Arbaejarbladid 6.tbl 2007

15
Árbæjarblaðið Árbæjarblaðið Pantið tíma í síma 511–1551 Hársnyrting Villa Þórs Lynghálsi 3 Opið virka daga frá kl. 9-18.30 Laugardaga frá kl. 10–14 Hraunbæ 102B – 110 Rvk. Sími 567–4200 Fax 567–3126 Netfang: [email protected] 6. tbl. 5. árg. 2007 júní Fréttablað íbúa í Árbæ og Grafarholti ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005 ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005 Eitt númer 410 4000 Bæjarflöt 10 · 112 Reykjavík · Sími 567 8686 BÍLAMÁLUN OG RÉTTINGAR Komdu beint til okkar! – og við tjónaskoðum í hvelli þér að kostnaðarlausu! Nýir tímar fyrir tjónaþola: Það skiptir engu máli hvernig bíl þú ert á! Þessir ungu kappar, Einar Örn til vinstri og Símon Orri, tóku þátt í Árbæjarhlaupinu á Fylkisdaginn og stóðu sig svo sannarlega vel og blésu ekki úr nös eftir hlaupið þegar Einar Ásgeirsson smellti af þeim mynd með verðlaunapeninga sína. Sjá nánar í miðopnu. Gjöfin fyrir veiðimenn? Kíktu á Krafla.is Íslenskar laxa- og silungaflugur í hæsta gæðflokki í fallegum tréboxum Gröfum nafn veiðimanns á boxið Uppl. í síma 698-2844

description

Arbaejarbladid 6.tbl 2007

Transcript of Arbaejarbladid 6.tbl 2007

Page 1: Arbaejarbladid 6.tbl 2007

ÁrbæjarblaðiðÁrbæjarblaðið

Pantið tíma

í síma511–1551Hársnyrting Villa Þórs

Lynghálsi 3

Opið virka dagafrá kl. 9-18.30Laugardaga frá kl. 10–14

Hraunbæ 102B – 110 Rvk.Sími 567–4200 Fax 567–3126

Netfang:[email protected]

6. tbl. 5. árg. 2007 júní Fréttablað íbúa í Árbæ og Grafarholti

ÍSL

ENSK

A AU

GLÝ

SIN

GAS

TOFA

N/S

IA.I

S L

BI 2

7159

01/

2005

ÍSL

ENSK

A AU

GLÝ

SIN

GAS

TOFA

N/S

IA.I

S L

BI 2

7159

01/

2005

Eitt númer

410 4000

Bæjarflöt 10 · 112 Reykjavík · Sími 567 8686

BÍLAMÁLUN OG RÉTTINGAR

Komdu beint til okkar! – og við tjónaskoðum í hvelli þér að kostnaðarlausu!

Nýir tímar fyrir tjónaþola:

Það skiptir engu máli hvernig bíl þú ert á!

Þessir ungu kappar, Einar Örn til vinstri og Símon Orri, tóku þátt í Árbæjarhlaupinu á Fylkisdaginn og stóðu sig svo sannarlega vel og blésu ekkiúr nös eftir hlaupið þegar Einar Ásgeirsson smellti af þeim mynd með verðlaunapeninga sína.

Sjá nánar í miðopnu.

Gjöfin fyrirveiðimenn?Kíktu á Krafla.isÍslenskar laxa- og silungaflugur

í hæsta gæðflokki í fallegum tréboxum

Gröfum nafn veiðimanns á boxið Uppl. í síma 698-2844

Page 2: Arbaejarbladid 6.tbl 2007

3. júní sl. urðu breytingar á ferð-um strætisvagna á höfuðborgar-svæðinu. Þessar breytingar vorum.a. gerðar til þess að koma tilmóts við óskir viðskiptavina umbetri tengingar innan hverfa ogminni bið á skiptistöðvum. Alltleiðakerfið mun byggja á sömugrunntíðni þ.e. 30mínútur ogmunu allir vagn-ar aka á þeirritíðni í sumar.

Helstu leiðirmunu aka á 15mínútna frestifrá og með 19.ágúst n.k. en þáhefst vetraráætlun. Það er fagnað-arefni að nú er S5 aftur farin aðkeyra um hverfið allan daginn,virka daga og um helgar.

Leið 18 á milli Árbæjar, Grafar-

holts og Grafarvogs.Ný leið á milli Árbæjar, Grafar-

holts og Grafarvogs, leið 18, kemurí gagnið. Þessi vagn mun aka umHálsabraut, Bæjarbraut, Rofabæog Hraunbæ á leið sinni frá Spöng-inni í Grafarvogi í gegnum Grafar-holt og fara

Bústaðavegog Snorra-braut niður á Hlemm. Leið S5 er ígangi allan daginn og um helgaren var áður einungis á álagstím-

um virka daga. Leið 19 verðuróbreytt.

Leið S5 fer RofabæinnSú breyting verður á ferðum S5

að hún mun fara um Rofabæ í staðBæjarháls. Leið S5 á að fara um

Sæbraut en fór áður niður Mikl-ubraut.

Leið S6 mun taka viðþeim farþegum S5 semætla að fara niður Mikl-ubraut og Hringbraut.Strætó bs. staðhæfir aðþessar leiðir munu mæt-ast í Ártúni og hinkraeftir hvor annarriþannig að tafir verði

ekki hjá farþegum.

Forstöðumaður akstursdeildarStrætó bs. kom á fund Hverfisráðs

Árbæjar 29. maí 2007 og skýrði fránýrri leiðaáætlun. Í máli hanskom fram að einungis 357 farþegarað meðaltali nýta sér þjónustu leiðS5 á degi hverjum eins og hún er ídag.

S-leiðirnar eru annars með frá1600 og upp í 3000

farþega á dag.Verði mikil aukn-

ing farþega á leið S5 í haust þegarað skólar byrja er Strætó bs. tilbú-

ið til að breyta þjónustu við íbúaÁrbæjarhverfis.

Meirihluta Hverfisráðs Árbæjarvar kynnt þessi niðurstaða afStrætó bs. fyrir nokkru og var m.a.Ungmennaráði Árbæjar og Graf-arholts einnig kynntar breyting-

arnar. Var gerð grein fyrirþví að farið væri í þessarbreytingar m.a. vegnaþess að erfitt væri að fáafleysingarfólk til starfayfir sumarið svo og aðum 40-45% fækkun far-þega er að ræða yfir sum-artíman m.a. vegnaskólaleyfa og sumarfría.

Björn Gíslason for-maður Hverfisráðs

ÁrbæjarSvava H. Friðgeirsdóttir

varaformaður Hverfisráðs Árbæjar

Siðlaus prófNemendur í 10. bekk í grunnskólum hafa nú lokið samræmd-

um prófum þetta árið en um er að ræða próf sem eiga að skeraúr um það hvort nemendur eru reiðubúnir að hefja nám í fram-haldsskólum eða ekki. Og útkoman úr þessum prófum sker úrum það hvort nemandi kemst í ákveðinn skóla eða ekki.

Samræmdu prófin hafa verið gagnrýnd árum saman en lík-lega hefur gagnrýnin aldrei verið meiri en í dag. Og þessi gagn-rýni á svo sannarlega fullan rétt á sér.

Við höfum rætt við óánægða foreldra sem furða sig á þessumprófum. Þess eru mörg dæmi að margar spurningar í eina ogsama prófinu komu úr efni sem ekki var fjallað um í námsbók-unum. Hvernig er verjandi að koma svona fram við nemendur?Við höfum frétt af samviskusömum nemendum sem lásunámsefnið mjög samviskusamlega fyrir próf en komu síðangrátandi heim til sín eftir prófin vegna þess að spurt var umefni sem ekki var í bókunum.

Samræmdu prófin vinna hrein skemmdarverk á unglingum ístað þess að meta hæfni þeirra til frekara náms. Ómögulegt erað skilja hvað býr að baki hjá því fólki sem semur þessi próf.Þessi próf eru þessu fólki til ævarandi skammar og með hrein-um ólíkindum að fullorðið og væntanlega menntað fólk skuliskila frá sér slíku verki.

Frést hefur af kærum sem kennarar hafa sent inn vegnaprófanna. Kennarar eru ekki síður reiðir en nemendur ogskildi engan undra. Mörgum þeirra ofbýður skepnuskapurinnsem hinir aumkunarverðu höfundar prófanna bera á borð fyr-ir saklausa nemendur í 10. bekk, nemendur sem eru að reynaþað eitt að gera sitt besta. Stefán Kristjánsson

Útgefandi: Skrautás ehf. Netfang: [email protected]óri og ábm.: Stefán Kristjánsson.Ritstjórn: Bíldshöfða 14 - símar 587– 9500 og 698–2844.Netfang Árbæjarblaðsins: [email protected]Útlit og hönnun: Skrautás ehf.Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson.Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins.Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson.Dreifing: Íslandspóstur.Árbæjarblaðinu er dreift ókeypis í öll hús í Árbæ, Ártúnsholti,Grafarholti, Bryggjuhverfi, Norðlingaholti og einnig er blaðinu

dreift í öll fyrirtæki í póstnúmeri 110.

[email protected]

ÁrbæjarblaðiðÁrbæjarblaðiðÁrbæjarblaðiðFréttir

2

,,Þetta er búið að vera alveg frábært.Mig langaði að láta þann draum minnrætast að stofna mitt eigið fyrirtæki ístað þess að vinna fyrir aðra. Í byrjunvar frekar rólegt að gera og mér leisteiginlega ekkert á þetta. Þá hafði égsamband við Árbæjarblaðið. Þar á bævar fólk tilbúið að birta við mig smáviðtal og auglýsingu og segja má að allthafi orðið vitlaust eftir að blaðið komút,’’ segir Hreinn Örvar Hreinsson semá og rekur sína eigin bón- og þvottastöðað Stórhöfða 26.

Hreinn tekur bíla í alþrif ef því erað skipta og jafnt fólksbíla sem jeppa.Hann býður einnig upp á annars konarþrif og verðflokkarnir eru margir. Við-skiptavinir Hreins geta verið öryggirmeð góða þjónustu og gott verð.

Hreinn segir að síminn hafi byrjað

að hringja strax sama daginn og Ár-bæjarblaðinu var dreift. Það streymduinn pantanir og ég var skyndilega far-inn að bóka langt fram í tímann. Éghafði frétt af miklum árangri af því aðauglýsa í Árbæjarblaðinu en þessi við-brögð komu mér skemmtilega á óvart.Og það sem hefur kannski komið mérmest á óvart er að það hefur ekkertdregið úr símhringingum. Það er þvígreinilegt að fólk geymir blaðið lengiog hendir því ekki strax í ruslið eins oghinum blöðunum,’’ sagði Hreinn.

Skagamaðurinn ungi segir að lætineftir að Árbæjarblaðið kom út hafi leitttil þess að hann íhugar nú alvarlega aðráða mann eða menn i vinnu. ,,Ég erbúinn að vera alveg á haus og reyndaruppgefinn eftir suma dagana. Égstefndi alltaf að því að eiga frí um helg-

ar en hef orðið að taka bíla í þrif áþeim tíma líka. Annars vonast ég eftirþví að geta átt frí á laugardögum ogsunnudögum,’’ sagði Hreinn Örvar.

Eftir að umfjöllunin birtist í Árbæj-arblaðinu um fyrirtæki Hreins Örvarstók símhringingum að rigna yfir okk-ur á Árbæjarblaðinu og þá jafnan fráfólki sem ekki hafði blaðið við hend-ina.

Hreinn Örvar er vitanlega bjart-sýnn á framhaldið: ,,Þetta lítur mjögvel út í dag og ég er mjög bjartsýnn áframhaldið. Það er hreinlega ekkihægt annað. Ég er einnig líka mjögþakklátur Árbæjarblaðinu sem tókmér opnum örmum með þessum líkarosalega árangri.’’ Síminn hjá HreiniÖrvari er 867-0187.

Hreinn Örvar Hreinsson, 24 ár gamall strákur af Skaganum, opnaði bón- og þvottastöð í Stórhöfðanum.Frekar lítið var að gera hjá Hreini þar til hann birti auglýsingu í Árbæjarblaðinu. Þá varð hreinlega allt vit-laust og hefur hann átt erfitt með að anna eftirspurn síðan. ÁB-mynd PS

,,Allt varð vitlaust eftir aðÁrbæjarblaðið kom út’’

Björn Gíslason,formaður Hverf-isráðs Árbæjar,skrifar:

Svava H. Friðgeirs-dóttir, varaformað-ur Hverfisráðs Ár-bæjar, skrifar:

Aukin þjónusta Strætó bs. í Árbæ

- segir Hreinn Örvar Hreinsson sem á og rekur bón- og þvottastöð í Stórhöfða 26

Árbæjarblaðið Auglýsingasími 587-9500

Page 3: Arbaejarbladid 6.tbl 2007
Page 4: Arbaejarbladid 6.tbl 2007

Hjónin Birna Pálsdóttir og Sigurð-ur Grímsson eru matgæðingar okk-ar að þessu sinni. Þau bjóða okkurupp á afar girnilegan fiskrétt og viðskorum á alla að reyna fyrir sér ogprófa réttinn.

Fyrir 4-6

Þorskflök 1 kg (má gjarnan notalúðu eða ýsu).Sveppir 250 gr.3-4 bananar.½ bolli kasjúhnetur.½ bolli rúsínur.100 gr. rifinn ostur.Olía.1 msk. íslenskt smjör (má nota olíu).Hrísgrjón.

Aðferð:

Fiskurinn:

Þorskflökin skorin í mátulega bitakrydduð létt með Maldon salti, svört-um nýmöluðum pipar og karrý (málíka velta upp úr hveiti m/kryddinuí) og snöggteikt á pönnu í góðri olíu.Bitunum raðað í eldfast mót.

Sveppir steiktir létt í smjöri (mávera olía) og dreift yfir fiskinn. Ban-

anarnir skornir í bita, léttsteiktir ísmjöri og settir yfir fiskinn ogsveppina. Rifinn ostur yfir. Bakað íofni í ca 15 mín.

Hrísgrjónin:

2 bollar af hrísgrjónum settir ípott með 4 bollum af vatni, 1 tsk Mal-don salti og 1 tsk af olíu. Hrært í meðgaffli. Suðan látin koma upp og þá erslökkt á hellunni, lokið haft á oggrjónin soðna á ca 10 mín. Á meðaneru hneturnar ristaðar létt á heitripönnu (má sleppa því að rista þær).Þegar grjónin eru soðin er hnetun-um og rúsínunum blandað við grjón-in.

Borið fram með fersku salati...mmmmm!

Rauð vatnsmelóna í eftirrétt

Stór vatnsmelóna (rauð að innan)skorin fyrst í sneiðar (ca 1 cm þykk-ar) og svo hver sneið í geira. Borðuðmeð bestu lyst!

Verði ykkur að góðu,Birna og Sigurður

ÁrbæjarblaðiðMatur4

MatgæðingarnirSigurður Grímsson og Birna Pálsdóttir ásamt hundinum sem heitir Bjartur. ÁB-mynd PS

Mjög góðurog fljótlegur

fiskrétturmeð ind-

versku ívafi

Skora á Sigurð og Birnu Kristín Pétursdóttir og Brynjólfur Smárason, Viðarási 77, skora á Sigurð Grímsson og

Birnu Pálsdóttur, Þingási 26, að koma með girnilegar uppskriftir í næsta blað. Við birtumuppskriftir þeirra í næsta Árbæjarblaði sem kemur út 7. júní.

- að hætti Birnu og Sigurðar

Árbæjarblaðið Sími: 587-9500

Sumarstarf Frístunda-miðstöðvarinnar Ársels

Leikjanámskeið Leikjanámskeið fyrir börn, fædd ´97-´00, í Árseli í Árbæ og Sæmundarskóla í Grafarholti. Skráning

fer fram á slóðinni www.rvk.is.

Leikjanámskeið fyrir börn f. ´01Nýjung í sumarstarfinu!!Til að koma til móts við óskir foreldra er nú í fyrsta skipti boðið er upp á sérstakt námskeið fyrir

börn sem eru að byrja í 1.bekk. Markmiðið er að brúa bilið frá leikskóla til grunnskóla og frístunda-heimilis í haust. Verður í boði eina viku í Árseli og eina viku í Sæmundarskóla. Skráning fer fram íá slóðinni www.rvk.is

Íþrótta- og ævintýranámskeiðÆtlað sprækum krökkum f. ´94-´96. Námskeiðin verða í Árseli og Ingunnarskóla og Norðlingaskóla.Skráning fer fram á slóðinni www.rvk.is

SmíðaverkstæðiSmíðaverkstæði fyrir börn f. ´94-´98 verður starfrækt við Árbæjarskóla, Sæmundarskóla og Norð-

lingaholt. Ekki þarf að skrá börnin heldur koma þau á smíðaverkstæðið og greiða 550 kr. í efniskostn-að.

LeikvöllurStarfræktur verður leikvöllur við Malarás fyrir börn á aldrinum 2-6 ára frá 11. júní til 17. ágúst.

Leikvöllurinn er opinn kl. 9.00-12.00 og kl. 13.00-16.30.

Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast í Frístundamiðstöðinni Árselií s: 567-1740, Sumarbæklingi ÍTR og á vefslóðunum www.rvk.is og www.itr.is

Sumarkveðja, Starfsfólk Frístundamiðstöðvarinnar Ársels

Page 5: Arbaejarbladid 6.tbl 2007

Velkomin í nýtt og glæsilegt

útibú í GrafarholtiVið bjóðum upp á alhliða fjármálaþjónustu sem er sniðin að þínum þörfum. Við rekum öfluga einstaklingsþjónustu þar sem viðskiptavinir okkar geta haft öll sín fjármál á einum stað, hvort sem þau snúa að útlánum, sparnaði eða annarri þjónustu bankans. Fyrirtækjaþjónustan okkar hefur verið efld til muna. Markmið okkar er að veita fyrirtækjum framúrskarandi þjónustu með áherslu á stuttan svartíma og persónulega þjónustu. Við bjóðum viðskiptavini okkar hjartanlega velkomna.

Viljir þú bóka fund varðandi fjármál þín

skaltu hafa samband í síma 410 4114

eða tölvupóstfang [email protected]

ÍS

LE

NS

KA

SIA

.IS

LB

I 3

7452

06.

2007

Page 6: Arbaejarbladid 6.tbl 2007

ÁrbæjarblaðiðFréttir6

NÝTT Í SUMAR !!!!FJÖR, HREYFING OG ÚTIVERA

ÍÞRÓTTA- OG ÆVINTÝRANÁMSKEIÐ FYRIR SPRÆKA KRAKKA,F.´94 -´96, Í ÁRSELI, INGUNNAR- OG NORÐLINGASKÓLA

Vikunámskeið ætlað krökkum með áhuga á íþróttum og útivist. Í fjölbreyttri dagskrá fá krakkarnir m.a.kynnast ýmsum íþróttagreinum og náttúrunni í kringum Reykjavík með stuttum ferðum bæði á göngu og áhjóli. Markmiðið er að krakkarnir fái að njóta mismunandi afþreyingar sem er í boðið í Reykjavík og nágrenni,fái holla hreyfingu og tileinki sér heilbrigðan lífsstíl. Umsjón er í höndum íþróttafræðings og íþróttaþjálfara

Námskeiðin eru alla virka daga frá kl: 9.30-15.30Dæmi um dagskrá:1. dagur Kynning á námskeiði, ýmiskonar leikir og hópnum þjappað saman2. dagur Ferð í Laugardalinn, dagskrá í Frjálsíþróttahöllinni og endaði í sundi.3. dagur Ferð í Nauthólsvík, siglingar, strandíþróttir ofl.4. dagur Boltaíþróttir, knattspyrna, handbolti, körfubolti, blak.5. dagur Fjallganga, Úlfarsfell. Grillað og ýmiskonar sprell.

Norðlingaskóli:Námskeið 1 11. júní - 15. júní Námskeið 2 18. júní - 22. júní

Ársel: Námskeið 1 9. júlí - 13. júlí Námskeið 2 16. júlí - 20. júlí

Ingunnarskóli: Námskeið 1 23. júli - 27. júlíNámskeið 2 30. júlí - 3. ágúst

Haraldur Þorvarðarson íþróttafræðingur sér um námskeiðið.Skráning fer fam í gegnum Rafræna Reykjavík á slóðinni www.rvk.is Nánari upplýsingar er hægt að nálgast í sumarstarfsbæklingi ÍTR, á heimasíðu 'ITR og í Árseli í s. 567-1740

Gáfuöllum

hjálma

Frístundaheimiliskólaárið 2007-2008Umsóknir í frístundaheimilin í Árbæ, Grafarholt og Norðlingaholt fyrir

skólaárið 2007-2008 er orðnar 445. Á myndunum hér fyrir neðan má sjá hvern-ig þær skiptast á milli frístundaheimilanna.

Sótt er um pláss á frístundaheimili á slóðinni www.rvk.is Sækja þarf umdvöl fyrir hvert skólaár því börn skrást ekki sjálfkrafa á frístundaheimilimilli skólaára. Allar frekari upplýsingar eru veittar í FrístundamiðstöðinniÁrseli s: 567-1740.

Frístundaheimilið Klapparholt við Norðlingaskóla; 51 umsókn.

Frístundaheimilið Skólasel við Ártúnsskóli; 48 umsóknir.

Frístundaheimilið Stjörnuland við Ingunnarskóla; 125 umsóknir.

Frístundaheimilið Víðisel við Selásskóla; 50 umsóknir.

Frístundaheimilið Töfrasel viðÁrbæjarskóla; 84 umsóknir.

Frístundaheimilið við Sæmund-arskóla; 97 umsóknir.

Nemendur fyrsta bekkjar í Árbæj-arskóla fengu góða gesti í heimsókná dögunum. Félagar úr Lionsklúbb-num Jörfa færðu þá hverju barnireiðhjólahjálm. Börnin voru ákaf-lega ánægð með hjálmana og Guð-rún Ólöf skólahjúkrunarfræðinguráréttaði mikilvægi hjálmanotkunar.

Þetta er ekki í fyrsta skipti semþeir Jörvamenn láta gott af sér leiðaog er framtak þeirra vægast sagtlofsvert.

Takk fyrir mig. Fulltrúi LionsklúbbsinsJörva afhendir hjálmana.

Hjálmurinn mátaður og ungir nemendur fylgjast spenntir með.

Page 7: Arbaejarbladid 6.tbl 2007

* Viðskiptavinir í Vild, Gullvild, Platínum og Námsvild.

Vildarklúbbur Glitnis er nýtt tryggðarkerfi fyrir viðskiptavini í Vildarþjónustu Glitnis.* Meðlimir safna verðmætum Glitnispunktum fyrir það eitt að vera í viðskiptum við Glitni og samstarfsaðila.

NÝJUNG Í BANKAVIÐSKIPTUM

Kynntu þér málið á www.glitnir.is, í næsta útibúi eða hjá Þjónustuveri í síma 440 4000.

Vildarklúbbur Glitnis margborgar sig ... punktur!

SKRÁÐU ÞIG NÚNA!

Þeir sem skrá sig fyrir 17. júní fá 10.000 Glitnispunkta strax!

HV

ÍTA

SIÐ

/ S

ÍA 8

13

1

SVONA NOTAR ÞÚ GLITNISPUNKTANA• Útborgun í peningum• Ferðaávísun MasterCard• Vildarpunktar Icelandair• Innborgun á sparnað• Góðgerðamál og margt fleira

Page 8: Arbaejarbladid 6.tbl 2007

ÁrbæjarblaðiðAfmælishátíð Fylkis8

Árbæjarblaðið Fylkisdagurinn9

Afmælishóf Fylkis

Árbæjarhlaupið var vel heppnað og alls hlupu 93 keppendur. Þessi unnu til verðlauna í Árbæjarhlaupinu.

Kátar Fylkisstelpur.

FylkisdagurinnFylkisdagurinn var haldinn hátíðlegur þann 28. maí sl. en þann dag fyrir 40 árum var félagið stofnað. Margt var í boði í

hverfinu og til dæmis hlupu 93 keppendur Árbæjarhlaup. Gamlir og góðir unnendur félagsins komu saman en endapunktur-inn var fyrsti heimaleikur Fylkis í Landsbankadeildinni. Myndirnar hér á síðunni tók Einar Ásgeirsson.

Afmælishátíðin á Fylkisdaginn gekk vel og alls mættu um 6-700 manns á hátíðina.

Fylkismennirnir Ingvar og Jóhannes Óli ásamt eiginkonum sínum. Þessi stilltu sér upp fyrir Einar ljósmyndara.

Björn Gíslason, varaformaður Fylkis og Vilhjálmur Vilhjálmsson.Prúðbúnir gestir og allir í góða skapinu.

Gestir skemmtu sér vel og slógu á létta strengi.

Fríður hópur Fylkiskvenna á afmælishófinu.

Við birtum hér fleiri myndir fráAfmælishátíð Fylkismanna en í síð-

asta blaði greindum við einng frá há-tíðinni. Fjöldi manns mætti á ,,gal-

akvöldið’’ sem fór fram í Fylkishöll-inni. Einar Ásgeirsson var að sjálf-

sögðu á staðnum og tók myndirnarsem hér birtast.

Birgir Finnbogason, formaður Fylkis, lengst til vinstri, og Ólafur Loftsson afhentu þessum heiðurskonum gull-merki Fylkis. Þær eru frá vinstri: Magnea Ragna Ögmundsdóttir, Guðrún Ósk Jakobsdóttir, Ása Haraldsdóttir ogGuðrún Hupfeld. Góðir og glaðir Fylkismenn og konur á afmælisdaginn.

Page 9: Arbaejarbladid 6.tbl 2007

Stærðir: 27 - 354.690 kr.

Stærðir 27 - 354.690 kr.

Stærðir 27 - 355.890 kr.

Stærðir 21 - 265.990 kr.

Stærðir 21 - 265.390 kr.

ÁrbæjarblaðiðFréttir10

Fjármálakvöld LandsbankansÞorsteinn Þorsteinsson, útibús-stjóri Landsbanka Íslands í Ár-

Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld hj´Lndsbanka Ís-lands og þann 24. maí sl. var eitt slíkt kvöld í Árbænum íútibúi Landsbankans við Klettháls.

Fjöldi fólks mætti á fjármálakvöldið en farið var yfirfj´rfestingarkosti sem í boði eru, til dæmis skráð hlutafé-lög í kauphöll og verðbréfasjóði. Einnig voru gefin hag-

nýt ráð um uppbyggingu eignasafna.Á fjármálakvöldinu var einnig farið yfir það hvar hægt

er að nálgast upplýsingar um fjármálamarkaðinn oghvernig best er að nýta þær.

Eins og áður sagði var mæting góð á fjármálakvöldiðog ríkti almenn ánægja á meðal gesta.

Sumar-námskeið

fyrir 6-12 áraSkráning á sumarnám-skeið hafin. Vikunám-

skeið (kl.: 9-12 og/eða 13-16).

Sjá nánar: www.ker-amik.is

og í ITR-blaðinu.

Laugavegi 48B,101 Rvík. S: [email protected]

www.keramik.is

Landsbankinn gaf hljóðkerfi

Landsbankin í Árbæ, einn af styrktaraðilum Fylkis, færðiFylki nýtt hljóðkerfi að gjöf á 40 ára afmælisdaginn til nota ávellinum.

,,Í móttöku sem Landsbankinn í Árbæ stóð fyrir færði Þor-steinn Þorsteinsson, útibússtjóri í Árbæ, Fylki að gjöf hljóð-kerfi með sérbyggðum utanhúss hátölurum til notkunar ut-anhús. Þetta kerfi kemur í góðar þarfir og mun nýtast Fylkihvort heldur er við aðalvöllinn, gervigrasvöllinn eða hvarsem þörfin er. Höfðingleg gjöf frá Landsbankanum í Árbæsem Fylkismenn þakka af alhug,’’ segir í frétt á heimasíðuFylks. Þorsteinn Þorsteinsson afhendir Erni Hafsteinssyni hljóðkerfið.

Það er óhætt að segja að allir hafi gaman af leikj-um meistaraflokks kvenna. Þar er allt til alls, góðskemmtun, góður félagsskapur, heitt kaffi, toppsamvera, öll fjölskyldan saman og alls konar veður.Veðrið var hins vegar ekki jafn gott þegar stelpurn-ar okkar kepptu við KR á mánudaginn, hellirigningog rok. Skemmtunin var hins vegar ósvikin, þráttfyrir tap 4-2. Myndirnar voru teknar á umræddumleik á Fylkisvelli sl. mánudag.

Ósvikin skemmtun ákvennaleikjum Fylkis

Page 10: Arbaejarbladid 6.tbl 2007
Page 11: Arbaejarbladid 6.tbl 2007

Það hefur verið hátíðarstemningí Árbænum undanfarna daga.Íþróttafélagið Fylkir er 40 ára ogsumarið er skollið á. Hverfisbúarhafa því verið í hátíðarskapi. En ígær dró fyrir sólu. Þá er ég ekki aðtala um vítaspyrnuna sem fór for-görðum á lokamínútu leiksins viðSkagann (þó skítt væri), heldur hitt,að enn á ný þurfa hverfisbúar aðhefja baráttu til að halda uppi eðli-legum tengslum við aðra borgar-hluta í samgöngumálum.

Það kostaði margra vikna baráttunýliðinn vetur að fá lágmarksþjón-ustu strætó við Árbæjarhverfi eftirþá órökstuddu ákvörðun að fellaniður akstur hraðleiðarinnar S5.Eftir að S5 hóf akstur komst aftur átenging Árbæjarhverfis, Selás ogÁrtúnsholts við stærstu skóla ogvinnustaði borgarinnar, án skipt-ingar. Í gær voru hverfisbúum hinsvegar færðar þær fréttir að nú á ennað draga úr þjónustu strætó meðakstri á aðeins hálftíma fresti.

Skorið á skólanaVerst er þó að aftur á að skera á

tengingu Árbæjarhverfis, Ártúns-

holts, Seláss og Norðlingaholts viðmarga helstu skóla landsins ogstærstu vinnustaði með því að hrað-leiðin S5 keyri um Sæbraut í staðMiklubrautar! Þar með er ekki leng-ur bein tenging við Háskólann íReykjavík, Háskóla Íslands, Kenn-araháskólann, Fjöltækniskólann,Versló, MR, MH og Kvennaskólann,auk Landsspítala-háskólasjúkra-húss.

Þetta er furðuleg ráðstöfun ogverður að teljast sérstaklega undar-leg í ljósi áforma um gjaldfrjálsar al-menningssamgöngur fyrir náms-menn næsta haust. Við þetta verðurekki unað og er hér með skorað áÁrbæinga og annað áhugafólk umalmenningssamgöngur, betri um-ferð og skynsamlega orkunýtinguað láta þetta mál til sín taka.

Legið á fréttinni?Það er ekki síður merkilegt að

þetta vanhugsaða mál skuli dúkkaupp nú, aðeins örfáum dögum áðuren byrja á að keyra eftir breyttukerfi. Ekki er nema von að vagns-tjórar skuli láta í sig heyra. Fyrirþingkosningar var meirihluti borg-

arstjórnar hins vegar á umhverfis-fötunum og kynnti "miklu betristrætó", sem var "fyrst og fremst" afhinum 10 grænu skrefum í Reykja-vík. Kannski er ekki að undra aðfærri ferðir og breytingar á leiðar-kerfinu hafi ekki verið kynntar semlið í því.

Á fundi hverfisráðs Árbæjar ígær var umhverfisfötum hins vegarekki til aðdreifa. Þar komjafnframt framað þessar breyt-ingar höfðu ver-ið lengi í undir-búningi. Lík-lega miklu leng-ur en grænuskrefin. Í þvíljósi gegnir þaðsérstakri furðu að samráð hafi ekkiverið haft við hverfisráð borgarinn-ar og íbúa varðandi yfirvofandibreytingar. Ef einhvern lærdóm áað draga af endurskoðun leiðarkerf-isins er hann einmitt sá að samráðsé lykilatriði. Að kynna orðinn hlutfimm dögum áður en hefja á akstur

eftir nýju leiðarkerfi er ekki tilneins. Gengur þetta verklag gegnskýrum og ítrekuðum óskum hverf-isráða, íbúa, að ógleymdum fjöl-mörgum loforðum um samráð, bótog betrun.

Örfáir dagar til að forða slysiÞetta þýðir að

aðeins fáeinir

dagar eru nú tilað forða því að enn verði teknarslysalegar ákvarðanir um strætis-vagnaþjónustu við Árbæinga. Þaðgetur ekki verið sanngjarnt að Ár-bæingar þurfi öðrum hverfum frem-ur að berjast fyrir því að njóta sömuþjónustu í almenningssamgöngum

og önnur hverfi og sveitarfélög áhöfuðborgarsvæðinu.

Kjarni málsins Kjarni málsins er ætti að vera sá

að vaxandi vitund um umhverfis-mál og samstaða um að aukin um-ferð ógni lífsgæðum í borginni ætti

að kalla fram breiðan stuðn-ing við eflingu almennings-

samgangna. Fjöldi far-þegar í strætó óx í kjöl-far nýja leiðarkerfisins, ífyrsta skipti í áraraðir,eða allt þar til skerðing áþjónustu olli bakslagi íþau segl. Í raun ættustjórnmálamenn miklufrekar að sammælast umað kanna hvort oghvernig metnaðarfulltátak í almenningssam-

göngum væri best úr garðigert. Því efling almenningssam-gangna hefur sýnt sig vera ein hag-kvæmasta og markvissasta leiðin tilað bæta umferð og borgarbrag íbráð og lengd.

ÁrbæjarblaðiðFréttir12

Hársnyrtistofan HöfuðlausnirFoldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is

Kæru viðskiptavinir! Vorverkin að baki. Þá er um að gera að nostra

við hendurnar! Paraffin-handarmaski fyrir þá sem koma í háralitun

eða permanent frá 11. júni til 29. júní

Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00 Pöntunarsími: 567-6330

Hvers eiga Árbæingar að gjalda?

Dagur B. Eggertsson,oddviti Samfylkingar-innar í borgarstjórn,skrifar:

Page 12: Arbaejarbladid 6.tbl 2007

Atvinnuhúsnæðióskast til leiguCa 50-80 fermetra

verslunar- eða skrifstofuhúsnæði

óskast til leigu.Uppl. í síma 699-1322 / 698-2844

Þetta er gjöfin fyrir vandlátuveiðimennina!

Glæsileg flugubox úr MangóviðiGröfum nöfn veiðimanna á boxin

Langmesta úrval landsins af íslenskum laxa- og silungaflugum

Kíktu á www.Krafla.is

Árbæjarblaðið Fréttir13

Vorferðin 2007

Það er mjög gott að búa í Grafar-holti, en Grafarholtið er eitt af nýrrihverfum borgarinnar og enn er þaðsvo að við íbúarnir sækjum töluvertaf þeirri þjónustu sem við þörfn-umst dags daglega í önnur hverfiborgarinnar. Ég fagna því mjög að núhefur Strætó bætt við sínar sam-göngur okkur í hag, en frá 3. júní get-um við í Grafarholtinu tekið leið 18hvort heldur er í Árbæinn eða Graf-arvoginn án þess að þurfa að skiptaum vagn. Þessi breyting er því mikilbót fyrir notendur Strætó í Grafar-holtinu.

Stærsti notendahópur Strætóskólafólk og aldraðir eru jú þeir semþurfa einmitt að sækja mikið afþjónustu út fyrir hverfið. Þar ber

helst að nefna börnin okkar en nú ergreið leið fyrir þau t.d. í sundlaug-arnar í þessum hverfum og svo erákveðinn hluti þeirra sem æfa

íþróttir bæði með Fylki og Fjölni.Annar hópur fólks eru aldraðir enþeir sækja allt sitt félagsstarf og fé-lagsþjónustu í Hraunbæ og nú fervagninn okkar beina leið þangað.

Þetta er því mikil samgöngubót fyrirokkur íbúa Grafarholts og ætti aðgera öllum auðveldara fyrir að velja

sér sam-göngu-máta viðhæfi.

Birna Kristín Jónsdóttir,formaður Hverfisráðs Grafarholts

og Úlfarsárdals

Loksins rann upp fimmtudagur-inn 3. maí. Við vorum að fara í ferðmeð Erlu og Maddý í dag, klukkanætlaði aldrei að verða hálf ellefu.

Veðrið var gott, sól og svolítillvindur. Við byrjuðum á að fara yfirreglurnar sem við áttum að fara eft-ir, þ.e. að vera stillt og kurteis ekkitroðast í sundinu eða á pizzustaðn-um og svoleiðis.

Rútan var komin og við lögðum afstað, við ætluðum að fara suður meðsjó. Fyrst fórum við í sund í Vatna-veröld í Keflavík. Þar var rosalegagaman. Þar er stór rennibraut ogstöng með fjórum fötum efst semhvolfast við þegar þær eru orðnarfullar af vatni. Það var gaman aðstanda fyrir neðan og fá vatnið yfirsig. Svo eru líka sex litlar renni-brautir á einum stað er sveppur semhægt er að fara inn í. Þar fór ég (Dag-ur) í jóga það var mjög notalegt.

Svo er heitur pottur úti sem allirfóru í að lokum. Nú voru allir sáttirvið að fara upp úr.

Komið var að hádegismat. Við fór-um á pizzustað og fengum okkur aðborða á stað sem heitir Langbest.Pizzurnar þar eru líka langbestar.Svenni og Bergur fóru í kappát ogSvenni vann. Þegar allir höfðu feng-ið nóg í sinn maga var farið í rútunaá ný.

Nú var ferðinni heitið út á Garð-skaga. Fyrst skoðuðum við gamlavitann. Hann nær alveg út í sjó viðgátum gengið í kringum hann. Svofengum við að fara upp í nýja vitann.Hann er hæsti viti á Íslandi með 17glugga í röð upp eins og hann sé 17hæðir. Hann er 28,6 metrar á hæð.Nú erum við fræg !

Þegar allir voru komnir niður fór-um við í fótbolta. Þar fengum við lið-sauka sem var hundur hann varmjög skemmtilegur og góður í fót-bolta. Þegar við fórum elti hann rút-una. Svo fórum við niður í fjöruIngvi var með málmleitartæki ogDagur fann krónupening með því.Svo pípti tækið á stein, kannski vargull inni í honum!

Sumir fóru að fleyta kerlingar ogaðrir voru bara að athuga hvort þeirsæju eitthvað merkilegt. Nú voruallir orðnir svangir á ný. Við fórumí húsið hennar Erlu og þar beið okk-ar heitt kakó og vöfflur og við átum áokkur gat. Um kl. fjögur var lagt afstað heim.

Allir þreyttir og sælir, sumirfengu sér blund á heimleiðinni.

Þetta var góður dagur.Höfundar: Anna Sigríður, Arn-

heiður Erla, Axel Andri, Árni Elvar,Bergur Blær, Helena Júlía, IngviMár, Magnús Ingi, Sigurveig Ankita,Sveinn José, Dagur Adam, HrafnkellHilmar og Jón Frímann, frábærirkrakkar í frístundaheimilinu Skóla-seli við Ártúnsskóla!

Birna Kristín Jóns-dóttir, form. Hverfis-ráðs Grafarholts ogÚlfarsárdals, skrifar:

Það er gott að búa í Grafarholti

Skemmtilegar teikningar frá vorferð krakkanna á frístundaheimilinu Skólaseli við Ártúnsskóla.

Glæsileg teikning af Garðskagavita.

Page 13: Arbaejarbladid 6.tbl 2007

Tölvubúnaður – EftirlitsmyndavélarÞjónusta fyrir fyrirtæki og einstaklinga.

BST Gylfaflöt 24-30 Sími: 5679760 www.bst.is

Spönginni

Sími: 5 700 900

BYR - sparisjóður | Sími 575 4000 | www.byr.is

Er þitt fyrirtæki að fá það besta sem við höfum að bjóða?Persónuleg og vönduð þjónusta, sérsniðin að þörfum hvers og eins er það besta sem við höfum að bjóða. Með lipru skipulagi og stuttum boðleiðum bjóðum við þér skýrar og einfaldar þjónustuleiðir og þú velur það sem þér hentar hverju sinni. Kynntu þér málið – við leitum lausna.

Page 14: Arbaejarbladid 6.tbl 2007

PIP

AR

• S

ÍA •

70

99

4

Nánari upplýsingar á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000

„Hvað er með Ásum?“Ævintýraferð í goðheima fyrir alla fjölskylduna. Goðastyttur Hallsteins Sigurðssonar við texta Árna Björnssonar, þjóðháttafræðings.Laxárstöðvar í Aðaldal

Orka í iðrum jarðar!Heimsækið gestastofuna í Kröflu, sjáið myndir frá Kröflueldum. Kynnist jarðvarma og orkuvinnslu.Kröflustöð í Mývatnssveit

List í eigu LandsvirkjunarListaverk sem sjaldan hafa komið fyrir almenn-ingssjónir – mörg hver með áhugaverða sögu sem tengist Landsvirkjun og orkumálum.Ljósafossstöð við Sog

Kynnist Kárahnjúkavirkjun!Upplýsingar um Kárahnjúkaframkvæmdirnar ásamt ferðamennsku og útivist norðan Vatnajökuls. Góður viðkomustaður áður en haldið er upp á Fljótsdalsheiði.Végarður í Fljótsdal

Líf í ÞjórsárdalÓmissandi viðkomustaður á leiðinni inn á Sprengisand og í Veiðivötn.Sultartangastöð ofan Þjórsárdals

Heimsókn í HúnaþingKynnið ykkur orkumál og starfsemi Blöndustöðvar í starfsmannahúsi stöðvarinnar.Blöndustöð, Húnaþingi

Kynnist okkur af eigin raunHeimsækið Landsvirkjun í sumar.

Stöðvarnar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar.

Komdu í heimsókn í sumar!

Landsvirkjun býður landsmönnum að heimsækja sex stöðvar í sumar þar sem bæði er hægt að kynna sér staðreyndir

um umhverfisvæna íslenska orku og skoða fjölbreyttar sýningar um menningu, list og sögu.

Íslensk orkumál og virkjanir – alþjóðleg fyrirmynd í umhverfismálum

Fyrstu sýningar opna 9. júní

Page 15: Arbaejarbladid 6.tbl 2007

Nú hefur myndast nýr meðbyr í persónulegri fjármálaþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki

BYR - sparisjóður | Sími 575 4000 | www.byr.is