingarkerfi eins og Wisefish frá maritech eða innova frá marel og geta þá fengið fram-leiðslu- og aflagögnin sjálfvirkt inn frá af-urðastjóra sem bætir gagnaflæði og eykur rekjanleika.

» afurðastjórinn er í notkun um borð í kanadíska vinnsluskipinu newfoundland lynx.

» samstarfsaðilar afurðastjóraverkefnisins.

kYnning

á síðustu öld var mikil framþróun í fiskveið-um. tæknin var orðin svo mikil að sumir fisk-stofnar voru ofveiddir. stórmarkaðir seldu margar fisktegundir, sumar úr sjálfbært nýtt-um stofnum en aðrar úr ofveiddum stofn-um. Finna þurfti leið til að greina á milli hvort fiskurinn kæmi úr sjálfbært nýttum stofni eða ekki. búinn var til staðall og merki sem átti að nota á fiskafurðir sem kæmu úr vott-uðum fiskstofnum. staðlarnir fengu nafn-ið marine stewardship Council (msC). vonast var til að með markaðskynningu myndi eftir-purn aukast eftir msC vottaðri vöru, sem yrði hvatning fyrir fyrirtæki að votta sínar fisk-veiðar og fá þannig aðgang að mörkuðum sem versluðu með vottaðar afurðir. til að fá vott-un þyrfti jafnvel að bæta fiskveiðistjórnunina sem leiddi til bættrar umgengni við auðlindir hafsins. Þannig yrðu heimshöfin áfram mat-arkista fyrir komandi kynslóðir.

MsC trúverðugasti kosturinnÍ dag starfa á annað hundrað manns hjá msC á ellefu skrifstofum víðsvegar um heiminn. starfsfólk msC sér um kynningu bæði hjá fisk-veiðiþjóðum, heildsölum, stórmörkuðum sem og hjá neytendum. virk tengsl við alla hags-munahópa sem tengjast sjávarútvegi, þ.m.t. stjórnvöld, aðila í greininni, vísindamenn, um-hverfissamtök og almenning er lykilatriði til að skapa trúverðugleika. Í samanburðarrann-sóknum er ítrekað staðfest að msC er trúverð-ugasti kosturinn til að votta sjálfbærar fisk-veiðar. Í dag er msC eini staðallinn sem er í fullu sæmræmi við bæði kröfur Fao og iseal (inter-national social and environmental accredita-tion and labeling alliance). vöxtur msC hef-ur verið mikill á síðustu árum og í dag eru um 10-12% af fiskveiðum heimsins til manneldis vottaðar eða í vottunarferli samkvæmt staðli msC. yfir 13.000 vörur bera msC umhverfis-merkið og eru þær seldar í yfir 80 löndum.

nágrannaþjóðirnar langt komnarFlestir helstu nytjastofnar norðmanna eru msC vottaðir eða í vottunarferli. sama gildir um eystrasalt og norðursjó. lögmaður Fær-eyja hefur lýst því yfir að allar veiðar Færey-inga skuli vera vottaðar eigi síðar en 2015. For-sætisráðherra grænlands hefur lýst því yfir að sem flestar fiskveiðar grænlendinga skuli fá msC vottun sem fyrst. Það er því ljóst að vott-uðum fiskveiðum heldur áfram að fjölga.

fyrsta MsC vottunin hérlendis styrkir markaðsstarf umsækjandaFyrirtækið sæmark sjávarafurðir ehf. hefur

fengið vottun ásamt fjórum af sínum lykil-framleiðendum. með msC vottun uppfyllti sæmark kröfur síns stærsta kaupanda í bret-landi og styrkti þannig samkeppnisstöðu sína. jafnframt þessu hefur sæmark séð aukna eftirspurn eftir vottuðum fiski á mörkuðum beggja vegna atlantshafsins. stórmarkaður-inn sainsbury hefur nú kynnt í verslunum sínum msC merkta vöru nr. 100, sem er ýsa, línuveidd af framleiðendum sæmarks. sains-bury er fyrsti stórmarkaðurinn sem nær því að hafa 100 msC merktar vörur til sölu í sínum verslunum og spilar íslenskur fiskur áfram þar mikið hlutverk. msC vottun hefur því

reynst sæmarki bandamaður í sókn á mark-aði. icelandic group er einnig með vottun í farvatninu og almennt er vaxandi áhugi í ís-lenskum sjávarútvegi á fiskveiðivottunum. umhverfismerkingar eins og msC geta því gefið fyrirtækjum ýmis tækifæri til markaðs-sóknar.

markaðstækifæri fyrir íslenskan sjávarútveg Meira en 13.000 vörur í yfir 80 löndum bera msC umhverfismerkið:

kYnning

» f.v. ally dingwall frá sainsbury, sigurður gísli Björnsson, sæmark sjávarafurðir, svavar guðmundsson, sæmark sjávarafurðir og phil nickels frá youngs í grímsby.

30 janÚar 2012 sjávarklasinn

Page 31: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

» í athugun íslenska sjávarklasans á hvar tæknifyrirtæki í klasanum eru staðsett kemur í ljós að þau eru langflest á höfuðborgarsvæðinu. svo virðist sem hugmyndirnar verði til nálægt útgerðinni víða um land en síðan flytji fyrirtækin suður. eyjafjarðarsvæðið er reyndar öflugt með m.a. eitt stærsta kælifyrirtæki landsins.

sjávarklasinn janÚar 2012 31

Frá veiðum til neytanda

Lausnin er hjá okkurFramsæknar tækja- og hugbúnaðarlausnir okkar byggja á hugviti, verkþekkingu og nánu samstar� við �skiðnaðinn í meira en aldar�órðung.

Okkar markmið er ávallt að tryggja hámarksafköst, framleiðni og arðsemi viðskiptavina okkar.

www.marel.is

Page 32: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

MSC advertentie icelandic magazine.indd 1 25-01-12 10:24

Hús sjávarklasans sem ætlunin er að opna á grandagarði í

byrjun sumars hefur fengið fínar viðtök-ur. Þegar hafa fyrir-tæki í vinnslu- og kælitækni, fiskeldi, verkfræðiráðgjöf og umhverfistækni ákveðið að leigja í húsinu. Húsnæðið er um 800 fer-metrar og hefur samstarf tæknifyrirtækjanna og Faxa-flóahafna við undirbúninginn gengið mjög vel. lítið er eftir af lausu plássi og eru vænt-ingar um að Faxaflóahafnir bjóði enn stærra húsnæði undir þessa starfsemi.

Í stjórn samstarfsvettvangs Íslenska sjávarklasans eru ýmsir einstaklingar úr

ólíkum greinum klasans eins og árni Oddur Þórðason hjá eyri, birna einarsdóttir Íslandsbanka, eggert b. guðmundsson Hb granda, Jóhann Jónasson hjá 3X, sjöfn sigurgísladóttir hjá Íslenskri matorku og sigurð-ur viðarsson hjá tm.

guðmundur kristjáns-son forstjóri brims benti á það í ræðu

sinni á fundi sjávarklasans í marel að stefna ætti að því að hækka verð útfluttra sjáv-arafurða. guð-mundur nefndi að útflutningsverðið sé núna um 200 kr á kíló stefna skuli að því að hækka eigi það í a.m.k. 300 kr á næstu árum með meiri fullvinnslu ofl. Það vakti kátínu fundarmanna þegar guðmundur nefndi að hann hefði farið með börnin sín í nammirekka Hagkaups en þar væri nammi selt á yfir 2.000 kr/kg!

árni Oddur Þórðarson stjórnarformaður mar-els sagði á fundi sjáv-

arklasans fyrir jól að matvæla-framleiðsla ykist hröðum skrefum í heim-inum. eftir því sem fleiri íbúar m.a. í asíu yrðu betur stæðari því meiri væri spurn eftir kjöt- og fiskmeti, sem skapar tækifæri fyrir tæknifyrirtæki í sjávarklas-anum.

Íslenski sjávarklasinn vinnur nú að verkefni við að auka samstarf sjávarklasa á norður atlants-

hafi. eftir því sem markaðir fyrir meðal annars tæknibúnað færast austar eins og til asíu þeim mun brýnna er að efla samstarf útflutn-ingsfyrirtækja á norður atlantshafi. lögð verður sér-stök áhersla á að efla samstarf við Færeyinga, norðmenn og Kanada-menn og er áhugi fyrir auknu sam-starfi í öllum þessum löndum.

vakið hefur athygli að á opnum fundum Íslenska sjávarklasans hafa stjór-

nmálamenn vart sést og ráðherrar ekki opnað eða lokað fundunum. jóhann jónasson hjá 3X og einn upphafsmanna sjávarklasans sagði á sjávarútvegsráð-stefnunni að sjávarklasinn hefði ekkert á móti stjórnmálamönnum en klasinn væri fyrst og fremst verkefni atvinnulífsins sjálfs og verkefnið væri að efla samstarf þeirra í útflutningi o.fl.

Flutninga- og hafnaklasi innan íslenska sjávarklasans hefur hafið stefnumörkunarvinnu

sem hefur að mark-miði að skilgreina ýmis tækifæri í flutningastarfsemi í landinu. meðal ann-ars verður horft til tækifæra á norðlæg-um slóðum. Í hópn-um eru m.a. eimskip, icelandic, faxaflóahafnir, isavia, samskip, icelandair cargo og Hafnarfjarð-arhöfn.

oft heyrist að rösklega 8500 einstaklingar starfi við veiðar og vinnslu. Þá er ekki

tekið með í reikn-inginn allir þeir sem þjóna sjávarútvegi, þeir sem starfa við lýsisframleiðslu og aðra iðnaðarfram-leiðslu sem tengist sjávarútvegi, þeir sem stunda sjálfstæðan útflutning á ýmissi tækni tengdri sjávarklas-anum o.s.frv. nær væri að tala um að bein störf tengd sjávarklasanum séu um 20 þúsund.

32 janÚar 2012 sjávarklasinn

Page 33: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

elliði vignissOn bæJarstJóri í vestMannaeyJuM:

» 1. Hvaða breytingar er þarfast að gera á núverandi kerfi?fyrir það fyrsta þá verða stjórnmálamenn að átta sig á því að núverandi kerfi er að mörgu leyti afbragðs gott. við íslendingar lifum ekki bara á fiskveiðum í þessu kerfi heldur erum við full samkeppnisfær við aðrar þjóðir hvað sjávarútveg varðar jafnvel þótt þær niðurgreiði sinn sjávarútveg. Það er því engin ástæða til að bylta kerfinu eða koll-steypa því. nær er að tala um þróun þess og slíkt verður ekki vel gert nema í fullri sátt við okkur í sjávarbyggð-unum. breytingar á sjávarútvegskerfinu má hvorki gera á forsendum kaffispjalls í reykjavík né á forsendum þeirrar öfgakenndu pólitíkur og heiftar sem notuð hefur verið sem aflgjafi í umræðu um sjávarútveg eftir hrun. að þessu sögðu myndi ég vilja sjá td. veiðiskyldu aukna, aukin hvata til fjárfestinga í sjávarútvegi og meiri viður-kenningu á rétti þeirra sem vinna að nýsköpun í veiðum. Þá getum við aldrei orðið sátt við það að atvinnugrein okkar á landsbyggðinni búi við þyngri skatta en aðrir. Það þarf að leiðrétta.

» 2. á að taka tillit til byggðarsjónarmiða og atvinnusjónarmiða í breyttum lögum?af sjálfsögðu á að gera það en byggðasjónarmið verða best tryggð með hagsælum veiðum og vinnslu. Það er algerlega fráheyrt þegar því er haldið fram að kvótakerf-ið sé rót byggðarröskunar á íslandi. Þrátt fyrir að við hér í vestmannaeyjum höfum stöðugt verið að auka hlut-deild okkar í aflamarkskerfinu þá hefur íbúum fækkað um nálægt 20% á sama tíma. skýringin er einfaldlega sú að störfum við veiðar og vinnslu hefur fækkað vegna aukinnar tæknivæðingu. Þá er borgin að taka of mikið til sín af opinberu fjármagni og þar með fólki og tæki-færum. Þorpi á landsbyggðinni verður ekki bjargað með einhverjum tonnum til eða frá. ef guð lofar að vilji vakni hjá íslendingum til að rétta hlut landsbyggðarinnar þá þarf það að gerast á heildstæðum grunni svo sem á for-sendum samgangna, tækifærum til menntunar, tryggu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og nýsköpunar í atvinnu-lífinu.

» 3. Hversu stóran hluta kvóta er eðlilegt að nota til potta, eða jöfnunaraðgerða?Það er úrelt og hættuleg hugsun að gefa sér að pottar og jöfnunaraðgerðir séu til bóta. ég fæ hreinlega ekki séð að pottar séu rétta leiðin til að styrkja samfélögin á landsbyggðinni. ég lít á mig sem mikinn landsbyggðar-mann og myndi í öllum tilvikum leggja lykkju á leið mína í baráttu fyrir hinum dreifðari byggðir. ég styð því heils-hugar stuðning við veikari byggðir, og þar með ætlaðan tilgang að baki pottum og jöfnunaraðgerðum. ég bara fæ ekki séð að byggðakvóti skili þeim árangri sem að er stefnt. reglur um byggðakvótann bjóða heim hættunni á spillingu og miðstýringu. Þær víkja til hliðar þeim megin-sjónarmiðum sem varðað hafa stefnuna í sjávarútveg-inum undanfarinn áratug. Þeim sem starfa í greininni er mismunað með því að handvalin eru ákveðin byggðarlög sem skuli fá kvótann. ákveðið er að svo og svo miklum afla skuli landað á ákveðnum stöðum án tillits til mark-aðslegra forsendna. vandinn er að auki sá að stjórnvöld þurfa einnig að ákveða hvaða aðili í byggðarlaginu skuli fá úthlutað kvóta. verður það aðili sem alla tíð hefur staðið sig í sínum rekstri eða sá sem verr hefur gengið? við hér í eyjum höfum nýlega reynslu af því að standa afar veikt og glíma við neikvæða íbúaþróun.byggðakvóti hefði litlu sem engu breytt í þeirri stöðu. í stað þessa kerfis tel ég að finna verði gegnsærri og árangursríkari leiðir til að styðja byggðalög í vanda, til dæmis með fjár-stuðningi til uppbyggingar á tryggari atvinnuleiðum, auknu aðgengi að menntun, betri samgöngum og þar fram eftir götum.

» 4. er nauðsyn að þingið ljúki breytingum á þessu vorþingi þannig að ný lög taki gildi fyrir nýtt fisk-veiðiár, 1. september í haust?ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá treysti ég vart leng-ur núverandi stjórnvöldum til að koma heiðarlega fram hvað sjávarútveginn varðar. skaðinn sem þessi fálm-

kenndu vinnubrögð hafa nú þegar valdið okkur er gríðarlegur. áttum okkur á því að ráðherra í ríkisstjórninni lýsti seinasta stjórnarfrum-varpi þessarar ríkisstjórnar um sjávarútveg sem bílslysi. áttum okkar líka á því að við í sjávar-byggðunum sitjum uppi með afleiðingar af þessu slysi. við þurftum að bregðast við ruglinu. verja hundruðum vinnustunda í að verjast. reikna okkur til dreps í álitum í þeirri von að skilnings-

neisti kviknaði hjá þeim sem um málið fjölluðu. starfs-menn óttast atvinnuöryggi sitt. eigendur vita vart hvort þeir eru að koma eða fara og dettur ekki einu sinni í hug að fjárfesta eða vinna nýja markaði og til hvers? til þess að nýr ráðherra geti gert enn eina tilraunina byggða á sömu hugmyndafræði - að skattleggja landsbyggðina. nei ég held að það væri best að leyfa sárunum undir ilj-unum aðeins að gróa áður en á ný er haldið í hlaup á grýttum vegi.

» 5. annað?Það er mat mitt að þær hugmyndir sem hingað til hafa komið úr ranni núverandi ríkisstjórnar feli almennt í sér aukið óhagræði í rekstri sjávarútvegsfyrirtækja. frá-hvörf frá markaðstengslum, verðmætasköpun og skil-virkni munu auka kostnað við hvert sótt kíló. frá 1991 hefur mikil samþjöppun átt sér stað í sjávarútvegi, bæði veiðum og vinnslu.skýr merki þessa eru að finna í þeim staðreyndum að togurum hefur fækkað um 47% og fimm stærstu aflahlutdeildarhafarnir hafa aukið hlut-deild sína úr 17% árið 1995 í 35,17% árið 2011. svipuð landslagsbreyting hefur átt sér stað í vinnslu sjávaraf-urða. árið 1992 var fjöldi vinnsluleyfa 402 en árið 2007 voru þau 275. vestmannaeyjar kristalla þessa breytingu sem varð á landsvísu. fyrirtæki í sjávarútvegi í vest-mannaeyjum eru nú færri en langtum sterkari. stærri fyrirtæki geta lækkað meðalkostnað með aukningu veiða. Þau hafa nú aukið verðmætasköpun og eru betur í stakk búin til að sinna beinum samskiptum við við-skiptavini sína og bregðast við síbreytilegum kröfum markaðarins. á sama tíma og stjórnvöld flytja störf af landsbyggðinni til borgarinnar fara öflug fyrirtæki í hina áttina. mörg verðmæt störf innan sjávarútvegs-fyrirtækja hafa verið flutt frá höfuðborgarsvæðinu til landsbyggðarinnar. Opinberi farvegur virðisauka í sjáv-arútvegi er eins og suga frá landsbyggðinni í borgina. virðiskeðjan í fyrirtækjunum, allt frá undirbúningi veiða (veiðarfæragerð, skipasmíði og fl.) til markaðssetningar, fer hinsvegar í auknu mæli fram í nábýli við þau sam-félög sem standa að verðmætasköpuninni. landsbyggð-in er ekki lengur eingöngu hráefnisframleiðandi fyrir sölubatterí á höfuðborgarsvæðinu heldur frjór jarðvegur fyrir öflug matvælafyrirtæki á alþjóðamarkaði. líklegt er að lengra hefði verið gengið í þessa átt hefði ríkisvald-ið ekki valdið þeirri gríðarlegu óvissu sem verið hefur á seinustu árum.

hagkvæm og arðbær fyrirtæki eru forsenda velgengni sérhvers byggðarlags. ég vara sérstaklega við aftur-hvarfi til þeirrar hugsunar sem einkenndi íslenskan sjávarútveg til margra ára og fólst fyrst og fremst í því að auka afkastagetu með fjárfestingu í tækjum og aðstöðu til veiða og vinnslu. hagsmunir vestmannaeyja eins og annarra sambærilegra byggðarlaga er að atvinnu-lífinu séu búnar forsendur fyrir því að störf sem verða til í kringum grunnatvinnuveginn krefjist menntunar og þekkingar og séu staðsett á landsbyggðinni. í þessu samhengi er nærtækt að nefna að þrátt fyrir að um 13% aflaheimilda séu staðsett í vestmannaeyjum er einungis 1 stöðugildi hafrannsóknarstofnunar í vestmannaeyj-um (samtals eru um 200 starfsmenn hjá stofnuninni), háskóli íslands er ekki með neinn starfsmann, fiskistofa með litla starfsemi og þannig má áfram telja. ég hafna líka með öllu þeirri aðferðafræði að gera landsbyggðina alfarið ábyrga fyrir sjálfri sér. Þegar illa gengur á flateyri eða breiðdalsvík mega stjórnmálamenn í reykjavík ekki taka sig til og flytja tækifæri frá grindavík eða fjarða-byggð þangað. á sama tíma er hinsvegar haldið áfram að þenja út reksturinn í höfuðborginni. ef pólitískur vilji er til að styrkja þau bæjarfélög og svæði sem eiga undir högg að sækja vegna hnignandi atvinnulífs og fólks-fækkunar þá er eðlilegt að það sé gert á heildstæðum samfélagslegum grunni en ekki lagt á herðar einnar at-vinnugreinar.

sigurður viggóssOn fraMkvæMdastJóri Odda á patreksfirði:

» 1. Hvaða breytingar er þarfast að gera á núverandi kerfi?sem minnstar breytingar, en sníða af þá annmarka sem hindra að útgerð og fiskvinnsla í landi geti gert langtíma-áætlanir í rekstri og viti nokkurn vegin hvað er framundan. minnka sem mest misstýringu stjórnvalda á þessu kerfi eins og öðrum. hugmyndir og tillögur sáttanefndarinnar sem skil-aði áliti haustið 2010 er eitthvað sem hægt er að byggja á til að ná eins mikill sátt og hægt er í þessu máli.

jafnframt þarf að upplýsa þá landsmenn sem horfa á þessa atvinnugrein (sjávarútveg) sem sérstakan skattstofn fyrir sig, með það í huga að allir eiga að vera jafnir í skattlagningu. hóflegt auðlindagjald getur átt rétt á sér, en þá þarf að taka auðlindagjald af öllum auðlindum.

» 2. á að taka tillit til byggðarsjónarmiða og atvinnusjónarmiða í breyttum lögum?já að sjálfssögðu á að taka tillit til byggðarsjónarmiða og atvinnusjónarmiða í breyttum lögum. útgerð og fiskvinnsla er lykilatvinnugrein víða á lands-byggðinni og væri ábyrgðarlaust að gera það ekki. við viljum samt sem áður búa við samkeppnisumhverfi, þar sem þeir sem sýna besta árangur fái notið sín. nálægð við gjöful fiskimið og verkþekking í sjávarútvegi er hluti af þeim styrkleika sem þarf að nýta áfram. byggðamál í sinni víðustu mynd verða ekki leyst eingöngu með stuðningi eða skattlagningu fyrirtækja í sjáv-arútvegi og á kostnað þeirra, þarna þarf að koma til miklu meiri og víðtækari lausnir. við þurfum ekki að finna upp hjólið í byggðamálum, það er nægi-legt að líta til nágrannaþjóða okkar sem vita að byggðamál er þjóðfélags-legt verkefni en ekki einstakra atvinnugreina. síðan má horfa á árangur af byggðaaðgerðum á íslandi til að læra af því sem vel hefur tekist og ekki.

» 3. Hversu stóran hluta kvóta er eðlilegt að nota til potta, eða jöfnunaraðgerða? núverandi pottar eru nægilegar stórir, en þeir eiga að vera notaðir til jöfnun-araðgerða tímabundið eftir að áföll að orðið í einstökum byggðum, samhliða öðrum byggðaaðgerðum. Pottaúthlutanir mega aldrei vinna á móti festu í atvinnu sjávarþorpa og eiga ekki að vera pólitískar úthlutanir til að afla at-kvæða. Það getur verið hægt að horfa til nýrra lausna svo sem að auka hlut potta, þegar aflaheimildir eru komnar upp í það magn sem var fyrir 20 árum t.d. þegar þorskaflaheimildir eru komnar yfir 280þús. tonn á ári. » 4. er nauðsyn að þingið ljúki breytingum á þessu vorþingi þannig að ný lög taki gildi fyrir nýtt fiskveiðiár, 1. september í haust?best væri að ljúka sem fyrst þessari eilífðarumræðu um stjórn fiskveiða, en ég held að núverandi stjórnarflokkar séu ekki hæfir til þess og muni nota þetta mál í kosningum að ári, það yrði þá í fjórða eða fimmta skipti sem það er gert að pólitísku þrætuepli fyrir þingkosningar. Því miður er búið að rugla fólk þessa lands svo í ríminu að þeir þykjast hafa helst vit á sjávarútvegi, sem aldrei hafa migið í saltan sjó eða hafa aldrei komið út fyrir borgarmörkin. um-ræða og lausnir svona vitringa leiðir aldrei til góðs og fyrir okkur sem lifum og störfum við þetta alla daga og jafnvel alla ævina er komið nóg af þessu eilífðarmáli.

» 5. annað?færum umræðuna út úr þrætubókarlistinni og fáum alla hagsmunaaðila að borðinu með hjálp færustu sérfræðinga á sviði sjávarútvegs og viðskipta til að setjast enn einu sinni yfir verkefnið og skila hugmyndum sem eru laus við yfirboð og yfirborðsmennsku. sjávarútvegurinn hefur tekið þátt í um-ræðunni og er til að gera það lengur, en annarleg sjónarmið önnur en rekstr-arleg og viðskiptaleg verða að vera víkjandi.

örn pálssOn fraMkvæMdastJóri landssaMbands sMábátaeigenda:

» 1. Hvaða breytingar er þarf að gera á núverandi kerfi?gera þarf samninga við aflahlutdeildarhafa þar sem þeir afsala sér öllum eignarrétti af auðlindinni eða tilkalli til hans. samningurinn feli þeim nýtingu auðlindarinnar til ákveðins tíma 25 - 30 ár. verðgildi samnings verði ígildi þess sem veiðiheimildir viðkomandi eru í dag.

framsal veiðiheimilda verði án takmarkana að undanskildum veiðiheimildum krókaaflamarksbáta sem verði óheimilt að flytja þær til skipa á aflamarki.

línuívilnun nái til allra dagróðrabáta en verði mismikil m.t.t. atvinnusköpunar í landi.

veiðigjald verði sérstakur skattur á viðkomandi útgerð - þann-ig væru sanngirnissjónarmið í heiðri höfð og tækju mið af afkomu hvers og eins og mundi koma til móts við þá sem nýlega hafa haslað sér völl í útgerð og væntanlega útgerðaraðila. Það fyrirkomulag

sem nú er er afar ósanngjarnt þar sem tekið er mið af af-komu allrar útgerðarinnar og gjaldið það sama fyrir alla án tillits til þess hver afkoma einstakra útgerða er. t.d. eru út-gerðir uppsjávarskipa þokkalega í stakk búnar að taka við boðuðum hækkunum á veiðigjaldi meðan útgerðir skipa sem stunda bolfiskveiðar þola nánast engan kostnaðar-auka. núverandi fyrirkomulag tekur ekki tillit til þessa.

á byggðakvóta verði sama fyrirkomulag og við línuí-vilnun. hann nái til allra dagróðrabáta og virki sem ívilnun

(ákv. prósenta) við löndun sem bætist þannig við kvóta viðkom-andi. afli til strandveiða verði viðbót við ákvörðun um heildarafla en dragist ekki frá eins og nú er gert. með því yrði tekið tillit til þess að strandveiðar eru eingöngu stundaðar með handfærum sem á engan hátt geta ógnað nokkrum fiskistofni né skaðað lífríkið

» 2. á að taka tillit til byggðarsjónarmiða og atvinnusjónarmiða í breyttum lögum?já - hiklaust

» 3. Hversu stóran hluta kvóta er eðlilegt að nota til potta, eða jöfnunaraðgerða?ásættanlegt það sem nú er.

» 4. er nauðsyn að þingið ljúki breytingum á þessu vorþingi þannig að ný lög taki gildi fyrir nýtt fiskveiðiár, 1. september í haust?Það væri æskilegt, þannig sjá menn betur til framtíðar og þurfa ekki stöðugt að hafa áhyggjur af því hvað taki við. hér verður þó að vanda til allra verka þar sem málefnið er afar viðkvæmt og vandmeðfarið.

» 5. annað?nema þarf úr gildi heimildir til veiða með flottrolli innan 50 sjó-mílna. friða þarf grunnslóðina fyrir dragveiðafærum - þar verði friðland og eingöngu heimilt að veiða bolfisk með kyrrstæðum veiðafærum (handfæri, lína og net).

útvegsblaðið janÚar 2012 33

Page 34: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

34 janÚar 2012 útvegsblaðið

grindavík er þriðja aflahæsta höfn landsins og pláss á bátum í bæjar-félaginu eru vel á þriðja hundrað talsins. aftur á móti er einungis þriðjungur skipverja á grindvískum bátum búsettir í grindavík og nú hafa bæjaryfirvöld hrundið af stað kynningarátaki sem er ætlað að hvetja sjómenn til að íhuga grinda-vík sem valkost til búsetu.

„Frá áramótum höfum við farið um borð í fimm báta hér í grindavík og talað við áhafnir og kynnt fyrir þeim það sem bærinn hefur upp á að bjóða. við munum halda þessu kynningarátaki áfram á næstu mán-uðum og áætlum að fara um borð í alla bátana,“ segir róbert ragnars-son, bæjarstjóri grindavíkur.

að sögn róberts hafa hann og Þorsteinn gunnarsson, upplýsinga- og þróunarfulltrúi grindavíkurbæj-ar, fengið góðar móttökur um borð í

skipunum og sjómennirnir almennt virst áhugasamir. margar spurn-ingar hafa brunnið á sjómönnun-um, m.a. varðandi atvinnumögu-leika fyrir maka, fasteignaverð og þá grunnþjónustu sem bæjarfélag-ið hefur upp á að bjóða.

sjávarútvegsbær með öfluga ferðaþjónustu„margar af eiginkonum þeirra sjó-manna sem við höfum rætt við eru annaðhvort í námi eða hafa lokið framhaldsmenntum. Því hafa þær minni áhuga á störfum í fiskvinnslu en meiri áhuga á ýmsum þjónustu-störfum. Hér hefur störfum í ferða-þjónustu fjölgað á síðustu árum og sú þróun fer vel saman við vænting-ar okkar um að grindavík verði sjáv-arútvegsbær með öfluga ferðaþjón-ustu,“ segir róbert.

Hann segir sjómennina einnig hafa spurt um grunnþjónustu eins og leik- og grunnskóla. „við erum með tvo leikskóla og 460 barna

grunnskóla þar sem við erum ein-ungis með réttindakennara. síð-an er íþróttastarf bæjarins gríðar-lega sterkt. við erum með fjölnota íþróttahús og önnur aðstaða er til fyrirmyndar. Þar getum við þakkað sjávarútvegsfyrirtækjum í bænum því þau hafa svo sannarlega styrkt íþróttastarf bæjarins og metnaður-inn er mikill. Ég hef stundum sagt að ungmennafélag grindavíkur sé

best heppnaða klasasamstarf sjáv-arútvegsfyrirtækja á Íslandi. “

að sögn róberts er til talsvert af tilbúnum lóðum í bænum og þar er hægt að fá lóð fyrir meðalstórt ein-býlishús á tvær til þrjár milljónir króna. „við höfum verið lág í flestum gjaldskrám og það er ódýrara að búa í svona bæ en á höfuðborgarsvæðinu, en eins og gefur að skilja er meira um akstur ef annar aðilinn þarf reglu-lega að fara til reykjavíkur.“

öll sveitarfélög á suðurnesjum eru nú að skoða hvernig bæta má almenningssamgöngur á svæðinu. bæjaryfirvöld í grindavík áforma að efla almenningssamgöngur á milli grindavíkur og reykjanesbæj-ar annars vegar og grindavíkur og reykjavíkur hins vegar.

næga vinnu að fáatvinnuleysi í grindavík hefur verið tæp 5% síðustu misseri en að sögn róberts gefur sú tala ekki raunsæa mynd af atvinnuástandinu. „Hér er næga vinnu að fá og miklu betra

ástand en annars staðar á suður-nesjum. við erum að skapa fleiri störf en við erum að manna og þar ber helst að þakka öflugum sjávar-útvegi og stöðugum vexti í ferða-þjónustu,“ segir róbert og við-urkennir að hann á erfitt með að útskýra hvers vegna það er yfir höf-uð hægt að finna atvinnulaust fólk í grindavík.

bæjaryfirvöld í grindavík áforma að fara í miklar fjárfestingar á þessu ári og því næsta. nú þegar er hafin stækkun á íþróttahúsi bæjarins og síðan er áformað að fara í bygg-ingu almenningsbókasafns og tón-listarskóla. „einnig ætlum við í átak tengdu ferðaþjónustunni, t.d. með því að leggja göngustíga upp í bláa lónið og bæta stíga hér um hafnar-svæðið. við munum fjárfesta um 500 milljónum á þessu ári og 400 milljónum á næsta ári án þess að taka nokkur lán. bærinn er því sem næst skuldlaus og á fyrir öllum þeim framkvæmdum sem fyrirhug-aðar eru.“

vilja fleiri sjómenn til grindavíkurBæjarstjóri grindavíkur vill fá fleiri sjómenn í bæinn:

Kynnið ykkur kos� þess að búa í Grindavík.Allar nánari upplýsingar á www.grindavik.is

Sjómenn!

auglysinggoggur:Layout 1 27.1.2012 14:20 Page 1

Haraldur guðmundsson skrifar:[email protected]

» róbert ragnarsson, bæjarstjóri grindavíkur, um borð í einu af grindvísku skipunum.

Það er gott að búa í grindavík

n besa ehfn gröfuþjónusta P. gíslasonar

marvergrindavík

Page 35: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

„Það er ósamboðið embætti forsæt-isráðherra hvernig jóhanna sigurð-ardóttir hefur með uppnefnum og dónaskap vegið að fólki í sjávarút-vegi. Fólki sem hefur ekkert annað gert en að fara að lögum sem hún sjálf átt þátt í að setja. Það var ekki mikil reisn yfir málflutningi forsæt-isráðherra og formanns samfylk-ingarinnar í ræðu á flokksstjórnar-fundi um helgina. ræðan var skýr vísbending um að tilgangurinn helgi meðalið,“ segir Friðrik j. arn-grímson, framkvæmdastjóri lÍú.

„nú er að duga eða drepast,“ sagði forsætisráðherra í ræðu sinni á fundi flokksstjórnar samfylk-ingarinnar. Í ræðunni voru dregin fram kunnugleg slagorð og ræðan krydduð með hnjóðsyrðum. Hér fara nokkur dæmi um orðfærið sem heyra mátti í ræðunni: íhaldsöfl, forréttindastéttir, valdaklíka íhalds-afla og sægreifa, hagsmunagæslu-öfl, gíslataka, grímulaus valdaklíka og óskammfeilnar þvingunarað-gerðir. Í niðurlagi ræðu sinnar herti forsætisráðherra róðurinn enn: „við megum ekki unna okkur hvíldar fyrr en þessi orusta um auðlindir Ís-lands – orustan gegn sérhagsmun-um og með almannahagsmunum vinnst með fullnaðarsigri þjóðar-innar.“

ekki fyrsta stríðsyfirlýsingin„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem for-sætisráðherra ræðst gegn út-vegsmönnum og þeim þúsundum manna og kvenna sem vinna í sjáv-arútvegsfyrirtækjum um land allt. Þegar erfiðleikar steðja að í stjórn-arsamstarfinu eða innan flokks í samfylkingunni virðist þetta ávallt vera það fyrsta sem henni dettur í hug ,“ segir Friðrik.

Framkvæmdastjóri lÍú segir ummæli forsætisráðherra um or-ustu um auðlindir landsins mark-laus þar sem útvegsmenn hafa staðið að samkomulagi um að gerðir yrðu samningar um afnot útgerð-arinnar af aflahlutdeildum. verði slíkir samningar gerðir fari ekkert á milli mála hver sé eigandi auðlind-arinnar. adolf guðmundsson, for-maður lÍú, gerði þetta að umtals-efni í ræðu sinni á síðasta aðalfundi samtakanna. Þar sagði hann m .a.:

tímabundnir afnotasamningar„Í september 2010 skilaði nefnd um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða, sem við gáfum nafnið „sáttanefndin“, skýrslu til sjávarút-vegsráðherra. Þar var megin niður-staðan sú að byggja stjórn fiskveiða áfram á aflamarkskerfinu, en að í stað ótímabundinna afnota af afla-heimildum yrðu gerðir tímabundnir afnotasamningar á milli útgerð-anna og ríkisins. Þetta hefur verið nefnt samningaleiðin.

við ákváðum að standa að þess-ari megin niðurstöðu enda er afar mikilvægt að skapa frið um starfs-skilyrði sjávarútvegsins. Forsenda okkar var að ásættanleg niður-staða næðist í framhaldi af starfi nefndarinnar um grundvallar-atriði. Þar má nefna samningstím-ann, rétt útgerða til framlengingar samnings, takmörkun pólitískrar úthlutunar veiðiheimilda og veiði-gjald,” sagði adolf í ræðu sinni og hélt áfram:

eignarhaldið óumdeilt„við treystum því að unnið yrði á faglegum nótum þar sem áhrif breytinga yrðu vegin og metin í sam-vinnu stjórnvalda og atvinnugrein-arinnar. jafnframt yrði stjórnarskrár-varinn réttur útvegsmanna virtur.

en annað kom á daginn. ekk-ert samráð var haft við fulltrúa atvinnugreinarinnar við samningu tveggja lagafrumvarpa sem lögð voru fram á alþingi í vor. Þess í stað höfum við ítrekað mátt hlýða á for-sætisráðherra lýsa heilögu stríði sínu um auðlindirnar fyrir hönd þjóðarinnar.

Hvað þýðir þetta? verði samn-ingaleiðin farin þá gera útvegs-menn samning við ríkið um tíma-bundin afnot af aflaheimildum gegn gjaldi. Hver er þá eigandinn? sá sem veitir afnotin eða sá sem fær þau tímabundið gegn greiðslu gjalds?“ sagði formaður lÍú.

Friðik segir óásættanlegt fyrir starfsfólk heillar atvinnugreinar að hafa þurft að sitja undir hót-unum og svívirðingum af hálfu for-sætisráðherra þjóðarinnar í nær þrjú ár. ekkert tækifæri hafi verið látið ónotað til þess að kynda undir ófriðarbáli gagnvart sjávarútveg-inum. á sama tíma eigi íslenska þjóðin lífsafkomu sína að veruleg-um hluta undir því að undir því að fá hámarksarðsemi af takmörkuðum auðlindum sjávar.

arðbær sjávarútvegur ...„staðreyndir tala sínu máli. sjávar-útvegur er óvíða í veröldinni eins arðbær og hér á landi. Það ætti auð-vitað að vera keppikefli stjórnvalda að stuðla að enn frekari aðsemi hans með því að búa atvinnugrein-inni stöðugt rekstrarumhverfi,“ segir Friðrik og vísar þar m.a. til skýrrar langtímastefnu í fiskveiði-stjórn og traustra, vandaðra og gagnsærra leikreglna sem fylgt væri til langframa.

Í frétt sem nýverið birtist á vef-síðu landssambands íslenskra út-

vegsmanna, var fjallað um skýrslu þar sem m.a. var fjallað um niður-greiðslur til sjávarútvegsfyrirtækja. samkvæmt skýslunni eru þær hvergi meiri í heiminum en í evrópu-sambandinu, japan og Kína. esb styrkti sjávarútveg aðildarríkjanna um sem svarar 530 milljörðum ís-lenskra króna á árinu 2009. Það er um helmingur alls aflaverðmætis aðildarríkjanna.

... eða opinberir styrkir?Í umræddri skýrslu kemur m.a. fram að þrettán aðildarríki esb fengu árið 2009 niðurgreiðslur sem námu hærri upphæð en nam aflaverð-mæti viðkomandi ríkja. niður-greiðslunar eru af margvíslegum toga, m.a. til endurnýjunar skipa og til þess að greiða niður hátt olíu-verð. ríflega 40% styrkja evrópu-

sambandsins runnu til sjávarút-vegsfyrirtækja á spáni, í Frakklandi og danmörku.

samkvæmt skýrslunni er fisk-veiðifloti evrópusambandsland-anna allt of stór. afleiðingar þess birtast m.a. í því að meirihluti fiski-stofna innan lögsögu sambandsríkj-anna er ofveiddur og mikið tap er á atvinnugreininni. Í grænbók esb um sameiginlegu fiskveiðistefnuna (Common Fisheries Policy) sem kom út vorið 2009 er greint frá því að að-eins í örfáum tilvikum sé sjávarút-vegur innan evrópusambandsins rekinn með arðbærum hætti. Í flest-um tilvikum sé arðsemi óveruleg eða tap á rekstrinum.

alþjóðabankinn og Fao, mat-væla- og landbúnaðarstofnun sam-einuðu þjóðanna, gáfu árið 2009 út skýrslu um afkomu fiskveiða í heim-

inum. Í henni kemur fram að áætlað er að tap á fiskveiðum í heiminum árið 2004 hafi numið sem svarar 600 milljörðum íslenskra króna (5 milljarðar usd) í stað þess að skila sem svarar allt að 6.000 milljörðum íslenskra króna (50 milljarðar usd) í arð. meginskýringin er rakin til stjór-nleysis í veiðum.

esb hefur séð lausninaFriðik segir að við endurskoðun hinnar sameiginlegu sjávarútvegs-stefnu evrópusambandsins sem nú er unnið að hafi framkvæmda-stjórnin lagt megin áherslu á að innleiða svipað fyrirkomulag fram-seljanlegra aflaheimilda og byggt er á hér á landi. Framkvæmdastjórnin, með róttækan sósíalista í broddi fylkingar, hafi séð að kvótakerfið sé leiðin til að að vinna á ofveiði, of-fjárfestingu, óhagkvæmni, tapi og ríkisstyrkjum. með því megi byggja upp arðsaman og sjálfbæran sjávar-útveg líkt og Íslensingar hafi gert.

„Það er umhugsunarvert að á sama tíma og samfylkingin stendur fyrir umsókn Íslands að evrópu-sambandinu hafi flokkurinn unnið að því með forsætisráðherrann í broddi fylkingar að brjóta niður kvótakerfið,“ segir Friðrik j. arn-grímsson.

landssamband ÍslensKra útvegsmanna

útvegsblaðið janÚar 2012 35

vanvirðing forsætisráðherra-embættisins og stjórn fiskveiða

» friðrik j. arngrímsson, framkvæmdastjóri líÚ.

Page 36: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

36 janÚar 2012 útvegsblaðið

Tæp 10% af þorski tekin framhjá aflahlutdeildarkerfinu:

aldrei hefur hærra hlutfall leyfilegs heild-arafla í þorski farið í pottana svokölluðu en á þessu fiskveiðiári. leyfilegur heild-arafli þorsks á þessu ári er 177.000 tonn. Fyrir úthlutun innan aflahlutdeildarkerf-isins eru dregin frá því magni 16.852 tonn. samtals er úthlutuð aflahlutdeild 160.148 tonn. Hlutfallið sem fer í pottana er því um 9,5%. á síðasta fiskveiðiári var þetta hlut-fall 7,9% en fiskveiðiárin þar áður var hlut-fallið mun lægra eða í kringum 5%, lægst 2006/2007, 4,6%. Hlutfall pottanna hefur því meira en tvöfaldast síðan þá.

strandveiðar og vs-afli stærsti hlutinnHelsta skýringin á því að mun hærra hlutfall fer nú í pottana er annars vegar strandveið-arnar, sem teknar voru upp á fiskveiðiárinu 2008/2009. Þær eru fyrst dregnar frá fyrir úthlutun á síðasta fiskveiðiári. Hins vegar að svo kallaður vs-afli, sem áður gekk undir nafninu Hafró-afli er nú áætlaður og dreg-inn frá fyrir úthlutun innan aflamarks árs-ins samkvæmt upplýsingum frá sjávarút-vegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Í þessa tvo potta renna nú samtals 7.945 tonn af þorski, 5.600 til strandveiðanna og 2.354 í vs-aflann, eða langleiðina í helmingur þess, sem tekinn er útfyrir aflamarkskerfið. auk þess eru nú tekin frá 300 tonn fyrir áætl-aða frístundaveiði. loks er byggðakvótinn aukinn um 2.500 tonn frá árinu áður. aukn-ingin er samkvæmt bráðabirgðaákvæði laga númer 116 frá árinu 2006. án þessa ákvæð-is hefði byggðapotturinn aðeins orðið 2.341 tonn, en verður nú 4.841 tonn. sama er að segja um aukninguna á strandveiðikvótan-um, sem nemur 2.000 tonnum. án hennar hefðu aðeins 3.600 tonn komið í hlut strand-veiðiflotans í stað 5.600 tonna.

aðrir pottar eru uppbætur vegna skel-

og rækjuveiða, 1.226 tonn, og línuívilnun, 2.531 tonn. Framlag í þann pott hefur verið minnkað um 844 tonn, en fiskveiðiárin þar á undan hefur þetta framlag verið óbreytt í 3.375 tonnum, eða allt frá því á línuívilnun-in var tekin upp árið 2003. vs-aflinn hefur ekki til þessa verið dreginn frá fyrir úthlut-un til aflamarks og frístundaveiðin held-ur ekki. byggðakvótinn hefur undanfarin ár verið nálægt 3.000 tonnum af þorski, en fór niður í tæplega 2.700 tonn, þegar leyfilegur heildarafli af þorski var aðeins 130.000 tonn.

á síðasta fiskveiðiári var leyfilegur heildarafli af þorski 160.000 tonn. 12.672 tonn voru þá tekin frá fyrir úthlutun og komu 147.328 tonn til úthlutunar. Þá voru 4.800 tonn tekin frá vegna strandveið-anna eða 3%, en á þessu fiskveiðiári er hlutfall strandveiðanna 3,2% og magnið 5.600 tonn. á fiskveiðiárunum næst á und-an, eða frá 2004/2005 eru frádráttarliðirn-ir aðeins þrír, skel- og rækjubætur, byggða-kvóti og línuívilnun og samanlagt hlutfall frá 4,6% upp í 6%.

undirmálið ekki dregið fráárið 2001 var sett heimild til að landa svo-kölluðum „Hafró-afla“ þar sem verðmæti aflans rann að stærstum hluta til starfsemi Hafrannsóknastofnunarinnar en seinna meir var ákveðið að þessir fjármunir rynnu til verkefnasjóðs sjávarútvegsins og heim-ildin því kölluð vs-heimild. samkvæmt þessari heimild er skipstjóra leyfilegt að ákveða að allt að 5% botnfiskafla reiknist ekki til aflamarks. Þeim afla skal landa á fiskmarkaði og 20% af aflaverðmæti fara til skipta milli útgerðar og áhafnar. 80% renna til verkefnasjóðsins. Þessar heimild-ir hafa verið nýttar í vaxandi mæli og mest þegar líður á fiskveiðiárið og þrengist um kvóta. jafnframt hafa heimildir til löndun-ar á undirmálsfiski utan kvóta verið nýtt-ar töluvert. Þær heimildir hafa ekki verið

metnar og dregnar frá leyfilegum heildar-afla fyrir úthlutun. síðustu fiskveiðiár hef-ur um 1.300 tonnum af þorski verið landað sem undirmáli.

eins og áður sagði er vs-aflinn í fyrsta sinn dreginn frá úthlutun til kvóta á þessu fiskveiðiári. á síðasta ári var 2.100 tonnum af þorski landað samkvæmt þeim heimild-um og á fiskveiðiárinu þar á undan 3.400 tonnum. Fiskveiðiárið 2008/2009 var 3.900 tonnum landað með þeim hætti.

eins og fram kemur hér fer hlutfall þorsks, sem tekið er frá fyrir úthlutun afla-marks, vaxandi, enda teknir nýir þætti þar inn og skipta strandveiðarnar þar mestu

máli. Hver framvindan verður í þessum málum er erfitt að spá. Í skýrslu starfshóps um endurskoðun á lögum um stjórn fisk-veiða frá því í september 2010 er farið yfir þessi mál og fjallað um mögulegar úrbætur á úthlutun í þessa potta.

skipt á milli tveggja potta„Það er mat meirihluta starfshópsins;n að endurskoða eigi lagaákvæði um bætur og festa þær í lögum sem hlutfall af heild-arafla í stað magntalna líkt og gert er nú. með þessu móti verði betur tryggt að þegar um samdrátt í heildarafla er að ræða komi hann jafnt niður á þeim sem bæturnar fá

Hefur meira en tvöfaldast

loks er byggðakvótinn aukinn um 2.500 tonn frá árinu áður. aukningin er samkvæmt bráðabirgðaákvæði laga númer 116 frá árinu 2006. án þessa ákvæðis hefði byggðapotturinn aðeins orðið 2.341 tonn, en verður nú 4.841 tonn. sama er að segja um aukninguna á strandveiðikvótanum, sem nemur 2.000 tonnum. án hennar hefðu aðeins 3.600 tonn komið í hlut strandveiðiflot-ans í stað 5.600 tonna.

n Ásafl hefur gott úrval af vélum, rafstöðvum og öðrum búnaði fyrir báta og stærri skip. Persónuleg þjónusta, snögg og góð afgreiðsla ásmat hagstæðum verðum gerir öll viðskipti við Ásafl ánægjuleg. Okkar helstu vörumerki eru Isuzu, Doosan, FPT, Westerbeke, Helac, Hidrostal, Hung Pump, Tides Marine, Halyard, ZF, BT-Marine, Ambassador Marine, Marsili Aldo, San Giorgi, Guidi, Wesmar, Isoflex ofl ofl.

Ráðg

jöf –

sala

– þjón

usta

Hjörtur gíslason skrifar:[email protected] hlutfall af

heimiluðum Þorskafla

fiskveiðiár magn hlutfall %

2003/2004 10.924 5,20%

2004/2005 12.503 6,10%

2005/2006 11.959 6,00%

2006/2007 8.879 4,60%

2007/2008 7.378 5,70%

2008/2009 7.444 5,70%

2009/2010 7.888 5,30%

2010/2011 12.762 7,90%

2011/2012 16.852 9,50%

Hlutfall af heimiluðum þorskafla

» árið 2001 var sett heimild til að landa svokölluðum „hafró-afla“ þar sem verðmæti aflans rann að stærstum hluta til starfsemi hafrannsóknastofn-unarinnar en seinna meir var ákveðið að þessir fjármunir rynnu til verkefnasjóðs sjávarútvegsins og heimildin því kölluð vs-heimild.

Page 37: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

útvegsblaðið janÚar 2012 37

sem og handhöfum aflahlutdeilda sama hvoru aflamarkskerfinu þeir eru í.

n lagt er til að heildarafla verði skipt á milli tveggja „potta“ þar sem aflamarki verð-ur úthlutað á grundvelli aflahlutdeildar til aflamarksskipa annarsvegar og hinsvegar í ívilnanapott til ráðstöfunar hverju sinni. að innan þessa ívilnanapotts verði atvinnu-, félags- og byggðatengd úrræði útfærð, þ.e. ívilnanir eða bætur sem að öðrum kosti hefðu áhrif á aflaheimildir þeirra sem fá út-hlutað á grundvelli aflahlutdeilda. Þann-ig verði í lögum fast hlutfall sem ráðstafað er til þessara þátta og fast hlutfall til afla-markskerfisins.

n ef byggðakvóti verður áfram í núverandi mynd, þá verði hann endurskoðaður og metinn út frá árangri, umfangi og umsýslu. Kannaðar verði leiðir til ívilnunar fyrir lönd-un innan byggðarlaga eða aðrar leiðir sem kunna að einfalda framkvæmd byggða-kvóta og auka um leið skilvirkni hans.

n að bætur vegna aflabrests í einstökum tegundum eigi rétt á sér enda verði slíkar

bætur tímabundnar og aðlögunartími skil-greindur. skoðað verði sérstaklega hvernig hlutdeildir allra tegunda geti lagt til vegna þessa enda geti bætur komið til í öllum fiski-stofnum, komi til viðkomubrests og veiði-banns.

n að við útfærslu „pottaleiðarinnar“ verði skoðað sérstaklega hvernig bætur og íviln-anir geti komið til með jafnri skerðingu af öllum fisktegundum og hlutfall þess sem fer í „ívilnanapottinn“ reiknist af heildarþorskí-gildum í stað þess að þetta sé einvörðungu tekið af þeim tegundum sem bætur og íviln-anir eru greiddar út í.“

Hverjir fá að sleikja pottana?meirihluti starfshópsins er samkvæmt þessu sammála um að heildarafla verði í framtíðinni skipt í tvo potta og hlutfallið fast á milli þeirra. annars vegnar pott íviln-ana og bóta og hinsvegar pott aflahlutdeild-ar. Hvergi kemur fram hvert hlutfallið milli þessara potta eigi að vera. á þessu fiskveiði-ári eru tæp 10% leyfilegs heildarafla í þorski tekin frá fyrir úthlutun aflamarks. ljóst er að útvegsmönnum þykir nóg um og verja

eðlilega hagsmuni sína. lengi hefur legið fyrir sjá vilji núverandi ríkisstjórnar að leysa aflamarkskerfið upp í núverandi mynd með svokallaðri fyrningarleið og að jafnframt verði mun meira tekið í pottana og til dæm-is myndaður sérstakur leigupottur. ekki hafa komið fram mótaðar hugmyndir um það hvernig slíkur leigupottur gæti starfað. Það hlýtur þó að vera ljóst að skerða þurfi enn frekar það hlutfall leyfilegs heildarafla,

sem fer til úthlutunar til aflamarksskipa og báta, eigi hið opinbera að setja aflaheim-ildir á markað. einu frumvarpi til laga um breytingu á stjórnun fiskveiða hefur þegar verið hafnað og drögum að öðru sömuleiðis. nýr sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, steingrímur j. sigfússon, hefur boðað nýtt frumvarp um stjórnun fiskveiða. Fróðlegt verður þá að sjá hve mikið verður þá í pott-ana látið og hverjir fá að sleikja þá.

við erum íslenskur sjávarútvegur

����������������������

Page 38: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

áhugi á makrílveiðum í flottroll ísnet framleiðir og selur yfirborðstroll fyrir stór og smá skip:

kYnning

veiðarfæraframleiðandinn Ísfell rekur sex netaverkstæði undir heitinu Ísnet sem hafa framleitt og selt á annan tug svokallaðra Ís-nets yfirborðstrolla fyrir stór og smá skip. birkir agnarsson, framleiðslustjóri fyrirtæk-

isins, segist hæstánægð-ur með árangur veiðar-færanna í makrílveiðum og að þeim sem hafi not-að troll fyrirtækisins hafi gengið mjög vel.

„stærsta trollið sem Ísnet hefur framleitt er 2208 metrar í ummáli og það minnsta er 520 metr-ar í ummáli. trollin eru öll útbúin með sexkants möskva fremst, í vængj-um og hluta af belg, til

þess að minnka togmótstöðu og auka veiði-hæfni. á trollin er notað segl, eða svokall-aður flugdreki, á miðjuna á höfuðlínunni til þess að halda trollinu upp í yfirborðinu þar sem makríllin heldur sig. trollin eru fram-leidd úr hágæða efnum frá viðurkenndum framleiðendum. við getum því hiklaust sagt að Ísnets trollin séu sterk, þau endast vel og eru fiskin,“ segir birkir.

Mikill áhugi minni skipa og dragnótabátabirkir segist finna fyrir miklum áhuga minni togskipa og dragnótabáta fyrir komandi makrílveiðar og segir Ísnet hafa sérhæft sig í hönnun og ráðgjöf fyrir minni skip og báta. „Þar kemur saman reynsla fyrri ára og eins hugbúnaður sem nýtist við hönnun og teikn-ingavinnu. með hugbúnaðinum vinnum við með togmótstöðu trollanna til þess að létta þau enn frekar í drætti, ásamt því að auka veiðihæfni og gegnumstreymi trollanna og spara olíu. mörg af þessum minni skipum hafa aldrei farið á flottrollsveiðar áður og

hafa ekki þau tæki sem stærri skip hafa um borð til að sýna afstöðu veiðarfæra við veið-ar. Það eru því spennandi tímar framundan fyrir komandi makrílveiðar sem gaman verð-ur að taka þátt í.“

trollin eru sett upp á netaverkstæði Ís-nets í Hafnarfirði en verkstæðið er að sögn birkis vel útbúið til flottrollsgerðar. ásamt því að búa til ný troll er Ísnet einnig með við-

gerðarþjónustu á flottrollum af öllum stærð-um og gerðum.

allt til flottrollsveiða á einum staðmeð trollunum eru seldir flottrollshlerar frá morgére í Frakklandi. „Ísfell hefur um árabil verið í góðu samstarfi við morgére og mörg íslensk togskip nota franska toghlera með góðum árangri. Það má segja að á síðustu

árum hafi togskipum sem nota eingöngu veiðarfæri frá Ísfelli fjölgað mikið. Það er algengt að skip noti bridon togvír, morgére hlera, höfuðlínukapal frá rochester og svo botn- eða flottroll frá Ísneti. Fyrir útgerðar-menn er mikið hagræði fólgið í að hafa kost á því að fá öll helstu veiðarfæri fyrir togskip á einum stað eins og Ísfell býður upp á,“ segir birkir að lokum.

» flottroll ísnets í tilraunatanki.

» Birkir agnarsson, framleiðslustjóri.

Húsfyllir var á árlegum markaðs-degi iceland seafood international sem var haldinn í iðnó, miðviku-daginn 18. janúar. Framleiðendur af öllu landinu mættu enda fjöl-breytt dagskrá í boði. dagurinn hófst með fundum framleiðenda og dótturfélaga í höfuðstöðvum isi við Köllunarklettsveg. eftir hádegi var haldið í iðnó þar sem flutt voru er-indi um stöðu og horfur á lykilmörk-uðum fyrir íslenskar sjávarafurðir í evrópu.

ólympíuleikar sóknarfæri fyrir íslenskan fiskÞað er ólympíuár og að þessu sinni verða leikarnir haldnir í london. Þar leynist stórt tækifæri fyrir ís-lenska framleiðendur. ólympíu-nefndin hefur gefið það út að kepp-endum verður boðið upp á samtals 90 tonn af fiski í ólympíuþorpinu á meðan að á leikunum stendur. Þá er ljóst að gríðarlegur fjöldi gesta mun vilja bragða á þjóðarrétti þeirra breta „fish and chips.“ Þar kemur íslenskur þorskur sterklega inn í myndina.

ísland stærsti innflytjandi til bretlands í verðmætumÍsland er stærsti innflytjandi sjáv-arafurða til bretlands, þegar horft er til upprunalands. Heildarverð-

mæti innflutnings frá Íslandi nam 228 milljónum sterlingspunda árið 2011. Kínverjar hafa tekið topp sætið af Íslandi í magni. Þetta kom fram í máli Friðleifs Friðleifssonar, deildarstjóra frystisviðs isi sem fór yfir stöðu og horfur í bretlandi.

guðmundur jónasson, deildarstjóri í ferskum fiski benti á að Frakkland væri orðinn nánast jafn stór mark-aður og bretland. vöxtur markað-arins væri stöðugur og mikilvægt væri að hlúa vel að Frakklands-markaði.

krepputeikn á lofti víða í evrópumagnús bjarni jónsson fram-kvæmdastjóri iceland seafood á spáni fór yfir stöðu og horfur á mörkuðum í s-evrópu. Hann benti á greinilega þróun í þá veru að neysla

á dýrari saltfiski hefur dregist saman en aukist í ódýrari saltfiski og þá oftast nær í útvötnuðum og létt söltuðum. Þetta á við um Ítalíu, Portúgal og spán.

tækifæri í rússlandi og í makrílathyglisvert var erindi oksönu diaguilevu innkaupastjóra russian Fish. Hún benti á að Ísland væri annar stærsti innflytjandi sjávaraf-urða til rússlands, með 10% mark-aðshlutdeild, á eftir noregi sem er með yfirburðastöðu á rússneska markaðnum og flytja inn 35%. oks-ana sagði Ísland eiga mikil tækifæri á rússneska markaðnum og sér-staklega með tilkomu makrílveiða. Hún sagðist sjálf ætla að horfa meira til Íslands í sínu starfi.

Árlegur Markaðsdagur iceland seafood international mjög vel sóttur:kYnning

víða tækifæri á mörkuðum en kreppan lætur finna fyrir sérHöfundur: eggert skúlason

» markaðsdagur isi tókst mjög vel og framleiðendur af öllu landinu fylltu iðnó til að hlusta á erindi um stöðu og horfur á lykilmörkuðum í evrópu. mynd/ÞórdÍs lareau.

» helgi anton eiríksson, forstjóri isi stýrði fundinum í iðnó sem var afar vel sóttur. mynd/ÞórdÍs lareau.

38 janÚar 2012 útvegsblaðið

Page 39: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

Egersund Trål , Svanavågen, 4370 Egersund Tlf.: 51 46 29 00, Faks: 51 46 29 [email protected], www.egersundgroup.no

Í fararbroddi í framleiðslu veiðarfæra

samvinna

Hefð

gæði og

útvegsblaðið janÚar 2012 39

Page 40: Útvegsblaðið 1. tbl. 2012

HV

ÍTA

SIÐ

/ S

ÍA 1

1-10

98

Við erum með hugann við það sem þú ert að gera

Ragnar Guðjónsson hefur starfað við fjármögnun sjávarútvegs í 40 ár. Ragnar er viðskiptastjóri í sjávarútvegsteymi Íslandsbanka.

Okkar vinna snýst um að þín vinna gangi vel. Við leggjum okkur fram um að setja okkur vel inn í það sem þú ert að gera,

við sjávarútveginn og hjá bankanum starfar stór hópur fólks með sérþekkingu á greininni. Þannig getum við ávallt tryggt fyrirtækjum í þessari undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar þá bankaþjónustu sem hún þarfnast.

Þekking sprettur af áhuga.