Landsmót skáta 2014
-
Upload
bandalag-islenskra-skata-bis -
Category
Documents
-
view
219 -
download
1
description
Transcript of Landsmót skáta 2014
1
- Í TA KT V I Ð T ÍM A NN
Ítarlegar upplýsingar er að finna á heimasíðu Landsmóts skáta 2014: www.skatamot.is
Það mæta allir skátar á landsmót skáta !
Svartur
Gulur
Grænn
Orange
K0
PMS 123
PMS 355
PMS 158
2
Landsmót skáta eru haldin reglulega og verður 28. landsmótið
haldið í sumar dagana 20.-27. júlí. Það fer fram í útilífs- og
umhverfismiðstöð skáta að Hömrum við Akureyri.
Mótið er fyrst og fremst fyrir hinn hefðbundna skátaaldur en
eldri skátar, björgunarsveitafólk og fjölskyldur skátanna eru
einnig hjartanlega velkomin.
Allir skátar, stelpur og strákar, reyndir og sjóaðir, hvaðanæva
af landinu mæta og taka þátt í landsmótinu – það er ekki
spurning! Á landsmóti skáta eru engir varamannabekkir, þar
eru allir virkir þátttakendur í ævintýrinu.
Landsmót skáta eru ávallt með alþjóðlegu ívafi því erlendir
skátar fjölmenna gjarnan á mótin og að þessu sinni munu
nokkur hundruð erlendir skátar frá um 25 þjóðlöndum taka
þátt í mótinu, ýmist sem almennir þátttakendur eða starfs-
menn. Landsmót skáta er því eftirsóknarvert fyrir íslenska
skáta til þess að fá tækifæri til að upplifa í raun hið alþjóð-
lega samfélag sem skátahreyfingin er. Auðvitað setja allir
skátar stefnuna á landsmótið nú í sumar og er hér með skorað
á foreldra og forráðamenn skátanna að veita börnunum þetta
tækifæri – við þurfum ekki að ræða það!
HeimsóknardagurLandsmót skáta er tvímælalaust einhver mesta upplifun
sem skáti á kost á að taka þátt í á skátaferli sínum. Mótin eru
fjölmenn og að Hömrum mun rísa öflugt bæjarfélag með 4.000-5.000
íbúum sem mun heldur betur setja svip sinn á bæjarlíf Akureyrar.
Mótið stendur í viku, frá sunnudegi til sunnudags. Hápunktur mótsins er
laugardagurinn 26. júlí, en þá verður sérstök hátíðardagskrá sem endar
með glæsilegri kvöldvöku – nokkuð sem enginn ætti að láta fram hjá
sér fara!
Dagskrá og daglegt lífDagskrá mótsins verður allt í senn, fjölbreytt, vönduð, spenn-
andi og gefandi. Hún krefst virkrar þátttöku skátanna og veitir
þeim vettvang til að nýta sköpunargleði sína, kraft og útsjónarsemi.
Yfir daginn starfa þátttakendur í skátaflokkunum sínum við fjölbreytt
viðfangsefni. Þessi viðfangsefni velja flokkarnir sér sjálfir að nokkru leyti
fyrir mótið. Hluti dagskrárinnar fer fram á mótssvæðinu sjálfu og að
sjálfsögðu nýtum við fallega náttúruna í kringum Hamra auk þess sem
allir þátttakendur fara í Akureyrarferð.
Á hverjum morgni er blásið til fótaferðar kl. 08:00. Þá drífa skátarnir
sig á fætur, sinna hefðbundnum morgunverkum og snæða morgunverð.
Fram að hádegi geta skátaflokkarnir ýmist unnið í tjaldbúðinni eða farið
í opna dagskrárpósta. Hádegisverð snæða flokkarnir í tjaldbúðinni eða
hafa með sér nesti ef þeir eru í ævintýraferð í nágrenni mótssvæðis ins.
Við hvetjum skátafélögin til þess að gefa flokkunum tækifæri til þess að
elda fyrir sig sjálfir með stuðning foringja þar sem við á. Sum skátafélög
hafa þann háttinn á að stærri máltíðir eru sameiginlegar á vegum með
aðstoð fullorðinna félaga sinna eða foreldra.
3
Að loknum hádegisverði fara flokkarnir á það skipulagða dagskrártorg
sem þeim hefur verið úthlutað þann daginn. Torgin eru þrjú talsins,
Fortíð, Nútíð og Framtíð en auk mun hver flokkur taka þátt í einum
útivistardegi og verja einum degi á Akureyri.Flokkadagskrá lýkur kl.
17:00 og þá taka við fjölþætt viðfangsefni þar sem af nógu er að taka.
Auðvitað þarf að undirbúa kvöldverðinn sem verður kraftmikil og
seðjandi máltíð sem byggir á kjöti, fiski, pasta eða öðru því sem börn
og unglingar þekkja vel til. Þeir sem ekki þurfa að sinna undirbúningi
kvöldverðar geta tekið þátt í opnum dagskrárpóstum, eytt tíma með
nýjum vinum eða bara slappað af í tjaldbúðinni og skrifað eitt eða tvö
kort heim. Stundum þarf að sinna ýmsum verkefnum vegna undirbún-
ings kvölddagskrár s.s. að undirbúa skemmtiatriði eða söng en mörg
kvöldin enda með hinum einstöku skátavarðeldum.
Að loknu heitu kakói og kexi að skátasið er komið að kyrrðartíma en
algjör kyrrð á að ríkja í tjaldbúðinni frá kl. 24:00. Það bregst yfirleitt
ekki að svefninn sígur fljótt á eftir viðburðaríkan dag. Gæsla er í
tjaldbúð unum á nóttunni til að gæta þess að allir fái notið góðrar hvíldar.
Ný borg við Eyjafjörð!Landsmót skáta mun verða næst stærsti byggðakjarni á
Norðurlandi á meðan á því stendur. Þetta verður myndarlegt
bæjar félag sem mun að sjálfsögðu bjóða íbúum sínum upp á margvís-
lega þjónustu. Póstþjónusta verður í boði þar sem mótsgestir
geta sent bréf heim og fengið á það sérstakan póststimpil mótsins.
Mótsblaðið mun koma út daglega meðan á mótinu stendur og flytja
fréttir af mótinu og jafnframt mun verða sérstök útvarpsstöð á vegum
mótsins sem mun útvarpa fréttum, tónlist og skemmtiefni. Heimasíða
mótsins mun svo flytja daglegar fréttir og myndir af mótinu sem og
beinar útsendingar svo vinir og ættingjar heima geti fylgst aðeins með.
Verslun verður opin alla mótsdagana þar sem kaupa má minjagripi,
matvæli, hreinlætisvörur, útilífsvörur og helstu nauðsynjar. Kaffihús
verður opið á kvöldin fyrir þá eldri þar sem hægt verður að tylla sér
niður yfir kaffi eða kakóbolla og meðlæti. Það er mikið líf og fjör á
mótsstað en einnig gefst þar tækifæri til að sækja frið og andlega
íhugun í kyrrðartjaldi (kirkju) mótsins. Stutt er í miðbæ Akureyrar
og verða strætóferðir á milli.
Mamma og pabbi mæta á landsmót!Á mótinu eru starfræktar sérstakar tjaldbúðir þar sem
eldri skátar, fjölskyldur skátanna og vandamenn geta sett
niður tjaldið sitt, tjaldvagn eða fellihýsi og tekið þátt í
landsmótsævintýrinu. Nokkur dagskrá er í boði í fjölskyldubúðum
fyrir alla aldurshópa og því ættu allir að finna sér eitthvað við sitt hæfi.
Ekki þarf að tilkynna þátttöku í fjölskyldubúðum. Hægt er að dvelja
í fjölskyldubúðum eins lengi og gestir óska þess. Þátttakendur í fjöl-
skyldubúðum annast sjálfir um matinn fyrir sig en mögulegt verður að
kaupa hráefni í verslun mótsins s.s. brauð, álegg, mjólk, gos, morgun-
mat, pylsur, samlokur og grillkjöt. Einnig er stutt í verslanir á Akureyri.
Þátttökugjald í fjölskyldubúðum er kr. 3.200,- sem er stofngjald fyrir
hvern einstakling 10 ára og eldri (fæddir 2004 og fyrr) fyrir fyrstu nótt
óháð því hversu lengi dvalið er. Að auki greiða tjaldgestir gistigjald
Hamra ( frítt fyrir yngri en 10 ára).
4
Heilbrigð víma kemur að innan!Landsmót skáta er lengsta, stærsta og fjölmennasta útisam-
koma ungs fólks sem haldin er hér á landi. Íslenska skátahreyf-
ingin hefur frá upphafi lagt grunn að heilbrigðum lífsvenjum barna og
ungmenna. Markmið skátahreyfingarinnar er að þroska börn og ungt
fólk til að verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir einstaklingar í samfélaginu.
Skátastarf er heilbrigð skemmtun og neysla áfengis eða annarra vímu-
efna á enga samleið með því. Landsmót skáta eru því að sjálfsögðu
vímulaus hátíð. Ungir sem aldnir koma skátar áhyggjulausir saman í
náttúrunni, njóta fegurðar hennar og lífsins í samfélagi sem þekkir ekk-
ert kynslóðabil og eina víman sem þar má sjá á fólki er sú sem kemur
með gleðinni og lífsfjörinu innan frá. Þetta er fólk í fjölskyldubúðum
sérstaklega beðið um að virða svo og reglur mótsins um reykingar.
Alþjóðlegt samfélagEitt af meginmarkmiðum Bandalags íslenskra skáta er að
gefa skátum kost á þátttöku í alþjóðlegu starfi enda erum við
hluti af alheimsbræðralagi skáta. Landfræðilegar aðstæður draga
úr möguleika íslenskra skáta til heimsókna og persónulegra kynna
við skátasystkin sín erlendis en eitt af því sem gerir Landsmót skáta
frábrugðið öðrum innlendum skátamótum er hið alþjóðlega samfélag
sem skapast á mótinu. Þegar er fyrirsjáanlegt að tugir erlendra skáta
muni verða í starfsliði mótsins og fjöldi erlendra þátttakenda er ávallt
mikill.
Dagskrá og tjaldbúð eru þannig byggð upp að þátttakendur blandast
mikið og eiga mikið samneyti. „Þetta er alveg eins og að fara til út-
landa” sagði ungur skáti á síðasta landsmóti, „maður er alltaf að heyra
útlensku talaða eða sungna – alveg mergjað”. Andrúmsloftið verður því
alþjóðlegt og ungir skátar fá þarna tækifæri til að kynnast því í reynd
að skátahreyfingin þekkir engin landamæri og mismunandi tungumál,
menning eða trúarskoðun er enginn þröskuldur í samskiptum.
Öryggið ofar öllu!Á mótinu verður starfrækt sjúkragæsla í umsjón reyndra
björgunarsveitaaðila í samvinnu við Slysavarnarfélagið Lands-
björgu. Þar verður læknir ávallt á vakt auk þaulæfðra björgunarsveita-
manna með þjálfun í fyrstu hjálp. Sjúkragæslan sinnir öllum minniháttar
pústrum en alvarlegri meiðsl, sem eru afar fátíð, eru meðhöndluð
umsvifalaust á sjúkrahúsinu á Akureyri.
Mikið er lagt upp úr öryggismálum á mótinu. Dagskráin er vel yfirfarin
með öryggi skáta í huga og sérstakar reglur gilda t.d. um vatnadagskrá.
Mótsstjórn nýtur einnig fulltingis reyndra skáta og björgunarsveitafólks
við að halda stjórn á ýmsum þáttum s.s. við umferðargæslu og almenna
gæslu á svæðinu.
Eldvarnareftirlit er eins öflugt og kostur er þó gist sé í tjöldum og elda
má bara kveikja í þar til gerðum eldstæðum. Öll félög hafa með sér
slökkvitæki og annan búnað til varnar bruna á sínu svæði og af hálfu
mótsstjórnar eru sett upp stærri tæki víðs vegar á mótsstaðnum.
Skátunum er heimilt að ganga með vasahnífa og skátahnífa í belti og
nota við skátastörf sín á mótinu en allir leikir með hnífana eru hins
vegar bannaðir og er hart gengið eftir því af foringjum og starfsfólki
mótsins.
TryggingarForeldrar eru hvattir til að sjá til þess að barn þeirra sé vel
tryggt sem og útbúnaður þess og passa þarf að allur út-
búnaður sé vel merktur. Mótið tryggir ekki mótsgesti gagnvart
skakka föllum á mótinu og er ekki ábyrgt fyrir skemmdum, stuldi eða
hvarfi eigna skátanna, þó reynt sé að fyrirbyggja að slíkt gerist.
5
Hrein og bein!Í 4.000-5.000 manna bæjarfélagi þarf að hugsa fyrir marg-
víslegri þjónustu og þar eru hreinlætismálin ekki undanskilin.
Hamrar eru vel útbúnir með alla nauðsynlega hreinlætisaðstöðu og
vatnssalerni. Aðstöðunni er dreift um mótssvæðið þannig að stutt er
fyrir alla að fara þegar kallið kemur og öflugt gengi eldri skáta sér um
að halda öllu hreinu og snyrtilegu! Þvottastæði með rennandi vatni
eru á víð og dreif um svæðið þar sem skátarnir geta þrifið sig. Nokkrar
sturtur verða á svæðinu fyrir skátana en einnig fara allir í sundlaugina á
Akureyri í bæjarferðinni.
Skátafélögin leggja metnað sinn í að gæta fyllsta hreinlætis við matseld
og geymslu matvæla og verður haft eftirlit með því af hálfu mótsins.
Taka verður samt tillit til þess að um útilegu er að ræða þó reynt sé að
gæta fyllsta hreinlætis og þess gætt m.a. að skátarnir þrífi vel matar-
áhöldin sín að lokinni hverri máltíð.
KlæðnaðurVið búum á Íslandi og á vikumóti er nokkuð víst að við fáum
að sjá ýmis tilbrigði íslenskrar veðráttu. Þátttakendur gista í
tjöldum og eru undir berum himni við dagskrá allan daginn. Því þarf að
huga vel að klæðnaði sem hentar mismunandi aðstæðum.
Skátafélögin munu gefa út útbúnaðarlista áður en farið er af stað.
Helstu atriðin á slíkum lista eru: hlý föt, regngalli, léttur klæðnaður ef
sólin gerir vart við sig, gönguskór, stígvél, léttir skór og nægur nærfatn-
aður til skiptanna.
Foringjarnir fylgjast með því að skátarnir klæði sig eftir veðráttu
hverju sinni. Ef mjög blautt veður verður á mótstímanum verða gerðar
ráðstafanir til að hægt sé að þurrka fatnað og svefnpoka sem blotnað
hafa mikið.
Þema mótsins og mótsmerkiÞema Landsmóts skáta 2014 er „í takt við tímann”. Flakkað
er um tíma og rúm og tekur dagskráin miða af þemanum. Fortíð-nútíð-
framtíð eru undirþemun. Þemað bíður upp á margt þegar kemur að
dagskrá sem og í allri umgjörð mótsins.
Mótsmerkið var hannað Birgi Ómarssyni og sýnir með skemmtilegum
hætti tjaldið, sólina og grasið græna sem einkenna Landsmót skáta.
Þorpið að HömrumMótsstaðurinn, Útilífsmiðstöð skáta að Hömrum við Akureyri,
er í reynd opinbert tjaldsvæði Akureyrarbæjar og því í eigu
bæjarins en reksturinn og uppbyggingin er í höndum skáta-
félagsins Klakks á Akureyri samkvæmt sérstökum samningi
þar um. Staðurinn er skipulagður með það fyrir augum að þar sé
unnt að halda stórmót líkt og landsmót skáta og hefur staðurinn þegar
sannað sig. Mikil vinna hefur farið í uppbygginguna og er svæðið til
mikillar fyrirmyndar. Það hentar landsmótum okkar vel sem og öðrum
fjölmennum samkomum með nauðsynlegum tjaldflötum, hreinlætis-
aðstöðu og margvíslegri afþreyingu.
Nálægð Hamra við Akureyrarbæ gerir það líka að verkum að hluti
dagskrárinnar fer fram í og við bæinn þannig að bæjarbúar verða vel
meðvitaðir um að landsmótið fer fram þessa viku og gamlir skátar úr
bænum eru duglegir að sækja mótið heim. Nánari upplýsingar um
útilífsmiðstöðina á Hömrum er að finna á www.hamrar.is.
- Í TAKT VIÐ TÍMANN
6
Skipulag tjaldbúðaMótssvæðið mun skiptast í fjögur þorp: Sumar og Vetur þar sem
almennir þátttakendur munu dvelja, Haust verður þorp fjölskyldubúða
og Vor verður þorp starfsmanna mótsins. Verslanir, þjónusta og uppá-
komur verða í miðbæ og á hátíðarsvæði mótsins. Þau skátafélög sem
útfæra þemað best í tjaldbúð sinni munu verða verðlaunuð. Jafnframt
eru skátafélögin hvött til að mæta til landsmóts skáta 2014 í takt við
þá árstíð sem einkennir þeirra tjaldbúð.
MótsgjaldÞátttökugjald Landsmóts skáta 2014 er kr. 54.000,-. Tekið skal
fram að þetta er sjálft mótsgjaldið en til viðbótar kemur ferðakostnaður
fram og til baka auk sameiginlegs kostnaðar hvers skátafélags. Þessi
viðbótarupphæð er mismunandi eftir því hvaðan skátarnir koma og
hversu mikið er lagt í sameiginlegan búnað félaganna. Flest skáta-
félögin leitast við að standa fyrir einhverjum fjáröflunum til að mæta
þessum kostnaði.
Innifalið í mótsgjaldinu er fullt fæði allan tímann, dagskrá, ofið móts-
merki, mótsbók, einkenni mótsins, mótsblað og allur undirbúningur og
aðbúnaður á mótsstað. Mótsgjaldið má greiða í þrennu lagi. Fyrst er
staðfestingargjaldið kr. 10.000,- og rest er hægt að skipta niður á hvern
mánuð fram í maí 2014.
VasapeningarSkátarnir þurfa að hafa einhverja vasapeninga með sér. Þau
fara í bæjarferð til Akureyrar og jafnframt er verslun opin á mótinu sem
selur m.a. hreinlætisvörur, matvæli og sælgæti. Þá er talsvert útbúið af
minjagripum merktum mótinu og verða þeir jafnframt til sölu í verslun-
inni. Er nær dregur mun verða kynnt hvaða minjagripir verða í boði og
hvað þeir kosta.
Skráning skátans á landsmótið fer fram á
heimasíðunni: www.skatamot.is
Band
alag
ísle
nskr
a sk
áta
– ja
núar
201
4 –
Ábyr
gðar
mað
ur: H
erm
ann
Sigu
rðss
on