Útvegsblaðið 5.tbl 2013

16
Sæmdur Riddara- krossinum n ,,Hlakka til hvers vinnudags og mæti með bros á vör vitandi að starfið sem við vinnum í skólanum getur skipt sköpum fyrir sjómenn,“ segir Hilmar Oddsson Ostruræktun á Íslandi n Fyrsta sinn sem reynt er að rækta ostrur hér við land en þær eru hlýsjávardýr. Menn eru mjög bjartsýnir og spenntir. Dalvegur 6-8 201 Kópavogur Sími 535 3500 www.kraftvelar.is [email protected] Sýning hjá Kraftvélum 8-9 júní frá kl. 12:00 -17:00 í samstarfi við Toyota Kauptúni Komdu og kynntu þér breitt vöruúrval Kraftvéla og Toyota og fáðu ráðgjöf og upplýsingar hjá sölumönnum. Allir velkomnir í heimsókn, léttar veitingar í boði, gosdrykkir, heitt á könnunni og glaðningur fyrir börnin. Makríllinn hefur reyndar verið kominn hingað fyrr en þá er hann ekki nógu feitur fyrir vinnsluna. Þessi sem ég var að veiða í fyrra var 24% feitur. Magnús Emanúlesson útgerðarmaður Stórt markaðs- verkefni í smíðum n Íslandsstofa undirbýr sam- eiginlegt markaðsátak á íslensku sjávarfangi erlendis í anda Inspired by Iceland. Sjávarútvegsskóli Síldarvinnlunnar n Nauðsynlegt að ungmenni kynnist undirstöðuatvinnu- greinum þjóðarinnar og að þau séu meðvituð um mikilvægi hennar. n Skattlagning á uppsjávarveiðar hækkar í nýlegum tillögum ríkisstjórnarinnar um breytingar á veiðigjaldi sem nú liggja fyrir Alþingi. Skattlagning á bolfiskveiðar lækkar á móti. Almennt veiðigjald á hvers þorskígildistonn mun verða hið sama. 6 Skattur á bolfiskveiðar lækkar en hækkar fyrir uppsjávarfisk 4 10 12 8 14 júlí 2013 » 5. tbl. » 14. árg. ÞJÓNUSTUMIÐILL SJÁVARÚTVEGSINS Missáttir útgerðarmenn

description

 

Transcript of Útvegsblaðið 5.tbl 2013

Page 1: Útvegsblaðið 5.tbl 2013

Sæmdur Riddara-krossinumn ,,Hlakka til hvers vinnudags og mæti með bros á vör vitandi að starfið sem við vinnum í skólanum getur skipt sköpum fyrir sjómenn,“ segir Hilmar Oddsson

Ostruræktun á Íslandin Fyrsta sinn sem reynt er að rækta ostrur hér við land en þær eru hlýsjávardýr. Menn eru mjög bjartsýnir og spenntir.

Dalvegur 6-8201 KópavogurSími 535 [email protected]

Sýning hjá Kraftvélum8-9 júní frá kl. 12:00-17:00

í samstarfi við Toyota Kauptúni

Komdu og kynntu þér breitt vöruúrval Kraftvéla og Toyota og fáðu ráðgjöf og upplýsingar hjá sölumönnum.

Allir velkomnir í heimsókn, léttar veitingar í boði, gosdrykkir, heitt á könnunni og glaðningur fyrir börnin.

Makríllinn hefur reyndar verið kominn hingað fyrr en þá er hann ekki nógu feitur fyrir vinnsluna. Þessi sem ég var að veiða í fyrra var 24% feitur.

Magnús Emanúlesson útgerðarmaður

Stórt markaðs- verkefni í smíðumn Íslandsstofa undirbýr sam-eiginlegt markaðsátak á íslensku sjávarfangi erlendis í anda Inspired by Iceland.

Sjávarútvegsskóli Síldarvinnlunnarn Nauðsynlegt að ungmenni kynnist undirstöðuatvinnu-greinum þjóðarinnar og að þau séu meðvituð um mikilvægi hennar.

n Skattlagning á uppsjávarveiðar hækkar í nýlegum tillögum ríkisstjórnarinnar um breytingar á veiðigjaldi sem nú liggja fyrir Alþingi. Skattlagning á bolfiskveiðar lækkar á móti. Almennt veiðigjald á hvers þorskígildistonn mun verða hið sama. 6

Skattur á bolfiskveiðar lækkar en hækkar fyrir uppsjávarfisk

4

10 12

8

14

j ú l í 2 0 1 3 » 5 . t b l . » 1 4 . á r g .

Þjónustumiðill sjávarútvegsins

Missáttir útgerðarmenn

Page 2: Útvegsblaðið 5.tbl 2013

2 ú t v e g s b l a ð i ð j ú l í 2 0 1 3

Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19• Ísnet Húsavík - Barðahúsi• Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi• Ísnet Sauðárkrókur - Lágeyri 1• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður - Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • [email protected]

Allar gerðir bindivélaStrekkifilmur, plast- og stálbönd

www.isfell.is

útgefandi: Goggur ehf., Grandagarði 16 101 Reykjavík. sími: 445 9000. útgáfustjóri: Sædís Eva Birgisdóttir. ábyrgðarmaður: Hildur Sif Kristborgardóttir vefsíður: utvegsbladid.is / goggur.is. tölvupóstur: [email protected]. Prentun: Landsprent. ISNN 2298-2884

Staðan í afla einStakra tegunda innan kvótanS:

Þorskurn Aflamark: 162.541n Afli t/ aflamarks: 147.970

ufsin Aflamark: 42.847n Afli t/ aflamarks: 36.339

Ýsan Aflamark: 30.894n Afli t/ aflamarks: 28.708

Karfin Aflamark: 45.183n Afli t/ aflamarks: 40.137

91% 84.8%92.9% 88.8%

9% 15.2%7.1% 11.2%

Í október á síðasta ári fór hópur átján ungmenna til Færeyja í því skyni að finna lausn á til-teknu vandamáli tengdu rekj-

anleika fisks. Megintilgangurinn var þó sá að kynna fyrir nemend-um hversu áhugavert það er að taka þátt í verkefnum tengdum sjávarútvegi.

Markmiðið að efla áhugannNIMMP, eða Nordic Marine Inn-ovation Programme, er verkefni á vegum Innovits, styrkt af Norrænu nýsköpunarmiðstöðinni. Kristján Freyr Kristjánsson, framkvæmda-stjóri Innovits, segir hugmyndina að verkefninu hafa verið kall frá Norrænu nýsköpunarmiðstöðinni þar sem óskað var eftir hugmynd-um sem stuðluðu að því að efla áhuga fólks á Norðurlöndum á starfi í sjávarútvegi, og þá sérstaklega há-skólanemenda. ,,Við fréttum af þess-um styrk og datt í hug að þetta væri kjörið fyrir okkur en við höfum ver-ið með svona vinnusmiðjur og gæt-um nýtt okkur þá hugmyndafræði,“ segir Kristján. Eftir að styrkurinn var kominn setti Innovit sig í sam-band við norræna aðila sem þeir höfðu unnið með áður að vinnu-smiðjum og boltinn fór að rúlla.

Verkefnið snerist um að hópur nemenda myndi fara til Færeyja og dvelja þar í fimm daga við að leysa ákveðið vandamál tengt sjávarút-vegi. Flug, fæði og uppihald væri greitt. Viðtökur nemenda voru góðar og bárust Innovit um 200 umsóknir, þar af um 90 frá Íslandi. Úr umsóknunum voru valdar átján og komu nemendurnir frá ýmsum fræðasviðum, bæði tengdum sjáv-arútvegi og eins félagsvísindum og forritun. Ungmennin fengu ýmsan undirbúning og fóru t.d íslensku þátttakendurnir til Grindavíkur og unnu þar verkefni sem gæti und-irbúið þau fyrir verkefnið í Færeyj-um. ,,Þetta gekk vel í Færeyjum og þau gerðu margt, fengu fyrirlestra, skoðuðu ýmislegt og unnu mikið. Það myndaðist þarna keppnisandi og hópurinn varð mjög þéttur,“ segir hann. Allir hafi verið mjög ánægðir eftir á og tilgangi verk-efnisins hafi verið náð, sem var að

vekja áhuga nemanna á sjávarút-vegi og að þau mynduðu tengslanet sem á eftir að nýtast þeim síðar.

,,Þetta verður nú sjálfsagt ekki gert aftur, ekki alveg eins. Verkefnið var unnið í markaðslegum tilgangi og við fengum kvikmyndatökulið með okkur sem tók þetta allt upp og flott myndband var svo unnið á eftir. Við erum hins vegar alltaf með spenn-andi vinnusmiðjur öðru hvoru, við vorum t.d nýlega í Tehran og Brasi-líu. Það er alltaf heilmikið í gangi.“ Aðspurður hvort einhver vinnu-smiðja sem tengist sjávarútvegi eigi eftir að líta dagsins ljós segir Krist-ján það ekki vera spurningu. Hins vegar þurfi einhvern aðila sem vill að svona verkefni verði að veru-leika, háskóla, stofnun eða fyrir-tæki. ,,Það væri gaman að koma að því, við erum alltaf opin fyrir þess konar hugmyndum,“ segir Kristján að lokum.

Vinnusmiðja í Færeyjum

Þetta gekk vel í Færeyjum og þau gerðu margt, fengu fyrirlestra, skoðuðu ýmislegt og unnu mikið. Það myndaðist þarna keppnisandi og hópurinn varð mjög þéttur.“

Sigrún Erna Geirsdóttir

Viðtökur nemenda voru góðar og bárust Innovit um 200 umsóknir, þar af um 90 frá Íslandi.

Áhugi á sjávarútvegi vakinn hjá ungmennum

Við fréttum af þessum styrk og datt í hug að þetta væri kjörið fyrir okkur en við höfum verið með svona vinnusmiðjur og gætum nýtt okkur þá hugmyndafræði.

Page 3: Útvegsblaðið 5.tbl 2013

TromsöNoregur

ÁrósarDanmörk

ImminghamEngland

BergenNoregur

MaaloyNoregur

ÁlasundNoregur

HammerfestNoregur

Båts�ordNoregur

MurmanskRússland

KirkenesNoregur

StavangerNoregur

HamborgÞýskaland

ROTTERDAMHolland

VelsenHolland

GrimsbyEngland

NuukGrænland

ArgentiaNýfundnaland

HalifaxNova Scotia

PortlandMaine, Bandaríkin

St. AnthonyNýfundnaland

BostonMA, Bandaríkin

SortlandNoregur

HelsingjaborgSvíþjóð

SwinoujsciePólland

FredrikstadNoregur

KlakksvíkFæreyjar

ÞÓRSHÖFNFæreyjar

Norð�örðurÍsland

HúsavíkÍsland

AberdeenSkotland

Reyðar�örðurÍsland

VágurFæreyjar

VestmannaeyjarÍsland

REYKJAVÍKÍsland

SauðárkrókurÍsland

AkureyriÍsland

Grundar�örðurÍsland

Ísa�örðurÍsland

BíldudalurÍslandGrundartangi

Ísland

nýtt leiðakerfi eimskips– með strandsiglingum við Ísland í beinni tengingu við Evrópu

Vikulegar strandsiglingar með beinni tengingu við Færeyjar, Bretland og meginland Evrópu.

Siglt með ferskan fisk vikulega frá Íslandi og Færeyjum

Aukin þjónusta við olíuiðnaðinn með siglingum til og frá Skotlandi

Tíðari ferðir og styttri siglingartími til og frá Bandaríkjunum.

Ný höfn í Bandaríkjunum, Portland, Maine

Möguleg viðkoma á Ísafirði og Akureyri á leiðinni frá Noregi

Ný viðkoma í Vágur í Færeyjum og Hamborg í Þýskalandi

Korngarðar 2 | 104 Reykjavík | 525 7000 | www.eimskip.is

FÍT

ON

/ S

ÍA

brún leiðRússland, Noregur, Holland, England, Skotland, Noregur

mögulegar norðurheimskauts leiðir

möguleg viðkoma / árstíðabundnar siglingar

græn leiðNoregur, Ísland, Nýfundnaland, Nova Scotia, Bandaríkin, Nýfundnaland, Ísland

blá leiðÍsland, Færeyjar, Holland, Pólland, Svíþjóð, Noregur, Danmörk, Færeyjar, Ísland

rauð leiðÍsland, Færeyjar, Skotland, Holland, Ísland

viðkomur

tengihöfn

stórtengihöfn

gul leiðÍsland, Færeyjar, England, Holland, Þýskaland, England, Ísland

Page 4: Útvegsblaðið 5.tbl 2013

4 ú t v e g s b l a ð i ð j ú l í 2 0 1 3

Höfn byggð upp á Dysnesin Miklar væntingar eru bundnar við fyrirhuguð um-svif á Grænlandi, leit að olíu og borun í hafinu norðan við Ísland, sem og auknar pól-siglingar. Eitt þeirra verkefna sem hleypt hefur verið af stokkunum í þessu samhengi er uppbygging hafnar á Dys-nesi við Eyjafjörð. Félagið Dysnes þróunarfélag ehf. var stofnað nýverið og er því ætlað að byggja upp og kynna Dysnes við Eyja-fjörð sem framtíðar hafnar-svæði vegna þjónustu við námu og olíuvinnslur fyrir norðan Ísland. Að félaginu standa Eimskip, Mannvit, Hafnarsamlag Norður-lands, Slippurinn Akur-eyri og Atvinnuþróunar-félag Eyjafjarðar en Dysnes stendur 15 km norðan við Akureyri. Hafnarskilyrði þar þykja sérlega góð og er þar nægt land fyrir hafnarsvæðið sem áætlað er að þurfi um 90 hektara, þar af 30 með land-fyllingu. Byggðir verða brygg-jukantar sem henta þjónust-unni sem borðið verðu upp á og er reiknað með að fram-kvæmdir hefjist í áföngum. Nauðsynlegt er að fara í um-hverfismat vegna verkefnis-ins og mun fyrsti áfangi fram-kvæmdanna hefjast þegar því verður lokið. Reiknað er með því að heildarfjárfesting á svæðinu geti numið allt að 18 milljörðum á komandi árum. Atvinnuþróunarfélag Eyja-fjarðar mun sjá um daglegan rekstur félagsins og verður Þorvaldur Lúðvík Sigur-jónsson forstöðumaður þess.

Unga fólkið sækir í sjávarútvegn Mikil fjölgun hefur verið í Húsi Sjávarklasans að undanförnu en nýverið réði Íslenski sjávarklasinn til sín 12 sumarstarfsmenn til að sinna ýmsum haftengdum verkefnum sem klasinn fæst við í sumar. Hópurinn er afar fjölbreyttur og með víðtæka reynslu úr námi sínu sem og atvinnulífinu. Þetta er annað árið í röð sem klasinn ræður til sín sumarstarfsfólk en síðastliðið sumar voru ráðnir um 10 sumarstarfsmenn. Verk-efnin sem unga fólkið mun kljást við í sumar eru við-skiptaáætlanir, ensímrann-sóknir, sölu- og markaðsmál aukaafurða úr fiski, hönnun,

kortlagning haftengdrar starfsemi á Höfn í Horna-firði, kortlagning líftækni-fyrirtækja, Græna fiskiskipið, Green Marine Technology, efling klasasamstarfs á Suður-nesjum, hagfræðirannsóknir, menntamál og margt fleira. Það verður því nóg um að vera við Reykjavíkurhöfn og í Salt-fisksetrinu í Grindavík þar sem hluti af hópnum mun starfa og sinna verkefnum á vegum Codlands. Alls bárust tæp-lega 130 umsóknir fyrir sumar-störfin í ár og því ljóst að unga fólkið sér tækifærin sem liggja í haftengdum greinum. Þess ber einnig að nefna að fleiri fyrirtæki í Húsi Sjávarklasans hafa ráðið til sín fólk í sumar og má búast við miklu lífi við Reykjavíkurhöfn í sumar. Nán-ari upplýsingar veitir Eva Rún Michelsen í síma 692 9440 eða netfanginu [email protected]

Magnús Emanúlesson útgerðarmaður í Ólafsvík

Fékk upp í fjögur tonn á færin, einn um borð

Ég var á færum í apríl og byrjun maí á Manga á Búðum SH fyrir Þórsnes í Stykkishólmi sem lagði

mér til kvóta en ég er ekki með neinn kvóta á bátinn. Þessu land-aði ég lagði ýmist á Arnarstapa eða í Ólafsvík. Þetta gekk ágæt-lega en ég fékk aðallega þorsk. Ég komst upp í fjögur tonn af góðum fiski, á færin, einn um borð,“ sagði Magnús Emanúlesson útgerðar-maður og sjómaður í Ólafsvík. „Ég á svo annan bát, Oliver SH, sem ég hef smá kvóta á. Ég hef verið með hann á strandveiðum núna, það hefur gengið frekar treglega, aðal-lega vegna brælu. Strandveiðarnar

hafa því dregist hér fram eftir maí-mánuði en ég ætlaði fyrir löngu að vera byrjaður á línuveiðum á Manga á Búðum og verð á línu fram að makrílveiðum.“ Magnús

segist flakka á milli og það ráðist bara af veðri og veiðum hvort hann landi á Arnarstapa eða í Ólafsvík.

Í fyrrasumar var Magnús á makrílveiðum og ætlar aftur núna.

„Þetta gekk bara vel og ég fékk um 100 tonn. Ég veiddi fyrir Storm Sea-food í Hafnarfirði sem útvegaði mér fimm rúllur og jafn marga slít-ara. Ég er ágætlega búinn í þetta og fer af stað um leið og byrja má 1. júlí. Makríllinn hefur reyndar verið kominn hingað fyrr en þá er hann ekki nógu feitur fyrir vinnsl-una. Þessi sem ég var að veiða í fyrra var 24% feitur,“ sagði Magn-ús Emanúlesson í Ólafsvík sem, eins og báturinn hans, heitir í höf-uðið á afa sínum Magnúsi Einars-syni, sem bjó á Búðum á sunnan-verðu Snæfellsnesi.

Magnús Gamalíelsson að landa úr Manga á Búðum á Arnarstapa.

www.polardoors.com

Júpíter hw Júpíter t5 Herkúles t4 Neptúnus t4 Merkúr t4 Júpíter t4

Hlerar til allra togveiða

Haraldur Bjarnason

Mangi á Búðum við bryggju.

Page 5: Útvegsblaðið 5.tbl 2013

Magnús Emanúlesson útgerðarmaður í Ólafsvík

Samherji trúir á mikilvægi fjölbreyttrar hreyfingar fyrir alla og er styrktaraðili ÍF og Special Olympics

ÁRANGUR / KRAFTUR / STUNDVÍSI / HVATI / STUÐNINGUR / ÚTSJÓNARSEMI / ÚTHALD / STYRKUR / HEILSA / MATARÆÐI / SÓKN / AGIYFIRVEGUN / GLEÐI / SIGUR / ÞÁTTTAKA / ÁRÆÐNI / SNERPA / ÁKVEÐNI / ÆFING / METNAÐUR / SIGURVILJI / ATHYGLI / JÁKVÆÐNI

Samherji hf. • Glerárgötu 30 • 600 Akureyri • Ísland

Sími 560 9000 • Fax 560 9199 • [email protected] www.samherji.is

Page 6: Útvegsblaðið 5.tbl 2013

„Kemur virkilega illa út fyrir okkur“,,Þetta frumvarp og hátt gjald á uppsjávartegundir kemur okkur verulega á óvart og það leggst illa í okkur hversu hátt sérstaka gjaldið mun leggjast á þessar tegundir. Miðað við þær for-

sendur á bak við þá útreikninga sem við sjáum þarna á veidigjold.com þá eru þær slæmar og koma illa út fyrir Eskju hf. umfram önnur félög. Það er ljóst að verið er ganga allt of

nærri fáum fyrirtækjum í fáum sveitarfélögum sem munu bera uppi gjaldtökuna og það er verið að færa allan meginþungann yfir á uppsjávarfyrirtæki. Við í Eskju

erum með mikla uppsjávarstarfsemi meðan við erum hlutfallslega litlir í bol-fiski og þetta kemur virkilega illa út fyrir okkur og aðra í sömu stöðu, sérstak-lega minni útgerðir í uppsjávarveiðum sem geta engan veginn borið þetta til

lengri tíma.Við höfum staðið í miklum fjárfestingum á Eskifirði; rafvæddum fiskimjölsverksmiðjuna, stórbættum mengunarvarnir auk þess að byggja nýtt hús

fyrir starfsfólkið okkar svo þetta kemur sér mjög illa. Þetta frumvarp án breytinga er gallað hvað þetta varðar og veiðigjöld lenda mjög misjafnlega á einstaka tegundum, kol-

munni kemur t.d sérstaklega illa út og ekkert tillit er tekið til sóknarkostnaðar sem er mjög hár en Eskja hf. veiðir talsvert af þeirri tegund. Það heyrist víða að við í uppsjávarveiðum getum borgað svona há veiðigjöld en það er alveg horft framhjá því í frumvarpinnu að í upp-sjávarveiðum eru minnkandi kvótar, óvissa með loðnuna og neikvæðar markaðshorfur, auk þess sem fjárfestingarþörf uppsjávarfyrirtækja er mjög mikil. Vonandi verður þetta endur-skoðað því annars er hætt við að þessi fyrirtæki lendi í ógöngum til lengri tíma.“

Páll Snorrason, framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar hjá Eskju.

„Miklu fargi af manni létt“,,Það lyftist á okkur brúnin við þessar fréttir um lækkunina, því er ekki að neita. Við

erum aftur komin í þann gír að endurskoða fjárfestingar fyrir félagið og erum með ýmislegt á döfinni. Það þarf bæði að endurnýja þann hluta af flotanum sem er orðinn gamall og eins erum við með gamalt húsnæði sem þarf að endurnýja.

Svo verður auðvitað að viðhalda tækjakosti í útgerð og fiskvinnslu. Nú teljum við okkur með góðu móti geta hugsað um fjárfestingar til framtíðar en ekki bara til 5

ára. Það er vissulega miklu fargi af manni létt.“ Andrea Atladóttir, fjármálastjóri Vinnslustöðvarinnar.

„Vil sjá þetta lækka hraðar“,,Það var bolfiskvinnslan sem var hvað mestu óréttlæti beitt í fyrri lögum og við tilheyrum henni svo við fögnum auðvitað þessum breytingum sem eiga að verða á veiðileyfagjöldunum. Ef ekkert hefði verið að gert hefðu þessi gjöld slátrað okkur, eins og flestum öðrum fyrir-tækjum. Síðan er annað mál hversu mikið er búið að leiðrétta, ég vil sjá þetta lækka hraðar. Menn þurfa að koma sér saman um hver eðlileg gjaldtaka er. Til lengri tíma litið held ég að það skili sér betur í ríkiskassann að borga góðan tekjuskatt og þannig hefðum við líka svigrúm til að halda forskoti og fara út í nauðsynlegar fjár-festingar. Menn viðurkenna alveg að það þarf að greiða veiðileyfagjald, það þarf hins vegar að miðast við afkomu hvers fyrirtækis. Þessi skattur þarf að vera þannig að hann hindri ekki vöxt og fjárfestingar til lengri tíma.“

Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis.

Það er ljóst að verið er ganga allt of nærri fáum fyrirtækjum í fáum sveitarfélögum sem munu bera uppi gjaldtökuna og það er verið að færa allan meginþungann yfir á uppsjávarfyrirtæki.

Við erum aftur komin í þann gír að endurskoða fjárfestingar fyrir félagið og erum með ýmislegt á döfinni. Það þarf bæði að endurnýja þann hluta af flotanum sem er orðinn gamall og eins erum við með gamalt húsnæði sem þarf að endurnýja.

Missáttir útgerðarmenn Skattur á bolfiskveiðar lækkar en hækkar fyrir uppsjávarfisk

Skattlagning á uppsjávar-veiðar hækkar í nýlegum tillögum ríkisstjórnar-innar um breytingar á

veiðigjaldi sem nú liggja fyrir Al-þingi. Skattlagning á bolfiskveiðar lækkar á móti. Almennt veiðigjald

á hvers þorskígildistonn mun verða hið sama.

Samkvæmt núverandi lögum er almennt veiðigjald 9,15 kr á hvert þorskígildistonn og er lagt til að það verði óbreytt. Sérstakt veiðigjald á hvert þorskígildis-tonn á bolfiski lækkar hins vegar í 7,38 kr en það stendur nú í 23,20

kr. Sérstakt gjald á uppsjávarfisk fer hins vegar úr 27,50 kr. í 38,25 kr. Breytingarnar þýða mismunandi hluti fyrir útgerðirnar eftir því hvort þær sérhæfa sig í botnfisk- eða uppsjávarvinnslu. Á vefnum veidigjald.com sem haldið er út af nemendum í sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri má sjá hvað

útgerðir og skip ættu að borga í veiðigjald samkvæmt gamla frumvarpinu og eins hvað þarf að greiða eftir breytingar. Ef þessar tölur standast hefði t.d Vinnslu-stöðin í Vestmannaeyjum t.d átt að greiða tæplega 851 milljónir fyrir árið 2013 en sú upphæð fer í 820 milljónir eftir breytingarnar

og Vísir í Grindavík hefði átt að greiða rúmar 447 milljónir en þarf að greiða 230 milljónir. Ekki lækka gjöldin hjá öllum því útgerðir sem stunda uppsjávarveiðar þurfa að greiða meira eftir breytinguna. Hækkunin er mest hjá Eskju á Eskifirði, eða um 23% og svo hjá Ísfélagi Vestmannaeyja, 20%.

Sigrún Erna Geirsdóttir

Ef þessar tölur standast hefði t.d Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum t.d átt að greiða tæplega 851 milljónir fyrir árið 2013 en sú upphæð fer í 820 milljónir eftir breytingarnar og Vísir í Grindavík hefði átt að greiða rúmar 447 milljónir en þarf að greiða 230 milljónir

6 ú t v E G S B L a ð I ð j ú l í 2 0 1 3

Page 7: Útvegsblaðið 5.tbl 2013
Page 8: Útvegsblaðið 5.tbl 2013

8 ú t v E G S B L a ð I ð j ú l í 2 0 1 3

Sérstöðuna vantar á erlendum mörkuðum Mikill vilji fyrir sameiginlegri markaðssetningu

Síðan stóru sölusamtökin liðuðust sundur hefur lítið sem ekkert samstarf verið á milli íslenskra fyrirtækja í markaðsmálum erlendis og hafa sumir bent á að vegna þessa hafi sérstaða íslensks fisks tapast. Vaxandi vilji virðist hins vegar vera fyrir því að bæta úr þessu og koma á sameiginlegu markaðsstarfi.

Markaðs- og sölumál íslenskra sjávar-afurða hefur tekið miklum breytingum

í gegnum tíðina. Á Bandaríkja-markaði höfðu Íslendingar lengi yfirburði og það sama má segja um vissa saltfiskmarkaði og loðnu-hrognamarkað í Japan. Íslending-ar stóðu framarlega í nýjungum og þjónustu og stóðu jafnfætis, eða jafnvel framar, Norðmönn-um, okkar helstu keppinautum, á flestum mörkuðum. Margir telja hins vegar að sýnileiki okkar hafi minnkað frá aldamótum til hags-bóta fyrir Norðmenn sem alltaf hafa fjárfest mikið í sameiginlegri markaðssetningu meðan hún lagðist af hérlendis. Friðrik Páls-son, stjórnarformaður Íslands-stofu, er sammála þessu. ,,Ég verð var við að framleiðendur telja að sýnileiki Norðmanna sé meiri en okkar þótt við stöndum að mörgu leyti sterk ennþá.Norðmenn hafa alltaf haft skilning á því hve mik-ilvæg sameiginleg markaðssetn-ing er og því lagt mikla peninga í hana.“ Hann segir að það sé alltaf ákvörðun eigenda fyrirtækja á hverjum tíma hvernig þeir hagi sölu og markaðssetningu, það geti enginn tekið þá ákvörðun fyrir þá. Ef þeir kjósi að fara í sameiginlegt markaðsstarf og óski eftir stuðn-ingi frá hinu opinbera, þá sé það ný ákvörðun og hún hafi þegar verið tekin. ,,Það eru fréttir í mín-um huga að stórir framleiðendur skuli fara fram á það að efnt verði til sameiginlegrar kynningar- og markaðsherferðar. Það er nýtt.“

Fálmkennd og ómarkviss sölumálPáll Ingólfsson, framkvæmda-stjóri Fiskmarkaðs Íslands, er gagnrýninn á markaðs- og sölu-

mál á íslenskum fiski erlendis og segir þau fálmkennd og ómark-viss. ,,Og að mínu viti var það al-gert skemmdarverk að selja á sín-um tíma sölufyrirtækið Icelandic.“ Hann segir að mikið skorti á að íslenskur fiskur sé markaðssett-ur sem íslenskur fiskur og Norð-menn standi sig mun betur í því en við þótt þeir séu að hans mati ekki með eins góðan fisk. ,,Þeir standa saman og tala um vöru hvers annars. Hérna kroppum við hins vegar augun hvor úr öðrum, sem er arfagalið fyrir heildina.“ Það verði að hafa í huga að þótt

Íslendingar séu að státa sig af fiskveiðum og fiskvinnslu þá sé landið þrátt fyrir allt ekki með nema lítið brot á markaði á fiskaf-urðum erlendis og því verði menn að standa saman um selja þessa sérstöku vöru. ,,Ég er ekki mennt-aður markaðsfræðingur en mér finnst markaðsmál á íslenskum fiski ótrúlega ótrúverðug.“

Baklandið vantar,,Þegar menn standa við kæli í Þýskalandi vita menn ekki að þetta er íslenskur fiskur, þetta er hvítur fiskur, og það getur hvaða

fiskur sem er komið í staðinn. Fiskurinn hefur misst það að vera íslenskur og þar með höfum við gefið tækifæri á að aðrar vöru geti komið inn og getum ekki varist,“ segir Viðar Garðarsson, viðskiptafræðingur og umsjón-armaður Alkemistans, þáttar um markaðsmál og viðskipti á Mbl.is. Hann segir að við einkavæð-inguna sem átti sér stað kringum síðustu aldamót þegar Sölumið-stöð hraðfrystihúsanna og Sjáv-arafurðadeild SÍS voru brotin upp og fyrirtæki eins og Grandi, Sam-herji o.fl verða til hafi sameigin-

Sigrún Erna Geirsdóttir

marKaðssetning sjávarafurða

2 . hlut i . Fr amhald í næsta blaði

Guðný Káradóttir.

Við viljum vinna út frá þeirri forsendu að auka verðmæti vörumerkisins íslenskt sjávarfang, að íslenskur fiskur verði þekktur og eftirsóttur og þar að leiðandi ekki svo auðvelt að skipta honum út fyrir einhvern annan. Ef uppruninn er þekktur þá fáum við neytendur sem vilja íslenskan fisk.

Page 9: Útvegsblaðið 5.tbl 2013

Sérstöðuna vantar á erlendum mörkuðum

legt markaðsstarf tapast. Hver framleiðandi hafi farið að selja á eigin forsendum og um leið hafi tapast sá gæðastimpill að þarna væri íslensk vara á ferðinni. Ekki sé til neitt vörumerki sem sé vel þekkt sem íslenskt. SÍF, SH og Sambandið hafi keyrt hvert á sínu merki og þau hafi öll verið vel þekkt víða um lönd. Hins vegar verði það þó að koma fram að sölu-fyrirkomulagið sem tók við sé tals-vert betra en það sem áður var.

Viðar telur að Iceland Respon-sible Fisheries sé ágætt skref í þá átt að skapa sameiginlegt bakland

sem söluaðilar geti kennt sig við. ,,Og þessi sameiginleg vettvangur, þetta bakland, er mjög mikilvægt því þegar það skortir, eins og nú er, þá sjáum við afleiðingarnar hvað best þegar sveiflur verða á mörkuðum, eins og verið hefur upp á síðkastið. Það streymir inn bolfiskur úr Barentshafi og mark-aðslega hefur íslenski þorskurinn ekkert fram yfir hann,“ segir Viðar.

Sameiginlegt mark-aðsátak í S-EvrópuUm þessar mundir er þó einhver hreyfing í þá átt að koma á sam-

eiginlegu markaðsstarfi. Fyrir-tæki í framleiðslu og útflutningi á söltuðum afurðum til Spánar, Ítalíu og Portúgal, sem og þjón-ustufyrirtæki, skrifuðu nýverið undir samning við Íslandsstofu til eins árs um markaðsverkefni í Suður Evrópu á íslenskum salt-fiski. Verkefnið er fjármagnað með framlagi fyrirtækjanna gegn mótframlagi ríkisins sem leggur því til 20 milljónir, auk þess sem Íslandsstofa leggur verkefninu til bæði fjármagn og verkefnis-stjóra. Nemur upphæðin alls 50 milljónum. Guðný Káradóttir, for-stöðumaður hjá Íslandsstofu, segir verkefnið vel á veg komið en öll helstu saltfiskfyrirtæki landsins koma að því, t.d Oddi, Vísir, Gunn-vör og Icelandic. ,,Nú er í gangi undirbúningsvinna með auglýs-ingastofu en öll greiningarvinna er komin. Svo förum við af stað með þetta af fullum þunga í sept-ember.“ Íslenskar saltfiskafurðir

eru meðal mikilvægustu útflutn-ingsafurða til Suður Evrópu en vegna erfiðs efnahagsástands og harðnandi samkeppni hefur sala þangað dalað undanfarið. Er verk-efninu ætlað að styrkja samkeppn-isstöðu íslenskra saltfiskafurða og hleypa nýju lífi í söluna. Unnið verður að því að treysta á orðspor og ímynd íslenskra saltfiskafurða sem úrvals afurða með því að vekja athygli á íslenskum uppruna og sérstöðu sem tengist gæðum og hreinleika. Mun hópurinn sem stendur að verkefninu hérlendis vinna með lykilhagsmunaaðilum á þessum mörkuðum í þeim til-gangi að skapa áhuga á íslenskum fiski og festa í sessi nýja neytendur. Einnig verður höfðað sérstaklega til matreiðslumanna.

Stórt markaðs- verkefni í smíðumGuðný segir að mikil umræða um sameiginleg markaðsmál erlend-is hafi staðið yfir í nokkurn tíma, bæði á sjávarútvegsráðstefnum og fundum, og komin sé breið samstaða um kosti þess. Hefur Ís-landsstofa nú þegar hafið undir-búning og fjármögnun að þannig verkefni í samstarfi við hagsmuna-aðila. ,,Það yrði með svipuðu sniði og Inspired by Iceland sem gefið hefur góða raun og sett yrði saman eigendastjórn, líkt og þar.“ Hug-

myndir eru uppi um fjármögnun sem nemur a.m.k. um 500 millj-ónum króna á ári. Tilgangur verk-efnisins væri sameiginlegt mark-aðsstarf á íslensku sjárvarfangi erlendis þar sem íslenskur uppruni þess og hreinleiki væri kynntur, ímynd Íslands yrði nýtt og sömu-leiðis athyglin sem landið hefur notið undanfarið. Hagsmunaaðilar yrðu virkjaðir til þátttöku í verk-efninu og kæmu t.d með sögur frá Íslandi um upprunann. Saltfisk-verkefnið væri þá eins konar próf-steinn á þessa hugsun og talað hefur verið um að ef aðferðin sem beitt er þar gengur vel yrði hún líka notuð í þessu verkefni.

Ekki tímabundið átak,,Það sem við stefnum að er auðvi-tað að þetta sameiginlega mark-aðsstarf verði ekki sérstakt átak heldur bara regluleg starfsemi, eins og Norðmenn og Alaskamenn eru með,“ segir Guðný. Valdir verði

áherslumarkaðir og markaðsáætl-anir gerðar út frá ákveðnum meg-inlínum. ,,Við viljum vinna út frá þeirri forsendu að auka verðmæti vörumerkisins íslenskt sjávarfang, að íslenskur fiskur verði þekktur og eftirsóttur og þar að leiðandi ekki svo auðvelt að skipta honum út fyrir einhvern annan. Ef upp-runinn er þekktur þá fáum við neytendur sem vilja íslenskan fisk. Þá er fólk farið að þekkja eigin-leika íslenska fisksins og tengir hann við hreinleika.“ Guðný segir að því miður sé staðan ekki þann-ig í dag; í Frakklandi t.d standi á mörgum umbúðum utan um fisk að fiskurinn komi annað hvort frá Íslandi eða Noregi. Á hinn bóginn séu svo t.d verslunarkeðjur eins og Waitrose í Bretlandi sem velji sér-staklega ferskan fisk frá Íslandi og kynn hann þannig. Þeir framleiði auglýsingar og heimildamyndir þar sem sagt er frá því hvar fisk-urinn sé veiddur og haldi því mjög á lofti gagnvart neytendum. Þarna sé komin sérstaða. ,,Þetta er mögulegt vegna þess að við erum komin með mjög mikilvægan þátt í gott lag; afhendingaröryggið. Nú getum við afhent ferskan fisk allt árið um kring, sama hvort það eru jól eða páskar. Þá skiptir það líka miklu máli að gæði fisksins hafa aukist mikið, það er lykillinn að því að fá hærra verð.“

Fjöldi ungmenna vinnur við fiskvinnslu í sumarn Mikill fjöldi ungmenna vinnur hjá sjávarútvegs-fyrirtækjum um land allt í sumar við fjölbreytt verkefni tengd sjávarútvegi. Mörg þeirra sækja um ár eftir ár og þykja þau góðir starfskraftar. Atvinnuleysi meðal ungs fólks hefur verið nokkuð í umræðunni en margir á aldrinum 16-23 ára fá vinnu hjá hinum sjávarútvegsfyrir-tækjum í sumar. Störfin eru bæði í fiskvinnslu og umhverfi-stengd en nokkur ungmennanna munu líka fá að fara á sjó.Sam-herji mun ráða yfir 100 krakka sem flest fara í land-vinnslu á Akureyri og Dalvík en nokk-ur þeirra fara á sjó. Skinney-Þinga-nes á Höfn í Hornafirði ræður til sín 70 ungmenni og segir Ásgeir Gunnars-son, útgerðarstjóri, það var ánægjulegt hversu margir komi þangað til starfa ár eftir ár. Hópurinn sinni fjöl-breyttum störfum í viðhaldi og fegrun umhverfisins en flestir vinni í störfum tengd-um humarveiðum og vinnslu.

,,Við náum því miður ekki að ráða alla sem sækja um en sem betur fer hefur ferða-þjónustan vaxið á svæðinu undanfarin ár auk þess sem margir úr þessum aldurs-hópi vinna í bæjarvinnunni. Það er því ekkert atvinnu-leysi í þessum hópi hér yfir sumarmánuðina,“ segir Ásgeir. Hraðfrystihúsið-Gunnvör í Hnífsdal ræður til sín 36 ungmenni í sumar og hafa mörg þeirra unnið hjá fyrirtækinu áður. ,,For-eldrar margra þeirra starfa líka hjá fyrirtækinu,“ segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri. ,,Þau sinna ýmsum störfum, þó aðallega í vinnslu.“ Síldar-vinnslan á Neskaupstað ræður til sín 70 ungmenni og vinnur hópurinn annars við fiskiðjuver og hins vegar í umhverfisverkefnum á svæðinu. ,,Við höfum alltaf lagt mikið upp úr því að fá ungt fólk til starfa hjá Síldar-vinnslunni enda setur hóp-urinn skemmtilegan svip á fyrirtækið,“ segir Gunnþór Ingvason, framkvæmda-stjóri.

9 ú t v E G S B L a ð I ð j ú l í 2 0 1 3

Þeir standa saman og tala um vöru hvers annars. Hérna kroppum við hins vegar augun hvor úr öðrum, sem er arfagalið fyrir heildina.

Page 10: Útvegsblaðið 5.tbl 2013

10 K a u p H a L L a R B L a ð I ð m a í 2 0 1 3

Hilmar Snorrason fálkaorðuhafi, skipstjóri og skólastjóri

Starfið getur skipt sköpum

Meðal þeirra sem sæmdir voru Ridd-arakrossi hinnar ís-lensku fálkaorðu

þann 17. júní sl. var Hilmar Snorrason skipstjóri og skóla-stjóri Slysavarnaskóla sjómanna. Hilmar segir það hafa verið ótrú-lega stund þegar honum var til-kynnt með símtali að forseti Íslands vildi sæma sig Riddara-krossi fyrir störf sín í þágu örygg-ismála sjómanna. „Það eru ekki margir Íslendingar sem sæmdir eru þessari orðu á ári hverju og þar með eru fáir útvaldir. Þetta er mesta viðurkenning sem forsetinn veitir í nafni íslensku þjóðarinnar til þegna sinna og er ég afar stolt-ur og þakklátur fyrir þessa viður-kenningu. Þótt ég hafi verið sæmd-ur Riddarakrossinum þá vill ég líta svo á að það sé ekki síður verið að sæma orðunni mitt frábæra starfs-fólk og alla þá sjómenn sem hafa setið námskeiðin hjá okkur fyrir frábæran árangur í auknu öryggi starfsgreinarinnar.“

Millilandasigling-ar heilluðu ekkiHilmar hefur stundað sjóinn frá barnaæsku og átti nokkra daga í 15 ára afmælisdaginn þegar hann var fyrst skráður á skip árið 1972. „Það var á strandferðaskipið Esju en ég hafði verið í ferð með pabba mínum sem þar var háseti. Strákurinn var dubbaður upp í að standa vaktir í brú á leiðinni til Reykjavíkur eftir að tveir skipverj-

ar urðu eftir á Akureyri. Það sum-ar var ég síðan á varðskipinu Óðni sem nemi. Sumarið eftir var ég há-seti á Gullfossi aðeins 16 ára gam-all og var það óvenjulegt að háset-ar þar um borð væru svo ungir. Ég ól síðan manninn á olíuskipinu Kyndli þar til að ég lauk öðru stigi í Stýrimannaskólanum 1977. Þá réðst ég sem þriðji stýrimaður á Esjuna sem ég hafði fimm árum áður verið fyrst skráður á. Ég klár-aði farmannadeildina 1978 og réði mig þá fyrst á Grundarfoss, skip Eimskipafélags Íslands, og síðar sama ár á ekjuskipið Bifröst. Sigl-ingar voru eitthvað sem heillaði mig lítið þrátt fyrir að á þessum árum væru ágætis hafnarstopp í erlendum höfnum. Strandsigling-ar áttu hins vegar hug minn allan. Ég var því ekki lengi að söðla um þegar mér bauðst í ársbyrjun 1979 fast pláss hjá Ríkisskip sem þriðji stýrimaður á Heklu. Þá um haust-ið var ég síðan settur á norskt leiguskip útgerðarinnar og næstu fjögur árin sigldi ég sem leið-sögumaður og stýrimaður með Norðmönnunum mest á leiðinni Reykjavík, vestur til Húsavíkur og til baka aftur. Það var svo 1984 sem ég fór mína jómfrúarferð sem skipstjóri á Heklu og tveimur árum síðar tók ég við systurskipi þess Öskju þar sem ég var skip-stjóri þar til ég tók við starfi skóla-stjóra Slysavarnaskóla sjómanna 1. september 1991.“

Úr strandsiglingum í skólastjórnSlysavarnaskóli sjómanna var stofnaður árið 1985. Það var Slysa-varnafélag Íslands, forveri Slysa-

ÁStrÍðA oG lÍFSStÍllNemendur Slysavarnaskólans eru flestir á miðjum aldri enda eru flestir sjómenn í þeim hópi. Ungt fólk niður í 15 ára aldur má skrá á skip og þar liggja þó neðri mörkin. Þó eru dæmi um yngri og eldri.

„Sá yngsti sem komið hefur á námskeið hjá okkur var níu ára og með honum var afi hans þá elsti nemandinn sem ég man eftir eða 86 ára. Hilmar er sáttur við árangurinn sem náðst hefur. „Það er fjöldi sjómanna sem hefur sagt okkur frá ávinn-ingi sínum í kjölfar fræðslunnar sem þeir fengu við skólann. Það eru ávallt afar ánægjulegar fregnir og hvetur okkur sannarlega til dáða en við eigum samt mikið verk fyrir höndum. Sjómenn eru enn að slasa sig og á undanförnum árum höfum við verið í miklu og góðu samstarfi við tryggingafélög-in VÍS og Sjóvá við innleiðingu áhættumats og atvikaskráninga um borð í skipum sem þessi félög tryggja. Tilgangurinn er sá að sjómenn taki með ábyrgð á því að leita uppi hugsanlegar hættur um borð í sínum skipum og byggi upp öflugar forvarn-ir um borð. Ég hef haldið því fram að starf, eins

og mitt, sé ekki bara eitthvert átta til fimm starf heldur ástríða og lífsstíll. Eiginkonan segir að ég sé vakinn og sofinn yfir þessu allan sólarhringinn en öryggismál sjómanna eru mitt áhugasvið og því forréttindi að starfa við þetta. Ég á mér þá ósk heitasta að upplifa slysalaust ár á sjó og ég veit að þeim árangri munum við einn daginn ná með öflugum forvörnum og öflugri sjómannastétt sem gerir sjómennsku að öruggasta starfi sem völ er á. Ég var nefndarmaður í Rannsóknarnefnd sjóslysa í 18 ár eða frá 1995 og var nýlega skipaður í Rann-sóknarnefnd samgönguslysa. Úr því starfi hef ég tekið forvarnarboðskapinn inn í skólastarfið hér. Ég hef séð á þessum langa tíma sem ég hef tekið þátt í því að alvarlegum slysum hefur fækkað mjög mikið frá því ég byrjaði. Ég hlakka til hvers vinnudags og kem með bros á vör til vinnunnar vitandi það að starfið sem við í skólanum vinnum getur skipt sköpum fyrir sjómenn. Hér líður mér afskaplega vel,“ segir Hilmar Snorrason skipstjóri og skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna.

varnafélagsins Landsbjargar, sem setti skólann á fót. Þorvaldur Axelsson varð fyrsti skólastjór-inn til 1988 en þá tók Þórir Gunn-arsson við af honum og gegndi starfinu til ársins 1991 að Hilmar tók við. Hilmar segir afskipti sín af Slysavarnafélaginu ekki hafa verið mikil áður en hann tók við sem skólastjóri. „Einu afskipti mín af Slysavarnafélaginu, áður en ég hóf störf við Slysavarna-

skólann, má segja að hafi verið að flytja Árbækur félagsins til björg-unarsveita og slysavarnadeilda um allt land á þeim strandferða-skipum sem ég var á. Ásgrímur St. Björnsson erindreki félagsins hafði áður verðið stýrimaður hjá Ríkisskip og leitaði því til okkar um flutning á þessum mikilvæga boðskap og upplýsingariti til félagsmanna“. Hilmar segir mörg og mismunandi námskeið kennd

við skólann en öll séu þau miðuð við hvernig skipum menn sigla á.

„Allir sjómenn stærri skipa þurfa að taka fimm daga grunnámskeið og síðan tveggja daga endur-menntunarnámskeið á fimm ára fresti. Þá erum við með dags-námskeið fyrir smábátasjómenn en árið 2011 kom öryggisfræðslu-skylda að fullu til framkvæmda fyrir þann hóp með lögskráninga-skyldu fyrir þá báta. Þá erum við með sértæk námskeið í slökkvi-störfum, notkun björgunarfara, hópstjórnun, neyðarstjórnun, sjúkra- og skyndihjálp auk mann-auðsstjórnunar svo eitthvað sé nefnt. Í stuttu máli sagt erum

Þetta er mesta viðurkenning sem forsetinn veitir í nafni íslensku þjóðarinnar til þegna sinna og er ég afar stoltur og þakklátur fyrir þessa viðurkenningu.

Haraldur Bjarnason

Page 11: Útvegsblaðið 5.tbl 2013

ÖRYGGISVÖRUR IÐNAÐARMANNSINSOG VERKTAKANS FULL BÚÐ AF ÖRYGGIS- OG REKSTRARVÖRUM.

KÍKTU Í KEMI BÚÐINA OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!

Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.

við með þau alþjóðlegu öryggis-fræðslunámskeið sem sjómenn þurfa að vera með til að geta starfað á sjó bæði hérlendis sem og erlendis. Í dag þurfa allir þeir sem stunda atvinnusjómennsku að vera með námskeið sem ekki er eldra en fimm ára. Það er þó ein undantekning á því og það er að þeir sem aldrei hafa farið á sjó geta verið allt að 180 daga á sjó áður en þeir taka námskeið. Var þetta gert til þess að hægt væri að ráða menn um borð með stuttum fyrirvara sem og að gefa óreynd-um færi á að kanna hvort sjó-mennskan ætti við þá áður en þeir færu að kosta miklu til starfs sem síðar kæmi í ljós að þeir gætu ekki sinnt einhverra hluta vegna. Rétt

er líka að hafa í huga að ungir og óreyndir eiga að vera undir eftir-liti reyndari manna og er þeim yfirleitt haldið frá hættulegustu störfunum þar til þeir hafa öðlast viðunandi reynslu“.

Margir öfunda okkur af SæbjörguÖll lönd, sem stunda siglingar, hafa sambærilega skóla og Hilmar, sem er formaður Alþjóðasamtaka ör-yggisskóla, International Associa-tion for Safety and Survival Train-ing, er því í sambandi við skóla víða um heim. Hann segir fáa skóla hafa yfir skólaskipi, líkt og Sæbjörgu, að ráða. „Það er vissulega ánægjulegt að til okkar sé horft og margir út-lendingar, sem hafa heimsótt okk-ur, heillast af skipinu og starfinu okkar þar um borð. Ég hef gjarnan

sagt að góður mælikvarði á örygg-isfræðsluna séu fjöldatölur bana-slysa á sjó. Þar hefur orðið gífurleg breyting síðan ég tók við skólanum árið 1991. Auðvitað er fleira sem kemur til. Þar má nefna öflugt veð-urupplýsingakerfi fyrir sjómenn, eftirlit með skipum og öryggis-búnaði, öfluga björgunarkosti en fyrst og fremst er það breytt hug-arfar sjómanna. Við verðum ekki vör við annað en að sjómenn séu ánægðir með að koma til okkar og rifja upp fræðin um eigið öryggi, skipsfélaga og skipa sinna. Menn finna þörfina fyrir fræðsluna og stundum heyrist að menn telji þörf á að koma oftar. Við bendum þeim á að þrátt fyrir að krafan geri ein-ungis ráð fyrir að þeir komi á fimm ára fresti er ekkert sem bannar að koma oftar.“

Ég á mér þá ósk heitasta að upplifa slysalaust ár á sjó og ég veit að þeim árangri munum við einn daginn ná með öflugum forvörnum og öflugri sjómannastétt sem gerir sjómennsku að öruggasta starfi sem völ er á.

Hilmar Snorrason var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 17. júní.

11 ú t v E G S B L a ð I ð j ú l í 2 0 1 3

Page 12: Útvegsblaðið 5.tbl 2013

Ostrur sem ætlaðar eru til ræktunar komu til landsins í júní. Er þetta í fyrsta sinn sem reynt

verður að rækta ostrur hér við land en þær eru hlýsjávardýr. Þær hafa aldrei verið ræktaðar jafn norðar-lega og Ísland er.

Höfum 60 klukkustundir,,Ostrurnar voru teknar úr sjó á mánudag og þær þurfa að vera komnar ofan í hann aftur innan 60 klukkustunda,” segir Kristján Phillips, hjá Víkurskel á Húsa-vík í viðtali við Útvegsblaðið þriðjudaginn 11.júní. ,,Við bíðum bara í Keflavík eftir að hún komi og brunum svo með hana beint norður og setjum ofan í sjóinn á morgun.” Ekki hefur verið reynt að rækta ostrur hér við land enda er hún hlýsjávardýr. Hún mun ekki geta fjölgað sér hérlendis þar sem hún verður ekki kynþroska í köldum sjó og raunar er það ein af forsendum þess að Víkurskel fékk leyfi fyrir þessari ræktun. Ostrurnar verða ræktaðar í búrum sem fest eru við línur í Saltvík við Skjálfandaflóa. Kristján segir að það muni svo koma í ljós næsta vor hvort þetta er hægt eða ekki.

,,Til þess að hún lifi af veturinn þarf hún að vera orðin nógu stór.“ Skelin er 5-6 mm þegar hún kemur til landsins og í neyslustærð verð-ur hún orðin 12-14 cm. Venjulega tekur þetta ferli 2 – 3 ár erlendis en hér þar sem sjórinn er kaldari er reiknað með að þetta taki 4-5 ár. Munu þeir fá 200.000 ostrur sem munu vonandi gefa X tonna upp-skeru 2017 eða 2018.

Það þarf að prófa eitthvað nýttMikill undirbúningur var að rækt-uninni og hefur hann tekið þrjú ár. En hvernig kom þetta til? ,,Það þarf að gera eitthvað nýtt og prófa nýja hluti,“ segir Kristján. ,,Það er auðvi-tað talsverður byrjunarkostnaður og mikið farið í súginn ef þetta mistekst en við erum þokkalega bjarsýnir. Það er næsti vetur sem segir til um hvernig tekst til.“ Víkurskel hefur verið í kræklingarækt á Skjálfanda-flóa en ef vel tekst til með ostrurækt-unina er líklegt að fyrirtækið snúi sér alfarið að henni þar sem mikil vinna liggur í henni. ,,Það er t.d líka

möguleiki að ef kræklingurinn vex vel að hann kæfi hreinlega ostrurn-ar. Maður er alveg renna blint í þetta en hefur auðvitað ráðgjafa erlendis sem fylgjast spenntir með því sem við erum að gera því þetta hefur aldrei verið reynt áður,“ segir Krist-ján. Ostrur eru að mestu ræktaðar sunnan 56° breiddargráður, sem er lega Danmerkur og hefur hún aldrei verið ræktuð eins norðarlega og við erum. Menn eru þó aðeins byrjaðir að rækta hana við Alaska og hefur það gefið góða raun, sem gefur til-efni til bjartsýni.

Betri aðstæður hérlendisKristján segir að aðstæður hér séu betri en annars staðar. Erfitt sé að rækta skelina víðast hvar vegna hlýnunar sjávar og mengunar og

því sé alltaf verið að leita að betri og betri svæðum. ,,Við höfum talað við ræktendur í Alaska og þetta hefur gengið vel hjá þeim, það væri hrein vitleysa að prófa þetta ekki hér.“ Fá svæði henta til ræktunar því ekki má vera mikill þari í sjónum og miklir straumar svo sjávarhiti fari ekki niður fyrir 3-4 gráður. ,,Þar sem við höfum línurnar er ferskvatn í sjónum svo þar vex ekki þari. Hitinn fer heldur ekki niður fyrir 3 gráður. Þetta eru því kjöraðstæður,“ segir Kristján. Á veturna verða búrin svo flutt á annað svæði svo þau verði ekki fyrir hnjaski vegna ölduhæðar.

Vonandi betri gæðiKristján og félagar í Víkurskel fóru til Norður-Spánar nú í vetur þar sem þeir kynntu sér vel ostrurækt og segjast hafa lært margt á því. ,,Ég held ég geti leyft mér að fullyrða að við hefðum klúðrað þessu ef við hefðum ekki farið!“ Eins og áður hef-ur verið nefnt er byrjunarkostnaður umtalsverður og hefur Víkurskel staðið að mestu fyrir honum sjálfur en nýverið kom Atvinnuþróunar-félag Húsavíkur að fjármögnun líka. Á næsta ári þurfi svo að finna meira fjármagn, segir Kristján. Vaxtahrað-inn sé ekkert til hrópa húrra fyrir og langt þangað til að eitthvað fari að koma til baka, ef þetta gengur upp. Hins vegar vonist þeir til þess að fá hærra verð fyrir afurðina en margir aðrir vegna betri gæða. Erlendis vaxi skelin oft of hratt og þá sé hún ekki góð. ,,Svo verðum við að kom-ast inn á rétta markaði líka og raun-ar erum við þegar búnir að hitta einn ræktanda sem lét okkur vita af því að hann tæki alla skel sem okk-ur tækist að rækta. Svo nú er bara að vona hið besta.“

Hjallahraun 2220 Hafnarfjörðurs. 562 3833www.Asaa.is - [email protected]

Bjóðum gott úrval afvökvakrönum fráTMP hydraulic A/S.www.tmphydraulik.dk

TMP báta og hafnarkranar

Norræn samvinna mikilvægn Nýverið var haldin í Hörpu ráðstefnan Nordic Marine Inn-ovation Convention á vegum Norrænu nýsköpunarmiðstöðv-arinnar. Á ráðstefnunni voru bæði flutt erindi er lúta að alþjóða-samstarfi og mikilvægi nýjunga í sjávarútvegi og eins og voru kynnt verkefni sem njóta stuðnings miðstöðvarinnar Innovation. Norræna nýsköpunarmiðstöðin er áætlun á vegum Norrænu ráð-herranefndarinnar og fór sjávarútvegshluti þess í gang á síðasta ári. Markmið áætlunarinnar er að koma saman norrænum hags-munaaðilum í sjávarútvegi og tengjast henni nú yfir 100 manns, með fjórtán verkefni. Nordic Marine Innovation ráðstefnan var haldin þann 5.júní í Hörpu og sóttu hana fjölmargir gestir sem tengjast sjávarútvegi hvaðanæva að af Norðurlöndum. Fyrirles-arar komu reyndar einnig frá löndum utan Norðurlanda, svo sem Kanada og Indlandi en ráðstefnuna setti Sigurður Ingi Jóhanns-son, sjávarútvegsráðherra. Meðal fyrirlesara var Dr. Eknath Ambekar, framkvæmdastjóri Samtaka ferskfiskræktunar-miðstöðva í Asíu og Kyrrahafi, sem fór yfir stöðuna á því svæði og ræddi m.a þann vanda sem nú steðjar að en nauðsynlegt er að auka ræktun um 70% á næstu 30 árum ef takast á að fæða mann-fjöldann sem þar býr. Carl Christian Schmidt, yfirmaður stefnu-skrifstofu sjávarútvegs hjá OECD fór t.d yfir störf skrifstofunnar og mikilvægi þess að ólíkir aðilar í sjávarútvegi vinni saman að lausnum vandamála sem steðja að höfum heimsins. Kevin Dunn sem stýrir nýjunga og tengslaskrifstofu Dalhousie háskóla í Kanada fór yfir markmið hennar,mikilvægi samstarfs milli rann-sóknarstofnana, iðnaðarins og opinberra stofnana sem tengjast sjávarútvegi, sem og mögulegu samstarfi milli ríkja sem liggja að Norður-Atlantshafi. Aðrir fyrirlesarar voru Sigríður Þormóðs-dóttir frá Innovation Norway, Anne Villemoes frá Danish Crown og Marianne Toftegaard Poulsen frá rannsóknarmið-stöðinni SRI.

Ostrurnar komnar til landsinsSigrún Erna Geirsdóttir

Í fyrsta sinn sem ostrur verða ræktaðar svo norðarlega

Geir Ívarsson, Kristján Phillips og Börkur Emilsson.

Skelin er 5-6 mm þegar hún kemur til landsins og í neyslustærð verður hún orðin 12-14 cm.

12 ú t v E G S B L a ð I ð j ú l í 2 0 1 3

Page 13: Útvegsblaðið 5.tbl 2013

Hrognkelsi er mikil-vægur nytjafiskur við strendur Íslands. Hrygnan, grásleppa,

hrygnir á klettabotn á grunn-sævi. Eftir að hafa frjóvgað hrogn-in gætir hængurinn, rauðmagi, hrogna-klasans þar til lirfur klekj-ast út eftir fjórar til sjö vikur. Seiði hrognkelsa halda sig í fjörunni eða á grynningum í um eitt ár eftir klak. Eftir að hrognkelsaseiðin yf-irgefa grunnsævið er mjög lítið vit-að um hvert þau fara, hvað þau éta, hvernig þau vaxa eða um hegðun þeirra.

Rannsóknir Hafrannsókna-stofnunar og Biopol ehf hafa á undanförnum árum beinst að því að auka þekkingu á lifnaðarhátt-um og hegðun hrognkelsa. Nýlega voru 83 grásleppur og 7 rauðmag-ar merkt með rafeindamerkjum sem skrá samfellt hita og dýpi í gagnaskrár í minni merkisins. Rafeindamerkin voru fest utan á fiskana, rétt neðan við bakhnúð-inn. Fiskarnir voru einnig merktir með hefðbundnum merkjum. Þeir voru merktir úti fyrir Norðurlandi, fyrst allt út að landgrunnsbrún í stofnmælingarleiðangri og síðar á grunnsævi í Skjálfandaflóa. Hing-að til hafa 16 rafeindamerki endur-heimst, öll nema eitt á hrygnum; sex á fiskum sem merktir voru úti á landgrunninu og 10 á grunnsævi.

Þegar rýnt var í gögnin sem höfðu safnast í merkin kom veru-lega á óvart hve fiskarnir flökk-uðu mikið milli yfirborðs og dýpis. Dýptarbreytingar voru hraðar og tíðar. Almennt héldu fiskarnir sig

þó heldur dýpra á daginn en nótt-unni. Stundum virtust fiskarnir flakka oft á dag milli yfirborðs og 150 til 200 m dýpis. Hraðar dýpt-arbreytingar eru mögulegar hjá hrognkelsum þar sem þau hafa ekki sundmaga. Dæmi var um að fiskur hefði kafað niður um 41 metra á 6 mínútum. Einn fiskur kafaði niður á 90 metra dýpi, synti aftur upp að yfirborði og síðan niður á 125 metra, allt á þremur klukkustundum. Að lokum var einn af fiskunum skráður á 300 m dýpi 33 tímum áður en hann var veiddur í grásleppunet skammt norðan við Brík utan Ólafsfjarð-ar. Næsti staður með 300 m dýpi er í ríflega 5 sjómílna fjarlægð sem bendir til að hrognkelsi geti ferðast að minnsta kosti 3,5 sjó-mílur á sólahring. Línuritið sýnir

Jacob Matthew Kasper og Sigurður Þór Jónsson, sérfræðingar á Hafrannsóknastofnun

„Gerir feita granna kinngrásleppan og rauðmaginn“

MAKING MODERN LIVING POSSIBLE

Danfoss hf. • Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími: 510 4100 • veffang: www.danfoss.is

Stjórn og gæslubúnaðurtil notkunar á sjó og landi

Í nærri 70 ár hefur Danfoss framleitt breiða línu af stjórn-

og gæslubúnaði og byggir því á mikilli reynslu í þróun og

framleiðslu á iðnaðarstýringum eins og hita- og þrýstinemum,

hita-og þrýstistillum, hita- og þrýstiliðum, spólurofum,

spólulokum og fl.

Hita- (rauður) og dýptarferlar (blá) úr mælimerki M14595 af grásleppu sem var merkt í stofnmælingu botnfiska 2013 (vor-ralli) SA af Kolbeinsey og endurheimtist rúmum 25 dögum síðar í grásleppunet utan Ólafsfjarðar.

Stund milli stríða við grásleppuveiðar á Húnaflóa.

tvímerkt grásleppa.

13 ú t v E G S B L a ð I ð j ú l í 2 0 1 3

mar 16 mar 21 mar 26 mar 31 apr 05

−250

−200

−150

−100

−50

0

Tími

Dýpi

(m)

02

46

810

Hiti

(°C)

dýptarferil úr einu rafeindamerki af fiski sem sleppt var nærri Kol-beinsey og endurheimtur við Ólafsfjörð 25 dögum seinna. Ver-ið er að vinna úr þeim gögnum sem safnast hafa í þessu verkefni. Stefnt er að því að halda merking-um áfram vorið 2014 og nota aftur endurheimtu merkin.

Page 14: Útvegsblaðið 5.tbl 2013

14 ú t v e g s b l a ð i ð j ú l í 2 0 1 3

Í tilefni af því að Síldarvinnsl-an hefur ákveðið að starf-rækja sjávarútvegsskóla fyr-ir ungmenni í Neskaupstað

í sumar var Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri fyrirtækisins spurður um ástæður þess. Hér á eftir fer svar hans:

Við hjá Síldarvinnslunni telj-um afar brýnt að ungmenni í byggðarlagi eins og Neskaupstað kynnist sjávarútvegi og öðlist þekkingu á veiðum og vinnslu. Staðreyndin er sú að Neskaup-staður á sjávarútvegi tilvist sína að þakka og það sama gildir um sjávarpláss allt í kringum landið. Lífsskilyrði fólks í þessum pláss-

um ráðast af gengi sjávarútvegs á hverjum tíma. Þá ber að hafa í huga að sjávarútvegur er í reynd undirstaða þess samfélags sem þróast hefur á Íslandi og það er hann sem lagt hefur grunninn að því velmegunarþjóðfélagi sem við lifum og störfum í. Staðreynd-in er sú að skólakerfið íslenska fjallar tiltölulega lítið um þessa atvinnugrein ef marka má fyrir-

liggjandi námsefni og því var sú ákvörðun tekin innan Síldar-vinnslunnar að bjóða upp á sjáv-arútvegsnám fyrir grunnskóla-nemendur. Það er nauðsynlegt að íslensk ungmenni kynnist undir-stöðuatvinnugreinum þjóðarinn-ar og þau séu meðvituð um áhrif þeirra og mikilvægi.

Það er í reynd hægt að alast upp í sjávarplássi á Íslandi í dag

án þess að öðlast þekkingu á fisk-veiðum og fiskvinnslu. Hér áður fyrr var þessi starfsemi nálægt fólki; afla var landað úr bátum við hverja bryggju, beitt var í fjölda skúra og vinnsla á fiski fór jafnvel fram undir beru lofti eins og þeg-ar síld var söltuð á plönum. Nú er öldin önnur; veiðiskipin eru færri en áður og stærri, aflanum er land-að á lokuðum hafnarsvæðum og vinnslan fer fram innanhúss þar sem farið er eftir ströngum reglum um gæði og hollustuhætti. Þar fyr-ir utan starfa hlutfallslega færri við sjávarútveg en áður og því tengjast færri atvinnugreininni með beinum hætti. Þessi breyting

sem átt hefur sér stað gerir það að verkum að í sjávarplássum sem og annars staðar er sérstök ástæða til að fræða ungt fólk um fiskveiðar og vinnslu. Þá er einnig brýnt að fræða um þau fjölbreyttu störf sem sinnt er innan sjávarútvegs-ins og þá möguleika til menntunar sem eru til staðar.

Innan Síldarvinnslunnar er mikil þekking og forsvarsmenn fyrirtækisins hafa áhuga á að henni sé miðlað til ungmenna. Það verður gert í sjávarútvegs-skólanum og það er von okkar að skólinn fari vel af stað og í fram-tíðinni verði hann fastur liður í starfsemi Síldarvinnslunnar.

Nauðsynlegt að ungmenni kynnist undirstöðu-atvinnugreinum þjóðarinnar

Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar

Sumarskóli fyrir grunnskólanemendur þar sem námslaun verða greiddn Sjávarútvegsskóli Síldarvinnsl-unnar í Neskaupstað verður settur mánudaginn 29. júlí næstkomandi. Sjávarútvegsskólinn er tilraunaverk-efni þar sem ungmennum á grunn-skólaaldri verður gefinn kostur á að fræðast um fiskveiðar og fiskvinnslu. Skólinn mun starfa í tvær vikur og að þessu sinni munu 8. bekkingar Nes-skóla (nemendur fæddir 1999) hafa for-gang þegar unnið verður úr umsóknum. Daglegur starfstími skólans verður 3-4 klukkustundir en undir lok sumra kennsludaga er ætlast til að nemendur sinni tilfallandi störfum undir stjórn verkstjóra. Nemendur fá greidd náms-laun og verða þau sambærileg þeim launum sem greidd eru í Vinnuskóla Fjarðabyggðar. Námsefnið í skól-anum verður fjölbreytt og kennarar verða margir en drjúgur hluti náms-efnisins verður sérstaklega unnið með starfsemi þessa skóla í huga. Í upphafi námsins verður sögu sjávarútvegs gerð skil og fjallað um veiðiskip, veiðarfæri

og verkunaraðferðir á hverjum tíma. Lögð verður áhersla á tækniþróun og breytingar af öllu tagi og gerð grein fyrir þeim samfélagslegu áhrifum sem sjávarútvegurinn hefur haft. Skólinn mun fá heimsóknir og meðal annars munu fyrrum sjómenn og starfsmenn í fiskvinnslu koma og segja frá reynslu sinni og þeim breyt-ingum sem þeir hafa upplifað innan greinarinnar. Eins verður fjallað sérstaklega um sögu og starfsemi Síldarvinnslunar og gerð grein fyrir einkennum nútíma sjávarútvegsfyrir-tækja og mikilvægi þeirra fyrir sjávar-byggðir og íslenskt samfélag. Starfs-mannamál og gæðamál verða einnig tekin til umfjöllunar. Útskýrt verður hvernig síaukin áhersla er lögð á ferskleika hráefnis og gæði framleiðsl-unnar og útskýrt hvernig eftirliti með framleiðslunni er háttað. Vakin verður athygli á þeim fjölbreyttu störfum sem starfsmenn sjávarútvegsfyrirtækja sinna og gerð grein fyrir hvernig unnt

er að mennta sig til þeirra. Nemendur skólans munu fara um borð í veiðiskip Síldarvinnslunnar og fá fræðslu um störf sjómanna og þann tækjabúnað sem fyrirfinnst um borð í nútíma skip-um. Meðal annars verður lögð áhersla á að útskýra hvernig veiðum er háttað með mismunandi tegundum veiðar-færa. Eins munu nemendur heimsækja fiskiðjuver, fiskimjölsverksmiðju og

frystigeymslur Síldarvinnslunnar og kynnast þeirri starfsemi sem þar fer fram. Þeir munu fá tækifæri til að sinna verkefnum á sviði vinnslu undir leiðsögn reynds starfs-manns. Að lokum fá nemendurnir að kynnast störfum þeirra sem gera áætlanir um veiðar og vinnslu og fylgjast með fjárhagslegri afkomu starfseminnar. Lögð er áhersla á að skólastarfið verði fjölbreytt og lifandi og munu nemendur meðal annars vinna verkefni sem tengjast

þeirri fræðslu sem veitt verður. Slík verkefni munu nemendur vinna í hópum og verða góð verðlaun veitt fyr-ir verkefnin sem þykja skara fram úr. Skólanum verður að þessu sinni slitið hinn 9. ágúst og verða þá útskriftar-skírteini afhent. Skráning í skólann hófst 10. júní sl. og verður tekið á móti skráningum til 15. júlí. Áhugi fyrir skólahaldinu virðist vera mikill og hafa ýmsir tjáð sig um að hér sé afar þarft verkefni á ferðinni.

Þá ber að hafa í huga að sjávarútvegur er í reynd undirstaða þess samfélags sem þróast hefur á Íslandi og það er hann sem lagt hefur grunninn að því velmegunarþjóðfélagi sem við lifum og störfum í.

Ungmennum í Neskaupstað gefst kostur á að stunda nám í Sjávarútvegsskóla Síldarvinnsl-unnar. MyNd: ÞÓRHIldUR EIR SIGURGEIRSdÓTTIR

MyNd: HAlldÓRA AUðUR JÓNSdÓTTIR

Page 15: Útvegsblaðið 5.tbl 2013

Tilgangurinn með sýning-unni var að sýna fjölbreytt vöruúrval Kraftvéla sem er með heildarlausnir í lyft-

urum, landbúnaðartækjum, vöru-flutningum og tæki fyrir jarðvegs-verktaka.

„Hvað varðar lyftara þá vorum við á þessari sýningu að frumsýna nýjan 80 volta rafmagnslyftara frá Toyota sem er ekki ennþá kominn til sölu hér á landi en fyrstu eintök-in eru væntanleg í október í haust. Með þessum lyftara munum við ein-blína betur á sjávarútveg sem notar þessa 80 volta rafmagnslyftara mest en hann mun vera fáanlegur í ýms-um útgáfum og hægt að klæðskera hvert tæki sérstaklega fyrir hvert fyrirtæki fyrir sig“, segir Viktor Karl Ævarsson, sölustjóri Kraftvéla.

Einnig vorum við að kynna New Holland skotbómulyftara en þetta er fyrsti skotbómulyftarinn sem við flytjum inn frá New Holland. Við höf-um verið umboðsaðili New Holland dráttarvéla um árabil og höfum mik-illi velgengni að fagna með því vöru-merki, því lág best við að versla einn-ig skotbómulyftarana af sama birgja. Skotbómulyftarinn sem við sýndum

á sýningunni var einstaklega nettur þrátt fyrir 2500kg lyftigetu, en hann er aðeins 180cm á breidd og einnig gámagengur. Önnur tæki sem voru á sýningunni má nefna 3000kg dísel-lyftara, 2500kg dísellyftara, 2500kg rafmagnslyftara með 80V rafgeymi, 1800kg rafmagnslyftara með 48V rafgeymi, hillulyftara í vöruhús, rafmagnsstaflara, rafmagnsbrettat-jakka og að lokum venjulega brettat-

jakka með vigt og Silent útgáfu sem er aðeins 60 dB.

Toyota lyftarar eru í mikilli sókn hér á Íslandi og hafa aukið við sig markaðshlutdeild jafnt og þétt undanfarin ár og hefur Kraftvélar verið verðlaunað oftar en einu sinni á umboðsmannafundum hjá To-yota lyfturum fyrir framúrskarandi aukningu í markaðshlutdeild hér á Íslandi. 

Frumsýndu nýjan 80 volta rafmagnslyftara frá Toyota:

Glæsileg sýning Kraftvéla

Með þessum lyftara munum við einblína betur á sjávarútveg sem notar þessa 80 volta rafmagnslyftara mest en hann mun vera fáanlegur í ýmsum útgáfum og hægt að klæðskera hvert tæki sérstaklega fyrir hvert fyrirtæki fyrir sig.

15 ú t v E G S B L a ð I ð j ú l í 2 0 1 3

Page 16: Útvegsblaðið 5.tbl 2013

islandsbanki.is | Sími 440 4000

Við bjóðumgóða þjónustu

Við bjóðum fyrirtækjum sérþekkingu

Okkar vinna snýst um að þín vinna gangi vel. Við leggjum okkur fram um að setja okkur vel inn í það sem þú ert að gera, og þó að við þekkjum kannski ekki viðfangsefnin í þínu starfi jafn vel og þú, þá vitum við hvað starfið gengur út á.

Starfsfólk Íslandsbanka býr yfir áratuga reynslu í þjónustu við sjávarútveginn og hjá bankanum starfar stór hópur fólks með sérþekkingu á greininni. Þannig getum við ávalt tryggt fyrirtækjum í þessari undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar þá bankaþjónustu sem þau þarfnast.

Þekking sprettur af áhuga.

Ragnar Guðjónsson hefur starfað við fjármögnun sjávarútvegs í 40 ár.

Ragnar er viðskiptastjóri í sjávarútvegsteymi Íslandsbanka.