Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi...

38
Samstarf og samstaða um framhaldsfræðslu Ráðstefna um innleiðingu laga um framhaldsfræðslu Hótel Sögu, 19. nóvember 2010 Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson [email protected] http://www.hi.is/~jtj/ Sjá um fullorðinsfræðslu: http://www3.hi.is/~jtj/vefurinn/rannsoknir.ht ml#Fullordinsfr

description

Samstarf og samstaða um framhaldsfræðslu Ráðstefna um innleiðingu laga um framhaldsfræðslu Hótel Sögu, 19. nóvember 2010. Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson [email protected] http://www.hi.is/~jtj/ - PowerPoint PPT Presentation

Transcript of Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi...

Page 1: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

Samstarf og samstaða um framhaldsfræðslu Ráðstefna um innleiðingu laga um framhaldsfræðslu

Hótel Sögu, 19. nóvember 2010

Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt?

Jón Torfi Jó[email protected] http://www.hi.is/~jtj/

Sjá um fullorðinsfræðslu: http://www3.hi.is/~jtj/vefurinn/rannsoknir.html#Fullordinsfr

Page 2: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Ævimenntun og samfélag framtíðarTil umhugsunar

• Almenna spurningin um eðli, tilgang og mikilvægi ævimenntunar

• Menntakerfi og ævimenntun

• Hvað þarf að hugsa upp á nýtt?

• Hlutverk stjórnvalda – Lög um framhaldsfræðslu 

Page 3: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Grunnmenntun    --   Ævimenntun

• Það eru tvö grundvallarhugtök bak við umræðu okkar um menntun, annað er grunnmenntun, þ.e. menntunin sem leggur grunninn í upphafi og hitt er ævimenntun, þ.e. menntun sem er sífelld alla ævi. Þegar grannt er skoðað er hugmyndin um grunnmenntun nær alls ráðandi, hvort sem rætt er um börn, unglinga eða fullorðna. 

• Við kunnum sennilega ekki ennþá að takast á við hugmyndina um ævimenntun, þegar til kastanna kemur.

Page 4: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Sótt í hugmyndabanka Lýðmenntunar Guðmundar Finnbogasonar

• Mikilvægi þess að starfrækja skóla; GF ræðir hvers vegna nauðsynlegt sé að byggja upp skólakerfi, upp úr aldamótunum 1900 þegar engin almenn fræðslulög voru um skóla á Íslandi; rök fyrir kerfisuppbyggingu.

• Mikilvægi þess að leggja grunninn, hver er hann?; GF ræðir í hverju grunnurinn ætti að felast, í samræmi við menntunarhugsjón hans; á þessum tíma er að mótast skýr hugmyndafræði um að leggja faglegan grunn að menntuðum þjóðfélagsþegn; en hann er alltaf miðaður við barnið eða unglinginn.

• Eðli menntunar; GF hefur umfjöllun sína á útlistun á eðli menntunar og inntaki og þeim viðmiðum sem eðlilegt er að styðjast við, en þau eru ekki síður félagsleg en vitsmunaleg.

Nú er rúm öld síðan og mikið vatn runnið til sjávar. Mikilvægt að hugsa hlutina upp á nýtt. Ég tel það fyllilega tímabært.

Page 5: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Almenna spurningin um eðli, tilgang og mikilvægi ævimenntunar

• Í sjálfu sér er hugmyndin um ævimenntun sáraeinföld, þ.e. að menntun sé mikilvæg (og rökin fyrir mikilvægi hennar hafa í sjálfur sér ekki breyst mikið) , en sá grunnur sem einu sinni var lagður í eitt skipti fyrir öll, að því er menn héldu, getur ekki verið það lengur heldur krefst sífelldrar endurnýjunar.  En þá ættum við ekki að tala um grunn heldur aðeins um stöðuga endurnýjun þekkingar. 

• En lögin um framhaldsfræðslu segja að það verði að tryggja að allir hafi einhvern grunn og hafi hann ekki verið lagður á tilteknum tíma þá þurfi að gera það síðar. Frá þeim sjónarhóli snúast þau lög ekki um ævimenntun heldur um grunnmenntun, þeirra sem ekki hlutu hana á ætluðum tíma. 

• Framhaldsfræðsla: Hvers konar nám, úrræði og ráðgjöf sem er ætlað að mæta þörfum einstaklinga með stutta formlega skólagöngu að baki og er ekki skipulagt á grundvelli laga um framhaldsskóla eða háskóla. 

Page 6: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

SkólakerfiðGrunnmenntun

Ævimenntun

Framhaldsfræðsla

Page 7: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Hugmyndafræði ævimenntunar

• Hugmyndafræði ævimenntunar hefur breyst og gengið í gegnum ýmis skeið, en er enn að verulegu leyti háð vinnumarkaðstengingu mannauðskenninga (þ.e. að nám sé einkum undirbúningur undir tiltekið starf). Það hefur þó slaknað á þessu á undanförnum áratug eða svo.

• En samt vantar inn í hugmyndafræðilega umfjöllun, fjölmarga nauðsynlega þætti tengda menntun og endurmenntun í nútíma þjóðfélagi sem tekur gríðarlegum breytingum hvað varðar flesta þætti tækni og menningar.

• Það vantar einkanlega hugmyndina um menntun, hugsjónina um persónulegt, félagslegt og samfélagslegt gildi menntunar; þætti sem eru ekki síður mikilvægir en hið afmarkaða hagræna eða fjárhagslega gildi.

Page 8: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Ævimenntun – framhaldsfræðsla og menntakerfið

• Sú einfalda og sjálfsagða spurning vaknar hvort ekki beri að færa menntakerfinu það hlutverk að annast ævimenntun svipað og því hefur verið falið að annast grunnmenntun ungs fólks? 

• Við fyrstu sýn virðist það vel koma til greina, en það er samt alls ekki borðlagt þegar nánar er að gáð.

• En mikilvægari spurning í dag er þessi: hverjum ber að færa það hlutverk að annast framhaldsfræðslu, er ekki eðlilegt að færa skólakerfinu það hlutverk?

• Við fyrstu sýn virðist það augljóst mál, en það er samt ekki borðlagt þegar nánar er að gáð.

Page 9: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Skólakerfi virðist ekki ná til allra• Baksvið fullorðinsfræðslu breytist hægt, býsna stór hluti fólks fer inn í 

fullorðinsárin án fullgildrar framhaldsskólamenntunar; en hvert er vandamálið?

• Stór hluti fólks hefur ekki rímað við skólakerfið

• Þátttaka í – áframhaldandi formlegri menntun er ólík eftir fyrri menntun og 

munurinn vex (þeir sem þegar hafa mesta sækja mest til viðbótar)– í óformlegri menntun er ólík eftir fyrri formlegri menntun og munurinn 

vex

:Bilið vex sífellt (í vissum skilningi eykur möguleiki á ævimenntun á vandan)

Sjá gögn:  Jón Torfi Jónasson og Andrea Gerður Dofradóttir. (2009). Þátttaka í fræðslu á Íslandi. Niðurstöður úr vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar 2003. Reykjavík: Rannsóknarstofa um menntakerfi. Félagsvísindastofnun HÍ. 

Page 10: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

2003 2004 2005 2006 2007 2008 20090%

10%

20%

30%

40%

50%

60%

70%

27% 25% 25% 26% 26% 27%27%

37% 37%34%

32% 30% 31%

29%

Karlar

Konur

Hlutfall 25-64 ára fólks með grunnskólapróf , en ekki formlegt annað próf, kannað á árunum 2003-2009.Byggt á gögnum frá Hagstofu Íslands í mars 2010.

Page 11: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Hlutfall 25-64 ára sem voru skráðir í skóla eða á námssamningi á síðustu 12 mánuðum; skipt eftir fyrri menntun og kyni

Page 12: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Hlutfall 25-64 ára sem hafði sótt skipulagða fræðslu með leiðbeinanda á síðustu 4 vikum; skipt eftir ári rannsóknar og menntun.

Byggt á gögnum frá Hagstofu Íslands í mars 2010.

2003 2004 2005 2006 2007 2008 20090%

10%

20%

30%

40%

50%

9% 10% 10%11% 11% 10%

9%

14%15% 16% 15% 15%

12%13%

12%13% 14%

16%15%

12% 13%

25%26%

28%30%

27%

24%23%

Grunnskólamenntun (ISCED 0-2)

Bóklegt nám framhaldsskólastigi (ISCED 3-4 (hluti))

Starfsnám á framhaldsskóla- eða miðstigi (ISCED 3-4 (hluti))

Háskólanám (ISCED 5)

Page 13: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Staða fræðslu fullorðinna í skólakerfinu• E.t.v. brýnasta umhugsunarefnið 

– skólakerfið setur (óbeint) allar reglur• um inntak, verklag, framvindu, virðingarstöðu, réttindi

– skólakerfið hefur styrk, fagmennsku og fjármagn öflugs kerfis: á það fyrir bragðið að vera alls ráðandi?

– fræðsla  fullorðinna verður að laga sig að skólakerfinu– skólakerfið ræður ekki almennilega við sífellt nám né síbreytilegt 

tækniumhverfi, – skólakerfið ræður ekki við að skipuleggja annað en mjög formlegt nám, 

sem miðar helst við heilar námsgráður, sem helst skal lokið sem fyrst– skólakerfið ræður alls ekki við starfsþróun, hvorki einstaklinga, 

fyrirtækja eða stofnana

– skólakerfið ræður ekki við hugmyndina um ævimenntun, hvorki hvað varðar hlutverk, tímasetningu eða sveigjanleika

Page 14: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Fjármögnun menntunar

• Framlag hins opinbera til skólakerfisins hefur verið á skynsamlegri uppleið og allt bendir til þess að við sinnum a.m.k. hluta okkar skólakerfis mjög vel að þessu leyti miðað við aðrar þjóðir.

• En þetta er í lagi fyrir skólakerfið og þá nemendur sem eru innan veggja þess; en hvað ef maður er fyrir utan það og hefur ekki aðstæður eða kraft til þess að koma sér innan veggja þess aftur?

Page 15: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Fræðsluútgjöld hins opinbera árið 2009

2009 Milljarðar SamanlagtLeikskólastig 11,8 10 % 11,8 10 %Barnaskólastig 38,1 33 % 49,9 43 %Unglingastig 16,7 14 % 66,6 57 %Framhaldsskólastig 20,4 17 % 87,0 74 %Viðbótarstig, önnur framhaldsmenntun ekki á háskólastigi 0,2 0 % 87,3 75 %Háskólastig 23,9 20 % 111,1 95 %Menntun óflokkuð á skólastig 2,1 2 % 113,2 97 %Stoðþjónusta í skólastarfi 1,7 1 % 114,9 98 %Menntamál, ótalin annars staðar 2,0 2 % 116,9 100 %

Alls 117 100 %Heimild:  Hagstofa Íslands Hagtölur » Þjóðhagsreikningar og opinber fjármál » Opinber fjármál » Fræðsluútgjöld hins opinbera 1998-2009 

Page 16: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Hvað ætti að hugsa upp á nýtt?

• Það ætti að staldra við og hugsa upp á nýtt öll þau efnisatriði sem byggð voru á umræðu Guðmundar Finnbogasonar, 

– Hvernig á kerfið að líta út í heild sinni og hver ætti að annast hvað?– Á hvað ætti að leggja áherslu? Hvaða grunn þarf sífellt að endurskoða?– Hvernig menntast fólk? Hvað felst í menntuninni? Hvernig þarf hún að 

endurnýjast?

– Hvað annað en menntun einstaklinga kemur til sögunnar?

Page 17: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Næstu skref 

• Viðfangsefni næstu mánaða og ára

Page 18: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Ný lög um framhaldsfræðslu, framlag þeirra

• Lög um framhaldsfræðslu Lög nr. 27 31. mars 2010.

• Framhaldsfræðsla: Hvers konar nám, úrræði og ráðgjöf sem er ætlað að mæta þörfum einstaklinga með stutta formlega skólagöngu að baki og er ekki skipulagt á grundvelli laga um framhaldsskóla eða háskóla. 

Page 19: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Ný lög um framhaldsfræðslu, framlag þeirra Markmið framhaldsfræðslu samkvæmt lögum þessum er: 

• a. að veita einstaklingum með stutta skólagöngu að baki aukin tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu,

• b. að veita einstaklingum á vinnumarkaði með stutta formlega skólagöngu að baki viðeigandi námstækifæri og auðvelda þeim að hefja nám að nýju, 

• c. að gefa einstaklingum færi á að efla starfshæfni sína og efla ábyrgð þeirra í því tilliti, 

• d. að skapa svigrúm og úrræði til að mæta þörfum atvinnulífsins fyrir aukna þekkingu og hæfni starfsmanna, 

• e. að veita einstaklingum sem búa við skerta möguleika til náms eða atvinnuþátttöku framhaldsfræðslu þar sem tekið er mið af ójafnri stöðu þeirra og hæfni, 

• f. að afla viðurkenningar á gildi náms sem fellur utan hins formlega framhaldsskóla- og háskólakerfis, 

• g. að stuðla að því að nám og reynsla sem aflað er utan hins formlega skólakerfis verði metin að verðleikum og 

• h. að efla menntunarstig í landinu og íslenskt menntakerfi.

Page 20: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Ný lög um framhaldsfræðslu, framlag þeirra Markmið framhaldsfræðslu samkvæmt lögum þessum er: 

• a. að veita einstaklingum með stutta skólagöngu að baki aukin tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu,

• Hvers krefst virk þátttaka sem menntun getur látið í té?– Kunna að lesa, geta notfært sér vefinn– Taka þátt í samræðu, hafa sjálfstraust– Hafa vald á fjármálum sínum– Skilja breytingar á samfélagi sínu heima og heiman– Kunna til verka, geta flutt sig á milli starfa– …– …

Page 21: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Menntunarmöguleikar fullorðinna einstaklinga utan vinnumarkaðar.

• Möguleikarnir ráðast af– Framboði,  inntak, en fleira m.a. staður og stund – Framboði, þ.e.  hve aðlaðandi það er– Vitneskju um framboðið– Sjálfstrausti viðkomandi eða tilefni til að sækja sér menntun– Fjárhagslegum aðstæðum til þess– Stuðningi  umhverfis, fjölskyldu og annarra– Stuðningi og beinni hvatningu  fræðsluaðila

Page 22: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Tengsl framhaldsskóla og fræðsluaðila: Skipulag, skörun, verkaskipting.

Í þessu sambandi kann að vera gagnlegt að staldra aðeins við þessar spurningar:

• Hvaða fræðsluaðilar aðrir en skólar koma til greina?• Í hverju felst menntunin öðru en því sem framhaldsskólarnir fást við?• Að hvaða marki er útkoman eða verklagið annað?

• Í hvaða skilningi eru þessir fræðsluaðilar ekki framhaldsskólar? Í hverju felst hugsanlegur munur?

• Tvö kerfi eru starfandi,– Framhaldsskólakerfið, með fjölbreyttu námsframboði og öldungadeildum– Símenntunarmiðstöðvar, og skyldar stofnanir, 

Er verkaskipting gagnleg? Ætti enn að auka á fjölbreytnina?

Page 23: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Tengsl framhaldsskóla og fræðsluaðila: Samstarfsvettvangur, viðhorf, traust og sameiginlegur skilningur á gæðakröfum.

Auk fyrri spurninga um kerfið:

• Hver ættu að vera mikilvægustu gæðaviðmið framhaldsfræðslunnar? Þetta snýst vitanlega um markmið hennar, sbr. tilgangsgrein laganna? Hvernig mundi maður forgangsraða þeim?

• Hverjir ættu að taka mark á þeim gæðaviðmiðum sem eru sett?

• Hver ætti að bera traust til hvers? Þetta snýst m.a. um kerfismál?

Page 24: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Menntunarþarfir markhópsins á vinnumarkaði: einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir.

• Spurning um þarfir; hugtak til trafala

• Tvíþætt verkefni:– Skipulag margvíslegs framboðs menntunar, oft sérsniðið að tiltenum 

hópum, það er það sem við ræðum mest

– En ekki síður mikilvægt: skipulag aðstoðar við fyrirtæki af öllum stærðum til að koma á öflugri starfsþróun, þar innifalin símenntun,  innan fyrirtækisins sem eflir alla starfsemi þess; hvorki skólakerfið né almenn umræða hirðir um þennan þátt málsins í þeim mæli sem nauðsynlegt  er

Page 25: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Næstu skref í framhaldsfræðslumálum eru að takast á við þau viðfangsefni sem hér hefur verið bent á.

• Það verður að gera af hálfu stjórnvalda með því að– virkja lögin um framhaldsfræðslu– skoða samhengið í kerfinu sem mótað er og horfast í augu við þá 

kerfisveikleika sem í ljós koma– m.a. athuga hvort skóli sé endilega besta úrræði fyrir 16-18 ára nemendur 

sem eru ekki reiðbúnir til að sinna því starfi sem þar fer fram– skoða gagnrýnið hvort skólarnir séu nægilega opnir þeim hópi sem hér er 

til umræðu

• Skólakerfið verður að skoða sjálft sig utan frá, m.a. með gagnrýnum gleraugum ævimenntunar og breyta– hugsanlega inntaki sínu og starfsháttum (er það t.d. alfarið á ábyrgð 

nemenda að 30% þeirra ljúka ekki framhaldsskólanámi sínu?)– regluverki sínu í ýmsum grundvallaratriðum

• Aðrir hagsmunaaðilar verða einnig að skoða afstöðu sína mjög gagnrýnið í þessu ljósi, m.a. til kerfisþáttarins

Page 26: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Til umhugsunar

• Hlutverk stjórnvalda – Lög um framhaldsfræðslu 

Almennt  -  

Fræðslusjóður; Þrjú meginsjónarmið af minni hálfu– Rækta þá hugsun sem felst í lögunum, bæði tilgangsgrein og 

skilgreiningum, það er ljóst að hvaða hópi lögin snúa– Virða það starf sem hefur verið í þróun undanfarin ár og gæta 

þess að samfella verði í því starfi– Hugsa suma hluti upp á nýtt og kanna hvort fara megi alveg 

nýjar leiðir

Page 27: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Úr 10. gr. um Fræðslusjóð

Fræðslusjóður, hlutverk.• Hlutverk Fræðslusjóðs er að stuðla að því að til séu viðeigandi 

námstækifæri fyrir einstaklinga með stutta formlega skólagöngu að baki. Jafnframt er það hlutverk sjóðsins að taka þátt í að skapa skilyrði fyrir því að einstaklingar geti nýtt sér slík námstækifæri. Með því stuðlar sjóðurinn að þeim markmiðum sem talin eru í 2. gr.

…Úthlutanir Fræðslusjóðs greinast í meginatriðum í þrennt samkvæmt 

úthlutunarreglum sem ráðherra staðfestir:a. framlög til fræðsluaðila til að mæta kostnaði við kennslu og námskeiðahald,b. framlög til að mæta kostnaði við raunfærnimat og náms- og starfsráðgjöf,c. styrkveitingar til nýsköpunar- og þróunarverkefna í framhaldsfræðslu.

Page 28: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Í lokin

Mikilvægt og skemmtilegt en að sumu leyti flókið verkefni

Miklu skiptir að gera sér þó grein í hverju það felst. Hverju á að ná fram með lögunum.

Hér kemur saman hópur sem er á einu máli um að takast á við verkefnið; það hefur komið í ljós að það er ekki á færi neins eins að leysa það, heldur verða allir aðilar að stilla saman strengi sína; ég er sannfærður um að um það eru allir sammála og munu leggja sig alla fram um það; en jafnframt munu allir aðilar beita sér fyrir sínum lausnum og sinni tilveru; það skapar kvika og frjóa þróun sem verður áhugavert að taka þátt í.

Page 29: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Kærar þakkir fyrir áheyrnina

Page 30: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Hugmyndafræði ævimenntunar: Umræða um grunninnÞað þarf að taka upp hugmyndina um grunnmenntun, um þann grunn sem 

menntunin á að leggja, í hverju hann felst, undir hvað hann byggir og hvernig og hvenær hann er lagður,      en jafnframt má spyrja : er hann lagður í eitt skipti fyrir öll?

Því þarf að ræða hvað eigi að gera sé hann ekki lagður (t.d. meðal þeirra sem hverfa 

snemma frá námi), það er, ef hann vantar,                                     og einnig að ræða

að hvaða marki hann dugi alls ekki (nema e.t.v. um hríð), vegna þess að svo margt sem máli skiptir breytist, úreldist eða það skapast nýtt; og hvernig sú staðreynd tengist umræðu um grunninn sem hefur verið lagður en þarf stöðugt að endurnýja.

Page 31: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Rannsóknir• Rannsóknir á menntun og námi fullorðinna hefur ekki verið áhugamál, að talað 

sé um forgangsverkefni, neinna sterkra hagsmunaafla, hvorki opinberra né annarra,  

mörg dæmi til, en hér drepið á– Brottfallshópinn: Stöðu þeirra 25-30% sem minnsta menntun hafa, hvað varðar 

áhuga þeirra, þörf eða hugmyndir um menntun; um vandamál þeirra t.d. tengd ólæsi, afstöðu til skóla (prófa), afrakstur þeirrar menntunar sem fólk hefur fengið …

– Kerfisbundnar rannsóknir á stöðu og stuðningi við innflytjendur, m.a. þá sem skólakerfinu er ekki ætlað að sinna, ….

– Kerfisumræðu: Hvaða kerfi koma til greina til þess að sinna ólíkum þáttum ævimenntunar, með eða án þátttöku skólakerfisins, kostir og lestir þess fyrirkomulags sem nú ræður ….

– Grunnmenntunar umræðu: Leiðir til þess að efla grunnmenntun þeirra sem hafa hana minnsta fyrir, innan eða utan skólakerfisins; um hvaða (gamla eða nýja) þætti er að ræða, … 

– Starfsþróun: Gildi eða afrakstur og fyrirkomulag starfsþróunar; leiðir til að tengja saman háskólastarf og starfsþróun fjölmargra starfsstétta, …

– Stuðning til, eða möguleika atvinnulífsins  (einkum minni starfseininga, eða þeirra sem hafa minnst menntaða vinnuaflið) til að sinna markvissri starfsþróun, …

Page 32: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Samantekt: Ævimenntun, life-long learning, stendur höllum fæti, hvað varðar

• Hugmyndafræði, sem er almennt of þröng og heldur vanþróuð

• Stöðu í skólakerfinu, – óbeint er krafist að hún lagi sig að því– skólakerfið hefur ekki lagað sig að hugmyndinni um ævimenntun, 

hvorki í skipulagi né starfsháttum

• Kerfisstöðu sína, því hún á sér vanmáttugt kerfi, sem er ekki sjálfstætt, og nær að mjög takmörkuðu leyti til vinnumarkaðarins; þó eru vissulega til mikilvægir kerfisþættir, en þeir mega sín of lítils 

Page 33: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Hugmyndin um ævimenntun, life-long learning 

• Þróun hennar á Íslandi miðað við önnur lönd: 

• Í öllum höfuðdráttum er hér á landi sama mynstur, sama þróun og sömu umhugsunarefni eða viðfangsefni og annars staðar, 

t.d. hvað varðar þátttöku, hverjir sækja og hverjir ekki, ólæsisvanda, breikkandi bil á milli ólíkra hópa, áherslur í umræðu og skipulagi, kerfisleysi fullorðinsfræðslu, vanmátt skólakerfa í þátttöku í starfsþróun, skort á fagmennsku, spurningar um fjármögnun og fjárhagslega og faglega ábyrgð stjórnvalda o.fl.

• Sjá m.a. fjölmargar greinar í Int. J. of Lifelong Education, í Compare, m.a. september heftið 2006, … einmitt um þessi efni 

Page 34: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Samantekt: Ævimenntun, life-long learning, stendur höllum fæti, hvað varðar (frh.)

• Fagmennsku, ekki er gerð krafa um eða gert ráð fyrir sérstakri menntun fyrir þetta verkefni (mjög veikt)

• Fjárhagsstöðu sína, vegna þess að fé til menntunar rennur almennt til hins formlega agaða skólakerfis

• Rannsóknir, það hefur ekki verið neinn þrýstingur á rannsóknir á þessum þætti

Page 35: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Æviferill og skólaganga eins kerfið og umræðan gerir almennt ráð fyrir

Aldur0-10 11-20 31-40 41-50 51-60 61-70 71-80 81-90

Grunn+framh-skHásk

Æviskeið mest til umræðu: 

Aldur 10 20 30 40 50 60 70 80 90Dæmi, fædd 1950 -1960 -1970 -1990 -2000 -2010 -2020 -2030 -2040Dæmi, fædd 1990 -2000 -2010 -2030 -2040 -2050 -2060 -2070 -2080

-1980-2020

21-30

Page 36: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Þrjár víddir í starfsþróun. Dæmi frá menntun kennara, sem fá starfsréttindi að loknu grunnnámi. Rammi sem nú er (grænn hringur) - rammi sem ætti að vera (rauður hringur).

Tími frá upphafi náms

Stað

setn

ing í m

ennt

aker

finu

5 ár 10 ár 20 ár 30 ár 40 ár

Page 37: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Kerfi, skólakerfi, menntakerfi

• Miðað við það verkssvið sem fullorðinsfræðsla spannar (eða ætti að spanna) utan hins formlega skólakerfis þá er kerfisstaða þess sérkennilega veik. 

• Sumir kunna að telja að kerfisbinding slíkrar starfsemi hefti sveigjanleika hennar, dragi úr margreytileika og sýni raunar fjölmargar óæskilegar hliðar þróaðs kerfis. Það kann að vera laukrétt, en sýnir jafnframt öll einkenni veiks kerfis og metnaðarleysis.

• Styrkur kerfis liggur í skipulagi, regluverki, skilvirkni, hagkvæmni, metnaði, fagmennsku, sérhæfingu, kerfisbundinni endurnýjun, jafnræði, gagnsæi, … (en sumu leyti felur þetta allt í sér veikleika um leið)

Page 38: Ævimenntun, framhaldsfræðsla og skólakerfið. Hvað þarf að hugsa upp á nýtt? Jón Torfi Jónasson

JTJ /Akureyri 1. október

Fagmennska fullorðinsfræðslu

• Líf fullorðinna, umhverfi og mat á fjölmörgum gæðum er annað en ungs fólks (krefst faglegrar þekkingar)

• Aðstæður fullorðinna sem hafa farið varhluta af venjulegri grunnmenntun krefjast sérstakrar íhlutunar (krefst faglegrar þekkingar)

• Kennsla fullorðinna lýtur að ýmsu leyti öðrum lögmálum en kennsla ungs fólks og krefst sérstakrar fagmennsku (krefst faglegrar þekkingar)

• Starfsþróun, nýbreytnistarf og nám á vinnustað krefst allt mikillar fagmennsku, sem ekki er lagður nægilega góður grunnur að: sáralítil kerfisbundin menntun eða rannsóknarstarf tengist þessum málum (en allt þetta krefst ríkulegrar faglegrar þekkingar) (sjá þó nám í skólastjórnun og mannauðsnám í viðskiptagreinum og ýmis námskeið um fullorðinsfræðslu)