Eystrahorn 24. tbl. 2012

10
Fimmtudagur 14. júní 2012 www.eystrahorn.is Eystrahorn 24. tbl. 30. árgangur www.eystrahorn.is 8 dagar í Humarhátíð á Höfn Hornsílin eða The Glaciers eins og lególið Grunnskóla Hornafjarðar kallaði sig á erlendri grundu er nú komið heim úr mikilli ævintýraferð og allir sælir og glaðir. Liðið tók þátt í opna First Lego league Evrópumótinu sem var haldið í Mannheim í Þýskalandi dagana 6. til 9. júní. Alls tóku 68 lið frá 35 löndum þátt í fjölbreyttri keppni og endaði liðið okkar í 30. sæti. Hópurinn vakti hvarvetna athygli og hélt merki Íslands og Hornafjarðar hátt á lofti. Allir gerðu sitt besta og komu heim reynslunni ríkari. Liðið þakkar öllum þeim sem studdu það og styrktu í ferðinni. Stærsta skemmtiferðaskipið Silver Explorer er stærsta skemmtiferðaskip sem komið hefur til Hornfjarðar og var hér í vikunni. Skipið er vel yfir 6000 brúttólestir að stærð og 104 metrar á lengd. Með skipinu voru 110 farþegar sem lang flestir fóru í ferð að Jökulsárlóninu og í siglingu þar. Lóðsarnir sögðu að það gengi vel að taka inn svona skip; „þetta eru eins og drossíur, kraftmikil skip og meðfærileg“. Von er á næsta farþegaskipi strax um næstu helgi. Lególiðið komið heim

description

Eystrahorn 24. tbl. 2012

Transcript of Eystrahorn 24. tbl. 2012

Page 1: Eystrahorn 24. tbl. 2012

Fimmtudagur 14. júní 2012 www.eystrahorn.is

Eystrahorn24. tbl. 30. árgangur www.eystrahorn.is

8 dagar í Humarhátíð á Höfn

Hornsílin eða The Glaciers eins og lególið Grunnskóla Hornafjarðar kallaði sig á erlendri grundu er nú komið heim úr mikilli ævintýraferð og allir sælir og glaðir. Liðið tók þátt í opna First Lego league Evrópumótinu sem var haldið í Mannheim í Þýskalandi dagana 6. til 9. júní. Alls tóku 68 lið frá 35 löndum þátt í fjölbreyttri keppni og endaði liðið okkar í 30. sæti. Hópurinn vakti hvarvetna athygli og hélt merki Íslands og Hornafjarðar hátt á lofti. Allir gerðu sitt besta og komu heim reynslunni ríkari. Liðið þakkar öllum þeim sem studdu það og styrktu í ferðinni.

Stærsta skemmtiferðaskipið

Silver Explorer er stærsta skemmtiferðaskip sem komið hefur til Hornfjarðar og var hér í vikunni. Skipið er vel yfir 6000 brúttólestir að stærð og 104 metrar á lengd. Með skipinu voru 110 farþegar sem lang flestir fóru í ferð að Jökulsárlóninu og í siglingu þar. Lóðsarnir sögðu að það gengi vel að taka inn svona skip; „þetta eru eins og drossíur, kraftmikil skip og meðfærileg“. Von er á næsta farþegaskipi strax um næstu helgi.

Lególiðið komið heim

Page 2: Eystrahorn 24. tbl. 2012

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 14. júní 2012

EystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

Gisting í miðbæ Reykjavíkur fyrir ferðafólk.Nóttin kostar 8000- kr. á mann í júní og júlí.Sími 895-0482 eftir kl. 12:00.

17. júní á Höfn13:00 Forsala á blöðrum við N1 Vesturbraut fyrir skrúðgönguna14:00 Skrúðganga frá N1 Vesturbraut14:15 Lúðrasveit Hornafjarðar leikur nokkur lög Hátíðarávarp bæjarstjóra Ávarp Fjallkonunnar Ræða nýstúdents Íþróttamaður USÚ heiðraður Leikskólabörn syngja Tónleikar með Óskari Guðnasyni og félögum Andlitsmálun Grillaðar pylsur Hoppukastalar Sjoppa þar sem allur ágóði rennur í ferðasjóð3.flokksSindra20:00 Fjölskyldudansleikur í íþróttahúsinu

Athugið að dagskráin verður flutt inn í íþróttahúsið ef illa viðrar

Umf. Sindri

Eins og undafarin ár mun Sindri sjá um kvennahlaup ÍSÍ. Hlaupið fer fram 16. júní og hefst kl. 11:00 hjá sundlauginni. Sala á bolum og skráning verður frá 10:00 sama dag og í Sindrahúsinu miðvikudag og fimmtudag milli 17:00 – 19:00. Sú nýjung tengist hlaupinu núna að sjálfboðaliðar frá Rauðakrossdeild Hornafjarðar verða á staðnum og taka á móti brjóstahöldurum í söfnun félagsins. Að vanda verður boðið upp á Egils kristal, glaðning frá Nivea og að sjálfsögðu frítt í sund fyrir þátttakendur. Nú er um að gera að drífa sig af stað og taka þátt í hollri og góðri hreyfingu. Tvær leiðir eru í boði, 3 km og 5 km. Fyrir hlaupið mun Matthildur Ásmundsdóttir stjórna upphitunaræfingum.

Kvennahlaup ÍSÍ3 og 5 km í boði

Hafnarkirkja Sunnudaginn 17. júní

Þjóðhátíðardaginn Messa kl. 11:00

Sóknarprestur

Umhverfisviðurkenning Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012

Óskað er eftir hugmyndum og tillögum um umhverfisviðurkenninguna fyrir árið 2012 frá íbúum Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Umhverfisviðurkenningin verður veitt í þremur flokkum:

• Heimili í þéttbýli • Lögbýli • Fyrirtæki / Stofnunum

Viðurkenningin er veitt til þeirra sem þykja hafa skarað fram úr eða verið til fyrirmyndar í umhverfismálum.Tekið er við tilnefningum á netfang. [email protected]

Viðurkenningin verður svo afhent á næstkomandi Humarhátíð.

Tilnefningar þurf að hafa borist fyrir miðvikudaginn 20. júní 2012.

Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson Yfirmaður Umhverfis og skipulags Sveitafélaginu Hornafjörður

Kvennahlaupið verður í Skaftafelli klukkan 13:00 16. júní næstkomandi en upphitun hefst klukkan 12:45. Tvær vegalengdir í boði: 2 km og 5 km. Allir þátttakendur fá bol, verðlaunapening og Kristal auk þess sem hlaupurum verður boðið upp á súpu, kaffi og möffins köku í veitingasal Skaftafellsstofu. Ungir sem aldnir velkomnir! Forsala á bolum og frekari upplýsingar í gestastofu en þeim sem koma lengra að er bent á að hafa samband í síma 470-8300 eða á netfangið [email protected]. Gott væri ef fólk skráði sig í vikunni til þess að við getum áætlað fjölda hlaupara og reynt að tryggja að allir fái bol í réttri stærð.

Kvennahlaup í Skaftafelli

Page 3: Eystrahorn 24. tbl. 2012

www.eystrahorn.isEystrahorn Fimmtudagur 14. júní 2012

Spretta er nafnið á smiðjum sem fara fram dagana 18. – 24. júní á Höfn. Í boði eru þrjár mismunandi smiðjur fyrir ungt fólk á aldrinum 16 – 25 ára og fara þær fram á kvöldin vikuna fyrir Humarhátíð. Afrakstur smiðjanna verður svo sýndur gestum og heimamönnum meðan á hátíðinni stendur. Smiðjurnar sem eru í boði eru:

Ljósmyndun þar sem megináherslan verður • lögð á myndir af fólki á sem fjölbreyttastan hátt. Skapandi skrif þar sem fjallað verður um • grundvallaratriði í kvikmyndahandritsgerð. Kvikmyndagerð þar verður farið í saumana á • hvaða lögmál liggja að baki góðri kvikmynda-gerð og farið yfir helstu grundvallaratriði

Nánari upplýsingar um allar smiðjurnar er að finna á heimasíðunni www.spretta.tumblr.com og á www.facebook.com/spretta Þátttökugjald er 3.000 krónur og hægt er að skrá sig á námskeið með því að senda vefpóst með nafninu sínu, fæðingarári og námskeiðsheiti á [email protected]

SprettaNámskeið fyrir fólk á aldrinum 16 – 25 ára dagana 18. – 24. júní

Upplýsinga- og gæðastjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Laust er til umsóknar starf upplýsinga- og gæðastjóra Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Um er að ræða 100% starf í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Starfið heyrir beint undir bæjarstjóra Hornafjarðar.

Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi um þróun samfélags á Hornafirði og starfsemi Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Starfið felur í sér yfirumsjón þriggja málaflokka hjá sveitarfélaginu, þ.e. upplýsingamálum, gæðamálum og starfsmannamálum. Auk þess mun starfið fela í sér vinnu við önnur tilfallandi verkefni innan stjórnsýslu sveitarfélagsins.

Helstu verkefni:Hefur yfirumsjón með kynningar- og upplýsingamálum fyrir • sveitarfélagið á öllum sviðum þess. Hefur yfirumsjón með gæðamálum sveitarfélagsins.• Hefur yfirumsjón með starfsmannamálum.• Hefur yfirumsjón með eftirfylgd við gerða samninga sveitarfélagsins • við ríki, stofnanir, einstaklinga, fyrirtæki og félagasamtök.Heldur utan um vef sveitarfélagsins og styður stofnanir við að koma • upplýsingum er varða daglegt starf til skila til íbúa. Er ritstjóri heimasíðu sveitarfélagsins. Sér um að heimasíðan sé notendavæn og uppfærð á hverjum tíma. Stefnt skal að því að koma Sveitarfélaginu Hornafirði á framfæri á sem virkastan hátt.Styður við og eftir atvikum hefur umsjón með stefnumótun fyrir • sveitarfélagiðMótar stefnu í skjalavistun fyrir sveitarfélagið í heild og styður við • stofnanir þar að lútandi.Tekur þátt í tilfallandi vinnuhópum og teymisvinnu eftir því sem við á • Situr fundi bæjarráðs og nefnda sveitarfélagsins sé þess óskað • Önnur tilfallandi verkefni innan stjórnsýslu sveitarfélagsins.•

HæfniskröfurHáskólapróf sem nýtist í starfi. • Góð þekking á sveitarstjórnarstiginu og stjórnsýslu.• Skipulagshæfileikar, ríkulegur þjónustuvilji og lipurð í mannlegum • samskiptum.Góð almenn tölvukunnátta sem felst í að geta öðlast færni á ólíkum • tölvukerfum á skjótan hátt.Góð íslenskukunnátta og færni í að koma frá sér efni í rituðu og töluðu • máli. Hæfni í ensku æskileg.Reynsla af stjórnun æskileg.•

Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, sími 470-8000, netfang [email protected].

Umsóknarfrestur er til 25. júní 2012 og skal stíla umsókn á Sveitarfélagið Hornafjörð, Hafnarbraut 27, 780 Hornafirði, merkt upplýsinga- og gæðastjóri.

Page 4: Eystrahorn 24. tbl. 2012

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 14. júní 2012

Þáttakendur fá að vinna með íslenskum hönnuðum að undirbúningi og uppsetningu tískusýningar. Allir á aldrinum 13-30 ára sem hafa áhuga á fatahönnun, tísku, stíliseringum, módelstörfum eða uppsetningu viðburða ættu ekki að láta þetta tækifæri fram hjá sér fara.Nánari upplýsingar og skráning hjá:Ágústu í 8631475 og Ragnheiði í 8683619.Þátttökugjald 2000 krónur.

Tísku Smiðja fyrir ungt fólk fyrir og á Humarhátíð 2012

Mánudagskvöld 18, júní kl. 20:00-22:00Hvað er tíska- hvað gerir vörur að tískuvörum!Hvað er hönnun- fata-, fylgihluta-, skó- og skartgripahönnun!Námsleiðir innan greinarinnar kynntar.Kynning á þeim íslenskum tískuhönnuðum er munu taka þátt í verkefninu.Heimanám- portfólío/mappa með úrklippum og hugmyndum fyrir tískusýningu og tískuljósmyndum.

Miðvikudagskvöld 20. júní kl. 20:00-22:00Portfólíó/ möppur kynntar af þáttakendum umræður og spjallÞema sýningar ákveðiðHár, förðun og stílisering-Sigrún Gylfadóttir- Salon Súa.Tískusýningar og uppsetning- hugmyndavinna og gerð fylgihluta fyrir sýningu.

Fimmtudagskvöld 21. júní kl. 20:00-22:00Tískusýning undirbúin, raðað upp í sal, tónlist valin, vörur kláraðar, æfing og fleira.

Föstudagur 22. júní kl 16:00-22:00 Gesta hönnuðir halda fyrirlestur- reynsla og ráð17:00- Undirbúningur- mátun17:00- Hár og förðun17:30- Fyrirsætur klæddar20:00- TÍSKUSÝNING- Arfleifð, Millibör, Gammur, Volcano, Sign, Krista, Drafnar Design og fl.

Fjölmargir listamenn og hönnuðir hafa hreiðrað um sig á Heppunni og nú síðast bættist Ragnheiður Hrafnkelsdóttir klæðskeri í þann hóp með fyrirtækið sitt Millibör. Nafngiftin vísar í loftvogina sem var mikið notuð hér áður og það sérstæða veðurfar sem við búum við. Ragnheiður er fædd og uppalin á Hornafirði, dóttir Ingibjargar og Kela í Hafnarbúðinni. Hún lauk námi í kjólasaumi og klæðskurði árið 2001 og hefur starfað við fagið frá útskrift auk þess að sinna ýmsum hönnunarstörfum. Nú síðast í Lególandi, þar sem hún sá um hönnun og gerð búninga fyrir skemmtigarðinn. Aðspurð hvort ekki sé löng leið úr Lególandi í Kartöfluhúsið segir hún það í rauninni ekki vera. Ég hafði alltaf hug á að flytja aftur heim eftir klæðskurðarnámið svo það var bara eðlileg þróun þótt það hafi tekið mig tíu ár. Við fjölskyldan fluttumst til Danmerkur sumarið 2005 þegar Rúnar eiginmaður minn hóf nám í byggingafræði við VIA háskólann í Horsens. Áður en við fórum út stofnaði ég og rak klæðskeraverkstæðið

Kjóll & Klæði við Tryggvagötu í Reykjavík og við það vaknaði áhugi minn á frumkvöðlastarfi og fyrirtækjarekstri. Notaði ég því tækifærið á meðan og tók gráðu í markaðsstjórnun við sama skóla. Þegar heim var komið blundaði í mér að skapa sjálfri mér atvinnu

með þeirri þekkingu og reynslu sem ég hafði í farteskinu. Fljótlega eftir ég kom heim fór ég að sækjast eftir húsnæði fyrir starfsemi ásamt Ágústu í Arfleifð, og tók Skinney-Þinganes okkur upp á arma sína og lánaði okkur hluta af Kartöfluhúsinu. Þá kom ekki annað til greina en að henda sér út í djúpu laugina og láta gamlan draum rætast. Til að byrja með þá fór ég í það að innrétta Kartöfluhúsið

og þá er nú gott að vera gift húsasmíðameistara. Við hjónin eyddum dágóðum tíma í það að finna út hvernig væri hægt að halda í þennan hráa stíl sem mér finnst einmitt svo sjarmerandi og ég held að það hafi tekist vel hjá okkur. Nú, hálfu ári síðar er

ég búin að stofna hönnunar- og klæðskurðarverkstæðið Millibör ehf. Nýlega hef ég fengið þær Berglindi Steinþórsdóttur og Elínu Dögg Haraldsdóttur til liðs við mig, enda eru fjölmörg verkefni framundan. Við stofnun Millibör var stefnan tekin á hönnun eigin vörulínu og verður hún frumsýnd á Humarhátíð. Við hönnun línunnar KYNJAVERUR HAFSINS sæki ég innblástur í hafið og þær kynjaverur sem

þar búa. Ég notast við lögun fiskanna þegar ég hanna fötin og það kemur skemmtilega út. Á Humarhátíðinni verður vinnustofan opin alla helgina og þar verður hægt að sjá hönnunarferlið á skissum, þannig að allt ferlið frá hugmynd að veruleika verður sýnilegt. Nú þegar hafa magnaðar marglittur, skrautlegar skötur og seiðandi smokkfiskar litið dagsins ljós. Ágústa verður að sjálfsögðu líka á staðnum á hátíðinni með mikið af nýjum vörum frá Arfleifð. Yfir hátíðina mun Kartöfluhúsið breytast í allsherjar tískumiðstöð þar sem við Ágústa ásamt fleiri hönnuðum, munum standa fyrir tískutengdum viðburðum. Einnig verður opin verslun alla helgina þar sem meðal annars verður hægt að nálgast vörur frá Millibörum, Arfleifð, Gammi, Volcano Design, Krista Design og Sign. Það er því ljóst að það eru spennandi tímar framundan hjá þessari atorkusömu konu sem vill enda á því að þakka Hornfirðinum þær frábæru móttökur sem hún hefur fengið.

Úr Lególandi í Kartöfluhúsið

Page 5: Eystrahorn 24. tbl. 2012

www.eystrahorn.isEystrahorn Fimmtudagur 14. júní 2012

Fimmtudagskvöld: Trúbador mun koma ykkur í stuðið fyrir hátíðina frá 23-02. Verð 1000 kjéll.

Snillingarnir í hljómsveitinni Dans á Rósum munu halda uppi fjörinu á föstudags- og laugardagskv. eins og þeim einum er lagið. Þeir eru fjölhæfir og höfða bæði til ungu jafnt sem eldri kynslóðarinnar. 2500 kall kostar inn hvort kvöldið.

Nýjung verður þetta árið og er hægt að gera frábær kaup með því að versla sér armband í forsölu. Armbandið mun kosta 2500 kr. og gildir það frá fimmtudegi - sunnudags og svo mikið meira !! Með armbandinu færðu aðgang á Víkina öll kvöldin og virkar armbandið einnig sem happdrættismiði og handhafar hljóta einnig sértilboð á barnum og af matseðli alla helgina. Vinningar eru ekki af verri endanum. Hver vill ekki vinna ferð fyrir 2 með Herjólfi á Þjóðhátíð og aðgangs passa í dalinn. Þrír aðilar fá endurgreidd armböndin sín og þrír munu hljóta pizzu vinninga. Reiknaðu dæmið til enda !! 18 Ára aldurstakmark. MUNA SKILRÍKIN

Víkin er hér fyrir þig á Humarhátíð 2012 !!! Sími 4782300

Þessar vinkonur ætla að komast í pottinn og eiga möguleika á að næla sér í miða til eyja á Þjóðhátíð. Dettur þú í lukkupottinn ?

Humarhátíðargleði 21. júní – 24. júní á Víkinni. Það verður ávinningur að skemmta sér hjá okkur !

Námið tekur eitt ár og er 60 framhaldsskólaeiningar

Áhersla á verklegt útinám á fjöllum og í óbyggðum

Vettvangsferðir með kennara og á eigin vegum

Starfsþjálfun í ferða-þjónustufyrirtækjum

F J A L L A M E N N S K U N Á M

Námsbrautin hentar:

Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu

Sími 470 8070 | [email protected] | www.fas.is

Page 6: Eystrahorn 24. tbl. 2012

6 EystrahornFimmtudagur 14. júní 2012

Á fundi starfsmanna í Nýheimum á vorönn 2011 var ákveðið að kjósa í nefnd sem hefði það hlutverk að finna sambærilegan stað og Nýheimar með svipað hlutverk og starfsemi. Tilefnið var að árið 2012 fagna Nýheimar 10 ára afmæli og FAS 25 ára afmæli sínu. Athuga átti hvort hægt væri að finna sambærilegan stað með það í hyggju að sjá hvað aðrir eru að gera og einning að miðla af okkar reynslu. Undirbúningshópurinn hóf strax leit að öðrum „Nýheimum“ en það reyndist þrautinni þyngra. Á endanum þóttist undirbúningshópurinn finna slíkan stað í Svíþjóð í Söderhamn sem þýðir „Suðurhöfn“ en þar er stofnunin CFL (Centrum för flexibelt lärande). Þar á bæ kættust menn þegar ósk frá okkur barst um samstarf og hugsanlega ráðstefnu. Í um ár hefur undirbúningshópurinn verið í sambandi við CFL í Söderhamn og á þeim tíma hefur heimsókn og dagskrá verið undirbúin. Ráðstefnan var haldin 30. maí til 1. júní s.l. Alls fóru 22 frá Höfn í ferðina. Þar af voru 14 þátttakendur frá mismunandi stofnunum í Nýheimum, fjórir fulltrúar frá sveitarfélaginu og fjórir makar. Fyrsta daginn var sagt frá starfseminni í CFL í Söderhamn og hvernig bæjaryfirvöld þar reyna að styrkja starfsemina og efla nýsköpun í atvinnustarfsemi. Næsta dag var komið að okkur að segja frá starfseminni í Nýheimum. Það kom flestum ef ekki öllum á óvart hversu margt

staðirnir eiga sameiginlegt. Þar má sem dæmi nefna að svipuð hugmyndafræði er að baki hjá báðum aðilum með svipaðar áherslur. Báðir staðirnir eru t.d. að reyna að skapa fjölbreyttara atvinnulíf þannig að unga fólkið vilji búa þar áfram og sjá menntun sem lykilatriði í framtíðar uppbyggingu atvinnugreina og þátttöku almennings í uppbyggingu sterkara samfélags. Þá fagna bæði CFL og Nýheimar10 ára afmæli sínu á þessu ári. Eftir hádegi fyrstu tvo dagana gafst kostur á að skoða ýmsa starfsemi, s.s. nýsköpun, skóla, afþreyingarstarf fyrir ungmenni og menningarstarf í sveitarfélaginu. Síðasta daginn

var svo verið að skoða hugsanlega samstarfsfleti en alls komu 15 uppástungur að ýmis konar sameiginlegum verkefnum. Þess má geta að nú þegar er farið að vinna í fyrsta verkefninu, en nemendur í heilsugeira hafa áhuga á því að koma til Hafnar í byrjun október og skoða hvernig staðið er að heilsugæslu og þjónustu við sjúklinga hér. Önnur hugsanleg samstarfsverkefni eru t.d. kennaraskipti og ýmis rannsóknarverkefni sem snúa meðal annars að þeirri hugmyndafræði sem þessi setur eru byggð á. Íslensku þátttakendurnir eru mjög ánægðir með góðar móttökur og viðmót. Ytra komu tæplega

30 manns að því að undirbúa heimsókn okkar. Ljóst er að miklu máli skiptir fyrir dreifðar byggðir að geta byggt upp þekkingu innan „héraðs“ þar sem lagður er grundvöllur að frekari uppbyggingu og þróun á samfélögunum okkar. Nýheimar og CFL eru þekkingarsetur sem vinna að eflingu og þróun á fjölbreyttu sviði með sameiginlegt markmið. Við heimsóknir eins og þessa myndast tengsl þar sem hægt er að vinna að stærri verkefnum en við ein og sér gætum ráðið við og vonum við að þessi ferð marki upphafið að farsælu og spennandi samstarfi milli Hafnar og Suðurhafnar í Svíþjóð.

Ferð til Söderhamn í Svíþjóð

Hluti þátttakenda á ráðstefnunni

Frá og með haustönn 2012 verður hægt að stunda nám í umhverfis- og auðlindafræði á framhaldsskólastigi í fyrsta sinn hér á landi. Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu er einn fjögurra framhaldsskóla sem stendur að nýrri umhverfis- og auðlindabraut og samstarfsverkefni um fjarmenntaskólann.is. Um er að ræða fjarnám til stúdentsprófs sem nemendur geta stundað hvar sem þeir eru búsettir. Um allan heim snúast stærstu viðfangsefnin í nútíð og framtíð um samspilið milli nýtingar og verndunar auðlinda. Það sést á heitum umræðum hér á landi undanfarin misseri, þar sem spurt er; „hvernig á að nýta auðlindir lands og sjávar, hvar á að virkja og hvað á að vernda?“ Hagkerfi heimsins byggja á því að nýta auðlindir, án þess þó að eyðileggja þær. Á þetta reynir í öllum atvinnugreinum, sjávarútvegi, landbúnaði,

iðnaði og ferðaþjónustu. Í náminu á umhverfis- og auðlindabraut fléttast náttúruvísindi og félagsvísindi saman á spennandi hátt. Auk kjarnagreina er boðið upp á áfanga í auðlindafræði, umhverfisfræði, vistfræði, landafræði, og hagfræði. Auk FAS standa Menntaskólinn á Egilsstöðum, Fjölbrautaskóli

Snæfellinga og Menntaskólinn á Tröllaskaga að umhverfis- og auðlindabrautinni, sem er fyrsta námið sem boðið verður upp á undir merkjum Fjarmenntaskólans. Nemendur staðsettir vítt og breitt um landið, eða hvar sem er í heiminum, munu tengjast sem einn hópur í gegnum námið, vinna að einstaklings- og hópverkefnum og staðbundnum rannsóknarverkefnum. Líkt og í staðbundnu námi stendur nemendum til boða námsráðgjöf og stuðningur. Námið leggur góðan grunn að háskólanámi og störfum á sviðum sem tengjast umhverfismálum og nýtingu og verndun auðlinda. Mikil alþjóðleg nýsköpun og gerjun er að eiga sér stað í þessum málum og bendir allt til þess að aukin þörf verði fyrir fólk með slíka þekkingu á komandi árum. Allar nánari upplýsingar er að finna á www.fjarmenntaskolinn.is.

Fjarnám og stúdentspróf í umhverfis- og auðlindafræði

Page 7: Eystrahorn 24. tbl. 2012

www.eystrahorn.isEystrahorn Fimmtudagur 14. júní 2012

Næstu leikirLaugardagur 9. júní kl. 16:00• 1. deild kvenna, Höttur - Sindri (á Egilsstöðum)

Föstudagur 15. júní• Kl. 20:00 2. flokkur karla Sindri -Hamar

Laugardagur 16. júní• Kl. 16:00 3. d. karla Sindri – KFS• Kl. 14:00 3. fl. karla Sindri – Leiknir/KB• Kl. 13:00 3. fl. kvenna keppir á Fellavelli við Hött og Einherja

Lifandi tónlist verður á Víkinni helgina 15. - 16. júní

Rökkurbandið lofar góðri stemningu

á föstudags- og laugardagskvöld frá 11:30 og fram eftir nóttu.

Rökkurbandið spilar fjölbreytta tónlist þar sem flestir ættu að finna eitthvað

við sitt hæfi. Aðgangseyrir 1.500 kr. 18 ára aldurstakmark.

Munið skilríkin

Mikið sparkað

Meistaraflokkur kvennaMeistaraflokkur kvenna spilaði tvo leiki í vikunni. Í bikarkeppninni tapaði liðið fyrir Keflavík 3-1. Leikurinn var frekar jafn og þriðja mark gestanna kom í uppbótartíma eftir að okkar stúlkur voru búnar að pressa stíft til að reyna að jafna. Mark Sindra skoraði María Selma Haseta. Seinni leikur stúlknanna var gegn ÍA hér heima þar sem rokið lék stórt hlutverk í markalausum leik. Sindrastelpurnar eiga lof skilið fyrir góða baráttu gegn sterku liði Akraness. Stelpurnar eru í öðru sæti riðilsins með 7 stig.

Meistaraflokkur karla Liðið spilaði við Stálúlf í Kópavoginum og lauk honum með sigri Sindra 4-0 þar sem Kekic, Atli A og Kristinn Þór (2) skoruðu mörkin. Sindri er í öðru sæti A-riðils með 8 stig eftir fjóra leiki og lítur liðið mjög vel út, gott spil með þétta vörn.

2. flokkur karla Breiðablik/Augnablik komu í heimsókn og sigraði Sindri í bráðfjörugum og æsi spennandi leik 3-2 þar sem Hallmar, Eiríkur Snær og Mirza skoruðu mörkin.

4. flokkur kvenna Stelpurnar skruppu til Reykjavíkur og gerðu sér lítið fyrir og unnu 7-5 sem var síst of stór sigur miðað við gang leiksins.

3. flokkur karla Strákarnir fóru til Vestmannaeyja og spiluðu við gríðarlega sterkt lið ÍBV og máttu þola 5-0 tap þrátt fyrir að hafa barist hetjulega allan leikinn.

2. flokkur kvennaSpiluð var heil umferð hér heima í 7 manna bolta hjá stúlkunum. Okkar stúlkur sigruðu Neista/Tindastól 8–0 og Fylki/ÍR 2-1 Ævintýra- og leikjanámskeið Sindra

Annað námskeið sumarsins verður 18. - 29. júníNámskeiðið er fyrir 6 - 9 ára börnDagskrá frá kl. 9:00 - 12:00 en boðið er upp á gæslu frá kl. 8:00Umsjónamaður er Guðrún Ása Jóhannsdóttir

Trjáplöntur, fjölær blóm,sumarblóm, matjurtir o.fl.

Ýmis sumarblómatilboð

Gróðrarstöðin DilksnesiOpið virka daga kl. 13:00 - 18:00

Langur laugardagur 16. júní • opið kl. 10:00 - 17:00Lokað 17. júní • Sími 849-1920

Allar plöntur eru ræktaðar

í Dilksnesi

Page 8: Eystrahorn 24. tbl. 2012

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 14. júní 2012

Starf humarskurðarmeistara er laust til umsóknar á Humarhöfninni

Kröfur til meistarans umfram almennar hæfniskröfur er að viðkomandi hafi bílpróf

og geti hafið störf sem fyrst.

Áhugasamir vinsamlegast sendið tölvupóst á [email protected]

eða talið við Ara í síma 891 8080

Laugardaginn 16. júní kl. 14:00 verður ljósmyndasýningin ,,Óþrotlegur auður“ opnuð í Þórbergssetri. Sýningin er metnaðarfull og nýstárleg og markmiðið er að tengja bókmenntatexta úr verkum Þórbergs Þórðarsonar rithöfundar við ljósmyndir og standa þannig fyrir kynningu á stórbrotnu landslagi Skaftafellssýslna með nýstárlegri framsetningu. Sýningunni er ætlað að auka þekkingu ferðamanna á fjölbreytilegri náttúru í Skaftafellssýslum, en um leið að kalla fram hughrif, upplifun og áhuga á að heimsækja aftur og aftur þetta einstaka landsvæði til að njóta náttúrunnar―bæði að sumri til og vetri. Í verkum Þórbergs Þórðarsonar má víða finna einstakar lýsingar á náttúru og umhverfi. Textabrot úr verkum hans kallast á við stórkostlegar ljósmyndir þeirra Þorvarðar Árnasonar áhugaljósmyndara og Tony Prower ljósmyndara. Myndirnar eru allar teknar í Ríki Vatnajökuls, bæði vetur og sumar og á nóttu og degi. Sýningin verður opin í allt sumar og Hornfirðingar eru hjartanlega velkomnir að koma í heimsókn í Þórbergssetur og skoða sig um, því alltaf er eitthvað nýtt að sjá.

,,Óþrotlegur auður“ Ljósmyndasýning í Þórbergssetri

NÝJUNG

Hefur þú áhuga á umhverfismálum og stóru spurningunum um verndun og nýtingu auðlinda?

Umhverfis- og auðlindafræði – stúdentspróf í fjarnámi

Fjarnám StúdentsprófSamþætting raunvísinda og félagsgreinaNám fyrir framtíðina

Nánari upplýsingar:[email protected]

Sími 460 4246

FjölbrautaskóliSnæfellinga

MENNTASKÓLINNÁ EGILSSTÖÐUM

17. júní í NesjumUMF. Máni heldur árlega þjóðhátíðarskemmtun 17. júní.

Dagskrá verður með svipuðu móti og undanfarin ár og að vanda verður farið í gönguferð sem ætti að henta öllum.

Við leggjum af stað frá Mánagarði klukkan 13. Allir eru velkomnir og munið eftir skriffærunum.

Stjórn UMF. Mána

Fyrir humarhátíðErum með appelsínugult sprey í hárið og

appelsínugula hárlengingarlokka.

Vorum einnig að fá Color Bug púður litina sem fara úr í næsta hárþvotti. Því ekki að

breyta um lit annan hvern dag?

Verið velkomin • Jóna og Ellý

Hárstofa Jónu Margrétar • Vesturbraut 2 • síMi 478-1780

Page 9: Eystrahorn 24. tbl. 2012

9Eystrahorn Fimmtudagur 14. júní 2012

Húsgagnaval

NÝTT • NÝTTBleikur, gulur, fjólublár og fleiri litir Vinsælir, smart og góðir hnífar sem

kokkarnir Hrefna Sætran og Yesmine Olsson mæla með

Opið kl. 13:00 - 18:00 Lokað á laugardögum í sumar

Sími 478-2535 / 898-3664

Úrval af rúmum og dýnum í öllum gerðum og stærðum

humarhátíð á höfn Dagana 22. - 24. júní 2012

Humarhátíðarganga og búningakeppni hefst hjá N1 kl. 18:00. Vegleg verðlaun í boði fyrir allan aldur.

Við viljum hvetja alla að taka þátt í að gera gönguna okkar sem litskrúðugasta með heimatilbúnum skiltum og öðru skemmtilegu.

Setning Humarhátíðar á Höfn hefst kl 18:30 strax á eftir göngu á sama stað og síðustu 2 ár.

Frá skreytinganefndTökum höndum saman og prýðum bæinn okkar APELSÍNUGULAN. Best skreytta húsið 2012 og best skreytta hverfið 2012 fá glæsileg verðlaun!

HornafjarðarmanniViljum við minna á að Heimsmeistaramót í Hornafjarðarmanna verður í íþróttahúsinu klukkan 13:30 á laugardag. Mótið hefur verið haldið á hverri Humarhátíð í mörg ár og er það Albert Eymundsson sem átti hugmyndina af mótinu og stjórnar því að vanda. Allir velkomnir að taka þátt

DagskráDagskrá Humarhátíðar á Höfn er að finna á netinu www.humar.is og https://www.facebook.com/hummihumar. Hvetjum alla til að kynna sér dagskrána, en einnig verður hún send í öll hús á Hornafirði.

HumarsúpukeppniHumarhátíðarnefnd, í samstarfi við Skinney-Þinganes langar að efna til Humarsúpukeppni laugardaginn 23. júní.

Það sem þú þarft að gera er að skrá þig inn á [email protected]

10 fyrstu sem skrá sig fá humarkitt í súpuna í boði Skinneyjar-• Þinganess

Humarkitt verður afhent á hátíðarsviði í lok dagskrár • föstudaginn 22. júní

Elda þarf 3 lítra af súpu og bera hana fram í hitakönnum á • keppnissvæði þar sem gestir og gangandi munu dæma og verður sigurvegarinn krýndur Humarsúpukóngur/drottning Humarhátíðar 2012

Humarhátíðarnefnd skaffar staup til að bjóða súpuna í og • telur atkvæði

Vegleg verðlaun í boði. •

Á dögunum fengum við á Lönguhólum heimsókn frá manni sem heitir Ólafur Siggeirsson. Hann færði okkur gjöf frá félagi heyrnalausra á Íslandi. Öll börn bæði á Krakkakoti og á Lönguhólum fengu litabók með mynd af dýrum til að lita og á sömu blaðsíðu er mynd hvernig á að tákna dýrið á táknmáli. Einnig gaf hann segla og veggspjald með íslenska stafrófinu með táknum. Þökkum við félagi heyrnalausra kærlega fyrir þessa góðu gjöf. Félag heyrnalausra benti mér á síðu sem mig langar að deila með ykkur og er slóðin á hana http://signwiki.is/ þar er allskonar kennsluefni um táknmál.

Maríanna Jónsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri

Gjöf frá félagi heyrnarlausra

Athugði að sumerferðin okkar á Rángárvelli og Vestmannaeyjar.

Farið verður frá Ekru kl. 9:00 að morgni 23. júní.

Ferðanefndin

Félag eldri Hornfirðinga

Page 10: Eystrahorn 24. tbl. 2012

taka

hön

dum

sam

an!

Hor

nfirð

inga

r H

ornfi

rðin

gar

taka

hön

dum

sam

an!

Hep

pa M

atar

höfn

D

agan

a 15

. og

16. j

úní,

föst

udag

og

laug

arda

g, v

erðu

r tek

inn

upp

sjón

varp

sþát

tur R

ÚV

í S

veita

r-fé

lagi

nu H

orna

firði

og

geng

ur

þáttu

rinn

m.a

. út á

bæta

ásý

nd

hafn

arsv

æði

sins

, með

það

mar

kmið

i að

skap

a áh

ugav

erða

n og

falle

gan

stað

fyrir

ferð

amen

n ja

fnt s

em h

eim

afól

k.

tum

öll

niðu

r á h

afna

r-sv

æði

ð þe

ssa

daga

, tök

um

þátt

og s

ýnum

sam

taka

mát

t H

ornfi

rðin

ga.

Li

fand

i tón

list,

mat

ur o

g m

eira

se

gja

hægt

horfa

á E

M í

be

inni

á ri

satja

ldi.

Þei

r sem

vilj

a sk

rá s

ig g

eta

sent

lvup

óstp

óst á

Hau

k In

ga E

inar

sson

(h

auku

ri@ho

rnaf

jord

ur.is

) sem

hel

dur u

tan

um v

erke

fnal

ista

fyrir

dag

ana.