Iðnaðarblaðið 1. tbl 2012

16
Nýr forstjóri Alcoa Magnús Þór Ásmundsson er nýráðinn forstjóri Alcoa á Íslandi, eignarhaldsfélags Fjarðaáls. »14 Tækifæri til sóknar Stjórnendur tveggja stórra verktaka- fyrirtækja segja árið 2011 hafa verið erfitt og ekki staðist væntingar um batnandi tíma í íslenskri mannvirkjagerð. Fyrirtæki þeirra hafa þurft að leita í auknum mæli til annarra landa eftir verkefnum og neyðst til að segja upp starfsfólki. Að þeirra mati eru þó ýmis tækifæri til sóknar á þessu ári. »4-5 Þ J ó N U S T U M I ð I L L I ð N A ð A R I N S janúar 2012 » 1. tölublað » 4. árgangur Vistvænt eldsneyti Carbon Recycling International hóf til- raunaframleiðslu á metanóli í haust og nýopnuð verksmiðja fyrirtækisins starfar eins og hönnuðir gerðu ráð fyrir. »10 Gosdrykkjamarkaðurinn er að minnka annað árið í röð og þar er um að ræða 4-5% minnkun... »2 Hvatningarátak framlengt Ríkisstjórn Íslands ákvað nýverið að framlengja hvatningarátakið „Allir vinna“. Átakið verður þó með breyttu sniði. »2

description

Þjónustumiðill iðnaðarins

Transcript of Iðnaðarblaðið 1. tbl 2012

Page 1: Iðnaðarblaðið 1. tbl 2012

Nýr forstjóri AlcoaMagnús Þór Ásmundsson er nýráðinn forstjóri Alcoa á Íslandi, eignarhaldsfélags Fjarðaáls. »14

Tækifæritil sóknar

Stjórnendur tveggja stórra verktaka-

fyrirtækja segja árið 2011 hafa verið

erfitt og ekki staðist væntingar um

batnandi tíma í íslenskri mannvirkjagerð.

Fyrirtæki þeirra hafa þurft að leita í

auknum mæli til annarra landa eftir

verkefnum og neyðst til að segja upp

starfsfólki. Að þeirra mati eru þó ýmis

tækifæri til sóknar á þessu ári. »4-5

Þ j ó N u s t u m i ð i l l i ð N A ð A r i N s

j a n ú a r 2 0 1 2 » 1 . t ö l u b l a ð » 4 . á r g a n g u r

VistvænteldsneytiCarbon Recycling International hóf til-raunaframleiðslu á metanóli í haust og nýopnuð verksmiðja fyrirtækisins starfar eins og hönnuðir gerðu ráð fyrir. »10

G o s d r y k k j a m a r k a ð u r i n n e r a ð m i n n k a a n n a ð á r i ð í r ö ð o g þ a r e r u m a ð r æ ð a 4 - 5 % m i n n k u n . . . »2

Hvatningarátak framlengtRíkisstjórn Íslands ákvað nýverið að framlengja hvatningarátakið „Allir vinna“. Átakið verður þó með breyttu sniði. »2

Page 2: Iðnaðarblaðið 1. tbl 2012

Ríkisstjórn Íslands ákvað nýverið að framlengja hvatningarátakið „All-ir vinna“ til 1. janúar 2013. Átakið hefur vakið athygli á endurgreiðslu virðisaukaskatts og skattafrádrátt-ar vegna viðhalds- og endurbóta-framkvæmda við frístundahús og íbúðarhúsnæði. Þessar skattalegu hagræðingar eru taldar hafa unnið gegn svartri atvinnustarfsemi og aukið skatttekjur ríkisins.

Eigendum íbúðar- og sumar-húsa hefur undanfarin ár boðist að fá endurgreiðslu á virðisauka-skatti og töluverðan skattafrádrátt vegna framkvæmda á eigin hús-næði. Skattafrádrátturinn nam allt að 200 þúsund króna lækkun á tekjuskattsstofni einstaklinga og 300 þúsund króna lækkun hjá hjón-um og samsköttuðum. Á þessu ári mun skattafrádrátturinn ekki leng-ur standa til boða og því geta fram-kvæmdaglaðir Íslendingar einungis vænst fullrar endurgreiðslu virðis-aukaskatts.

Árangursríkt átak„Við hjá Samiðn höfum verið þeirr-ar skoðunar að það þurfi meira til en endurgreiðslu virðisaukans. Því tel ég að breytt fyrirkomulag átaks-ins muni skila sér í færri umsóknum. Fyrst við erum á annað borð farin út í þetta átak þarf það að vera eins hvetjandi og mögulegt er,“ segir Finnbjörn A. Hermannsson, formað-ur Samiðnar. Aðspurður um mögu-legar endurbætur á átakinu nefnir hann lækkanir vörugjalda á bygg-ingarvörur, en að hans mati gætu slíkar lækkanir skilað sér í enn frek-ari fjölgun verka.

Finnbjörn segir að þrátt fyrir vankanta núverandi fyrirkomulags hafi átakið sýnt mikinn árangur í að fjölga verkum innan byggingargeir-ans og hvatt fólk til að sniðganga svarta vinnu. „Umfang svartrar vinnu er mest í þessum smærri verk-efnum við viðhald og endurbætur og ég tel fullvíst að átakið hafi dreg-ið úr svartri atvinnustarfsemi innan byggingargeirans.“

Að sögn Finnbjörns hvöttu félags-menn Samiðnar fjármálaráðherra til að framlengja átakinu, enda hafa þeir hvað best séð ávinninginn af því.

Mikill fjöldi umsóknaAndrés Magnússon, framkvæmda-stjóri Samtaka verslunar og þjón-ustu, tekur undir með Finnbirni og segir átakið hafa verið mikilvægan þátt í að hvetja til verklegra fram-kvæmda. „Verslun og byggingariðn-aður voru þær atvinnugreinar sem fóru verst út úr hruninu og hvatn-ingarátakið hefur reynst góð leið til styrkja þær. Almennt hefur þessu skattalega hagræði verið tekið fagn-andi, en það er misjafnt hvernig menn meta árangur verkefnisins. Það má alltaf setja spurningamerki við hvort átakið hafi nægjanleg áhrif í baráttunni við reikningslaus við-

skipti, og hvort við þurfum að gera eitthvað meira. Að okkar mati er ár-angurinn góður, enda hefur fjöldi fólks sent inn gögn til ríkisskattstjóra vegna endurgreiðslu- og frádráttar-beiðna,“ segir hann. Ríkisskattstjóri fær ekki endanlegar tölur yfir um-fang átaksins á árinu 2011 fyrr en öll skattaframtöl hafa skilað sér í mars á þessu ári. Í tölum frá árinu 2010 sést að embættið afgreiddi alls 15.576 endurgreiðslubeiðnir, frá 29.729 ein-staklingum. Fjárhæð endurgreiðslu virðisaukaskatts á tímabilinu nam 2.122 milljónum króna og frádráttur frá tekjuskattsstofni nam rúmlega 1.669 milljónum króna.

Möguleikar eru til að þetta ár, 2012, verði ágætt ár. Að nú verði viðsnúningur í efnahagslífinu. Alla vega í atvinnu-lífinu. Náttúran er gjöful og útlitið er gott varðandi loðnu og þorsk. Kvótar verða auknir. Takist að ljúka endurgerð

laga um stjórn fiskveiða er víst að iðnaðurinn mun njóta vel. Verkefni aukast.

Íslenskur iðnaður hefur ótal tækifæri. Að standa með sjávarútvegi er einn angi þess. Eftir stöðnun blasir við að íbúðabyggingar taka við sér á þessu ári. Bygging stúdentagarða er í augsýn. Búseti er að undirbúa byggingar og ef áætlanir ganga eftir mun Búseti byggja milli tvö og þrjú hundruð íbúðir á allra næstu árum. Það munar um minna eftir þá deyfð sem hefur verið.

Vaðlaheiðargöng og aðrar framkvæmdir í samgöngum munu skapa störf, ef allt gengur eftir. Allt til að létta hluta þess fargs sem hefur verið mikilsverðri atvinnugrein. Aðrar greinar iðnaðarins eru ágæt-lega settar. Tækifæri nóg og verkefni framundan. Aukin koma ferða-manna rennir styrkari stoðum undir rekstur margra fyrirtækja, líka í iðnaði.

Þrátt fyrir að margt hafi betur mátt gera, er því ekki að leyna að við stefnum áfram. Sé gagnrýnin á ríkisstjórnina rétt sýnist enn og aft-ur að fólkið í landinu, ekki síst það fólk sem stýrir fyrirtækjum, litlum sem smáum, er kröftugra en svo að andstreymi, andvaraleysi, deyfð eða fyrirhyggjuleysi stöðvi kraftinn í þjóðinni. Kann að draga úr hon-um mátt í einhvern tíma.

Hagsmunirnir eru miklir. Þess vegna er brýnt að áfram verði haldið. Að lokið verði við að laga fjárhagsbækur þeirra fyrirtækja sem eru í þannig meðferð. Ekki veitir af að ljúka þeim verkum sem allir vita að þarf að klára.

Möguleikar til að gera árið 2012 að góðu ári eru til staðar. Margir segja þá geta verið betri og meiri. En þeir eru til staðar og það er brýnt að nota þá. Áfram Ísland.

Sigurjón M. Egilsson

leiðari

Árið 2012, gott ár eða ekki?

Útgefandi: Goggur ehf. Kennitala: 610503-2680 Heimilisfang: Stórhöfða 25 110 Reykjavíksími: 445 9000 Heimasíða: goggur.is Netpóstur: [email protected] ritstjóri: Sigurjón M. Egilsson ábm. Höfundar efnis: Haraldur Guðmundsson, Geir A. Guðsteinsson, Karl Eskil Pálsson, Sigurjón M. Egilsson og fleiri. Auglýsingar: [email protected] Sími: 445 9000 Prentun: Landsprent. Dreifing: Farmur. Dreifing: Iðnaðarblaðinu er dreift til allra áskrifenda Morgunblaðsins, verkfræðistofur, álverin og fleiri fyrirtækja. Iðnaðarblaðið kemur út ellefu sinnum á ári.

Þ j ó N u s t u m i ð i l l i ð N A ð A r i N s

2 jAnúAR 2012

Fjöldi endurgreiðslubeiðna á virðisaukaskatti árið 2010:

Skattafrádráttur ekki lengur til boða

Átakið „Allir vinna“ verður með breyttu sniði á þessu ári:

Haraldur Guðmundsson skrifar:[email protected]

janúar - febrúar:

september - október:

maí - júní: mars - apríl:

nóvember - desember:

júlí - ágúst:

1.117

3.541

2.1701.367

4.456alls: 15.576

2.925

sala á gosdrykkjum dróst saman um rúmlega 4% á síð-asta ári miðað við árið 2010 að sögn stærstu gosdrykkja-framleiðenda landsins, Ölgerðarinnar og Vífilfells.

„Gosdrykkjamarkaðurinn er að minnka annað árið í röð og þar er um að ræða 4-5% minnkun,“ segir Gunnar B. sigurgeirsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Öl-gerðarinnar. Hann segir að svo virðist sem að sala á ýms-um öðrum drykkjarvörum hafi minnkað á síðasta ári, t.d. á ávaxtasöfum og ávaxtaþykkni.

Gunnar segir einnig að samdráttur hafi átt sér stað í ýmsum flokkum matvöru, s.s. á kaffi, sælgæti, kexi og

morgunkorni. Örfáir flokkar hafa þó vaxið frá síðasta ári að hans sögn og má þar nefna próteindrykki og snakk-vörur.

Samdráttur í sölu gosdrykkja

» „við hjá samiðn höfum verið þeirrar skoðunar að það þurfi meira til en endurgreiðslu virðisaukans. Því tel ég að breytt fyrirkomulag átaksins muni skila sér í færri umsóknum. Fyrst við erum á annað borð farin út í þetta átak þarf það að vera eins hvetjandi og mögulegt er.“

Fullbúið netbókhald fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki

ENGINNSTOFNVIÐ BÓKHALDIÐKOSTNAÐUR

Page 3: Iðnaðarblaðið 1. tbl 2012

4.456alls: 15.576

Mannvit hf. I Grensásvegi 1 I 108 Reykjavík I s: 422 3000 I www.mannvit.is

Mannvit vinnur náið með iðnfyrirtækjum og aðilum sem koma að rannsóknum og nýtingu á endurnýjanlegum orkugjöfum. Þessir aðilar eru meðal annars í áliðnaði og öðrum orkufrekum iðnaði, jarðhita, vatnsa�i, lífdísil, metangasi, metanól, ásamt rekstri gagnavera.

Mannvit er með um 400 starfsmenn sem sinna �ölbreyttum og

kre�andi verkefnum hér á landi og erlendis. Markmið Mannvits er

velferð á grunni þekkingar og vísinda en viðhorfum til verkefna

og viðskiptavina verður best lýst með gildum fyrirtækisins:

Traust, víðsýni, þekking og gleði.

Iðnaður mannvirki og orka

Iðnaðurmannvirki og orka

Page 4: Iðnaðarblaðið 1. tbl 2012

4 jAnúAR 2012

MEIRIAFKÖSTVIÐ BÓKHALDIÐ

Fullbúið netbókhald fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki

„Við héldum að botninum hefði ver-ið náð árið 2010 en ástandið batnaði alls ekki á síðasta ári. Til marks um það var einungis fjórðungur af okk-ar verkefnum hérlendis. Hin voru að mestu leyti í Noregi, en einnig á Grænlandi og á Jamaíka. Við vonum þó að verkin hér heima verði við lok árs orðin þriðjungur af heildarstarf-semi fyrirtækisins,“ segir Kolbeinn Kolbeinsson, framkvæmdastjóri Ís-taks.

Að hans sögn eru stærstu verk-efni fyrirtækisins hér á landi tengd framkvæmdum við Búðar-hálsvirkjun og aukningu á framleiðslugetu Rio Tinto Alcan í Straums-vík. Í Noregi hefur fyr-irtækið unnið á fimm til sex stöðum á hverj-um tíma og er þar með marga verksamninga. „Stærstu samning-arnir hafa verið fyrir norsku vegagerðina og tengjast jarð-gangnagerð og

brúarsmíði. Síðan höfum við sinnt ýmsum hafnarframkvæmdum, byggt brimvarnargarða og séð um dýpkanir. Á Grænlandi byggðum við grunnskóla sem við afhentum á síðasta ári og nú höfum við tekið að okkur enn eitt verk í alverktöku þar sem við byggjum virkjun með háspennulínu og öllu sem til þarf,“ segir Kolbeinn.

Horfa ekki einungis til stóriðjuKolbeinn undirstrikar að Ístak sé ekki einungis að horfa til stóriðju-framkvæmda á árinu og nefn-ir núverandi vinnu við stækkun á húsnæði 1912 ehf. og byggingu

bensínstöðvar Skeljungs í Borg-arnesi. Hann segir markað-

inn hér heima sýna fyrstu merki þess að hann sé far-inn að jafna sig. Ýmsir að-ilar eru farnir að huga að úrbótum á því sem fyr-

ir er og að klára það sem áður var hálfbyggt.

Ýmis tækifæri til sóknarfréTTaSkýrinG

Stjórnendur tveggja stórra verktakafyrirtækja

segja árið 2011 hafa verið erfitt og ekki staðist

væntingar um batnandi tíma í íslenskri mann-

virkjagerð. Fyrirtæki þeirra hafa þurft að leita í

auknum mæli til annarra landa eftir verkefnum

og neyðst til að segja upp starfsfólki. Að þeirra

mati eru ýmis tækifæri til sóknar á þessu ári en

til að ástandið batni þurfi vinnubrögð íslenskra

stjórnvalda að breytast.

Haraldur Guðmundsson skrifar:[email protected]

„Staðreyndin er hins vegar sú að stóriðjuframkvæmdir leiða af sér mörg bein og óbein störf, en mik-il óvissa ríkir varðandi slíkar fram-kvæmdir. Verkefnið í Helguvík er nú í biðstöðu og stendur hálfklárað til sýnis fyrir erlenda fjárfesta. Fæst-ir hefðu átt von á því að svo langt komin framkvæmd myndi á endan-um stöðvast,“ segir Kolbeinn.

Þurfum að draga úr óvissunniAðspurður um skoðun hans á að-komu stjórnvalda að stórfram-kvæmdum segir Kolbeinn stöðuna í dag einkennast meira af fáti og ráð-leysi heldur en markvissum vinnu-brögðum. „Ég er ekki pólitískur mað-ur, heldur maður framkvæmda, en

ég skil ekki hvers vegna stjórnmála-menn geta ekki mótað okkur stefnu í þessu. Við erum alltaf að bregðast við, og þá oftast of seint, frekar en að taka frumkvæðið. Auðvitað skil ég vel að það þarf að draga saman og gæta að peningunum. En ég hef sagt það áður og segi það enn, að dýrasti valkosturinn er að gera ekki neitt.“

Ýmsar hugmyndir um kolefn-isgjöld á stóriðju og óljós endur-greiðsla á virðisaukaskatti vegna gagnavera eru að mati Kolbeins dæmi um óþarfa óvissu fyrir vænt-anlega framkvæmdaraðila. Hann segir erlenda fjárfesta vilja vita að hverju þeir eru að ganga og þegar sú mynd er óskýr þá fari þessir að-

ilar til annarra sambærilegra landa. „Mörg erlend fyrirtæki, bæði stór

og minni, eru spennt fyrir sérstöðu okkar Íslendinga og þeirri endurnýj-anlegu orku sem hér er að finna og vilja vera hluti af þeirri ímynd sem við getum skapað okkur. En þess-ir aðilar ætla ekkert að bíða með framkvæmdir þangað til við erum búin að ákveða hvernig við ætlum að haga málum. Þetta eru aðilar sem ætla í framkvæmdir og þurfa einungis að ákveða hvar, og því er landið í stöðugum samanburði við aðra mögulega kosti. Við ættum því að vera útsjónasamari eigendur af þessari orku og móta skýrari mark-mið um hvers konar aðila við viljum fá hingað. Núverandi verklag haml-

» Frá framkvæmdum við búðarhálsvirkjun. Mynd: Landsvirkjun/Emil Þór.

» kolbeinn kolbeinsson, framkvæmdastjóri

Ístaks.

Page 5: Iðnaðarblaðið 1. tbl 2012

Ýmis tækifæri til sóknar

ar framgangi mála verulega,“ segir Kolbeinn.

Mikilvægt að halda í mannskapinnÞökk sé verkefnum í Noregi og Græn-landi hefur Ístaki tekist að halda í kjarnann af sínum mannskap. Þeg-ar mest var unnu tæplega eitt þús-und manns hjá fyrirtækinu, en nú eru starfsmenn rúmlega sex hundr-uð. Fyrir hrun voru um 15 prósent af verkefnum fyrirtækisins erlendis, en sú tala var á síðasta ári komin upp í 75 prósent. Þá voru tveir starfsmenn Ístaks staðsettir í útlöndum fyrir hvern starfsmann á Íslandi. „Fyrir-tæki eins og Ístak byggja alfarið á starfsafla sínum. Við erum að selja

hugvit, verkvit og vinnu. Þá söluvöru er að finna í okkar mannskap en ekki í tækjabúnaði,“ segir hann.

„Það er síðan visst áhyggjuefni að mikill fjöldi tækja hefur þegar farið úr landi. Ég er hræddur um að þegar hjólin fara aftur að snúast muni núverandi framboð á tækjum og tólum eiga erfitt með að anna eft-irspurninni. Þá mun það kosta þjóð-arbúið mun meira í fjárfestingum en menn fengu út úr brunaútsölunni á þessum sama búnaði vegna hins al-gjöra verkefnaskorts sem varað hef-ur alltof lengi. En þessar áhyggjur eiga að koma á eftir þeim sem snúa að því að halda í hugvit og verkvit. Þar liggja verðmætin og þar höfum við lagt aðaláhersluna.“

jAnúAR 2012 5

„Framkvæmdir við Hörpuna voru langstærsta verkefnið okkar á síðasta ári. Að öðru leyti var árið frekar lélegt og maður vonar að botninum hafi þá verið náð. Eins og staðan er núna er markaður-inn mjög viðkvæmur og afkasta-geta íslenskra verktakafyrir-tækja hefur minnkað. Við höfum misst marga góða iðnaðarmenn til Noregs og að auki hafa mörg fyrirtæki selt mikið af tækjum úr landi. Vegna samdráttarins hef ég áhyggjur af því að afkastageta markaðarins verði ekki næg þegar ástandið breytist á ný,“ segir Karl Þráinsson, forstjóri ÍAV hf.

Verðum að nýta tækifærin„Ég sé fullt af mögulegum tæki-færum þegar kemur að fram-kvæmdum á árinu. En það þarf að nýta þau svo ástandið batni fyrir íslensk verktakafyrirtæki og starfsmenn þeirra. Persónulega á ég erfitt með að sjá fyrir mér mikl-ar breytingar á næstunni miðað við hvernig fjárfestingaumhverfið er hér á landi. Í þessu sambandi má nefna að stjórnendur ÍAV hafa verið í samstarfi við erlenda aðila sem sjá mikil tækifæri til fjárfest-inga hérlendis. Fyrirtækið hefur haft frumkvæði að því að bjóða fjármögnun vegna verkefna en aðilar hafa haldið að sér höndum vegna þeirrar miklu óvissu sem ríkir í dag.“

ÍAV hefur að sögn Karls neyðst til að segja upp miklum fjölda starfsfólks síðustu ár. „Frá hruni til dagsins í dag höfum við farið úr 650 manns niður í 180, sem er auðvitað gríðarleg fækkun. Að meginhluta er um að ræða Íslend-inga sem við höfum þurft að segja upp og það hefur verið mjög sárt að sjá á eftir hæfu starfsfólki og góðum vinum. Fyrirtæki saman-standa jú af fólki en ekki tækjum og tólum,“ segir hann.

Karl segir starfsmenn fyrir-tækisins þessa dagana sinna ýms-um verkefnum sem öll eru hér-lendis, að undanskildu einu verki í Noregi. „undanfarna mánuði höf-um við unnið við fyrsta áfangann í gagnaveri Verne Holding á Ásbrú í reykjanesbæ, við metanólverk-smiðju Carbon recycling í svarts-engi, sinnt verkefnum við Búðar-hálsvirkjun fyrir landsvirkjun og lagt lokahönd á aðkomu okkar að stækkuninni í straumsvík, ásamt öðrum smærri verkum. Í Noregi höfum við síðan unnið að jarð-gangagerð um 80 kílómetrum suð-vestur af Osló.“

Að sögn Karls mun ÍAV nú í auknum mæli bjóða í verk í Nor-egi og á Grænlandi og segir hann ástandið hér heima reka fyrirtæk-

ið í þau útboð.

Bíða eftir grænu ljósi í HelguvíkKarl segir ÍAV nú bíða eftir því að framkvæmdir í Helguvík fari á fullt, en þar fær fyrirtækið nú einungis að vinna fyrir ákveðna upphæð á mánuði. „Þegar fram-kvæmdir í Helguvík fara á fullt mun Hitaveita suðurnesja þurfa að virkja og þá fer af stað keðju-verkun með ýmsum framkvæmd-um sem ættu að hjálpa verktaka-fyrirtækjum. síðan bindum við vonir við 40.000 tonna kísilmálm-verksmiðjuna í Helguvík. Einnig vonumst við til þess að önnur verkefni fari af stað, s.s. fram-kvæmdir við fangelsi, virkjanir, fiskeldi, hótel við Austurhöfn og á Bakka við Húsavík.“

Hann bendir einnig á að ÍAV á lægsta tilboð í vinnu við fyrir-huguð Vaðlaheiðargöng, ásamt fyrirtækinu marti, og því mikil-vægt fyrir starfsfólk ÍAV að stjórnvöld komist að niðurstöðu í málinu. „Þess má geta að þátt-taka í útboði sem þessu kallar á gríðarlega vinnu og kostnað og því er óþolandi að stjórnvöld telji það vera eðlileg vinnubrögð að ákvarða hvort farið verður í framkvæmd eftir að verkið hefur verið boðið út. stjórnvöld verða að sýna ábyrgð og koma hreint fram. óvissa sem þessi hefur mjög slæm áhrif á líðan starfsmanna og gerir skipulag og rekstur fyrirtækisins erfiðari en ætti að vera.“

Að lokum segir hann mikilvægt að Ísland sé kynnt sem vænlegur valkostur til fjárfestinga, án þess þó að stefna auðlindum lands-ins í hættu. „Erlendir fjárfestar þurfa að sjá hag sinn í því að koma hingað, ef þeir sjá hann ekki, þá einfaldlega fara þeir eitthvað ann-að. miðað við það sem sést hefur af störfum stjórnvalda er tilfinn-ingin sú að ekki sé verið að gera mikið til að laða þessa aðila hingað og stuðla þannig að endurreisn landsins.“

Forstjóri ÍAV hf. vonar að botninum hafi verið náð árið 2011:

Stjórnvöld verða að sína ábyrgð

» „Í noregi höfum við unnið að jarðgangagerð.“

» Frá framkvæmdum við búðarhálsvirkjun. Mynd: Landsvirkjun/Emil Þór.

» karl Þráinsson, forstjóri Íav hf.

Staðreyndin er hins vegar sú að stóriðju-framkvæmdir leiða af sér mörg bein og óbein störf, en mikil óvissa ríkir varðandi slíkar framkvæmdir. Verkefnið í Helguvík er nú í bið-stöðu og stendur hálf-klárað til sýnis fyrir erlenda fjárfesta.

Page 6: Iðnaðarblaðið 1. tbl 2012

6 jAnúAR 2012

Eftirspurn eftir faglærðum kjötiðnaðarmönnumEinungis tveir menntaskólar bjóða upp á nám í kjötiðn:

Síðustu ár hefur stórum kjötvinnslufyr-irtækjum á höfuðborgarsvæðinu fækk-að. Sú þróun hefur áhrif á fjölda nemenda sem hefja nám í kjötiðn við Menntaskól-ann í Kópavogi. Verkmenntaskólinn á Akur-eyri býður einnig upp á kjötiðnaðarnám og þar er beinlínis auglýst eftir áhugasömum nemendum.

Erfitt að komast á samning „Á þessari önn eru sex nemendur skráð-ir í samningsbundið kjötiðnaðarnám við Menntaskólann í Kópavogi. Aðsókn í námið hefur verið í mikilli lægð síðustu sex til sjö ár en nemendafjöldi þessa árs er þó yfir meðal-tali síðustu ára. Dræma aðsókn má að miklu leyti rekja til þess hversu fá kjötvinnslufyr-irtæki eru eftir á höfuðborgarsvæðinu sem geta tekið nemendur á samning. Þetta er leiðinlegt því margir vilja komast á samning og hefja nám hjá okkur,“ segir Örlygur Hin-rik Ásgeirsson, fagstjóri kjötiðnaðardeildar Menntaskólans í Kópavogi.

Meirihluti nemenda í kjötiðnaðarnámi við skólann hefja skólagöngu sína í grunnnámi matvæla og allir þurfa að ráða sig á fjögurra ára samning hjá kjötvinnslufyrirtæki. „Þeg-ar Goði og Sláturfélagið voru með starfsemi í þessum landshluta var auðveldara fyrir til-vonandi nemendur að komast á samning. Fækkun fyrirtækja í kjötiðnaði hefur aftur á móti ekki haft jafn mikil áhrif á atvinnu-möguleika útskrifaðra kjötiðnaðarmanna. Útskrifaðir nemendur fá í flestum tilvikum framhaldsvinnu hjá þeim fyrirtækjum sem taka þá á samning eða finna vinnu annars staðar,“ segir Örlygur.

námið blómstrar fyrir norðanEðvald Sveinn Valgarðsson, framhalds-

skólakennari á matvælabraut Verkmennta-skólans á Akureyri og kjötiðnaðarmeistari, segir kjötiðnaðarnema á Norðurlandi eiga

mjög auðvelt með að fá samning. Skólinn auglýsir að hans sögn reglulega eftir nem-endum í kjötiðnaðarnám til að svara mikilli

eftirspurn stórra kjötvinnslufyrirtækja úr landshlutanum eftir nemum og faglærðu fólki.

„Námið er tiltölulega nýtt hér við skól-ann og við búum ekki yfir jafn góðri aðstöðu og Menntaskólinn í Kópavogi. Við höfum því farið þá leið að færa kennsluna meira út úr skólanum og inn í fyrirtækin. Hér við skól-ann fá nemendur bæði bóklega og verklega kennslu, en meginhluti verklega námsins fer fram í kjötvinnslunum. Nemendur eru þar undir stöðugu eftirliti skólans og fara eftir námsskránni í einu og öllu,“ segir Eð-vald.

Eðvald bendir á að kjötiðnaðarmenn hafa hingað til verið deyjandi stétt og því erfitt að fá faglærða Íslendinga í skurð og úrbein-ingu. „Miðað við fjölda nemenda þetta árið er óhætt að segja að áhugi ungs fólks á náminu hafi aukist. Við erum í sókn og þar ber helst að þakka fyrirtækjum eins og Kjarnafæði og Norðlenska sem hafa verið dugleg að taka á móti nýju fólki.“

» kjötiðnaðarnemar í sveinsprófi í Menntaskólanum í kópavogi.

Promens Tempra ehf. Íshella 8 221 HafnarfjörðurSími: 520 5400 [email protected]

Á íslenskum húsum dynja nánast daglega vond veðurmeð stöðugt hækkandi húshitunarkostnaði.

Þess vegna er góð einangrun húsa gríðarlega mikilvæg.

Hjá Promens Tempru færðu einangrun sem hentaríslenskum húsum í baráttunni gegn íslenskri veðráttu.

Höldum kuldanum úti og hitanum inni!

EPS plasteinangrun fyrir hús

XPS rakaheld og þrýstiþolin einangrun á flöt þök

Sérskorin einangrunarlok á heita potta

EPS-einangrun er framleidd samkvæmt viðeigandi Evrópustöðlum

thor

risig

.12o

g3.is

Við búumá Íslandi!

www.promens.is/tempra

Gleymum því ekki

VIð ERUM ÍSLENSKUR IðNAðUR

Mannrækt og gleði í matargerð

Page 7: Iðnaðarblaðið 1. tbl 2012
Page 8: Iðnaðarblaðið 1. tbl 2012

8 jAnúAR 2012

Tímabundnir skattar eru nær alltaf rang-nefni. Hagsagan er full af dæmum

um skatta sem lagðir voru á til að vinna að sérstök-um verkefnum til skamms tíma. Þegar til stykkisins kom var aldrei rétti tíminn til að afnema þá. Verkefnin drógust á langinn eða ný not fundust óvænt fyrir skattinn. Gjaldeyrishöft eru að þessu leyti lík tímabundnu sköttunum. Alþjóðagjaldeyrissjóður-inn, undir stjórn Dominique Strauss-Kahn, var fenginn Íslandi til aðstoð-ar haustið 2008 og lagði ofuráherslu á að fjármagnsflutningar til og frá landinu yrðu heftir hið fyrsta. Slíkar skorður áttu að gilda í nokkra mán-uði, rétt á meðan þörf krefði.

Nú er liðið vel á fjórða ár síðan gjaldeyrishöftin tóku gildi og enn sér ekki fyrir endann á þeirri tíma-bundnu ráðstöfun. Aldrei virðist rétti tíminn til að afnema höftin. Það er jafnan sagt of áhættusamt, of snemmt eða að bíða þurfi betri aðstæðna. Klárt mál er að hér þarf að vanda sig og ekki ana að neinu. Ógnin, sem sögð er geta stafað af af-námi haftanna, er hins vegar sjaldn-ast borin saman við þann drjúga kostnað sem af þeim stafar. Þann skaða er þó ekki hægt að mæla með nákvæmum hætti en hann er talinn nema a.m.k. á annan tug milljarða árlega, aðallega vegna verkefna sem aldrei verða að veruleika, rangra hagrænna hvata og efnahagsum-svifa sem við missum af. Sá tollur vex eftir því sem tíminn líður en við finnum vart fyrir honum frá degi til dags, ekki frekar en við söknum fjár sem við vissum ekki að við ættum. Hagkerfið lagar sig smám saman að þessari stífu spelku og myndar lang-varandi hægt og höktandi göngu-lag. Fjármálakreppan sem nú geis-ar á meginlandi Evrópu gerir þessar

skorður enn þungbærari íslenskum fyrirtækjum, sem eiga sökum hennar minni möguleika á erlendri fjármögnun en fyrr.

ríkissjóður áskrifandi að lífeyrisgreiðslumÍslendingar eiga óvenju-sterka lífeyrissjóði í sam-

anburði við flestar aðrar þjóðir. Sjóðirnir byggjast á kerfisbundinni uppsöfnun áratugum saman með sjálfbærni hverrar kynslóðar að leiðarljósi. Þetta er öfugt við þau gegnumstreymiskerfi sem flestar þjóðir heims glíma við, þar sem fólk á vinnumarkaði greiðir skatta sem renna til lífeyrisþega þá stundina. Eftir því sem gjaldeyrishöftin drag-ast á langinn veikist áhættustýring íslensku lífeyrissjóðanna. Nú geta þeir aðeins ávaxtað ný iðgjöld hér á landi, fyrst og fremst með því að lána opinberum aðilum. Við það hef-ur eignasafn lífeyrissjóðanna breyst hratt, frá því að vera vel dreift milli eignaflokka og landa, í að vera að stórum hluta áhætta á hið opinbera á Íslandi. Haldi svo áfram mörg miss-eri í viðbót mun íslenska lífeyris-sjóðakerfið taka æ meira á sig mynd hinna erlendu gegnumstreymis-kerfa, þar sem ríkið er áskrifandi að ævisparnaði landsmanna og höndl-ar með hann að vild. Þannig valda þessar skorður því að fé er beint í fáa farvegi og mynda verðbólgu í til-teknum eignaflokkum. Slíkt mann-gert misvægi er afar skaðlegt eins og við þekkjum úr nýliðinni fortíð og er enn ógnvænlegra með svo brot-hætt hagkerfi sem raun ber nú vitni. En handhöfum bólginna eigna líður jafnan vel rétt á meðan það ástand varir, seljendur skuldabréfa ríkis-sjóðs kvarta ekki undan höftunum.

Ekki eftir neinu að bíðaSeðlabankinn hefur lagt fram áætl-

un um losun haftanna. Seint verð-ur bankinn sakaður um offors eða æðibunugang við framkvæmd hennar. Engar tímasetningar eru gefnar upp og varfærni er sögð öðr-um markmiðum ofar. Hluti þeirr-ar áætlunar er hin svokallaða fjár-festingarleið sem boðuð hefur verið nokkra hríð. Afar gleðilegt væri ef aðferðarfræði þeirrar leiðar nýttist í einhverjum tilvikum, að gjaldeyr-ir kæmi inn í landið og örvaði hag-kerfið. Hins vegar standa vænting-ar Seðlabankans sjálfs ekki til þess að fjárfestingarleiðin losi í neinum mæli um hina svokölluðu snjóhengju aflandskróna, né að önnur helstu óvissuatriði skýrist með henni. Von-ir um röska afléttingu haftanna geta því ekki byggst á henni.

Hópur fólks úr viðskiptalífinu, kauphöll og háskólum, var síðast-liðið haust orðinn langeygur eft-ir að hreyfing kæmist á og setti því saman nýja útfærslu um taktviss-ara verklag við losun haftanna. Um er að ræða þrepaskipta áætlun sem var kynnt fyrir jól og gæti tek-ið um 12 mánuði frá því hún er sett af stað. Ferli þetta er hvorki glanna-legt né áhættusamt, heldur byggist einmitt á ríkum varúðarsjónarmið-um varðandi fjármálastöðuleika. Hverju skrefi þessa ferlis að ætlað að afla nákvæmari upplýsinga um jafnvægisverð gjaldmiðilsins, sem er lykilbreytan við afnám haftanna. Hægt er að flýta eða hægja á ferlinu eftir því sem myndin skýrist. Þessi útfærsla er hins vegar ekki eina mögulega leiðin, meðlimir þessa hóps höfðu mismunandi áherslur um ýmsa verkþætti. Aðalatriðið með framlagningu þessarar áætl-unar var hins vegar að sýna fram á að vel er hægt að taka mismunandi sjónarmið til greina en setja samt stóraukinn og kerfisbundinn kraft í afnám haftanna. Kjarni málsins er: Nú er rétti tíminn.

Eftir efnahags-hrunið stöðv-uðust megnið af verklegum

framkvæmdum í bygg-ingaiðnaði nánast á einni nóttu. Atvinnu-leysi hefur hvað harð-ast lent þar af öllum starfsstéttum á Íslandi. Um tíma gengu um þriðjungur fagmenntaðra manna í bygg-ingariðnaði um atvinnulaus-ir. Atvinnuleysi hefur minnkað nokkuð en það hefur minnst gerst vegna nýrra starfa. Menn hafa unnvörpum flust úr landi og þannig flutt atvinnuleysið út. Það hafa ekki einvörðungu verið atvinnulausir menn sem hafa verið að yfirgefa landið. Rekstar-grundvöllur fyrirtækja, aðal-lega smærri fyrirtækja er þess eðlis að menn eru að gefast upp á að taka þátt í tilboðum. Undir-boðin eru allsráðandi og engin glóra að ná í verkefni með því að taka þátt í tilboðum. Það eru alltaf til aðilar sem ætla að fleyta sér áfram á óraunhæfum boðum og þar með skemma markað-inn. Öll þessi undirboð stór sem smá enda í sömu hringavitleys-unni. Þeir sem fá tilboðin ætla öðrum að taka á sig skellinn. Þeir fara að leita tilboða hjá öðrum verktökum í einstaka hluti verks og reyna að fá enn lægri tilboð eða þvinga launamenn sína í undirverktöku til að þurfa ekki að standa við skyldur sínar sem atvinnurekendur, svo sem vegna slysa eða veikinda, uppsagna eða skil á sköttum og skyldum. Svo ef illa fer, setja þeir reksturinn á hausinn, enda búnir að setja það litla sem fémætt er í fyrirtæk-inu á aðra kennitölu, stofna nýtt fyrirtæki og skilja fjölda manns og ríkissjóð eftir með skuldirnar. Gömul saga og ný.

Í síðustu kjarasamningum var gert samkomulag við ríkisvaldið um þrenns konar aðgerðir til að sporna við þessari óheillaþróun. Í fyrsta lagi var gert samkomulag um átak til að sporna við svartri atvinnustarfsemi. Þetta átak fór myndarlega af stað sl. sumar undir heitinu „Leggur þú þitt af mörkum“ og stóð vel fram á vetur. Vel var að verki þessu staðið og ákvörðun hefur verið tekin um að halda því áfram á þessu ári. Von-andi skilar þetta átak því að menn hugsi sig tvisvar um áður en þeir stuðla að, eða taka þátt í skatt-

svikum eða undanskoti virðisaukaskatts.

Í öðru lagi skuldbatt ríkisstjórnin sig til að beita sér fyrir breyting-um á lögum um félög til að stemma stigu við mis-notkun félaga með tak-markaða ábyrgð og fyrir breytingum á lögum um

skráningu félaga í því skyni að koma í veg fyrir starfsemi aðila sem hafa ítrekað, af ásetningi eða vanrækslu, rekið félög í þrot. Einnig á að skoða ábyrgð stjórn-armanna í slíkum fyrirtækjum. Kennitöluflakkarar þekkjast í öll-um atvinnugreinum. Þeir skekkja samkeppnisstöðu alls staðar og til að heilbrigður samkeppnis-markaður þrífist þarf ríkisstjórn-in að flýta þessum laga- og reglu-gerðarsetningum.

Í þriðja lagi voru fyrirheit frá ríkisstjórn að beita sér fyrir lögum um opinber innkaup til þess að tryggja betur eðlilegt samkeppnisumhverfi og rétt-indi launafólks. Markmiðið er að tryggja í útboðslýsingum skýr ákvæði um hæfi bjóðenda, um val á tilboðum og um skil á greiðslum til þeirra sem að til-boðsverkum koma. Í yfirlýsing-unni segir að æskilegt sé að slíkt mat nái jafnt til aðal- og undir-verktaka. Undirritaður telur það reyndar nauðsynlegt að slíkt mat nái til undirverktaka líka því annars geta kennitöluflakkarar sem hent er út sem aðalverktök-um þrifist sem undirverktakar. Undirritaður er líka þeirrar skoð-unar að setja eigi sambærilegar reglur á almennan útboðsmark-að. Það þarf einnig að setja inn í útboðslýsingar keðjuábyrgð á alla verktakana í sama verki þannig að ef undirverktaki sem aðal-verktaki hefur valið að vinna fyrir sig greiðir ekki laun eða ætlar að hlaupa frá skattaskuld með kennitöluhoppi falli skuldin á aðalverktaka. Þá vanda þeir betur valið á undirverktökum.

Ef mannvirkjaiðnaðurinn á að ná sér aftur á strik þarf að setja stífar reglur um það sem hér að framan er nefnt. Það er mikill kostnaður sem einstaklingar, fyr-irtæki, ríkissjóður og samfélagið í heild sinni bætir á sig meðan óheiðarlegir viðskiptahættir þríf-ast. Þessar aðgerðir kosta ríkis-sjóð ekkert en munu með tíð og tíma skila miklu í formi aukinna skatttekna.

Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Samiðnar, skrifar:

Kennitöluflakk og bættir viðskiptahættir

Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, skrifar:

Nú er rétti tíminn

MyND: PHoToEVERywHERE.co.UK

idnadarbladid.isÞ j ó N u s t u m i ð i l l i ð N A ð A r i N s

Page 9: Iðnaðarblaðið 1. tbl 2012

jAnúAR 2012 9

„Ísland nú fyrst að iðnvæðast“Fjölgun iðnfyrirtækja leiðir af sér verðmæta þekkingaruppbyggingu:

„Um 50-60% af okkar veltu er í íslenskum iðn-aði og þar af er áliðnaðurinn langstærstur. Við höfum í gegnum dótturfyrirtæki Mannvits, HRV Engineering, sérhæft okkur í að vinna að uppbyggingu nýrra álvera, endurbæta rekstur starfandi álvera og þjóna áliðnaði almennt,“ segir Skapti Valsson, aðstoðarforstjóri Mann-vits.

Sinna verkefnum í öllum þremur álverunumMannvit hefur um árabil sinnt ýmsum verk-efnum í áliðnaði og er einn tveggja eigenda verkfræðistofunnar HRV Engineering. Sú verkfræðistofa var stofnuð árið 1996 til að vinna að uppbyggingu Norðuráls á Grundar-tanga og standast erlendum keppinautum snúning í slagnum um þjónustuverkefni í ál-iðnaði. Starfsmenn á vegum HRV eru nú um 200 talsins og sinna verkefnum í öllum álver-um landsins.

„Við höfum mikinn áhuga á áframhald-andi uppbyggingu í íslensk-

um iðnaði og teljum að hér eigi að vera

fleiri en eitt iðn-fyrirtæki af hverri tegund. Þegar hér

var einungis rekið eitt álver átti nán-

ast öll þekkingar-uppbygging og þróun

sér stað innan fyrir-

tækisins sjálfs, og þannig var erfitt fyrir ís- lenskar verkfræðistofur að koma sér inn í

málin. En með fjölgun álvera komu fyrirtæki eins og Mannvit meira að íslenskum áliðnaði og þekkingin dreifðist. Sama má segja um kís-ilmálm- og járnblendiverksmiðjur, en fjölgun þeirra myndi skila sér í meiri þekkingarupp-byggingu innan greinarinnar,“ segir Skapti.

Segist bjartsýnn á framtíðinaAð sögn Skapta munu Mannvit og HRV sinna verkefnum fyrir öll þrjú álverin á þessu ári. Þar ber hæst að nefna yfirstandandi stækk-unarframkvæmdir í Straumsvík. „Ég er bjart-sýnn varðandi horfur í íslenskum iðnaði á næstu árum því líklegast hafa aldrei fleiri er-lendir aðilar verið á þröskuldinum og beðið eftir að fá að fjárfesta hér á landi. Einu sinni vorum við bara með sjávarútveginn en nú er íslenskur iðnaður að vaxa og dafna og með fjölgun stórra íslenskra iðnfyrirtækja mætti því segja að Ísland sé nú fyrst að iðnvæðast frá því að hér komst á frjálst markaðskerfi.“

idnadarbladid.isÞ j ó N u s t u m i ð i l l i ð N A ð A r i N s

» skapti valsson, aðstoðarforstjóri

Mannvits.

» Mannvit hefur um árabil sinnt ýmsum verkefnum í áliðnaði og er einn tveggja eigenda verkfræðistofunnar Hrv engineering.

Ég er bjartsýnn varðandi horfur í íslenskum iðnaði á næstu árum því líklegast hafa aldrei fleiri erlendir aðilar verið á þröskuldinum og beðið eftir að fá að fjárfesta hér á landi.

Page 10: Iðnaðarblaðið 1. tbl 2012

10 jAnúAR 2012

„Við hófum tilraunaframleiðslu í lok október og höfum nú fullreynt öll kerfin sem starfa eins og hönnuðir gerðu ráð fyrir. Auðvitað þarf nokkurn tíma í að stilla öll kerfi og ná jafnri

framleiðslu en fram að þessu hefur okkur gengið vel,“ segir Benedikt Stef-ánsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá car-bon Recycling Internation-al, aðspurður um hvernig framleiðsla fyrirtækisins hefur gengið síðustu mán-uði.

Eldsneytisverksmiðja carbon Recycling í Svarts-engi á Suðurnesjum fram-

leiðir metanól með því að taka koltvísýrings-útblástur frá jarðvarmavirkjun HS orku og blanda honum saman við vetni sem fram-leitt er með rafgreiningu vatns. Metanólinu er blandað við bensín sem síðan er hægt að nota á allar gerðir bensínbíla. Verksmiðjan er afrakstur fimm ára rannsókna fyrirtækisins og þróunarvinnu með aðilum sem hafa mikla reynslu af byggingu metanólverksmiðja. Hún getur framleitt um 1,7 milljón lítra af metanóli á ári og er hönnuð þannig að auðvelt er að þre-falda framleiðsluna.

fjölmörg tækifæriUndanfarna mánuði hefur carbon Recycl-ing unnið að prófunum með olíufyrirtæk-inu N1, en bensín blandað metanóli var fyrr í vetur fáanlegt á einni bensínstöð olíufélags-ins. „Fyrstu niðurstöður þeirra prófana gefa til

kynna að bensínið stenst opinberar kröfur. En til að mæta gæðastaðli N1 gætum við þurft að skipta um tegund af bensíni sem notað er til íblöndunar. Það gæti tekið einhvern tíma og því förum við hægt í frekari dreifingu,“ segir Benedikt.

Að hans sögn uppfyllir framleiðsla carbon Recycling öll innlend og erlend skilyrði sem sett eru varðandi blöndun á vistvænu elds-neyti. „Við endurnýtum koltvísýringinn beint úr virkjun HS orku og drögum þannig úr út-blæstri gróðurhúsalofttegundarinnar og kol-efnisjöfnum í reynd hluta af því bensíni sem hefði verið brennt í bílvélinni. Þannig dregur úr heildarútblæstri koltvísýrings.“

Benedikt segir slíka framleiðslu fela í sér ýmis tækifæri og að carbon Recycling horfi ekki einungis á innanlandsmarkað í þeim efn-um.

Horfa til kröflu„Við höfum skrifað undir viljayfirlýsingu við Landsvirkjun um að vinna að hagkvæmnis-athugun verksmiðju við Kröfluvirkjun sem myndi nýta útblástur frá virkjuninni. Í fyrra gerðum við rannsókn á svæðinu til að ganga úr skugga um að aðstæður væru góðar, en við eigum enn eftir að komast að samkomulagi um framkvæmdina og raforkuverð. Sú verk-smiðja gæti framleitt 40 milljónir lítra af met-anóli á ári en það er ekki markaður fyrir allt það eldsneyti hér á landi.“ Að sögn Benedikts horfir fyrirtækið m.a. til Bretlands, Hollands og Þýskalands í þeim efnum, en þar er met-anóli nú þegar blandað í bensín.

Hann leggur þó áherslu á að fyrirtækið vill fyrst sjá hvernig innanlandsmarkaðurinn liggur áður en farið verður í byggingu verk-smiðjunnar í Kröflu. Hann áætlar að ákvörðun

um hvort farið verði í framkvæmdir verði tekin fyrir árslok.

„Við vonumst til að hefja útflutning á þessu ári og að leysa þau mál sem þarfnast úrlausn-ar hér á innanlandsmarkaði. Síðan erum við að vinna að öðrum málum sem varða næstu kyn-slóð tækninnar, en við stefnum að því að end-urnýta fleiri úrgangsefni og framleiða úr þeim eldsneyti. Við erum í rannsóknarsamstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Sorpu og þær rannsóknir ganga vel.“

Framleiðsla á vistvænu eldsneyti gengur vel Carbon recycling hóf tilraunaframleiðslu á metanóli í haust:

Haraldur Guðmundsson skrifar:[email protected]

» „Fyrstu niðurstöður þeirra prófana gefa til kynna að bensínið stenst opinberar kröfur. en til að mæta gæðastaðli n1 gætum við þurft að skipta um tegund af bensíni sem notað er til íblöndunar. Það gæti tekið einhvern tíma og því förum við hægt í frekari dreifingu.“

» benedikt stefánsson.

lífeldsneyti framleitt hjá sOrPuRannsaka og þróa hagfelldar leiðir til að framleiða lífeldsneyti við íslenskar aðstæður:

Lífeldsneyti er unnt að framleiða úr flestu lífrænu efni hvort heldur um er að ræða líf-rænan úrgang frá heimilum og atvinnu-starfsemi eða lífmassa sem vex og dafnar á landi, í vötnum eða á sjó. Tæknilega er unnt að segja að framleiða megi lífeldsneyti úr líf-massa á Íslandi sem mætt getur orkuþörf fyrir öll samgöngutæki þjóðarinnar ef því er að skipta. Spurningin er hins vegar sú, hversu mikið er hagfellt og gerlegt að framleiða og nýta af mismunandi tegundum lífeldsneytis á hverjum tíma.

Rannsóknaverkefnið „Lífeldsneyti“ lýtur að því að rannsaka og þróa hagfelldar leiðir til að framleiða lífeldsneyti við íslenskar að-stæður og úr íslensku hráefni. Nokkrar gerðir lífeldsneytis eru í notkun í heiminum í dag og miðast rannsóknir á möguleikum á að fram-leiða etanól, FT-dísil, metan, metanól, tvíme-týleter og vetni, ásamt því að skoða hvort megi framleiða hauggas og metaneldsneyti í metangerðarstöð úr margvíslegu íslensku hráefni. Víða um heim er metaneldsneyti nýtt til húshitunar, eldunar og rafmagns-framleiðslu auk þess að knýja samgöngutæki af ýmsum stærðum og gerðum. Við Íslend-ingar búum það vel að eiga mikið af raforku og heitu vatni og því liggur beinast við fyrir okkur að nýta metan og annað lífeldsneyti til að knýja samgöngutæki í landinu.

Metaneldsneyti er unnt að framleiða úr flestu lífrænu efni á yfirborði jarðar með hjálp örvera við aðstæður þar sem súrefni á ekki greiðan aðgang að lífræna efninu (gerj-un) sem myndar hauggas sem að stærstum hluta inniheldur sameindina metan (cH4). Hauggas myndast t.d. á urðunarstöðum þar sem lífrænn úrgangur er grafinn í jörðu. Hauggas frá urðunarstað á Álfsnesi í Reykja-vík og Glerárdal á Akureyri inniheldur um

55-60% metan og um 45% koltvísýring, en með hreinsun á hauggasinu er hægt að ein-angra metanið til framleiðslu á metanelds-neyti. Á þessu sviði hefur SoRPA náð mjög góðum árangri í yfir tíu ár.

Áætlað er að byggja sérstaka gasgerðar-stöð á Álfsnesi á næstu árum þar sem líf-rænn úrgangur frá heimilum og atvinnu-starfsemi yrði gerjaður til metanframleiðslu. Stefna stjórnvalda og alþjóðasamfélagsins í

umhverfis- og loftslagsmálum miða m.a. að því að draga verulega úr urðun á lífrænum úrgangi á næstu árum, og samhliða hefur áhugi á framleiðslu metaneldsneytis og ann-arra tegunda af lífeldsneyti aukist mikið.

» Myndin sýnir framleiðsluferli á metani sem bifreiðaeldsneyti hjá sOrPu í álfsnesi. söfnun á hauggasi til brennslu vegna minni gróðurhúsaáhrifa er áskilin í starfsleyfi urðunarstaðarins.

KYNNiNG

Page 11: Iðnaðarblaðið 1. tbl 2012

jAnúAR 2012 11

Ölgerðin hefur undanfarin 8 ár leitað leiða til þess að nota íslenskt bygg í bjór-gerð. Nokkrir bjórar frá Ölgerðinni eru með íslensku byggi en með nýjum aðferð-um sem þróaðar hafa verið í samstarfi við erlenda aðila er í fyrsta skipti hægt að bjóða upp á bjór sem unninn er eingöngu með íslensku byggi. Um tímamótaverk-efni er að ræða en bjórgerð úr ómöltuðu byggi hefur til þessa ekki verið möguleg.

„Á síðasta ári hófum við að framleiða Þorra Gull úr íslensku byggi ræktuðu af Haraldi Magnússyni bónda í Belgsholti í Borgarfirði. Við höfðum boðið upp á álíka vörur á þorranum í áraraðir og notað ís-lenskt bygg síðan 2005, en þetta var í fyrsta skipti sem eingöngu var notast við íslenska byggið,“ segir Guðmundur Már Magnússon, bruggmeistari Ölgerðar-innar.

Hefðbundin aðferð við bjórgerð er sú að malta byggið, en þá er byggið þurrkað og látið spíra í sérstökum möltunarhús-um. Slík hús eru ekki til staðar hérlendis og því hefur þurft að flytja byggið út með ærnum tilkostnaði.

„Þróunarvinnan hefur falist í því að finna aðferðir til að brugga gæðabjór úr ómöltuðu byggi. Það hefur okkur tekist og gott betur, því ómaltað korn hefur aðra eiginleika sem gefa vörunni meiri seigju og fyllingu. Við fáum með þessu ekki aðeins sérstæðan, íslenskan gæða-bjór, heldur sparast einnig verðmætur gjaldeyrir. Framleiðslan verður einnig umhverfisvænni þegar möltunarferlinu á bygginu er sleppt.“

Á vef ÁTVR er Þorragulli úr íslensku byggi lýst svo að hann sé léttur með meðalfyllingu, ósætur, mildur, með lítilli beiskju og léttum grösugum tónum.

Ætla lengra með íslenska byggiðAð sögn bruggmeistarans er Ölgerðin nú að þróa annan bjór sem einnig verður eingöngu úr íslensku byggi frá Haraldi Magnússyni bónda í Borgarfirði. „Það verður heilsársbjór sem mun eingöngu verða framleiddur úr alíslensku byggi. En það verkefni er enn á þróunarstigi og því ekki hægt að gefa frekari upplýsingar um það að svo stöddu.“

Íslenskt, ómaltað bygg í bjórinnÞróunarvinna með íslenskt, ómaltað bygg:

KYNNiNG

» guðmundur Már Magnússon, bruggmeistari ölgerðarinnar.

» Íslenskur byggakur

Page 12: Iðnaðarblaðið 1. tbl 2012

Loðskinn hf. á Sauðárkróki sérhæf-ir sig í framleiðslu skrautskinna og mokkaskinna úr íslenskum lamba-gærum. Loðskinn var upphaflega stofnað 1969 og starfsemin fólst lengst af í framleiðslu mokkaskinna í kápur og annan fatnað og skraut-gæra til útflutnings. Eftir fjárhags-lega endurskipulagningu árið 1997 hefur fyrirtækið einbeitt sér að framleiðslu skrautskinna og mok-kaskinn í kápur og leggur allt kapp á hámarks gæði og góða þjónustu. Loðskinn er dótturfyrirtæki Sjáv-arleðurs, sem framleiðir hágæða leður úr fjórum mismunandi fisk-tegundum. Loðskinn nýtir orku ís-lenskrar náttúru við framleiðslu sína. Við sútun og litun er notað mikið af heitu vatni og því er fram-leiðslan yfirleitt talin orkufrek.

Sjávarleður hf. sérhæfir sig í framleiðslu hágæða fiskleðurs úr fjórum mismunandi fisktegund-um, en karfaleður, laxaleður, hlýra-leður og þorskleður er hvert um sig gætt sérstökum eiginleikum. Fyr-irtækið leggur sérstaka áherslu á gæði vörunnar og góða þjónustu við viðskiptavini. Sjávarleður hf. er fjölskyldufyrirtæki þeirra hjóna, Gunnsteins Björnssonar og Sigríð-ar Káradóttur, en í hópi hluthafa eru sterkir bakhjarlar, sem er Norður-strönd ehf. Sjávarleður hf. hefur um árabil sérhæft sig í framleiðslu hágæða fiskleðurs en fyrirtækið var stofnað árið 1994 sem sprota-fyrirtæki út frá Loðskinni, mok-kaskinnsframleiðanda, sem unnið hafði merkilegt þróunarstarf í sút-unartækni fyrir fiskroð frá árinu 1989. Með stofnun Sjávarleðurs hófst markaðssetning fiskleðurs á alþjóðamarkað sem úrvals hráefni

í hverskonar varning. Með óbilandi elju og trú á verkefninu hefur stjórn- endum, starfsfólki og eigendum tekist að byggja upp kröftugt fyrir-tæki sem er í stöðugum vexti. Fyr-irtækið leggur sérstaka áherslu á gæði vörunnar og góða þjónustu við viðskiptavini.

Loðskinn verkaði á árinu 2010 um 50 þúsund lambagærur sem er um 10% af öllum þeim gærum sem til fellur í landinu á hverju ári. Aðr-ar skinnaverksmiðjur starfa ekki í landinu svo aðrar gærur eru fluttar út. „okkar viðskiptavinur eru fyrst og fremst fataframleiðendur, og

aðallega erlendir en flestir þeirra eru í Evrópu og Asíu,“ segir Gunn-steinn Björnsson framkvæmda-stjóri. ,,Fataframleiðsla á Íslandi er sáralítil í þessu samhengi.“

Mikil sérstaða íslenskra gæraEftir hverju eru þessir erlendu kaupendur að sækja?

„Íslenskar gærur hafa mikla sérstöðu, það gerir togið í henni. Spænskar gærur eru mjög eftir-sóttar en þær eru toglausar og hafa aðeins þel og eru því afar mjúkar og léttar en jafnframt nokkuð dýr-ar. Léttleiki íslensku skinnanna er alveg jafn góður, ef ekki meiri, en ullin er ekki eins mjúk en þær ís-lensku teljast á erlendum mörkuð-um vera ágætis kostur. Það eru ekki ýkja mörg ár síðan öll skinn voru unnin hérna heima en því fylgdi stundum að erfitt var að selja svo mikið magn. Hér hafa fallið til um hálf milljón skinna á hverju ári síð-ustu ár en það er samt afar lítið í samanburði við allt framboðið víðs vegar að úr heiminum. Við sútum eingöngu lambaskinn, ekki af stór-gripum og minkaskinnin eru seld á uppboði í Kaupmannahöfn. Hér er Loðskinn með gærurnar en Sjávar-leður með fiskroðið.

Við vissum í upphafi að það væri hægt að verka fiskroð og framleiða úr því skemmtilega vöru og sterka, en auðvitað er roðið nokkuð mis-munandi sterkt eftir fisktegundum. Fyrir kvótakerfið í landbúnaði um 1980 var verið að slátra um einni milljón lamba á ári en nú eru þetta um hálf milljón lamba og hér var að-staða til að verka mun meira, hér varð hráefnisskortur fljótlega á ní-unda áratugnum. Við fórum að líta í kringum okkur, fiskroðið var nær-tækt hráefni, og nóg af því. Það er erfitt að fullyrða að ein tegund fisk-roðs sé sterkari en önnur, það ræðst nokkuð af sútunaraðferðinni, og við höfum reynt ýmislegt, m.a. hvelju af rauðmaga, en það var kannski meira til að svala forvitninni og komast að því hvort það væri einfaldlega hægt. En aðalega eru þetta roð af þorski, laxi og hlýra, enda fellur útlit þeirra okkar viðskiptavinum best í geð. Þekkingin við að súta fiskroð fékkst ekki utan að, hún varð til hérna á staðnum, við prófuðum okkur hrein-lega áfram, þetta var stöðug þróun-arvinna. Fiskroð fáum við víða að, en

í stærri þorskinum erum við í nokk-urri samkeppni við saltfiskframleið-endur, en við sækjumst frekar eft-ir stærri þorski til sútunar. Nokkuð erfitt hefur reynst að fá laxaroð, og höfum við átt í nokkrum viðskiptum við Færeyinga með laxaroð.

Hlýra- og steinbítsroð höfum við aðallega fengið frá Norðurströnd á Dalvík. Við erum hins vegar opn-ir fyrir nýjum tegundum af roði ef þau reynast vel og verða vinsæl á erlendum mörkuðum, og ef krafan verður um slík roð úr tískuheimin-um.“

Þvottekta laxaleður - nýir möguleikar í fataiðnaðiFatahönnuðir hafa lengi sýnt því áhuga að nota fiskleður til að skreyta flíkur, en hingað til hefur þurrhreinsun, nánar tiltekið leð-urhreinsun, verið eina færa leið-in til að þrífa fötin með tilheyrandi kostnaði og fyrirhöfn fyrir neyt-endur. Þessi vankvæði eru nú úr sögunni, því Sjávarleður hefur nú sett á markað þvottekta laxaleður, sem þýðir að litur og mýkt skinnsins helst óbreytt eftir þvott í þvottavél með 30 gráðu heitu vatni. Þvottekta laxaleður hefur sömu eiginleika og áður hvað varðar gæði og styrk og sama má segja um fjölbreytni í lit og áferð.

Úr roðinu eru framleiddir skór, veski, töskur og fleira en einnig ýmsar flíkur. Nokkrir aðilar hér-lendis eru að kaupa fiskroð og fram-leiða úr þeim, m.a. í Skagafirði, en stærstur hlutinn er seldur úr landi,

aðallega til Suður-Evrópu þar sem framleiddar eru tískuvörur úr roð-inu, enda á hátískan helst rætur í Frakklandi og Ítalíu.

,,Við erum sjálfsagt eina fyrir-tækið á Íslandi sem er í reglulegum viðskiptum við Gucci, Dior, Prada, Nike, Ferragamo og Puma og fleiri af þessum stærstu og virtustu tískuhúsum og skóframleiðendum erlendis. Við vitum að þekktar kvik-myndastjörnur hafa gengið í skóm eða fatnaði framleiddum úr fisk-roði frá okkur hérna hjá Sjávarleðri en þetta er dýr vara og því ekki á allra færi að kaupa hana. Við erum ekki í mikilli samkeppni á markaðn-um, önnur skinn eru t.d. af snák-um eða krókódílum, froskum og fleiri skepnum en eru einnig notuð til framleiðslu á skóm og og fatnaði líkt og fiskroðið frá okkur.“

Samanlagt vinna um 35 manns hjá Loðskinni og Sjávarleðri, þar af 12 hjá Sjávarleðri, en venjulega eru ekki skörp skil þar á milli því fólk er flutt á milli deilda eftir því hvar álagið er mest. Skipulagt markaðs-starf fyrir verksmiðjurnar er stöð-ugt í gangi og er því stjórnað fyrst og fremst frá Sauðárkróki, en Gunn-steinn Björnsson framkvæmda-stjóri segir nálægðina við vöruna gera það nauðsynlegt.

Töluverð veltuaukning hefur verið milli ára við sútun á fiskroð-um, og við það hefur verksmiðjan ráðið þar sem framleiðslugetan er umtalsverð, vélbúnaðurinn til þess er til staðar, en síður í lambagær-unum.

Viss að hægt væri að verka fiskroð Gunnsteinn Björnsson, framkvæmdastjóri Loðskinns og Sjávarleðurs:

Geir Guðsteinsson skrifar:[email protected] » gunnsteinn björnsson

framkvæmdastjóri við sýnishorn af sútuðu fiskroði.

» Úr vinnslusal loðskinns.

12 jAnúAR 2012

Dalvegi 6-8201 KópavogurSími 535 [email protected]

Tökum að okkur allskyns járnsmíði, s.s. handrið, girðingar ofl.Látið reyna á þjónustuna og leitið verðtilboða hjá okkur.

JÁRNSMÍÐI

Page 13: Iðnaðarblaðið 1. tbl 2012

jAnúAR 2012 13

Vill landsátak í berjatínslu

Berjabúið Vellir býr yfir stærsta sólberjaakri landsins:

Bjarni Óskarsson, eig-andi veitingahúsakeðj-unnar Nings og frumkvöðull í berjarækt á Íslandi, hefur kom-

ið sér upp stærsta sólberjaakri landsins á Berjabúinu Völlum í Svarfaðardal. Ber-jabúið er alfarið í eigu Bjarna og fjölskyldu hans og þar rækta þau einnig lífrænar gulrætur og ýmsar framandi kryddjurtir.

„Fyrir sjö árum keypti ég jörð sem heit-ir Vellir og fór að stunda þar ýmsan öðru-vísi landbúnað. Meðal annars plantaði ég sólberjum í rúman hektara lands og nú eru fyrstu runnarnir sem við settum nið-ur farnir að gefa af sér,“ segir Bjarni.

Berjabúið framleiðir í dag fimm teg-undir af íslenskum sultum og sér Em-messís fyrir villtum íslenskum berjum sem fara í nýja tegund af Ísblómi frá fyrir-tækinu. „Ég leyfi mér að segja að Emmess-ís sé fyrsta alvöru iðnfyrirtækið á Íslandi sem notar íslensk ber í sína framleiðslu. yfirleitt hafa svipaðar vörur innihaldið innflutt ber.“

fínt tímakaup fyrir berjatínsluTil að anna eftirspurn eftir íslenskum berjum hefur Bjarni farið þá leið að kaupa bæði bláber og krækiber af fólki sem stundar berjatínslu. „Við höfum keypt ber

af fólki og pakkað þeim ferskum til sölu í matvöruverslanir. Við tökum við berjun-um á Norðurlandi, Vestfjörðum og á suð-vesturhorninu og borgum 1200 krónur fyrir hreinsuð aðalbláber og 500 krónur fyrir krækiber.“

Bjarni bendir á að hægt er að tína mun meira en eitt kíló af krækiberjum á einni klukkustund og því hægt að vera með gott tímakaup fyrir berjatínslu. Að hans sögn vill Berjabúið nú færa út kvíarnar í þessum efnum og sér fyrir sér að íslensku berin eigi eftir að spila enn stærra hlut-verk í matvælaiðnaði hér á landi.

Vill fjölga móttökustöðvumBjarni segir nauðsynlegt að fjölga mót-tökustöðvum hér á landi þar sem fólk getur

skilað inn berjum. „Svíar, Finnar og Norð-menn eru með mun fleiri móttökustöðvar og nýta þannig betur sína berjauppskeru á hverju ári. Ef við myndum fjölga slíkum stöðvum væri líklegra að fleiri skiluðu inn berjum, við myndum skapa fleiri störf og spara gjaldeyri,“ segir hann.

„Ég vill sjá ákveðna vakningu fyrir því að við séum að nýta berin okkar betur. Að mínu mati erum við með bestu ber í heimi og í því eru fólgin verðmæti. Við eigum að

nýta þessi ber og spara þannig peninga og ná okkur í góða vöru sem bætir gæði íslensks matvælaiðnaðar.“

Ein af hugmyndum Bjarna varðandi betri nýtingu á íslenskum berjum er að skólayfirvöld kenni krökkum á grunn-skólaaldri að týna ber og jurtir. „Þá geta krakkarnir nýtt afurð frá náttúrunnar hendi, selt hana og fengið gott tímakaup, í staðinn fyrir að selja klósettpappír eða aðrar vörur við fjáraflanir.“

» nemendur í dalvíkur og

árskóga-skóla tíndu

sólber á berjabúinu

völlum síðastliðið

haust.

Regla.is býður upp á einfalt og öruggt nú-tíma viðskiptakerfi í áskrift sem hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 2008. Kerfið nýtir færslur frá bönkum og sjálfvirkni til þess að auka verulega afköst við bókhaldsvinnu og auðvelda þannig rekstur lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Launamiðar, skilagreinar í lífeyris-sjóði, VSK uppgjör o.fl. er sent rafrænt til mót-takanda.

Hugbúnaður Reglu er íslensk hönnun og hafa ýmsir sérfræðingar komið að þróun hans, m.a. viðskiptafræðingar, endurskoðend-ur, kerfisfræðingar og viðurkenndir bókar-ar. Kerfið samanstendur af fjárhagsbókhaldi, sölukerfi, birgðakerfi, verkbókhaldi og launa-kerfi.

„Regla.is er hannað frá grunni sem við-skiptakerfi á internetinu. Við höfðum að mark-miði að smíða einfalt nútíma netbókhald sem gæti lækkað kostnað við bókhaldsvinnu með sjálfvirkni og nýtt kosti internetsins þann-ig að notendur gætu unnið saman óháð stað-setningu. Þannig getur notandi skrifað út reikninga á einum stað, á sama tíma og bók-arinn færir bókhaldið annars staðar, og allt uppfært jafnóðum,“ segir Kjartan Ólafsson, framkvæmdastjóri Reglu. Hann segir auðvelt fyrir notendur kerfisins að hefjast handa við bókhaldið og bendir á að áskrift fylgir enginn stofnkostnaður, en auk þess býðst ókeypis 30 daga prufuáskrift að kerfinu.

„Með Reglu losna viðskiptavinir okkar við afritatöku og rekstur á tölvuþjónum vegna kerfanna. Á undanförnum tveimur árum eru dæmi um að fyrirtæki hafi náð að minnka bókhaldsvinnu um meira en 50% með Reglu. Vinnusparnaðurinn er því fljótur að greiða fyrir afnot kerfisins.“

Frekari upplýsingar um viðskiptakerfið má finna á www.regla.is.

Einfaldari bókhaldsvinnaMeiri afköst í bókhaldi með nýju viðskiptakerfi:

KYNNiNG

Page 14: Iðnaðarblaðið 1. tbl 2012

Magnús Þór Ásmundsson er nýráðinn for-stjóri Alcoa á Íslandi, eignarhaldsfélags Fjarðaáls. Hann segir sín helstu verkefni á næstu mánuðum verða tengd áfram-haldandi þróun fyrirtækisins hérlendis, samfélagslegum tengslum, fjárfestingar-verkefnum og samskiptum við stjórnvöld og sveitastjórnir.

Magnús Þór er menntaður rafmagns-verkfræðingur og starfaði hjá Marel í 19 ár áður en hann hóf störf sem fram-kvæmdastjóri framleiðsluþróunar Alcoa í júní 2009, en hann mun áfram sinna því starfi samhliða forstjórastarfinu. „Sem framkvæmdastjóri framleiðsluþró-unar Fjarðaáls sé ég um skipulag, stefnu-mótun og umbætur á framleiðsluferlum fyrirtækisins. Einnig sé um að innleiða og tryggja skilvirka notkun á Alcoa Bus-

iness Systems, sem er stjórnkerfi Alcoa. Fyrir ári síðan tók ég einnig við starfi framkvæmdastjóra skautsmiðju en ég mun nú láta af því starfi,“ segir Magnús aðspurður um bakgrunn sinn hjá álfyrir-tækinu.

Breytingar á skipulagiÞegar Tómas Már Sigurðsson, fyrrver-andi forstjóri Fjarðaáls og Alcoa á Íslandi, var ráðinn forstjóri Alcoa í Evrópu var ákveðið að skerpa á hlutverkum Fjarða-áls annars vegar og Alcoa á Íslandi hins vegar. Nýráðinn forstjóri Fjarðaáls, Janne Sigurðsson, mun sjá um daglegan rekstur fyrirtækisins á meðan Magnús mun sinna verkefnum Alcoa á Íslandi sem tengjast frekari þróun fyrirtækisins og samskipt-um út á við.

Eitt af verkefnum Magnúsar verður að sinna samfélagslegum tengslum Al-coa á Íslandi. „Alcoa leggur mikla áherslu

á að vera uppbyggjandi þáttakandi á Mið-Austurlandi, enda er fyrirtækið lang-stærsti vinnustaðurinn í tiltölulega litlu samfélagi. Ákvörðun um að setja fyrir-tæki af þessari stærðargráðu inn í lít-ið samfélag fylgir ákveðin skuldbinding fyrir hið opinbera, viðkomandi sveitarfé-lög og fyrirtækið sjálft um að treysta inn-viði nærsamfélagsins. Við viljum standa vörð um að þessir innviðir séu byggðir upp í samfélaginu og munum áfram beita okkur í þá átt,“ segir hann.

Lækkun álverðs krefst aðhaldsStuttu eftir að Magnús tók við forstjóra-stöðunni barst fréttatilkynning frá Al-coa um að fyrirtækið muni draga úr ál-framleiðslu sinni um 531 þúsund tonn á þessu ári vegna lækkandi álverðs. „Eitt helsta verkefni okkar verður að takast á við þungt ár sem er framundan í áliðnað-inum. Álverð hefur lækkað og verið er að

grípa til ráðstafana til að draga úr fram-leiðslugetu Alcoa í Evrópu og Bandaríkj-unum. Nýverið lokaði fyrirtækið verk-smiðju í Bandaríkjunum og einnig hefur verið tilkynnt um lokanir á einu álveri á Ít-alíu og minni framleiðslu í tveimur álver-um á Spáni. Við hjá Alcoa á Íslandi munum því sýna mikið aðhald í rekstri og fjárfest-ingum á þessu ári,“ segir hann.

Magnús undirstrikar hins vegar að fyrirtækið hefur enn áhuga fyrir frekari vexti á Íslandi til lengri tíma og að for-svarsmenn þess muni halda áfram við-ræðum við Landsvirkjun og aðra seljend-ur raforku hér á landi.

„Árið 2012 mun einkennast af þeim aðstæðum sem eru á markaði í dag og því þarf að leggja áherslu á aðhald í kostn-aði. Til lengri tíma litið eru bjartar horfur í áliðnaðinum og eftirspurn eftir áli er að aukast. Með þá framtíðarsýn höfum við áhuga á frekari vexti Alcoa á Íslandi.“

14 jAnúAR 2012

Haraldur Guðmundsson skrifar:[email protected]

Forstjóri á tímum lækkandi álverðsmagnús Þór Ásmundsson er nýr forstjóri Alcoa á Íslandi:

» Magnús Þór ásmundsson, forstjóri alcoa á Íslandi.

Sigurður Haraldsson, kjötiðnaðarmeistari:

Pylsumeistarinn» Hver er saga fyrirtækisins í stuttu máli?Búðin var opnuð 1. mars 2011 af Ewu Kromer og er fyrsta sérverslun með pylsur og annað álegg á Íslandi. Mark-mið okkar er að bjóða upp á vörur úr innlendu hráefni, án aukaefna, og það hefur fyrirtæki okkar Ewu, Kjötpól, gert frá árinu 2005.

» Hversu lengi hefur þú starfað í kjötiðnaði?Frá árinu 1974.

» Hefur fyrirtækið breyst mikið síðan það var stofnað?Það hefur stækkað, enda viðtökurnar verið góðar.

» Telurðu staðsetninguna á horni Hrísateigs og Laugalæks vera góða?Já, þarna býr viss kjarni sem tók búðinni mjög vel.

» Hvað ertu með marga starfsmenn?Það eru tveir sem starfa í búðinni.

» Hvernig gengur að reka lítið fyrirtæki á Íslandi í dag?Það er erfitt en að sama móti ögrandi því maður er að gera eitthvað nýtt.

» Eruð þið með marga fastakúnna?Já, mjög marga.

» Er eitthvað spennandi framundan hjá Pylsumeistaranum?Já, við ætlum að auka úrvalið, meðal annars með því að bjóða upp á hrápylsur úr 100% lambakjöti.

iðnaðarmaðurinn

Page 15: Iðnaðarblaðið 1. tbl 2012

ÍSL

EN

SKA

SIA

.IS M

SA

581

87 0

1/12

100% HÁGÆÐA MYSUPRÓTEIN

HLEðSLA ER KJÖRIN FYRIR ALLA ÞÁ SEM TREYSTA Á HOLLA OG UPPBYGGILEGA NÆRINGU EFTIR GÓðA ÆFINGU,

LANGT HLAUP EðA MILLI MÁLA. ÞAð ER ENGIN TILVILJUN Að HLEðSLA ER EINN VINSÆLASTI PRÓTEINDRYKKUR Á ÍSLANDI.

HENTAR VEL FÓLKI MEð MJÓLKURSYKURSÓÞOL.

MJÓLKURSAMSALAN MS.IS

PRÓTEINDRYKKURINN SEMÍSLENDINGAR FÁ ALDREI NÓG AF

magnús Þór Ásmundsson er nýr forstjóri Alcoa á Íslandi:

Page 16: Iðnaðarblaðið 1. tbl 2012

Byggingariðnaður

Áliðnaður

Líftækni

Prentiðnaður

Matvælaiðnaður

Listiðnaður

Véltækni

Málmtækni

Mótum eigin framtíð – Núna er rétti tíminn!

Samtök iðnaðarins – www.si.is

Upplýsingatækni

2015 tækifæri