Eystrahorn 14. tbl 2016

4
Fimmtudagur 7. apríl 2016 Eystrahorn www.eystrahorn.is 14. tbl. 34. árgangur Samfélagsvefurinn www.hornafjordur.is Heilsueflandi samfélag Eigendaskipti á Hótel Höfn Bæjarstjórn Hornafjarðar hefur ákveðið að gerast aðili að verkefninu „Heilsueflandi samfélag“ . Um árabil hefur Grunnskóli Hornafjarðar verið þátttakandi í verkefninu heilsueflandi grunnskóli og FAS verið heilsueflandi framhaldsskóli. Heilsueflandi samfélag miðar að því að þróa samfélagslegan ramma utan um markvissa og heildræna heilsueflingu. Verkefnið inniheldur helstu áhersluþætti landlæknisembættisins , miðar að því að setja heilsueflingu í forgrunn í allri þjónustu sveitarfélagsins hvort sem um ræðir t.d. fræðslu- menningar- eða skipulagsmál. Verkefninu er ætlað að ná til allra aldurshópa í samfélaginu, m. a. í gegnum heilsueflandi leik-, grunn- og framhaldsskóla, vinnustaði og starf eldri borgara og stuðla þannig að góðri heilsu, vellíðan og auknum lífsgæðum alla ævi. Jóna Benný Kristjánsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Umf. Sindra og tók hún formlega við lyklunum af Valdemari Einarssyni sem hefur sinnt starfinu í tæp 10 ár. Þökkum við honum kærlega fyrir gott starf og óskum honum velfarnaðar á nýjum vettvangi og jafnframt bjóðum við Jónu Benný velkomna til starfa. F.h. Ungmennafélagsins Sindra Gunnhildur Lilja Gísladóttir, formaður Nýr framkvæmdastjóri Þann 3. apríl sl. var undirritaður kaupsamningur þar sem nýir eigendur tóku við rekstri á Ósnum ehf. sem á og rekur Hótel Höfn. Fjárfestingarfélagið HSTG ehf. keypti þá allt hlutafé í félaginu en nýr eigandi er Helga S. Guðmundsdóttir. Reksturinn mun verða með svipuðu sniði og verið hefur og lögð verður áhersla á að lágmarka breytingar á starfsmannahaldi. Náðst hefur samkomulag við Gísla Má Vilhjálmsson og Þórdísi Einarsdóttur um að vinna með nýjum eigendum að framgangi rekstrar til skemmri tíma. Ljósmynd: Einar Björn Einarsson

description

 

Transcript of Eystrahorn 14. tbl 2016

Page 1: Eystrahorn 14. tbl 2016

Fimmtudagur 7. apríl 2016

Eystrahornwww.eystrahorn.is14. tbl. 34. árgangur

Samfélagsvefurinn www.hornafjordur.is

Heilsueflandi samfélag

Eigendaskipti á Hótel Höfn

Bæjarstjórn Hornafjarðar hefur ákveðið að gerast aðili að verkefninu „Heilsueflandi samfélag“ . Um árabil hefur Grunnskóli Hornafjarðar verið þátttakandi í verkefninu heilsueflandi grunnskóli og FAS verið heilsueflandi framhaldsskóli. Heilsueflandi samfélag miðar að því að þróa samfélagslegan ramma utan um markvissa og heildræna heilsueflingu. Verkefnið inniheldur helstu áhersluþætti landlæknisembættisins , miðar að því að setja heilsueflingu í forgrunn í allri þjónustu sveitarfélagsins hvort sem um ræðir t.d. fræðslu- menningar- eða skipulagsmál. Verkefninu er ætlað að ná til allra aldurshópa í samfélaginu, m. a. í gegnum heilsueflandi leik-, grunn- og framhaldsskóla, vinnustaði og starf eldri borgara og stuðla þannig að góðri heilsu, vellíðan og auknum lífsgæðum alla ævi.

Jóna Benný Kristjánsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Umf. Sindra og tók hún formlega við lyklunum af Valdemari Einarssyni sem hefur sinnt starfinu í tæp 10 ár. Þökkum við honum kærlega fyrir gott starf og óskum honum velfarnaðar á nýjum vettvangi og jafnframt bjóðum við Jónu Benný velkomna til starfa.

F.h. Ungmennafélagsins Sindra Gunnhildur Lilja Gísladóttir, formaður

Nýr framkvæmdastjóri

Þann 3. apríl sl. var undirritaður kaupsamningur þar sem nýir eigendur tóku við rekstri á Ósnum ehf. sem á og rekur Hótel Höfn. Fjárfestingarfélagið HSTG ehf. keypti þá allt hlutafé í félaginu en nýr eigandi er Helga S. Guðmundsdóttir. Reksturinn mun verða með svipuðu sniði og verið hefur og lögð

verður áhersla á að lágmarka breytingar á starfsmannahaldi. Náðst hefur samkomulag við Gísla Má Vilhjálmsson og Þórdísi Einarsdóttur um að vinna með nýjum eigendum að framgangi rekstrar til skemmri tíma.

Ljósmynd: Einar Björn Einarsson

Page 2: Eystrahorn 14. tbl 2016

2 EystrahornFimmtudagur 7. apríl 2016

EystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesUmbrot: ............. Tjörvi ÓskarssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

SUMARFERÐ 2016 SUMARFERÐ FÉLAGS ELDRI HORNFIRÐINGA 2016

Endilega skráið ykkur sem fyrst í ferðina ! Fyrirhugað er að fara í sumarferð í

Borgarfjörðinn og um Snæfellsnes dagana 11. júní til og með 14. júní.

Ferðin kostar 33.800 kr. á mann.

Nánari upplýsingar um ferðina og skráningu veita Gróa í gsm. 867-8796,

Ásta í gsm. 846-6199 og Björn formaður í gsm. 894-7210.

Með ferðakveðju ! Ferðanefndin.

Spilað verður um Ekrumeistarann í Hornafjarðarmanna

fimmtudaginn 14. apríl kl. 20:00.

Samverustund föstudaginn 8. apríl kl. 17:00 Sigurður Hannesson sýnir ljósmyndir og

spjallar um alla heima og geima (þó ekki pólitík).

Kaþólska kirkjan Sunnudagur 10. aprílMessa kl. 12:00Það er líka skírn Barrýar. Tökum á móti honum sem flestir.

Hafnarkirkja

50 ára

HafnarkirkjaSunnudagurinn 10. apríl

Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00.

Prestarnir

KútmagakvöldHið árlega og vinsæla kútmagakvöld Lionsmanna verður haldið í Sindrabæ

laugardaginn 9. apríl nk.

Góður matur og ýmsar uppákomur.

Húsið verður opnað kl. 19:30

Veislustjóri : Hermann Árnason

(Hermann á Heiði)

Miðaverð: 5000 kr.

Allir karlmenn velkomnir

Lionsklúbbur Hornafjarðar

Snorri Snorrasonlögg. fasteignasali Litlubrú 1780 HöfnSími [email protected]

MIÐTÚNMikið endurnýjað 133,7m² einbýlishús ásamt 28,9 m² bílskúr, samtals 162,6 m², skjólgóð verönd á baklóð.

VÍKURBRAUTTil sölu góð 84 m², 2ja herb.íbúð með sólstofu, íbúðin hentar vel þeim sem eru að minnka við sig.

HÖFÐAVEGURGott 107,6 m² einbýlishús ásamt 49,7 m² bílskúr, samtals 157,3 m², húsið hefur verið einangrað og klætt og mikið endurnýjað td lagnir, gluggar ofl.

NÝTT Á SKRÁNÝTT Á SKRÁ NÝTT Á SKRÁ

JaspisFasteignasala

Kynningarfundur um deiliskipulag við flugvöll í Skaftafelli

Kynningarfundur vegna lýsingar deiliskipulags við flugvöll í Skaftafelli verður haldinn í Ráðhúsi Hornafjarðar, mánudaginn 11. apríl kl. 12:00 – 13:00.

Gunnlaugur Róbertsson, skipulagsstjóri

Page 3: Eystrahorn 14. tbl 2016

3Eystrahorn Fimmtudagur 7. apríl 2016

Ferðafélag Austur- Skaffellinga Krakkaferð fyrir 4 ára og eldri. Hnúta við Arasel og Hellaferð í Lón.Sunnudagur 10. apríl Þessa ferð ætlum við að sníða að ungum börnum og ferðast með hugafari og hraða barns.Forráðamaður 14 ára og eldri þarf að vera með hverju barni.Lagt er af stað frá Tjaldstæði Hafnar kl. 11:00 og sameinast í bíla.Ekið að Araseli og gengið í nærumhverfi þar, göngutími 2-3 klukkustundir. Útbúnaður: Nesti, hlý föt, aukasokkar, buxur og vettlingar, fyrir hellaferðina reiðhjólahjálmur og höfuðljós eða vasaljós. Göngupoki fyrir yngri en 4 ára.Hvetjum foreldra til að koma og lofa börnum að feta sig áfram í útivist.

Allir velkomnir. Frekari upplýsingar veitir Ragna Pétursdóttir sími 662-5074

Frá Lionsklúbbnum Kolgrímu.

Krúttmagakvöld 9. apríl í PAKKHÚSINU !

GUGGURNAR og fleiri góðir gestir leika og skemmta.

Laugardaginn 9. apríl næst komandi er okkar árlega Krúttmagakvöld, sem er okkar stærsta fjáröflun.

Allur ágóði rennur til líknarmála í heimabyggð.Herlegheitin fara fram í Pakkhúsinu. Frábært matarhlaðborð.Veislustjóri er Anna SævarsdóttirGUGGURNAR stíga á svið og skemmta okkur.Happdrætti með veglegum vinningum.Að síðustu stíga á svið Birkir og félagar og skemmta okkur fram eftir kvöldi.

Miðinn kostar aðeins kr. 5.000. Tökum ekki kort.

Húsið verður opnað kl. 19:30Miðapantanir í símum:Erla G. Einarsdóttir Sími 846-4969.Guðbjörg Ómarsdóttir Sími 891-7174.

Konur, gerum okkur glaðan dag, hlæjum og gleðjumst saman og höfum það gaman.

Sjúkraliði í heimahjúkrun, framtíðarstaða

Laus er 50% staða sjúkraliða í heimahjúkrun hjá HSU Hornafirði frá og með 1. júní 2016. Sjúkraliðar sinna heimahjúkrun á starfssvæði stofnunarinnar. Um er að ræða einstaklingsmiðaða aðstoð, aðhlynningu og hjúkrun. Sjúkraliðamenntun og bílpróf er krafa og starfsreynsla í heilbrigðisþjónustu æskileg. Frumkvæði, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum nauðsyn.

Laun samkv. kjarasamningum launanefndar Sveitarfélaga og Sjúkraliðafélags Íslands.

Nánari upplýsingar gefur Ester Þorvaldsdóttir hjúkrunarstjóri heilsugæslu, [email protected], í síma 470-8600.

Getraunanúmer Sindra er 780

Drengjakór Íslenska Lýðveldisins og Karlakórinn Jökull verða

með opna æfingu laugardaginn 9. apríl kl. 20:30

á Fosshóteli Jökulsárlón.

Allir velkomnir !

Guðrún Ásdís nýráðin atvinnuráðgjafihjá Þekkingarsetrinu Nýheimum kynnirUppbyggingarsjóðinn og umsóknarferlið.

Page 4: Eystrahorn 14. tbl 2016

Ertu með frábærahugmynd?

nýsköpunmenning

atvinnauppbygging

Uppbyggingarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki

á sviði nýsköpunar og menningar á Suðurlandi

Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl nk.

Markmið Uppbyggingarsjóðs Suðurlands:

• Að styðja við verkefni sem efla fjölbreytileika atvinnulífs og jákvæða samfélagsþróun á Suðurlandi

• Að efla menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi

• Að styðja við atvinnuskapandi- og/eða framleiðniaukandi verkefni á Suðurlandi

Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð og

leiðbeiningar við gerð umsókna.

Hægt er að hafa samband í síma 480-8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið

[email protected]

Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum ve�nn sass.is

Austurvegi 56 - 800 Selfoss - 480-8200 - [email protected]ök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) eru landshlutasamtök sveitarfélaga á Suðurlandi, samstarfs- og þjónustuvettvangur um hagsmunamál sveitarfélaga, íbúa og atvinnulífs á Suðurlandi.

tækifæri

Kynningarfundur um Heilsueflandi samfélag

Héðinn Svarfdal Björnsson verkefnisstjóri hjá Embætti landlæknis heldur kynningarfund í Nýheimum um verkefnið Heilsueflandi samfélag fimmtudaginn 7. apríl kl. 16:30.

Íbúar sveitarfélagsins eru hvattir til að mæta og kynna sér markmið og áherslur verkefnisins.

Frá Ferðafélaginu Unglinginn með á fjallið

Ferðafélagið ætla að bjóða upp á skemmtilega göngu, laugardaginn 9. apríl þar sem við hvetjum unglinga á aldrinum 13-18 ára sérstaklega til að koma með okkur á fjall.

Fjall mánaðarins í apríl er Veðrafjall í Gjádal í Lóni Lagt af stað kl. 9:00 frá tjaldstæðinu og sameinast í bíla. Ekið upp að Gjádal þar sem gangan byrjar um kl. 10:00.

Léttir göngubroddar nauðsynlegir, getum lánað þeim sem vantar brodda. Léttur bakpoki, hollt og gott nesti og hlýr klæðnaður. Klæðnað og útbúnað þarf að miða við veður og aðstæður. Ferðatími er um 4-5 klst. Verð 1000 kr. fyrir 18 ára og eldri. Séu hundar með skal vera ól meðferðis.Boðið verður upp á heitt kakó í lok ferðar.Panta þarf í þessa ferð fyrir kl. 20:00 á föstudagskvöldið. Lágmarksfjöldi er 4 manns.

Allir velkomnir. Frekari upplýsingar veitir Ragna Pétursdóttir í síma 662-5074

Atvinna – atvinna

Viljum bæta við okkur fólki með meirapróf og vinnuvélaréttindi.

Nánari upplýsingar í síma

895-2454 (Jón) og 478-2454 (Lovísa)

Rósaberg ehf.

Sumarstarf

Flugfélagið Ernir óskar eftir starfskrafti ísumarafleysingar á Hornafirði.

Starfið felur í sér almenn afgreiðslustörf,símsvörun, bókanir í flug, innritanir, hleðslu á

flugvélum, útkeyrslu og annað tilfallandi.

Óskað er eftir fólki með hæfni í mannlegumsamskiptum og öguðum vinnubrögðum.Góð enskukunnátta og bílpróf skilyrði.

Umsóknir sendist á netfangið [email protected] fyrir 15. apríl