TÆKJASJÓÐUR

45
TÆKJASJÓÐUR

description

TÆKJASJÓÐUR. Tækjasjóður – stjórn. Tækjasjóður. Lög og reglur Lög um opinberan stuðning við vísindarannsóknir nr. 3/2003 - PowerPoint PPT Presentation

Transcript of TÆKJASJÓÐUR

Page 1: TÆKJASJÓÐUR

TÆKJASJÓÐUR

Page 2: TÆKJASJÓÐUR

Tækjasjóður – stjórn

Aðalmenn Varamenn

Dr. Guðrún Nordal, prófessor, Háskóla Íslands, formaður

Dr. Allyson Macdonald, prófessor, Háskóla Íslands

Dr. Alda Möller, sjálfstætt starfandi verkefnastjóri

Dr. Jakob K. Kristjánsson, Tæknisetri Arkea ehf.

Dr. Unnur Þorsteinsdóttir, Íslenskri erfðagreiningu ehf.

Dr. Magnús Gottfreðsson, Landspítala-háskólasjúkrahúsi

Dr. Ólafur Arnalds, Landbúnaðarháskóla Íslands

M.Sc. Bryndís Brandsdóttir, Raunvísindastofnun Háskólans

Dr. Bjarki A. Brynjarsson, Öskum Capital hf.

Dr. Hannes Jónsson, prófessor, Háskóla Íslands

Page 3: TÆKJASJÓÐUR

Tækjasjóður

Lög og reglur

Lög um opinberan stuðning við vísindarannsóknir nr. 3/2003

1. gr.: „Markmið laga þessara er að efla vísindarannsóknir og vísindamenntun á Íslandi með því að styrkja grunnrannsóknir og hagnýtar rannsóknir og stuðla að samvinnu þeirra aðila sem starfa að vísindarannsóknum jafnframt því að tryggja áreiðanleika og gæði upplýsinga um vísindi og rannsóknir hér á landi.“

Page 4: TÆKJASJÓÐUR

Tækjasjóður

Lög og reglur

Lög nr. 3 frá 20032. gr.: „Hlutverk Tækjasjóðs er að veita rannsóknastofnunum styrki til

kaupa á dýrum tækjum og búnaði til rannsókna. Við úthlutanir úr Tækjasjóði skal taka mið af úthlutunarstefnu Rannsóknasjóðs á hverjum tíma.“

Page 5: TÆKJASJÓÐUR

Tækjasjóður

Lög og reglur

Lög nr. 3 frá 20038. gr.: „Vísindanefnd Vísinda- og tækniráðs markar úthlutunarstefnu

Rannsóknasjóðs og Tækjasjóðs. Stjórn Rannsóknasjóðs gefur út reglur um umsóknir, meðferð þeirra og úthlutun eigi síðar en sex vikum fyrir lok umsóknarfrests. Þar skulu koma fram skilyrði umsókna og áherslur Vísinda- og tækniráðs.“

Page 6: TÆKJASJÓÐUR

Rannsóknasjóður

Alþingi

Vísinda- og tækniráðSex ráðherrar og 14 einstaklingar frá ráðuneytum,

vísindasamfélaginu og iðnaði – forsætisráðherra er formaður

Ríkisstjórnin

Menntamálaráðuneytið Iðnaðarráðuneytið

Vísindanefnd Tækninefnd

RannsóknamiðstöðÍslands

Tækjasjóður

Rannsóknarnámssjóður

Tækniþróunarsjóður

Nýsköpunarmiðstöð

Markáætlun:Erfðafræði og örtækni

Markáætlun:Öndvegissetur og klasar

NýsköpunarsjóðurNámsmanna

Page 7: TÆKJASJÓÐUR

Lög og reglur

Reglur TækjasjóðsStjórn sjóðsins gefur út reglur ár hvert.Í reglum koma m.a. fram upplýsingar um

– Styrkhæfi– Viðurkenndan kostnað– Mats- og ákvarðanaferli– Greiðslur og eftirfylgniReglurnar eru birtar á heimasíðu Rannís og eru

endurskoðaðar ár hvert

Tækjasjóður

Page 8: TÆKJASJÓÐUR

TækjasjóðurStyrkhæfi og viðurkenndur kostnaður

Háskólar og rannsóknastofnanir geta sótt um styrk til tækjakaupa.

Einungis kostnaður við kaup tækis og búnaðar er styrktur.– Rekstrarkostnaður, kostnaður vegna þjálfunar og annar

jaðarkostnaður er ekki styrktur.– Nauðsynlegt að gera grein fyrir því hvernig á að reka tæki í

umsókn.

Upphæðin sem kemur úr sjóðnum er undanþegin virðisaukaskatti.

Page 9: TÆKJASJÓÐUR

Tækjasjóður

Almennur umsóknarfrestur er

18. febrúar 2009

Umsóknir eru rafrænar

Page 10: TÆKJASJÓÐUR

Framlag Tækjasjóðs greiðir aðeins hluta kostnaðar við fjárfestinguna og er að jafnaði miðað við 25% mótframlag hið minnsta.

Uppbygging aðstöðu vegna rannsóknatækjanna og annar jaðarkostnaður svo sem þjálfun starfsmanna eru ekki styrkt og teljast að jafnaði ekki mótframlag.

Ekki er veittur styrkur fyrir rekstrarkostnað og hann telst ekki mótframlag.

Tækjasjóður

Page 11: TÆKJASJÓÐUR

Skilgreiningar stjórnar Tækjasjóðs á tækjum og búnaði vegna rannsókna eru miðaðar við viðurkennda skilgreiningu Evrópusambandsins á innviðum rannsókna og eru þannig:

– Dýr rannsóknatæki eða seríur rannsóknatækja. – Upplýsingatækni til nýtingar á vísindagögnum svo

sem net (e. grid), tölvur, hugbúnaður og samskiptakerfi.

– Annar búnaður sem er einstakur að gerð og nýtist til að ná árangri í rannsóknum.

Tækjasjóður

Page 12: TÆKJASJÓÐUR

Umsóknargerð – EyðublaðMikilvægi tækja og/eða búnaðar fyrir framfarir í rannsóknum á Íslandi og fyrir rannsóknir umsækjenda.

Hvort fjárfesting í tækjum og búnaði sé til uppbyggingar nýrrar aðstöðu sem skapi nýja möguleika til rannsókna og/eða að tæki og búnaður tengist verkefnum sem Rannsóknasjóður styrkir.

Hvort tækin og búnaðurinn sé staðsettur á rannsókna- og háskólastofnunum.

Hvort samstarf verði um nýtingu tækja og búnaðar milli stofnana eða milli stofnana og fyrirtækja með fyrirsjáanlegum hætti.

Kostnaði og fjármögnun á kaupunum.

Tækjasjóður

Page 13: TÆKJASJÓÐUR

Umsóknargerð - Fylgiskjöl

Verðtilboð

Ferilskrár umsækjenda

Skýringar á kostnaði. Gera skal ítarlega grein fyrir öllum kostnaði og fjármögnun tækja og búnaðar. Koma skal fram hvaða gengi er notað ef verðtilboð eru í erlendri mynt. Allar upphæðir skulu vera í þús. kr. og án VSK.

Tækjasjóður

Page 14: TÆKJASJÓÐUR

Umsóknargerð – Kostnaður

Tæki og búnaður sem keyptur er fyrir styrk úr Tækjasjóði er undanþeginn virðisaukaskatti af framlagi sjóðsins til kaupanna (sjá 11. grein reglugerðar 797 2000 um niðurfellingu á VSK).

Upphæð sem þannig sparast telst ekki mótframlag.

Tækjasjóður

Page 15: TÆKJASJÓÐUR

Ekki styrkt og/eða telst ekki sem mótframlag:

– Uppbygging aðstöðu vegna rannsóknatækjanna.

– Annar jaðarkostnaður svo sem þjálfun starfsmanna.

– Rekstrarkostnaður tækis eða búnaður.

– Upphæð sem sparast vegna endurgreiðslu virðisaukaskatts telst ekki sem mótframlag.

Tækjasjóður

Page 16: TÆKJASJÓÐUR

Tækjasjóður

Mat umsókna

Stjórn Rannsóknasjóðs biður sérskipað fagráð um að meta hvort:– Umsókn sé styrkhæf.– Tækin nýtist í verkefnum sem Rannsóknasjóður (eða

sambærilegur aðili) og markáætlun um öndvegissetur og klasa styrkir.

– Uppbygging aðstöðu skapi nýja möguleika fyrir rannsóknir.– Sambærileg aðstaða sé fyrir hendi.– Tækin séu mikilvæg.– Umsækjandi sé virkur rannsakandi.– Samvinna verði um notkun tækisins.

Page 17: TÆKJASJÓÐUR

Samningur

Styrkþegar gera samning um kaupin við Rannís fyrir hönd Tækjasjóðs.

Í samningi kemur fram hvernig framkvæmdin er fjármögnuð í heild bæði er varðar kaup og rekstur.

Styrkur er greiddur út gegn framvísun reikninga samkvæmt samþykktri greiðsluáætlun.

Allir sem koma að umsókninni, ábyrgðarmenn og aðrir sem ábyrgjast fjármögnun og rekstur tækisins, skulu skrifa undir samninginn.

Tækjasjóður

Page 18: TÆKJASJÓÐUR

Eftirfylgni

Ætlast er til að styrkþegar svari könnun um notkun styrksins 2-4 árum eftir að styrkur er veittur, til að tryggja eftirfylgni sjóðsins með styrkveitingum.

Tækjasjóður

Page 19: TÆKJASJÓÐUR

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur vel og rækilega.

Page 20: TÆKJASJÓÐUR

Tækjasjóður

Nánari upplýsingar

Á heimasíðu Rannís, www.rannis.is: Reglur og leiðbeiningar 2009Allar umsóknir eru rafrænar

Nánari upplýsingar um sjóðinn veita:Hallgrímur Jónasson ([email protected])Magnús Lyngdal Magnússon ([email protected])

Page 21: TÆKJASJÓÐUR

RANNSÓKNARNÁMSSJÓÐUR

Page 22: TÆKJASJÓÐUR

Rannsóknarnámssjóður

Hlutverk Rannsóknarnámssjóðs er að veita styrki til rannsóknartengds framhaldsnáms við háskóla eða á ábyrgð hans í samvinnu við rannsóknastofnanir eða fyrirtæki, hvorttveggja í námi á Íslandi og erlendis (sbr. Lög um opinberan

stuðning við vísindarannsóknir nr. 3/2003).

Um 100 milljónir króna til úthlutunar á ári(hefur vaxið um 10 milljónir á ári undanfarin ár og á að vera orðinn 120 milljónir 2011)

Page 23: TÆKJASJÓÐUR

RannsóknarnámssjóðurStjórn Rannsóknarnámssjóðs

Prófessor Jón Atli Benediktsson, Háskóla Íslands (formaður)

Prófessor Inga Þórsdóttir, Landspítala háskólasjúkrahúsi

Prófessor Allyson Macdonald, Háskóla Íslands

RANNÍS annast umsýslu sjóðsins

Page 24: TÆKJASJÓÐUR

RannsóknarnámssjóðurTvenns konar styrkir í boði:

Almennir styrkir Fyrirtækja- og stofnanastyrkir (FS-

styrkir)

Umsóknarfrestir: Almennir styrkir

Umsóknarfrestur rennur út byrjun mars 2009

FS-styrkirÞrír umsóknarfrestir á ári: mars, ágúst og nóvember

Page 25: TÆKJASJÓÐUR

RannsóknarnámssjóðurStyrkupphæðir

Almennir styrkir• Fjárhæð styrkja til doktorsnema skal að jafnaði nema um

250 (265) þúsund krónum á mánuði í allt að þrjú ár eða samtals að hámarki um 9 (9,5) milljónir króna

• Fjárhæð styrkja til meistaranema skal að jafnaði nema um 200 (210) þúsund krónum á mánuði í allt að 12 mánuði eða samtals að hámarki um 2,4 (2,52) milljónir króna.

• Stjórn Rannsóknarnámssjóðs tekur árlega ákvörðun um fjárhæð styrkja.

• Neminn er styrkþegi og rennur styrkurinn óskiptur til framfærslu hans.

Page 26: TÆKJASJÓÐUR

RannsóknarnámssjóðurStyrkupphæðir

FS-styrkir Miðað er við að Rannsóknarnámssjóður leggi að hámarki

helming af almennum styrkjum á móti framlagi fyrirtækis/stofnunar í einstaka styrki, en þó aldrei hærri upphæð en viðkomandi fyrirtæki/stofnun.

Page 27: TÆKJASJÓÐUR

FS-styrkir (frh.) Meistaranemar fá framfærslustyrk að hámarki í 4,5 mánuði

fyrir 30e (60 ECTS) verkefni (900 (945) þúsund krónur) og í 6 mánuði fyrir 45e (90 ECTS) verkefni (1.200 (1.260) þúsund krónur) frá Rannsóknarnámssjóði.

Doktorsnemar fá framfærslustyrk að hámarki í 12 mánuði frá Rannsóknarnámssjóði (3.000 (3.180) þúsund krónur).

Sem framlag fyrirtækis eða stofnunar skal einungis meta framfærslustyrk viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar til nemandans.

Rannsóknarnámssjóður

Page 28: TÆKJASJÓÐUR

RannsóknarnámssjóðurStyrkhæfi

Doktorsnemar geta sótt um styrk til allt að þriggja ára. Meistaranemar geta sótt um styrk til vinnu að meistaraverkefni

í allt að 12 mánuði. Rannsóknarverkefni skal að minnsta kosti vera 30e (60 ECTS).

Sé námið stundað við háskóla erlendis skal rannsóknarverkefnið lúta að íslensku viðfangsefni og vísindamaður með starfsaðstöðu á Íslandi taka virkan þátt í leiðbeiningu nemandans.

Framlag leiðbeinanda hér á landi þarf að vera verulegt og vel skilgreint (að minnsta kosti 25% af heildarleiðsögn).

Stundi nemandi nám við erlendan háskóla þarf að liggja fyrir ítarleg greinargerð um fyrirkomulag námsins við hlutaðeigandi háskóla.

Page 29: TÆKJASJÓÐUR

RannsóknarnámssjóðurMatsferli

Stjórn Rannsóknarnámssjóðs leitar faglegrar umsagnar um vísindalegt gildi verkefna, framkvæmda- og fjárhagsáætlun og vísindalega hæfni leiðbeinenda hjá tveimur óháðum sérfræðingum, áður er stjórnin úthlutar styrkjum.

Til þess að umsókn teljist styrkhæf verður vísindalegt gildi fyrirhugaðra rannsókna að vera ótvírætt og verkefni stúdentsins þarf að tengjast fræðasviði leiðbeinenda. Verkefnið þarf að vera vel skilgreint faglega. Námsáætlun og tímaáætlun þarf einnig að vera ljós.

Page 30: TÆKJASJÓÐUR

Rannsóknarnámssjóður

Einstakir þættir í mati

Við mat á umsóknum er meðal annars tekið tillit til eftirtalinna þátta:

1) Vísindagildi fyrirhugaðs rannsóknaverkefnis og frágangi umsóknar

2) Frammistöðu nemanda í námi

3) Rannsóknavirkni leiðbeinenda

4) Tengslum rannsóknarverkefnis við fræðasvið leiðbeinenda

Page 31: TÆKJASJÓÐUR

RannsóknarnámssjóðurFlokkunarviðmið stjórnar

Stjórn Rannsóknarnámssjóðs leggur eftirtalin skilyrði til grundvallar við flokkun umsókna (athuga ber misþungt vægi skilyrða):

1) Vísindalegt gildi verkefnisins (40%)

2) Frammistaða nemanda í námi (30%)

3) Rannsóknarverkefni leiðbeinanda (30%)

Enn fremur verður tekið tillit til þess hvort verkefni tengist fræðasviði leiðbeinanda.

Page 32: TÆKJASJÓÐUR

Rannsóknarnámssjóður

Umsókn ekki styrkhæf:1) Verkefnið hefur verulega annmarka

2) Einkunn nemanda er lægri en 50% einkunna á einkunnadreifingu viðkomandi deildar (skora); nemandi hefur ekki bætt úr því með einkunnum í framhaldsnámi

3) Leiðbeinandi hefur minna en 15e (30 ECTS) leiðbeiningarreynslu (á ekki við um leiðbeinendur sem nýlega hafa komið til starfa). Rannsóknavirkni leiðbeinanda er lítil.

4) Verkefni er utan fræðasviðs leiðbeinanda.

5) Umsókn er ófullnægjandi eða ófullgerð.

Page 33: TÆKJASJÓÐUR

Rannsóknarnámssjóður

Fjöldi umsókna og veittra styrkja 1993-2007

Page 34: TÆKJASJÓÐUR

Fjöldi umsókna og veittra styrkja 1993-2008

Rannsóknarnámssjóður

Page 35: TÆKJASJÓÐUR

Rannsóknarnámssjóður

Á heimasíðu Rannís, www.rannis.is: Reglur og leiðbeiningar 2009 (væntanlegar) Allar umsóknir eru rafrænar

Nánari upplýsingar um sjóðinn veitir:Kristín Ingvarsdóttir ([email protected] / 515 5800)

Page 36: TÆKJASJÓÐUR

NÝSKÖPUNARSJÓÐUR NÁMSMANNA

Page 37: TÆKJASJÓÐUR

Nýsköpunarsjóður námsmanna

Um Nýsköpunarsjóð námsmanna

Nýsköpunarsjóður námsmanna var stofnaður árið 1992 til þess að útvega áhugasömum nemendum sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknarefni.

Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunnnámi við háskóla til sumarvinnu að rannsókna- og þróunarverkefnum sem stuðla að nýsköpun og auknum tengslum atvinnulífs, stofnana og háskóla.

Rannís tók við umsýslu sjóðsins 2008.

Page 38: TÆKJASJÓÐUR

Nýsköpunarsjóður námsmannaStjórn

Stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna er skipuð fulltrúum frá vísindanefnd Vísinda- og tækniráðs, Samtökum iðnaðarins og Stúdentaráði H.Í. Fjórði fulltrúi er skipaður án tilnefningar og telst hann formaður sjóðsstjórnar.

Stefanía Óskarsdóttir, formaður (menntamálaráðherra) Bryndís Skúladóttir (SI) Oddný G. Harðardóttir (SÍS) Kristinn Andersen (vísindanefnd Vísinda- og tækniráðs) Yngvi Eiríksson (BÍN og Stúdentaráð HÍ)

Page 39: TÆKJASJÓÐUR

Nýsköpunarsjóður námsmanna

Helstu bakhjarlar sjóðsins:

MenntamálaráðuneytiReykjavíkurborgFramleiðnisjóður landbúnaðarinsÖnnur sveitarfélög (þ.m.t. Akureyrarbær, Ísafjörður, Sveitarfélagið Skagafjörður, Kópavogsbær o.fl.)

Page 40: TÆKJASJÓÐUR

Nýsköpunarsjóður námsmannaSótt og veitt

Ár Fjöldi umsókna Styrkt verkefni Hlutfall

2003 386 161 41,7%

2004 386 141 36,5%

2005 272 141 51,8%

2006 277 145 52,3%

2007 252 106 42,1%

2008 187 79 42,2%

Page 41: TÆKJASJÓÐUR

Nýsköpunarsjóður námsmannaUm styrkhæfi

Um styrki geta sótt einstaklingar, stofnanir og fyrirtæki. Umsóknir skulu vera á þar til gerðum eyðublöðum. Umsjónarmaður skal tilgreindur í umsókn og er hann jafnframt ábyrgðarmaður verkefnis.

Styrkir skulu veittir til rannsókna- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja.

Page 42: TÆKJASJÓÐUR

Nýsköpunarsjóður námsmannaUm mat umsókna

Styrkir skulu veittir til rannsóknarverkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja. Umsóknir um styrki skal meta með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein. Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns undir leiðsögn ábyrgðarmanna. Styrkir eru ekki veittir til lokaverkefna námsmanna. Stjórn er heimilt að veita forgang verkefnum taki fyrirtæki eða aðrir aðilar þátt í kostnaði.

Page 43: TÆKJASJÓÐUR

Nýsköpunarsjóður námsmannaUm mat umsókna

Námsmaður fer á launaskrá sjóðsins og vinnur verkefnið yfir sumarmánuðina – hámarksstyrkur fyrir hvern einstakling eru 3 mánuðir

Að hausti er lokaskýrslu verkefnis skilað.

Bestu verkefnin eru tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands.

Page 44: TÆKJASJÓÐUR

Nýsköpunarsjóður námsmannaLeiðbeinendur og ábyrðaraðilar

Umsjónarmenn verkefna sem unnin eru með styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna teljast ábyrgðaraðilar verkefnanna. Í því felst að umsjónarmenn sjá námsmanni fyrir aðstöðu til að vinna verkefnið, leiðbeina við vinnuna og veita nauðsynlegar upplýsingar.

Jafnframt þurfa umsjónarmenn að undirrita lokaskýrslu.

Skil á lokaskýrslu eru forsenda frekari styrkveitinga frá sjóðnum. 

Page 45: TÆKJASJÓÐUR

Á heimasíðu Rannís, www.rannis.is: Reglur og leiðbeiningar 2009 (væntanlegar) Allar umsóknir eru rafrænar

Nánari upplýsingar um sjóðinn veitir:Kristín Ingvarsdóttir ([email protected] / 515 5800)

Nýsköpunarsjóður námsmanna