Fermingarbæklingur - Skátarnir

10
Óskalisti fermingarskátans. Vorið 2011

description

Fermingarbæklingur 2011

Transcript of Fermingarbæklingur - Skátarnir

Page 1: Fermingarbæklingur - Skátarnir

Óskalisti fermingarskátans.

Vorið 2011

Page 2: Fermingarbæklingur - Skátarnir

Er komið að fermingu? Ertu búin(n) að ákveða hvað þig langar að fá í fermingargjöf? Hér eru nokkrar nýjar og frábærar útivistarvörur sem þú getur sett á óskalistann þinn. Vantar þig ekki pottþétta gönguskó? Eða fjölhæfan áttavita? Kíktu á úrvalið! Vörurnar er hægt nálgast í Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, panta í síma 5509800 eða kaupa í gegnum netverslun Skátabúðarinnar. Opnunartími: Virkir dagar 11-17

Page 3: Fermingarbæklingur - Skátarnir

Igloo 3 season Á Íslandi er allra veðra von og þar sem þriðjungur sólarhringsins fer í að sofa, er gott að svefnaðstæður séu hlýjar og þægilegar þrátt fyrir hríðarbyl eða nístingskulda. Ajungilak Igloo 3 season svefnpokinn er þægilega rúmgóður en þó vel einangraður, svo að ekki ætti að væsa um þig! Igloo 3 season í tölum: Trefjafylling Lengd: 195 cm. Þyngd: 1850 gr. Lítrar: 9.1 Hitastig:

Þægindamörk: -3

Ytri þolmörk: -19

Venjulegt verð: 24.900 Handhafar skátaskírteinis: 19.920

Page 4: Fermingarbæklingur - Skátarnir

Sella Hvort sem um er að ræða útilegu í Þrymheimum, Esjuklifur eða einfaldlega gönguferð um Seltjarnarnesið, þá eru Sella-skórnir algjör snilld! Vatnsheldir og gripmiklir, en þó mjúkir, nettir og mjög léttir; aðeins 320gr! Skórnir eru með Vibram Mars-sólum sem henta vel í íslenskum aðstæðum og Nubuck-leður gerir skóna mjúka og þæginlega.

Venjulegt verð: 21.489 Handhafar skátaskírteinis: 17.908 Fæst í stærðum: 36-45

Öllum gönguskóm

fylgir Kiwi vatnsvörn!

Page 5: Fermingarbæklingur - Skátarnir

Pelmo Sé rólegt labb í Elliðaárdalnum ekki nógu mikil áskorun fyrir þig væri það ekki illa ígrundað að skella sér á Pelmo gönguskó. Skórnir fá fullt hús stiga hvað varðar gæði, þeir eru léttir og styðja vel við öklana þegar á reynir. Gúmmíkantar verja skóna fyrir hnjaski og fáir saumar eru á Nubuck-leðrinu sem gerir skóna enn vatnsheldari. Skórnir eru með Sympatex-fóðri og Vibram Rubber-sóla.

Venjulegt verð: 34.788 Handhafar skátaskírteinis: 28.990 Fæst í stærðum: 36-45

Öllum gönguskóm

fylgir Kiwi vatnsvörn!

Page 6: Fermingarbæklingur - Skátarnir

Recta Ds 40 Recta Ds 40 áttavitinn er góður byrjendakompás með spegli fyrir þá sem vilja síður rammvillast á Hellisheiðinni!

Sjálflýsandi skífa og merkingar

Skalar: 1:10 000, 1:15 000

Stærð: 75 x 55 x 17 mm (lokaður)

Þyngd: 44 g

Venjulegt verð: 4.900 Handhafar skátaskírteinis: 3.900

Page 7: Fermingarbæklingur - Skátarnir

Recta Ds 50 Ertu villtur í lífinu? Eða bara villtur og trylltur útivistarfrömuður? Hvort heldur sem er, þá er Recta Ds 50 áttavitinn rétti áttavitinn fyrir þig!

Sjálflýsandi skífa með sjálfhreinsibúnaði.

Stillanlegur kvarði fyrir misvísun.

Sjóngat í spegli.

Stækkunargler, 15 mm í þvermál.

Innbyggður hallamælir.

Breytingartafla; gráður/halli í %.

Stamir gúmmíkantar.

Grunnkvarðar: 1:50 000 og 1:25 000.

Hliðarkvarðar: 1:10 000 and 1:15 000.

Stærð: 65 x 101 x 18 mm (lokaður)

Þyngd: 70 g

Venjulegt verð: 11.125 Handhafar skátaskírteinis: 8.900

Page 8: Fermingarbæklingur - Skátarnir

Góða ferð Góða ferð - handbók um útivist er einskonar alfræðirit fyrir útivistariðkendur, bæði byrjendur og lengra komna. Í henni er farið yfir alla grunnþætti útivistariðkunnar, eins og klæða- og útbúnaðarval, rötun og leiðarval, næringu, veður og fyrstu hjálp, svo eitthvað sé nefnt. Í bókinni er fjöldinn allur af ljósmyndum, skýringarmyndum, listum og töflum sem gera bókina aðgengilega og auðvelda aflestrar.

Venjulegt verð: 4.390,- Handhafi skátasirteinis: 3.700,-

Handbók um

útivist

Page 9: Fermingarbæklingur - Skátarnir

Led Lenser H4

Led Lenser H4 ljósið er í raun þrjú ljós í einu ljósi; vasaljós, höfuðljós og gönguljós. Hægt er að hafa allt ljósið í heilu lagi, smella því við buxnastrenginn og svo taka ljósið sjálft úr hulstrinu og nota það sem höfuðljós.

20m ljósgeisli

45 lm ljósstyrkur

15 tíma batteríending

tekur 3 x AAA rafhlöður

3 LED ljós Buxnasmella sem getur snúist 360°

Venjulegt verð: 8.400,- Handhafi skátasirteinis: 6.720,-

Page 10: Fermingarbæklingur - Skátarnir

Óskalistinn minn:

Sella gönguskór, stærð:

Pelmo gönguskór, stærð:

Igloo 3 season svefnpoki

Recta Ds 40 áttaviti

Recta Ds 50 áttaviti

Merktu við það sem þig langar að fá í fermingargjöf, klipptu miðann út og hengdu á ísskápinn. Það er aldrei að vita hvað ratar í pakkann!

Opnunartími Skátabúðarinnar:

Virkir dagar: 11-17 Skoðið líka netverslun á

www.skatar.is

Góða ferð - handbók um útivist

Led Lenser H4 Höfuðljós