Heilsuklasi viðskiptaáætlun

24
Viðskiptaáætlun fyrir heilsuklasa Mars 2011

description

Heilsuklasi Mosfellsbæjar

Transcript of Heilsuklasi viðskiptaáætlun

Page 1: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

Viðskiptaáætlun fyrir heilsuklasa

Mars 2011

Page 2: Heilsuklasi viðskiptaáætlun
Page 3: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

2

Heilsuklasi í Mosfellsbæ – Útgáfa 1a – 28. mars 2011

Viðskiptaáætlun fyrir heilsuklasa

28. mars 2011

Útgáfa 1a

Jón Pálsson Sævar Kristinsson Sigríður Dögg Auðunsdóttir

Page 4: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

3

Heilsuklasi í Mosfellsbæ – Útgáfa 1a – 28. mars 2011

EFNISYFIRLIT Aðdragandi ________________________________________________________________ 4

Framtíðarsýn _______________________________________________________________ 4

Samstarf er dyggð ___________________________________________________________ 5

Stöðugreining ______________________________________________________________ 5

Tölulegar staðreyndir _______________________________________________________________ 6

Útivist og náttúra í Mosfellsbæ _______________________________________________________ 6

Ferðaþjónusta ____________________________________________________________________ 7

Veitingar í Mosfellsbæ ______________________________________________________________ 8

Önnur þjónusta í Mosfellsbæ ________________________________________________________ 8

Stefna og markmið klasans_____________________________________________________ 8

Þróun heilsuferðaþjónustu ____________________________________________________ 10

Kjarnagildi ________________________________________________________________ 11

Félagsform _______________________________________________________________ 11

Starfsemi og þróun klasans ____________________________________________________ 11

Þátttakendur í klasanum _____________________________________________________ 12

Markaðurinn og markaðshlutun ________________________________________________ 13

Fjármál __________________________________________________________________ 13

Framkvæmdaáætlun ________________________________________________________ 15

Auðkenni (slagorð) ________________________________________________________________ 15

Vöruþróun ______________________________________________________________________ 16

Dreifing _________________________________________________________________________ 16

Gæða-, þjónustu- og umhverfismál __________________________________________________ 16

Kynning _________________________________________________________________________ 16

Fjármál _________________________________________________________________________ 16

Viðaukar _________________________________________________________________ 17

Framboð gistirýmis 2000-2008 ______________________________________________________ 21

Listi yfir áhugasama þátttakendur á kynningarfundi um heilsuklasann: _____________________ 17

Ýmsir hagsmunaaðilar heilsuklasans _________________________________________________ 18

Staðir sem selja veitingar í Mosfellsbæ _______________________________________________ 19

Ýmis þjónusta í boði í Mosfellsbæ ___________________________________________________ 20

Page 5: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

4

Heilsuklasi í Mosfellsbæ – Útgáfa 1a – 28. mars 2011

AÐDRAGANDI

Undanfara stofnunar heilsuklasa Mosfellsbæjar má

rekja til hugmyndar Sævars Kristinssonar og Jóns

Pálssonar um hvernig efla megi atvinnulíf í Mosfellsbæ.

Þeir kynntu bæjarstjóra hugmyndir um hvernig byggja

mætti á lykilhæfni Mosfellsbæjar, þ.e. heilsueflingu,

endurhæfingu og náttúru.

Í kjölfarið var ákveðið að kanna nánar með mögulegt

klasasamstarf þeirra mörgu fyrirtækja sem tengjast

heilsu og heilsueflingu í Mosfellsbæ, með sameiginlega

hagsmuni og áherslur í huga.

Haldinn var vel sóttur kynningarfundur þar sem verkefnið var kynnt og í kjölfar þess fundar hefur verið

rætt við ýmsa aðila, bæði innan og utan bæjarfélagsins. Í viðtölunum voru kannaðar skoðanir aðila um

aðkomu þeirra að mögulegu samstarfi og framtíðarsýn fyrir heilsutengda starfsemi í bæjarfélaginu.

Jafnframt voru skoðuð fyrirliggjandi gögn um heilsutengda starfsemi, bæði fyrir svæðið og Ísland í heild

sinni.

Það sem einkennt hefur klasaundirbúninginn er eindreginn vilji allra hagsmunaaðila til að byggja upp

öfluga heilsutengda starfsemi í bæjarfélaginu sem einkennist af samstarfi aðila sem geta verið í beinni og

óbeinni samkeppni en greina jafnframt ávinning samstarfsins.

FRAMTÍÐARSÝN

Mosfellsbær verði þekktur sem miðstöð heilsueflingar á Íslandi með margvíslega starfsemi á sviði

lýðheilsu, heilsueflingar, endurhæfingar og heilsuferðaþjónustu.

Page 6: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

5

Heilsuklasi í Mosfellsbæ – Útgáfa 1a – 28. mars 2011

SAMSTARF ER DYGGÐ

Rannsóknir hafa sýnt að helsta vandamál smáfyrirtækja er ekki stærð þeirra heldur einangrun. Það sem

einkennir fyrirtæki og aðila í heilsutengdri þjónustu í Mosfellsbæ er smæð þeirra (utan einstakra aðila s.s.

Reykjalundar). Því er mikilvægt að tengja þessi fyrirtæki meira saman, bæði stór og smá, og ná þannig að

efla rekstur þeirra, minnka einangrun og auka möguleika þeirra til frekari vaxtar.

Til að ná fram slagkrafti í greininni hefur verið bent á leiðir eins og að móta klasa og stofna þannig

samstarfsvettvang fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga í bænum til að vinna að sameiginlegum

hagsmunamálum. Í slíku samstarfi er mikilvægt að þátttakendur móti sér sameiginlega sýn á það sem gerir

starfsmöguleika þeirra einstaka og hægt sé að nýta sem rauðan þráð í allri kynningu og samstarfi. Slíkt

leiðir að jafnaði til umbóta og eflingar reksturs þeirra fyrirtækja og stofnana sem að verkefninu koma. Ekki

síður dregur aðferðafræðin fram samstarfsmöguleika aðila sem tengjast verkefninu óbeint og getur þannig

haft jákvæð áhrif langt út fyrir hefðbundna skilgreiningu á aðilum í heilsutengdri þjónustu.

Í þessari samantekt eru dregnir fram möguleikar fyrirtækja, stofnana og einstaklinga til að vinna saman í

klasasamstarfi þar sem bæði stærri og smærri aðilar sameinast til að efla heilsutengda starfsemi í

Mosfellsbæ.

STÖÐUGREINING

Heilsu- og endurhæfingartengd starfsemi er ein af

meginstoðum atvinnulífs í Mosfellsbæ.

Í bæjarfélaginu er Reykjalundur sem er ein

öflugasta stofnunin á sviði endurhæfingar og

heilsueflingar á Íslandi.

Fjórar sundlaugar eru í bænum ( að Varmá,

Lágafelli, Reykjalundi og Skálafelli). Í

íþróttamiðstöðvunum að Varmá og Lágafelli er

haldið úti fjölbreyttri stafsemi á sviði heilsueflingar

og líkamsræktar.

Page 7: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

6

Heilsuklasi í Mosfellsbæ – Útgáfa 1a – 28. mars 2011

Ungmennafélagið Afturelding hefur á að skipa tíu mismunandi deildum og er með stærri íþróttafélögum

landsins með fjölda fagmenntaðra þjálfara. Bæjarfélagið státar jafnframt af heilsugæslu auk margvíslegrar

heilsu- og endurhæfingartengdri starfsemi .

Tölulegar staðreyndir

Í heilsu- og endurhæfingartengdri starfsemi í Mosfellsbæ voru um 450 starfsgildi árið 2010. Það er um

fjórðungur allra starfa í sveitarfélaginu og svarar til um 10-12 % af vinnufærum íbúum Mosfellsbæjar.

Alls eru skráð um 460 virk fyrirtæki með starfsemi í Mosfellsbæ. Langflest eru smáfyrirtæki, jafnvel félög

einyrkja. Stærstu fyrirtækin eru Reykjalundur og fyrirtæki í matvælaframleiðslu auk sveitarfélagsins sjálfs.

Af 460 fyrirtækjum í sveitarfélaginu eru um 70 fyrirtæki sem starfa innan þeirra geira sem heilsuklasinn

mun ná til, heilsutengdri þjónustu og ferðaþjónustu.

Útivist og náttúra í Mosfellsbæ

Stórbrotin náttúra í Mosfellsbæ

skapar umgjörð fyrir heildræna

meðferð sem nærir og umvefur

gesti.

Möguleikar til útivistar og

afþreyingar í Mosfellsbæ eru

margvíslegir þar sem eitthvað er við

allra hæfi. Nálægðin við ósnortna

náttúru og fallega staði er sérstaða

bæjarins og er það m.a. ástæða þess

að margir hafa valið að búa þar,

fjarri skarkala borgarlífsins.

Auknum áhuga á að stunda útivist og hvers kyns íþróttir hefur verið svarað með markvissri uppbyggingu

útivistarsvæða fyrir íbúa bæjarins, gesti þeirra og ferðamenn.

Page 8: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

7

Heilsuklasi í Mosfellsbæ – Útgáfa 1a – 28. mars 2011

Göngustígar liggja víðsvegar um náttúruperlur Mosfellsbæjar og hefur Skátafélagið Mosverjar, í samvinnu

við sveitarfélagið, unnið að stikun gönguleiða um útivistarsvæði í umhverfi sveitarfélagsins ásamt því að

setja upp vegpresta við vegamót og upplýsingaskilti við gönguleiðirnar. Markmiðið með lagningu stikaðra

gönguleiða er að hvetja til útivistar og auðvelda aðgang að ósnortinni náttúru útivistarsvæða

Mosfellsbæjar. Einnig hefur göngukort verið gefið út.

Ferðaþjónusta

Ferðaþjónusta í Mosfellsbæ er nokkur þótt hana megi verulega bæta. Hús Nóbelskáldsins að Gljúfrasteini

dregur að, Álafossverslunin sömuleiðis og einnig hefur Hestaleigan Laxnes dregið að ferðamenn. Til staðar

er einnig Hótel Laxnes í miðbæ Mosfellsbæjar.

Heilsuferðaþjónusta stendur þó að öllum líkindum upp úr þegar nánar er skoðað. Fjölmargir ferðamenn

koma í Lágafellslaug og Varmárlaug , t.d. eftir Esjugöngur, og eins koma fjölmargir foreldrar með börn sín

í ungbarnasund, annað hvort í laugina í Skálatúni eða að Reykjalundi. Flestir gestir koma þó líklega á

Reykjalund til endurhæfingar og meðferðar í lengri eða skemmri tíma. Íþróttasvæðin að Varmá og Lágafelli

draga einnig að fjölda gesta á alls kyns heilsu- og íþróttatengdaviðburði. Það á við þessa gesti eins og aðra

sem sækja bæjarfélagið heim að lítið sem ekkert hefur verið gert í að benda þeim á aðra möguleika í

sveitarfélaginu.

Til stendur að fyrirtækið PrimaCare reisi sérhæft sjúkrahús og hótel

í Mosfellsbæ á komandi árum.

Heilsu- og vellíðunarferðaþjónusta er skammt á veg komin, jafnt í

Mosfellsbæ sem og annars staðar á landinu. Staðir sem taka á móti

ferðamönnum eru rétt að byrja að átta sig á þeim möguleikum sem

heilsuferðaþjónusta býr yfir. Það er ljóst að æ fleiri eru farnir að

ferðast – oft um langan veg – til að bæta bæði heilsu sína og

vellíðan. Rannsóknir hafa sýnt fram á að ferðamenn sem koma

vegna heilsu og einkum vegna lækninga, eyði allt að sjöfalt meira en

hefðbundnir ferðamenn meðan á dvöl þeirra stendur. Það er því

eftir miklu að slægjast í þessari grein ferðaþjónustunnar.

Page 9: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

8

Heilsuklasi í Mosfellsbæ – Útgáfa 1a – 28. mars 2011

Veitingar í Mosfellsbæ

Í sveitarfélaginu eru um 15 matsölustaðir sem selja veitingar daglega, en segja má að veitingaframboð

þeirra sé frekar takmarkað þar sem einkum er um að ræða skyndibitafæði (sjá má lista yfir matsölustaðina

í viðauka). Því má segja að skortur sé á fjölbreyttu fæðuúrvali einkum hvað varðar heilsusamlegt fæði.

Sérhæfð veisluþjónusta er einnig til staðar í Mosfellsbæ en hún er eingöngu í boði fyrir hópa og stærri

viðburði.

Önnur þjónusta í Mosfellsbæ Margvísleg þjónusta er í boði í Mosfellsbæ sem mun án efa njóta góðs af samstafi þeirra sem standa að

heilsuklasanum. Má þar t.d. nefna nuddara, matsölustaði og kaffihús, verslanir, bensínstöðvar, hótel,

hárgreiðslustofur og margt fleira (sjá nánar í viðauka).

STEFNA OG MARKMIÐ KLASANS

500 ný störf: Meginmarkmið klasans er að tvöfalda umfang heilbrigðisstarfsemi í

Mosfellsbæ með því að taka upp og fylgja eftir stefnu sem kveður á um

að Mosfellsbær verði miðstöð heilsueflingar og endurhæfingar á Íslandi.

Klasasamstarfið spilar lykilhlutverk í þessari uppbyggingu. Stefna

bæjarfélagsins er því sú að a.m.k. 500 ný störf verði til í sveitarfélaginu í

heilbrigðisþjónustu og tengdum greinum á komandi árum og að þessi

starfsemi verði jafnframt grunnstoð undir aðra starfsemi s.s.

veitingarekstur, matvælaframleiðslu, ferðaþjónustu o.fl. í Mosfellsbæ.

Eftirfarandi er dæmi um nokkur markmið og aðgerðir tengdar þeim sem

klasinn mun vinna að á komandi misserum:

Markmið 1: Fyrirtæki í heilsutengdri starfsemi laðist til bæjarins.

Leiðir: Unnið verði að því að koma upp sameiginlegri aðstöðu fyrir þau í

anda Orkuhússins í Reykjavík. Kannað verði með húsnæði, t.d. að

Reykjalundi eða annað hentugt húsnæði, í bænum. Jafnframt verði

Page 10: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

9

Heilsuklasi í Mosfellsbæ – Útgáfa 1a – 28. mars 2011

markvisst unnið í kynningu á svæðinu gagnvart mögulegum hagsmunaaðilum í heilsutengdri þjónustu.

Markmið 2: Þróaðar verði nýjar lausnir fyrir heilbrigðisþjónustu á Íslandi.

Leiðir: Klasinn og aðildarfyrirtæki hans vinni að mótun hagkvæmari lausna sem aðilar innan klasans geti

boðið heilbrigðisyfirvöldum á sviði heilsueflingar, eftirmeðferða og endurhæfingar. Þetta verði gert í

samstarfi við aðila eins og Reykjalund.

Markmið 3: Efling heilsuferðaþjónustu í Mosfellsbæ fjölgi störfum í sveitarfélaginu og auki arðsemi

fyrirtækja sem starfa á því sviði.

Leiðir: Klasinn vinni að því að efla, þróa og samræma heilsuferðaþjónustu innan Mosfellsbæjar með því að

nýta sóknarfæri varðandi gistingu, matsölustaði og kaffihús, söfn og fleira tengt heilsuferðaþjónustu.

Markmið 4: Hollusturéttir á matsölustöðum verði

aðalsmerki Mosfellsbæjar.

Leiðir: Sérstakt átak verði gert í því að fá

matsölustaði í sveitarfélaginu til að bjóða upp á

hollusturétti í anda klasans. Boðið verði upp á

sérstök námskeið og fræðslu fyrir eigendur og

starfsfólk aðila í veitingarekstri til að fræða um

valkosti og möguleika á þessu sviði.

Markmið 5: Unnið verði að uppbyggingu sérhæfðra sjúkrameðferðastofnana í Mosfellsbæ.

Leiðir: Unnið verði þétt í samstarfi við PrimaCare til að styrkja möguleika tengda uppbyggingu sjúkrahúss

og hótels auk annarrar starfsemi sem því tengist.

Markmið 6: Gæði og fagþekking þátttökuaðila heilsuklasans verði í fremstu röð á heimsvísu.

Leiðir: Byggð verði upp þekking á heilsueflingu, lýðheilsu og forvörnum m.a. í samstafi við

Framhaldsskólann í Mosfellsbæ. Klasinn standi fyrir námskeiðum og fræðslu fyrir þátttökuaðila um gæði

og nýsköpun í samstarfi við fagaðila á mismunandi sviðum. Unnið verði að því að koma á gæðaviðmiðum

meðal þátttakenda sem hægt verði að kynna út á við.

Markmið 7: Markviss kynningarmál verði eitt helsta mál heilsuklasans.

Leiðir: Átak verði gert í að kynna heilsubæinn Mosfellsbæ sem miðstöð heilsueflingar og endurhæfingar á

Page 11: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

10

Heilsuklasi í Mosfellsbæ – Útgáfa 1a – 28. mars 2011

Íslandi og þá möguleika sem bjóðast þeim sem vilja starfa á því sviði í bæjarfélaginu. Sú kynning verði

bæði gagnvart stjórnvöldum og ekki síður til að kynna möguleikana í bænum gagnvart hugsanlegum

rekstraraðilum.

ÞRÓUN HEILSUFERÐAÞJÓNUSTU

Tímaritið Forbes sagði í grein árið

2008 að Ísland væri

heilsusamlegasta land heims og

státaði það af góðu heilbrigðiskerfi

og óspilltri náttúru. Hvort tveggja er

meðal lykilþátta í

endurhæfingarstarfi í Mosfellsbæ.

Fjölmargir þættir falla undir

vellíðunarferðaþjónustu því

samkvæmt skilgreiningu WHO

(World Health Organization) má

útfæra vellíðunarhugtakið

(wellness) á sjö vegu:

félagsleg vellíðan (e. Social wellness)

líkamleg vellíðan (e. Physical wellness)

tilfinningaleg vellíðan (e. Emotional wellness)

Starfstengd vellíðan (e. Career wellness)

vitsmunaleg vellíðan (e. Intellectual wellness)

umhverfisleg vellíðan (e. Environmental wellness)

andleg vellíðan (e. Spiritual wellness).

Við þetta má síðan bæta lækningaferðaþjónustu (medical

tourism).

Page 12: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

11

Heilsuklasi í Mosfellsbæ – Útgáfa 1a – 28. mars 2011

Nýlega voru stofnuð samtök um heilsuferðaþjónustu, www.icelandofhealth.is. Veruleg tækifæri eru talin

felast í þessari tegund ferðamennsku ekki síst í ljósi þess að hún er síður háð veðurfari og árstíðabundnum

sveiflum. Það verkefni á ekki eingöngu að taka til lækningaferðaþjónustu heldur er heilsuferðaþjónusta

skilgreind mjög vítt. Þar undir fellur t.d. baðmenning, jarðhiti, óspillt náttúra, gæði íslenskra matvæla,

útivist og svo framvegis.

Þessi samtök falla algerlega að hugmyndum um heilsuferðaþjónustu í Mosfellsbæ og verður eitt af fyrstu

verkefnum klasans að gerast þátttakandi í samtökunum.

KJARNAGILDI

Styrkur Mosfellsbæjar, sem miðstöðvar heilsueflingar

á Íslandi, felst ekki hvað síst í þeirri þekkingu og

sérstöðu sem fyrirtæki og stofnanir í bænum hafa

áunnið sér. Má þar m.a. nefna Reykjalund sem er í

sérflokki bæði á Íslandi og erlendis. Einnig má nefna

þjónustu á borð við ungbarnasundkennsluna í

Mosfellsbæ auk fjölbreyttra þjónustu stofnana eins og

sundlauganna fjögurra, einkum Lágafellslaugar sem er

með vinsælustu laugunum á höfuðborgarsvæðinu.

FÉLAGSFORM

Lagt er til að heilsuklasi Mosfellsbæjar verði einkahlutafélag. Félagið er samstarfsvettvangur

stofnfyrirtækja ásamt öðrum samstarfsfyrirtækjum og aðilum sem tengjast heilsutengdri þjónustu í

Mosfellsbæ. Í lögum félagsins verði kveðið á um félagsskipan þess. Félagið byggi á samstarfi ólíkra aðila,

bæði þeirra sem eiga beina hagsmuni í greininni og eins þeirra sem veita aðra þjónustu. Kosin verði 5

manna stjórn til að annast daglegan rekstur og ræður hún starfsmann.

STARFSEMI OG ÞRÓUN KLASANS

Stjórn klasans ber ábyrgð á starfsemi hans í umboði aðalfundar. Í upphafi hvers starfsárs er sett fram

aðgerðaáætlun umbótaverkefna samhliða rekstraráætlun klasans. Aðgerðaáætlun skal samþykkt á

Page 13: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

12

Heilsuklasi í Mosfellsbæ – Útgáfa 1a – 28. mars 2011

aðalfundi félagsins. Í henni er getið um annars vegar styttri og umfangsminni verkefni en einnig verkefni til

lengri tíma sem oft eru bæði tíma- og fjárfrekari. Lögð er áhersla á mótun umbótahópa til að framfylgja

einstökum verkefnum þar sem tryggð er þátttaka þeirra aðila sem hagsmuna hafa að gæta.

Ráðinn verður starfsmaður klasans í hlutastarf sem sér um daglegan rekstur og fylgir áherslum og stefnu

sem stjórn og aðalfundur ákveða. Eitt af meginhlutverkum starfsmanns klasans er að miðla upplýsingum

milli þátttakenda og skapa umræður og samhug um aðgerðir félagsins. Jafnframt ber honum að rækja

tengsl við ólíka áhrifa- og hagsmunaaðila klasans um einstök málefni hans. Starfsmanni og þátttökuaðilum

ber að hafa í hávegum samskipta- og siðareglur klasans. Því mun klasinn og þau verkefni sem hann kemur

að þróast í takt við þarfir hluthafa og samstarfsins á hverjum tíma. Gert er ráð fyrir að á þriðja starfsári

klasans verði tekin ákvörðun um hvort klasinn starfi áfram eða verði leystur upp.

ÞÁTTTAKENDUR Í KLASANUM

Mikilvægt er að sem flestir sem tengjast

á einn eða annan hátt heilsueflingu,

heilsuendurhæfingu og ferðaþjónustu í

Mosfellsbæ verði þátttakendur í mótun

og starfsemi klasans. Á það bæði við

stærri aðila í heilbrigðisþjónustu

svæðisins sem og þá smærri ásamt

stoðfyrirtækjum á svæðinu s.s.

sveitarfélagi, samgöngufyrirtækjum,

þjónustufyrirtækjum, verslunum og fleiri.

Einnig kunna hagsmunaaðilar utan Mosfellsbæjar að vilja vera þátttakendur í að koma klasanum á

laggirnar og styðja þannig við uppbyggingu öflugrar ferðaþjónustu á svæðinu. Dæmi um þetta eru

markaðs- og ráðgjafafyrirtæki, samgöngufyrirtæki, s.s. rútufyrirtæki, byggingaaðilar og önnur

þjónustufyriræki.

Jafnframt eru fjölmargir einstaklingar sem hafa lýst áhuga á að koma að klasanum vegna sérþekkingar

sinnar á þeim þáttum sem snertir starfsemi klasans.

Page 14: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

13

Heilsuklasi í Mosfellsbæ – Útgáfa 1a – 28. mars 2011

MARKAÐURINN OG MARKAÐSHLUTUN

Eitt af megineinkennum í starfsemi klasans er skilgreining á mörkuðum hans og hlutun markaðarins

gagnvart þeirri þjónustu sem þátttakendur klasans veita. Á þennan hátt beinir klasinn starfsemi sinni í að

þjóna tilgreindum þörfum markaðarins. Í upphafi klasans er lögð áhersla á eftirfarandi markaðsviðmið

sem notuð verða til að skilgreina einstaka markhópa.

Endurhæfing

Sérhæfðar aðgerðir

Heilsuefling og sjúkraþjálfun

Slökun og nudd

Heilsuferðaþjónusta

Ráðstefnur og fundir sem byggja á

sérþekkingu aðila klasans

Heilsutengd matvæli og veitingar

Forvarnir og fræðsla

Forgangsatriði er að laða að gesti til Mosfellsbæjar

og efla þannig stöðugleika í atvinnulífi og virðisaukandi starfsemi allt árið.

Page 15: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

14

Heilsuklasi í Mosfellsbæ – Útgáfa 1a – 28. mars 2011

FJÁRMÁL

Rekstraráætlun fyrir Heilsuvin í Mosfellsbæ

Samtals 1/2 ár

Tekjuliðir:

2011-2014 2011 2012 2013 2014

Framlög fyrirtækja og stofnana 12.000.000 3.000.000 3.000.000 3.000.000 3.000.000

Mosfellsbær*

12.000.000 3.000.000 3.000.000 3.000.000 3.000.000

Framlög aðrir

6.000.000 2.000.000 2.000.000 2.000.000

Verkefnastyrkir

6.000.000

2.000.000 2.000.000 2.000.000

Samtals tekjur:

36.000.000 6.000.000

10.000.000

10.000.000

10.000.000

Kostnaðarliðir:

Laun og launatengd gjöld 14.000.000 2.000.000 4.000.000 4.000.000 4.000.000

Húsnæðiskostnaður

1.470.000 210.000 420.000 420.000 420.000

Prentun og kynningarefni 4.900.000 1.000.000 1.300.000 1.300.000 1.300.000

Auglýsingakostnaður

9.000.000 1.500.000 2.500.000 2.500.000 2.500.000

Sýningaþátttaka

1.200.000

400.000 400.000 400.000

Ferðakostnaður

900.000 200.000 300.000 200.000 200.000

Ráðstefnur og fundir

950.000 50.000 300.000 300.000 300.000 Aðkeyptur sérfræðikostnaður 900.000 300.000 200.000 200.000 200.000

Skrifstofukostnaður

1.700.000 500.000 400.000 400.000 400.000

Annar kostnaður

700.000 200.000 100.000 200.000 200.000

Kostnaður samtals

35.720.000 5.960.000 9.920.000 9.920.000 9.920.000

Hagnaður samtals

280.000 40.000 80.000 80.000 80.000

*Framlag Mosfellsbæjar árin 2012-2014 hafa ekki verið samþykkt

Page 16: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

15

Heilsuklasi í Mosfellsbæ – Útgáfa 1a – 28. mars 2011

Lagt er upp með að skipting stofnframlaga og aðildargjalda verði eftirfarandi:

Fyrirtæki í flokki A (100+ starfsmenn) greiði kr 500.000,-

Fyrirtæki í flokki B (20-99 starfsmenn) greiði kr 250.000,-

Fyrirtæki í flokki C (5-19 starfsmenn) greiði kr 100.000,-

Fyrirtæki í flokki D (1-4 starfsmenn) greiði kr 50.000,-

Einstaklingar greiði kr. 10.000,-

Gert er ráð fyrir að óbeinir hagsmunaaðilar í bæjarfélaginu komi inn undir liðnum „Framlög aðrir“, en þetta

geta t.d. verið byggingaverktakar og skipuleggjendur íbúðasvæða auk verslana og slíkra aðila.

FRAMKVÆMDAÁÆTLUN

Áætlanir klasans eru annars vegar

rekstraráætlanir sem taka á rekstri og

starfsemi klasans og hins vegar áætlanir

um aðgerðir sem skiptast í verk-, tíma-

og kostnaðaráætlanir ásamt áætlunum

um fjármögnun einstakra aðgerða.

Aðalfundur klasans samþykkir áætlanir

fyrir komandi rekstrarár sem stjórn og

starfsmaður fylgja eftir milli aðalfunda.

Mikilvægt er að stjórn og starfsmaður

skapi samhug um framkvæmd einstakra

verkefna klasans m.a. með öflugri eftirfylgni verkefna, upplýsingagjöf og samstarfi. Gæta þarf að því að

skipting ábyrgðar þeirra aðila sem koma að framkvæmd einstakra verkefna sé skýr ásamt fjárhagslegum

skuldbindingum þeirra.

Þau meginatriði sem þurfa að koma fram í aðgerðaáætlun eru:

Auðkenni (slagorð)

Forgangsatriði er mótun auðkennis (slagorðs) fyrir svæðið í heild sinni. Klasinn verður að leggja sitt lóð á

vogarskálarnar til að slagorðið verði að veruleika.

Page 17: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

16

Heilsuklasi í Mosfellsbæ – Útgáfa 1a – 28. mars 2011

Vöruþróun

Unnið verði með samstarfsaðilum klasans í að safna saman þeim vöru- og þjónustupökkum sem í boði eru

á svæðinu og setja saman nýja til markaðssetningar. Jafnframt verði gerð áætlun um vöruþróun til næstu

þriggja ára.

Dreifing

Móta verður og tryggja virk samskipti við þá aðila sem hafa með kynningu á heilsutengdri þjónustu að gera

hérlendis. Klasinn verði hluti af samstarfi aðila í heilsuferðaþjónustu á Íslandi – Island of Health. Aðilar

klasans verði í fararbroddi í nýtingu netsins til markaðssetningar.

Gæða-, þjónustu- og umhverfismál

Gæðamál eru mikilvægur hluti af heilsutengdri þjónustu. Innleiða þarf gæða- og þjónustuviðmið sem

samstarfsaðilarnir geta tileinkað sér. Þetta er framkvæmt með fræðslu og námskeiðahaldi. Sömuleiðis

þarf klasinn að móta sér viðmið til að vinna eftir á sviði umhverfismála og sjálfbærni.

Kynning

Kynning á þjónustu og „pökkum“ þátttökufyrirtækja klasans á svæðinu þarf að vera fjölbreytt og vel fram

sett. Sérstök áhersla verður lögð á framsetningu kynningarefnis á vefsíðu klasans og góð tengsl við

fjölmiðla og aðra hérlendis og erlendis.

Fjármál

Kostnaður við rekstur klasans veltur að sjálfsögðu á því hversu mikið þátttökuaðilar vilja sjá framkvæmt.

Mikilvægt er að klasinn stofni ekki til skulda heldur verði ætíð tryggt jafnvægi í tekjum og kostnaði. Í

ýmsum tilfellum hafa klasar sem þessir getað sótt um styrki frá opinberum aðilum en slíkir styrkir eru að

öllu jöfnu háðir því að þátttökufyrirtækin leggi til sambærilegar fjárhæðir á móti styrkframlagi. Reiknað er

með því að klasinn og samstarfsaðilar fari í verkefni sem hægt verði að sækja um styrki til.

Gert er ráð fyrir stofnkostnaði upp á kr. 2.500.000 og árlegum rekstrarkostnaði upp á 10 m.kr. sem

samanstendur annars vegar af kostnaði við starfsmann og aðstöðu og hins vegar vegna gerðar kynningar-

og markaðsefnis ásamt vöruþróun og annars reksturs.

Page 18: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

17

Heilsuklasi í Mosfellsbæ – Útgáfa 1a – 28. mars 2011

VIÐAUKAR

Listi yfir áhugasama þátttakendur á kynningarfundi um heilsuklasann:

Björgvin Filippusson Haraldur Haraldsson Arnoddur Erlendsson Vilhjálmur J. Vilhjálmsson Vigdís Steinþórsdóttir Birgir Gunnarsson Elías Níelsson Halla Karen Kristjánsdóttir María Ögn Guðmundsdóttir Hlín Rafnsdóttir Anna María Jónsdóttir Áslaug Ásgeirsdóttir Pétur Hannesson Runólfur Smári Einar Páll Kjærnested Guðný Helga Kristjánsdóttir Einar Einarsson Kolbrún G. Þorsteinsdóttir Hafstein Pálsson Margrét Gróa Björnsdóttir Pálmi Steingrímsson Sigurður Guðmundsson Björn Þráinn Gerður Pálsdóttir Hanna Bjartmars Ólafur Ingi Óskarsson Steinunn A Ólafsdóttir Sigrún Jensdóttir

Örn Jónasson Snorri Hreggviðsson Magnús Sigsteinsson Gunnlaugur B. Ólafsson Ólöf Kristín Sívertsen Erla Ólafsdóttir Erna Ó Ólafsdóttir Jón Pálsson Sævar Kristinsson Gunnar Ármannsson Elfa P. Ingólfsdóttir Haraldur Sverrisson Sigríður Dögg Auðunsdóttir Bryndís Haralds Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir

Page 19: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

18

Heilsuklasi í Mosfellsbæ – Útgáfa 1a – 28. mars 2011

Ýmsir hagsmunaaðilar heilsuklasans

Dæmi um hagsmunaaðila sem gætu komið að verkefninu og orðið þátttakendur í klasanum:

Mosfellsbær

Reykjalundur og Skálatún

PrimaCare

Fyrirtæki á svæðinu:

Matvælafyrirtæki s.s. á sviði alifuglaræktunar, grænmetisræktunar, bakarí og fl.

Ferðaþjónustuaðilar, veitinga- og gististaðir,

Verslanir og þjónustuaðilar o.fl.

Söfn, menninga- og listastofnanir

Heilsufyrirtæki, fjárfestar og sjálfstætt starfandi fagaðilar í heilbrigðisstarfsemi og tengdum rekstri

Landeigendur á svæðinu (Helgafellsbyggingar, Leirvogstunga o.fl.)

Framkvæmdaraðilar, hönnuðir og iðnaðarmenn og tengdir aðilar

Heilbrigðisráðuneytið

Háskólar

Íþrótta- og félagasamtök á svæðinu (Afturelding, Hörður, Keilir, o.fl.)

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ

Tryggingafyrirtæki

Líkamsræktarstöðvar á svæðinu

Íþróttamiðstöðvarnar í sveitarfélaginu

Ráðgjafa- og þekkingarfyrirtæki (stór og smá) á sviði heilsueflingar og lýðheilsu

Page 20: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

19

Heilsuklasi í Mosfellsbæ – Útgáfa 1a – 28. mars 2011

Staðir sem selja veitingar í Mosfellsbæ

1. Áslákur 2. Draumakaffi 3. Pizzabræður – pizza 4. Grillnesti 5. Hrói höttur - pizza 6. N1 7. Kaffi Álafoss 8. KFC 9. Lágafellslaug 10. Mosfellsbakarí 11. Olís 12. Snæland 13. Subway 14. Thai Express 15. Reykjalundur

Auk þess selja verslanirnar Bónus og Krónan matvörur og Veislugarðar bjóða upp á veitinga- og

veisluþjónustu í Hlégarði.

Page 21: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

20

Heilsuklasi í Mosfellsbæ – Útgáfa 1a – 28. mars 2011

Ýmis þjónusta í boði í Mosfellsbæ Snyrtistofur, nuddstofur, fótaaðgerðastofur:

GK snyrtistofa á Torgi í Kjarna (einni hæð fyrir ofan Bónus) Líkami og sál – Nudd- og snyrtistofa og fótaaðgerðarstofa, Þverholti 11 (566 6307) Fótaaðgerðarstofa Mosfellsbæjar, Þverholti 3, (s. 566 6612 / 893 8711) Elvira – Háholti 23 s. 566 8500

Lágafellslaug – nokkrir nuddarar og heilarar þar (lagafellslaug.is ) Ingrid Karis - nuddari við hliðina á GK snyrtistofu á Torgi í Kjarna (s. 696 1080) Líf og líkami – nudd og heilun, Háholti 14 (www.lifoglikami.is) Hárgreiðslustofur:

Aristó – Háholti 14, s. 5668989 Sprey – Í Krónuhúsinu s. 517 6677 Pílus – Við hliðina á GK í Kjarna s 566 6090 Texture - Háholti 23 s. 566 8500 Sólbaðsstofur:

Sólbaðsstofa Mosfellsbæjar Þverholti 5 s. 566 8110 Verslanir: Bónus Krónan Handverkshús – Háholti 14 Lost (fjölbreytt úrval textílvara) BasicPlus (tískufatnaður) Álafossbúðin, Álafosskvos Vinnustofur:

Hildur Margrétardóttir, Álafossvegi 31 (opnar skv.samkomulagi) Steinunn Marteinsdóttir, Hulduhólum Inga Elín, Svöluhöfða 12

Page 22: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

21

Heilsuklasi í Mosfellsbæ – Útgáfa 1a – 28. mars 2011

Framboð gistirýmis 2000-2008

Hótel og gistiheimili: Framboð gistirýmis (rúma) á tímabilinu september-desember 2000-2008

2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008

Höfuðborgarsvæði 3.332 3.532 4.122 4.499 4.749 5.133 5.644 6.659 6.751

Suðurnes 277 289 299 376 376 419 379 496 564

Vesturland 711 842 853 885 904 883 1.074 1.041 973

Vestfirðir 314 375 363 434 450 439 382 634 501

Norðurland vestra 246 293 229 348 306 347 389 461 386

Norðurland eystra 1.097 1.303 1.043 1.227 1.308 1.302 1.595 1.646 1.685

Austurland 875 940 748 853 1.043 964 1.144 1.315 1.314

Suðurland 1.598 1.462 1.939 2.125 2.283 2.501 2.505 2.842 2.742

Samtals: 8.450 9.036 9.596 10.747 11.419 11.988 13.112 15.094 14.916

Heimild: Hagstofa Íslands; www.hagstofa.is

Page 23: Heilsuklasi viðskiptaáætlun
Page 24: Heilsuklasi viðskiptaáætlun

22

Heilsuklasi í Mosfellsbæ – Útgáfa 1a – 28. mars 2011