2.1 Að vera unglingur
description
Transcript of 2.1 Að vera unglingur
2.1 Að vera unglingur
2. hluti – Réttindi og skyldur
Réttindi og skyldur
-- Réttindin segja hvers við getum krafist af samfélaginu.
Dæmi: Kosningaréttur Réttur til framfærslu
-- Skyldurnar segja okkur hvaða kröfur samfélagið gerir til okkar.
Dæmi: Borga skatt
Könnun í bekknum
1. Hver á frekar eða alltaf að sjá um að þvo þvottinn á heimilinu, karlinn eða konan?
2. Hver á frekar eða alltaf að sjá um bílinn, karlinn eða konan?
Eiginmenn og eiginkonur (bls. 61)
• Viðhorfskönnun meðal 9. og 10. bekkinga um verkaskiptingu á heimilum (1992).
37% töldu að konur ættu frekar eða alltaf að sjá um að þvo þvotta. Enginn taldi að karlinn ætti frekar eða alltaf að sjá um að þvo þvotta.
63% töldu að karlinn ætti frekar eða alltaf að sjá um bílinn en 2% að konan ætti frekar eða alltaf að sjá um hann.
Eiginmenn og eiginkonur (bls. 61)
Atvinnuþátttaka 1991 2008
Karlar 87,4% 87%
Konur 74,6% 78%
Skipting heimilisstarfa(bls. 62)
• Fram yfir miðja 20. öld (1950) var mjög skýr munur á hlutverkum kynjanna. Kynbundin verkaskipting:
Hlutverk karla var að framfleyta fjölskyldunni.
Hlutverk kvenna var að sjá um börn og bú.
Skipting heimilisstarfa(bls. 62-63)
• Ný lög um fæðingarorlof sem sett voru árið 2000 eru að áliti margra með stærstu fram-faramálum í jafnréttisbaráttu kynjanna hér á landi.
Fæðingarorlof er nú 9 mánuðir í stað 6 áður og það skiptist á milli foreldranna.
Þú getur skoðað reglurnar betur hér: http://www.island.is/fjolskyldan/barneignir/faedingar-og-foreldraorlof/
Húsfeður/”hinn nýi maður”(bls. 63-64)
• Til eru karlar sem eru heimavinnandi húsfeður, sjá um börn og bú meðan makinn (konan) er í hátt launuðu starfi á vinnumarkaðinum.
Heimilisstörf (bls. 64)
•Um heimilisstörf bls. 64:•- Hversu mikinn þátt eru börn látin taka í heimilisstörfum?
•- Skiptast heimilisstörfin jafnt milli stráka og stelpna?
•- Fá börn borgað fyrir (vasapening)?
Píramídi Maslows (bls. 71-72)
• Sálfræðingurinn Abraham Maslow rannsakaði mannlegar þarfir og teiknaði þær upp í píramída. Neðstar eru lægstu grunnþarfirnar og þær æðstu efstar.
•Í tveimur neðstu þrepum píramídans eru líffræðilegar þarfir sem allir þurfa að fá uppfylltar. Sjá teikningu á bls. 72.
Manneskjur sem náð hafa efst í þarfapíramídanum ...
... Vigdís Finnbogadóttir
Manneskjur sem náð hafa efst í þarfapíramídanum ...
... Móðir Teresa
Manneskjur sem náð hafa efst í þarfapíramídanum ...
... Barack Obama
Manneskjur sem náð hafa efst í þarfapíramídanum ...
… Kannski þessi líka?
Hvað haldið þið?