Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi · 2016-09-01 · Einingar - námsvinna Námið er 90...

15
Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi Í samstarfi við Félagsráðgjafardeild HÍ, Rannsóknarstofu í barna-og fjölskylduvernd og Félags fagfólks í fjölskyldumeðferð september 2016 júní 2018

Transcript of Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi · 2016-09-01 · Einingar - námsvinna Námið er 90...

Page 1: Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi · 2016-09-01 · Einingar - námsvinna Námið er 90 ECTS eininga diplómanám á meistarastigi. Að námi loknu er hægt að sækja

Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi

Í samstarfi við Félagsráðgjafardeild HÍ, Rannsóknarstofu í barna-og fjölskylduvernd og

Félags fagfólks í fjölskyldumeðferð

september 2016 – júní 2018

Page 2: Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi · 2016-09-01 · Einingar - námsvinna Námið er 90 ECTS eininga diplómanám á meistarastigi. Að námi loknu er hægt að sækja

Efnisyfirlit

ALMENNAR UPPLÝSINGAR UM NÁM Í FJÖLSKYLDUMEÐFERÐ Á MEISTARASTIGI. ...................................................................................................... 3

HVAÐ ER FJÖLSKYLDUMEÐFERÐ? ................................................................................ 3 MARKMIÐ NÁMSINS .................................................................................................... 4 FYRIR HVERJA? ......................................................................................................... 4 HÆFNISVIÐMIÐ OG ÁVINNINGUR .................................................................................. 4 EININGAR - NÁMSVINNA .............................................................................................. 5 KENNARAR ................................................................................................................ 5 UMSJÓNARMENN NÁMSINS ......................................................................................... 5 FAGRÁÐ .................................................................................................................... 5 KENNSLUTILHÖGUN ................................................................................................... 6 NÁMSKEIÐ ................................................................................................................. 6 VERÐ........................................................................................................................ 6 NÁMSRÁÐGJÖF .......................................................................................................... 7 GREIÐSLUFYRIRKOMULAG .......................................................................................... 7

1. MISSERI – HAUST 2016 ........................................................................................ 8

ÞEKKINGARFRÆÐILEG ÞRÓUN FJÖLSKYLDUMEÐFERÐAR ................................................ 8 ÞJÁLFUN OG BEITING SÉRTÆKRA AÐFERÐA OG HANDLEIÐSLA ......................................... 9

2. MISSERI – VOR 2017 .......................................................................................... 10

MEÐFERÐARNÁLGUN OG SIÐFRÆÐI ........................................................................... 10 ÞJÁLFUN OG BEITING SÉRTÆKRA AÐFERÐA OG HANDLEIÐSLA ....................................... 11

3. MISSERI – HAUST 2017 ...................................................................................... 12

AÐFERÐAÞRÓUN OG MEÐFERÐARÁHERSLUR .............................................................. 12 ÞJÁLFUN OG BEITING SÉRTÆKRA AÐFERÐA OG HANDLEIÐSLA ....................................... 13

4. MISSERI – VOR 2018 .......................................................................................... 14

FJÖLSKYLDUSTEFNA, RANNSÓKNIR OG ÞRÓUNARSTARF .............................................. 14 ÞJÁLFUN OG BEITING SÉRTÆKRA AÐFERÐA OG HANDLEIÐSLA ....................................... 15

Page 3: Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi · 2016-09-01 · Einingar - námsvinna Námið er 90 ECTS eininga diplómanám á meistarastigi. Að námi loknu er hægt að sækja

Almennar upplýsingar um nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi.

Hvað er fjölskyldumeðferð?

Fjölskyldumeðferð er meðferð þar sem tekið er mið af áhrifamætti fjölskyldu-heildarinnar og velferð hennar höfð að leiðarljósi. Þessi skilgreining byggist á hugmyndinni um fjölskyldu sem kerfi og vitund um að þegar einstaklingur breytist hefur það áhrif í fjölskyldutengslunum og öfugt, að hver einstaklingur verður fyrir áhrifum af því sem gerist í lífi annarra í sömu fjölskyldu eða tengslaneti. Það er metið eftir aðstæðum og í samráði hvenær og hverjir taka beinan þátt í meðferðinni. Fjölskyldukenningar og meðferðafræði hefur verið kennd í starfsréttindanámi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands frá því að námið hófst 1980. Þannig hefur byggst upp reynsla og grunnþekking á sviðinu. Einnig hefur Endurmenntun HÍ áður staðið fyrir tveggja ára námi í samvinnu við sérfræðinga á vettvangi, Meðferðarþjónustuna Tengsl. Í flestum Evrópulöndum er nám í fjölskyldumeðferð nú sérhæft nám að loknu starfsréttindanámi á sviði heilbrigðis- og félagsvísinda og hafa Evrópusamtökin EFTA (European Family Therapy Association) samþykkt gæðastaðla fyrir það nám. Þetta er í samræmi við vaxandi áherslu á fræðilega þekkingu og samræmdar færnikröfur fyrir þá sem veita meðferðarþjónustu. Frá árinu 2009 hefur sérhæft nám á MA stigi í Fjölskyldumeðferð verið í boði hjá Endurmenntun HÍ í samstarfi við Félagsráðgjafadeild HÍ. Umsóknarfrestur er til 1 .júní 2016 Umsókn um námið má finna á www.endurmenntun.is Nánari upplýsingar veitir Hulda Mjöll Hauksdóttir, verkefnisstjóri í síma 525-4924, netfang [email protected] Upplýsingar um faglegt innihald námsins veitir Helga Þórðardóttir, kennslustjóri námsins, netfang: [email protected]

Page 4: Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi · 2016-09-01 · Einingar - námsvinna Námið er 90 ECTS eininga diplómanám á meistarastigi. Að námi loknu er hægt að sækja

Markmið námsins

Markmið námsins er að koma til móts við þörfina fyrir sérhæfða þekkingu á sviði fjölskyldumeðferðar og að efla fjölskyldunálgun í félags- og heilbrigðisþjónustu.

Fyrir hverja?

Námið er ætlað einstaklingum sem lokið hafa háskólanámi í heilbrigðis- eða félagsvísindum og starfa á sviði fjölskylduþjónustu, fræðslu, stuðnings og meðferðar. Krafist er þriggja ára grunnmenntunar á háskólastigi (t.d. BA) á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda eða annarar sambærilegrar menntunar. Auk þess skulu umsækjendur:

Hafa að lágmarki tveggja ára starfsreynslu á heilbrigðis- eða félagsvísindasviði

Hafa verið í handleiðslu og/eða eigin meðferð. Ef umsækjandi hefur orðið fyrir áfalli og hefur ekki leitað sér faglegrar aðstoðar eða er að kljást við andlega-eða samskiptaerfiðleika, er gerð krafa um að viðkomandi sæki að lágmarki sex meðferðartíma á fyrra ári námsins, hjá sérfræðingi

Vera í starfi sem lítur að heilbrigðis- eða félagsvísindasviði á meðan á námi stendur

Hafa samþykki yfirmanns og/eða stofnunar til að stunda námið samhliða starfi og nota efnivið úr starfi

Allir umsækjendur sem uppfylla inntökuskilyrði verða boðaðir í viðtal

Hæfnisviðmið og ávinningur

Í náminu öðlast nemendur fræðilega og hagnýta þekkingu í fjölskyldufræðum ásamt klíniskri færni. Að loknu námi munu nemendur meðal annars hafa:

Þekkingu á fræðilegri þróun fjölskyldumeðferðar og kenningagrunni

Persónulega og faglega færni til að veita fjölskyldumeðferð

Getu til að beita faglegri þekkingu í gagnvirkri (e. reflective) greiningar- og meðferðarvinnu

Færni til að finna lausnamunstur í samskiptakerfum

Þekkingu á þróun íslenskra fjölskyldna og aðstæðum þeirra í dag

Innsýn í rannsóknaniðurstöður um lýðheilsu (e. health statistics) og fjölskylduheilbrigði (e. family health)

Page 5: Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi · 2016-09-01 · Einingar - námsvinna Námið er 90 ECTS eininga diplómanám á meistarastigi. Að námi loknu er hægt að sækja

Einingar - námsvinna

Námið er 90 ECTS eininga diplómanám á meistarastigi. Að námi loknu er hægt að sækja um inngöngu í MA nám í fjölskyldumeðferð við Félagsráðgjafardeild HÍ, að því gefnu að viðkomandi uppfylli inntökuskilyrði deildar. Hægt er að sækja um að fá námskeið úr diplómanáminu metin til eininga í MA námi í fjölskyldumeðferð. Frekari upplýsingar um MA nám í fjölskyldumeðferð er að finna í Kennsluskrá HÍ.

Kennarar

Kennarar verða bæði innlendir og erlendir háskólakennarar og starfandi fjölskyldufræðingar (fjölskylduþerapistar). Meðal kennarar eru: Anna María Jónsdóttir, geðlæknir. Bjarney Kristjánsdóttir, MSW félagsráðgjafi/fjölskylduþerapisti Freydís Jóna Freysteinsdóttir, MSW, PhD félagsráðgjafi, , dósent HÍ Helga Þórðardóttir, MA félagsráðgjafi og fjölskylduþerapisti, kennslustjóri Hervör Alma Árnadóttir, MA félagsráðgjafi, lektor HÍ Jaakko Seikkula, sálfræðingur og fjölskylduþerapisti Scott Miller, sálfræðingur og fjölskylduþerapisti Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir Þórhildur Guðrún Egilsdóttir, MA félagsráðgjafi, Félagsþjónustunni í Reykjavík

Umsjónarmenn námsins

Helga Þórðardóttir, faglegur umsjónarmaður, MA, félagsráðgjafi og fjölskylduþerapisti. Helga rekur LAUSN fjölskyldumeðferð og ráðgjöf. Hún starfar einnig í átröskunarteymi Landspítala Háskólasjúkrahúss. Hulda Mjöll Hauksdóttir, verkefnastjóri EHÍ. Freydís Jóna Freysteinsdóttir (MSW, PhD) er tengiliður félagsráðgjafardeildar Háskóla Íslands við námið.

Fagráð

Dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor við félagsráðgjafadeild Erna Guðrún Agnarsdóttir, námstjóri EHÍ Freydís J Freysteinsdóttir, MSW, PhD Félagsráðgjafi, dósent HÍ Helga Þórðardóttir, MA félagsráðgjafi og fjölskylduþerapisti, stundakennari HÍ Hulda Mjöll Hauksdóttir, verkefnastjóri EHÍ

Page 6: Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi · 2016-09-01 · Einingar - námsvinna Námið er 90 ECTS eininga diplómanám á meistarastigi. Að námi loknu er hægt að sækja

Kennslutilhögun

Námið er skipulagt í reglulegum námslotum og unnið með fræðileg og klínisk verkefni á milli lota. Á hverju misseri eru þrjár lotur. Hver lota er fimm dagar frá mánudegi til föstudags og kennt frá klukkan 9:00-16:00. Kennslulotur eru í september, október, nóvember, janúar, febrúar og apríl. Nemendur verða í samfelldri hóphandleiðslu í litlum hópum á meðan á náminu stendur, þar sem unnið er með efnivið úr starfi á vettvangi. Ekki verður um val milli námskeiða að ræða og allir nemendur fylgja sama skipulagi. Nemendur fá tækifæri til að æfa sig í raunverulegum viðtölum undir faglegri handleiðslu, þar sem viðtöl eru tekin upp og unnið með í handleiðsluhópum.

Námskeið

Námskeiðin eru unnin með hliðsjón af sambærilegum námsleiðum við erlenda háskóla. Námskeiðin eru eftirfarandi og verða þau kennd á fjórum misserum:

1. Þekkingarfræðileg þróun fjölskyldumeðferðar (17 ein.) haust 2016 2. Meðferðarnálgun og siðfræði (18 ein.) haust 2018 3. Aðferðaþróun og meðferðaráherslur (18 ein.) haust 2017 4. Fjölskyldustefna, rannsóknir og þróunarstarf (17 ein) vor 2018

5. Þjálfun og beiting sértækra aðferða og handleiðsla (20 ein. sem dreifast yfir námstímann)

Vettvangsþjálfun þar sem nemendur fylgjast með reyndum meðferðaraðila að lágmarki tvisvar sinnum á misseri

Þjálfun sértækra aðferða í handleiðsluhópi sem telur 27 handleiðslutíma á hverju skólaári

Beiting sértækra aðferða í vinnu með einstaklinga og fjölskyldur á eigin vinnustað sem efniviður í handleiðsluhópa

Nemasetur þar sem nemendur æfa sig í raunverulegum viðtölum undir faglegri handleiðslu, þar sem viðtöl eru tekin upp og unnið með þau í handleiðsluhópum.

Verð

Verð fyrir skólaárið 2016-2018 er 1.550.000 kr. Gefnir eru út fjórir reikningar í upphafi náms, með eindaga 1. september 2016, 1. janúar 2017, 1. september 2017 og 1. janúar 2018. Handleiðsla er innifalin í gjaldinu. Námið er lánshæft fyrir skólagjöldum hjá LÍN allt að 70%, sjá www.lin.is Námið er lánshæft fyrir skólagjöldum hjá Framtíðinni námslánasjóði

Page 7: Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi · 2016-09-01 · Einingar - námsvinna Námið er 90 ECTS eininga diplómanám á meistarastigi. Að námi loknu er hægt að sækja

Námsráðgjöf

Öllum nemendum Endurmenntunar Háskóla Íslands er velkomið að nýta sér þjónustu náms- og starfsráðgjafa Endurmenntunar. Hlutverk námsráðgjafa er að veita nemendum stuðning á meðan á námi stendur. Hjá námsráðgjafa er hægt að fá endurgjöf á vangaveltur sínar og upplýsingar um námsmöguleika. Námsval sem byggir á áhuga, réttum upplýsingum og skilningi getur margfaldað ávinning nemandans af námi sínu.

Þjónusta námsráðgjafa:

Ráðgjöf vegna námsvals

Námstækninámskeið

Fyrirlestur um próftækni, prófundirbúning og stjórnun prófkvíða

Aðstoð við nemendur með sértæka námserfiðleika

Ráðgjöf um tímastjórnun og skipulagningu

Áhugasviðsgreining

Greiðslufyrirkomulag

Við upphaf náms er gefinn út reikningur fyrir heildarverði námsins. Þeir sem ekki staðgreiða námið þurfa að semja um greiðslumáta áður en námið hefst. Hægt er að greiða með kortaláni til allt að 36 mánaða. Lántökukostnaður af slíkum lánum miðast við fjölda mánaða. Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fá námsgjald fellt niður þótt nemandi hætti námi áður en námstíma lýkur. Nánari upplýsingar gefur Hafdís Ósk Kolbeinsdóttir, fjármálastjóri í síma: 525-4949, netfang: [email protected] Vakin er athygli á að ýmis stéttarfélög veita styrki til náms. Lánasjóður íslenskra námsmanna lánar fyrir skólagjöldum. Framtíðin veitir framfærslu- og skólagjaldalán.

Page 8: Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi · 2016-09-01 · Einingar - námsvinna Námið er 90 ECTS eininga diplómanám á meistarastigi. Að námi loknu er hægt að sækja

1. misseri – haust 2016

Þekkingarfræðileg þróun fjölskyldumeðferðar

17 einingar – 120 klukkustundir

Markmið Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu á uppruna og þróun fjölskyldumeðferðar í gegnum tíðina og hvernig ólíkar áherslur og ólíkir menningarheimar mótuðu þróun kenninga og aðferðafræði. Námskeiðslýsing Kynnt verður saga fjölskylduhugtaksins, þekkingarfræðilegur grunnur og kenningaþróun í fjölskyldumeðferð. Skoðað verður hvernig samtíma hugmyndir um lýðræðislega nálgun og notenda samráð tengjast valdahugtakinu og kenningum hugsmíðahyggju og frásagnarnálgun. Kennsluáætlun Kennt verður í þremur lotum á haustönn sem hér segir:

Lota 1 5.-9. september 2016

Kynning hópsins Farið yfir innihald og námstilhögun Hópefli. Saga fjölskylduhugtaksins Þróun kenninga í fjölskyldumeðferð PFÞ, Persónuleg og fagleg þróun Röðun í handleiðsluhópa Handleiðarar hitta hópana

Lota 2 3.-7. október 2016

Saga fjölskylduhugtaksins. Þekkingarfræðilegur grunnur og kenningaþróun í fjölskyldumeðferð. Áhersla verður meðal annars lögð á:

Tjáskiptakenningar (e. Communication theory) Virginia Satir ofl.

Formgerðarkenningar (e. Structural family Therapy), Salvador Minuchin, Bowen og Bateson, ofl.

Kerfiskenningar (e. Systemisk Family Therapy), MRI- hópurinn; Watzlawic, Haley og Milanoteymið – Selvini, Palazzoli ofl.

Lausnamiðaða skammtímameðferð (e. Solution Focused Family Therapy) Insoo Kim Berg og Steve de Shazer og Milwaukeehópurinn.

Page 9: Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi · 2016-09-01 · Einingar - námsvinna Námið er 90 ECTS eininga diplómanám á meistarastigi. Að námi loknu er hægt að sækja

Lota 3 7.-11. nóvember 2016

Samtímahugmyndir Lýðræðisleg samráðsnálgun Hugsmíðahyggja Frásagnarkenningar (e. Narrative Family Therapy) Michael White, David Epston, Harold Goolishian og Harlene Anderson, en einnig Tom Andersson- teymið. Námsmat Próf – gildir 100% Próf 8. desember 2016 Kennsluaðferð Fyrirlestrar, hópverkefni og æfingar

Þjálfun og beiting sértækra aðferða og handleiðsla

5 einingar – 96 klukkustundir Markmið Að þjálfa þátttakendur í meðferðarvinnu í þeim tilgangi að þeir auki persónulegan og faglegan þroska sem fjölskylduþerapistar. Námskeiðslýsing a. Þjálfun sértækra aðferða Þátttakendur fá þjálfun í að beita sértækum aðferðum í vinnu með einstaklinga og fjölskyldur, ásamt þjálfun í að greina hvenær ólíkar nálganir eiga við ólíkar forsendur á hinum ýmsu meðferðar- og þjónustusviðum. Þjálfunin fer fram í handleiðsluhópum. b. Beiting sértækra aðferða á vinnustað og handleiðsla Ætlast er til að þátttakendur tengi kenningar og meðferðarnálgun í raunverulegum aðstæðum og geri grein fyrir vinnunni í handleiðsluhópum, helst með upptökum. c. Fagleg starfsþjálfun og leshópar Kennsluáætlun Þátttakendur fá handleiðslu og faglega ráðgjöf á vinnu sína sem þeir gera grein fyrir í handleiðsluhópum. Kennslugögn Greinagerðir og upptökur þátttakenda og meðferðarviðtöl þekktra fjölskylduþeraðista. Námsmat Símat á frammistöðu einstaklinga við fyrirlögn verkefna og próf. Kennsluaðferð Handleiðsluhópar hittast fjórum sinnum, þrjá tíma í senn. Farið er yfir viðtöl, vinnugreiningar og upptökur. Áhersla er lögð á faglega og persónulega þróun.

Page 10: Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi · 2016-09-01 · Einingar - námsvinna Námið er 90 ECTS eininga diplómanám á meistarastigi. Að námi loknu er hægt að sækja

2. misseri – vor 2017

Meðferðarnálgun og siðfræði

18 einingar – 120 klukkustundir

Markmið Markmið námskeiðsins er að auka persónulega færni í meðferðarvinnu og efla þannig og þróa aukinn meðferðarstyrk þátttakenda. Námskeiðslýsing Þátttakendur vinna með upprunafjölskylduna í þeim tilgangi að auka meðvitund og þekkingu á eigin mótun, fordómum og samfélagslegum gildum. Kennsluáætlun Þátttakendur vinna með eigin reynslu, fjölskyldustöðu og skoðanir um siðferðileg áitamál. Persónuleg og fagleg tenging. Kennt verður í þremur lotum á vorönn.

Lota 1 9. -13. janúar

Upprunafjölskyldan Vinna með eigin fjölskyldu Þriggja kynslóða fjölskyldutréð, Bowen Líffræðileg tengsl og tilfinningatengsl Ýmis fjölskylduform Nýja fjölskyldan

Lota 2 6.-10. febrúar

Persónuleg aðgreining: Siðir og hefðir í fjölskyldum Tungumálið og samskipti í fjölskyldum Leyndarmál í fjölskyldum Trúarleg viðhorf fjölskyldu Menningarleg aðgreining

Lota 3 27.-31. mars

Persónuleg tenging: Siðfræðileg álitamál, viðhorf, virðing og fordómar Tungumál og líkamstjáning Þekkingargrunnurinn og framtíðarsýnin

Page 11: Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi · 2016-09-01 · Einingar - námsvinna Námið er 90 ECTS eininga diplómanám á meistarastigi. Að námi loknu er hægt að sækja

Námsmat Verkefni „Upprunafjölskyldan“ 60% Ígrundunarverkefni 40% Kennsluaðferð Fyrirlestrar, verkefni og hópavinna

Þjálfun og beiting sértækra aðferða og handleiðsla

5 einingar – 96 klukkustundir Markmið Að þjálfa þátttakendur í meðferðarvinnu í þeim tilgangi að þeir auki persónulegan og faglegan þroska sem fjölskylduþerapistar. Námskeiðslýsing a. Þjálfun sértækra aðferða Þátttakendur fá þjálfun í að beita sértækum aðferðum í vinnu með einstaklinga og fjölskyldur, ásamt þjálfun í að greina hvenær ólíkar nálganir eiga við ólíkar forsendur á hinum ýmsu meðferðar- og þjónustusviðum. Þjálfunin fer fram í handleiðsluhópum. b. Beiting sértækra aðferða á vinnustað og handleiðsla Ætlast er til að þátttakendur tengi kenningar og meðferðarnálgun í raunverulegum aðstæðum og geri grein fyrir vinnunni í handleiðsluhópum, helst með upptökum. c. Fagleg starfsþjálfun og leshópar Kennsluáætlun Þátttakendur fá handleiðslu og faglega ráðgjöf á vinnu sína sem þeir gera grein fyrir í handleiðsluhópum. Kennslugögn Greinargerðir og upptökur þátttakenda og meðferðarviðtöl þekktra fjölskylduþerapista. Námsmat Símat á frammistöðu einstaklinga við fyrirlögn verkefna og próf. Kennsluaðferð Handleiðsluhópar hittast fjórum sinnum, þrjá tíma í senn. Farið er yfir viðtöl, vinnugreiningar og upptökur. Áhersla er lögð á faglega og persónulega þróun.

Page 12: Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi · 2016-09-01 · Einingar - námsvinna Námið er 90 ECTS eininga diplómanám á meistarastigi. Að námi loknu er hægt að sækja

3. misseri – haust 2017

Aðferðaþróun og meðferðaráherslur

18 einingar – 120 klukkustundir Markmið Markmið námskeiðsins er að dýpka þekkingu á aðferðaþróun í fjölskyldumeðferð. Tengja saman hugmyndafræðilega þekkingu við eigin persónu, bakgrunn, viðhorf og skoðanir. Námskeiðslýsing Fjallað verður um mismunandi líkön, hugmyndafræði þeirra og sérkenni, Áhersla er lögð á persónulega færni til að tengja ólíkar aðferðir eigin þekkinga- og reynslugrunni. Efla færni í gagnvirkri greiningarvinnu og færni til að koma auga á lausnamynstur eins og þau birtast í samskiptakerfum fjölskyldna. Kennsluáætlun Kennt verður í þremur kennslulotum á haustönn. Námsmat Próf 70% Einstaklingsverkefni „Persónuleg fagleg þróun“ 30% Kennsluaðferð Fyrirlestrar, hópverkefni og æfingar.

Lota 1 4. - 8. september

Lota 2 16. - 20. október

Lota 3 13. - 17. nóvember

Page 13: Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi · 2016-09-01 · Einingar - námsvinna Námið er 90 ECTS eininga diplómanám á meistarastigi. Að námi loknu er hægt að sækja

Þjálfun og beiting sértækra aðferða og handleiðsla

5 einingar – 96 klukkustundir Markmið Að þjálfa þátttakendur í meðferðarvinnu í þeim tilgangi að þeir auki persónulegan og faglegan þroska sem fjölskylduþerapistar. Námskeiðslýsing a. Þjálfun sértækra aðferða Þátttakendur fá þjálfun í að beita sértækum aðferðum í vinnu með einstaklinga og fjölskyldur, ásamt þjálfun í að greina hvenær ólíkar nálganir eiga við ólíkar forsendur á hinum ýmsu meðferðar- og þjónustusviðum. Þjálfunin fer fram í handleiðsluhópum. b. Beiting sértækra aðferða á vinnustað og handleiðsla Ætlast er til að þátttakendur tengi kenningar og meðferðarnálgun í raunverulegum aðstæðum og geri grein fyrir vinnunni í handleiðsluhópum, helst með upptökum. c. Fagleg starfsþjálfun og leshópar Kennsluáætlun Þátttakendur fá handleiðslu og faglega ráðgjöf á vinnu sína sem þeir gera grein fyrir í handleiðsluhópum. Kennslugögn Greinargerðir og upptökur þátttakenda og meðferðarviðtöl þekktra fjölskylduþerapista. Námsmat Símat á frammistöðu einstaklinga við fyrirlögn verkefna og próf. Kennsluaðferð Handleiðsluhópar hittast fjórum sinnum, þrjá tíma í senn. Farið er yfir viðtöl, vinnugreiningar og upptökur. Áhersla er lögð á faglega og persónulega þróun.

Page 14: Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi · 2016-09-01 · Einingar - námsvinna Námið er 90 ECTS eininga diplómanám á meistarastigi. Að námi loknu er hægt að sækja

4. misseri – vor 2018

Fjölskyldustefna, rannsóknir og þróunarstarf

17 einingar – 120 klukkustundir Markmið Að varpa ljósi á þróun og aðstæður íslenskra fjölskyldna í dag með samanburði á íslenskum og erlendum rannsóknum. Tengja tölfræðilegar niðurstöður um lýðheilsu (e. health statistics) við áherslur í fjölskyldumeðferð. Námskeiðslýsing Fjallað verður um þróun og aðstæður íslenskra fjölskyldna í sögulegu ljósi. Athyglinni er beint að samfélagsáhrifum, þróun nýrra fjölskyldugerða og breyttum uppeldisaðstæðum þ.m.t. skilnað, stjúpatengsl og kynfræði. Fjallað er um líðan, starfshæfni og aðstæður fjölskyldna í ljósi tölfræðilegra upplýsinga um lýðheilsu, löggjöf og þjónustu. Efnið er tengt íslenskum og erlendum fjölskyldurannsóknum. Kynntar eru leiðir til að samþætta rannsóknir og meðferðarstarf, mat og þróun aðferða og úrræða. Námsmat Hópverkefni og opin kynning “Seminar”. 100% Kennsluaðferð Fyrirlestrar, hópverkefni og æfingar

Lota 1 8. – 12. janúar

Lota 2 5. – 9. febrúar

Lota 3 9. – 13. apríl

Page 15: Nám í fjölskyldumeðferð á meistarastigi · 2016-09-01 · Einingar - námsvinna Námið er 90 ECTS eininga diplómanám á meistarastigi. Að námi loknu er hægt að sækja

Þjálfun og beiting sértækra aðferða og handleiðsla

5 einingar – 96 klukkustundir Markmið Að þjálfa þátttakendur í meðferðarvinnu í þeim tilgangi að þeir auki persónulegan og faglegan þroska sem fjölskylduþerapistar. Námskeiðslýsing a. Þjálfun sértækra aðferða Þátttakendur fá þjálfun í að beita sértækum aðferðum í vinnu með einstaklinga og fjölskyldur, ásamt þjálfun í að greina hvenær ólíkar nálganir eiga við ólíkar forsendur á hinum ýmsu meðferðar- og þjónustusviðum. Þjálfunin fer fram í handleiðsluhópum. b. Beiting sértækra aðferða á vinnustað og handleiðsla Ætlast er til að þátttakendur tengi kenningar og meðferðarnálgun í raunverulegum aðstæðum og geri grein fyrir vinnunni í handleiðsluhópum, helst með upptökum. c. Fagleg starfsþjálfun og leshópar Kennsluáætlun Þátttakendur fá handleiðslu og faglega ráðgjöf á vinnu sína sem þeir gera grein fyrir í handleiðsluhópum. Kennslugögn Greinargerðir og upptökur þátttakenda og meðferðarviðtöl þekktra fjölskylduþerapista. Námsmat Símat á frammistöðu einstaklinga við fyrirlögn verkefna og próf. Kennsluaðferð Handleiðsluhópar hittast fjórum sinnum, þrjá tíma í senn. Farið er yfir viðtöl, vinnugreiningar og upptökur. Áhersla er lögð á faglega og persónulega þróun.