Texti Þórhallur Þorvaldsson Uppsetning og hönnun Guðmann Þorvaldsson 2006
description
Transcript of Texti Þórhallur Þorvaldsson Uppsetning og hönnun Guðmann Þorvaldsson 2006
TextiÞórhallur Þorvaldsson
Uppsetning og hönnunGuðmann Þorvaldsson
2006
Síðasta aftakan á Austurlandi
Síðasta aftakan á AusturlandiEiríkur Þorláksson f. 1763 - d. 1786
Fæddur að Þorgrímsstöðum í Breiðdal .Vistaðist um tíma hjá séra Gísla Sigurðssyni
í Eydölum.
Umsögn Gísla um Eirík var þannig…Latur, kærulaus um kristin fræði, hneigður til stráksskapar, þjófnaðar og brotthlaup úr
vistum.
Síðasta aftakan á Austurlandi
Þeir sem fylgdu Eiríki í þjófnaði voru…
Gunnsteinn Árnason frá Geldingi í Breiðdal og Jón
Sveinsson úr Breiðdal.
Jón vildi slíta samvistum við hina en Eiríkur tók því víðsfjærri og neyddi hann til vistar með þeim félögum. Hann var þá orðinn sjúkur og vildi leita hjálpar í byggð en Eiríkur aftók það með öllu.
Síðasta aftakan á Austurlandi
Þeir félagar höfðustu við á Naphorns-klettum rétt við Streiti við Djúpavog. Þá var Jón orðinn mjög veikur. Síðar, 27. maí 1784, leiddist Eiríki veikindatalið í Jóni, svo hann tunguskar manninn og stakk hann svo með hnífi í brjóstið. Það varð hans bani. Líkið fannst 6 dögum síðar.
Síðasta aftakan á Austurlandi Nú fluttu misyndismennirnir sig austur á
bóginn. Fljótlega voru þeir Eiríkur og Gunnsteinn teknir fyrir sauðaþjófnað á
Melrakkanesi í Álftafirði og dæmdir af Jóni Sveinssyni sýslumanni á Eskifirði.
Þótti fullvíst að þeir félagar væru viðriðnir
dauða Jóns. Voru þeir nú ásakaðir og handteknir
fyrir morðið á honum.
Síðasta aftakan á AusturlandiJón Sveinsson, sýslumaður Sunnmýlinga, fékk mál þeirra til meðferðar og voru sakamennirnir fluttir til Eskifjarðar og geymdir í dýflissu.
Með þeim Eiríki og Gunnsteini var 18 ára piltur úr Mjóafirði, Sigurður Jónsson. Hann var ólæs og skrifandi, dæmdur fyrir þjófnað og hafði náðst út í Helgustaðahreppi.
Síðasta aftakan á Austurlandi
Þeir struku úr fangageymslunni og stálu sér mat frá sýslumanni. Litlu síðar voru þeir svo gripnir af bóndanum á Sigmundarhúsum.
Síðar voru þeir fluttir í kofabyrgi við bæinn Borgir sunnan Eskifjarðarár.
Þann vetur afát Eiríkur félaga sína í fangavistinni.
Síðasta aftakan á AusturlandiEiríkur beið við gluggann og tók við
matnum sem þeim öllum var ætlaður, hirti bestu bitana en hnúturnar fengu hinir.
Sagt var að sýslumannsfrúin hefði verið
fastheldin á matinn og sagði Eiríkur síðar að svo
naumt hafði frúin skammtað að maturinn hefði rétt
dugað handa sér einum.
Síðasta aftakan á Austurlandi
Sýslumaður var í Danmörku í fremur vondum málum, vegna þess sem gerðist.
18. júlí, árið 1786, var settur upp héraðsréttur til að fara með mál Eiríks. Síðan fór málið fyrir Kanselíið í Kaupmannahöfn og afgreitt í leyniráði 11. janúar 1786.20. janúar 1786 staðfesti konungur í Kristjánsborg dóminn.
Síðasta aftakan á Austurlandi
Erfiðlega gekk að fá mann til að gegna hlutverki böðuls. Seint og um síðir gaf sig fram til starfsins
Björn frá Tandrastöðum í Norðfirði og launin sem hann fékk fyrir verkið voru
4 ríkisdalir og 48 skildingar.
30. september 1786 var Eiríkur, úr Eydalasókn, hálshöggvinn á Mjóeyri við Eskifjörð.
Síðasta aftakan á Austurlandi
Annar maður, Oddur frá Krossanesi við Reyðarfjörð, var umsjónarmaður starfsins.
Með öxinni hjó hann ótt og títt sem óður skollinn.
Herra Oddur hélt í kollinn,hinir litu blóðs í pollinn.
Um hann var þetta kveðið
Síðasta aftakan á Austurlandi
Sagt var að Björn, böðullinn, hafi verið búinn að drekka mikið áður en hann hóf
embættisverk sitt og gekk aftakan því illa.
Segir sagan að svo óhönduglega hafi böðli til tekist að eftir fjórða eða fimmta högg var Eiríkur enn með lífsmarki.
Síðasta aftakan á Austurlandi
Til siðs var að prestar eða biskupar væru vitni að aftökum. Séra Jón Högnason á Hólmum í Reyðarfirði var viðstaddur
atburð þennan.
Dönskum skipstjóra, Jörgen Pedersen Borg,
af húkkortunni Keflavík, ofbauð aðfarirnar, hundskammaði
böðulinn og var það til þess að Björn lauk verkinu í 7 höggum.
Síðasta aftakan á Austurlandi
Grafið var niður á leiðið á Mjóeyri 1905 eða 1906 og fannst þá karlmannsbeinagrind og höfuðið við hlið hennar. Sagt er að aftökuöxin sé geymd á Sjóminjasafni Austurlands á Eskifirði.
Líkamsleifar Eiríks voru grafnar í túninu á Mjóeyri
neðanlega á eyrinni.
Von okkar er sú að þessi stutta sýning megi vera til þess að auðga þekkingu
manna á þeim atburði sem fjallað var um.
Lifið heil!Guðmann og Þórhallur Þorvaldssynir