Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

28
Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013 Umskipti: Staða, hlutverk og samfélagið um byggðasöfn Sigrún Ásta Jónsdóttir

description

Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013. Umskipti: Staða, hlutverk og samfélagið um byggðasöfn Sigrún Ásta Jónsdóttir. Bakgrunnur. 1988BA í sagnfræði og heimspeki HÍ Viðbótarnám í heimspeki frá St Andrews Skotlandi 1992Safnkennari við Þjóðminjasafn - PowerPoint PPT Presentation

Transcript of Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Page 1: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Umskipti: Staða, hlutverk og samfélagið um byggðasöfn

Sigrún Ásta Jónsdóttir

Page 2: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Bakgrunnur

1988 BA í sagnfræði og heimspeki HÍ– Viðbótarnám í heimspeki frá St Andrews Skotlandi

1992 Safnkennari við Þjóðminjasafn1996 Forstöðumaður Byggðasafns Snæfellinga2001 Forstöðumaður Byggðasafns

Reykjanesbæjar2004 Diplóma í verkefnastjórnun frá EHÍ2013 MA í safnafræði, frá HÍ

Page 3: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Gamli tíminn var enn vel sýnilegur þegar ég hóf störf

Page 4: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Byggðasafnssýningar

• Helst allt safnið til sýnis, amk það sem skiptir máli

• Sýningatæknin safnarinn sýnir safnið sitt, sýnir söfnunina

• Texti tilviljunarkenndur• Sagan er þekktur veruleiki

Page 5: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Hvað gerir byggðasafnsmaður?

• Til dæmis: að safna gömlum hlutum– grúska í ættfræði– gera upp gömul hús– vita mjög mikið– segja sögur– borða hákarl Og örugglega allt með spekingslegum svip, og taka kannski í nefið

Page 6: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

• Það sem gerst hefir á fáum undanförnum áratugum, hér í Keflavík, er að sjálf þróunarsaga íslenskra atvinnuhátta, saga um það, hvernig þjökuð og undirokuð þjóð hóf sig upp úr niðurlægingu og ruddi sér braut fram á sjónarsvið heimsins.

• Næsti þáttur verður um það, hvernig þjóðinni tekst að skipa þann sess, sem hún vill tileinka sér.

• Þetta er ekki of mælt. Það er líf og starf hins vinnandi lýðs í sjávarþorpunum og til sveitanna, sem mótar stefnu þjóðarinnar og þess vegna hefir það, sem gerist hér daglega umhverfi okkur sögulega þýðingu, þess vegna ber okkur að sýna menningu þess ræktarsemi og varðveita þær frá gleymsku — varðveita minninguna um mennina, sem voru frumkvöðlar framfaranna og sem báru hita og þunga dagsins — varðveita tæki og útbúnað hins gamla atvinnulífs, svo við getum, þegar stundir líða, sýnt arftökum athafnalífsins þróun þess og gert þeim sambandið við fortíðina lifandi, með áþreifanlegum hlutum, myndum þeirra og áreiðanlegum heimildum um það, hvernig breytingin fór fram á slíkri starfsemi er fyrst og fremst menningarlegt gildi.

• Hún er drög að nýrri Íslendingasögu, blástur að glæðum átthagaástarinnar, sem öllu öðru fremur gefur þjóðlífinu festu og öryggi.

• Tengslin við liðinn tíma hafa gefið þjóðinni í heild ómetanleg verðmæti og því skildu þau þá ekki verða okkar byggðarlagi til góðs?

• Aðeins stytt og lagfært

Helgi S. Jónsson, 1942

Page 7: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Byggðasöfn eiga samkvæmt Helga S :

• Að varðveita tengslin við liðna tíð enda felst í þeim mikil verðmæti

• Að varðveita heimildir um þróunina í átt til betra lífs

• Ást til átthaganna• Að minnast með virðingu og þakklæti það sem

eldri kynslóðir fórnuðu til að við getum átt betra líf

Page 8: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Vakna einhverjar spurningar?

• Skiptir það einhverju máli að þessi orð eru sögð af yfirlýstum nasista – ekki bara á millistríðsárunum heldur líka í kringum 1980?

Page 9: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Krafan um stefnumótun

• Í upphafi aldarinnar voru samþykkt ný lög, safnalög, og þá varð til Safnaráð. Með tilkomu ráðsins var lögð áhersla á að söfn mörkuðu sér skriflega stefnu.

• Í þeirri vinnu skilgreindi ég byggðasafnið sem „þjónustustofnun“

Ég notaði þá líkingu að við værum að framreiða veisluborð, hlaðborð sem gestir gætu nýtt sér og notið, eftir smekk og þörfum.

Page 10: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Dýpri greining

• Í skólaverkefni sem ég gerði í námi mínu í verkefnastjórnun, (2003-2004) skilgreindi ég að hugmyndafræðilegt markmið safnsins tengdist því að hlúa að og efla lýðræðið. Þá koma inn hugtök eins og umburðarlyndi, virðing, og gæta þess að vera ekki með beinan áróður, svona hlutleysiskrafa.

• Samfélagslegt hlutverk safna.

Page 11: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Samfélagslegt hlutverk...?

• Er undirliggjandi þáttur þegar kemur að allri lagasetningu, bæði er varðar söfn og almennt um minjar

• Af þeirri ástæðu eru til siðareglur safnmanna, t.d. Siðareglur ICOM sem eru tilgreindar í núverandi útgáfu íslenskra safnalaga

• Þess vegna eru söfn ætíð skilgreind sem „non-profit“ starfsemi.

Page 12: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Hvernig er þetta samfélagslega hlutverk orðað?

• Veisluþjónusta• Efling lýðræðis• Efling menntunar• Efling menningar• Efling staðarvitundar

• En hvernig lýtur þessi grunnsetning út?

Page 13: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Hvenær er safn safn og hvenær hættir safn að vera safn

• Samfélagslegt hlutverk sem aðgreiningartól• Söfn, setur, sýningar• Viðurkenningarferli safnaráðs• Samvinna, sameining, útvistun

Page 14: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Tilboð: útvistun varðveislunnar

• Á óformlegum fundi kom fram tilboð um að útvista varðveisluna eins og hún lagði sig til einkafyrirtækis, þannig að við þyrftum ekki annað en að ákveða ný aðföng en þau myndu taka við þeim, skrá og mynda við gætum pantað gripi eins og úr katalóg

Page 15: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Svar mitt

• „Nei þetta gengur ekki þar sem framtíðarsýn byggðasafnsins er að vera opin stofnun en ekki lokuð.“

Page 16: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Mótsögn ?

• En varðveislan er sá hluti starfseminnar sem er minnst sýnilegur en tekur mestan hluta af vinnutíma starfsmanna – af hverju er ekki bara jákvætt að losna undan þeim krossi og einbeita sér að miðlun, fræðslu og rannsóknum?

• Stærsti hluti vinnutíma míns fer í lagervinnu og tölvuskráningu – hvað með veisluþjónustuna?

Page 17: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Skýrsla

• sem Lára Magnúsardóttir og Sólveig Ólafsdóttir rituðu árið 2013 og heitir: Menning og ferðaþjónusta – um menningu og menningarverkefni á landsbyggðinni frá sjónarhóli hugvísinda.

Page 18: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Lykilatriði

• Fyrir mig var að lesa það sem þær vitna í umræðu erlendis þar sem bent er á að orðfar viðskiptafræðinnar hafi flætt yfir menningageirann gagnrýnislaust

Page 19: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Skilgreining á byggðasafni

• Byggðasafn er menningarstofnun

– Fæst við þekkingu• Öflun hennar• Mótunog miðlun

Page 20: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Hvað felst í þessu?

• Að taka á móti safngrip, eða upplýsingum um þann heim sem safnið sinnir er að afla þekkingar um hann

• Að taka á móti safngrip kallar á vinnu í safninu sem, eins og skráningu, en einnig vinnu þar hluturinn er mátaður inn í safnið, við safnið, inní sýningar, osfrv

Page 21: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Sem sagt...

• Þekkingar er aflað og þekkingin er mótuð með vinnu safnsins – útkoman er það sem kalla má kúratórial þekking – þekking kúratórsins.

• Öllu þessu er síðan miðlað til safngestsins og í því ferli er enn verið að afla og móta þekkinguna

Page 22: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Hvert erum við þá komin?

• Safngripurinn er þekkingarbrot• Vinna okkar við safngripinn felur í sér mótun

þekkingar okkar• Miðlunin er niðurstaða þessarar vinnu

Page 23: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Smámunasafnið

Page 24: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Mikilvægt er líka að muna að safngripurinn er frumheimild

• Það er eðli frumheimildar að vera líka heimild um sig sjálfa og hún verður aldrei að fullu útskýrð, skilgreind, flokkuð eða tengd við menningarheiminn

• Þetta býr til pláss fyrir ný sjónarhorn, nýjar raddir eða opnar gáttir til allra átta.

• Sagan er aldrei að fullu þekktur veruleiki

Page 25: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Hvað með þjónustunavið safngesti?

• Þjónustan er eftir sem áður ENform hennar er ekki á sviði neyslueins og sjá mætti úr líkingu minni meðveisluþjónustuna

Page 26: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Safngesturinn –

• Þegar skoðað er af hverju safngestur kemur í heimsókn þá kemur í ljós að oft er það til að fræðast, þ.e. afla sér þekkingar

• Með því að að afla sér þekkingar á safninu mótar hann þekkingu sína með svipuðum hætti og safnamaðurinn

• Og oft miðlar hann upplifun sinni sem hann tengir við sinn eigin bakgrunn

Page 27: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Safngesturinn og safnamaðurinn

• Standa hlið við hlið á gólfinu, eru, að hluta, að gera sömu hlutina og að beita að hluta sömu aðferðarfræði –

• Hvor um sig kemur með sinn bakgrunn sem skiptir máli varðandi ferlið.

• Við getum verið samverkamenn – samstarfsaðilar, þótt það samband vari ekki í nema fimm mínútur.

Page 28: Kynning á MA verkefni í safnafræði við HÍ, 2013

Samfélagslegt hlutverk safna felur í sér m.a.:

• Þekkingarþrá• Að sagan er ekki skilgreind á einn hátt, að

pláss sé fyrir fjölbreytilegar raddir, að ávallt sé hægt að finna ný sjónarhorn,

• Að saga og menning er ávallt sameign allra en aldrei séreign sumra.