3.3 Stjórnskipan

Post on 24-Feb-2016

57 views 0 download

description

3.3 Stjórnskipan. 3. hluti – Hverjir ráða. Stjórnskipan ( bls . 117). Hvernig heldur þú að íslenskt þjóðfélag yrði ef hér giltu engar reglur? Hvað myndi gerast í bekknum þínum ef enginn stjórnaði og allir gætu hegðað sér nákvæmlega eins og þeim sýndist?. Stjórnskipan ( bls . 118). - PowerPoint PPT Presentation

Transcript of 3.3 Stjórnskipan

3.3 Stjórnskipan3. hluti – Hverjir ráða

Stjórnskipan (bls. 117)

• Hvernig heldur þú að íslenskt þjóðfélag yrði ef hér giltu engar reglur?• Hvað myndi gerast í bekknum þínum ef enginn stjórnaði og allir gætu hegðað sér nákvæmlega eins og þeim sýndist?

Stjórnskipan (bls. 118)

• Ef samfélagið á að geta haldið velli verða að vera til lög og reglur sem segja til um hvað má og hvað ekki, hver eigi að stjórna, hvernig og hvers vegna.• Á Íslandi eru lögin sem segja til um stjórnun landsins skráð í stjórnarskrá, en þau eru æðri öllum öðrum lögum í landinu.

Stjórnskipan (bls. 118)

• Í stjórnarskrá íslenska lýðveldisins er fjallað um stjórnskipan lýðveldisins og hvernig ríkinu skuli stjórnað.• Núverandi Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins er frá árinu 1944.

Stjórnskipan (bls. 118)

• Þjóðaratkvæðagreiðsla: Þegar atkvæðisbærir Íslendingar kjósa um mikilvæg opinber mál í beinni kosningu. Gerist sjaldan. Reyndu að finna út (t.d. gegnum Netið) hversu margar þjóðaratkvæðagreiðslur hafa verið haldnar hér frá upphafi lýðveldis árið 1944.

Stjórnskipan (bls. 118)

• Elsta núgildandi stjórnarskrá í heimi er stjórnarskrá Bandaríkjanna frá 1787 en hún tók gildi tveimur árum síðar (1789).• Mun erfiðara er að breyta lögum í stjórnarskrá en öðrum lögum vegna þess að þar er að finna undirstöðulög ríkisins.

Stjórnskipan (bls. 118)

• Breytingar á stjórnarskrá:Ef Alþingi samþykkir frumvarp (tillögu að lögum) um stjórnarskrárbreytingu þá skal rjúfa þing og boða nýjar kosningar. Eftir þær kosningar er sama frumvarp lagt fyrir aftur.

Stjórnskipan (bls. 118)

• Breytingar á stjórnarskrá: Ef hið nýja Alþingi samþykkir frumvarpið í upprunalegri mynd, tekur stjórnarskrár-breytingin gildi eftir að forsetinn hefur staðfest hana með undirskrift sinni.

Stjórnskipan (bls. 118)

• Stjórnarskrár nútímans eiga allar að verulegu leyti rætur sínar að rekja til: Stjórnarskrár Bandaríkjanna (1789) og Frönsku byltingarinnar (1789).

• Flest ríki heims hafa stjórnarskrár, þó ekki öll.

Þrískipting ríkisvaldsins(bls. 118)

• Á Íslandi er ríkisvaldinu skipt á milli þriggja embætta:1. Löggjafarvald. Forseti Íslands og Alþingi

fara með löggjafarvaldið.

2. Framkvæmdavald. Forseti Íslands og ríkisstjórn.

3. Dómsvald. Dómarar fara með dómsvaldið.

Þrískipting ríkisvaldsins(bls. 118)

• Frakkinn Montesquieu (1689-1755) setti fram kenninguna um þrískiptingu ríkis-valdsins.• Hugmyndin með þrískiptingunni var að koma í veg fyrir að handhafar eins valdsins gætu misnotað völd sín.

Hvað eru mannréttindi?(bls. 119)

• Þrenns konar skilningur lagður í hugtakið mannréttindi.1. Lagalegur skilningur. Réttindi sem eru

skilgreind í réttindaskrám og alþjóðasamþykktum.

2. Pólitískur skilningur. Réttindi sem talið er æskilegt að tryggja fólki.

Hvað eru mannréttindi?(bls. 119)

• Þrenns konar skilningur lagður í hugtakið mannréttindi.3. Siðferðilegur skilningur. Réttindi sem allir

menn hafa óháð staðbundnum kringumstæðum.

Hvað eru mannréttindi?(bls. 119)

• Mannréttindum í lagalegum skilningi er ætlað að tryggja einstaklingum og hópum vernd fyrir hvers konar vanrækslu og aðgerðum gegn grundvallarréttindum og mannvirðingu.• Mannréttindi eru réttindi sem eru okkur nauðsynleg til að lifa sem manneskjur.• Mannréttindi eru alþjóðleg.

Hvað eru mannréttindi?(bls. 120)

• Mannréttindi fela í sér virðingu fyrir öðrum og fyrir sjálfum sér. Þú getur lesið um mikilvægustu einkenni mannréttinda á bls. 120 og 121.

Hvaðan koma mannréttindi?(bls. 121)• Ólíkar skoðanir á hvar mannréttindin eiga rætur sínar.• Í trúarlegum og siðferðilegum hugmyndum um uppruna mannréttinda hefur verið lögð áhersla á virðingu og mannlega reisn sem allir einstaklingar hafa rétt á.

Hvaðan koma mannréttindi?(bls. 122)• Hafa einstaklingar, líkt og ríki, skyldur gagnvart mannréttindum? Eru alþjóðleg gildi mannréttinda raunhæf í heimi sem einkennist af ólíkum menningarheimum? Eru einhver mannréttindi mikilvægari en önnur? Er munur á einstaklingsréttindum og réttindum sem eru sameiginleg?

Forseti Íslands (bls. 122)

• Ísland er lýðveldi vegna þess að þjóðhöfðingi landsins, forsetinn, er kosinn beint af þjóðinni í lýðræðislegum kosningum.• Á fjögurra ára fresti fara fram almennar kosningar þar sem forseti er þjóðkjörinn.

Forseti Íslands (bls. 122)

• Frá því að Ísland varð sjálfstætt ríki hafa fimm forsetar verið kosnir. Þeir eru:1. Sveinn Björnsson frá 1944-19522. Ásgeir Ásgeirsson frá 1952-19683. Kristján Eldjárn frá 1968-19804. Vigdís Finnbogadóttir frá 1980-19965. Ólafur Ragnar Grímsson frá 1996

Völd forseta (bls. 124)

• Sumir halda að forseti Íslands sé nánast valdalaus en aðrir telja að hann geti haft töluverð völd.• Af hverju er forseti valdalaus? Í stjórnarskránni stendur: Forseti lýðveldisins er ábyrgðarlaus á stjórnarathöfnum. Ráðherrar bera ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum.

Völd forseta (bls. 124)

• Rök með að forseti hafi töluverð völd: Í stjórnarskránni stendur að forseti geti neitað að skrifa undir og staðfesta lög. Ef forseti neitar að skrifa undir lög þá verður að leggja málið fyrir þjóðina með þjóðaratkvæðagreiðslu.

Völd forseta (bls. 124)

• Forseti Íslands hefur þrisvar sinnum beitt neitunarvaldi (ekki bara einu sinni eins og stendur í bókinni): Árið 2004 neitaði forseti Íslands að skrifa undir frumvarp ríkisstjórnarinnar um fjölmiðla. Árið 2010 neitaði forseti Íslands að staðfesta svokölluð Icesave lög sem Alþingi samþykkti nokkru fyrir áramót 2009. Í byrjun árs 2011 neitaði forseti Íslands að staðfesta ný lög um Icesave.

Völd forseta (bls. 124)

• Hlutverk forseta Íslands: Hann er æðsti embættismaður þjóðarinnar og sameiningartákn út á við. Hann er fulltrúi lands og þjóðar gagnvart umheiminum og afar mikilvægur sem slíkur. Hann hefur mikilvægu hlutverki að gegna við stjórnarmyndanir.

Forsetastjórn (bls. 124)

• Í Bandaríkjunum og víðar er forseti bæði leiðtogi ríkisstjórnar og þjóðhöfðingi. Í almennum kosningum eru kjörmenn kosnir en þeir kjósa síðan forsetann.• Sjá nánar: http://is.wikipedia.org/wiki/Forsetakosningar_%C3%AD_Bandar%C3%ADkjunum

Stjórnmálaflokkar (bls. 124-125)

• Í fulltrúalýðræði kjósa þegnarnir tiltekna einstaklinga sem fulltrúa sína. Fólk myndar stjórnmálaflokka og hver kjósandi velur í kosningum þann flokk sem honum líst best á.• Stjórnarskráin segir ekkert til um stjórn-málaflokka. Þeir tengjast þó löggjafarvaldinu (Alþingi) og eru mikilvægir sem slíkir.

Fjárlög (bls. 125)

• Þú kemst ekki langt án peninga og það sama á við um íslenska ríkið. Fjármálaráðherra leggur fram á Alþingi frumvarp (tillögu) til fjárlaga. Stefna stjórnmálaflokkanna kemur berlega í ljós við umræður um fjárlögin á Alþingi.

Fjárlög (bls. 125-126)

• Þingmenn stjórnmálaflokkanna reyna að hafa áhrif á fjárlögin þannig að meiri peningar séu veittir í þau mál sem eru þeim hjartfólgnust og minni peningar í önnur mál. Oft verða þingmenn að gefa eftir í einu máli til að ná fram markmiðum í öðru.

Fjárlög (bls. 126)

• Fjárlögin marka stefnu í þróun samfélagsins: Í fjárlögum koma fram áætlanir um tekjur ríkisins og eins um útgjöld. Fjárlögin endurspegla hvernig Alþingi vill skipta gæðum og deila byrðum í samfélaginu.

Starfsemi Alþingis (bls. 126)

Málstofa: Er það sama og þingsalur og þar fara umræður fram. Þar eru lög samþykkt. Allir þingfulltrúar (þingmenn) eiga að vera til staðar við atkvæðagreiðslu mála.

Starfsemi Alþingis (bls. 126)

Þingnefndir: Vinna við lagasetningar fer að mestu leyti fram í þingnefndum sem skipta með sér verkum. Þingnefndir semja nefndarálit sem lagt er fyrir þingfundi og þingflokksfundi.

Starfsemi Alþingis (bls. 126)

Þingflokkar: Í þingflokknum er yfirleitt ákveðið hvernig þingmenn hvers flokks greiði atkvæði á þingfundum. Á þingfundinum (í málstofu) ferð því aðeins fram formleg afgreiðsla málanna og stundum eru ræðuhöldin meira eða minna sviðsett fyrir fjölmiðla.

Starfsemi Alþingis (bls. 127)

Fastanefndir Alþingis: Allir þingmenn eru kosnir í sérstakar fagnefndir sem starfa innan þingsins. Málefnaskipting nefndanna er í stórum dráttum sú sama og í stjórnarráðinu (ráðuneytum). Farðu inn á heimasíðu Alþingis (althingi.is) og kannaðu hvað fastanefndirnar heita.

Starfsemi Alþingis (bls. 127)

Forseti Alþingis: Staðan þykir virðingarverð og er talin jafngilda því að vera ráðherra. Forseti Alþingis stjórnar fundum og annarri starfsemi Alþingis og hann er einn þriggja sem fer með vald forseta Íslands í fjarveru hans. Hinir tveir eru forsætisráðherra og forseti Hæstaréttar.

Starfsemi Alþingis (bls. 127)

Þingflokkar: Hver þingflokkur velur sér einn formann innan sinna raða og kemur sá fram fyrir hans hönd gagnvart forseta þingsins, öðrum þingflokkum og þingmönnum. Formaðurinn kallast þingflokksformaður. Hverjir eru þingflokksformenn nú (leitaðu á Netinu).

Lagasetning (bls. 127)

Þingflokkar: Hugmyndir um lagasetningu geta komið víða að en oftast eru þær frá stjórnmálamönnunum sjálfum. Allir þingmenn hafa rétt til að leggja fram lagafrumvörp.

Lagasetning (bls. 127)

• Stjórnarfrumvörp koma frá ríkisstjórn eða stuðningsmönnum hennar (stjórnarliðum).• Þingmannafrumvörp koma frá einstaka þingmönnum, oftast þeim sem eru í stjórnarandstöðu.

Lagasetning (bls. 127-128)

• Í stjórnarskránni stendur að ekkert lagafrumvarp megi samþykkja fyrr en það hafi verið rætt við þrjár umræður á Alþingi. Þetta er gert til að tryggja þingmönnum tíma til að kynna sér frumvarp.• Fjölmiðlar og hagsmunasamtök reyna að hafa áhrif á undirbúning lagasetningarinnar allan tímann sem frumvarp er til umræðu á Alþingi.

Hagsmunahópar (bls. 128)

• Skipulögð samtök einstaklinga eða félaga sem setja fram ákveðnar kröfur á hendur annarra hópa eða stjórnvalda út frá markmiðum hópsins. • Venja er að greina á milli tveggja gerða hagsmunasamtaka:

Hagsmunahópar (bls. 128)

1. Samtök sem hafa það að markmiði að gæta efnahagslegra hagsmuna félagsmanna sinna. Til þeirra teljast samtök verkalýðsfélaga og atvinnurekenda.

2. Hagsmunasamtök einstaklinga sem hafa svipuð viðhorf til ákveðinna mála og reyna að ná til fólks á öllum sviðum samfélagsins. Dæmi um slík samtök eru náttúruverndarsamtök.

Framkvæmdavaldið (bls. 129)

• Þó að Alþingi sé afkastamikið getur það ekki bæði tekið ákvarðanir og séð um að framkvæma þær líka.• Samkvæmt stjórnarskrá er ríkisstjórnin sá aðili sem á að framkvæma ákvarðanir Alþingis.• Ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru yfirleitt einnig þingmenn – en þeir þurfa ekki að vera það.

Ríkisstjórn (bls. 130)

• Ríkisstjórnin fer með framkvæmdavaldið í umboði forseta Alþingis. Hún á að framkvæma samþykktir Alþingis.• Alþingi og ríkisendurskoðun (sem Alþingi ræður yfir) fylgjast grannt með ríkisstjórn-inni.

Ríkisstjórn (bls. 130)

• Forseti Íslands er annar handhafi fram- kvæmdavaldsins og samkvæmt stjórnarskrá velur hann ríkisstjórn: Eftir hverjar Alþingiskosningar felur forseti Íslands formanni eins stjórnmálaflokks að mynda ríkisstjórn.

Ríkisráð (bls. 130)

• Forseti Íslands situr í ríkisráði ásamt ráð-herrum ríkisins og er forseti þess. Á ríkisráðsfundum verður ríkisstjórnin að bera upp við forsetann lög og aðrar mikilvægar stjórnarathafnir. Á ríkisráðsfundum getur forsetinn tekið upp öll þau mál sem hann vill og rætt um þau við ráðherra.

Ríkisráð (bls. 130)

• Forsætisráðherra kemur með tillögu um hvenær eigi að halda ríkisráðsfundi en þeir fara fram á skrifstofu forseta Íslands.• Öll lög sem Alþingi hefur samþykkt eru lögð fyrir forsetann á ríkisráðsfundum og hann verður að staðfesta þau með undirskrift sinni svo að þau taki gildi.

Sveitarfélög (bls. 131)

• Íslandi er skipt upp í mörg sveitarfélög. Allir landsmenn eru skráðir með lögheimili í einhverju sveitarfélagi – en það þýðir að þeir eru skráðir með fasta búsetu þar og greiða skatta til þess. Sveitarfélögum hefur farið fækkandi á síðustu árum vegna sameiningar þeirra.

Sveitarfélög (bls. 131)

• Sveitarfélag er hreppur, kaupstaður, bær eða borg sem hefur ákveðin staðarmörk sem óheimilt er að breyta nema með lögum.• Sveitarfélög hafa ýmis verkefni sem eru ákveðin með lögum frá Alþingi en þar að auki geta þau tekið að sér sérstök verkefni sem snerta íbúana.

Sveitarfélög (bls. 131)

• Helstu verkefni sveitarfélaganna eru félags-leg þjónusta, ýmsar verklegar framkvæmdir, fræðslumál, rekstur grunnskóla, atvinnumál, heilsugæsla og margt fleira. Hagsmunasamtök sveitarfélaganna kallast Samband íslenskra sveitarfélaga og voru stofnuð árið 1945. Skoðaðu heimasíðu samtakanna á Netinu.

Dómsvaldið (bls. 131-132)

• Í öllum þjóðfélögum eru sett lög til að tryggja réttindi þegnanna og til að gæta þess að jafnræði sé á milli einstaklingsfrelsisins og fjöldans. Slík lög flokkast undir refsilög.• Lögin eiga líka að skera úr um deilumál á milli einstaklinga. Lög um slíkan ágreining falla undir svokallaðan einkamálarétt.

Dómsvaldið (bls. 132)

• Styttur sem tákna réttlæti eru með bundið fyrir augun til að sýna að lögin geri ekki mannamun.• Vogarskálarnar vísa til þess að réttlætið vegi og meti öll rök með og á móti líkt og vörur á vog.• Sverðið táknar refsingu.

Alþjóðaréttur (bls. 132)

• Alþjóðleg vandamál krefjast samvinnu allra þjóða heims.• Mörg lönd hafa gert með sér milliríkja-samninga um til dæmis framsal glæpamanna.

Dómstólar (bls. 132)

• Hver sá sem sakaður er um glæp á rétt á að mál hans sé tekið fyrir hjá dómstólum.• Ríkislögreglustjóri rannsakar öll alvarleg mál, eins og morð og nauðganir, og sendir niðurstöður sínar til ríkissaksóknara sem metur hvort ákæra verði gefin út.

Opinber mál (bls. 132-133)

• Eru þau mál sem handhafar ríkisvaldsins – ákæruvaldið − höfðar á hendur mönnum.

• Dauðarefsingar eru enn stundaðar í fjölmörgum ríkjum heims. Síðasta aftakan hér á landi (Agnes og Friðrik) fór fram árið 1830 en dauðarefsing var afnumin hér um 100 árum síðar (1928).

• Þú getur fundið meira um dauðarefsingar á heimasíðu samtakanna Amnesty International.

Persónufrelsi (bls. 133)

• Í íslensku stjórnarskránni er sérstakur kafli um mannréttindi. Þar stendur m.a.: Engan má svipta frelsinu nema með heimild samkvæmt lögum. Hver sá sem sviptur er frelsi skal tafarlaust fá að vita um ástæðuna.

Persónufrelsi (bls. 133)

• Hvern þann sem handtekinn er vegna gruns um refsiverða hegðun skal án undantekningar leiða fyrir dómara.

• Dómari skal innan eins sólarhrings ákveða með rökstuddum úrskurði hvort handtekinn maður skuli sæta gæsluvarðhaldi.

• Gæsluvarðhaldi má aðeins beita fyrir sök sem þyngri refsing liggur við en fésekt eða varðhald.

Persónufrelsi (bls. 133)

• Varðhald er vægasta gerð fangelsisdóma, og varir frá fimm dögum hið skemmsta og að hámarki tvö ár.• Dómstólar: Í stjórnarskrá stendur að lög-lærðir dómarar fari með dómsvaldið. Hér á landi eru dómstigin tvö, héraðsdómur og Hæstiréttur.

Hæstiréttur Íslands(bls. 133-134)

• Hæstiréttur er æðsti dómstóll íslenska ríkisins. Hann tók til starfa árið 1920.

• Það er ekki hægt að áfrýja dómum Hæstaréttar en hann getur endurupptekið mál ef sérstök ástæða þykir til.

• Hæstaréttardómararnir, sem eru níu, eru skipaðir af forseta Íslands samkvæmt tillögum innanríkis-ráðherra.

Héraðsdómur (bls. 134)

• Héraðsdómstólar eru lægra dómstig en Hæstiréttur – en þeir eru samtals átta hérlendis.

• Héraðsdómstólar eru nefndir eftir umdæmunum sem þeir eru í (sjá kort á bls. 134).

• Héraðsdómarar dæma í opinberum málum og einkamálum sem upp kunna að koma í þeirra umdæmi.

Lögreglan (bls. 135)

• Sérstakar liðssveitir sem ætlað er að halda uppi röð og reglu, hafa eftirlit með að lögum og lögreglusamþykktum sé fylgt eftir og rannsaki brot.• Dæmi um lögreglusamþykktir er útivistartími barna og unglinga.

Lögreglusamþykktir (bls. 135)

• Innanríkisráðherra setur reglugerð um lögreglusamþykkt sem á að vera fyrirmynd að lögreglusamþykktum sveitarfélaganna. Sveitarfélögin setja eigin lögreglusamþykktir út frá viðmiðum innanríkisráðherrans – þess vegna eru lögreglusamþykktir ekki nákvæmlega eins í öllum sveitarfélögum.

Ákæruvaldið (bls. 135)

• Ríkissaksóknari er æðsti handhafi ákæruvaldsins.• Ríkislögreglustjóri hefur yfirumsjón með löggæslumálum hér á landi. Embættið var stofnað árið 1997. Skoðaðu mynd 3.9 á bls. 135 og teikninguna yfir lögregluumdæmin á bls. 136.

Ákæruvaldið (bls. 136)

• Skipting ákæruvaldsins: Ríkkissaksóknari fer með ákæruvald vegna brota sem þyngst refsing liggur við. Lögreglustjórar/sýslumenn höfða önnur mál en þau sem ríkissaksóknari höfðar. Ríkislögreglustjóri fer með ákæruvald vegna skatta- og efnahagsbrota.

Ákæruvaldið (bls. 136)

• Sönnunarbyrði. Þú ert saklaus þar til sekt þín er sönnuð. Sönnunarbyrði hvílir á ákæruvaldinu og allur vafi skal metinn ákærða í hag. Lögreglan hefur heimild til að handtaka þig og halda þér í allt að 24 tímum ef rökstuddur grunur er um að þú hafir brotið af þér.

Ákæruvaldið (bls. 136)

• Sönnunarbyrði. Innan 24 tíma frá handtöku skal leiða sakborning fyrir dómara sem kveður upp úr um hvort ástæða sé til að halda honum lengur.

Ákæruvaldið (bls. 137)

• Fangelsi og refsing. Ef einhver hefur brotið af sér áður en hann nær 15 ára aldri telst málið vera barnaverndarmál og ekki hægt að dæma viðkomandi í fangelsi. Hins vegar er hægt að vista slíkan einstakling á sérhæfðum heimilum eða stofnunum.

Barnaverndarstofa hefur umsjón og eftirlit með sérhæfðum heimilum og stofnunum sem ungmenni eru vistuð í.

Ákæruvaldið (bls. 137)

• Fangelsi og refsing. Þú verður sakhæfur við 15 ára aldur – og þá er hægt að gefa út ákæru á hendur þér fyrir refsiverð brot. Sjaldgæft er að unglingar undir 18 ára aldri séu dæmdir í fangelsi. Ekkert sérstakt unglingafangelsi er til hér á landi líkt og víða erlendis.

Kafla 3.3 er lokið

• Hér lýkur glósum úr kafla 3.3• Nú áttu bar eftir að svara spurningunum á bls. 139.