Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

21
Rakel Sigurgeirsd óttir 1 Fjölmiðlar skapa heimsmyndina Fræðimönnum ber alls ekki saman um það hvaða áhrif fjölmiðlar hafa eða hve afgerandi fjölmiðla-áhrif eru á líf einstaklinga. Allir virðast þó sammála um að fjölmiðlar hafa áhrif eins og kemur mjög greinilega fram í því að þeir eru oft kallaðir „fjórða valdið“. Sennilega má skipta þeim sem hafa skoðun á þessu máli í tvo hópa: Þá sem telja að áhrif fjölmiðla séu afgerandi. og þá sem vilja trúa því að áhrif fjölmiðla séu hverfandi.

description

Fjölmiðlar skapa heimsmyndina. Fræðimönnum ber alls ekki saman um það hvaða áhrif fjölmiðlar hafa eða hve afgerandi fjölmiðla-áhrif eru á líf einstaklinga. Allir virðast þó sammála um að fjölmiðlar hafa áhrif eins og kemur mjög greinilega fram í því að þeir eru oft kallaðir „fjórða valdið“. - PowerPoint PPT Presentation

Transcript of Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Page 1: Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Rakel Sigurgeirsdóttir

1

Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

• Fræðimönnum ber alls ekki saman um það hvaða áhrif fjölmiðlar hafa eða hve afgerandi fjölmiðla-áhrif eru á líf einstaklinga.

• Allir virðast þó sammála um að fjölmiðlar hafa áhrif eins og kemur mjög greinilega fram í því að þeir eru oft kallaðir „fjórða valdið“.

• Sennilega má skipta þeim sem hafa skoðun á þessu máli í tvo hópa: – Þá sem telja að áhrif fjölmiðla séu afgerandi.– og þá sem vilja trúa því að áhrif fjölmiðla séu

hverfandi.

Page 2: Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Rakel Sigurgeirsdóttir

2

Áhrif fjölmiðla

• Kenningum um áhrif fjölmiðla má skipta í tvennt:– Kenningum um bein áhrif og óbein áhrif

• Bein áhrif– Sprautukenningin

(sprautunálskenningin)

• Óbein áhrif– Tveggjaþrepakenningin– Notagildiskenningin– Ræktunarkenningin– Geðhreinsunarkenningin

Page 3: Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Rakel Sigurgeirsdóttir

3

Rannsóknir á áhrifum fjölmiðla

• Hvernig á að standa að rannsóknum á áhrifum fjölmiðla?

• Tiltölulega auðvelt að rannsaka fjölmiðlanotkun en hvernig á að mæla áhrifin af notkuninni?

• Þær rannsóknir sem hafa verið gerðar eru svonefndar kjósendarannsóknir og rannsóknir á áhrifum ofbeldis í sjónvarpi.

• Fræðimenn eru þó ekki sammála um gildi niðurstaðnanna af þessum rannsóknum.

Page 4: Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Rakel Sigurgeirsdóttir

4

Afþreyingarofbeldi

Rannsóknir á áhrifum fjölmiðla hafa að miklu leyti

beinst að áhrifum svokallaðs afþreyingarofbeldis.Niðurstöður þessara rannsókna má flokka

þannig:– Geðhreinsun– Herminám– Styrking– Sljóvgun

– Innræting

Áhrifum ofbeldis, einkum á börn, hefur líka verið

skipt í skammtíma- og langtímaáhrif.

Page 5: Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Rakel Sigurgeirsdóttir

5

Skammtímaáhrif fjölmiðla

• Mikið áhorf getur valdið líkamlegri og andlegri þreytu.

• Atriði sem börn sjá í kvikmynd getur valdið þeim martröð/martröðum.

• Ýmis tískufyrirbæri eða „æði“ sem skjóta upp kollinum tengjast beint vinsælum kvikmyndum.

• Ýmsir leikir eru beint – eða óbeint hermileikir eftir sjónvarpinu.

Page 6: Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Rakel Sigurgeirsdóttir

6

Langtímaáhrif fjölmiðla

Ýmsar ytri aðstæður hafa áhrif á það hvort þau

koma yfirleitt fram. Þau helstu eru:– Heimilisaðstæður– Menntun foreldra– Aldur barnsins þegar það upplifði það

sem kann að hafa áhrif– Árangur þess í skóla– Og hvernig atriðin í fjölmiðlunum eru

unnin

Page 7: Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Rakel Sigurgeirsdóttir

7

Mismunandi birtingarmyndir ofbeldis

• Hættuleg atriði:– Ofbeldi í skjóli góðs málstaðar.– Hversdagslegar deilur leystar með

líkamlegu ofbeldi.– Ofbeldistækin eru úr hversdagslegu

umhverfi.

• Hættulaus atriði– Óraunverulegt umhverfi og persónur.– Ofbeldi sett upp í fáránleika.– Ofbeldi í fréttum.

Page 8: Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Rakel Sigurgeirsdóttir

8

Áhrifin sem ofbeldi í sjónvarpi hefur

1. Áhrif á árásarhneigð2. Fórnarlambaáhrifin Skv. Gerbner

eru algengustu langtímaáhrifin óttatilfinning og öryggisleysi.

3. Ónæmisáhrifin koma m.a. fram í skorti á sálrænni getu við að setja sig í spor annarra.

4. Uppeldisáhrifin koma þannig fram í því að einstaklingurinn lítur á ofbeldi sem farsæla leið til að leysa ágreining.

Page 9: Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Rakel Sigurgeirsdóttir

9

Blekkingarnar þrjár

1. Þetta er bara afþreyingarefni => enginn verður fyrir áhrifum.

2. Fjölmiðlar endurspegla einungis raunveru-leikann. Kennið þeim þess vegna ekki um heldur samfélaginu.

3. Sjónvarpið lætur neytandann fá það sem hann vill. Mislíki honum eitthvað þá getur hann bara slökkt á tækinu.

Page 10: Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Rakel Sigurgeirsdóttir

10

Efst á baugi

• Heimsmynd fjölmiðla.– Hversu áreiðanleg er hún?– Er hún alltaf áreiðanleg?– Hvað þarf að hafa í huga við mat á

áreiðanleika?

• Fjölmiðlar ákveða hvað er mikilvægt.– Ákveða kannski ekki hvað fólki finnst um hin

ýmsu málefni heldur hvað er mikilvægt að hafa skoðun á.

– Hvort kemur á undan? Skoðun almennings? eða sú skoðun sem fjölmiðillinn miðlar.

• Skoða vel það sem við vitum um fréttir af stríðsátökum á undanförnum árum.

Page 11: Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Rakel Sigurgeirsdóttir

11

Samkvæmt notagildiskenningunni

• Aðferðafræðin er bundin því að mögulegt sé að skýra fjölmiðlanotkun einstaklingsins á svörum hans.

• Fjölmiðlanotkun einstaklinga er markaðsbundin.

• Fjölmiðlar eru notaðir til svölunar á þörfum.

• Fjölmiðlar eru í samskiptum við aðra þætti samfélagsins.

Page 12: Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Rakel Sigurgeirsdóttir

12

Vald fjölmiðla

• Það má ekki gleymast að upplýsingarnar sem við tökum við frá fjölmiðlunum mótast af eðli miðilisins.

• Media is the message: Merkilegustu skilaboð fjölmiðla eru þeir sjálfir.

• Forvitnilegt að skoða hvað er efst á baugi í umræðum almennings og hvað er efst á baugi á dagskrá fjölmiðla.

• Eru fjölmiðlar réttnefndir; fjórða valdið?

Page 13: Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Rakel Sigurgeirsdóttir

13

Það sem virkar best í sjónvarpi:

1. Þægilegt fyrir augað.2. Fylgja ákveðinni formúlu þannig að

endalaust sé hægt að bæta við.3. Hafa aðlaðandi inntak sem birtist

áfram þátt af þætti.4. Ná til 30% áhorfenda.5. Ná strax til fjöldans.6. Hafa „aðlaðandi“ persónur (?)7. Ekki of flókið.8. Nýstárlegt en ekki um of.9. Engin umdeilanleg efni.

Page 14: Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Rakel Sigurgeirsdóttir

14

Þarfapýramídi Maslows• Líkamlegar þarfir.• Öryggisþarfir.• Félags- og ástarþarfir.• Þörf fyrir virðingu.• Þörfin til að elfa sjálfsþroskann.

– Auglýsendur verða að hafa góða þekkingu á mannlegu eðli til skapa auglýsingar sem kemst yfir þröskuldana þrjá: athygli, löngun/áhugi og hegðun. Þeir vísa því gjarnan í það að ofan-töldum þörfum verði best fullnægt með því að kaupa ákveðna vöru.

Page 15: Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Rakel Sigurgeirsdóttir

15

Karlar og konur í auglýsingum

• Auglýsingar byggja gjarnan á „gamaldags og úreltum“ hugmyndum um kynin.

• Þar eins og víða annars staðar í fjölmiðlum er margbreytileika einstaklinganna hafnað en í stað þess birtast okkur staðlaðar kynímyndir.

• Konan birtist gjarnan sem gála, húsmóðir eða hefðardama sem treystir þó nær undantekningarlaust á karlmenn.

• Karlinn birtist hins vegar sem staðfastur og farsæll einstaklingur sem treystir á sjálfan sig.

Page 16: Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Rakel Sigurgeirsdóttir

16

Birtingarmynd kynjanna í fjölmiðlum

• Konur hafa áhuga á:– útliti

– karlmönnum og kynlífi

– harmsögum

– sambandi og þá helst hjónabandi

• Karlar hafa áhuga á:– útliti

– konum og kynlífi

– stórum og dýrum leikföngum

– að láta ala sig upp í það að vera „húsum hæfur“

Page 17: Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Rakel Sigurgeirsdóttir

17

Konan samkvæmt fjölmiðlum

• Konur eiga að vera:– unglegar– grannar– smávaxnar– fínlegar– líta vel út– kynæsandi– ósáttar við útlit sitt

• Grannvaxinn og stæltur líkami er tengdur við sjálfstjórn, viljastyrk og velgengi.

• Auglýsendur ala á óánægju kvenna með útlit sitt.

Page 18: Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Rakel Sigurgeirsdóttir

18

Skilaboð til kvenna

• Konur „eiga“ að vera ósáttar við líkama sinn og vera tilbúnar til að fjárfesta í því að betrumbæta hann.

• Kvennablöð hafa neikvæð áhrif á sjálfsmynd kvenna.

• Þau selja sig með því að benda á hvað er að líkömum kvenna, útliti og hegðun.

• Þessi blöð eru stútfull af ráðum um það hvernig er hægt að vera mjórri, sætari og meira kynæsandi.

Page 19: Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Rakel Sigurgeirsdóttir

19

Karlar samkvæmt fjölmiðlum

• Karlar eiga:– að vera ósjálfbjarga inni á heimilinu.– að vera kjánar sem taka upp á ótrúlegustu

hlutum.– að vera snöggir í tilsvörum og

skemmtilegir.– að vera fyrirvinnan á heimilinu.– að vinna karleg störf en ekki sem t.d:

leikskólakennarar eða hjúkrunarfræðingar.– ekki að setja fjölskylduna í fyrsta sæti þegar

kemur að áhugamálum og/eða vinnu.– að þurfa konu til að sjá um hluti sem snúa

að heimilishaldi og fjölskyldulífi.

Page 20: Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Rakel Sigurgeirsdóttir

20

Breytingar á karlímyndinni

• Tískukóngarnir og –drottningarnar eru á allra síðustu árum að sækja fram á markaðinn með nýjar tískuviðmiðanir fyrir karla. Samkvæmt þeim eiga karlar að vera:– fínlegir– grannvaxnir– í góðu formi– flottir– fágaðir– karlmannlegir

Page 21: Fjölmiðlar skapa heimsmyndina

Rakel Sigurgeirsdóttir

21

Ástæður þessara breytinga

• Vegna þess að konur eru orðnar fjárhagslega sjálfstæðar þurfa karlar að leggja meira á sig til að ganga í augu kvenna.

• Merki um að nútímakarlmaðurinn eigi í erfiðleikum með að skapa sér sjálfsmynd og stöðu í samfélaginu þar sem forfeðurnir ganga ekki lengur upp sem fyrirmyndir.

• Framleiðendur snyrti- og tískuvara hafa áttað sig á að karlmenn eru stórlega vannýttur markhópur sem er hægt að græða á.