Eystrahorn 38. tbl. 2012

12
Fimmtudagur 1. nóvember 2012 www.eystrahorn.is Eystrahorn 37. tbl. 30. árgangur www.eystrahorn.is Blað sem eflir bæjarbrag og berst í sérhvert hús Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar var tekin til fyrri umræðu í bæjarráði þann 30. október og vísað til bæjarstjórnar sem kemur saman þann 1. nóvember. Opnir fundir um fjárhagsáætlun verða þann 15. nóvember kl. 12.00 á Hótel Höfn og þann 16. nóvember kl 12.00 á Hótel Smyrlabjörgum. Í inngangi með greinargerð með fjárhagsáætluninni kemur fram að árin 2013 verða tökin á rekstri og fjárfestingum ekki losuð þó að tillögur liggi fyrir að bæta við í ýmis verkefni í velferðarmálum sem og þeim sem tengjast eflingu samfélagsins almennt. Áfram verður ágætur afgangur af rekstri, handbært fé nægjanlegt og skuldastaðan eins og best þekkist meðal íslenskra sveitarfélaga. Helstu niðurstöður áætlunarinnar árin 2013- 2016 skv. tillögu sem liggur fyrir eru eftirfarandi. Tölurnar eru fyrir A og B hluta: Fjárhagsáætlun Hornafjarðar 2013 2013 2014 2015 2016 Rekstrarniðurstaða (m.kr.) 196.468 226.294 227.907 226.837 Skuldir í hlutfalli af tekjum 72,1% 68,5% 64,4% 62,7% Framkvæmdir (m.kr.) 400.000 250.000 250.000 250.000 Framlegð (EBIDTAR) % 14,9% 16,89% 17,32% 17,61% Handbært fé í árslok (m.kr.) 145.725 131.490 117.489 153.348 Afborganir langtímalána (m.kr.) (92.765) (113.939) (118.629) (121.681) Ný lántaka A-B hluta (m.kr.) 200.000 50.000 Meðal helstu verkefna árið 2013 eru að lokið verður við endurbætur á Heppuskóla. Þá verður unnið að eflingu við starf Nýheima í samstarfi við ríkið með áherslu á orku og list- og verkgreinar. Áfram verður unnið að eflingu safnamála í samstarfi við hina ýmsu aðila. Málaflokkur fatlaðra verður efldur í sveitarfélaginu. Einnig mun sveitarfélagið styrkja velferðarþjónustuna enn frekar. Unnið verður að úrlausn á netsamband í dreifbýli . Lokið verður við gatnagerð á Leirusvæðinu og hafið ræktunarstarf á uppdælingarsvæðinu. Þá er stefnt að tveggja tunnu kerfi í sorpmálum sveitarfélagsins. Nánari upplýsingar um fjárhagsáætlun eru á heimasíðu bæjarins www.hornafjordur.is Matthildur Ásmundardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands. Hún mun hefja störf 1. nóvember en þá lætur Guðrún Júlía af störfum. Um leið og Matthildur er boðin velkomin til starfa þá er Guðrúnu Júlíu færðar bestu þakkir fyrir farsælt starf sem framkvæmdastjóri HSSA. Matthildur er með MSc í íþrótta- og heilsufræði frá Háskóla íslands og BSc í sjúkraþjálfun frá sama skóla. Þá hefur Matthildur setið ýmiskonar námskeið sem tengist klínisku starfi sjúkraþjálfara. Matthildur hefur starfað sem sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari og á Hjúkrunar- heimili HSSA frá árinu 2004. Einnig hefur Matthildur haldið ýmis námskeið og hópþjálfun á sínu sviði. Matthildur hefur einnig starfað félagsmálum hér á Höfn, bæði í nefndarstörfum á vegum sveitarfélagsins og verið formaður USÚ og í varastjórn UMFÍ, þá er hún formaður Landsmótsnefndar vegna Unglingalandsmóts hér á Höfn 2013. BB Matthildur ráðin framkvæmdastjóri HSSA

description

Eystrahorn 38. tbl. 2012

Transcript of Eystrahorn 38. tbl. 2012

Page 1: Eystrahorn 38. tbl. 2012

Fimmtudagur 1. nóvember 2012 www.eystrahorn.is

Eystrahorn37. tbl. 30. árgangur www.eystrahorn.is

Blað sem eflir bæjarbrag og berst í sérhvert hús

Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar var tekin til fyrri umræðu í bæjarráði þann 30. október og vísað til bæjarstjórnar sem kemur saman þann 1. nóvember. Opnir fundir um fjárhagsáætlun verða þann 15. nóvember kl. 12.00 á Hótel Höfn og þann 16. nóvember kl 12.00 á Hótel Smyrlabjörgum. Í inngangi með greinargerð með fjárhagsáætluninni kemur fram að árin 2013 verða tökin á rekstri og fjárfestingum ekki losuð þó að tillögur liggi fyrir að bæta við í

ýmis verkefni í velferðarmálum sem og þeim sem tengjast eflingu samfélagsins almennt. Áfram verður ágætur afgangur af rekstri, handbært fé nægjanlegt og skuldastaðan eins og best þekkist meðal íslenskra sveitarfélaga. Helstu niðurstöður áætlunarinnar árin 2013-2016 skv. tillögu sem liggur fyrir eru eftirfarandi. Tölurnar eru fyrir A og B hluta:

Fjárhagsáætlun Hornafjarðar 2013

2013 2014 2015 2016

Rekstrarniðurstaða (m.kr.) 196.468 226.294 227.907 226.837

Skuldir í hlutfalli af tekjum 72,1% 68,5% 64,4% 62,7%

Framkvæmdir (m.kr.) 400.000 250.000 250.000 250.000

Framlegð (EBIDTAR) % 14,9% 16,89% 17,32% 17,61%

Handbært fé í árslok (m.kr.) 145.725 131.490 117.489 153.348

Afborganir langtímalána (m.kr.) (92.765) (113.939) (118.629) (121.681)

Ný lántaka A-B hluta (m.kr.) 200.000 50.000

Meðal helstu verkefna árið 2013 eru að lokið verður við endurbætur á Heppuskóla. Þá verður unnið að eflingu við starf Nýheima í samstarfi við ríkið með áherslu á orku og list- og verkgreinar. Áfram verður unnið að eflingu safnamála í samstarfi við hina ýmsu aðila. Málaflokkur fatlaðra verður efldur í sveitarfélaginu. Einnig mun sveitarfélagið styrkja velferðarþjónustuna enn frekar. Unnið verður

að úrlausn á netsamband í dreifbýli . Lokið verður við gatnagerð á Leirusvæðinu og hafið ræktunarstarf á uppdælingarsvæðinu. Þá er stefnt að tveggja tunnu kerfi í sorpmálum sveitarfélagsins. Nánari upplýsingar um fjárhagsáætlun eru á heimasíðu bæjarins www.hornafjordur.is

Matthildur Ásmundardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands. Hún mun hefja störf 1. nóvember en þá lætur Guðrún Júlía af störfum.Um leið og Matthildur er boðin velkomin til starfa þá er Guðrúnu Júlíu færðar bestu þakkir fyrir farsælt starf sem framkvæmdastjóri HSSA. Matthildur er með MSc í íþrótta- og heilsufræði frá Háskóla íslands og BSc í sjúkraþjálfun frá sama skóla. Þá hefur Matthildur setið ýmiskonar námskeið sem

tengist klínisku starfi sjúkraþjálfara. Matthildur hefur starfað sem sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari og á Hjúkrunar-heimili HSSA frá árinu 2004. Einnig hefur Matthildur haldið ýmis námskeið og hópþjálfun á sínu sviði. Matthildur hefur einnig starfað að félagsmálum hér á Höfn, bæði í nefndarstörfum á vegum sveitarfélagsins og verið formaður USÚ og í varastjórn UMFÍ, þá er hún formaður Landsmótsnefndar vegna Unglingalandsmóts hér á Höfn 2013.

BB

Matthildur ráðin framkvæmdastjóri HSSA

Page 2: Eystrahorn 38. tbl. 2012

2 EystrahornFimmtudagur 1. nóvember 2012

Vildaráskriftina má greiða í LandsbankanumHornafjarðarMANNI Rnr. 0172 - 26 - 000811 Kt. 240249-2949

Eystrahorn

Vesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

HafnarkirkjaFimmtudaginn 1. nóvember

Allra heilagra messa Guðsþjónusta kl. 20:00

Látinna minnst í tali og tónum

Prestarnir

Vaktsími presta: 894-8881

bjarnanesprestakall.is

Bændahátíð á SmyrlabjörgumLaugardaginn 3. nóvember verður hin árlega

uppskeruhátíð bænda haldin á SmyrlabjörgumVeislustjóri Guðni Ágústsson

Grétar Örvars og Bjarni Ara spila fyrir dansiBoðið verður upp á hlaðborð með réttum úr ríki Vatnajökuls

Húsið opnar klukkan 19:00 með fordrykk í boði Húsasmiðjunnar

Miðaverð kr. 6.500,- á mann

Gisting kr. 3.500,- á mann Pantanir í síma 478-1074

Allir velkomnir

Rauði krossinn á Hornafirði, Lionsklúbbur Hornafjarðar og Lionsklúbburinn Kolgríma hafa stofnað samfélagssjóð sem er ætlað að styrkja einstaklinga í heimabyggð. Einnig er sjóðnum heimilt að styrkja félagasamtök eða verkefni sem miða að því að stykja samfélagið hér í sveitarfélaginu. Í reglum sjóðsins segir orðrétt: "Tilgangur sjóðsins er fyrst og fremst að bregðast við atvikum sem kalla á fjárútlát þeirra aðila sem ekki hafa burði til að standa undir þeim tímabundið" Komin er tenging inni á heimasíðu Hornafjarðar á netinu http://www.rikivatnajokuls.is/samfelagssjodur þar sem verður hægt að sjá nánar um reglur sjóðsins og einnig hægt að ná í umsóknareyðublað. Útfyllta umsókn er svo hægt að senda í tölvupósti beint á netfangið [email protected] eða í hefðbundnum bréfpósti á Bæjarskrifstofur Hornafjarðar. Á Bæjarskrifstofunum er líka hægt að ná sér í umsóknareyðublað og reglur sjóðsins.

Með samfélagskveðjum, Lionsklúbbur Hornafjarðar, Lionsklúbburinn Kolgríma og Rauði krossinn á Hornafirði

Samfélagssjóður stofnaður

Heimamarkaður Miðskeri LOKAÐ laugardaginn 3. nóvember.

Opið alla laugardaga til jóla eftir það.

Pálína og Sævar Kristinn

ósinn ehf.sem á og rekur Hótel Höfn á Hornafirði. Hótelið er þriggja stjörnu og í rekstri allt árið, með 68 velbúnum herbergjum, í 3 byggingum, með veitingasal, fundaraðstöðu, bar og á A la carde veitingastað sem hefur verið í farabroddi með hráefni úr héraði og humarinn sem aðalsmerki. Hótelið, er eitt af aðal kennileitum Hafnar, var opnað 1. október 1966 og hefur verið rekið að núverandi eigendum, frá árinu 2001. Hér er er einstakt tækifæri til að eignast rótgróið og vel rekið hótel með öfluga viðskiptavild.

Hafnarbraut 15 • 780 Höfn • Sími 580 7915 • Fax 580 7911Kaupvangur 2 • 700 Egilsstaðir • Sími 580 7905 • Fax 580 7901Vallholtsvegi 3 • 640 Húsavík • Sími 580 7925 • Fax 580 7821www.inni.is

Hilmar Gunnlaugsson, hrl. og lögg. fasteignasali, Egilsstöðum

Hjördís Hilmarsdóttir, lögg. leigumiðlari, Egilsstöðum

Sigurður Magnússon, lögg. fasteignasali, Egilsstöðum

Pétur Eggertsson, lögg. fasteignasali, Húsavík

Snorri Snorrason, lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari

Hilmar Gunnlaugsson,hrl. og lögg.fasteignasalis. 580 7902

Hjördís Hilmarsdóttir,lögg.

leigumiðlaris. 580 7908

Sigurður Magnússon,lögg.

fasteignasalis. 580 7907

SigríðurKristinsdóttir,

lögmaður

Snorri Snorrason,lögg.

fasteignasalis. 580 7916

FÉLAG FASTEIGNASALA

NÝTT Á SKRÁ

fasteignasalan flytur

Fasteignasalan INNI flytur að Litlubrú 1 í næstu viku.

Nýir rekstraraðilar eru Snorri og Heiða Dís

á Jaspis.

Verið velkomin í Miðbæinn!

AðAlfundurAðalfundur Akstursíþróttafélags Austur-Skaftafellssýslu verður haldinn á Víkinni mánudaginn 5. nóvember klukkan 19:30.

Venjuleg aðalfundarstörf

Boðið uppá kaffi og með því.

Stjórnin

Page 3: Eystrahorn 38. tbl. 2012

3Eystrahorn Fimmtudagur 1. nóvember 2012

WinterWonderland er átak Markaðsstofu Suðurlands í að kynna vetrarferðamennsku á Suðurlandi. Í tengslum við verkefnið er unnið að gerð sérstakrar heimasíðu á slóðinni www.winterwonderland.is. Vefurinn sjálfur verður miðpunktur átaksins, en kynningin á að færa anga sína yfir á samfélagsmiðlana Facebook, Twitter og Instagram. Vefurinn verður að miklu leyti keyrður á kortalausnum Google (sem allir hafa aðgang að) og ætti því enginn að villast á ferðalögum sínum um Suðurland. Hinum nýja Suðurstrandavegi er gert sérstaklega hátt undir höfði og lögð rík áhersla á að kynna ferðamönnum þann möguleika að komast beint inn á Suðurland frá Keflavíkurflugvelli. Í sameiningu munum við svo halda vefnum lifandi með bloggfærslum og skrifum, kynningum og tilboðum ferðaþjónustuaðila. Eins verður ljósmyndasamkeppni með einföldum Instagram leik. Þú smellir af mynd með Instagram, „taggar“ hana svo #wwsouth og lætur þér líka við okkur á Fésbókinni. Markmiðið er skýrt og það er að kynna Suðurland sem spennandi áfangastað fyrir ferðamenn að vetri til og kjörinn vettvang fyrir vetrarferðamennsku. Ferðaþjónustuaðilar, sem eru aðilar að MSS, eru hvattir til að senda okkur kynningar um starfsemina í vetur, s.s. opnunartíma, afþreyingu, tilboðspakka, áhugaverða viðburði á ykkar svæðum svo eitthvað sé nefnt.

WinterWonderland

Norræni skjaladagurinn er haldinn hátíðlegur hjá héraðsskjala-söfnunum um allt land laugardaginn 10. nóvember og er þemað í ár „Íþróttir og æskulýðsstarf.“ Héraðsskjalasafnið á Hornafirði ætlar að setja upp sýningu í Bókasafninu af þessu tilefni og verður hún höfð uppi a.m.k. út nóvembermánuð. Nokkuð mikið er til í safninu af skjölum og myndum sem tilheyrir íþróttum og æskulýðsstarfi, jafnt gömlum sem nýjum munum. Ef einhver kynni að eiga eitthvað slíkt í sínum fórum væri vel þegið að fá að líta á það, fá að nota það á sýningu eða til varðveislu í skjalasafnið.

Hérðasskjalavörður

Skjaladagurinn

Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir útboð á nýrri urðunarrein og hreinsivirki á urðunarsvæði í Lóni.

Óskað er eftir tilboðum í verkið „Urðunarsvæði-Ný urðunarrein og hreinsivirki“ eins og því er lýst í útboðsgögnum.

Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda.Innifalið í tilboði skal vera allt það sem til þarf að ljúka verkinu eins og það er skilgreint í útboðsgögnum.

Sveitarfélagið HornafjörðurÚtboð á nýrri urðunarrein og hreinsivirki.

Nánari upplýsingar veitir Björgvin Ó. Sigurjónsson, byggingatæknifræðingur [email protected] Sími 663 9023.

Helstu stærðir eru:

Útboðsgögn má nálgast á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Hafnarbraut 27

hægt að sækja gögnin á heimasíðu sveitarfélagsins hornafjordur.is án endurgjalds.

Tilboðum skal skila á skrifstofu sveitarfélagsins eigi síðar en mánudaginn

Gröftur fyrir urðunarrein: Gröftur og rippun urðunarreinar: Gröftur fyrir afrennslisskurði: Gröftur og rippun fyrir afrennslisskurði Gröftur fyrir síubeði: Hriplag í botn urðunarreinar:

925092503200 500

63 m

Bæjarstjórn Sveitafélagsins Hornafjarðar hefur ákveðið að fram fari endurskoðun á gildandi aðalskipulagi sveitafélagsins og samþykkti á fundi sínum þ. 4. okt. s.l. verkefnislýsingu sem hér með er auglýst til kynningar.

Kynning lýsingarinnar fer fram með þeim hætti að hún er birt á heimasíðu Hornafjarðar www.hornafjordur.is og liggur einnig frammi í Ráðhúsi sveitafélagsins Hafnarbraut 27, fyrir þá sem kjósa að nálgast lýsinguna með þeim hætti.

koma athugasemdum og ábendingum á framfæri er

stílaðar á Sveitafélagið Hornafjörður Hafnarbraut

Auglýsing um endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Lýsing verkefnis og matslýsing.

Höfn 26. október 2012F.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar,

Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson.

Page 4: Eystrahorn 38. tbl. 2012

4 EystrahornFimmtudagur 1. nóvember 2012

Sarfsmaður óskast að Sambýlinu Hólabrekku, Hornafirði

Á Sambýlinu er unnið stuðnings- og meðferðarstarf, sem viðkomandi starfsmaður þarf að tileinka sér. Til greina kemur að ráða starfsmann í afmörkuð verkefni, s.s. heimilishald, eða við atvinnu og hæfingu.

Unnið er eftir vaktafyrirkomulagi en einnig er mögleiki á föstum vöktum eða vinnutíma. Öll reynsla og menntun við áðurnefnd störf ákjósanleg en ekki skilyrði.

Laun eru greidd skv. Kjarasamningi Afls og Hólabrekku.

Nánari upplýsingar veitir Anna í síma 860-3972, 478-1022 eða á netfang [email protected]

Kaffi Hornið

Jólahlaðborð1., 8. og 15. desember frá kl 19:30

Borðapantanir í síma 478-2600 Verð kr. 6.700,-

Gerum tilboð fyrir hópaVerið velkomin

Starfsfólk Kaffi Hornsins

Forréttir:Ýmsar tegundir af pate•Sildarsalöt•Reyktur og grafinn lax•Reykt og grafin gæs•Andaconfit•Andalifrarkæfa•Grafið lamb•

Aðalréttir:Hangikjöt•Bayonneskinka•Hunangsskinka•Purusteik•Lambalæri•Hreindýrabollur•Andabringur•Gæsabringur•Hreindýravöðvi•Lambaskanknar•

Meðlæti:Tilheyrandi sósur•Heimagerð lauksulta•Heimagert rauðkál•Döðlusalat•Waldorfsalat•Rúgbrauð•Laufabrauð•

Eftirréttir:Ris ala mande•Súkkulaðifromage•Konfekt•Skyrkaka•Marengstoppar•

Módel óSkaStMódel vantar fyrir módelteikningu í sjónlist 103 í FAS, í lok nóvember.

Einu skilyrðin eru að viðkomandi sé eldri en 18 ára.

Fólk af öllu stærðum og gerðum hvatt til að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir Hanna Dís á netfanginu [email protected].

Klassískt jólahlaðborð í Pakkhúsinu

laugardagana 24. nóvember og 1. desemberBoðið verður uppá úrval af klassískum jólaréttum

í bland við spennandi forrétti og eftirrétti.

Eftir borðhald verður opið í Pakkhúskjallaranum frameftir nóttu.

Verð kr. 6.500,-Fyrirspurnir og pantanir

í síma 866-7540

HLjóMSVEitin VALdiMAr heldur tónleika í Pakkhúsinu föstudaginn 9. nóvember

í tilefni af sinni annarri breiðskífu.

Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og er miðaverð kr 2.000,- 18 ára aldurstakmark.

Rauðakrossbúðinverður opin alla laugardaga í nóvember

kl. 12:00 – 15:00

Komdu á ball á Hótel Höfn á laugardagskvöldið!

Page 5: Eystrahorn 38. tbl. 2012

5Eystrahorn Fimmtudagur 1. nóvember 2012

Jólakort MS-félagsins í ár skartar listaverki eftir Eddu Heiðrúnu Backman og er málað með pensli í munni. Verkið ber nafnið „Þrenning“. Sala jólakortanna er mikilvæg tekjulind fyrir félagið og kosta 8 kort saman í pakka kr. 1.000,- Kortin eru nú til sölu hjá Valgeiri Hjartarsyni Garðsbrún 2, sími 848-4083. Í byrjun nóvember verður gengið í hús og kortin boðin til sölu. MS-félagið vonar að fólk sjái sér fært að styrkja gott málefni um leið og þú sendir fallega jólakveðju.

Jólakort MS félagsins

Fundarboð186. fundur bæjarstjórnar Hornafjarðar verður haldinn í ráðhúsi, 1. nóvember 2012 og hefst kl. 16:00.

Dagskrá:Fundargerð bæjarráðs Hornafjarðar - 6051. Fundargerð bæjarráðs Hornafjarðar - 6062. Fundargerð bæjarráðs Hornafjarðar - 6073. Fundargerð bæjarráðs Hornafjarðar - 6084. Fundargerð bæjarstjórnar Hornafjarðar - 1855. Viðauki við fjárhagsáætlun 20126. Álagningareglur 20137. Fjárhagsáætlun 2013 - fyrsta umræða8. Kosningar í nefndir9. Fyrirspurnir - bæjarstjórn10.

30.10.2012 Hjalti Þór Vignisson

Edda Heiðrún BackmanByr undir báðum

olía á striga

málað með pensil í munni

56 x 40 cm

Hjá okkur færð þú silfurútgáfu af bleiku slaufunni hannaða hjá Sign í

Hafnarfirði. Allur ágóði af sölu hennar rennur til Krabbameinsfélags Íslands

Verslunin er opin virka daga kl. 13:00 - 18:00 Höfum opnað aftur á laugardögum

frá kl. 13:00 - 15:00

Sími 478-2535 / 898-3664

Úrval af rúmum og dýnum í öllum gerðum og stærðum

Húsgagnaval

Nú ætla nokkrar konur hér á Höfn að opna nytjamarkað þar sem notaðir hlutir verða seldir á lágu verði. Allur ágóði mun renna til góðgerðarmála. Skora konurnar á fólk að kíkja í geymslur og athuga hvort þar leynist ekki eitthvað gamalt nothæft dót s.s. leikföng, glingur, glervörur eða bara hvað sem er nema fatnað og gefa til styrktar góðum málefnum. Hægt er að koma með muni á opnunartíma.Markaðurinn verður þar sem áður var Verslun Steingríms.Opið verður á fimmtudögum kl. 16:30 – 18:30.

Hirðingjarnir opna nytjamarkað

Þær voru í óða önn að stilla upp vörum í Steinabúð þegar blaðamann bar að garði. F.v. Ásta Á. Halldórsdóttir, Elísabet Einarsdóttir og Halla Sigurðardóttir.

Tilkynning til skotveiðimannaRjúpnaveiði er bönnuð í landi Stafafells og Brekku án samþykkis landeigenda.

Að gefnu tilefni skal bent á að Kjarrdalsheiði er þar meðtalin.

Upplýsingar og leyfi í síma 849-3589.Landeigendur

Page 6: Eystrahorn 38. tbl. 2012

mar

khon

nun.

is

Tilboðin gilda 1. - 4. nóvemberTilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

Kræsingar & kostakjör

NETTÓ ER ÓDÝR

OG SKEMMTILEG VERSLUN

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

2.994ÁÐUR 3.888 KR/KG

LAMBAPRIMEFERSKT

LAMBAHRYGGURFYLLTUR

1.398

2.484

KR/KG

ÁÐUR 3.549 KR/KG

HANGIFRAMPARTUR ÚRB

30% AFSLÁTTUR

2.498KR/KG

FRYST

IVARA

LAMBAHRYGGURLANGSKORINN MEÐ MJÖÐM

NAUTAINNRALÆRIFERSKT

2.289ÁÐUR 2.898 KR/KG

Hryggurinn er skorin lengra niður á mjöðmina og þannig næst meira kjöt af lundunum með hryggnum!

FRYSTIVARA

498KR/STK

BRAGÐGÓÐIR OG FLJÓTLEGIR

RÉTTIR SEM KOMA SKEMMTILEGA

Á ÓVART!

Page 7: Eystrahorn 38. tbl. 2012

mar

khon

nun.

is

Tilboðin gilda 1. - 4. nóvemberTilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

Kræsingar & kostakjör

NETTÓ ER ÓDÝR

OG SKEMMTILEG VERSLUN

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

2.994ÁÐUR 3.888 KR/KG

LAMBAPRIMEFERSKT

LAMBAHRYGGURFYLLTUR

1.398

2.484

KR/KG

ÁÐUR 3.549 KR/KG

HANGIFRAMPARTUR ÚRB

30% AFSLÁTTUR

2.498KR/KG

FRYST

IVARA

LAMBAHRYGGURLANGSKORINN MEÐ MJÖÐM

NAUTAINNRALÆRIFERSKT

2.289ÁÐUR 2.898 KR/KG

Hryggurinn er skorin lengra niður á mjöðmina og þannig næst meira kjöt af lundunum með hryggnum!

FRYSTIVARA

498KR/STK

BRAGÐGÓÐIR OG FLJÓTLEGIR

RÉTTIR SEM KOMA SKEMMTILEGA

Á ÓVART!

Page 8: Eystrahorn 38. tbl. 2012

8 EystrahornFimmtudagur 1. nóvember 2012

Listasafn Hornafjarðar

Listasafn Hornafjarðar býður upp á sýningu með ljósmyndum eftir Brian Briffin. Brian er breskur ljósmyndari sem dvaldist á Hornafirði árið 2007 og tók myndir af Hornfirðingum og hornfirsku landslagi. Hann hefur starfað sem ljósmyndari um árabil og er með fremstu portrett ljósmyndurum í Bretlandi. Föstudaginn 2. nóvember verður opið frá klukkan 9:00 – 15:00. Á laugardag og sunnudag er opið frá klukkan 13:00 til 17:00. Allir eru velkomnir

Prjónakaffi á Bókasafninu

Prjónakaffi Guðnýjar bókastýru verður á Bókasafninu frá klukkan 13:00 til 15:00 á laugardeginum. Allir eru velkomnir í prjónakaffi og það er alltaf heitt á könnunni. Um að gera fyrir alla sem eru með eitthvað á prjónunum að kíkja við og prjóna í góðum félagskap.

Sýningin Fuglalíf á Bókasafninu

Náttúrugripasýning opnaði á Bókasafninu 29. október og ber hún heitið Fuglar. Opið verður á laugardeginum frá klukkan 13:00 til 16:00. Á sýningunni er aðal áherslan lögð á fuglalíf og gefur að líta fugla og egg viðkomandi fugla sem verpa á svæðinu. Allir velkomnir.

Leyndardómar hafsinsÍ fremra rými Listasafnsins er boðið upp á sýninguna Leyndardómar hafsins en þar gefur að líta dýralíf sem tengist hafinu á einn eða annan hátt, ásamt skeljum. Listasafnið verður opið alla helgina frá klukkan 13:00 til 17:00. Allir eru velkomnir.

Huldusteinn Steinasafn

Huldusteinn Steinasafn verður með opið hús laugardaginn 3. nóvember frá klukkan 14:00 til 18:00. Allir velkomnir á safnið.

Vinnustofa Eyrúnar

Vinnustofa Eyrúnar Axelsdóttur í Miklagarði verður opin laugardag og sunnudag frá klukkan 14:00 til 17:00. Ýmislegt skemmtilegt

að sjá og allir velkomnir.

Litli Listaskálinn á Sléttu

Litli Listaskálinn á Sléttu verður opinn laugardag og sunnudag frá klukkan 14:00 til 17:00. Til sýnis og sölu verða handunnin kerti frá Gingó. Allir velkomnir.

Handraðinn – handverkshús

Handraðinn félag lista og handverksfólks á Hornafirði verður með opið laugardag og sunnudag frá klukkan 13:00 til 17:00. Sjón er sögu ríkari og kjörið tækifæri til að versla sér lopavettlinga fyrir veturinn. Allir velkomnir.

Þórbergssetur

Ljósmyndasýningin Óþrotlegur auður, textar Þórbergs og ljósmyndir Þorvarðar Árnasonar og Tony Prower. Sýning með styttum sem Lilla Hegga gaf Sobbeggi afa, stytturnar eru gjöf frá Helgu Jónu Ásbjarnardóttur. Sýning á frumútgáfum á verkum Þórbergs Þórðarsonar, frumútgáfurnar eru gjöf frá Skinney – Þinganesi. Kaffi á könnunni og opið laugardag og sunnudag frá kl 13:00 til 16:00.

Safnahelgi á Suðurlandi helgina 2. - 4. nóvemberDagskrá fyrir Hornafjörð á Safnahelgi á Suðurlandi

Helgina 2. - 4. nóvember verður Safnahelgi á Suðurlandi haldin hátíðleg í fimmta sinn. Safnahelgin er stærsti sameiginlegi Menningarviðburðurinn á Suðurlandinu og nær hann frá Ölfusi allt til Hornafjarðar. Boðið er upp á margvíslega viðburði meðan á safnahelgi stendur, en söfn, setur, listamenn, handverksfólk og sýningarsvæði á Hornafirði taka þátt í þessari helgi.

Dagskráin er fjölbreytt að vanda og um að gera að nota tækifærið og taka sér rölt á milli staða og skoða hvað er í boði. Heildardagskrá helgarinnar má svo finna á www.sunnannmenning.is.

Page 9: Eystrahorn 38. tbl. 2012

Dýrindis haustveisla í draumaumhverfi

Borðapantanir í síma 487 4900 eða á [email protected]ópatilboð og sérkjör á gistingu ofangreindar helgar.

Kyrrðarríki milli jökla

Laugardagskvöld:10. og 17. nóv.

Villibráðarveisla 7.500 kr. á mannGisting í tveggja manna herbergi, villibráðar veisla og morgunverður af hlaðborði. Verð: 15.000 kr. á mann

Jólamatseðill 6.990 kr. á mannGisting í tveggja manna herbergi, jólamatseðill og morgunverður af hlaðborði. Verð: 10.300 kr. á mann

Föstudags- og laugardagskvöld:

23., 24. og 30. nóv.og 1., 7. og 8. des.

Page 10: Eystrahorn 38. tbl. 2012

10 EystrahornFimmtudagur 1. nóvember 2012

Forvarnarmál - eilífðarverkefniTöluverð vakning hefur orðið á síðustu misserum í forvarnarmálum og heilsueflingu almennt. Niðurstöður rannsókna undirstrika mikilvægi samveru fjölskyldunnar sem grunnþátt í forvörnum. Ekki er verið að vísa til þess að í gangi sé skemmtiprógram heldur er nándin málið! Hversdagslegar daglegar athafnir eins og að borða saman kvöldmat, horfa saman á sjónvarp, læra nálægt foreldrum sínum o.s. frv. Rannsóknir sýna einnig að ef börn og unglingar eru í skipulögðu íþrótta og tómstundastarfi eru minni líkur á að þau leiðist út í neyslu hvers kyns vímuefna. Sveitarfélagið keypti á dögunum rannsóknarniðurstöður um hagi og líðan ungmenna í 8., 9. og 10. bekk árið 2012 í Grunnskóla Hornafjarðar. Niðurstöðurnar sýna fram á stöðuga jákvæða þróun hin síðari ár þegar litið er til reykinga, neyslu áfengis og ólöglegra vímugjafa meðal unglinga í grunnskóla.

Samvera foreldra með unglingum sínum, útivistarreglur og eftirlit er þó minna hér en að meðaltali á landinu og þar eru strákarnir lausbeislaðri en stelpurnar. Eins má segja að viðhorf unglinganna til náms eftir grunnskóla sé umhugsunarvert og ekki í takt við þær áherslur í menntamálum að helst allir ljúki starfsmenntanámi eða öðru framhaldsskólanámi. Einnig er vert að veita athygli þeirri miklu

aukningu sem verður í neyslu íslenskra ungmenna eftir að grunnskóla sleppir. Myndin hér að neðan sýnir niðurstöður fyrir landið allt.

Breytt neyslumynstur á 3 – 4 mánuðum • Landið allt 2010

Daglegar reykingar, ölvun sl. 30 daga, hafa prófað hass og maríjíúna einu sinni á ævinni eða oftar

Rannsóknarniðurstöðurnar í heild sinni má skoða í skýrslunni frá Rannsókn og greiningu á vefsíðu sveitarfélagsins. Skóla-, íþrótta-, og tómstundanefnd er með drög að stefnu í æskulýðs-, íþrótta og tómstundamálum í kynningarferli. Drögin hafa verið send hagsmunaaðilum og eru aðgengileg á vef sveitarfélagsins. Íbúar eru hvattir til að kynna sér drögin og koma ábendingum til Ragnhildar Jónsdóttur fræðslustjóra á netfangið [email protected] sveitarfélagsins verður tekin upp og endurskoðuð á næsta misseri. Í upphafi verður boðað til fundar þar með íbúum til að fá fram hugmyndir þeirra um aðgerðir og hefja vinnuna.

Ásgerður Gylfadóttir Matthildur Ásmundardóttir

Kristján Guðnason Ragnhildur Jónsdóttir

Mynd 1. Hlutfall nemenda í 10. bekk sem hafa orðið ölvaðir einhvern tíma um ævina, árin 1997 – 2012.

Mynd 6. Vímuefnaneysla nemenda í 10. bekk vorið 2010 og ungmenna eftir grunnskóla

Bæjarmálafundur Opinn bæjarmálafundur verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu laugardaginn 3. nóvember kl. 11:00.

Helstu málefni:Fjárhagsáætlun 2013•

Skipulagsmál m.a. umhverfi Jökulsárlóns • og Stafafellsfjöll

Önnur mál•

Boðið verður upp á dagverð (brunch)

Allir velkomnir

Stjórn og bæjarfulltrúar Sjálfstæðisfélagsins

Samfylkingin í Suðurkjördæmi

Framboðsfundur vegna flokksvals Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi

fyrir alþingiskosningar 2013 verður haldinn í Pakkhúsinu sunnudaginn 4. nóvember

kl. 13:00. Þar munu frambjóðendur kynna sig og stefnumál sín.

Allir velkomnir

Kjörstjórn kjördæmisráðs

Page 11: Eystrahorn 38. tbl. 2012

[email protected]

Íbúðir til sölu

Áhugasamir hafi samband í síma 846-7272 (Hrafnkell) og 857-8813 (Björgvin) eða á [email protected] • Vefsíða: hthus.123.is

við Álaleiru á Höfn

hagkvæmur og góður kostur

Page 12: Eystrahorn 38. tbl. 2012

Meira í leiðinniWWW.N1.IS

GERÐU BÍLINNKLÁRAN FYRIR VETURINNVETRARDEKK Á FRÁBÆRU VERÐI OG FRAMÚRSKARANDI ÞJÓNUSTA

VERSLUN N1Höfn | Álaugarvegi 2478 1490

Þau félög og félagasamtök sem vilja koma inn erindum eða styrkumsóknum í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2013 þurfa að skila umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á skrifstofu sveitarfélagsins eða á heimasíðu þess fyrir 30. nóvember n.k..

Styrkumsókn skal fylgja greinargerð eða ársreikningar/uppgjör fyrir síðasta fjárhagsár, um fyrirhugaða nýtingu styrks og starfsemi styrkumsækjanda á liðnu ári annars verður umsókninni hafnað.

Hjalti Þór Vignisson Bæjarstjóri

Sveitarfélagið HornafjörðurUmsóknir um styrki