Von Willebrand

9
Von Willebrand Unnur Rún Eðvaldsdóttir Von Willebra nd

description

Von Willebrand. Von Willebrand. Unnur Rún Eðvaldsdóttir. Almennt um VW. Von Willebrand er algengasti blóðstorknunarsjúkdómur sem vitað er um. Talið er að um 1 af hverjum 1000 séu með hann. Flestir vita ekki af því vegna vægra einkenna. Hann er ættlægur og greinist jafnt hjá báðum kynjum. - PowerPoint PPT Presentation

Transcript of Von Willebrand

Page 1: Von Willebrand

Von Willebrand

Unnur Rún Eðvaldsdóttir

Von Willebrand

Page 2: Von Willebrand

Almennt um VW

• Von Willebrand er algengasti blóðstorknunarsjúkdómur sem vitað er um.

• Talið er að um 1 af hverjum 1000 séu með hann. Flestir vita ekki af því vegna vægra einkenna.

• Hann er ættlægur og greinist jafnt hjá báðum kynjum.

Page 3: Von Willebrand

Orsök

• Margir þættir koma að blóðstorknunarferlinu. VW-faktorinn er einn þeirra.

• Ef að það vantar VW- faktorinn vantar óhjákvæmilega VIII- faktorinn líka þarsem að þeir vinna saman.

• Von Willebrand faktor er stórgert prótein sem virkar sem eins konar lím fyrir agnirnar sem eiga að stöðva blæðingarnar.

Page 4: Von Willebrand

Einkenni

• Blæðingar úr slímhimnu, s.s. úr nefi, legi, munni.

• Sár lengi að gróa.• Langar tíðablæðingar kvenna.• Blætt getur inná liði og vöðva, jafnvel án

tilkomu nokkurra áverka.• Marblettir myndast við minnsta tilefni.

Page 5: Von Willebrand

Greining

• Erfiður í greiningu.• Tekin eru storkupróf og magn faktorsins mælt. • Fólk í O- blóðflokki greinist með lægri %

faktorsins í blóðinu en raunverulega er.• Fólk í A- blóðflokki greinist með hærri %

faktorsins í blóðinu en raunverulega er.• Stress, aldur og hormónajafnvægi hafa áhrif á

útkomuna.

Page 6: Von Willebrand

Mismunandi týpur

• Týpa 1: Væg. Algengasta gerð sjúkdómsins. Undir 50% af faktornum í blóðinu.

• Týpa 2: Miðlungs. Undir 30% af faktornum í blóðinu. Hér á landi eru einungis um 50 manns með týpu tvö.

• Týpa 3: Alvarlegasta gerð sjúkdómsins. Þá finnst faktorinn alls ekki í blóðinu. Þekkist ekki á Íslandi. Ekki algeng.

Page 7: Von Willebrand

Meðferð

• Flestir með týpu 1 og 2 þurfa ekki á meðhöndlun að halda nema þegar farið er í tanntöku eða aðgerð.

• Fólk með týpu 3 þarf á daglegri lyfjagjöf að halda.

-Þeim er gefinn faktorinn í sprautuformi.• Fólk með miðlungs- og alvarleg einkenni fara

reglulega í skoðun á blóðmeinastöð.

Page 8: Von Willebrand

Afhverju er nauðsynlegt að vita af VW jafnvel þótt að maður hafi engin einkenni?

• Mikilvægt er að láta vita fyrir aðgerðir eða þegar slys verða svo að læknar geti meðhöndlað sjúklinginn rétt.

• Von Willebrand sjúklingar mega ekki taka inn gigtarlyf og aspirín vegna blóðþynnandi áhrifa þeirra.

• Mega ekki fá sprautur beint í vöðva.• Þeir sem eru með týpu 2 og 3 þurfa að ganga

með skírteini ef slys skyldi verða.

Page 9: Von Willebrand

Takk fyrirUnnur Rún Eðvaldsdóttir

16. mars 2009 SJÚ 203