Post on 09-Jun-2015
Fuglar
Sölvi Steinn Jónsson
• Í þessari glærusýningu ætla ég að segja frá öllum flokkunum fugla sem eru á Íslandi
• Þessir flokkar eru:• Landfuglar• Máffuglar• Sjófuglar• Spörfuglar• Vaðfuglar• Vatnafuglar
• Ég ætla líka að segja frá nokkrum fuglum sem tilheyra þessum flokkum
LandfuglarÞetta er frekar ósamstæður flokkur
Afar lítið er um Landfugla Ástæðan er skógleysi og einangrun landsins
Í þessum flokki fugla eru bjargdúfa, brandugla, fálki, haförn, rjúpa og smyrill.
Einkenni Landfugla
• Ránfuglar og uglur hafa sterklegan, krókboginn gogg og beittar klær
Þó er kvenfuglinn nokkru stærri og yfirleitt er auðvelt að kyngreina rjúpur
MáffuglarMáfar eru dýraætur
Þeir lifa aðallega á sjávarfangi en einnig á skordýrum, úrgangi, fuglsungum,fuglseggjum og fleiru
Máfar, kjóar og þernur verpa yfirleitt í byggðum Ungar þeirra eru bráðgerir
Í þessum flokki fugla eru hettumáfur, hvítmáfur, kjói, kría, rita, sílamáfur, silfurmáfur, skúmur, stormmáfur og svartbakur
Einkenni Landfugla
Flestir máfar og kjóar eru með sterklegan gogg, sem er krókboginn í endann og með sundfit milli tánna
Kynin eru eins að útliti, en karlfuglinn er oftast ívið stærri.
SjófuglarSjófuglar afla fæðu sinnar úr sjó, verpa við sjó og ala allan sinn aldur á sjó nema þegar þeir koma á land til að verpa.
Sjófuglar sína tryggð við maka sinn, verpa í byggðum og flestir verpa einu eggi nema skarfar og teista. Ungar þeirra allra eru ósjálfbjarga og dvelja oft lengi í hreiðrinu.
Fuglar í þessum flokki eru álka, dílaskarfur, fýll, haftyrðill, langvía, lundi, sjósvala, skrofa, stormsvala, stuttnefja, súla, teista og toppskarfur
Einkenni SjófuglaÞetta eru fiskiætur sem kafa eftir æti
Goggur skarfa, sumra svartfugla, fiskianda og brúsa er svipaður í útliti
Kynjamunur sjófugla er lítill, það er helst einhver stærðarmunur sem greinir kynin að
SpörfuglarSpörfuglar eru langstærsti ættbálkur fugla.
Spörfuglar eru mjög mismunandi að stærð en þó flestir smávaxnir
Músarindill og Auðnutittlingur eru minnstir íslenskara fugla
Hrafninn er stærstur
Það eru þó aðeins níu tegundir spörfugla sem verpa hér . Ástæðan er einangrun landsins, skógleysi og mikil rigning
Fuglar sem tilheyra þessum flokki eru auðnutittlingur, gráspör, gráþröstur, hrafn, maríuerla, músarindill, skógarþröstur, snjótittlingur, stari, steindepill, svartþröstur, þúfutittlinur
Einkenni spörfuglaFótur spörfugla er svonefndur setfótur, en goggurinn lítill og oddhvass
Spörfuglar verpa í vönduð hreiðri og ungarnir eru ósjálfbjarga, þeir yfirgefa hreiðrið þegar þeir eru orðnir eða að verða fleygir.
VaðfuglarVaðfuglar helga sér óðul og verpa pörin stök.
Kynjamunur er lítill hjá vaðfuglum, karlfuglinn er þó oft ívið skrautlegri og kvenfuglinn aðeins stærri.
Fuglar sem tilheyra þessum flokki eru heiðlóa, hrossagaukur, jaðrakan, lóuþræll, óðinshani, rauðbrystingur, sanderla, sandlóa, sendlingur, spói, stelkur, tildra, tjaldur og þórshani
Einkenni Vaðfugla
Einkenni margra vaðfugla eru langur goggur, langir fætur og langur háls.
Þeir eru dýraætur og er langur goggurinn hentugur til að grafa eftir æti í jarðvegi.
VatnafuglarAndfuglar eru sérhæfðir að lifa á vatni.
Álft, gæsir og sumar buslendur eru grasbítar.
Fuglar sem tilheyra þessum flokki eru álft, blesgæs, duggönd, flórgoði, gargönd, grafönd, gráönd, gulönd, hávella, heiðagæs, helsingi, himbrimi, hrafnsönd, húsönd, lómur, margæs, rauðhöfðagæs, skeiðönd, skúfönd, stokkönd, straumönd, toppönd, urtönd og æðarfugl
Einkenni VatnafuglarÞeir hafa sundfit milli tánna og goggur margra er flatur með hyrnistönnum, sem auðveldar þeim að sía fæðu úr vatni.
Karlfuglinn er ávalt stærri hjá andfuglum, og hjá öndum er hann yfirleitt mun skrautlegri en kvenfuglinn.