Skýrsla um starfssemi umhverfissviðs 2011
-
Upload
mosfellsbaer -
Category
Documents
-
view
235 -
download
2
description
Transcript of Skýrsla um starfssemi umhverfissviðs 2011
Starfsemi Umhverfissviðs 2011
Efnisyfirlit
INNGANGUR................................................................................................. 3
HLUTVERK .................................................................................................... 3
SKIPULAGSMÁL 2011 ................................................................................... 3
BYGGINGAMÁL ............................................................................................ 6
STAÐARDAGSKRÁ 21 .................................................................................... 8
UMHVERFISMÁL OG NÁTTÚRUVERND ........................................................ 9
OPIN SVÆÐI OG GARÐYRKJA ..................................................................... 10
MEINDÝRAEYÐING ..................................................................................... 11
DÝRAEFTIRLIT ............................................................................................. 12
FRAMKVÆMDA‐ OG ÞJÓNUSTUSTÖÐ ........................................................ 12
GATNAKERFI - NÝFRAMKVÆMDIR OG VIÐHALD ....................................... 15
STARFSEMI VEITNA .................................................................................... 15
VEÐURATHUGANIR .................................................................................... 17
EIGNASJÓÐUR, HELSTU VERKEFNI 2011 .................................................... 18
LANDUPPLÝSINGAKERFI ............................................................................. 19
BYGGINGASTJÓRINN .................................................................................. 20
GAGNASJÁ .................................................................................................. 21
LOKAORÐ ................................................................................................... 21
UMHVERFISSVIÐ MOSFELLSBÆJAR
Ársskýrsla 2011 - 3
INNGANGUR
Skýrsla um starfsemi umhverfissviðs kemur nú út fyrir árið 2011. Í henni er gert grein fyrir
helstu verkefnum liðins árs í öllum rekstrareiningum innan Umhverfissviðs sem og þeim
átaksverkefnum sem hafa verið í gangi árið 2011.
HLUTVERK
Umhverfissvið hefur umsjón með allri starfsemi sem tengist tækni- og umhverfismálum
bæjarins, s.s veitu‐ og fráveitukerfum, gatna‐ og umferðarmálum, almenningssamgöngum,
umhverfismálum, garðyrkju og opnum svæðum, skipulagsmálum, byggingareftirliti, bruna-
vörnum, fasteignum, meindýravörnum og eftirliti með dýrahaldi. Einnig hefur sviðið umsjón
með öllum nýframkvæmdum á vegum bæjarins.
Undir umhverfissvið fellur rekstur eftirtalinna deilda:
Skipulags- og byggingadeild
Umhverfisdeild
Framkvæmda‐ og þjónustudeild.
Eignasjóður
Veitur
Garðyrkja
Starfsemi þjónustustöðvar, vélamiðstöðvar, garðyrkjudeildar, dýraeftirlits og veitustofnana er
til húsa að Völuteig 15. Önnur starfsemi sviðsins er til húsa að Þverholti 2/Kjarna, 2. hæð.
Á sviðinu störfuðu á árinu 18 starfsmenn, 7 manns á skrifstofu umhverfissviðs í Kjarna og 11 í
Þjónustumiðstöð. Þrír starfsmenn voru í hlutastörfum.
Verkefni eignasjóðs eru í stöðugri endurskoðun. Á liðnu ári var aðaláherslan lögð á rekstur og
viðhald mannvirkja. Orkusparnaðarverkefni, sem byrjað var á árið 2010 til að stuðla á auknum
orkusparnaði i byggingum bæjarins, hefur gengið vel og hefur náðst allt að 15% sparnaður í
orkunotkun á einstökum stöðum. Þetta er verkefni sem fylgja þarf eftir og sífellt leita nýrra
leiða til að halda kostnaði í lágmarki. Þá hafa verkefni í auknum mæli verið innhýst í hagræðing-
arskyni, s.s. eftirlit með nýbyggingum, og hefur það haft í för með sér aukin verkefni innan
sviðsins.
SKIPULAGSMÁL 2011
Í upphafi ársins tóku gildi ný skipulagslög, sem m.a. höfðu þau áhrif að heiti skipulags- og bygg-
ingarnefndar breyttist í skipulagsnefnd. Verksvið nefndarinnar breyttist í samræmi við nafn-
breytinguna, þannig að afgreiðsla byggingarmála heyrði ekki lengur undir hana heldur færðist
alfarið yfir til byggingarfulltrúa. Nefndin fær þó enn til sín til umsagnar byggingarmál þar sem
uppi eru einhver álitamál varðandi túlkun á skipulagsákvæðum og hún annast áfram grenndar-
kynningar á byggingarleyfisumsóknum.
UMHVERFISSVIÐ MOSFELLSBÆJAR
4 - Ársskýrsla 2011
Hvað umfang varðar voru skipulagsmálin í svipuðu fari og næstu tvö ár á undan, og mörkuðust
af því að byggingarframkvæmdir voru áfram í mikilli lægð. Vinnu að deiliskipulagi miðbæjarins
lauk með gildistöku þess í upphafi ársins og eftir það var endurskoðun aðalskipulagsins
langstærsta og mikilvægasta skipulagsverkefnið. Stefnt hafði verið að því að endurskoðuninni
lyki á árinu 2011 en það mun dragast fram á árið 2012.
Á árinu tóku eftirtaldar skipulagsáætlanir gildi (gildistökudagsetning í sviga):
Aðal- og svæðisskipulagsbreytingar:
Stofnanasvæði í landi Sólvalla, aðalskipulag (3.6.2011)
Stofnanasvæði í landi Sólvalla, svæðisskipulag (8.4.2011)
Nýtt deiliskipulag / heildarendurskoðun deiliskipulags:
Deiliskipulag miðbæjarins (18.1.2011)
Deiliskipulag Lækjarness, Mosfellsdal (18.1.2011)
Deiliskipulag Bókfells v. Helgadalsveg (9.2.2011)
Deiliskipulag frístundalóðar v. Silungatjörn, l.nr. 125184 (7.3.2011)
Deiliskipulag frístundalóðarinnar Lynghóls, l.nr. 125346 (10.3.2011)
Deiliskipulag vegar að Helgafellstorfu (27.9.2011)
Mynd 1. Deiliskipulag miðbæjarins - skýringaruppdráttur
UMHVERFISSVIÐ MOSFELLSBÆJAR
Ársskýrsla 2011 - 5
Breytingar á deiliskipulagi:
Reykjahvoll 39 - 41, breyting á deiliskipulagi (9.2.2011)
Braut, Mosfellsdal, breyting á deiliskipulagi (25.2.2011)
Völuteigur 6, breyting á deiliskipulagi (25.2.2011)
Br. á deiliskipulagi við Reykjahvol, nr. 17, 19 og 25 (4.4.2011)
Br. á deiliskipulagi Leirvogstungu, leikskólalóð o.fl. (12.5.2011)
Br. á miðbæjarskipulagi, sorpskýli á lóð framhaldsskóla (20.5.2011)
Br. á deiliskipulagi slökkvistöðvarlóðar (20.7.2011)
Frístundalóð úr landi Lynghóls, br. á deiliskipulagi (17.11.2011)
Stórikriki 57, br. á deiliskipulagi Krikahverfis (17.11.2011)
Á árinu 2011 fóru fram 11 grenndarkynningar, þar sem kynntar voru tillögur að óverulegum
breytingum á deiliskipulagi og byggingarleyfisumsóknir í eldri hverfum.
Á árinu var lokið við gerð ofanflóðahættumats fyrir bæjarlandið, en það var unnið af sérfræð-
ingum Veðurstofunnar fyrir hættumatsnefnd, sem Mosfellsbær átti tvo fulltrúa í. Niðurstöður
matsins voru þær að hætta geti verið á snjóflóðum og skriðuföllum undir Úlfarsfelli og Helga-
felli, en hún sé tiltölulega lítil miðað við ofanflóðahættu á öðrum þéttbýlisstöðum hér á landi
þar sem á annað borð er um einhverja hættu að ræða. Í matinu voru því eingöngu skilgreind A-
og B-hættusvæði í Mosfellsbæ, tiltölulega lítil að umfangi, en engin C-svæði. Á A-svæðunum er
hættan minnst, og eru tvö hús ætluð til atvinnustarfsemi á slíku svæði undir Úlfarsfelli en á A-
svæði undir Helgafelli eru tvö íbúðarhús og eitt frístundahús.
Á árinu var sett fram nýtt staðgreinikerfi fyrir bæjarlandið þar sem því er skipt upp í þrjú
meginsvæði (Bærinn, Mosfellsdalur, upplandið) með eins stafs kennitölu, meginsvæðunum í
undirsvæði með tveggja stafa kennitölu og svo áfram koll af kolli. Staðgreinikerfið verður til að
byrja með notað við flokkun og vistun skipulagsgagna í því skyni að gera þau aðgengilegri, og
kerfið ætti einnig að geta komið að gagni við flokkun og vistun hverskyns annarra gagna á
Umhverfissviði, hjá einstökum starfsmönnum og í skjalasafni.
Mynd 2. Niðurstöður hættumats: A-svæði Mynd 3. A- og B-hættusvæði undir norðurhlíð
sunnan undir Helgafelli . Úlfarsfells.
UMHVERFISSVIÐ MOSFELLSBÆJAR
6 - Ársskýrsla 2011
BYGGINGAMÁL
Verksvið embættis byggingafulltrúa tengist skipulagsmálum, afgreiðslu byggingarleyfisumsókna
ásamt afgreiðslu aðal‐ og séruppdrátta, lóðaskráningu í landsskrá fasteigna, byggingaeftirliti og
úttektum. Einnig annast embættið gerð lóðarleigusamninga og fasteignaskráningu sem er
grundvöllur fyrir álagningu fasteignagjalda. Náið samstarf er við fjármáladeild‐ og stjórn-
sýslusvið vegna ýmis konar samninga og innheimtu fasteignagjalda.
Í desember 2010 tóku gildi ný lög um mannvirki í stað áður gildandi skipulags- og byggingar-
laga. Með gildistökunni urðu áherslubreytingar á verksviði byggingafulltrúa þannig að af-
greiðsluferli byggingarleyfisumsókna verður í ríkari mæli en áður alfarið á hendi bygginga-
fulltrúa.
Eins og áður hefur verið lögð mikil áhersla á uppfærslu fasteignaskráningar í grunn Fasteigna-
skrár, en það er verkefni sem stöðugt þarf að fylgja eftir svo grunnurinn sé sem réttastur.
Á árinu var gerð umfangsmikil úttekt á ástandi og öryggismálum á nýbyggingasvæðum. Í fram-
haldi af úttektinni var umráðendum lóða og mannvirkja send krafa um úrbætur. Góður árangur
náðist í átakinu, en nokkur málanna eru nú í gjaldþrotameðferð eða innheimtuferli dagsekta.
Fyrirliggjandi ástandsskýrsla hefur verið kynnt formlega. Framvinda verður síðan kynnt bæjar-
ráði og skipulagsnefnd ársfjórðungslega.
Umfangsmestu byggingarframkvæmdir sem voru til umfjöllunar á árinu eru nýtt hjúkrunar-
heimili við Langatanga og nýr framhaldsskóli við Bjarkarholt / Háholt, en stærð þessara tveggja
mannvirkja er 25.400 m³. Framkvæmdir eru hafnar við hjúkrunarheimilið og hönnunargögn
fyrir framhaldsskólann eru að verða tilbúin til útboðs.
Gerð lóðar‐ og mæliblaða er í auknum mæli unnin innan umhverfissviðs og stefnt er að aukinni
úrvinnslu verkefna innan sviðsins í stað aðkeyptrar þjónustu. Einnig er áætluð áframhaldandi
eftirfylgni með tiltektar- og öryggismálum ásamt útrýmingu gáma úr íbúðarhverfum.
Á árunum 2007 og 2008 var málafjöldi hjá byggingafulltrúa í hámarki, og voru skráð ný mál í
ONE-skjalakerfinu 307 talsins á fyrra árinu og 294 á því síðara. Á árunum þar á eftir hefur þróun
í málafjölda, afgreiðslum byggingarleyfisumsókna á afgreiðslufundum byggingafulltrúa, fjölda
og stærð samþykktra íbúða og annarra bygginga ásamt ýmsum byggingartengdum málum verið
sem hér segir:
Tafla 1. Málafjöldi hjá byggingafulltrúa og stærð bygginga í m³ 2007 - 2011
Ár Ný erindi í ONE
Mál afgreidd á
afgreiðslu-
fundum
Stærð bygginga í m³
2007 307
304.017
2008 294
145.875
2009 98 79 24.161
2010 102 56 8.989
2011 126 54 34.732
UMHVERFISSVIÐ MOSFELLSBÆJAR
Ársskýrsla 2011 - 7
Yfirlit yfir afgreiðslur 2009:
Skráður fjöldi innkominna nýrra erinda í ONE var 98.
Samtals 79 afgreidd mál á afgreiðslufundum, breytingar og annað húsnæði.
6 einbýlishús, 4 parhús (íbúðir). Samtals 10 nýjar íbúðir.
Stærð samþykktra mannvirkja samtals: 24.161m³
Yfirlit yfir afgreiðslur 2010:
Skráður fjöldi innkominna nýrra erinda í ONE var 102.
Samtals 56 mál afgreidd á afgreiðslufundum, breytingar og annað húsnæði.
Þar af 1 einbýlishús. Samþykkt mannvirki samtals: 8.989m3
Yfirlit yfir afgreiðslur 2011:
Skráður fjöldi lokinna mála í ONE var 132.
Skráður fjöldi innkominna nýrra erinda í ONE var 126.
Samtals 54 mál afgreidd á afgreiðslufundum, breytingar og annað húsnæði.
1 einbýlishús, hjúkrunarheimili, framhaldsskóli. Samþykkt mannvirki samtals: 34.732 m2
Mynd 2: Fjöldi byggingarmála 2007 - 2011
Mynd 3: Rúmmál samþykktra mannvirkja 2007 - 2011
Í kjölfar efnahagshruns í október 2008 fækkaði nýjum byggingartengdum erindum umtalsvert.
Lágmarki virðist hafa verið náð á árunum 2009 og 2010, en nokkur aukning hefur orðið á mála-
fjölda og umfangi bygginga sem voru til umfjöllunar á árinu 2011.
0
50
100
150
200
250
300
350
2007 2008 2009 2010 2011
Ný erind í ONE
Mál afgreidd á afgreiðslufundum
0
50.000
100.000
150.000
200.000
250.000
300.000
350.000
2007 2008 2009 2010 2011
Stærð bygginga í m³
UMHVERFISSVIÐ MOSFELLSBÆJAR
8 - Ársskýrsla 2011
STAÐARDAGSKRÁ 21
Á árinu 2011 komu margvísleg verkefni inn á borð umhverfissviðs, tengd umhverfismálum og
Staðardagskrá 21, s.s.varðandi útivist, lýðheilsu, úrgangsmál og náttúruvernd.
Frá árinu 2008 hefur Mosfellsbær lagt aukna áherslu á Staðardagskrá 21. Markmið bæjarins er
að vera í fremstu röð sveitarfélaga hvað varðar sjálfbæra þróun og leitast við að vera framsæk-
ið, umhverfisvænt og nútímalegt bæjarfélag. Allar stefnur sem unnar hafa verið hjá Mosfellsbæ
á undanförnum árum hafa tekið mið af stefnu bæjarfélagsins varðandi sjálfbæra þróun. Fram-
kvæmdaáætlun Staðardagskrár 21 var endurskoðuð árið 2010, og í kjölfarið var unninn verk-
efnalisti fyrir Staðardagskrá 21 fyrir árið 2011, þar sem fram komu þau málefni sem Mos-
fellsbær lagði áherslu á.
Margs konar samstarf er við skóla og stofnanir í bænum varðandi umhverfismál, og má þar
m.a. nefna uppsetningu á útikennslusvæði í Litla-Skógi við Hlíðartún á árinu. Unnið var við
grænt bókhald og stofnanir bæjarins voru hvattar til að skoða möguleika á að taka upp grænt
bókhald í starfsemi sinni.
Í september 2011 var haldinn opinn íbúafundur um lýðræðismál og lýðræðisstefnu Mosfells-
bæjar, þar sem umhverfisstjóra/staðardagskrárfulltrúa var m.a. falið að fylgjast með fram-
kvæmd stefnunnar með árlegri greinargerð. Í september var tekið á móti sendinefnd tékk-
neskra bæjarstjórnarmanna, sem voru að kynna sér umhverfisvænar skrifstofur og umhverfis-
mál hér á landi.
Viðhaldið var virku samstarfi við samráðshóp staðardagskrárfulltrúa á landsvísu og fundað
reglulega um málefni tengd sjálfbærri þróun í sveitarfélögum á Íslandi. Í október var haldið á
Selfossi málþing á vegum Sambands Íslenskra Sveitarfélaga um sjálfbærni, svo og umhverfis-
þing á vegum Umhverfisráðuneytisins með sérstakri áherslu á náttúruvernd, þar sem fulltrúi
Mosfellsbæjar tók virkan þátt. Fulltrúar Mosfellsbæjar tóku einnig þátt í stórum samráðsfundi
á vegum Sambands Sveitarfélaga á Höfuðborgarsvæðinu, og voru í framhaldinu skipaðir í
vinnuhópa, s.s. varðandi heilbrigðiseftirlit, vistvænar samgöngur og aukna sorpflokkun. Þessi
vinna skilaði sér m.a. í tillögum
fulltrúa sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu varðandi vistvænar sam-
göngur og úrgangsmál, þar sem voru
lögð drög að aukinni sorpflokkun,
sem nú er fyrirhugað að taka upp á
höfuðborgarsvæðinu. Í framhaldinu
hefur farið fram mikil vinna við að
undirbúa auka sorpflokkun íbúa í
Mosfellsbæ. Stefnan felur í sér að öll
heimili í Mosfellsbæ fá nýtt endur-
vinnsluílát afhent á árinu 2012, sem
ætlað er til þess að flokka frá allan
pappír og pappa.
Ráðgjöf við ýmis samtök, áhugafélög og íbúa um umhverfismál er fyrirferðarmikill þáttur starf-
seminnar. Má þar nefna Hestamannafélagið Hörð, Skógræktarfélag Mosfellsbæjar, Skátafélagið
Mosverja og Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar. Af stærri verkefnum má nefna
Mynd 4: Gróður á Langahrygg
UMHVERFISSVIÐ MOSFELLSBÆJAR
Ársskýrsla 2011 - 9
samstarfsverkefni Mosfellsbæjar,
hestamannafélagsins og skógræktar-
félagsins um uppgræðslu á Langa-
hrygg. Einnig var unnið með fyrir-
tækjum að undirbúningi að umhverf-
isvænni starfsemi í Mosfellsbæ.
Áfram var unnið með skátafélaginu
að stikun gönguleiða í bæjarlandinu
og ný og uppfærð útgáfa gönguleiða-
korts var gefin út.
Samráð og samvinna við Heilbrigð-
iseftirlit Kjósarsvæðis hefur einnig
verið að aukast, m.a. varðandi meng-
un frá fyrirtækjum, og skilar sér vonandi í í hreinna umhverfi. Í lok árs fór umhverfisstjóri í
þriggja mánaða afleysingu sem heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Kjósarsvæðis, en það
var jafnframt liður í hagræðingu og sparnaði hjá Mosfellsbæ.
Loks má geta þess að þátttaka í fjölbreyttum verkefnum á borð við Evrópsku Samgönguvikuna,
átakið „Hjólað í vinnuna“ og Vistvernd í verki, hefur öll verið á hendi umhverfisdeildar.
UMHVERFISMÁL OG NÁTTÚRUVERND
Framkvæmd umhverfismála í Mosfellsbæ heyrir undir umhverfissvið og umhverfisstjóra. Um-
hverfisstjóri er jafnframt starfsmaður umhverfisnefndar, sem einnig starfar sem náttúruvernd-
arnefnd, og sér hann um að undirbúa fundi nefndarinnar.
Verkefni umhverfisnefndar á árinu voru fjölbreytt, en áherslan var á margvísleg náttúruvernd-
armál, ásamt úrgangsmálum, uppgræðslu og skipulagi, auk þess sem árlegar umhverfisviður-
kenningar voru veittar.
Málefni tengd utanvegaakstri voru áberandi á árinu 2011, m.a. vegna fjölda kvartana. Ráðist
var í aðgerðir til að takmarka utanvegaakstur í útmörk Mosfellsbæjar. Hafist var handa við
samráðsverkefni á vegum umhverfisnefndar vegna utanvegaaksturs í útmörkinni, sem felst í
kortlagningu slóða í samráði við hagsmunaaðila. Verkefninu verður haldið áfram árið 2012. Þá
er umhverfisstjóri starfsmaður ungmennaráðs Mosfellsbæjar og sér um undirbúning funda
þess ásamt tómstundafulltrúa.
Ársfundur Umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga var haldinn í Mosfellsbæ
í október 2011, þar sem umfjöllunarefnið var friðlýsingar svæða, umsjón, vernd og nýting. Um
40 fulltrúar frá Umhverfisstofnun og hinum ýmsu náttúruverndarnefndum sóttu fundinn, og
fóru í fundarlok í skoðunarferð um bæinn með viðkomu í friðlandinu við Varmárósa og við
Varmá þar sem lagfæringar á bakkarofi stóðu yfir. Í tengslum við ársfundinn var unnið að
endurnýjun á friðlýsingu Varmárósa og gerð umsjónarsamnings um svæðið.
Umhverfisstefna bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar var innleidd á árinu 2011 og með því setti
skrifstofan sér skýr markmið um pappírsnotkun, úrgangsmál, orkumál og vistvænar sam-
göngur.
Mynd 5: Uppgræðslusvæði á Langahrygg
UMHVERFISSVIÐ MOSFELLSBÆJAR
10 - Ársskýrsla 2011
Samskipti við SORPU bs. vegna lyktarmengunar frá Álfsnesi voru mikilvægur hluti af starfsemi
umhverfissviðs árið 2011. Talsvert barst af kvörtunum frá íbúum í Mosfellsbæ vegna ólyktar
frá bögguðum úrgangi og frá lyktarsterkum úrgagni í seyruholu. Verkefni til að koma í veg fyrir
lyktarmengun frá starfsemi urðunarstaðarins í Álfsnesi er í gangi og mun vonandi skila árangri í
minni lyktarmengun frá starfseminni.
OPIN SVÆÐI OG GARÐYRKJA
Garðyrkjudeild Mosfellsbæjar sér um öll almenn garðyrkjustörf og umhirðu gróðurs í landi
Mosfellsbæjar, auk viðhalds og umhirðu á stofnanalóðum bæjarins. Áhersla er á að halda
opnum svæðum snyrtilegum og aðgengilegum fyrir almenning.
Nýframkvæmdir á vegum garðyrkjudeildar taka helst til opinna svæða og frágangs göngustíga
og áningastaða. Verktakar annast að stærstum hluta slátt á vegum bæjarins, en eftirlit með
verkinu er í höndum garðyrkjustjóra.
Af helstu verkefnum má nefna að unnið var markvist að uppbyggingu Ævintýragarðs og var þar
einkum unnið að gerð göngustíga og áningastaða við þá. Einnig er verið að vinna eftir
gróðursetningaráætlun, og má þar t.d. nefna að unnið var að gróðursetningu rósa meðfram
svokölluðum Rósastíg og gróðursetningu berja og ætirunna meðfram svokölluðum Ætistíg, og
munu þau verkefni halda áfram á
þessu ári. Önnur verkefni í bæjar-
landinu voru endurnýjun og við-
hald áningarstaða, með niðursetn-
ingu nýrra bekkja og sorptunna.
Einnig fór fram mikil grisjun og
klipping á gróðri bæjarins sam-
hliða gerð nýrra gróðurbeða.
Strangar kröfur eru gerðar um eft-
irlit með leiksvæðum barna og því
hefur eftirlit Mosfellsbæjar með
skipulögðum leiksvæðum verið að Mynd 6: Ævintýragarðurinn
Mynd 7: Tjaldstæðið á Varmárhól.
UMHVERFISSVIÐ MOSFELLSBÆJAR
Ársskýrsla 2011 - 11
aukast. Nú fara fram reglulegar yfirlitsskoðanir, ítarlegri rekstrarskoðanir ársfjórðungslega og
umfangsmikil árleg innri aðalskoðun. Niðurstöður eru settar fram í sérstakri ástandsskýrslu og
unnið er að því að nýta stjórnunarkerfi bæjarins til að tryggja betri stýringu og eftirfylgni.
Á Varmárhól skammt frá Varmárskóla var komið upp tjaldstæði fyrir tjöld, tjaldvagna, fellihýsi
og húsbíla. Sett voru upp leiðbeiningaskilti og merkingar, rafmagn og vatn tengt, komið upp
vaski og uppþvottaaðstöðu, skjólvegg, bekkjum og bráðabirgða salernisaðstöðu. Auk þess fór
fram umfangsmikil gróðursetning á svæðinu og lagfæring slóða inná það.
MEINDÝRAEYÐING
Talsvert hefur verið veitt af ref og mink í útmörk Mosfells-
bæjar á undanförnum árum. Síðustu ár hafa verið veiddir í
sveitarfélaginu að jafnaði 35 – 50 refir og minkar. Á síðasta
veiðitímabili veiddust 17 refir, sem er um helmingi færri
dýr en tímabilið á undan, sem er vísbending um að ágæt-
lega gangi að halda stofninum í lágmarki. Ríkið greiðir ekki
lengur niður kostnað við refaveiðar, en Mosfellsbær hefur
engu að síður talið mikilvægt að vinna áfram að grisjun á
ref. Á tímabilinu veiddust 42 minkar, sem er svipað og
verið hefur undanfarin ár. Almennt virðist fjöldi veiddra
minka vera á niðurleið sem bendir til þess að aðgerðir til
fækkunar á mink séu að skila árangri.
Eyðingu vargfugla var haldið áfram á árinu og voru veiddir
tæplega 200 sílamáfar, sem er svipað og árin á undan.
Alltaf er nokkuð um mýs á haustin en rottur finnast nánast
ekki. Nokkrar rottur fundust þó við Leirvogsá og í Helgadal í
vetur, en voru teknar af meindýraeyði. Líklega er þar um
að ræða tilfallandi dæmi og bendir ekkert til þess að hér séu rottur að staðaldri. Lítið var um
geitunga, og mun minna en undanfarin ár. Áfram var unnið að fækkun villtra kanína í bæjar-
landinu með því að bregðast við kvörtunum frá íbúum, og virðast aðgerðir frá árunum 2009 -
2010 hafa gefist vel og að vel gangi að halda stofninum í lágmarki.
Meindýr
Veiðitímabil
2005 - 06 2006 - 07 2007 - 08 2008 - 09 2009 - 10 2010 - 11
Refir 21 27 51 29 40 17
Minkar 65 63 49 44 35 42
Vargfugl 331 213 261 210 214 185
Tafla 2. Skrá yfir fjölda veiddra meindýra
Myndir 8 og 9: Minkur og síla-mávur
UMHVERFISSVIÐ MOSFELLSBÆJAR
12 - Ársskýrsla 2011
DÝRAEFTIRLIT
Lögð hefur verið sérstök áhersla á dýraeftirlit síðustu árin. Starfandi er sérstakt hundaeftirlit
sem sinnir eftirliti utan hefðbundins vinnutíma. Það fyrirkomulag hefur reynst ágætlega, þar
sem töluvert er um handsömun hunda. Einnig hefur verið lögð áhersla á forvarnir og fá þeir
hundaeigendur sem kvartað er út af heimsókn og fræðslu frá hundaeftirlitsmanni. Skráðum
hundum fjölgar milli ára og eru nú 625. Um 15% færri hundar voru handsamaðir árið 2011 en
árið á undan. Fjöldi kvartana er svipaður og árið 2010.
Tafla 3. Yfirlit yfir skráða hunda, kvartanir og fjölda handsamaðra hunda 2007 - 2011
Talsverð aukning hefur orðið í fjölda hundsbita milli ára. Mjög brýnt er að stemma stigu við
þessari neikvæðu þróun, m.a. með því að auka fræðslu og samvinnu við hundaeigendur til að
hindra að slík atvik komi upp aftur og aftur. Þá hefur nokkuð verið um vanrækslu á köttum.
Búfjáreftirlit hefur verið með hefðbundnu sniði undanfarin ár, en forðaeftirlitsmaður er starf-
andi í samvinnu sveitarfélaganna á svæði 1 (Reykjavík, Seltjarnarnes, Mosfellsbær og Kjós).
Mosfellsbær hefur undanfarin ár sinnt bráðaviðhaldi á ofanbyggðargirðingu. Umgengni um
girðinguna hefur verið mjög slæm og hún jafnvel klippt niður af vegfarendum. Umsjón girðing-
arinnar heyrir undir samtök sveitarfélaga á höfuðborgasvæðinu, en brýnt er að rekstrarfyrir-
komulag girðingarinnar verði endurskoðað svo girðingin komi að þeim notum sem henni er
ætlað. Handsömun hesta hefur verið með svipuðu sniði og undanfarin ár. Mesti álags‐ og
hættutíminn er upphaf skammdegis á haustin og hefur fjöldi handsamaðra hrossa verið þó
nokkur.
Á hverju ári er unnin skýrsla um ástand beitarhólfa, sem hafa verið í útleigu hjá Mosfellsbæ í
gegnum Hestamannafélagið Hörð og hefur ástand þeirra að öllu jöfnu verið viðunandi.
FRAMKVÆMDA‐ OG ÞJÓNUSTUSTÖÐ
Mosfellsbær rekur innan framkvæmdadeildar þjónustustöð, vélamiðstöð, veitur og trésmiðju
að Völuteigi 15. Þar vinna 11 starfsmenn í 100% stöðum, þar af eru tveir sem vinna hjá veitum
og einn trésmiður á vegum eignasjóðs er með aðsetur í þjónustustöð. Starfsmenn þjónustu-
stöðvar sjá um ýmsa þjónustu við stofnanir bæjarins og bæjarbúa og má þar helst nefna:
Viðhald og rekstur gatna, stíga og holræsa
Snjóruðning og hálkueyðingu
Rekstur vélamiðstöðvar
Rekstur umferðarmannvirkja
Aðstoð við slátt, klippingar og aðra hirðingu bæjarins
Dýraeftirlit
Aðstoð við Eignasjóð, garðyrkjudeild, vinnuskóla bæjarins og veitur
Rekstur trésmiðju
2007 2008 2009 2010 2011
Skráðir hundar 403 500 520 578 625
Kvartanir 55 127 86 58 59
Handsamaðir 32 41 32 33 28
UMHVERFISSVIÐ MOSFELLSBÆJAR
Ársskýrsla 2011 - 13
Allur rekstur stærri tækja og bíla bæjarins fellur undir starfsemi þjónustudeildar. Stór hluti
hálkuvarna og snjómoksturs er unninn með eigin tækjum og sparast með því verulegir
fjármunir í samanburði við aðkeypta verktakavinnu.
Í þeim tilgangi að gera góða þjónustu betri hefur verið haldin skrá yfir þær ábendingar sem
koma inn til þjónustustöðvar. Þar er skráð um hvað ábendingin snýst, hvenær hún barst og til
hvaða úrræða var gripið. Flestar ábendingar snúast um snjómokstur, sorpmál, veitumál og
hunda. Misjafnt er á milli ára hvaða málaflokkur er stærstur hverju sinni. Ábendingarnar eru
líka af margvíslegum toga, þannig nota menn stundum tækifærið og kvarta yfir nágrannanum
sem var að skjóta upp flugeldum eða þá að hjóli hafi verið stolið. Þessi atriði eru öll skráð niður
þó að þau falli ekki beint undir verksvið þjónustustöðvarinnar. Í meðfylgjandi töflum og kökuriti
má sjá hvernig ábendingar skiptust milli málaflokka árið 2011.
Mynd 10: Hlutfallsleg skipting ábendinga fyrir 2011
Í heild fjölgaði ábendingum um 6% frá árinu 2010. Ábendingar varðandi snjómokstur urðu um
þrefalt fleiri í ár, sem skýrist af því að desember var með eindæmum snjóþungur. Ábendingar
varðandi veitur voru hinsvegar mun færri þetta árið, þar sem ekki komu til nein stórvægileg
tjón á lögnum.
Sjá töflur á næstu síðu.
meindýr 2%
dýraeftirlit 9% gatnaviðhald
2%
sorphirðing 16%
opin svæði - rusl 8%
leikvellir 1%
holræsi rotþrær
4%
vatnsveita 4%
hitaveita 3%
snjómokstur 40%
umferðarmerki 1%
annað 7%
byggingar 2%
Skipting ábendinga % - 2011
UMHVERFISSVIÐ MOSFELLSBÆJAR
14 - Ársskýrsla 2011
Yfirlit yfir ábendingar árin 2010 og 2011:
Flokkar Fjöldi 2010 Fjöldi 2011 Hlutfall %
Meindýr 17 16 2
Dýraeftirlit (136) 63 8
Gatnaviðhald 19 16 2
Sorphirðing 125 122 17
Opin svæði - rusl 51 57 8
Leikvellir 9 11 1
Holræsi/rotþrær 31 4
Vatnsveita 151 veitur 30 4
Hitaveita 20 3
Snjómokstur 92 295 40
Umferðamerki/biðskýli 10 7 1
Byggingar 15 3
Annað 88 56 7
Heildarfjöldi ábendinga 698 737 100
Tafla 4: Flokkun ábendinga í þjónustustöð árin 2010 og 2011
Snjómokstursábendingar 2010 2011
Janúar 4 0
Febrúar 9 74
Mars 74 45
Apríl 0 1
Nóvember 3 11
Desember 2 164
Samtals 92 295
Tafla 5. Fjöldi ábendinga um snjómokstur árin 2010 og 2011
Mestu snjóa- og hálkumánuðirnir voru febrúar, mars og desember. Í febrúar og mars bárust
119 ábendingar á móti 83 árið áður eða 43% fleiri. Ábendingar í desember 2011 voru 164 á
móti tveimur árið áður. Á árinu 2011 var mokað snjó og hálkuvarið fyrir um tólf milljónir króna.
Vinna Þjónustustöðvar var um 6.5 milljónir, keypt var sandur og salt fyrir um 2 milljónir og
verktakakostnaður var um 3.5 milljónir króna. Stærsti hluti kostnaðarins féll til í desember og
var sérstök áhersla lögð á að halda stofnbrautum og tengivegum greiðfærum.
UMHVERFISSVIÐ MOSFELLSBÆJAR
Ársskýrsla 2011 - 15
GATNAKERFI - NÝFRAMKVÆMDIR OG VIÐHALD
Helstu verkefni á sviði gatnagerðar á vegum Mosfellsbæjar 2011 var yfirborðsfrágangur í
Álafosskvos og ýmis minni verkefni, s.s uppsetning hraðahindrana og 30 km hliða í samræmi
við áætlun þess efnis sem samþykkt var af skipulagsnefnd og bæjarráði. Gengið var frá
göngustíg frá miðbæjartorgi í tengslum við betrumbætur á lóðinni við Háholt 14, en á þeirri lóð
vantar ennþá nokkuð upp á að frágangur sé viðunandi. Gengið var frá umhverfi Vesturlands-
vegar í tengslum við tvöföldun vegarins frá Þverholti að Þingvallagatnamótum. Hafnar voru
framkvæmdir við stofnstíg meðfram Vesturlandsvegi, en þar er um að ræða hjóla- og göngustíg
sem mun tengja Mosfellsbæ við Reykjavík. Þessi stígur nær frá Aðaltúni að Bauhaus í Reykjavík.
Umsvif gatnagerðar er í sögulegu lágmarki í sveitarfélaginu nú eftir efnahagshrun en þó má
geta þess að reynt hefur verið að viðhalda götum og skiltum eftir fremsta megni. Þá hafa nýir
reiðvegir verið lagðir í samvinnu við reiðveganefnd og eldri vegir verið lagfærðir. Dæmi um
nýjan reiðveg sem lagður var á árinu er reiðvegur upp frá Skarhólabraut að Hafravatni.
Verkefni á vegum þjónustustöðvar eru mjög fjölbreytileg. Stærsti hluti vetrarþjónustu er snjó-
mokstur og hálkueyðing, á aðventunni eru sett upp jólatré víðsvegar um bæinn sem þjónustu-
stöð sér síðan um viðhald á meðan þau eru uppi. Þjónustustöð safnar í og sér um brennu á
þrettándanum og hreinsar síðan upp flugeldakassa og safnar jólatrjám frá bæjarbúum.
Ennfremur eru sorpkassar sem eru á víð og dreif um bæinn tæmdir vikulega eða oftar.
Viðhald umferðarmerkja er alltaf að aukast með ört vaxandi bæ. Strætisvagnaskýlin eru í umsjá
þjónustustöðvar og er reynt eftir fremsta megni að halda þeim hreinum en baráttan við veggja-
krotara er stöðug. Á sumrin eru ráðnir inn sumarstarfsmenn sem þjóna m.a. garðyrkjudeild,
viðhalda biðskýlum og mála gult við öll niðurföll bæjarins, því það hjálpar mjög mikið þegar
komast þarf snögglega í þau í asahláku á vetrum.
STARFSEMI VEITNA
Helstu framkvæmdir á vegum veitustofnana Mosfellsbæjar voru framhald framkvæmda við
endurnýjun hita‐ og vatnsveitulagna meðfram Vesturlandsvegi í tengslum við tvöföldun hans.
Dregið hefur verulega úr lagningum heimæða frá árunum 2006 / 07 þegar þær voru í hámarki.
Helstu framkvæmdastaðir eru Krikahverfi og Leirvogstunga. Liðlega 18 heimæðar voru lagðar á
síðasta ári m.v. 70 stk á ári þegar mest var. Rekstur veitukerfanna var með eðlilegum hætti og
var ekki mikið um stórar bilanir þar sem loka þurfti fyrir heilu kerfin. Þó varð bilun í hitaveitu-
stofnlögn í Arnarhöfða, sem kom í ljós um um nótt, og þurfti að loka fyrir Höfðahverfið af þeim
sökum í um 5 klst. Unnið hefur verið að því að bæta kaldavatnsþrýsting í Krikahverfi, þar sem
komið hefur í ljós að nokkur hús eru þannig staðsett í hverfinu að ekki hefur náðst lágmarks-
þrýstingur. Hefur það verið leyst með því að setja dælur á inntak þeirra húsa og hefur sú lausn
reynst vel. Mótor í kaldavatnsdælustöð í Skarhólabraut brann yfir og þurfti að skipta honum út,
en þrátt fyrir það urðu ekki rekstrartruflanir á kaldavatnskerfinu á meðan viðgerð fór fram.
Eitthvað hefur verið um að veitumenn heimsæki notendur og þá sérstaklega vegna hitakerfa og
er það árvisst að þegar fyrstu kuldakaflar koma á haustin þarf að hreinsa síur og jafnvel yfirfara
hitaveitugrindur.
Unnið er að nýrri rennslisgreiningu vatnsveitu í Mosfellsbæ um þessar mundir. Vegna verð-
hækkunar á vatni síðustu misserin í tengslum við vísitöluhækkanir og aukningar á vatnsnotkun
UMHVERFISSVIÐ MOSFELLSBÆJAR
16 - Ársskýrsla 2011
er verið að skoða leiðir til þess að nýta Laxnesdý betur til þess að lækka kostnað. Nokkur
árangur hefur orðið af þeim aðgerðum á árinu. Mjög líklegt er að nauðsynlegt reynist að byggja
nýjan vatnstank til miðlunar á allra næstu árum. Sem dæmi má nefna að ný iðnaðarhús eru nú
gjarnan útbúin með öflugum vatnsúðakerfum, sem eyða ein og sér jafnmiklu vatni og lítið til
meðalstórt sveitarfélag þega þau fara í gang. Bæjarráð samþykkti á árinu 2011 að kanna frekari
möguleika á borun og nýtingu á köldu vatni fyrir sveitarfélagið og mun skýrsla um það efni mun
væntanlega líta dagsins ljós 2012.
Holræsakerfi bæjarins er viðhaldið af þjónustustöð og er árlega þó nokkuð um útköll vegna
stíflana í kerfinu. Einnig er nokkuð um útköll vegna vatnsleka og vatnsleysis bæði í hita- og
kaldavatnsveitu. 11% af ábendingum sem bárust til þjónustustöðvar vörðuðu holræsi og veitur
(sjá mynd 10)
Kaldavatnsnotkun Mosfellsbæjar
Heildar vatnsnotkun Mosfellsbæjar fyrir árið 2011 var 1.100.057 m³, þar af var notkun á köldu
vatni frá Laxnesdýjum 245.910 m³ (Graf 3 og tafla 5). Heildarvatnsnotkunin hefur aukist um 9%
á milli áranna 2010 og 2011, en notkunin úr Laxnesdýjum hefur minnkað um 12%.
Tafla 6: Kaldavatnsnotkun í Mosfellsbæ 2008 - 2011
Mynd 11: Skipting kaldavatnsnotkunar í Mosfellsbæ 2008 - 2011
Aðkeypt vatn Laxnesdý Heildarvatnsnotkun Laxnesdý, % af
heildarnotkun
2008 943.470 m³ 227.254 m³ 1.170.724 m³ 19%
2009 780.372 m³ 254.918 m³ 1.035.290 m³ 24%
2010 727.162 m³ 278.802 m³ 1.005.964 m³ 28%
2011 854.147 m³ 245.910 m³ 1.100.057 m³ 22%
2008 2009 2010 2011
227254 254918 278802 245910
1170724 1035290 1005964
1100057
Vatnsnotkun í Mosfellsbæ 2008 - 2011
Laxnesdý Heildarnotkun
UMHVERFISSVIÐ MOSFELLSBÆJAR
Ársskýrsla 2011 - 17
VEÐURATHUGANIR
Veðráttan skiptir miklu máli fyrir hina ýmsu starfsemi sviðsins. Því er fylgst með veðri á ýmsan
hátt og má þar nefna netsíður Veðurstofunnar, vedur.is, og norsku netsíðuna yr.no. Einnig er
veðurstöðin á þaki Þjónustustöðvarinnar mikilvæg og er upplýsingum úr henni, s.s. um hitastig,
vindhraða og vindátt varpað jafnóðum á vef Mosfellsbæjar til upplýsingar fyrir bæjarbúa.
Mælingar úr veðurstöðinni undanfarin ár sýna að veðurfarið í Mosfellsbæ er líkara því sem
mælist á Korpustöðinni en á veðurstöð Veðurstofunnar í Reykjavík.
Mynd 12: Vindrós – Mosfellsbær 1. jan. 2011 til 31. des. 2011
Á vindrósinni hér að ofan má sjá að austan‐ og suðaustanáttir eru ríkjandi og þá líka þegar
vindur er hvass. Á myndinni má einnig sjá að NV‐átt er nokkuð tíð, en þá stendur vindurinn af
urðunarstað Sorpu í Álfsnesi inn Leirvoginn og veldur lyktarmengun þar.
Mæld hámörk og lágmörk árið 2011 voru sem hér segir:
Hlýjast mældist 19,9° þann 5. ágúst 2011 og kaldast ‐14,1° þann 20. mars 2011.
Mesta vindhviðan mældist 41,5 m/s þann 28. ágúst 2011.
Mest úrkoma mældist 5,74 mm þann 3. febrúar 2011. Úrkoma á árinu var 6% meiri en
árið 2010.
% Vindhraði
5,2 >10m/s
8,4 7,5 < 10m/s
21,7 5 < 7,5 m/s
36,5 2,5 < 5 m/s
22,3 1 < 2,5 m/s
4,9 0,5 < 1 m/s
0,9 < 0,5 m/s
UMHVERFISSVIÐ MOSFELLSBÆJAR
18 - Ársskýrsla 2011
EIGNASJÓÐUR, HELSTU VERKEFNI 2011
Viðhald fasteigna Mosfellsbæjar er verkefni sem unnið er stöðugt að allt árið. Farið er jafn-
óðum í aðkallandi, minniháttar viðhald en stærri verkefni er reynt að skipuleggja á þann hátt
að þau séu unnin þegar starfsemi stofnana er í lágmarki, t.d. yfir sumartímann.
fasteignir sem Eignasjóður hefur undir sínum hatti og sinnir viðhaldi á eru eftirtaldar:
Leikskólinn Hlaðhamrar
Leikskólinn Hlíð
Leikskólinn Hulduberg
Leikskólinn Reykjakot
Leikskóladeild Leirvogstunguskóla
Leik‐ og grunnskólinn Krikaskóli
Varmárskóli eldri og yngri deild
Lágafellsskóli
Íþróttamiðstöðin að Varmá
Vallarhús á Tungubökkum
Brúarland
Skátaheimili
Þjónustustöð
Brúarland
Bólið
Frístundasel
Fasteignirnar Hlégarður, Bókasafnið, Tónlistarskólinn og félagslegu íbúðirnar í bænum eru ekki
á forræði Eignasjóðs, en starfsmenn eignasjóðs sjá þó um viðhald þeirra. Eignasjóður annast
einnig viðhald Íþróttamiðstöðvarinnar Lágafells.
Á árinu voru mjög takmarkaðir fjármunir til viðhalds. Reynt var að sinna öllu tilfallandi
bráðaviðhaldi, en annað látið bíða. Helstu verkefni á árinu 2011 voru:
Varmárskóli – yngri deild:
Gert við þakglugga yfir kringlu og matsal.
Endurnýjaðir efri gluggar í S-álmu, austanmegin og gluggar í stigagöngum
vestanmegin.
Við útikennslusvæði voru gámar klæddir að utan og byggður pallur með þaki að
hluta.
Varmárskóli – eldri deild:
Lagfæringar vegna athugasemda í úttektarskýrslum brunavarna.
Háfur í eldhúsi stækkaður.
Undirbúningur vegna útboðs nýrrar utanhússklæðningar.
Lækjarhlíð – sundlaug:
Viðgerðir á sandsíum og breytingar á stjórnbúnaði í kjallara.
Viðgerðir á flísalögn í sturtuklefum og salernum, einnig á lausum flísum og múr við
sundlaugarbakka innilaugar.
Bekkir og undirstöður í baðstofuklefa endurnýjað.
Lágafellskóli:
Málun og veggdúklögn á 6 kennslustofum.
Ryðfrí styrktarhorn (200 stk) sett á úthorn veggja, sem gjarnan vildi brotna uppúr.
Leikskólinn Hlíð:
Viðgerð á glugga í tengibyggingu og afleiddum skemmdum vegna hans.
Málun veggja og dúklögn álagsveggja.
UMHVERFISSVIÐ MOSFELLSBÆJAR
Ársskýrsla 2011 - 19
Mynd 13. Hjúkrunarheimili í smíðum að Mynd 14. Leikskóladeild Leirvogstunguskóla
Langatanga 2a.
Helstu eignfærðu verkefni eignasjóðs á árinu 2011 voru eftirtalin:
Nýtt þak á gamla íþróttahúsið við Varmá
Lokið var við battavöll við Varmáskóla og frágang kringum hann.
Göngustígur norðaustan við battavöll og stígur bak við íþróttahúsið við
Varmá tengdir saman (u.þ.b. 70m).
Framkvæmdir við Hjúkrunarheimili við Langatanga 2A.
Leikskóladeild Leirvogstunguskóla. Leikskólinn samanstendur af þremur
færanlegum stofum ásamt tengibyggingum, sem fluttar voru frá Gerplustræti
14 að Laxatungu 70.
Talsverður aðdragandi og undirbúningur var vegna staðarvals leikskólans, þar sem lóðin sem
ætluð er fyrir leikskóla til bráðabigða í deiliskipulagi, er ekki í eigu Mosfellsbæjar. Að lokum var
þó ákveðið að staðsetja skólann inn á framtíðar skólalóð hverfsins.
Sú tilhögun hefur verið að aukast hjá Mosfellsbæ að eftirlit með nýframkvæmdum á vegum
bæjarins flust yfir á starfsmenn eignasjóðs og sjá þeir nú alfarið um eftirlit með framkvæmdum
við nýja hjúkrunarheimilið. Er það gert í hagræðingarskyni.
LANDUPPLÝSINGAKERFI
Umhverfissvið rekur landupplýsingakerfi á tölvutæku formi yfir sem inniheldur allar tiltækar
landfræðilegar upplýsingar um bæjarlandið og mannvirki í sveitafélaginu. Þar er m.a. að finna
loftmyndir, hæðarlínur, lóðarmörk, og upplýsingar um legu lagna, gatna, stíga og allra mann-
virkja í sveitarfélaginu. Stöðugt er verið að uppfæra þau gögn sem þarna liggja inni og leitast
við grunnurinn sé sem best úr garði gerður.
Skoðunarkerfi landupplýsingakerfisins, Geomediu, var skipt út á árinu þar sem það var barn
síns tíma og virkaði ekki lengur sem skyldi í nýjum tölvubúnaði. Skipt var yfir í Bentley
Navigator, sem er skoðunarkerfi beintengt við MicroStation teiknikerfið og uppfærist beint við
hverja vistaða breytingu í upplýsingakerfinu, sem þýðir að nýjustu upplýsingar eru alltaf tiltæk-
ar. Nokkrir byrjunarerfiðleikar hafa þó látið á sér kræla, eins og gjarnan vill verða við upp-
setningu nýrra kerfa.
UMHVERFISSVIÐ MOSFELLSBÆJAR
20 - Ársskýrsla 2011
Landupplýsingakerfið veitir mikilvæga stoðþjónustu við öll skipulags‐ og byggingarmál, hönnun
gatna og lagna, samningagerð og fleira. Öll kortagerð af sveitarfélaginu er sem dæmi unnin á
einn eða annan hátt upp úr grunni landupplýsingakerfisins. Þannig er kerfið grunnur að þeim
kortum og kortasjám sem Mosfellsbær hefur gefið út á síðustu árum.
Íbúar geta nú nálgast loftmyndir af sveitarfélaginu á vef Mosfellsbæjar og tengst inn á vef Fast-
eignaskrár. Æskilegt væri að í nánustu framtíð verði fleiri upplýsingar úr kortasjánni aðgengi-
legar fyrir bæjarbúa, s.s teikningar af byggingum, veitur og lagnir ýmiskonar, þannig að íbúar
geti skoðað og prentað út á auðveldan hátt gögn, sem tengjast eignum þeirra og nánasta um-
hverfi.
BYGGINGASTJÓRINN
Eignasjóður rekur tölvugrunn, Byggingastjórann, sem heldur utan um allar fasteignir í eigu
Mosfellsbæjar. Þar eru m.a. ljósmyndir, teikningar, verkbeiðnakerfi og viðhaldssaga allra
mannvirkjanna. Tilgangur með notkun Byggingastjórans er m.a:
Að tryggja yfirsýn yfir rekstur og umfang allra eigna bæjarins.
Markviss upplýsingasöfnun um einstakar fasteignir.
Að vera grunnur fyrir áætlanagerð og verkstýringu
Að afmarkar eignir sem tilheyra Mosfellsbæ.
Að stuðla að réttri opinberri skráningu.
Að veita yfirsýn yfir nýtingu eigna.
Tilgangur verkbeiðnakerfis er að vera farvegur fyrir allar verkefnabeiðnir, en það tryggir örugga
umsjón og góða yfirsýn. Jafnframt tryggir það yfirsýn yfir frávik frá áætlunum og auðveldara
verður að leggja faglegt mat á allar viðhaldsbeiðnir. Engu að síður er fundað reglulega með
forstöðumönnum og farið yfir notkun kerfisins og viðhaldsþörfina.
Gerðar eru ástandsúttektir árlega, þar
sem viðhald og viðhaldsbeiðnir eru
flokkaðar í forgangsflokka. Það viðhald
sem þykir brýnast, fer inn á viðhalds-
áætlun í tengslum við fjárhagsáætlun
hvers árs. Nú var í fyrsta sinn einvörð-
ungu stuðst við ástandsúttektir sem
unnar voru af starfsmönnum umhverfis-
sviðs. Samningi um utanaðkomandi á-
standsúttektir var sagt upp í upphafi árs
2010 í hagræðingarskyni. Á árinu 2011
var leikvöllum Mosfellsbæjar bætt við í
kerfið.
Mynd 15: Loftmynd af Mosfellsbæ.
UMHVERFISSVIÐ MOSFELLSBÆJAR
Ársskýrsla 2011 - 21
GAGNASJÁ
Gagnasjáin er gagnabanki sem heldur utan um allar teikningar í tengslum við byggingar og
önnur byggingarleyfisskyld mannvirki í Mosfellsbæ. Þar er m.a. að finna aðaluppdrætti,
burðarþolsteikningar, deiliteikningar, lagnateikningar og rafmagnsteikningar. Gagnasjáin er
beintengd inn í ONE-skjalastjórnunarkerfið þar sem einnig er hægt að nálgast allar teikningar
úr gagnabankanum.
LOKAORÐ
Verkefni Umhverfissviðs eru mjög mörg og fjölbreytt. Breytingar í umhverfinu kalla á sífellda
endurskoðun á þjónustu sviðsins til að hún verði skilvirkari og ánægja viðskiptavinanna verði
meiri með hverju árinu. Sinna þarf endurmenntun starfsmanna enn frekar til að viðhalda hæfni
þeirra og tryggja betur gæði þjónustunnar. Þannig var á árinu lögð áhersla á bætta stjórnun,
skipulag og þjónustu sem vonandi skilar sér til íbúa sveitarfélagsins.
Gildi Mosfellsbæjar; virðing - jákvæðni - framsækni - umhyggja; eru höfð að leiðarljósi í
starfsemi umhverfissviðs.
Mosfellsbæ, 23. febrúar 2012
Jóhanna Björg Hansen,
framkvæmdastjóri umhverfissviðs