Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar
description
Transcript of Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar
Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar
Apríl 2009
Reykjavík – endurskoðun – staða mála Breytingar á fyrirkomulagi endurskoðunarinnar 2003 Endurskoðunardeild Reykjavíkur, Borgarendurskoðun,
var lögð niður Ytri endurskoðun úthýst í kjölfar útboðs. Undirritaður verksamningur um endurskoðun við Grant
Thornton Innri endurskoðunardeild stofnuð um mitt ár 2003 Forstöðumaður Innri endurskoðunar heyrir undir
borgarstjóra. Breytingar á starfsreglum 2007 skerpt á sjálfstæði
deildarinnar og skýrt kveðið á um að starfsemin heyri undir borgarráð
Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar
Hlutverk Innri endurskoðunar er að veita óháða og hlutlæga
staðfestingu og ráðgjöf sem er ætlað að vera virðisaukandi og
bæta rekstur Reykjavíkurborgar.
Innri endurskoðun er borgarráði, borgarstjóra og öðrum
stjórnendum Reykjavíkurborgar til ráðgjafar um mál sem lúta
að innri endurskoðun og meðferð og nýtingu fjármuna
Reykjavíkurborgar.
Innri endurskoðun heyrir undir borgarráð.
Innri endurskoðandi
Veitir innri endurskoðun forstöðu og ber ábyrgð á rekstri deildarinnar.
Innri endurskoðandi annast fyrir hönd borgarstjóra og borgarráðs tengsl við ytri endurskoðendur borgarinnar.
Innri endurskoðandi fer með fjármála- og stjórnsýslueftirlit hjá Reykjavíkurborg í umboði borgarráðs.
Gerir borgarráði grein fyrir málum sem upp kunna að koma varðandi misferli í meðferð fjármuna að höfðu samráði við borgarlögmann.
Leiðarljós
Virðisaukning og lágmörkun áhættu í rekstri
Reykjavíkurborgar
Með þetta að leiðarljósi leitast Innri endurskoðun við að skapa
aukin verðmæti með því að aðstoða stjórnendur við að ná
settum rekstrarmarkmiðum og meta árangur, bæta
áhættustýringu, eftirlit og stjórnun með kerfisbundnum og
öguðum vinnubrögðum.
Hlutverk
Innri endurskoðun er starfsemi sem veitir óháða og
hlutlæga staðfestingu og ráðgjöf sem er ætlað að vera
virðisaukandi og bæta rekstur fyrirtækja og stofnana.
Innri endurskoðun leggur mat á og bætir virkni
áhættustýringar, eftirlitsaðferða og stjórnarhátta með
kerfisbundnum og öguðum vinnubrögðum og styður
þannig viðkomandi fyrirtæki eða stofnun í því að ná
markmiðum sínum.
Hlutverk Innri endurskoðunar í áhættustjórnun (ERM)
Fullvissuúttektir Ráðgjöf Ákvörðunartaka
Aðgerðaeftirlit
ReykjavíkurborgEftirlit með
að fariðsé að lögum
Áhættu eftirlit
Fjárhagseftirlit
Stjórnendaeftirlit
Innri endurskoðun
Ytri endurskoðun
Eftirlitsumhverfi Reykjavíkurborgar
Grundvöllur starfsemi
Innri endurskoðun tekur mið af stöðlum alþjóðasamtaka
innri endurskoðenda (The Institute of Internal Auditors)
Verkferlum Innri endurskoðunar er ætlað að endurspegla þær áherslur
sem settar eru fram í stöðlunum og tryggja þannig að fagleg vinnubrögð
séu ávallt í fyrirrúmi og leitast sé við að beita bestu aðferðum á hverjum
tíma.
Starfsmönnum ber að fara að siðareglum
alþjóðasamtaka innri endurskoðenda.
Áherslur / hlutverk
Leggja mat á og bæta virkni áhættustýringar, eftirlitsaðferða og
stjórnarhátta.
Stuðla að hagkvæmari og skilvirkari nýtingu á fjármunum stofnana
og fyrirtækja borgarinnar
Endurskoðun sem miðar að því að farið sé eftir viðeigandi lögum,
reglum og öðrum fyrirmælum
Endurskoðun sem miðar að því að staðfesta upplýsingar
Áherslur / hlutverk
Óháð og hlutlæg staðfesting og ráðgjöf.
Vera virðisaukandi og bæta rekstur
borgarinnar.
Styðja fyrirtæki eða stofnun í því að ná
markmiðum sínum.
Áherslur / hlutverk
Innri endurskoðun aðstoðar æðstu stjórnendur við
hagræðingu í rekstri
Innri endurskoðun vinnur með millistjórnendum að
úrbótum á vinnuferlum og breytingum til framfara
Hlutlaust mat innri endurskoðunar kemur ekki í staðinn
fyrir mat stjórnenda heldur sem viðbót.
Viðfangsefni
Fylgni við stefnu, skipulag/áætlanir, verklagsreglur, lög og reglugerðir hvernig er fylgt stefnu, áætlunum, verklagsreglum, lögum og
reglum, sem hafa veruleg áhrif á starfsemina.
Hagkvæmni og sparsemi Innri endurskoðun leitast við að meta hagkvæmni og skilvirkni í notkun
fjármuna og hvort starfskraftar nýtist nægilega vel.
Varðveisla eigna verklag, sem viðhaft er við varðveislu eigna og umsýslu með
þeim.
Viðfangsefni
Áreiðanlegar og heildstæðar upplýsingar ganga úr skugga um hve áreiðanlegar og heildstæðar fjárhags-
og rekstrar upplýsingar eru auk þess að skoða þær aðferðir, sem beitt er við að birta slíkar upplýsingar.
Mæling á því hvort rekstrarárangur sé í samræmi við sett markmið bera rekstrarniðurstöður saman við rekstrarmarkmið og gera
grein fyrir niðurstöðum samanburðarins
Úttektaráætlun
Úttektaráætlun er unnin í samræmi við áhættumat sem unnið árlega og endurmetið reglulega. Úttektaráætlun er kynnt fyrir borgarráði.
Tilgangur úttektaráætlunar er að setja fram grófan ramma um úttektir Innri endurskoðunar.
Verði veigamiklar breytingar og frávik frá úttektaráætlun eru þær kynntar borgarráði.
Úttektaráætlun er m.a. unnin í samráði við sviðsstjóra.
Áhersluatriði í úttektum
Við hönnun verklags hjá Innri endurskoðun eru þrjú meginviðmið höfð að leiðarljósi:
Gæði séu tryggð;
Virðisauki felist í ábendingum Innri endurskoðunar;
Útgáfa lokaskýrslu sé tímanleg.
Nokkrar tegundir úttekta
Stjórnsýsluendurskoðun Markmið stjórnsýsluúttekta er einkum að kanna hagkvæmni rekstrar,
skilvirkni og árangur og hvort gildandi lagafyrirmælum sé framfylgt.
Fjárhagsendurskoðun Með fjárhagsendurskoðun er hér átt við endurskoðun fjármála þar sem
endurskoðun ársreiknings er framkvæmd af ytri endurskoðendum. Endurskoðun fjármála gengur út á:
skoðun á því hvort fjárhagslegar upplýsingar séu í samræmi við kröfur hvort fylgt hafi verið tilskildum ákvörðunum um meðferð fjármuna hvort innra eftirlit tryggi að markmiðum um miðlun fjárhagsupplýsinga og
vörslu eigna sé náð.
Nokkrar tegundir úttekta
Staðfesting á virkni innra eftirlits (Internal Control Assurance)
Tölvuendurskoðunöryggi tölvukerfa
Úttektir á meintu misferli Fylgni við lög og reglur (Compliance) Ráðgjöf Áhættustjórnun (ERM) Ferlaúttektir (Process Audits)
Önnur hlutverk
Vinna langtímaáætlun um innri endurskoðun Fylgjast með nýjungum á sviði innri
endurskoðunar Bera borgina saman við það besta á hverjum
tíma Veita borgarfulltrúum upplýsingar Skipuleggja og halda námskeið um innra eftirlit
og virkni þess