10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

80
LEXUS GS Kraftmikil hönnun

description

LEXUS GS Kraftmikil hönnun YOSHIHIKO KANAMORI, YFIRVERKFRÆÐINGUR GS www.lexus.is 03 04 05 06 07 08 09 10 GS 450h HYBRID DRIVE 11 12 13 BÍLLINN RÆSTUR OG KEYRT AF STAÐ Þegar GS 450h er ræstur getur kraftmikill rafmótorinn knúið bílinn snarlega upp í 64 km/klst. með rafmagni frá rafgeyminum. Bíllinn er þá nánast hljóðlaus, notar ekkert eldsneyti og útblástur er enginn. GS 450h HYBRID DRIVE 14

Transcript of 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

Page 1: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

LEXUS GSHafðu samband við söluaðila Lexus eða heimsæktu vefsíðu

Lexus til að fá frekari upplýsingar um GS.

www.lexus.is/newgs

© 2012 Lexus Europe* áskilur sér rétt til að breyta öllum atriðum tæknilýsingar og búnaðar

án fyrirvara. Tæknilegar upplýsingar og útbúnaður geta verið mismunandi milli landa.

Vinsamlegast hafðu samband við viðurkenndan söluaðila Lexus til að fá nánari upplýsingar.

Ath.: Upplýsingum og myndum af ökutækjum í þessum bæklingi er einungis ætlað

að vera leiðbeinandi. Litir á yfirbyggingum geta verið frábrugðnir þeim sem birtast á

ljósmyndum í þessu riti.

Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu okkar: www.lexus.is

Umhverfismál eru Lexus afar hugleikin. Við leggjum því mikla áherslu á að halda

umhverfisáhrifum þeirra bíla sem við framleiðum í algjöru lágmarki út allan endingartíma

þeirra – allt frá hönnun, framleiðslu, dreifingu, sölu og viðhaldsþjónustu til endanlegrar

förgunar. Frekari upplýsingar má fá hjá söluaðila.

* Lexus Europe er deild innan Toyota Motor Europe NV/SA.

Prentað í Evrópu, febrúar 2012

Skannaðu þennan kóða með

símanum þínum til þess að fræðast

meira um Lexus GS.

LEXUS GS

Kraftmikil hönnun

LEX

US

GS

Page 2: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi
Page 3: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

03

LEXUS GS

„Við hönnun nýju gerðarinnar af GS settumst við að teikniborðinu og endurmátum

frá grunni hvernig lúxusbíll á að vera hvað útlit og akstur varðar. Til marks um það

er til dæmis einstök hönnun á grillinu, sem hefur breytt ásjónu Lexus í bókstaflegum

skilningi. Einnig má nefna nýjungar á borð við aksturseiginleika og nýja kynslóð af

Lexus Hybrid Drive sem dregur úr útblæstri og eldsneytisnotkun um meira en 20%.

Í GS er hægt að fá 12,3" fjölnotaskjá – þann breiðasta sem þekkist – og framsækin

tækni eins og nætursýn og háþróaður árekstrarvarnarbúnaður.”

YOSHIHIKO KANAMORI, YFIRVERKFRÆÐINGUR GS

Kröftug hönnun 04 - 05

Renndu í hlað með stæl 06 - 07

Akstursánægja í fyrirrúmi 08 - 09

GS 450h Hybrid 1 0 - 1 5

GS 250 V6 1 6 - 1 7

Akstursstillingar 1 8 - 1 9

Einstakur Lexus 20 - 2 1

GS F SPORT útfærslur 24 - 25

Framsýn hönnun 28 - 3 1

Framúrskarandi tækni 32 - 39

Aukin vernd 40 - 4 1

Framleiðslugæði Lexus 42 - 45

www.lexus.is

Page 4: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

04

Page 5: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

05

KRÖFTUG HÖNNUN

EINSTÖK AKSTURSUPPLIFUN OG FRAMÚRSKARANDI TÆKNI Í

FYRIRRÚMI

Við hönnun Lexus-bifreiða er ekki numið staðar fyrr en náðst hafa framúrskarandi

niðurstöður. Lagst var í þrotlausa vinnu til að gera nýjan og endurbættan GS enn

betri á allan hátt. Hafist var handa með því að breyta ásýnd Lexus-bifreiðarinnar

með djörfu og auðkennandi grilli. Í GS 450h bifreiðinni innleiddum við hina

byltingarkenndu Lexus Hybrid Drive tækni sem kemur bifreiðinni í 100 km/klst. á 5,9

sekúndum. Í GS 250 er hins vegar kraftmikil V6-bensínvél sem tryggir mjúkan og

ánægjulegan akstur. GS-bifreiðar Lexus setja ný viðmið með auknum þægindum,

vönduðum frágangi og háþróaðri tækni. Innanrými bílsins er búið mjög breiðum

margmiðlunarskjá, S-Flow loftræstikerfi og akstursaðstoðarkerfi í fremstu röð.

GS-bifreiðina er einnig hægt að fá í F SPORT útfærslu, sem gefur aukinn kraft og

eykur akstursánægjuna enn frekar. Þennan árangur má rekja til þess að frumgerðir

bifreiðanna voru prufukeyrðar meira en 1,6 milljónir kílómetra, sem sýnir með

áþreifanlegum hætti að við nemum ekki staðar fyrr en við höfum náð fullkomnun.

Page 6: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

06

RENNDU Í HLAÐ MEÐ STÆL

NÝ L-FINESSE HÖNNUN, LOFTVIÐNÁM Í LÁGMARKI

GS var hannaður í samræmi við nýja og djarfa útfærslu á lögmáli okkar um framsækni

og fágun. Hönnuðir okkar byrjuðu frá grunni og gáfu GS alveg nýtt útlit, þar sem nýja

og djarfa grillið er miðpunktur athyglinnar. Fagurlöguð framljósin bæta sjónskilyrði

ökumanns til muna og LED-dagljósin gefa bílnum sterkan svip. Frá hlið má sjá hvernig

sterkleg bygging bílsins skapar andstæðu við hæðina og langt og straumlínulagað

farþegarýmið, sem gefur honum einstakt yfirbragð og skapar gott rými fyrir allt að fimm

farþega. Stórar hjólskálar undir sterklegri byggingunni gefa fyrirheit um framúrskarandi

aksturseiginleika. Meðal nýjunga sem setja straumlínulögun GS 450h í fremstu röð

eru sléttar undirvagnshlífar og op sem hægt er að loka á grilli bílsins, sem og uggar

á afturljósunum sem gera aksturinn stöðugri og draga úr vindgnauði í farþegarými.

Page 7: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

07

Page 8: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

08

Page 9: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

09

AKSTURSÁNÆGJAN Í FYRIRRÚMI

NÝR UNDIRVAGN, FJÖLLIÐA FJÖÐRUN

Fjórða kynslóðin af GS skilar mýkri og ánægjulegri akstri en nokkur annar Lexus-

fólksbíll hefur gert til þessa. Stýringin er nákvæm og skörp og ökumaðurinn hefur

fullkomna stjórn í beygjum. Á lengri vegalengdum má greina hve stöðugur bíllinn

er á miklum hraða og hvað aksturinn er þægilegur og afslappaður. Þessa bættu

frammistöðu má skýra á margan hátt. Til að gera aksturinn fágaðri og nákvæmari

er undirvagninn nú stífari og hefur verið endurhannaður frá grunni, auk þess sem

endurbætt hönnun fjölliða afturfjöðrunar gerir hana fyrirferðarminni, sem stóreykur

farangursrýmið. Dæmi um staðalbúnað í GS F SPORT er loftkældar diskabremsur,

AVS-fjöðrun og framsækin tækni á borð við sveigjanlega afturhjólastýringu og

Lexus-aksturseiginleika. Þetta gerir GS 450h F SPORT að hinum fullkomna fólksbíl.

Page 10: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

10

Page 11: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

11

FRAMÚRSKARANDI HYBRID AFKÖST, EV-STILLING

GS 450h nýtur góðs af meira en áratugarlöngum yfirburðum Lexus í Hybrid tækni

og skilar aðdáunarverðum afköstum með hjálp hins kraftmikla Lexus Hybrid Drive

kerfis. 3,5 lítra V6-bensínvél með beinni innspýtingu og Atkinson-hringrás og

afkastamikill rafmótor skila 345 DIN hö. Hröðunin er bæði mjúk og ótrúlega kraftmikil

(100 km/klst. á 5,9 sekúndum) þrátt fyrir að dregið hafi verið úr eldsneytisnotkun

um meira en 20% í 5,9 l/100 km, og koltvísýringslosun er komin niður í 137 g/km.

Ef þú velur EV-stillingu geturðu ekið nánast hljóðlaust án þess að bíllinn noti bensín

eða gefi frá sér koltvísýring eða köfnunarefnisoxíð. Þótt Lexus Hybrid kerfið sé

öflugt er það að sama skapi afar fyrirferðarlítið; rafgeymirinn tekur mjög lítið pláss

svo farangursrýmið er 482 lítrar.

GS 450hHYBRID AFKÖST

GS 450h HYBRID DRIVE

Page 12: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

12

Page 13: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

13

FRAMÚRSKARANDI HYBRID TÆKNI

LEXUS HYBRID DRIVE, ENGINN ÚTBLÁSTUR

Árið 2004 settum við Lexus Hybrid Drive á markaðinn og erum enn eini framleiðandi

lúxusbifreiða sem býður heila línu Hybrid bíla. Hybrid tæknin getur þó verið

mismunandi frá einum bílaframleiðanda til annars. Hybrid bílar flokkast almennt í

tvennt: bíla með samhliða kerfi (Mild hybrid) og bíla með tvískiptu kerfi (Full hybrid).

Samhliða kerfi merkir að bensín- eða dísilvélin er meginorkugjafinn og rafmótorinn er

einungis til að aðstoða vélina. Í þróaðri bílum með tvískiptu kerfi, eins og GS 450h,

vinna eldsneytisknúna vélin og öflugur rafmótor samhliða og hnökralaust. Alla Lexus

Hybrid bíla má ræsa með raforku eingöngu en einnig má keyra þá nær hljóðlaust

í EV-stillingu (Electric Vehicle) án nokkurrar mengunar. Allir Hybrid bílar Lexus

notast við tvískipt kerfi.

Page 14: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

14

BÍLLINN RÆSTUR OG KEYRT AF STAÐ

Þegar GS 450h er ræstur getur kraftmikill rafmótorinn knúið bílinn snarlega upp

í 64 km/klst. með rafmagni frá rafgeyminum. Bíllinn er þá nánast hljóðlaus, notar

ekkert eldsneyti og útblástur er enginn.

VENJULEG AKSTURSSKILYRÐI

3,5 lítra V6-bensínvélin með beinni innspýtingu og Atkinson-hringrás grípur mjúklega

og nær hljóðlaust inn í þegar hraðinn fer yfir 64 km/klst. en fær samt aðstoð frá

rafmótornum þegar þess er þörf. Nánast fullkomin dreifing aflgjafanna tveggja,

bensíns og raforku, gerir GS 450h einstaklega líflegan í akstri, auk þess að halda

mengun og eldsneytisnotkun í lágmarki.

HVERNIG VIRKAR LEXUS HYBRID KERFIÐ?

GS 450h HYBRID DRIVE

Page 15: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

15

HRÖÐUN VIÐ FULLA INNGJÖF

Gefðu vel í og 200 DIN ha. rafmótor bætist samstundis við 3,5 lítra 292 DIN ha.

V6-bensínvélina. Saman gefa aflgjafarnir mikinn togkraft og einstaka stiglausa hröðun

einmitt þegar þú þarft á því að halda.

AFHRÖÐUN, STÖÐVUN, HEMLUN

Þegar dregið er úr hraða eða stöðvað drepur bensínvélin á sér og útblástur

hættir. Þegar þú hemlar eða tekur fótinn af bensíngjöfinni beislar aflendurheimt þá

hreyfiorku sem tapast í öðrum bílum. Orkunni er síðan breytt í rafmagn sem geymt

er í rafgeyminum. Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að þú þarft aldrei að hlaða

Lexus Hybrid bíl.

GS 450h HYBRID DRIVE

Page 16: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

16

Page 17: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

17

GS 250 ÁREIÐANLEG SNERPA

KRAFTMIKIL V6-VÉL, GÍRSKIPTING MEÐ SKIPTIFLIPUM

Nýr og betri GS 250 er búinn 2,5 lítra V6-bensínvél sem skilar 209 DIN hö. af

snörpu vélarafli. Þessi nýi og kraftmikli fólksbíll er afar mjúkur og þægilegur í akstri

og nær allt að 230 kílómetra hraða á örskotsstundu þar sem hraðakstur er leyfilegur.

Létt og sterk V6-vélin er úr álblöndu og gerir bílinn stöðugan og endingargóðan,

og nýjasta hljóðtækni fínstillir hljóð vélarinnar. D-4 bein innsprautun og tvöföld

VVT-i ventlastýring tryggja bæði afl og sparneytni á öllu snúningshraðasviðinu

og halda mengun í útblæstri samtímis innan Euro V staðla. Sex gíra sjálfskiptingin

í GS 250 knýr afturhjólin og er búin gírskiptirofum og handvirkri stillingu (M) til að

auka þægindi við akstur.

Page 18: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

18

Í akstursstillingum er hægt að velja á milli ECO-kerfis, venjulegrar stillingar,

sportstillingar S og sportstillingar S+, allt eftir því hvort áherslan er á skilvirkni bílsins

eða kraft hans. Í ECO-kerfi eru vélarafköst og gírskipting stillt með eldsneytissparnað

í huga og loftræstingu og hita í sætum er stýrt á skilvirkan hátt til að draga enn frekar

úr orkunotkun. Ef þú velur EV-stillingu (Electric Vehicle) í GS 450h Hybrid geturðu

ekið nánast hljóðlaust án þess að bíllinn noti bensín eða gefi frá sér koltvísýring eða

köfnunarefnisoxíð. Í EV, ECO og venjulegri stillingu loga mælar og ljós í kyrrlátum

bláum lit meðan vistmælirinn hjálpar þér að auka skilvirkni í akstri.

ECO-KERFI / EV-STILLING

AKSTURSSTILLING

Page 19: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

19

Ef þú hefur hug á kraftmiklum akstri skaltu velja sportstillingu S og bíllinn stillir þá

inngjöfina um leið til að greiða fyrir mikilli hröðun. Sportstilling S+, sem er í boði

í GS-gerðum með AVS-fjöðrun, sameinar framúrskarandi afköst sportstillingar S og

samhæfða stjórnun AVS-fjöðrunar, rafdrifins aflstýris og VDIM-kerfis, í nákvæmum

og spennandi akstri. Þegar skipt er yfir í sportstillingu S og S+ logar mælaborðið

í rauðum lit og í GS 450h bílnum breytist aflgaumljós kerfisins í snúningshraðamæli.

STILLINGARNAR SPORT S OG SPORT S+

AKSTURSSTILLING

Page 20: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

20

Page 21: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

21

EINSTAKUR LEXUS

STÝRING LOFTFLÆÐIS, FRAMÚRSKARANDI AKSTURSEIGINLEIKAR

Eftir hönnunarvinnu í háþróaðasta ökuhermi heims og prófanir á yfir 1.6 milljón

kílómetra um allan heim höfum við hannað alveg nýjan Lexus-fólksbíl. Við byrjuðum

á því að auka vindustífni yfirbyggingar GS-bílsins um 14% og lögðum lokahönd á

nýtt kerfi til að bæta loftstreymi, sem við köllum ‘loftstreymisdempun’ og felst í að

færa loftstreymið nær yfirbyggingunni, sem bætir aksturseiginleika. Loftið flæðir

mjúklega í og um hjólskálarnar og dregið er úr loftþrýstingi innan skálanna sjálfra.

Á þennan hátt eykst viðbragð í stýri, aksturinn verður stöðugri og veggrip meira

og auk þess verður loftviðnámsstuðullinn einungis 0,26*. Allar þessar endurbætur

stuðla samanlagt að einum öflugasta Lexus-bílnum frá upphafi.

*Fyrir Eco útfærslu

Page 22: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

22

Page 23: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

23

Page 24: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

24

GS F SPORT HEILLANDI OG KRÖFTUGUR

F SPORT HÖNNUN, 19 TOMMU ÁLFELGUR, LÍFLEGUR AKSTUR

Hinir framúrstefnulegu GS 250 F SPORT og GS 450h F SPORT hafa einstaklega

kraftmikið yfirbragð. Hönnunin að framanverðu er ögrandi og samanstendur af efra

og neðra grilli með sexstrendum hólfum og 19 tommu álfelgum með 356 mm tveggja

hluta framhemlum. Vindskeið að aftan er stílhrein og látlaus. Innan í bílnum er sportsæti

ökumanns sem hægt er að stilla á 16 vegu, álfótstig og -sílsahlífar, stýri og gírstöng eru

klædd götuðu leðri. GS F SPORT bílarnir voru þróaðir í Nürburgring af sama teymi

og hannaði LFA V10 ofursportbílinn okkar og akstur þeirra er ótrúlega nákvæmur

og líflegur. Til að bæta aksturseiginleikana enn frekar er GS 450h F SPORT búinn

enn einum byltingarkenndum eiginleika: ‘Lexus Dynamic Handling’ sem samþættir

AVS-fjöðrun og VGRS-mismunadrifsstýringu við DRS-stýringu og VDIM-búnað.

Page 25: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

25

Page 26: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

26

Page 27: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

27

Page 28: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

28

Page 29: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

29

FRAMSÝN HÖNNUN

STJÓRNRÝMI LAGAÐ AÐ ÞÖRFUM BÍLSTJÓRA, DÍÓÐULÝSING

Í GS koma saman þægindi og fágaður lúxus, í notendavænu stjórnrými sem

skiptist á skýran hátt í skjásvæði og stjórnsvæði, til að trufla ökumanninn sem

minnst við akstur. Með fjarstýringunni sem er þægilega staðsett á miðstokknum

geturðu á einfaldan hátt skoðað kort í hárri upplausn eða horft á kvikmyndir

með 17 hátalara Mark Levinson® Premium Surround hljóðkerfi. Nostrað er

við hvert smáatriði í þessari glæsilegu Lexus-bifreið. Sem dæmi má taka hvíta

LED-umhverfislýsinguna í farþegarýminu og fallega hliðræna LED-klukku sem prýðir

mælaborðið. Önnur eftirtektarverð smáatriði eru vandaður frágangur bólstrunar

á armhvílu milli sæta, hnjápúðum og hliðararmhvílum sem auka enn á þægindin

á lengri ferðum.

FRAMSÝN HÖNNUN AÐ INNANVER ÐU

Page 30: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

30

YTRI FEGURÐ, INNRI RÓ

RÚMGOTT LÚXUSRÝMI, RAFSÆTI MEÐ 18 STILLINGUM

Þú getur slakað á í rúmgóðu og friðsælu farþegarými Lexus GS, jafnvel á langferðum.

Fagurlega smíðað stýrið kallast á við þægilegt ökumannssætið, sem tók fimm ár að

fullkomna og býður allt að 18 rafrænar stillingar til að falla nákvæmlega að þínum

þörfum. Mjaðmahæð sætisins er frekar lág svo að ökumaður situr nær þungamiðju

bílsins, sem eykur á akstursánægjuna. Að auki er hægt að stilla höfuðpúða, stuðning

við axlir, hliðar og mjóbak og lengd bílstjórasætis á margan hátt eins og hentar

hverjum og einum. Farþegi í framsæti fær stuðning fyrir læri og kálfa í lúxussæti með

rafstillanlegri setu. Taktu eftir glæsilegu og vönduðu handbragði GS-bílsins eins og

t.d. áklæði, saumar og áláferð í stjórnrofum hljómtækjanna.

FRAMSÝN HÖNNUN AÐ INNANVER ÐU

Page 31: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

31

Page 32: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

32

HEILDARMYNDIN

BREIÐUR MARGMIÐLUNARSKJÁR OG FJARSTÝRING

Í GS er stigið skref í nýja átt í tækni fyrir margmiðlunarskjá. Bíllinn er búinn stærsta

margmiðlunarskjá sem framleiddir eru – 12,3 tommu LED-litaskjá, sérlega breiðum

(24:9). Stærð skjásins og einstök skerpa hans gera þér kleift að fylgjast samtímis með

tveimur mismunandi gerðum upplýsinga, svo sem korti/hljómtækjum, nætursýn/korti

eða leiðsagnargögnum og símtali. Ökumaður og farþegi í framsæti geta stjórnað

skjánum með raddstýringu eða fjarstýringunni, sem hreyfir bendilinn á skjánum líkt

og músarbendill. Aukið er ennfrekar á öryggi með bakkmyndavélinni sem varpar

mynd af svæðinu fyrir aftan þegar bakkað er.

FRAMÚRSKARANDI TAEKNI

Page 33: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

33

Page 34: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

34

Page 35: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

35

HREIN NÝSKÖPUN

ÞRIGGJA SVÆÐA LOFTRÆSTING MEÐ S-FLÆÐI, NANOE® TÆKNI

S-Flow loftræstitæknin er öflugri en fyrri loftræstikerfi en eyðir talsvert minni orku

og stillir loftræstinguna aðeins á þau sæti sem er setið í. Loft er tekið inn í bílinn til að

móðuhreinsa framrúðuna, sem eykur á orkusparnaðinn, og heitt loftið inni í bílnum

er nýtt í neðra farþegarými til að draga úr hitatapi. Ef þú skiptir yfir í ECO-kerfi

halda sætishitararnir á þér hita en draga samtímis úr orkuþörf bílsins. Önnur bylting

í loftstýringu er nanoe® tæknin sem hleypir örsmáum neikvæðum nanoe® ögnum út

í farþegarýmið. Þessar jónir festa sig við agnir í lofti og halda loftinu í farþegarýminu

hreinu auk þess að eyða ólykt úr sætum og klæðningu. Að auki hafa þær jákvæð

og heilsusamleg áhrif á húð þína og hár, þar sem rakainnihald þeirra er u.þ.b. 1000

sinnum meira en í venjulegum jónum.

FRAMÚRSKARANDI TÆKNI

Page 36: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

36

FRÁBÆR HLJÓMBURÐUR

FULLKOMIÐ 17 HÁTALARA MARK LEVINSON® HLJÓÐKERFI

Hægt er að panta GS útfærslu með 12 hátalara hljómtækjum af nýjustu gerð með

kristaltærum hljómi eða hinu fullkomna 17 hátalara Mark Levinson® hljóðkerfi sem á

engan sinn líka. Það er einstakt 7.1 rásar stafrænt surround-hljóðkerfi sem býður upp

á tónleikagæði þegar hlustað er á tónlist eða horft á DVD-myndir. Aðalhátölurunum

fimm er haganlega komið fyrir á þann hátt að hljóðið berst jafnt til farþega í fram- og

aftursætum svo að þeir geti notið þægilegs andrúmslofts og áður óþekktra hljómgæða.

Stafrænn Mark Levinson® magnari framkallar 125 W á rás og 835 W í heildina, en

eyðir aðeins fjórðungi af orku forvera síns. GreenEdge™ tækni hefur verið innleidd

í hvern og einn hátalaranna 17, sem gefur tvöfalt meiri hljóm án þess að orkunotkun

aukist. Til að auka þægindin eru allar útfærslur GS búnar USB-tengi til að tengjast

ýmsum margmiðlunartækjum, hljóðtengi fyrir spilara og 12 volta innstungu.

Page 37: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

37

Page 38: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

38

Page 39: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

39

ÖRUGGUR AKSTUR

ÁREKSTRARÖRYGGISKERFI, NÆTURSÝN LEXUS*

Hið verðlaunaða árekstraröryggiskerfi með DMS-kerfi og akreinaskynjara var

fyrst innleitt í Lexus LS, flaggskipi Lexus-bifreiða, en fæst nú í GS. Með háþróaðri

radar- og myndavélatækni varar kerfið þig við ef þig fer að syfja, hjálpar þér að halda

bílnum innan akreinar og, það sem mest er um vert, virkjar neyðarhemlunaraðstoð

og sætisbelti ef það skynjar yfirvofandi árekstur. Þessi radartækni gefur einnig kost

á sjálfvirkri hraðastillingu (ACC) á hvaða hraða sem er. Til að þú getir fylgst betur

með veginum fram undan birtir sjónlínuskjár akstursupplýsingar á framrúðunni og

blindsvæðisskynjari notast við radar á afturstuðara til að vara þig við bifreiðum sem

taka fram úr og þú hefur ekki séð. Í myrkri notar nætursýn Lexus innrauða tækni

til að birta myndir af veginum fram undan á 12,3 tommu skjánum og auka þannig

öryggi farþega.

*Búnaður ekki fáanlegur á Íslandi

FRAMÚRSKARANDI TÆKNI

Page 40: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

40

AUKIN VERND

TRAUST YFIRBYGGING, 10 LOFTPÚÐAR

GS-bifreiðin er hönnuð til að komast hjá hættu og er í því skyni búin nýjustu kynslóð

hreyfistjórnkerfis (VDIM), árekstraröryggiskerfi og hemlum með framúrskarandi

hemlunarviðbragði. Ef árekstur er óumflýjanlegur er traustvekjandi að vita að ótrúlega

sterk yfirbygging í farþegarými ver þig og farþega bílsins. Notast er við álagsþolið

stál í grindina, sem er létt en afar traust, og burðarbitarnir eru staðsettir þannig að

dregið er jafnt úr högginu áður en það nær til farþegarýmisins. Til að auka enn á

öryggið er GS-bíllinn búinn WIL-framsætum, sem draga úr líkum á hálshnykk, og tíu

loftpúðum. Þar á meðal eru púðar og hnépúðar fyrir ökumann og farþega í framsæti,

hliðarloftpúðar að framan og aftan og sérstök loftpúðatjöld í öllum hliðargluggum.

Page 41: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

41

Page 42: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

42

Page 43: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

43

ENDURSKILGREINING Á GÆÐUM

HANDSLÍPAÐ LAKK, ‘TAKUMI’GÆÐASMÍÐI

GS setur ný viðmið um gæði lúxusfólksbíla á borð við þennan. Það leynir sér ekki

þegar þú snertir vandaða álstjórnrofa hljóðkerfisins eða fallegan leðursauminn. Prófaðu

líka að renna fingrum yfir glansandi lakkið. Eftir hverja lakkyfirferð hefur yfirborðið

verið blautslípað (tímafrekt ferli sem yfirleitt þekkist aðeins hjá sérsmíðuðum bílum)

og síðan yfirfarið bæði af árvökulum augum fagmanna og með tölvuskoðun. Stýri

GS 450h vekur einnig eftirtekt, en það er fagurlega unnið úr lagskiptum bambus

úr náttúrulegum heimkynnum, sem er ásamt öðru til marks um hve umhverfisvænn

bíllinn er. GS er framleiddur í hinni verðlaunuðu Tahara-verksmiðju, á sömu línu og

LS lúxusbíllinn, og öll framleiðslan er yfirfarin af ‘Takumi’ handverksmeisturum Lexus.

Þeir fara vandlega yfir hvern bíl til að tryggja að hann standist kröfur okkar um mýkt,

áður en hann fer í 30 km lokareynsluakstur.

Page 44: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

44

UMHVERFISVÆN FRAMLEIÐSLA

YFIRBURÐA DRIFRÁS, 85% ENDURVINNANLEGT EFNI

GS er búinn hreinustu og öflugustu Hybrid drifrás í sínum flokki, með

tímamótaloftræstingu með S-Flow og GreenEdge™ hljóðtækni sem dregur enn

frekar úr orkunotkun. Að auki er allt í bílnum hannað með það í huga að lágmarka

áhrif á umhverfið. Nú er í fyrsta sinn hægt að velja um náttúruleg efni í GS 450h,

sem og áklæði úr hraðsprottnum bambus og stýri úr bambus. Þegar hætt er að nota

bílinn er hægt að endurvinna allt að 85% af efni hans, þar með talinn rafgeyminn. Við

framleiðslu í hinni verðlaunuðu Tahara verksmiðju er notast við okkar heimsfrægu

straumlínustjórnunartækni (‘lean manufacturing’) sem heldur úrgangi í algjöru

lágmarki og á hverjum degi hreinsar vatnshreinsimiðstöð verksmiðjunnar þúsundir

tonna af vatni.

Page 45: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

45

Page 46: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

46

Page 47: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

47

TÆKNILÝSING

Hybrid tæknin 48 - 49

Aksturseiginleikar 50 - 5 1

Framúrskarandi öryggi 52 - 53

Búnaður að utan 54 - 55

Búnaður að innan 56 - 57

Hljómtæki, samskipti og upplýsingatækni 58 - 59

Tæknilegar upplýsingar um GS 450h 60 - 6 1

Tæknilegar upplýsingar um GS 250 62 - 63

Staðalbúnaður fyrir allar útfærslur 64

Viðbótarbúnaður eftir útfærslum 65

Útfærslur og valbúnaður 66 - 67

F SPORT 68 - 69

Aukahlutir 70 - 7 1

Litir að innan 72 - 75

Litir að utan 76 - 7 7

Reynsla eigenda 78

Page 48: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

48

Hér er um að ræða einstaka samsetningu rafmótors og bensínvélar sem skilar

miklu afli, framúrskarandi eldsneytisnýtingu og mjög lítinn útblástur. Niðurstaðan er

345 DIN hö. sem gefa snögga hröðun en koltvísýringslosun er þó aðeins 137 g/km.

HYBRID TÆKNI

Page 49: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

49HYBRID TÆKNI

EV-KERFI (ELECTRIC VEHICLE)

Þegar næg hleðsla er á rafhlöðunni geturðu ekið

styttri vegalengdir á litlum hraða með því að nota

raforku eingöngu með EV-kerfinu. EV-kerfið er afar

hljóðlátt, mengar ekkert og eyðir engu eldsneyti. Það

er tilvalið þegar ekið er í þungri og hægri umferð eða

á bílastæðum.

ENDURNÝTING HEMLUNARAFLS

Þegar hemlað er eða dregið úr aksturshraða knýja hjól

bifreiðarinnar afkastamikinn rafmótorinn svo hann virkar

eins og rafall. Hann fangar hreyfiorku sem annars myndi

tapast sem varmi og breytir henni í raforku. Hún er síðan

geymd í rafhlöðunni til síðari nota; við mikla hröðun eða

þegar ekið er eingöngu á rafmagni.

3,5 LÍTRA V6-BENSÍNVÉL

Í GS 450h er afkastamikil V6-bensínvél sem notar

Atkinson-hringrás og er með D-4S beina innspýtingu og

Dual VVT-i tækni. Vélin er einnig búin Start/Stop-kerfi

sem dregur úr eldsneytisnotkun og mengun í útblæstri.

ÖFLUGUR RAFGEYMIR

Orkustjórnun tvískipts, 40 eininga, 288 volta

Ni-MH rafgeymisins er í höndum háþróaðs

orkustjórnunarhugbúnaðar. Það tryggir að rafgeymirinn

er hlaðinn eins og þörf er á við akstur svo aldrei þarf

að hlaða hann sérstaklega. Rafgeymirinn er sérlega

fyrirferðarlítill, sem eykur farangursrýmið til muna.

HYBRID AFKÖST

GS 450h skilar aðdáunarverðum afköstum með Hybrid

tækni. Hann kemst upp í 100 km/klst. á aðeins 5,9

sekúndum, þökk sé öflugri samsetningu eldsneytis og

raforku sem aflgjafa. Hann getur líka ekið án nokkurs

útblásturs í EV-stillingu. Samanlögð mengun er einungis

137 g/km* og eldsneytisnotkun er aðeins 5,9 l/100 km.

*Eco útfærsla

STJÓRNEINING

Stjórneiningin er höfuð Lexus Hybrid Drive og stýrir

stöðugt úthlutun aflgjafa – raforku, eldsneytis eða

blöndu beggja – til að tryggja að orkunýting sé ávallt

með besta móti. Stjórneiningin stýrir einnig ferlinu við

hleðslu rafhlöðunnar, annaðhvort með því að úthluta

vélarafli til að keyra rafalinn eða með hemlunarafli sem

umbreytt er í raforku.

Page 50: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

50 AKSTURSEIGIN LEIKAR

FRAMFJÖÐRUN

Þrykktir álhlutar og ný hönnun gera tveggja spyrnu

fjöðrunarkerfið að framan léttara og viðbragðsbetra.

Umfangsmiklar endurbætur á fjöðrunarbúnaðinum hafa

bætt stöðugleika og þægindi við akstur svo um munar.

AKSTURSEIGIN-LEIKAR

UNDIRVAGN

Aukin vindustífni og endurhönnuð fjöðrun gera GS

lipran og þægilegan í akstri. Bíllinn veitir ökumanninum

aukna öryggistilfinningu og traustur undirvagninn gerir

stjórnun bílsins gefandi, lipra og nákvæma.

AFTURFJÖÐRUN

Stöðugleiki í beinum akstri sem og í beygjum hefur

verið aukinn til muna með endurbótum á hönnun og

fyrirkomulagi fjölliða afturfjöðrunar. Til að halda þyngd

í lágmarki en samtímis auka styrk og nákvæmni er

notast við blöndu af álagsþolnu stáli og steyptum og

þrykktum álhlutum.

Page 51: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

51AKSTURSEIGIN LEIKAR

n AVS-FJÖÐRUN*

Dempunarkrafti á öllum fjórum hjólum er stjórnað með

AVS-fjöðruninni út frá yfirborðsástandi vegar og stjórnun

ökumanns. Það eykur ekki aðeins þægindi við akstur

heldur bætir stöðugleikann – sérstaklega þegar beygt

er á miklum hraða.

*Staðalbúnaður í Luxury og F SPORT

n LEXUS DYNAMIC HANDLING*

Lexus Dynamic Handling er sérbúnaður í GS 450h F SPORT sem færir afköst í akstri upp í nýjar hæðir. VGRS-

mismunadrifsstýring og sveigjanleg afturhjólastýring stjórna hverju hjóli fyrir sig. Á litlum hraða eða miðlungshraða

eru framhjól og afturhjól sveigð örlítið í ólíkar áttir. Þetta dregur mjög úr beygjuradíus, sem gerir bílinn mun

meðfærilegri á litlum hraða og snarpari þegar ekið er á hlykkjóttum sveitavegum. Þegar ekið er á miklum hraða

snúa öll hjólin í sömu átt til að bæta grip að aftan og stöðugleika bílsins. Það gerir bílinn öruggari þegar skipt er

um akrein eða þegar beygt er á miklum hraða.

*Staðalbúnaður í F SPORT

AKSTURSSTILLING

Hægt er að fínstilla frammistöðu bílsins með því að

velja akstursstillingu. ECO-kerfi dregur úr útblástri

og eldsneytisnotkun við hægan akstur og venjuleg

stilling (NORMAL) er hugsuð fyrir daglegan akstur þar

sem sparneytni og þægindi við akstur eru í fyrirrúmi.

SPORT S stillingin eykur viðbragð aflrásar tafarlaust

til að ná sneggri hröðun. SPORT S+ stillingin er búin

AVS-fjöðrun og stjórnar aflrásinni og fjöðruninni til að

gera aksturinn enn ánægjulegri. Í GS 450h F SPORT

er fimm þrepa VDIM-búnaður sem samþættir stjórn

Lexus Dynamic Handling í SPORT S+ stillingu. Það

skilar sér í einstakri snerpu og stjórn við akstur.

n Búnaður mismunandi eftir útfærslu.

Page 52: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

52 FRAMÚRSKARANDI ÖRYGGI

FRAMÚRSKARANDI ÖRYGGI

n AKREINASKYNJARI*

Þessi tækninýjung aðstoðar ökumann

við að halda sér innan akreinar með því

að vara hann við ef hann rekur af leið og

beita svolitlum krafti á stýrið til að beina

bílnum rétta leið.

*Búnaður ekki fáanlegur á Íslandi

ÁREKSTRARÖRYGGI* (PCS)

Árekstraröryggiskerfið notast við

mi l l imetrabylg ju-rats járskynjara

og aksturstölvu ökutækisins til að

reikna út hættu á árekstri. Ef hættan

er mikil er ökumaður látinn vita með

viðvörunarmerkjum og -hljóðum, og

hemlunarþrýstingur eykst. Ef árekstur

er óumflýjanlegur er hægt að virkja

hemlana sjálfvirkt og öryggisbelti

í framsæti herðast. Hraðastillir með

aðlögunarhæfni (ACC) notar sömu

framsæknu radartæknina til að halda

fyrir fram ákveðinni fjarlægð frá

næsta bíl á undan. Advanced PCS-

árekstraröryggiskerfið inniheldur einnig

DMS-kerfi.

*Búnaður ekki fáanlegur á Íslandi

n AKSTURSEFTIRLIT*

DMS-kerfið notar innbyggðar CCD-

stafrænar myndavélar með innrauðum

díóðuljósum til að greina hvort augu

ökumanns eru opin eða lokuð eða hvort

þau leita frá veginum fram undan. Gerist

það eru sendar út viðeigandi viðvaranir.

*Búnaður ekki fáanlegur á Íslandi

Page 53: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

53FRAMÚRSKARANDI ÖRYGGI

TÍU LOFTPÚÐAR

Til viðbótar við sérlega sterka

öryggisbyggingu farþegarýmis eru

farþegar varðir með tíu skynjarastýrðum

loftpúðum. Öll öryggisbelti, nema

beltið í miðjusæti að aftan, eru einnig

búin forstrekkjurum. Ökumaður og

farþegi í framsæti fá jafnframt aukna

vörn með tvískiptum höfuðpúðum, sem

og hnéloftpúðum og hliðarloftpúðum.

Hliðarloftpúðar eru einnig við ytri

aftursætin og loftpúðatjöld eru meðfram

báðum hliðum farþegarýmisins. Þessar

einstöku öryggisráðstafanir eru

staðalbúnaður í GS. Þar með er verulega

dregið úr hættu á meiðslum.

n SJÓNLÍNUSKJÁR*

Með sjónlínuskjánum er helstu

upplýsingum um bílinn, s.s. ökuhraða,

varpað beint á framrúðuna í sjónlínu

ökumannsins. Einnig er hægt að sjá

skipanir fyrir leiðsögubúnað, stillingar

fyrir hljómtæki og fleiri upplýsingar. Þetta

gerir ökumanni kleift að sjá mikilvægar

upplýsingar án þess að líta af veginum.

*Valbúnaður í Luxury

n BLINDSVÆÐISSKYNJARI*

Ratsjártæki sem komið er fyrir á

afturstuðara greinir ökutæki á næstu

akreinum sem ekki sjást á hliðarspeglum.

Ef ökumaður gefur merki um að hann ætli

að skipta um akrein og ökutæki fer inn

á blindsvæðið birtist viðvörunarmerki í

öðrum eða báðum hliðarspeglum.

*Valbúnaður í Exe og Luxury

n NÆTURSÝN*

Nætursýnarkerfið samanstendur

af öflugri innrauðri myndavél með

innrauðum ljósvörpum sem taka upplýsta

næturmynd af svæðinu fram undan.

Myndin birtist á 12,3" skjá og hjálpar

ökumanni að greina hluti fyrir framan

bílinn löngu áður en hann hefði getað

séð þá með berum augum.

*Búnaður ekki fáanlegur á Íslandi

n Búnaður mismunandi eftir útfærslu.

Page 54: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

54 BÚNAÐUR AÐ UTAN

BÚNAÐUR AÐ UTAN

n AÐFELLANLEGIR*

Hægt er að fella hliðarspegla saman

rafrænt þegar leggja þarf í þröng

bílastæði og til að verjast skemmdum

þegar bíllinn er í stæði. Glýjuvarnartækni

deyfir speglana einnig sjálfkrafa til að

hindra að framljós bíla sem koma á eftir

blindi ökumann.

*Staðalbúnaður í Exe, Luxury og F SPORT

UPPHITAÐIR HLIÐARSPEGLAR*

Hliðarspeglahúsið er straumlínulagað

og inniheldur bæði innfellt stefnuljós

og haganlega innbyggt leiðarljós.

Hliðarspeglar eru rafstilltir og þá er

hægt að hita ef þess gerist þörf.

*Staðalbúnaður í öllum útfærslum

REGNSKYNJARAR*

Skynjari fyrir ofan baksýnisspegilinn

nemur rigningu og magn hennar. Kerfið

kveikir á rúðuþurrkunum og lagar hraða

þeirra sjálfkrafa að úrkomunni.

*Staðalbúnaður í Exe, Luxury og F SPORT

FJARLÆGÐARSKYNJARAR*

Skynjarar á lítt áberandi stöðum

á stuðurum að framan (4) og aftan

(4) reikna stöðugt út fjarlægðina frá

nálægum hlutum. Ökumaður fær

stigskiptar hljóðrænar og myndrænar

viðvaranir um fjarlægð að næsta hlut.

*Staðalbúnaður í Exe, Luxury og F SPORT

n 18" ÁLFELGUR*

Stærri 18" sanseraðar 10 arma álfelgur

passa við dekkjastærð 235/35 R18.

Með breiðari felgum og hjólbörðum

lítur bíllinn ekki bara betur út heldur nær

auknu gripi á vegum.

*Valbúnaður í Exe og staðalbúnaður í Luxury

n 18" ÁLFELGUR*

Margarma 18" álfelgur með 235/45

R18 dekkjum fást með léttri sanseraðri

áferð sem valbúnaður í lúxusútfærslunni.

Glæsileg hönnun armanna gefur

álfelgunum einstaklega kraftmikið

yfirbragð.

*Valbúnaður í Luxury útfærslu

17" ÁLFELGUR

Léttar 9 arma 17" álfelgurnar eru með

silfursanseraðri áferð. Samsetning þeirra

og 225/50 R17 hjólbarðanna stuðlar

að minni losun koltvísýrings og minni

eldsneytisnotkun.

Page 55: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

55BÚNAÐUR AÐ UTAN

BI-XENON FRAMLJÓS

HID bi-Xenon framljós eru staðalbúnaður

á öllum útfærslum og fylgja þeim

sjálfstillandi háþrýstihreinsibúnaður

og LED-dagljósabúnaður. Einnig er

í boði AFS-ljósabúnaður og sjálfvirkt

hágeislaljóskerfi (AHB).

LÝSTU MÉR LEIÐINA HEIM

Þú getur stillt lággeisla-framljósin

og leiðarljósin þannig að þau logi

í  30  sekúndur eftir að stigið hefur

verið úr bílnum, til að leiðbeina þér

í myrkri. Lengja má tímann í 60, 90 eða

120 sekúndur.

n SÓLLÚGA*

Rafknúin sóllúga úr gleri hleypir ljósi og

fersku lofti inn í bílinn eftir óskum. Auðvelt

og þægilegt er að stýra sóllúgunni með

snertiskjá og handstýrð sólskyggni varpa

skugga eftir þörfum.

*Valbúnaður með öllum útfærslum

EINSTAKT GRILL

GS var hannaður í samræmi við nýja og djarfa útfærslu á lögmáli okkar um framsækni

og fágun. Sérbyggt grillið er til marks um það. Hönnun þess er auðkennandi og

mun taka við sem ný ásjóna Lexus, ásamt innfelldum aðalljósunum og L-laga LED-

dagljósum.

DÍÓÐUAFTURLJÓS OG VIRK HEMLALJÓS

Díóðuljós eru í afturljósasamstæðunni, númeraplötuljósi og nú, í fyrsta sinn á Lexus-

bifreið, á afturþokuljósunum. Falleg lögun og dýpt þessara ljósa eykur glæsileika

þeirra. Örvarlaga merki Lexus endurspeglast í L-laga leiðarljósum og innbyggðir

loftflæðilega hannaðir uggar auka stöðugleika í akstri. Við snarpa hemlun blikka

hemlaljósin ákaft – einnig hástæða díóðuhemlaljósið í miðjunni – til að vara þá við

sem á eftir koma.

n BI-LED-FRAMLJÓS

GS 450h er fyrsti Lexus-bíllinn með

bi-LED-framljósum. Díóðuljós (LED)

veita framúrskarandi birtu og eru

orkusparandi, örugg og endingargóð.

Bi-LED-framljós með AFS og AHB

eru staðalbúnaður í GS 450h Luxury

og F SPORT útfærslum.

n Búnaður mismunandi eftir útfærslu.

Page 56: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

56 BÚNAÐUR AÐ INNAN

BÚNAÐUR AÐ INNAN

n 3-SVÆÐA LOFTRÆSTING*

Farþegarými GS nýtur góðs af nanoe®

tækninni, þeirri fyrstu sinnar tegundar,

og er því skipt upp í þrjú hitasvæði

sem stýrt er rafrænt. Ökumaður og

farþegi í framsæti færa hvor um sig inn

sínar stillingar með fjarstýringunni eða

í mælaborði en farþegar í aftursæti stýra

sínu svæði á sérstöku stjórnborði.

*Staðalbúnaður í Luxury útfærslu.

n UPPHITUÐ OG LOFTRÆST*

Auk leðuráklæðis á sætum geta

ökumaður og farþegi að framan hitað

sæti sín eða loftræst þau hvor fyrir sig.

Þetta eykur enn á þægindin og er einkar

hentugt þar sem loftslag er sérlega heitt

eða kalt.

*Með tauáklæði fylgir einungis hitakerfi

RAFKNÚIN SÆTISSTILLING

Staðalbúnaður í framsætum er

10  rafrænar stillingar, þar af tvenns

lags st i l l ingar á stuðningi við

mjóbak. Í F SPORT útfærslunni eru

stillingarnar 16 (þar af 4 stillingar fyrir

stuðning við mjóbak) í ökumannssæti.

Í lúxusútfærslunni er hægt að stilla bæði

sæti ökumanns og farþega í framsæti á

18 vegu og þar af eru 4 stillingar fyrir

stuðning við mjóbak.

n STUÐNINGUR VIÐ KÁLFA*

Í lúxusútfærslu bílsins getur bílstjórinn

lengt setuna að vild til að fá betri stuðning.

Að auki býðst farþega í framsæti

stillanlegur stuðningur við kálfa, sem

stuðlar að slökun og vellíðan.

*Staðalbúnaður í Luxury útfærslu

n STJÓRNBORÐ*

Hægt er að hita ytri aftursætin hvort

um sig á hentugu stjórnborði. Það er

með LCD-skjá og því er komið fyrir á

armpúðanum í miðjunni. Einnig er hægt

að nota það til að stilla lofthitann aftur í og

stjórna hljómtækjum og afturskyggni.

*Staðalbúnaður í Luxury útfærslu

SÆTISÁKLÆÐI

Mjúkt Cellensia-áklæði er staðalbúnaður

í GS og er mjög vandað og fágað.

Mjúkt gatað leður er svo staðalbúnaður

í Exe en Semi Aniline leðuráklæði er

staðalbúnaður í Luxury útfærslu. Í

F SPORT útfærslunni er leðuráklæðið

með sérstökum tígullaga götum.

GÓÐUR STUÐNINGUR

Teymi sérfræðinga vann í rúm fimm

ár að því að þróa sætisbygginguna

þannig að hún dragi úr þreytu á sem

árangursríkastan hátt. Nú er stillanlegur

stuðningur við mjaðmir í boði í fyrsta

sinn, auk axlar- og hliðarstuðnings

og höfuðpúða, í báðum framsætum

í lúxusútfærslum.

Page 57: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

57BÚNAÐUR AÐ INNAN

LEÐURKLÆTT STÝRI

Nýtt þriggja arma leðurklætt stýri hefur

verið hannað sérstaklega fyrir GS með

þægindi ökumanns í huga. Stýrið er

380 mm í þvermál, snertinæmt og

með góðu gripi, og nálægt þumlum eru

hnappar til að stýra hljóði, skjá, síma og

raddskipunum.

n LEÐUR-/VIÐARKLÆÐNING

Í lúxusútfærslunni kemur stýrið með

leður- eða viðaráferð. Mismunandi

viðarlitir og áferð eru fáanleg*.

*Staðalbúnaður í Luxury útfærslu

SÍGILD HÖNNUN KLUKKU

Miðpunkturinn í mælaborðinu er

fagurlega hönnuð klukka sem ber vitni

um þá natni sem framleiðendur Lexus

leggja í hvert smáatriði. Hún er lýst upp

með hvítum díóðuljósum og gefur bílnum

sígilt yfirbragð.

MARGVÍSLEGAR STILLINGAR

Í öllum gerðum GS er stýrissúla sem

hægt er að stilla rafrænt í mismunandi

halla og stöðu. Þessar stillingar, til

viðbótar við fjölda rafrænna sætisstillinga,

gera hverjum ökumanni kleift að finna þá

stöðu sem hentar honum best.

DÍÓÐULÝSING Í INNANRÝMI

Þægileg hvít birtan í mælaborði og

farþegarými gefur því yfirvegað og

róandi yfirbragð. Sparneytin díóðuljós

í aðalljósi innanrýmis og korta- og

leslömpum gefa þá birtu sem þarf, auk

þess sem þau loga stöðugt í hliðarbyrði

þegar dimmt er.

GÍRSKIPTIROFAR

Þótt hægt sé að keyra allar gerðir GS

með sjálfskiptingu getur ökumaður

auðveldlega skipt um gír handvirkt með

gírskiptirofunum á stýrinu. Þessi tækni var

upprunalega hönnuð fyrir bíla í Formula

1 kappakstrinum og gerir akstur bílsins

fjölbreyttari.

n HLIÐARSÓLSKYGGNI

Rafknúið sólskyggni í  afturrúðu er

staðalbúnaður með Luxury útfærslu.

Það er einfalt í notkun, hljóðlaust og lítið

fer fyrir því þegar það er ekki í notkun.

Handvirk sólskyggni eru einnig fyrir

glugga í afturhurðum, með framlengingu

til hliðanna til að ná yfir kvartljósið.

FARANGUR

Rými fyrir farangur hefur verið stórlega

aukið í GS 450h. Nú rúmar það þrjú

golfsett og GS 250 rúmar meira að

segja eitt til viðbótar.

n Búnaður mismunandi eftir útfærslu.

Page 58: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

58 HLJÓMTÆKI, SAMSKIPTI OG UPPLÝSINGATÆKNI

HLJÓMTÆKI, SAMSKIPTI OG UPPLÝSINGATÆKNI

STAFRÆN TENGING

Hægt er að sækja ótal stafræn forrit

í margmiðlunarskjáinn. Til dæmis er

hægt að hlaða inn allri símaskránni úr

snjallsímanum og fletta í gegnum hana

á skjánum. Hægt er að skoða og stjórna

iPod® og öðrum margmiðlunartækjum

á mismunandi skjáum.

n LEIÐSÖGUKERFI*

Tærar og skýrar myndir og fjöldi

kortavalkosta gera leiðsögukerfið

einfalt í notkun og það bregst hratt við

skipunum notenda. Á harða diskinum

er að finna kort af vegakerfi nær allrar

Evrópu og hægt er að uppfæra þau hjá

viðurkenndum söluaðilum Lexus.

*Leiðsögukerfi er valbúnaður með öllum útfærslum

RADDSTÝRING

Með raddskipunum getur ökumaður

stýrt ýmsum kerfum á einfaldan og

handfrjálsan hátt, svo sem leiðsögukerfi

á hörðum diski eða farsíma með

Bluetooth® tengingu.

n 12,3" MARGMIÐLUNARSKJÁR*

12,3" margmiðlunarskjár í hárri upplausn er sá breiðasti sem þekkist í fjöldaframleiddum

bifreiðum. Ökumaður og farþegi í framsæti geta stjórnað skjánum með fjarstýringunni,

auk þess sem hægt er að stýra mörgum eiginleikum með raddskipunum. Tvískiptur

breiðskjárinn nýtist vel þegar skoða á tvenns konar upplýsingar samtímis, til dæmis

má skipta honum í stórt kort og stafrænar útvarpsupplýsingar (DAB).

*Valbúnaður í Luxury útfærslu

n FJARSTÝRING

Ný kynslóð fjarstýringar gerir notendum

kleift að stýra margmiðlunarskjánum

í miðjunni á einfaldan hátt með einni

snertingu. Fjarstýringin er hönnuð með

þægindi í huga, er ávallt til taks og jafn

einföld í notkun og tölvumús.

Page 59: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

59HLJÓMTÆKI, SAMSKIPTI OG UPPLÝSINGATÆKNI

FJÖLNOTA UPPLÝSINGASKJÁR

3,5" upplýsingaskjár í hárri upplausn er á

milli aðalmælanna tveggja og þar birtast

fjölbreyttar upplýsingar um ökutækið.

Ökumaður getur breytt stillingunum

með stjórntækjum í stýri.

ÁTTAVITI

Lítill áttaviti er meðal fjölmargra

viðbótarupplýsinga sem hægt er

að birta á leiðsöguskjánum. Á 12,3"

skjánum er hægt að velja um mismunandi

áttavita sem birta nákvæm lengdar-/

breiddarhnit.

STJÓRNTÆKI Í STÝRI

Í stýrinu eru þægilega staðsettir

hnappar til að stýra hljóði, síma, skjá og

raddstýringu. Einnig er hnappur fyrir

stillingar í upplýsingaskjánum.

n MARK LEVINSON®*

Mark Levinson® hljóðker fið er

með stafrænum 835 W magnara

og 17  hátölurum sem notast við

GreenEdge® hljóðtækni og skilar tærum

hljómi og 360° víðóma tónleikaupplifun.

*Valbúnaður í Luxury útfærslu

MIÐSTOKKUR

Í GS er 8" fjarstýrður skjár staðalbúnaður. Með honum er meðal annars hægt að

stýra hljóðkerfi og loftræstingu og skoða orkumælinn (GS 450h), auk þess sem

leiðsögukerfi með hörðum diski er valbúnaður. Í miðstokknum er einnig að finna

stjórneiningu 12 hátalara hljóðkerfisins. Það inniheldur DAB-útvarp, Bluetooth®

hljómtæki og geislaspilara/DVD-spilara. USB-tengið og hljóðtengið eru staðsett

í miðstokknum, upplýst með hvítum díóðuljósum.

AFÞREYINGARKERFI

Hægt er að horfa á uppáhalds DVD-

myndirnar á skjánum í mælaborðinu

– þegar bíllinn er ekki á ferð. Einnig er

hægt að spila iPod® gegnum hátalara

bílsins og skoða stafrænar upplýsingar

um lögin á skjánum.

n BAKKMYNDAVÉL

Þegar sett er í bakkgír birtist mynd af

svæðinu fyrir aftan bílinn á 8" skjánum

með skjáleiðbeiningum um hvernig

best er að leggja bílnum. Á 12,3"

skjánum er myndin tvískipt og birtir

einnig tölfræðilegar upplýsingar frá

skynjaranum.

n Búnaður mismunandi eftir útfærslu.

Page 60: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

60 TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR UM GS 450h HYBRID

TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR UM GS 450h HYBRIDHÁMARKSAFKÖST

DIN hö. / kW 345 / 254

VÉL

Rúmtak (cm3) 3456

Strokkar/ventlar V6/24

Ventlakerfi Dual VVT-i

Tegund eldsneytis Bensín, 95 oktan eða +

Hámarksafl (DIN hö. / kW @ sn./mín.) 292 / 215 @ 6000

Hámarkstog (Nm @ sn./mín.) 352 @ 4500

RAFHREYFILL

Gerð Riðstraumur, varanlegur segull

Hámarksafköst (DIN hö. / kW) 200 / 147

Hámarkstog (Nm) 275

RAFALL

Gerð Riðstraumur, varanlegur segull

Spenna (V) 650

RAFGEYMIR

Gerð Nikkel-málmhýdríð (Ni-MH)

Fjöldi rafgeymishólfa 240

Spenna kerfis (V) 650

GÍRSKIPTING

Drif Afturhjóladrif

Gírskipting Rafstýrð stiglaus gírskipting (E-CVT)

AFKÖST

Hámarkshraði (km/klst.) 250

0–100 km/klst. (sek.) 5,9

CO2 ÚTBLÁSTUR (g/km)

Magn í útblæstri Euro V

Blandaður akstur* frá 137 til 145

ELDSNEYTISNOTKUN (l/100 km)

Blandaður akstur* frá 5,9 til 6,2

HEMLAR

Að framan Loftkældar diskabremsur

– Comfort/Eco (mm) 334

– Luxury/F SPORT (mm) 356

Að aftan Loftkældar diskabremsur

– Allar útfærslur (mm) 310

FJÖÐRUN

Að framan Tvíarma gaffalfjöðrun

Að aftan Fjölliðakerfi

STÝRISBÚNAÐUR

Gerð Tannstangarstýri

Lágmarks beygjuradíus (m) 5,3

ÞYNGD (kg)

Heildarþyngd bíls

- Eco 2305

- Comfort / F SPORT / Luxury 2325

Eigin þyngd (lágm.–hám.)

- Eco 1820-1855

- Comfort / F SPORT / Luxury 1825-1910

Dráttargega (með hemlum) 1500

Dráttargeta (án hemla) 750

VIÐNÁMSSTUÐULL

Cd-gildi

- Eco 0,26

- Comfort / F SPORT / Luxury 0,27

RÝMI (l)

Eldsneytistankur 66

Farangursrými**

– með dekkjaskiptisetti 482

– með varadekki 465

* Lægstu tölurnar sem gefnar eru upp um koltvísýringslosun og eldsneytisnotkun (137/5,9) eru fyrir GS 450h Eco útfærslu með 17" álfelgum. Hæstu tölurnar (145/6,2) eru fyrir GS 450h F SPORT útfærslu með 19" álfelgum.

Í GS 450h Comfort útfærslum með 17" álfelgum eru samsvarandi tölur 139/6,0.

Í GS 450h Luxury útfærslu með 18" álfelgum og GS 450h Comfort útfærslu með sérpöntuðum 18" álfelgum eru samsvarandi tölur 141/6,1.

** Mælingar skv. VDA aðferð með dekkjaviðgerðarsetti. Innifalið í öllum tölum er geymslupláss undir gólfi farangursrýmisins.

Vinsamlegast athugið: upplýsingarnar sem hér eru gefnar eru byggðar á eigin prófunargögnum framleiðanda og geta breyst án fyrirvara. Hafðu samband við viðurkennt Lexus-umboð og/eða farðu á www.lexus.is til að fá uppfærðar

upplýsingar.

Page 61: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

1840 mm

1590 mm1575 mm

1455 mm

2855 mm1125 mm 870 mm

4850 mm

61TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR UM GS 450h HYBRID

1840 mm

1590 mm*1575 mm

1455 mm

2850 mm1130 mm 870 mm

4850 mm

* = 1560 mm fyrir F SPORT útfærslu með 265/35 R19 afturdekkjum.

Page 62: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

62 TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR UM GS 250 MEÐ BENSÍNVÉL

TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR UM GS 250 MEÐ BENSÍNVÉL

HÁMARKSAFKÖST

DIN hö. / kW 209 / 154

VÉL

Rúmtak (cm3) 2500

Strokkar/ventlar V6/24

Ventlakerfi Dual VVT-i

Tegund eldsneytis Bensín, 95 oktan eða +

Hámarksafl (DIN hö. / kW @ sn./mín.) 209 / 154 @ 6400

Hámarkstog (Nm @ sn./mín.) 253 @ 4800

GÍRSKIPTING

Drif Afturhjóladrif

Gírskipting 6 gíra sjálfskipting með möguleika

á raðskiptingu

AFKÖST

Hámarkshraði (km/klst.) 230

0–100 km/klst. (sek.) 8,6

CO2

ÚTBLÁSTUR (g/km)

Magn í útblæstri Euro V

Blandaður akstur 207

ELDSNEYTISNOTKUN (l/100 km)

Blandaður akstur 8,9

HEMLAR

Að framan Loftkældar diskabremsur

– Allar útfærslur (mm) 334

Að aftan Loftkældar diskabremsur

– Allar útfærslur (mm) 310

FJÖÐRUN

Að framan Tvíarma gaffalfjöðrun

Að aftan Fjölliðakerfi

STÝRISBÚNAÐUR

Gerð Tannstangarstýri

Lágmarks beygjuradíus (m) 5,3

ÞYNGD (kg)

Heildarþyngd bíls 2170

Eigin þyngd (lágm.–hám.) 1640 - 1720

Togkraftur (með bremsum) 1600

Togkraftur (án bremsu) 750

VIÐNÁMSSTUÐULL

Cd-gildi 0,27

RÝMI (l)

Eldsneytistankur 66

Farangursrými*

– með dekkjaskiptisetti 566

– með varadekki 552

– með varahjóli í fullri stærð 530

* Mælingar skv. VDA aðferð á ökutæki með dekkjaviðgerðarsetti. Innifalið í öllum tölum er geymslupláss undir gólfi farangursrýmisins.

Vinsamlegast athugið: upplýsingarnar sem hér eru gefnar eru byggðar á eigin prófunargögnum framleiðanda og geta breyst án fyrirvara. Hafðu samband við viðurkennt Lexus söluaðila og/eða farðu á www.lexus.is til að fá uppfærðar

upplýsingar

Page 63: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

1840 mm

1575 mm

1455 mm

2855 mm1125 mm 870 mm

4850 mm

1590 mm

63TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR UM GS 250 MEÐ BENSÍNVÉL

* = 1560 mm fyrir F SPORT útfærslu með 265/35 R19 afturdekkjum.

1840 mm

1575 mm

1455 mm

2850 mm1130 mm 870 mm

4850 mm

1590 mm*

Page 64: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

64 STAÐALBÚNAÐUR

VIRKUR ÖRYGGISBÚNAÐUR OG AKSTURSEIGINLEIKAR

4 skrefa VDIM-kerfi (Vehicle Dynamics Integrated Management)

Kerfi fyrir hemlun, stöðugleikastýringu og grip*

- ABS / BAS / ECB-R (aðeins GS 450h) / EPB / EPS / TRC / VSC

HAC-kerfi (aðstoð við að taka af stað í brekku)

Viðvörunarkerfi vegna lofts í dekkjum (TPWS)

ÁREKSTRARÖRYGGI

10 loftpúðar

– ökumaður og farþegi í framsæti; höfuð-, hliðar- og hnépúðar

– ytri aftursæti; hliðarpúðar

– hliðar farþegarýmis; loftpúðatjöld meðfram hliðum

Rofi til þess að gera loftpúða óvirkan hjá farþega í framsæti

Sjón- og hljóðmerki um að festa sætisbelti í framsætum

ISOFIX-festing, ytri aftursæti

Öryggisbelti með forstrekkjara, framsæti og ytri aftursæti

Sæti með vörn gegn hálshnykk (WIL) og virkum höfuðpúðum

YTRA BYRÐI

Virk hemlaljós

HID (High Intensity Discharge) bi-Xenon aðalljós

– sjálfvirk hæðarstilling með hreinsibúnaði

Hliðarspeglar

– rafræn stilling, með hita

– innbyggð stefnuljós og leiðarljós

Birtuskynjari og ljós sem lýsa leiðina frá bílnum

Þokuljós að framan og aftan

Díóðuljós (LED)

– dagljósabúnaður

– afturljósasamstæða

Rúðuþurrkur með regnskynjara

Hitaeinangrandi litað gler með vörn gegn útfjólubláu ljósi (UV)

ÖRYGGI

Þjófavarnarkerfi

– ræsivörn/hreyfiskynjari/sírena

HLJÓMTÆKI, SAMSKIPTI OG UPPLÝSINGATÆKNI

3,5" fjölnota upplýsingaskjár í lit

8" margmiðlunarskjár í mælaborði

12 hátalara hágæðahljómtæki

Klukka með hvítri díóðulýsingu

Hljóðtengi og USB-tengi

Bluetooth® tenging fyrir farsíma og spilara

DAB-útvarp/geislaspilari/DVD-spilari í mælaborði

Tvenns konar lýsing í mælaborði (blá/rauð)

Tvenns konar mælar (aðeins GS 450h)

– snúningshraðamælir / Hybrid kerfið

Vistakstursljós (aðeins GS 250)

EV-kerfi (eingöngu rafmagn) (aðeins GS 450h)

Optitron-mælar

Stjórntæki í stýri

– hljóð/skjár/sími/raddgreining

ÞÆGINDI OG BÚNAÐUR Í INNANRÝMI

Leðurklætt þriggja arma stýri

– gírskiptiflipar

12 V tengi að framan og aftan

Sílsahlífar með áláferð á fram- og afturhurðum

Hraðastillir

Auðvelt að stíga inn og út

– hægt að renna ökumannssæti og stýri til

Rafdrifnar rúður að framan og aftan

Fest aftursæti með armpúða í miðju

Armpúði og geymsluhólf á milli framsæta

Lýsing fyrir innstig

Innanrými lýst upp með díóðuljósi

Stefnuljós með þremur endurtekningum og sjálfvirkri stöðvun

Lyklalaus ræsing og opnun

Hægt að opna á milli til að koma farangri fyrir (aðeins GS 250)

STAÐALBÚNAÐUR

* ABS = Anti-lock Braking System (hemlakerfi með læsivörn) / BAS = Brake Assist System (hemlunaraðstoðarkerfi) / ECB-R = Electronically Controlled Braking – Regeneration (rafrænt hemlunarkerfi með endurnýtingu hemlunarafls) /

EPB = Electric Parking Brake (rafstýrð handbremsa) / EPS = Electric Power Steering (rafdrifið aflstýri) / TRC = Traction Control (spólvörn) / VSC = Vehicle Stability Control (stöðugleikastýring)

Page 65: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

65BÚNAÐUR EFTIR UPPFÆRSLU

EXE (GS 450h og GS 250)

(Til viðbótar við staðalbúnað)

17" álfelgur, 9 arma

– 225/50 R17 dekk

Akstursstilling

– ECO / NORMAL / SPORT S

Rafstýrð hita- og loftstýring

– tveggja svæða loftsía með lyktareyði

Upphituð leðuráklæði

Regnskynjari

Baksýnisspegill, með glýjuvörn (dofnar sjálfkrafa)

Rafstillanlegir hliðarspeglar

Fjarlægðarskynjarar (4 að framan og 4 að aftan)

Framsæti sem hægt er að stilla rafrænt

– 10 stillingar (bæði framsæti)

– 2 stillingar fyrir stuðning fyrir mjóbak (bæði framsæti)

– minni, þrjár stillingar (fyrir ökumann)

ECO (aðeins GS 450h)

(Til viðbótar við EXE)

Vindskeið að aftan, straumlínuhönnun

LUXURY (GS 450h og GS 250)

(Til viðbótar við / frábrugðið EXE)

18" álfelgur, 10 arma

– 235/45 R18 dekk

AVS-fjöðrun (Adaptive Variable Suspension)

Skott lokast sjálfvirkt (mjúk lokun)

Bi-Xenon framljós, viðbótareiginleikar

– AFS-framljósakerfi

– sjálfvirkt hágeislaljósakerfi (AHB)

Rafknúin loftræsting, viðbótareiginleikar

– þrjú svæði / nanoe® tækni / S-flæði

Framsæti, bílstjóra- og farþegasæti

– stillingar á 18 vegu - axlir, hliðar, höfuð og mjóbak (4

stillingar)

– hituð og loftræst / minni, þrjár stillingar

fjarlægðarskynjarar að framan og aftan

Armpúði milli aftursæta, viðbótareiginleikar

– upplýstur LCD- og fjölnotaskjár

Ytri aftursæti, upphituð

Semi Aniline leðuráklæði með viðarinnfellingum

SPORT S+ bætt við akstursstillingar

Sólskyggni

– afturrúða, rafknúið / rúður í afturhurðum, handvirkt

Viðvörunarkerfi vegna lofts í dekkjum (TPWS),

viðbótareiginleiki er sjálfvirk greining á staðsetningu

F SPORT (GS 450h og GS 250)

(Til viðbótar við / frábrugðið EXE)

19" álfelgur, F SPORT útfærsla

– dekk: 235/40 R19 (að framan) / 265/35 R19 (að aftan)

AVS-fjöðrun (Adaptive Variable Suspension)

Bi-Xenon framljós, viðbótareiginleikar

– sjálfvirk stilling framljósa (AFS)

– sjálfvirkt hágeislaljósakerfi (AHB)

Hliðarspeglar, viðbótareiginleikar

– felldir að með rafstýringu / dofna sjálfkrafa

F SPORT hönnun að utan*

– fram- og afturstuðari/vindskeið að aftan

– grill/hliðarmerki

F SPORT hönnun að innan

– álinnfellingar / svart áklæði í lofti

– götuð álfótstig / sérsmíðaðar sílsahlífar

– leðuráklæði aðeins í F SPORT

– stýri og gírstangarhnúður með götuðu leðri

Framsæti sem hægt er að stilla rafrænt

– 16 sætisstillingar fyrir ökumann, þar á meðal

hliðarstuðningur, framlengd seta og ferns konar

stuðningur við mjóbak

– hituð og loftræst ökumanns- og farþegasæti

Lexus Dynamic Handling (aðeins GS 450h)

– 5 skrefa VDIM

– DRS-kerfi

– VGRS-kerfi

Fjarlægðarskynjarar að framan og aftan

Baksýnisspegill, glýjuvörn (dofnar sjálfkrafa)

Rafknúið sólskyggni í afturrúðu

SPORT S+ bætt við akstursstillingar

BÚNAÐUR EFTIR UPPFÆRSLU

* Þokuljós að framan eru ekki staðalbúnaður í F SPORT.

Page 66: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

66 ÚTFÆRSLUR OG VALBÚNAÐUR

ÚTFÆRSLUR OG VALBÚNAÐUR

EXE (GS 450h og GS 250) ECO (aðeins GS 450h)

VALBÚNAÐUR

18" álfelgur, 10 arma

– 235/45 R18 dekk

Rafknúin sóllúga úr gleri

HDD-leiðsögukerfi

BLINDSVÆÐISSKYNJARI

– Blindsvæðisskynjari

VALBÚNAÐUR

Rafknúin sóllúga úr gleri

HDD-leiðsögukerfi

Page 67: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

67ÚTFÆRSLUR OG VALBÚNAÐUR

LUXURY (GS 450h) F SPORT (GS 450h og GS 250)

VALBÚNAÐUR

18" álfelgur, 18 arma

Blindsvæðisskynjari

Rafknúin sóllúga úr gleri

Hard Disk Drive (HDD) leiðsögukerfi

HUD-sjónlínuskjár

HLJÓÐKERFISUPPFÆRSLA

OG LEIÐSÖGUKERFI

– 12,3" tvískiptur margmiðlunarskjár

– Mark Levinson® hljóðkerfi með

17 hátölurum

– HDD-leiðsögukerfi

VALBÚNAÐUR

Rafknúin sóllúga úr gleri

HDD-leiðsögukerfi

Page 68: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

68 F SPORT

YTRA ÚTLIT F SPORT

F SPORT AFTURSTUÐARI OG -VINDSKEIÐ

Vindskeið að aftan og innbyggðir dreifarar á afturstuðara bæta niðurþrýsting og

draga úr loftmótstöðu svo að bíllinn helst afar stöðugur. Þessi hönnun F SPORT

bílsins gerir hann örlítið frábrugðinn Hybrid og bensínútfærslunum í útliti en gefur

honum kraftmikið og stílhreint yfirbragð.

SÉRSMÍÐAÐUR FRAMSTUÐARI OG GRILL

Einstakt grillið og stuðarinn fanga athyglina á F SPORT bílnum og gefa honum

djarfan og ákveðinn svip. Á neðri hlutanum að framan er innbyggð vindskeið auk

tveggja ytri grilla.

F SPORT 19" ÁLFELGUR

F SPORT útfærslan er með 19 tommu

álfelgur úr áli með „low profile“ dekkjum

– 235/40 (að framan) og 265/35 (að

aftan) – sem gera bílinn einstaklega

stöðugan í beygjum. 356 mm tveggja

hluta diskahemlar að framan tryggja

gríðarlegt hemlunarafl.

MERKI F SPORT

Áletrunin á F SPORT er látlaus en sker sig

samt úr. Hún endurspeglar innblásturinn

sem sóttur var í akstursíþróttir og minnir

á arfleifð bílsins, sem er að hluta hin sama

og í Lexus LFA V10 ofurbílnum.

Page 69: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

69F SPORT

SÉRSMÍÐAÐAR SÍLSAHLÍFAR

Innbyggðu sílsahlífarnar að framan og

aftan eru úr burstuðu stáli og með merki

Lexus ígreypt í hrafnsvörtum lit.

F SPORT STÝRI

Kraftur F SPORT er augljós og

áþreifanlegur þegar gripið er um

leðurklætt stýri þessa öfluga fólksbíls.

GÖTUÐ SPORTFÓTSTIG

Götuð álfótstigin endurspegla þau áhrif

sem hönnun kappakstursbíla hefur haft á

nýja GS F SPORT bílinn. Þau eru með

sérlega góðu gripi og því afar næm.

HÖNNUN INNRA RÝMIS F SPORT

LEÐURÁKLÆÐI F SPORT

Leður með tígullaga götum er nýjung sérstaklega hönnuð fyrir F SPORT. Einkennislitur

í innanrými F SPORT er fallegur granatrauður litur og í öllum F SPORT bílunum er

svart áklæði í lofti.

GÍRSTÖNG F SPORT

Gírstöng F SPORT er klædd götuðu

leðri í stíl við stýrið og gerir yfirbragðið

enn sportlegra.

ÁLINNFELLINGAR

Innfellingarnar, sem eru úr burstuðu stáli,

samsvara götuðum sportfótstigunum,

sílsahlífunum og öðrum innréttingum

F SPORT bílsins fullkomlega.

Page 70: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

70 AUKAHLUTIR

AUKAHLUTIR

LÚXUS SKÍÐA- OG SNJÓBRETTAFESTING

Straumlínulöguð festing úr áli með læsingu sem getur flutt allt að sex skíðapör eða

fjögur snjóbretti á öruggan hátt. Hægt er að losa og renna henni eftir toppgrindinni

niður að hlið bílsins, svo að auðvelt er að hlaða hana og losa.

MOTTA Í FARANGURSRÝMI

Mottan í farangursrými Lexus ver teppið

fyrir aur og óhreinindum. Hún er úr

þykku gúmmíi með stömu yfirborði og

háum brúnum og kemur sér til dæmis

vel þegar geyma á hluti eins og stígvél

eða gönguskó, útiföt eða barnakerrur.

„EASY CLICK“-

REIÐHJÓLAFESTING

Létt hjólafesting með smellibúnaði

sem hentar fyrir tvö reiðhjól. Auðvelt

er að koma henni fyrir, hún hallar í átt

frá bílnum til að hindra ekki aðgang að

farangursrýminu og hægt er að fella

hana saman fyrir geymslu. Ekki þarf

dráttarkrók til að festa hana og hún er

með ljós og festingu fyrir númeraplötu.

DRÁTTARKRÓKUR

Tilvalið er að nýta sér kraft og stöðugleika

GS með því að koma dráttarkrók

fyrir. Tilvalið til að draga hestakerru,

bát eða lítið hjólhýsi. Í aukahlutalínu

Lexus er að finna fjölda fastra, lausra og

útdraganlegra dráttarkróka auk 7 og

13 pinna raflagnabúnaðar.

DUO PLUS ISOFIX

BARNABÍLSTÓLAR

Öryggi fyrir börn á aldrinum 9 mánaða til

4 ára (um það bil 9 til 18 kg). Til að auka

öryggið eru sætin læst niður í stangir

með ISOFIX-festingum þannig að þau

hvíla í yfirbyggingu bílsins en eru einnig

með tjóðri uppi til að varna því að þau

steypist fram á við. Djúpar og bólstraðar

hliðar veita auka vernd.

Nálgast má ítarlegri upplýsingar um framboð á aukahlutum hjá viðurkenndum söluaðilum Lexus.

Page 71: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

71AUKAHLUTIR

19" ÞRYKKTAR ÁLFELGUR

19" felgurnar úr þrykktu áli eru hannaðar með aukin afköst og sportlegt yfirbragð

GS-bílsins í huga. Þær eru innblásnar af hönnun kappakstursbíla og auka kraft og

snerpu bílsins.

Page 72: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

72 LITIR Í INNANRÝMI

TAUÁKLÆÐIA. Svart

MJÚKT LEÐURC. Svart

F SPORT LEÐURG. Svart

INNFELLINGARK. Svart glansandi

B. Beinhvítt

D. Beinhvítt E. Ljósgrátt F. Leðurbrúnt

H. Beinhvítt I. Tópasbrúnt J. Granatrautt

L. Ál (F SPORT)

LITIR Í INNANRÝMI

Page 73: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

73LITIR Í INNANRÝMI

E/K

J/L

Page 74: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

74 LITIR Í INNANRÝMI

SEMI-ANILINE LEÐURÁKLÆÐIA. Svart

VIÐARINNFELLIN GARE. Íbenholt (glansáferð)

B. Beinhvítt C. Leðurbrúnt D. Tópasbrúnt

F. Valhnota (mött áferð) G. Bambus (mött áferð)

LITIR Í INNANRÝMI

B/F

A/G

Page 75: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

75LITIR Í INNANRÝMI

D/E

C/E

Page 76: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

76 LITIR Á YTRA BYRÐI

LITIR Á YTRA BYRÐI

PERLUHVÍTUR (077 CS)

SVARTUR (212 S)*

GRÁR (1H9 MC)

SILFURGRÁR (1J2)

NÆTURSVARTUR (217 GF)

ÓPALSVARTUR (214 MC)**

Page 77: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

77LITIR Á YTRA BYRÐI

DJÚPRAUÐUR (3S8 GF)

DJÚPBLÁR (8W3 MM)

SIENNA BRÚNN (4V3 MM)

LEIRLJÓS (4U7 ME)

DIMMBLÁR (8V3 MC)

* Gegnheill litur

** Aðeins GS 450h

Vinsamlegast athugið: F SPORT fæst aðeins í perluhvítum, silfurgráum, djúprauðum, svörtum og gráum lit.

Page 78: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

78 REYNSLA EIGENDA

REYNSLA EIGENDA

Við lítum svo á að með því að hugsa vel um Lexus

séum við einnig að hugsa vel um þig. Hver einasti

liðsmaður Lexus-hópsins hefur lagt sitt af mörkum til

að þín upplifun verði einstök. Þetta nær til allra þátta

í þjónustu okkar. Framúrskarandi þjónusta er meira

en bara markmið hjá okkur – hún er okkur ástríða.

VIÐ PÖSSUM UPP Á BÍLINN:

LEXUS-ÞJÓNUSTA

Lexus-þjónusta gefur þér færi á að treysta hæfum

atvinnumönnum fyrir velferð bílsins þíns og um leið

fáum við tækifæri til að veita þér bestu þjónustu sem

völ er á.

FAGLEG UMSJÁ

Við mælum með því að þú farir alltaf með bílinn

í  skoðun hjá viðurkenndum Lexus-þjónustuaðila.

Sérþjálfaðir tæknimenn okkar eru ávallt með nýjustu

upplýsingar um Lexus-þjónustu, verkfræði og tækni.

UMHVERFI

Til að draga úr myndun úrgangs er varahlutum safnað

saman og þeir endurunnir, auk þess sem efni sem

notuð eru til loftkælingar eru endurnýtt. Við stundum

einnig rannsóknir á skilvirkari aðferðum og tækni til

að taka í sundur bíla að líftíma þeirra liðnum. Auk þess

erum við að þróa aðferðir til að nýta leifar eftir tætingu,

sem hingað til hafa verið taldar óendurvinnanlegar.

ÁBYRGÐIR

FYRIR ALLAR BIFREIÐAR

5 ÁRA ALHLIÐA ÁBYRGÐ

Hún nær til hvers konar ágalla sem rekja má til galla

í  framleiðslu eða samsetningu sem koma í ljós við

venjulega notkun. Hún gildir í fimm ár eða 160.000 km

akstur, hvort sem fyrr verður, en engin takmörk eru á

eknum kílómetrafjölda fyrsta árið.

3JA ÁRA YFIRBORÐSRYÐS- OG

LAKKÁBYRGÐ

Ábyrgðin nær til yfirborðsryðs eða galla í lakki sem

koma fram á lökkuðum hlutum yfirbyggingar og stafa

af efnisgalla eða slælegum vinnubrögðum. Ábyrgðin

er óháð fjölda ekinna kílómetra.

12 ÁRA ÁBYRGÐ Á RYÐVÖRN

12 ára ábyrgð er veitt, óháð akstri, vegna gegnumryðs

á yfirbyggingunni (að innan og utan) sem hlýst af

tæringu sem rekja má til efnisgalla eða slælegra

vinnubragða.

LEXUS HYBRID DRIVE BIFREIÐAR

5 ÁRA ALHLIÐA ÁBYRGÐ Á ÍHLUTUM

Í HYBRID KERFI

Í tvinnbílunum eru tilteknir íhlutir tvinnkerfisins með

fimm ára eða 100.000 km ábyrgð, hvort sem á undan

kemur. Frekari upplýsingar er að fá hjá viðurkenndum

söluaðila Lexus.

Ábyrgðin flyst á milli eigenda.

Page 79: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi
Page 80: 10376 - GS NG Model Combined_ISL_150dpi_150dpi

LEXUS GSHafðu samband við söluaðila Lexus eða heimsæktu vefsíðu

Lexus til að fá frekari upplýsingar um GS.

www.lexus.is/newgs

© 2012 Lexus Europe* áskilur sér rétt til að breyta öllum atriðum tæknilýsingar og búnaðar

án fyrirvara. Tæknilegar upplýsingar og útbúnaður geta verið mismunandi milli landa.

Vinsamlegast hafðu samband við viðurkenndan söluaðila Lexus til að fá nánari upplýsingar.

Ath.: Upplýsingum og myndum af ökutækjum í þessum bæklingi er einungis ætlað

að vera leiðbeinandi. Litir á yfirbyggingum geta verið frábrugðnir þeim sem birtast á

ljósmyndum í þessu riti.

Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu okkar: www.lexus.is

Umhverfismál eru Lexus afar hugleikin. Við leggjum því mikla áherslu á að halda

umhverfisáhrifum þeirra bíla sem við framleiðum í algjöru lágmarki út allan endingartíma

þeirra – allt frá hönnun, framleiðslu, dreifingu, sölu og viðhaldsþjónustu til endanlegrar

förgunar. Frekari upplýsingar má fá hjá söluaðila.

* Lexus Europe er deild innan Toyota Motor Europe NV/SA.

Prentað í Evrópu, febrúar 2012

Skannaðu þennan kóða með

símanum þínum til þess að fræðast

meira um Lexus GS.

LEXUS GS

Kraftmikil hönnun

LEX

US

GS