SUÐUR-AFRÍKA · ændaferðir ∙ Sérferð ∙ Suður-Afríka ististaðinn þar sem okkur gefst...

6
SUÐUR-AFRÍKA 25. september – 9. október 2020 Fararstjórn: Gunnhildur Gunnarsdóttir

Transcript of SUÐUR-AFRÍKA · ændaferðir ∙ Sérferð ∙ Suður-Afríka ististaðinn þar sem okkur gefst...

Page 1: SUÐUR-AFRÍKA · ændaferðir ∙ Sérferð ∙ Suður-Afríka ististaðinn þar sem okkur gefst frjáls tími áður en farið verður í sólseturssafarí síðdegis. Kvöldverður

SUÐUR-AFRÍKA

25. september – 9. október 2020

Fararstjórn: Gunnhildur Gunnarsdóttir

Page 2: SUÐUR-AFRÍKA · ændaferðir ∙ Sérferð ∙ Suður-Afríka ististaðinn þar sem okkur gefst frjáls tími áður en farið verður í sólseturssafarí síðdegis. Kvöldverður

Bændaferðir ∙ Sérferð ∙ Suður-Afríka

Ferðalýsing

Fjölbreytt dýralíf, stórbrotin náttúrufegurð og áhugaverðar borgir einkenna þessa Suður-Afríku ferð. Við hefјum ferðina í Jóhannesarborg og ökum sem leið liggur í áttina að hinum þekkta Kruger þjóðgarði. Við höldum í ævintýralega tveggja daga safaríferð um þjóðgarðinn þar sem á vegi okkar verða margar dýrategundir, m.a. ljón, hlébarðar, nashyrningar og fílar. Flogið verður til hinnar fallegu borgar Port Elizabeth, sem stendur við hið ylríka Indlandshaf. Við ökum til borgarinnar Knysna, sem stendur við stórkostlegt lón. Farið verður um heiðalönd Litlu Karoo í fögru umhverfi við Oudtshoorn og þar heimsækjum við strútabúgarð. Í Höfðaborg munum við fara í góða skoðunarferð og kynna okkur allt það markverðasta sem gerir hana að einni fegurstu borg í heimi. Ekið verður um vínhéruð í nágrenni Höfðaborgar og munum við líka heimsækja bæinn Stellenbosch, sem er næstelsti bær Suður-Afríku, en hann er þekktur fyrir byggingar frá tímum hollensku landnemanna. Ekin verður undurfögur leið eftir bröttum hlíðum út á Góðrarvonarhöfða, þar sem hið hlýja Indlandshaf og kalda Atlantshafið mætast en þar gefur að líta stórkostlegt útsýni á haf út. Við komum að verndaðri mörgæsabyggð og fylgjumst með hundruðum mörgæsa spígspora fram og aftur. Einnig verður ekið um litla fiskimannabæi, iðandi af lífi, og fallegar víkur og firði. Suður-Afríka er af mörgum talið eitt fegursta land í heimi með fјölbreytt og litríkt landslag og einstaklega gott veðurfar.

15 dagar | 14 nætur

25. september | Flug til Jóhannesarborgar Flogið verður með British Airways í gegnum London til Jóhannesarborgar. Brottför frá Keflavík kl. 10:50 og lending á London Heathrow kl. 14:45 (+ 1 klst.) að staðartíma. Þaðan verður flogið til Jóhannesarborgar í næturflugi, brottför kl. 19:05 og lending í Jóhannesarborg kl. 07:05 (+ 1 klst.) að staðartíma þann 26. september. Næturflugið tekur 11 klst.

26. september | Jóhannesarborg – Soweto – Pretoria H/K Lent verður í Jóhannesarborg að morgni dags. Þar sem herbergi okkar verða ekki til reiðu fyrr en eftir hádegi hefjum við ferðina á að skoða okkur um í Soweto, einu af úthverfum Jóhannesarborgar, sem áður var einungis ætlað þeldökku fólki. Við fáum að heyra um byltinguna sem hófst hér, heimsækjum safn helgað Nelson Mandela og lærum um fólkið sem hér býr. Eftir hádegismatinn verður haldið á hótelið í Pretoria þar sem hægt verður að slaka á og safna kröftum fyrir

Page 3: SUÐUR-AFRÍKA · ændaferðir ∙ Sérferð ∙ Suður-Afríka ististaðinn þar sem okkur gefst frjáls tími áður en farið verður í sólseturssafarí síðdegis. Kvöldverður

Bændaferðir ∙ Sérferð ∙ Suður-Afríka

ævintýri komandi daga. Um kvöldið er sameiginlegur kvöldverður á hótelinu. Gist í Pretoria eina nótt.

27. september | Panoramaleiðin – Blyde River gljúfrið – Hazyview M/K Eftir morgunmatinn stefnum við í austurátt til Hazyview. Við ökum Panoramaleiðina sem er oft sögð eitt fallegasta svæði Suður-Afríku. Fyrsti viðkomustaður okkar verður við God‘s window en þaðan er frábært útsýni yfir Lowveld. Einnig sjáum við Pinnacle Rock, klettadranga úr graníti og Bourke‘s Luck Potholes skessukatlana, djúpar og sívalningslaga holur í berginu sem mynduðust vegna árrofs. Hápunktur dagsins eru Three Rondavels klettabjörgin, en við hagstæð veðurskilyrði er stórkostlegt útsýni þaðan yfir hið stórbrotna gljúfur Blyde River Canyon sem er 33 km langt og talið eitt mesta náttúruundur landsins. Gist á hóteli í Hazyview eina nótt og kvöldverður snæddur á hótelinu.

28. september | Safarí í Kruger þjóðgarðinum M/H/K Ekin verður tiltölulega stutt leið í Kruger þjóðgarðinn, stærsta þjóðgarð Suður-Afríku, sem er á stærð við Belgíu. Þar sem við hefjum daginn mjög snemma verður morgunverður ekki snæddur á hótelinu, heldur verða nestispakkar með í för. Í Kruger þjóðgarðinum verður farið í safaríferð um garðinn sem er þekktur fyrir verndun villtra dýra og vistfræði sína. Ferðast verður um í opnum jeppum og munum við sjá dýr á borð við ljón, hlébarða, vísunda, antilópur, gíraffa, sebrahesta, nashyrninga, fíla, hýenur og bavíana í sínu náttúrulega umhverfi. Í gegnum árin hafa villt dýrin vanist bílaumferðinni um garðinn og má því jafnvel sjá t.d. fíla, gíraffa og antilópur á beit í námunda við kyrrstæða bíla. Það getur jafnvel komið fyrir að hópur ljóna eða blettatígrar standi í vegi bílanna og hindri för þeirra eftir veginum. Ef heppnin er með okkur munum við sjá fíla, hlébarða, ljón og buffalóa. Hádegisverðarpakkar verða einnig meðferðis og nýtist því allur dagurinn í garðinum. Næstu tvær nætur verður gist í þjóðgarðinum og mun gisting okkar bera keim af dæmigerðum óbyggðablæ þótt gist verði í nútímalegum safarítjöldum með baði. Okkur gefst þannig kostur á að upplifa hljóð og lykt þjóðgarðsins á einstakan hátt. Ef veður leyfir þá verður snæddur Boma kvöldverður undir afrískum himni, annars verður kvöldverðarhlaðborð innandyra.

29. september | Safarí í Kruger þjóðgarðinum M/H/K Safaríferðinni verður haldið áfram þar sem frá var horfið í gær. Reynt verður að komast til einhverra þeirra svæða sem ekki náðist að skoða í gær. Áfangastaðurinn er háður tilmælum þjóðgarðsvarðanna, þar sem aðgangur að ákveðnum svæðum gæti verið takmarkaður vegna verndunar dýranna. Eftir hádegi verður haldið aftur á

Page 4: SUÐUR-AFRÍKA · ændaferðir ∙ Sérferð ∙ Suður-Afríka ististaðinn þar sem okkur gefst frjáls tími áður en farið verður í sólseturssafarí síðdegis. Kvöldverður

Bændaferðir ∙ Sérferð ∙ Suður-Afríka

ististaðinn þar sem okkur gefst frjáls tími áður en farið verður í sólseturssafarí síðdegis. Kvöldverður er snæddur á gististað.

30. september | Port Elizabeth M Eftir morgunverðinn yfirgefum við Kruger þjóðgarðinn og ökum til baka í áttina að Jóhannesarborg. Frá flugvelli Jóhannesarborgar fljúgum við til fallega strandbæjarins Port Elizabeth sem stendur við ylvolgt Indlandshafið. Hér verður gist eina nótt.

1. október | Tsitsikamma þjóðgarðurinn – Knysna M/K

Ekin verður fögur leið til Tsitsikamma þjóðgarðsins sem er þekktur fyrir fjölbreytt fuglalíf, fágætar plöntur, tré og heillandi klettaströnd. Eftir stutta gönguferð, þar sem m.a. verður gengið yfir ævintýralegu hengibrúna sem liggur yfir ána Storms River, heldur ferð okkar áfram gegnum Nature‘s Valley til strandbæjarins Plettenberg Bay. Farin verður svonefnd Blómaleið til Knysna en þar skellum við okkur í siglingu á Knysna

lóninu og njótum fallegs útsýnis út yfir Knysna Heads höfðana, tvær sandsteinsmyndanir sem marka innsiglingu lónsins. Kvöldverður verður snæddur um borð í bátnum. Gist tvær nætur á hóteli í Knysna.

2. október | Frjáls dagur í Knysna M Í dag er tilvalið að taka því rólega í þessu fagra umhverfi og jafnvel láta dekra við sig á heilsulind hótelsins. Við ströndina eru áhugaverðar gönguleiðir og við aðalgötuna eru huggulegar búðir og góðir veitingastaðir sem bjóða upp á girnilega sjávarrétti.

3. október | Litla Karoo – Strútabúgarður í Oudtshoorn M/K Að loknum morgunverði er ekið í gegnum hið stórbrotna Quteniqua Pass skarð á leið okkar til Oudtshoorn, stærsta bæjar Litla Karoo og aðalmiðstöðvar strútaræktunar. Þar heimsækjum við strútabúgarð þar sem við sjáum sýningu og fræðumst um strúta. Eftir hádegi höldum við til norðurs og skoðum heimsþekktu dropasteinshellana Cango Caves áður en haldið er á hótel þar sem gist er eina nótt.

4. október | Höfðaborg M Haldið verður í vesturátt gegnum bæinn Swellendam sem stendur við rætur Langeberg fjallanna, en hann er talinn vera þriðji elsti evrópski bærinn í Suður-Afríku. Fljótlega eftir hádegi verður komið til Höfðaborgar og strax haldið í skoðunarferð um borgina. Ekið verður í gegnum elstu borgarhlutana, frá Góðrarvonarkastala eftir Heerengracht og Adderley stræti, fram hjá Groote Kerk kirkjunni og Menningarsafninu. Ef veðrið og útsýnið er gott er tilvalið að fara í ferð með kláfi upp á Borðfjallið (Table Mountain). Fjallið er aðalkennileiti Höfðaborgar og þegar himinn er heiður er frábært útsýni þaðan yfir borgina og út á haf. Við göngum um fyrrum grænmetisgarða hollenska Austur-Indíafélagsins áður en komið er að frægu höfninni, Victoria & Alfred Waterfront, en þar

Page 5: SUÐUR-AFRÍKA · ændaferðir ∙ Sérferð ∙ Suður-Afríka ististaðinn þar sem okkur gefst frjáls tími áður en farið verður í sólseturssafarí síðdegis. Kvöldverður

Bændaferðir ∙ Sérferð ∙ Suður-Afríka

má finna fjöldann allan af verslunum, veitingastöðum og annarri afþreyingu. Gist fjórar nætur á hóteli í Höfðaborg.

5. október | Stellenbosch – Vínræktarhéruð M/H Dagurinn hefst á afar fróðlegri heimsókn í fátækari bæjarhluta Höfðaborgar og við fáum innsýn í aðbúnað fólks sem þar býr við afar bágborin kjör. Heimamenn munu sjálfir sýna okkur hverfin sín. Héðan liggur leiðin til næstelstu borgar landsins, Stellenbosch, en hún er þekkt fyrir byggingar frá tímum hollensku landnemanna. Bærinn var stofnaður árið 1679 og er vínhefð svæðisins nánast jafngömul. Við lítum fjölbreytilegt landslag heimsþekktra vínhéraða Suður-Afríku sem eru einungis í um klukkustundar akstursfjarlægð frá Höfðaborg. Við lítum aðeins í kringum okkur í borginni og snæðum hádegisverð. Ef áhugi er fyrir hendi er möguleiki að fara í vínsmökkun þennan dag.

6. október | Frídagur M Í dag gefst tími til þess að slaka á og njóta dvalarinnar í Höfðaborg. Mögulegt er að fara í skoðunarferðir t.d. til Robbeneiland (á afrikaans) eða selaeyjunnar. Á eyjunni má m.a. finna fangelsið þar sem Nelson Mandela var fangi megnið af þeim 27 árum sem hann var fangelsaður fyrir baráttu sína gegn aðskilnaðarstefnunni. Síðdegis mætti fara og skoða Greenmarket og enda niðri á Victoria & Alfred Waterfront höfninni.

7. október | Góðrarvonarhöfði M/H/K Eftir morgunverðinn höldum við í dagsferð að Góðrarvonarhöfða (Cape of Good Hope) sem er einn af hápunktum ferðarinnar. Ekið verður eftir ströndinni í gegnum úthverfin Sea Point, Clifton og Camps Bay til Hout Bay sem er miðstöð fiskiðnaðar á svæðinu. Leiðin liggur eftir Chapman‘s Peak Drive með fallegu útsýni út yfir Atlantshafið að Góðrarvonarhöfða. Við höfðann gefst kostur á að ganga upp að vitanum og njóta stórkostlegrar sýnar yfir hafið þar sem ylvolgt Indlandshafið og ískalt Atlantshafið mætast. Ferðin að Góðrarvonarhöfða mun seint gleymast, en náttúrufegurð hvítra stranda Atlantshafsins láta engan ósnortinn. Við höldum áfram til Simon‘s town og snæðum hádegisverð í þessu fallega sjávarþorpi. Einnig verður áð á minnsta náttúruverndarsvæði í heimi þar sem finna má hundruð mörgæsa. Um kvöldið snæðum við kveðjukvöldverð á veitingastað í Höfðaborg.

Page 6: SUÐUR-AFRÍKA · ændaferðir ∙ Sérferð ∙ Suður-Afríka ististaðinn þar sem okkur gefst frjáls tími áður en farið verður í sólseturssafarí síðdegis. Kvöldverður

Bændaferðir ∙ Síðumúli 2 ∙ 108 Reykjavík ∙ Sími 570 2790 ∙ [email protected]

8. október | Heimferð M Frjáls tími fram eftir degi. Rýma þarf herbergin um hádegi, en hótelið getur geymt farangur okkar áfram. Síðdegis verður haldið á flugvöllinn í Höfðaborg. Brottför með næturflugi til London kl. 19:30 að staðartíma og lendum við í London kl. 6:30 næsta dag, 20. október. Flugið til London tekur um 11,5 klst.

9. október | London & flug heim Lent í London kl. 6:30 um morguninn. Flogið áfram heim kl. 13:05 að staðartíma og áætluð lending í Keflavík kl. 15:10.

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

Verð 619.900 kr. á mann í tvíbýli | 68.400 kr. aukagjald fyrir einbýli.

Innifalið ✓ Áætlunarflug með British Airways: Keflavík –

London – Jóhannesarborg. ✓ Áætlunarflug með British Airways: Höfðaborg –

London. ✓ Áætlunarflug með Icelandair: London – Keflavík. ✓ Innanlandsflug: Jóhannesarborg – Port Elizabeth. ✓ Flugvallaskattar fyrir alla ferðina. ✓ Akstur til og frá flugvelli í Jóhannesarborg, Port

Elizabeth og Höfðaborg. ✓ Allar rútuferðir samkvæmt ferðalýsingu í loftkældri

rútu. ✓ Skoðunarferðir og aðgangseyrir samkvæmt ferðalýsingu. ✓ Jeppasafarí í Kruger þjóðgarðinum. ✓ Gisting í 10 nætur í tveggja manna herbergjum á góðum milliklassa hótelum,

samkvæmt landsmælikvarða. ✓ Gisting í 2 nætur í tveggja manna safarítjöldum (Lodges) vegna dvalar í Kruger

þjóðgarðinum. ✓ Sjá í ferðalýsingu hvaða máltíðir eru innifaldar

(M = morgunverður, H = hádegisverður, K = kvöldverður).

✓ Töskuburður – eitt stk. á mann. . ✓ Enskumælandi staðarleiðsögn. ✓ Íslensk fararstjórn. ✓ Undirbúningsfundur með fararstjóra fyrir ferð.

Ekki innifalið ✓ Þjórfé fyrir erlendan staðarleiðsögumann og

rútubílstjóra. ✓ Aðrar máltíðir en þær sem taldar eru upp í

ferðalýsingu. ✓ Skoðunarferð út í Robben Island eyjuna. ✓ Forfalla- og ferðatryggingar.