Áhrif Netsins á nám og kennslu

29
Áhrif Netsins á Áhrif Netsins á nám og kennslu nám og kennslu Þuríður Jóhannsdótttir Fyrir Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, 19. Febrúar 2001

description

Áhrif Netsins á nám og kennslu. Þuríður Jóhannsdótttir Fyrir Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, 19. Febrúar 2001. Marchall Mcluhan: The Medium is the Massage 1967. - PowerPoint PPT Presentation

Transcript of Áhrif Netsins á nám og kennslu

Page 1: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Áhrif Netsins á nám og Áhrif Netsins á nám og kennslukennslu

Þuríður JóhannsdótttirFyrir Fræðslumiðstöð

Reykjavíkur, 19. Febrúar 2001

Page 2: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Marchall Mcluhan: The Medium is the Massage 1967

Stafrófið og prenttæknin ólu af sér og ýttu undir að heildir væru bútaðar niður, ólu af sér sérhæfingu og rufu tengsl. Rafmiðlarnir ala af sér og ýta undir einingu og þátttöku. Það er ómögulegt að skilja félagslegar og menningarlegar breytingar án þess að hafa þekkkingu á hvernig miðlarnir virka

Page 3: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Spurt er:

Hvernig hefur tækniþróun haft áhrif á menntun hingað til Kemur tölvutækni og Internet til með að hafa meiri áhrif

á menntun en aðrar tækninýjungar 20. aldarinnar? Hvernig breytir Netið möguleikum í menntun? Hvernig endurspeglast póstmódernískar hugmyndir í

námskenningum? Hvaða áhrif hefur það á nám og kennslu þegar nemendur

og kennarar taka upplýsinga- og samskiptatækni í þjónustu sína?

Page 4: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Veiðum menntun í NetiðUm námskenningar og nýja miðla og áhrif

þeirra á nám og kennslu Miðlun þekkingar og áhrif tækni á menntun Stefnur og straumar í námskenningum og tengsl þeirra

við nýtingu upplýsinga- og samskiptatækni í námi og kennslu

Nám sem félagslegt fyrirbæri; tölvustutt samvinnunám, gildi samræðu, tungumálið og önnur verkfæri í námi

Áhrif upplýsinga- og samskiptatækni á nám og kennslu Að verða læs og skrifandi á nýjan miðil – verkefni

nemenda og kennara á nýrri öld

Page 5: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Skólaform nútímans byggir á útbreiðslu bóka

Prenttækni og pappír sem auðveldar útbreiðslu ritmáls gerir kennslubókina að kennslutæki

Fleiri fá aðgang að menntunarauðlindum sem eru varðveittar í texta á bók

Til þess þurfa fleiri að verða læsir Strákar helst líka að læra að skrifa og

seinna stelpur líka

Page 6: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Tölvan og Internetið

Tölvan annars eðlis – ekki fyrst og fremst miðlill eins og bók, útvarp og sjónvarp

Geymir upplýsingar í texta, mynd og hljóði Tæki til að setja fram þekkingu í texta, mynd og hljóði Getur unnið úr efni, virkar sem framlenging á getu

mannsins – fljótari og nákvæmari Internetið er flutninga- og samskiptatæki sem bætist

við tölvuna. Staður fyrir birtingu efnis og öflugt alþjóðlegt

samskiptatæki

Page 7: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Tækniþróun í kennslu Comenius talaði um mikilvægi þess að höfða til

allra skynsviða í kennslu þegar á 17. öld Tilraunir með nýsigögn – en kennslubókin í

aðalhlutverki alla þessa öld Ingvar Sigurgeirsson: doktorsritgerð um notkun

námsefnis í skólum, rannsókn hófst 1987

– Flestir kennarar reiða sig á skólabækur: “Efni þeirra er undirstaða kennslunnar sem jafnframt stýrir því hvaða viðfangsefni eru tekin fyrir og í hvaða röð. [...] Allar algengustu kennsluaðferðirnar byggðu á því að farið var yfir skólabækurnar.” (I.S. 1994, 118)

Page 8: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Af hverju er líklegt að tölvan breyti meiru ?

Tæki sem nemandi getur nýtt sér til náms– Til upplýsingaöflunar– Til úrvinnslu úr upplýsingum– Til framsetningar á því sem hann hefur tileinkað sér

Fyrri tæki notaði kennarinn sem hjálpartæki við miðlun þekkingar– Ef það verður áfram svo er þá líklegt að tölvan og

Netið breyti einhverju ?– Er það forsenda breytinga að áherslan flytjist frá

kennslu á nám ?

Page 9: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Að skilja Netið sem miðil

ný grunngerð (infrastructure)í miðlun þekkingar

bylting sambærileg prenttækni og pappír sem stuðlaði að mikilli útbreiðslu bóka

aðgangur að þekkingu tæki til samskipta staður fyrir útgáfu/birtingu efnis alþjóðlegt eðli miðilsins mikilvægt

Page 10: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Netið gefur kost á að hafa áhrif á lýðræði

fleira fólk á þess kost að fá aðgang að menntunarauðlindum

fleiri eiga þess kost að taka þátt í uppbyggingu menningararfsins

að geta „lesið og skrifað“ á Netinu er þó forsenda þátttöku og áhrifa

Sumir segja að Netið ýti undir anarkisma og grafi undan valdi ríkisins. Er það gott eða vont

Grefur Netið þá kannski undan valdi kennarans ?

Page 12: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Sigurjón Mýrdal og Hörður Bergmann: hugmyndir um nám

Curriculum- haupabraut Að ganga menntaveginn Að afla sér menntunar Netið er veiðarfæri Hörður Bergmann heldur því fram að

með upplýsingatækni skapist forsendur til að losa um tengsl menntunar og skóla

Page 13: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Skólinn þjálfi annars konar færni

Færni í að skanna – vera fljót að öðlast yfirsýn yfir þær upplýsingar sem tiltækar eru. Mjög góð lestrarfærni er þarna forsenda árangurs.

Færni í að tileinka sér mikið magn upplýsinga hratt og skipulega, að kunna að greina hismið frá kjarnanum og átta sig á hvað gagnast hverju sinni. Þetta krefst skarpar hugsunar.

Færni í samskiptum sem felst í að geta komið frá sér afrakstrinum af því sem fékkst með því að skanna og tileinka sér þannig að aðrir skilji. Til þess þarf nákvæmni og skýra hugsun og mjög góða ritfærni.

(Byggt á hugmyndum Donlevy og Donlevy (1995) samkvæmt Collis 1996:588)

Page 14: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Hvernig viljum við nota tæknina? Til að gera núverandi kerfi skilvirkara? Efasemdir Betty Collis http://users.edte.utwente.nl/collis/

Til að leiða menntakerfið út úr kreppunni? Varað er við tæknihyggju sem heldur að skólar

muni sjálfkrafa breytast með tilkomu tölvu- og upplýsingatækni Sjá t.d. Gavriel Salomon It's not just the tool, but the educational rationale that counts

Langtímaáhrif oftast ófyrirséð og önnur er búist var við

Skilja tæknina og möguleikana Skilja vanda skólakerfisins

Page 15: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Eftirnútíminn (póstmódernismi) og ný hugsun

Hvorki með né á móti tækninýjungum Hluti af fjölbreytilegu samfélagi Tími hinna stóru kerfa og stórasannleika

er liðinn Gjaldþrot nútíma framfarahugsunar Tími hinnar módernísku vissu og

sannleika vísindanna liðinn Áhrif kaoskenninganna

Page 16: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Internetið og kaoskenningar

kaoskenningar komnar frá raunvísindunum eiga ekki síður við um félagsleg kerfi eins og skóla grafa undan viðteknum aðferðum í skólaþróun sem

líta á skólakerfið eins og verksmiðju þar sem stýra má ferlum

grefur undan markmiðssetningarstefnu sem byggir á opinberum markmiðum í námskrá

markmið sem einstaklingur setur sér merkingarbærari

Page 17: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Internetið er póstmódernískur miðill

Prentað mál hefur einkenni stöðugleika Línuleg framsetning textans er rökleg og

leiðir til niðurstöðu Texti á Netinu er óstöðugur Sannleikurinn fljótur að breytast Texti hefur hvorki upphaf né endi Lesandinn verður sjálfur að ákveða

hvenær hann hefur komist að niðurstöðu og getur hætt

Page 18: Áhrif Netsins á nám og kennslu

CAI - tölvustutt nám (fyrstu hugmyndir um nýtingu tölvu í námi)

byggir á atferlisstefnunni (behaviorism) litið á nám sem tileinkun viðurkenndrar

þekkingar byggir á rannsóknum á skilvirkni í kennslu kennsla felst í að flytja þekkingu einföld skýr og praktísk kennslutæki ferli aðgerða leiðir nemandann gegnum

efnið

Page 19: Áhrif Netsins á nám og kennslu

ITS – Intelligent tutoring systems(gagnvirk kennsluforrit eða kennsluforrit með

innbyggðri leiðsögn) byggir á rannsóknum í vitsmunasálarfæði lítur á þekkinguna sem gefna nám er ferli þar sem nemandinn öðlast betri

skilning á viðfangsefninu kennslan felst í aðgerðum sem eru hannaðar til

að auðvelda nemanda að tileinka sér námsefni námsmarkmið greind í undirþætti, búin til

gagnvirk kynning á efninu sem auðveldar námsferlið

Page 20: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Tölvustutt samvinnu-nám (CSCL)

Stefna í kennslufræði sem byggir á – kenningum um gildi samfélags og menningar

í námi (socio-cultural theories – Vygotsky)– kenningum um aðstæðubundið nám

(situated learning – Jean Lave, Wenger)– kenningum um dreifða greind/vitsmuni (Salomon,

Perkins)– félagslegri hugsmíðahyggju

(social constructivism)

Page 21: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Af hverju dreifðir vitsmunir

aukið mikilvægi tækni við vitsmunaleg verkefni - léttir álag á einstaklinga

áhersla á félagslegt eðli náms vitsmunir háðir aðstæðum skýringar sem reikna með að greind sé aðeins í

huga einstaklings ófullnægjandi

Page 22: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Nám sem félagslegt fyrirbæri

nám er ferli sem byggist á sameiginlegri þátttöku í virkri uppbyggingu þekkingar

áhersla er lögð á samhengi, samspil og aðstæður sem námið á sér stað við

andstæða við einstaklingsbundið nám sem byggir á að tileinka sér þekkingu og færni sem er yfirfæranleg

Page 23: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Aðstæður til náms

tækifæri til athafna aðgangur að þekkingu eða upplýsingum svörun við verkum sínum leiðbeiningu og stuðning við að skilja hvetjandi og gefandi

Page 24: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Félagslegt nám

virk samhjálp í einstaklingsnámi samhjálp við að byggja upp sameiginlega

þekkingu samfélagsleg hjálp með stuðningi frá

menningunni - verkfæri, bækur - Netið... stofnun sem lærir að læra að læra í félagi að læra um félagsleg samskipti

Page 25: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Tölvan og Netið sem verkfæri

verkfæri til:– samskipta– þekkingaröflunar– útgáfu/birtingar efnis

hanna námsumhverfi sem nýtir kosti tölvunnar og Netsins

kaos á Internetinu - nýta sér sköpunarkraftinn sem felst í óreiðunni

gefa þó nemendum akkeri eða öryggisnet

Page 26: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Stuðla að árangursríkri notkun Netsins

Skapa aðgang að ríkulegum upplýsingum. Hvetja til merkingarbærs samspils

nemenda og efnis á Netinu. Skapa tengls á milli fólks sem á síðan að

örva, styðja og veita hvert öðru svörun.

(Greeno og fl. 1998:17, vitnað eftir Wilson, 2000:5)

Page 27: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Vel heppnuð samvinna ?

virk þátttaka persónuleg ábyrgð að þörfin hvert fyrir annað sé raunveruleg að deila með öðrum að láta sig varða - námið og aðra ávinningur t.d. af verkaskiptingu,

skoðanaskiptum, jafningjamati...

Page 28: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Hlutverk kennara mikilvægt

gefandi samskipti skjót svörun leiðsögn sem tekur mið af

einstaklingsþörfum og aðstæðum hvatning og umræða um verkefni

nemenda fremur en einkunnir og rétt svör markmið kennara að auðvelda nám

Page 29: Áhrif Netsins á nám og kennslu

Þekkingarfræðin og kennslufræðin “Eftir hrun stórsagnanna höfum við ekki fyrirframgefin markmið sem

segja okkur fyrir verkum, heldur verðum við sjálf að skapa inntak, merkingu og markmið lífs okkar. “ (Sigríður Þorgeirsdóttir. TMM 1998)– Afstaða til þekkingar hefur breyst– Þekkingin er ekki viss staðreynd heldur afstæð og skeikul– Hversu langan tíma tekur að breyta viðhorfum fólks til

þess hvað skóli og menntun á að vera ?– Hvenær eru nemendur tilbúnir til að taka ábyrgð á eigin

námi?– Hvenær eru kennarar tilbúnir til að leyfa þeim það?